Þriðjudagur 12. október

Leiðinda flensa

Já nú er Mundi lagstur. Það virðist ekki skipta neinu máli fyrir haustflensuna hvort það sé 5 stiga hiti og rigning eða 20 stig og sól. Allavega virðist hún ná að grassera alveg jafn mikið hér í Grenoble og í Reykjavík. Nú erum við 4 hérna á hæðinni búin að veikjast af þessum andsk...


En ég er sem betur fer orðin nokkuð frísk og er að hamast við að læra en reyni nú líka að vera góð við sjúklinginn og steikti lummur áðan úr afganginum af grjónagrautnum frá því í gær. Við buðum Kelit (kemur frá Perú) yfir til okkar í lummur og fengu þær góða einkunn hjá henni, enda hverjum finnast ekki lummur góðar?

- Svanhildur | 12:11
Umræður

Ziggy Flotti:

Nákvæmlega, lummur er bara góðar. N.B. seljast eins og heitar lummur, ekki það að ég veit ekki um neinn sem hefur keypt lummur og því seljast þær faktískt ekki!!!

(12.10.04 12:25)

Torfi:

.... það er ekki lummó að vera með lummur.... eins einkennilega og það nú hljómar.

(12.10.04 12:53)

mundi:

en gott er að luma á lummu - ekki spurning

(12.10.04 13:34)

mundi:

eru þetta ekki gamlar lummur sem við erum að tala um??

(12.10.04 19:51)

Bjørk:

thessi mynd af ykkur fær mig alltaf til ad brosa thegar eg lit her inn... frabaer:)

(13.10.04 13:34)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni