Mánudagur 4. október

haust eða hvað?

þetta er voða skrítið með haustið hérna í Grenoble. í dag er 27 stiga hiti og logn. samt horfir maður út um gluggan og sér að laufin eru að gulna á trjánum og haustið er á næsta leiti. og ég sem alltaf hef haldið að trén felldu laufin þegar það færi að kólna og svo kæmu haustlægðirnar og blésu þeim af. þannig virðist því ekki vera farið hér. merkileg náttúran. í fyrra var haustið hérna 3 dagar. það tók góða helgi að fara úr sumri yfir í vetur. ég vona að það gerist ekki alveg strax.

- mundi | 14:59
Umræður

Ziggy Flotti:

Lauf fara að gulna þegar að sá tími sem er bjartur fer minnkandi. Þetta hefur með ljóstillífun að gera sem þarfnast birtu, ekki endilega sólar. Þetta er sem C innbyggt í plönnturnar að þegar að birtutímum fækkar, fella þær laufin, hefur ekkert með ljósmagn þeirra stunda þegar bjart er að gera!
Þar hefurðu það!!

(05.10.04 10:41)

mundi:

ég þakka Sigurði líffræðingi fyrir hans góðu útskýringu á þessu dularfulla fyrirbæri. Þá veit ég þetta og spyr ekki aftur.

(05.10.04 20:39)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni