október 28, 2004

Komin frá París og á leið upp í fjöllin

Já við komum heim í gærkvöldi eftir að hafa átt alveg frábæra fimm daga með mömmu, pabba og Gauta. Við vorum heppin með veður í París og það var mikið túristast og mikið snætt á veitingastöðum. Svo fórum við einn daginn í EuroDisney og það er nú bara ansi skemmtilegur garður. Það var alveg æðislegt að fá að eyða nokkrum dögum með fjölskyldunni og ég vil þakka þeim fyrir þennan tíma og svo líka Jóni og Guðrúnu fyrir að hýsa okkur. Náðum nú ekki að gera mikið með þeim en þó var nokkrum sinnum gripið í spil og rauðvín á kvöldin.


En í kvöld er ferðinni heitið upp í fjöllin til hans Gonna þar sem Mundi ætlar að mála smá fyrir hann og ég ætla að læra. Komum sennilega ekki til baka fyrr en á mánudaginn og svo byrjar skólinn aftur hjá mér á þriðjudaginn.

-Svanhildur | 08:29 | Comments (5)

október 21, 2004

Gærkvöldið var ekki af verri

Gærkvöldið var ekki af verri endanum: Beta og Georges komu til okkar um sjöleytið og færðu okkur kúlusúkk og mogga (ekki slæmar gjafir). Svo snæddum við dýrindis koníaksflamberaða nautasteik a la Mundi og sátum svo afvelta hér í smá stund, drukkum rauðvín og spjölluðum saman. Svo röltum við í bæinn á stuttermabolunum (já sumarið ákvað að koma aftur í nokkra daga og það voru 20 gráður á miðnætti), settumst niður við borð fyrir utan kaffihús, sötruðum bjór og héldum áfram að spjalla. Þetta var sem sagt hið allra besta kvöld og þökkum við þeim skötuhjúum kærlega fyrir komuna.


Núna er Mundi að pakka því hann fer til Parísar eftir rúma tvo tíma. Ég legg svo í hann á morgun og hlakka alveg rosalega mikið til : )

-Svanhildur | 12:29 | Comments (8)

október 18, 2004

Nóg um að vera

Helgin var fín. Borðuðum saman 5 hérna á hæðinni og kíktum svo í bæinn á laugardagskvöldið. Mjög fínt kvöld en allt innan marka sem var ágætt þegar maður vaknaði fyrir hádegi á sunnudaginn bara nokkuð ferskur. Við Mundi drógum því Daníel og Kelit með okkur í bíltúr upp í fjöllin og allur seinni parturinn fór í skemmtilegan rúnt. Á heimleiðinn keyptum við svo 2,5 kíló af valhnetum beint af bóndanum (en þær eru einmitt ræktaðar í mjög miklu magni í héraðinu okkar og nú er uppskerutími) og þær eru þvílíkt góðar.


Annað kvöld á svo að vera samhristingur í skólanum hjá mér og það verður örugglega mjög skemmtilegt. Ætlum að hittast við sem eru saman í mastersnámi og allir eiga að koma með eitthvað að borða og drekka. Hlakka til að kynnast þessum krökkum betur. Á miðvikudagskvöldið eigum við svo von á matargestum alla leið frá Íslandi. Beta og Georges ætla að koma í mat og verður án efa mjög gaman (líka enginn skóli hjá mér á fimmtudögum svo að allt getur gerst (og Georges ef þú lest þetta, þá er til næstum full flaska af pastis handa þér) (og kannski Munda líka)). Vá hvað þetta er nú eitthvað orðið flókið svigadæmi!


Mundi fer svo til Parísar seinni partinn á fimmtudag og ég fyrir hádegi á föstudag (þarf að mæta í tíma á föstudagsmorguninn). Þar munum við hitta mömmu, pabba og Gauta bróðir og ég hlakka rosalega mikið til. Svo má heldur ekki gleyma eðalfólkinu þeim Jóni og Guðrúnu en þau ætlað að hýsa okkur skötuhjúin og það er nú alltaf frábært að hitta þau (sakna þess mikið að hafa þau ekki lengur hérna hjá okkur í Grenoble). Við verðum í París í tæpa viku eða fram á miðvikudag 27. október.


Sem samt nóg um að vera á næstunni.

-Svanhildur | 20:14 | Comments (8)

október 15, 2004

hér er komið haust

ég var að koma frá bakaranum. fékk mér eitt franskbrauð. tók eftir því að það var bara hellings snjór í fjöllunum hérna suðuraf okkur (Belldonne) - jí jí jí - þá fer að styttast í skíðavertíð, enda búið að kólna verulega hérna þessa vikuna.

-mundi | 07:38 | Comments (2)

október 14, 2004

flensunni sagt stríð á hendur

í dag held ég að ég sé eitthvað aðeins ferskari - í það minnsta ætla ég að láta þannig. búinn að fá alveg nóg af þessari flensu.

þannig að við erum farin út að versla og þvo. eitthvað sem hefur beðið svolítið lengi. semsagt reyna að gera eitthvað gagn. sjáum svo hvort restin af þessu ógeði viðrast ekki af mér við að komast út úr húsi

-mundi | 09:11 | Comments (2)

október 13, 2004

mér leiðist

er það ekki vafasamt þegar hápunktur daxins er útvarpslýsing á knattspyrnuleik með slöku landsliði???


HJÁLP!!! :-)

-mundi | 19:07 | Comments (3)

október 12, 2004

vígvöllurinn ile verte

ég held að við búum á vígvelli. þannig er nefnilega að við látum okkur vanalega nægja að loka gluggahlerunum en höfum gluggann opinn og það veitir ekki mikla hljóðeinangrun. þegar kvölda fer og dimman skellur á heyrast merkileg hljóð hérna inn um gluggann okkar. sum eins og barnsgrátur eða öskur - önnur bara eins og hvæs eða urr.


þetta hverfi er nefnilega kjaftfullt af köttum. þeirra á milli er greinilega mikil og erfið valdabarátta. ekki veit ég hver sigrar þessa smábardaga enda fer þetta allt fram í skjóli myrkurs, en hljótt fer þetta ekki.


nú fer hins vegar að koma sá tími þar sem gluggunum er lokað á kvöldin, enda farið að kólna, og við hættum að heyra þessu stríðsöskur kattanna

-mundi | 19:58 | Comments (2)

Leiðinda flensa

Já nú er Mundi lagstur. Það virðist ekki skipta neinu máli fyrir haustflensuna hvort það sé 5 stiga hiti og rigning eða 20 stig og sól. Allavega virðist hún ná að grassera alveg jafn mikið hér í Grenoble og í Reykjavík. Nú erum við 4 hérna á hæðinni búin að veikjast af þessum andsk...


En ég er sem betur fer orðin nokkuð frísk og er að hamast við að læra en reyni nú líka að vera góð við sjúklinginn og steikti lummur áðan úr afganginum af grjónagrautnum frá því í gær. Við buðum Kelit (kemur frá Perú) yfir til okkar í lummur og fengu þær góða einkunn hjá henni, enda hverjum finnast ekki lummur góðar?

-Svanhildur | 12:11 | Comments (5)

október 8, 2004

kvef

ansi margar bloggsíður sem maður les þessa dagana fjalla um kvefpestir einstaklinganna sem að þeim standa. þessi verður engin undantekning í dag því svanhildi hefur heldur versnað kvefið og er kominn upp í hálfa elhúsrúllu á tímann og 38° stiga hita.


í raun engin ástæða til að setja færslu hér inn í dag - hér er algert frétta-, and- og heilsuleysi - góða helgi

-mundi | 17:30 | Comments (3)

október 7, 2004

uppnám

...ferðalag helgarinnar er í uppnámi. svanhildur greyið er með stíflaðann nebba og kvef. í ofanálag þurfti þessi helgi náttúrulega að vera sú eina fram að þessu þar sem spáð er rigningu og slíkum ótjaldvænum fjára hér um slóðir. við erum nú samt ekki enn búin að gefa upp alla von um að geta farið eitthvað, - þá styttra til í dagsferð, tjaldlaust.


- útileguáformum því sennilega frestað um eina helgi, hér er enn alveg nógu hlýtt fyrir okkur íslendingana með jöklapokana og jöklatjaldið.

-mundi | 20:53 | Comments (6)

Tónleikar

Við fórum í gærkvöldi á tónleika, eða við héldum að við værum að fara á tónleika, með brass bandi í skólanum mínum. Reyndar stóð á auglýsingunn að þetta væri æfing sem væri opin áhorfendum. Ég hélt því að þetta væri lokaæfing fyrir einhverja tónleika þar sem rennt væri yfir prógrammið. En nei, þetta var ekki alveg þannig. Þetta var bara venjuleg æfing og auk þess er þetta hljómsveit sem er opin öllum sem vilja vera með svo hún er nú kannski ekki á mjög háu kalíberi. En til að gera langa sögu stutta þá var þetta vægast sagt hræðilegt og eftir að hafa setið og hlustað í hálftíma á eitthvað sem getur varla kallast tónlist þá ákváðum við að láta okkur bara hverfa.


Annars er ég núna á fullu að gúffa í mig lýsi, sólhattsdropa og ólífulauf. Virðist vera að fá einhver helv... skít í hálsinn, nefið og hausinn en ég tek á móti sýklunum með öflugum mótaðgerðum og ég skal sigra

-Svanhildur | 20:53 | Comments (4)

október 6, 2004

Enn um Da Vinci lykilinn

Ég hafði mjög gaman af því að lesa þessa bók og fannst hún rosa spennandi. En nú er Mundi dottinn í hana og kemst ekkert upp aftur fyrr en bókin verður búin. Við erum að tala um að maðurinn gat ekki sofið í nótt fyrir spenningi, vaknaði klukkan 6 í morgun til að halda áfram að lesa og er ekki búinn að stoppa síðan.


Það verður nú spennandi að sjá hvort hann verði eins spenntur í prófalestrinum hehe.

-Svanhildur | 11:49 | Comments (7)

október 4, 2004

No more english for me please

Fór og talaði við yfirmenn minnar deildar í skólanum í dag og fæ að sleppa við ensku. Þarf ekki að taka prófin eða neitt. Þetta var samt svona týpískt franskt: fyrsti viðmælandi minn sagði að ég þyrfti að taka hana þar sem að íslenska og danska væru ekki nógu útbreidd tungumál til að geta komið í staðinn en að ég gæti kannski sloppið við að mæta í tíma og tekið bara prófin. Þá fór ég og talaði við "le directeur" og hann sagði að þetta væri tóm þvæla og að ég þyrfti ekki að taka neina útlensku þar sem ég talaði nú þegar mjög margar útlenskur. Mér leist best á hans svar og þar sem hann er líka sá hæst setti í deildinni þá ætla ég bara að trúa honum.

-Svanhildur | 18:05 | Comments (5)

Litla Ísland

Fórum á kaffihús í gær með franskri stelpu sem er með mér í skólanum og svissneskum kærasta hennar, en þau kynntust á Íslandi þegar hún var erasmus-nemi þar og hann var að vinna jarðfræðiverkefni, en hann er að læra jarðfræði í Sviss. Þegar hann sagði okkur þetta kom Íslendingurinn fljótt upp í okkur Munda og við spurðum bæði í kór: "Hey, þekkirðu Halla?" Hann hugsaði sig aðeins um og á meðan töldum við upp hin ýmsu jákvæðu lýsingarorð sem eikenna Halla: hár, grannur, myndarlegur, jarðfræðingur, dökkhærður með krullur. Þá sagði Svisslendingurinn: "Já, er hann ekki hjólreiðamaður?" "Jú" svöruðum við í kór og fannst þetta allt voða fyndið og skemmtilegt.


Já það er alltaf jafn gaman að koma frá svona litlu landi þars sem "allir þekkja alla" eða svona næstum.

-Svanhildur | 14:59 | Comments (3)

haust eða hvað?

þetta er voða skrítið með haustið hérna í Grenoble. í dag er 27 stiga hiti og logn. samt horfir maður út um gluggan og sér að laufin eru að gulna á trjánum og haustið er á næsta leiti. og ég sem alltaf hef haldið að trén felldu laufin þegar það færi að kólna og svo kæmu haustlægðirnar og blésu þeim af. þannig virðist því ekki vera farið hér. merkileg náttúran. í fyrra var haustið hérna 3 dagar. það tók góða helgi að fara úr sumri yfir í vetur. ég vona að það gerist ekki alveg strax.

-mundi | 14:59 | Comments (2)

Oh my god

Já ég veit ekki hvað annað ég get sagt. Var í enskutíma áðan, já sum ykkar hélduð kannski að ég væri að læra að verða frönskukennari en samkvæmt nýjum reglum verða allir nemar í mastersnámi að taka eitt erlent tungumál. Ég ákvað bara að velja ensku til að sleppa létt í gegnum þetta og hélt líka kannski að það væri bara sniðugt þar sem ég er alltaf að einbeita mér svo mikið að frönskunni og finnst ég vera orðin svolítið óörugg í enskri stafsetningu.


Fyrir tveim vikum tók ég stöðupróf í ensku og lenti, eins og ég gerði ráð fyrir, á efsta stigi. Ég átti því von á að það yrðu gerðar töluverðar kröfur en guð minn góður. Efsta stig í Frakklandi (á háskólastigi) jafngildir um það bil 8. bekk á Íslandi (ef það nær því þá). Ég vildi að ég gæti sett hljóð hérna inn á heimasíðuna svo ég gæti hermt eftir því hvernig kennarinn talaði. Ekki það, hún talar fína ensku og er ekki með neinn franskan hreim eða neitt svoleiðis, en nemendurnir eru svo lélegir að hún er svona 5 mínútur að segja 3 orð til að tala nógu skýrt svo að allir skilji hana örugglega. Eftir að hafa byrjað tímann á því að fara í smá leik sem byggðist upp á því að við áttum að ganga á milli samnemenda okkar og spurja hvort þau ættu gæludýr o.s.frv. (þetta er nóta bene það sama og Mundi var látinn gera í fyrsta frönskutímanum sínum og margir áttu erfitt með að koma orðunum skiljanlega frá sér á ensku), þá var farið í orðaforðaæfingar sem byggðust á því að stje forskeyti eins og il- ir- og im- framan við önnur orð og svo áttum við að útskýra fyrir kennaranum hvað þessi forskeyti þýddu nú eiginlega eins og t.d. hver er nú munurinn á possible og impossible.


Já þetta var alveg ótrúlegt og eftir tímann fór ég til kennarans og spurði hana hvort þetta væri nú örugglega efsta stigið. Jú jú, þetta var efsta stigið. Ég sagði henni að mér þætti þetta ansi létt og að ég sæi ekki mikinn tilgang fyrir mig að vera að mæta í tíma. Það er því ljóst að ég mun fara að vinna í því í næstu viku að fá dönskunámið mitt metið svo að ég geti sloppið við þetta. Það fáránlega er að ég get ekki fengið íslensku metna því ég er ekki með háskólapróf í íslensku. Hvað er það nú eiginlega? Það er nokkuð ljóst að ég tala íslensku reiprennandi þar sem hún er mitt móðurmál, og sennilega tala ég líka betri ensku en flestir Frakkar sem eru með háskólapróf í ensku. En þetta verður auðvitað að vera smá vesen svo að maður gleymi því nú ekki að maður er í Frakklandi.

-Svanhildur | 14:59 | Comments (5)

október 1, 2004

Veisla og talnaóþol

jámms - ég er kominn með nóg af tölum og slíku bulli í bili. ekki er nú úthaldið mikið!! :-) en mér finnst bara sjö betra en 7. sennilega er ég með talnaóþol. ég eyddi öllum gærdeginum í það að lesa bækur og leysa verkefni og það hefur verið sama skemmtidagskráin í dag.


nú eru bækurnar hins vegar komnar upp í hillu þangað til heilsa leyfir á morgun, því það verða veisluhöld hér í kvöld. við ætlum að snæða saman þau sem búum hérna saman. þá fær maður vonandi að kynnast nýjum meðleigjendum eitthvað betur.


farinn að versla inn fyrir herlegheitin - góða helgi - ROGER over and out

-mundi | 12:55 | Comments (1)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni