Miðvikudagur 6. október

Enn um Da Vinci lykilinn

Ég hafði mjög gaman af því að lesa þessa bók og fannst hún rosa spennandi. En nú er Mundi dottinn í hana og kemst ekkert upp aftur fyrr en bókin verður búin. Við erum að tala um að maðurinn gat ekki sofið í nótt fyrir spenningi, vaknaði klukkan 6 í morgun til að halda áfram að lesa og er ekki búinn að stoppa síðan.


Það verður nú spennandi að sjá hvort hann verði eins spenntur í prófalestrinum hehe.

- Svanhildur | 11:49
Umræður

mundi:

þá er það búið - maður getur þá farið að snúa sér að öðru - mæli samt eindregið með þessari skruddu - stórskemmtileg lesning alveg

(06.10.04 11:56)

Torfi:

... á þá að snúa sér að lærdómnum með svipaðir áfergju ?


... annars er það gamall sannleikur að ef bók er þess virði að lesa hana þá kemur bíómynd fljótlega - er ekki málið að hinkra bara aðeins ? nei ?

(06.10.04 13:08)

Beta:

Einhvers staðar las ég að það væri byrjað að skrifa handritið og að Harrison Ford ætti að leika Langdon....

(06.10.04 15:30)

mundi:

hahaha... já er það! indiana jones sjálfur! það verður gaman að sjá hvort hann sýnir svipbrigði í þeirri mynd :-)

(06.10.04 15:33)

sara:

já sjómennskan já sjómennskan já sjómennska er ekkert grín.
er stödd á landinu sem kennt er við Frón.
er í fríi haustsins, sem stendur yfir í 2 vikur, er þetta allþekkt danskt fyrirbæri.
tók undirritud sig til, og fyrir allt klinkið sem hlotnaðist af vinnu sumarsins, var ýtt á takka á tölvu, og BÚMM, Frón; ég er á leiðinni.
eigi vissi neinn um mína komu, og var það því hláturskellið að mæta hér við heimili mitt klukkan langt gengin í tólf á laugardagskveldi.
ævintýraferð mætti kalla.
kossar og knús til ykkar beggja.
túttílitú

(06.10.04 16:30)

svanhildur:

Góða skemmtun heima á Íslandi.

(07.10.04 06:56)

jons:

Já snilldar bók, mér skilst einmitt að þeir séu að drífa sig í að ná mynd út á meðan bókin er svona vinsæl!

(08.10.04 07:36)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni