Fimmtudagur 28. október

Komin frá París og á leið upp í fjöllin

Já við komum heim í gærkvöldi eftir að hafa átt alveg frábæra fimm daga með mömmu, pabba og Gauta. Við vorum heppin með veður í París og það var mikið túristast og mikið snætt á veitingastöðum. Svo fórum við einn daginn í EuroDisney og það er nú bara ansi skemmtilegur garður. Það var alveg æðislegt að fá að eyða nokkrum dögum með fjölskyldunni og ég vil þakka þeim fyrir þennan tíma og svo líka Jóni og Guðrúnu fyrir að hýsa okkur. Náðum nú ekki að gera mikið með þeim en þó var nokkrum sinnum gripið í spil og rauðvín á kvöldin.


En í kvöld er ferðinni heitið upp í fjöllin til hans Gonna þar sem Mundi ætlar að mála smá fyrir hann og ég ætla að læra. Komum sennilega ekki til baka fyrr en á mánudaginn og svo byrjar skólinn aftur hjá mér á þriðjudaginn.

- Svanhildur | 08:29
Umræður

Torfi:

þeytispjald

(28.10.04 08:36)

Bjössi:

gott að vita að þið eruð lífs....

(28.10.04 11:19)

Ziggy Flotti:

Til lukku með Parísardvölina.

(28.10.04 14:22)

Torfi:

... ég vil vekja sérstaka athygli á síðunni:

http://www.BUTTString-MUNDI-pharmacy.info

hún er víst algóð :|

(31.10.04 12:11)

jons:

Já ég kaupi alla mína strengi þar!

(02.11.04 09:18)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni