« nóvember 2003 | Heim | janúar 2004 » desember 31, 2003
gleðilegt ár
þar sem árið er senn liðið, þá langar okkur að senda gestum okkar hér á síðunni, vinum og ættingum bestu nýársóskir. þökkum góðar stundir á árinu sem er að enda og við vonumst til að sjá ykkur sem flest með hækkandi sól kveðjur frá grenoblehreppi foie gras, huitres, canard, sorbet
dagurinn í gær fór í það að versla í matinn, taka upp úr töskum og gera áramótahreingerninguna. í gærkvöldi spiluðum við svo trivial pursuit við þau eliane og normand. mjög fínt kvöld. í kvöld ætlum við svo að borða og halda áramótin saman. einhverjir hafa líka bæst í hópinn síðan þetta var ákveðið og við verðum 7 hérna, samkvæmt nýjustu tölum. það á að hafa franskt eldhús hérna í kvöld, (sem er líka lang þægilegast, vesen að flytja inn pólsk til dæmis). það á að hafa andalifur og ostrur í forrétt, andabringur með ferskjum í aðalrétt og svo ananassorbet í eftirrétt. með þessu verða svo drukknar ýmsar tegundir franskra eðalvína í öllum litum. ps. það eru komnar nokkrar nýjar myndir inn á albúmið okkar desember 29, 2003
grenoble city
jámm, komin á leiðarenda. það gekk allt eins og í lygasögu, fórum þetta á rétt tæpum 15 tímum í þetta skiptið, enda lítil umferð mest alla leið. erum ansi þreytt núna, erum lítið sofin. best að fara að bera draslið allt inn úr bílnum desember 28, 2003
brottför - egevænget kvatt að sinni
þá er allt að verða klárt, búið að pakka í bílinn, taka bensín og smyrja nestið. við fáum gsm númerið hans pabba lánað á leiðinni niðureftir til að hafa síma ef eitthvað út af ber, sem er mjög gott. hér er nefnilega farið að snjóa, en ég held að það komi nú ekki að sök, það nær trúlega ekki að festa neitt á vegum, og vefsíður þýsku og frönsku veðurstofanna lofa ágætum morgundegi. áætluð brottför er svo klukkan 3.30 í nótt - næsta færsla kemur svo hingað inn um leið og við verðum komin á rue ernest calvat, ca. 1600 km síðar... ps. aldrei að vita nema að það slæðist inn ein eða tvær myndir frá jólunum einhvern næstu daga 13 tímar eftir
tíminn líður hratt allsstaðar. nú fer að styttast í jólafríinu hjá okkur hérna í danaveldi. áætluð brottför til frans er í nótt og koma þá væntanlega og vonandi 15-18 tímum síðar. þannig að dagurinn í dag fer í það að gera það sem er búið að trassa að gera alla hina dagana, pakka niður og svo síðast en alls ekki síst, njóta síðustu tímanna hér desember 27, 2003
pølser og fyrverkeri
í dag fékk volfgang ný kerti. eiga ekki allir að fá kertí á jólunum?? svo fórum ég og mamma og heimsóttum bjarna og bryndísi. ég skipti um kertin þar og bjarni lagaði fyrir mig rúðupissið þannig að nú sprautast á rúðuna á bílnum mínum en ekki á rúðuna á bílnum fyrir aftan! keyptum líka PYLSUR og nokkra flugelda til að taka með til franz ... ...dejligt desember 26, 2003
odense
ég ætla að byrja á því að senda okkar bestu þakkir fyrir allar jólagjafirnar sem bárust okkur hingað til danmerkur. takk takk og aftur takk, góða fólk. í dag skelltum við okkur til odense að hitta vini okkar þar. mér finnst alltaf jafn gaman að koma þangað, ég hef einhvernveginn tekið ástfóstri við þann stað. ég fór og heimsótti meistara niels. hann er á batavegi eftir vinnuslysið í október en á þó langt í land með fullan bata, hægri hendin virkar ekki nema takmarkað enn sem komið er. haris vin minn er ég búinn að reyna mikið að ná í en tókst ekki, þannig að ekki náði ég að hitta hann í þetta skiptið, en það gengur þá bara betur næst. svo vorum við í þessu fína kaffiboði á bjerregårdsvej, hjá ingólfi og áslaugu, ásamt móður golla. það var mjög gaman, manni ekki í kot vísað að koma þangað. að endingu var svo snæddur kvöldverður hérna á jótlandi. semsagt, stórfínn dagur að baki. desember 24, 2003
desember 23, 2003
ammli og skreytingar
mamma mín á afmæli í dag, til hamingju mamma. hér er verið að skreyta. jólatréð komið á sinn stað og allt að verða klárt. hangikjöt í kvöld, mmmm....... desember 22, 2003
samskiptajól
í dag fórum við til Kolding að versla. öll nema svanhildur, hún notaði tækifærið og las fyrir próf. ekki gaman að hafa það helvíti hangandi yfir sér yfir hátíðarnar. mamma og pabbi keyptu sér web-cam og hljóðnema, sem ég svo tengdi og græjaði klárt, setti inn MSN og svona. þannig að nú geta þau verið með í þessháttar samskiptum milli landa. desember 21, 2003
jólatré
í dag fórum við og náðum okkur í jólatré. það felldum við í skógi hérna skammt frá. gaman að gera þetta svona, fara og velja sér tré. svo fórum við smá hring á leiðinni heim, með viðkomu í kjörbúðinni. þar keypti ég jóla-túborg og jóla-carls til að prófa. fer í það fljótlega :) annars algjör slökun bara.... desember 20, 2003
Komin til Danmerkur
þá erum við komin til billund, 1598 km að baki, og 15 klst samverustund með volfgang. ekki laust við að maður sé þreyttur. en það þýðir ekkert, steikin er í ofninum... ...nú verður sko etið farin í jólafrí...
þá fer bara allt að verða klárt fyrir brottför, búið að taka bensín, mæla olíuna og svona. danska símakortið komið í símann. kaffið er að renna á meðan ég ber farangurinn okkar niður í bíl. brottför 3.30 desember 18, 2003
þá er atvinnuviðtal tvö afstaðið. leikar fóru svo að ég á að mæta til vinnu hjá þessu fyrirtæki, 2-3 daga til reynslu á nýju ári. og hananú.... TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ HARPA
Við viljum óska Hörpu systur innilega til hamingju með afmælið í dag. 2 atvinnuviðtöl í dag
þá er maður kominn heim aftur eftir viðtal á atvinnumiðluninni. ég er mjög ánægður með hvernig það gekk. konan sem ég talaði við gaf mér góðar vonir um vinnu, meira segja á ég að hitta hugsanlegan atvinnuveitanda klukkan 3 í dag. annars var eitthvað meira úr að moða skildist mér á henni. það er eins og áður.... nú er bara að bíða og sjá hvað setur, hvort þessir menn sem ég fékk að vita um, kæra sig um málhaltan málara norðan frá heimskautsbaug... desember 17, 2003
atvinnuhugleiðingar
Héðan er nú lítið að frétta. þó þetta: í síðastliðinni viku skráði ég mig á atvinnumiðlun fyrir iðnaðarmenn á netinu. svo þarf ég að fara á skrifstofu umræddrar miðlunar og leggja inn ferilskrá og einhverja pappíra. sennilega mikið af þeim, ef ég er farinn að þekkja frakkann rétt. það á að gerast í fyrramálið. þannig að eftir skóla förum við svanhildur að hnoða saman ferilskrá fyrir mig á frönsku. það verður fróðlegt. en þetta kemur allt í ljós - eins og svo margt annað... desember 16, 2003
jól
nú fyrst finnst manni vera farið að styttast í jól, nágranninn búinn að setja upp diskó-jólaseríu og allt klárt. svanhildur les þessa vikuna meðan ég reyni að koma því sem þarf á koppinn áður en við höldum til lands baunverja á aðfaranótt laugardax næstkomandi. það er eitt og annað smálegt sem þarf að gera áður en við leggjum í hann. við tökum með okkur farþega, hann daníel þýski sem býr hérna í næsta klefa ætlar að fá að sitja í til Karlsrhue. ....kaffið er tilbúið desember 14, 2003
ammli
hann pabbi minn á afmæli í dag. hrópum ferfalt húrra fyrir honum.
desember 13, 2003
draugahús og fjallgarðar
ég fór á skíði í dag eins og tvo síðastliðna laugardaga. það var nú ekki eins gott veður framan af degi og við höfum fengið, en það rættist vel úr því undir hádegið. ég fór einn, jón og guðrún forfölluðust skyndilega, og svanhildur föst við bókina, greyið. því notaði ég tækifærið og keyrði í rólegheitum til baka að skíðaiðkun lokinni. leiðin sem maður fer í les deux alpes er nefnilega falleg, mikið af fjöllum eins og gefur að skilja og smáþorpum sem hafa mörg hver mikinn sjarma. alltaf best í sveitinni!! ég læt fylgja með tvær myndir, önnur er nú þarna úr einhverjum dalnum hin er aftur af einhverju því sérkennilegasta húsi sem ég hef séð. það er í litlu þorpi sem heitir því fallega danska nafni "Livet". (einhvernveginn efast ég nú um að það þýði það sama samt.) það fysta sem mér datt í hug þegar ég sá þetta hús var að addams-familían væri flutt til frans, og dæmi nú hver fyrir sig. ps. til hamingju með daginn snæbjörn desember 12, 2003
meiri skíði - meiri bækur
hér er allt með rólegasta móti. ég ætla þó á skíði á morgun með jóni og guðrúnu, svanhildur fær þá næði til að lesa hérna heima á meðan. það eru nefinlega próf hjá henni í komandi viku. svo erum við boðin í partí á laugardag til svía sem jón og guðrún þekkja. á sunnudag ætlar spænska parið hérna á neðri hæðinni svo að bjóða í mat. þannig að eitthvað er nú framundan. desember 10, 2003
verðir og rónar
stutt saga úr hversdaxleikanum hér í borg er helsti samgöngumátinn sporvagnar. við sem og aðrir hér notum þá mikið til að komst á milli staða. til þess að fá aðgang að vagninum þarf maður að stimpla þar til gerða miða sem maður getur keypt víðsvegar um bæinn. margir svindla á þessu kerfi og kaupa sér ekki miða eða stimpla ekki miðana sína áður en þeir nota sporvagninn. eftir stimplun gildir miðinn í klukkustund. stundum eru verðir í vögnunum, reyndar mjög sjaldan, sem krefja þig um að fá að sjá miðann. ef þú hefur verið að svíkjast um þá færðu veglega sekt. þess vegna hef ég alltaf verið mjög samviskusamur að stimpla. í gær skrapp ég í bæinn. þegar ég var að fara til baka þá kíkti ég á miðann minn, hann var útrunninn fyrir 7 mínútum. svo sé ég hvar vagninn kemur og tek sprettinn til að ná vagninum (já!!! ótrúlegt - ég á til að gera þetta!!). til þess að ná vagninum þá þurfti ég eiginlega að henda mér inn í hann, rétt náði því áður en hurðin lokaðist. það passar þegar ég lít upp þá stend ég inn á milli fjögurra varða, sem greinilega sáu að ég hafði ekki stimplað miðann minn. ég var ekkert smá svekktur, ég fékk strax augnaráð frá þeim og þeir fóru eitthvað að fálma í vasana, ég ímynda mér í leit að sektarmiðum. en viti menn!!!! allt í einu fór einhver róni sem var í vagninum, rétt hjá okkur að kúgast og æla og vera með eitthvert vesen, þannig að verðirnir flykktust allir að honum. þá stoppaði vagninn aftur og ég var snöggur að drífa mig út, enda kominn heim. segiði svo að rónar séu ekki gagnlegir...... desember 09, 2003
bankaræningjar og fleira
hvað er að gerast heima. það eru fréttir á mbl og í útvarpinu í hverri viku þess efnis að það sé nýbúið að ræna banka eða reyna að ræna banka. og svo núna eru menn farnir að taka með sér afsagaðar í BÓNUS ...af öllum stöðum! annars er allt gott að frétta héðan í dag, við skruppum á kaffihús í gær með spænska parinu sem býr hérna fyrir neðan okkur. þau eru að flytja héðan, og voru að bjóða okkur í spænskan mat á sunnudaginn. svo er ég farinn að velta fyrir mér að eyða næstu helgi á skíðum, svanhildur þarf að læra mikið, mörg próf hjá henni í næstu viku svo hún fær gott næði ef ég fer til fjalla. spáin er bara ekki nógu góð, en það er nú ekkert að marka hana ennþá. lifið heil desember 08, 2003
skemmtileg helgi
þá er kominn nýr mánudagur. þetta rúllar áfram. helgin var mjög góð eins og búist var við. við festumst við að horfa á seríuna 24 á föstudaxkvöldið og fórum seint að sofa. svo var vaknað eldsnemma á laugardaginn og blússað upp í fjöll. stoppuðum í vizille á leiðinni og tókum jón og guðrúnu með. svo eyddum við deginum saman í deux alpes. þvílíkt snilldarveður þar og skíðafærið eins og best gerist í hlíðarfjalli. :) þegar heim var komið var svo allt á botni hjá mér að græja kartöflustöppuna, fyrir litlu jól okkar íslendinganna hérna, svanhildur dreif sig hins vegar til betu að sjóða mjólkurgrautinn. svo eyddum við íslendingarnir saman kvöldinu heima hjá betu og george, borðuðum og drukkum og horfðum á hið íslenska idols, sem amma hennar betu tekur upp fyrir hana. alveg stórgóð skemmtun þetta. við vorum ansi þreytt í gær eftir stuttan svefn, skíðaferð og partí og gerðum lítið, sem er mjög gott! ps. ég er búinn að bæta myndum frá skíðaferð laugardaxins inn í myndaalbúmið okkar desember 06, 2003
örstutt
við vorum að koma heim af skíðum, kartöflurnar eru að sjóða í pottinum, þær eru að undirbúa sig fyrir að verða að stöppu. MAGNAÐ veður í les deux alpes í dag. partíið að byrja eftir klukkutíma og kortér. - er farinn í sturtu.... desember 05, 2003
nú verða sagðar fréttir
í fréttumer þetta helst: Frétt eitt: ekki gekk þetta með vinnuna eins og útlit var fyrir. við fórum að tala við þennan tengilið okkar á fimmtudaxkvöldið og þá var allt annað hljóð í strokknum. ekki erum við nú alveg að skilja þessa kúvendingu, en erum ekki af baki dottin og ég fór og sótti um annarsstaðar í dag. þar var engu lofað, sem er sennilega bara betra, þá býst maður ekki við neinu. get ekki neitað því að ég var svekktur þegar hitt brást, það var kannski búið að gefa manni falskar vonir. Frétt tvö: við erum að fara á skíði eldsnemma í fyrramálið - hér nefnilega sama ástand og er jafnan á norðurlandi - "spáin er góð"!!! Frétt þrjú: sem er gömul frétt, það er svaka íslendingapartí annaðkvöld - gaman saman... Frétt fjögur: ég er farinn að gera eitthvað annað en að skrifa þetta bull......
desember 04, 2003
24
nú fær nettengingin okkar að svitna sem aldrei fyrr. við náðum okkur nefnilega í fyrsta þáttinn úr seríunni 24 í vikunni. það verður ekki aftur snúið. ég minnist þess ekki að hafa séð jafn spennandi sjónvarpsefni. við erum núna búin að ná í 6 fyrstu þættina, en erum bara búin að horfa á 4. hinir tveir komu í nótt! þannig að nú rembist tölvugreyið eins og rjúpa við staur - hamast við að ná í fleiri þætti handa okkur. í gær var hópnum mínum í skólanum skipt upp. ég er alsæll með það, því fyrir vikið fékk ég sama kennara og ég var með í síðasta mánuði, en ég var mjög ánægður með hann. það er strákur á svipuðum aldri og ég. hann sagði mér einmitt í lok síðasta námskeiðs að hann hefði mikinn hug á að fara til íslands í júní. svo erum við að velta því fyrir okkur að fara aftur á skíði á laugardaginn. veðurspáin er svo góð að það er varla hægt að sleppa tækifærinu. við þurfum bara að vera komin tímanlega heim því "litlu jól" íslendingasamfélagsins í grenblehreppi eru þá um kvöldið. desember 03, 2003
eitt og annað
hér skein upp með sól í morgun eftir töluverða rigningu í gær. það er víst all svakalegt ástand hérna skammt frá okkur, meðfram bökkum rónar, einmitt þar sem við ferðuðumst um ekki alls fyrir löngu. ég byrjaði á desembernámskeiðinu í gærkvöldi, en svo á víst að splitta hópnum upp í kvöld vegna fjölda. sem er ágætt. eftir það fórum við að tala við tengiliðinn okkar vegna vinnunnar. honum hafði ekki tekist að ná sambandi við aðalmanninn þannig að ég ætla að reyna að tala við hann aftur seinna í vikunni. þetta kemur allt í ljós, hér taka allir hlutir tíma. jón og guðrún gistu hjá okkur í nótt, þau þurftu að ná lest eldsnemma í morgun til Rotterdam, en bíllinn þeirra er kominn þangað. það verður munur fyrir þau að fá hann því strætisvagnasamgöngurnar til Vizille eru takmarkandi. svo er farið að styttast í helgi .....og þá ....hangikjötsveisla ! desember 02, 2003
Ég var að fá prófatöfluna í dag og hún gæti alveg verið betri, en hefur samt einn kost, sem er að ég er búin mjög snemma í prófum. En ég ætla að útskýra þetta aðeins betur: Málið er að ég er í 7 fögum og eitt af þessum fögum virkar þannig að maður verður að taka það allt árið og einkunnin er gefin fyrir allt árið. Það er því ekkert jólapróf í því fagi heldur hélt ég fyrirlestur í byrjun nóvember sem gildir 40% og eftir áramót á ég að fara í smá starfsmenntun (sem kennari) og skila svo skýrslu um það sem gildur 60%. En þá eru eftir 6 fög og í þremur þeirra eru prófin tekin í síðustu kennslustund fyrir jól. Það er því eitt próf 15. des, annað 16. des og þriðja 17. des. Þá er ég komin í jólafrí sem er samt eiginlega bara upplestrarfrí fyrir prófin mín í janúar en þau raðast þannig að ég fer í eitt próf 6. jan og tvö 7. jan. Þetta verður því sennilega ansi strembið en það góða við þetta er að þá er ég í fríi 8. til 18. janúar. Þá vitið þið það lítið að frétta - talað um veðrið
desember 01, 2003
vírusvörn
... er ekki einhver þarna úti sem getur sagt mér hvar ég get náð mér í nýja vírusvörn fyrir lítið. mín nebblega hætti að virka í dag - er útrunnin... fleiri myndir
...og ég held bara svei mér þá að mér hafi tekist að setja inn myndir á myndaalbúmið okkar. enn um skíði
þá er síðan okkar komin í lag aftur. daia systir, sem hýsir okkur var ekki lengi að kippa þessu í liðinn. jafn gott að hafa hana til að bjarga sér þegar illa fer. ég er búinn að setja aftur inn linka á fólk sem við þekkjum sem er með sambærilegar síður. eins setti ég inn nýjan link, sem heitir myndaalbúmið, en þar er ætlunin að setja inn myndaseríur, fleiri myndir en sjást hér á síðunni. takk fyrir það líka daia ;) annars fallegur dagur hér - ég er enn að bíða eftir svari með vinnu, er þó ekki farinn að örvænta því hér gerist allt með hraða snigilsins. dagurinn í dag er semsagt líka tileinkaður skíðaferð laugardaxins. myndirnar eru þarna ofan úr brekkunum og húsið sem þarna er er veitingastaðurinn þar sem við fengum okkur hádegismat í 2600m hæð. alveg magnað og get varla beðið eftir að fara í næstu skíðaferð. það er bara að vona að veðrið eigi þá eftir að leika svona við okkur. |
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur5 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur chez An. Gonord 7 rue Ernest Calvat 38000 Grenoble FRANCE Heimasími: 0033-(0)4 7642 6706 Mundi gsm 0033-(0)6 3273 2816 Svanhildur gsm 0033-(0)6 6654 7023 Fólk
daia
baddý hanna torfi og eva jón og guðrún ziggy flotti heiða birta baldur unnur og friðrik björk daníel skíði viddi og kolla hilda torfa bjarni og bryndís Nýlegar færslur
gleðilegt ár
foie gras, huitres, canard, sorbet grenoble city brottför - egevænget kvatt að sinni 13 tímar eftir pølser og fyrverkeri odense GLEÐILEG JÓL ammli og skreytingar samskiptajól Gamalt efni
október 2004
september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|