Mánudagur 4. október

No more english for me please

Fór og talaði við yfirmenn minnar deildar í skólanum í dag og fæ að sleppa við ensku. Þarf ekki að taka prófin eða neitt. Þetta var samt svona týpískt franskt: fyrsti viðmælandi minn sagði að ég þyrfti að taka hana þar sem að íslenska og danska væru ekki nógu útbreidd tungumál til að geta komið í staðinn en að ég gæti kannski sloppið við að mæta í tíma og tekið bara prófin. Þá fór ég og talaði við "le directeur" og hann sagði að þetta væri tóm þvæla og að ég þyrfti ekki að taka neina útlensku þar sem ég talaði nú þegar mjög margar útlenskur. Mér leist best á hans svar og þar sem hann er líka sá hæst setti í deildinni þá ætla ég bara að trúa honum.

- Svanhildur | 18:05
Umræður

Beta:

hihi...sammála síðasta ræðumanni....það var ágætis lýsing...hehe

(05.10.04 00:58)

Torfi:

málið er að tala bara strax við þá sem að ráða einhverju.... undirtillur og millistjórnendur eru bara fyrir !!!

12 stig.

(05.10.04 08:39)

Beta:

Víhí, gott mál. En þar sem þú átt í höggi við franska stjórnsýslu, fékkstu ekki örugglega undisrkrifaða og stimplaða yfirlýsingu frá manninum um að þú þyrftir ekki að taka enskuna? Annars verða ritararnir reiðir.... ;)

(05.10.04 10:38)

Svanhildur:

Þarf að skila inn stúdentsprófinu og ba prófinu mínu til að þetta geti gengið í gegn. Er því bara að bíða eftir að útskrifast.

(05.10.04 10:49)

Mundi:

til að vera viss mundi ég líka taka með:
eitt umslag með frímerki, afrit af leigusamningi, rafmagnsreikningi, símreikningi og það er alltaf gott að hafa líka afrit af fæðingarvottorði og svo vegabréfi ásamt því að hafa með sér nesti til að maula í röðinni. :)

(05.10.04 10:52)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni