Heim | desember 2003 » nóvember 30, 2003
skíðaferð og meira
góðan daginn. helgin er búin að vera góð það sem af er. á föstudag var matarboð hjá Mike sem var mjög skemmtilegt og ekki skemmdi það nú fyrir að konan hans er kokkur svo það var mikið lostæti þar á borðum. í gær var svo farið á fætur 5.45 til að fara á skíði - við komum svo ekki heim fyrr en 19.30. mjög skemmtlilegur dagur, glampandi sól allan daginn, og gott skíðafæri. nýju skíðin reyndust vel en maður er alltaf smá tíma að venjast skíðaskónum, það voru mjög þreyttir fætur hérna í gærkvöldi.
nóvember 28, 2003
það var kalt í nótt
það var kalt í nótt og snjóaði greinilega mikið í fjöll því fjallið fyrir utan gluggann okkar fékk hvíta húfu, í annað skiptið í vetur. en hér eins og víða annarsstaðar stefnir í helgi. við erum boðin í mat hérna upp í fjall í kvöld til Mike, sem er englendingur sem ég var með í skólanum í október. í fyrramálið er svo ræs á undan hananum, því við erum loksins að fara á skíði. gaman gaman. ég hef í hyggju að taka vél mynda með, og verða því vonandi myndir úr skíðaferðinni hérna um helgina. sunnudagurinn er svo óráðin gáta .... ...speki daxins: hnoðri í norðri verður að veðri þótt síðar verði. nóvember 27, 2003
eitt og annað að gerast.... ...vonandi !
viðtalið í gærkvöldi gekk svona líka ljómandi vel og nú stefnir bara allt í að ég fari að vinna sem málari hérna í frönsku ölpunum. það ætti að skýrast endanlega í kring um helgi. annars er þvottadagur hérna í dag, óhreint tau hefur safnast upp og þá þarf að fara með það í þar til gert þvottahús. ....en fyrst kaffi. |
![]() Hafðu samband
mundi74 @ wanadoo.fr
svanhildur5 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur chez An. Gonord 7 rue Ernest Calvat 38000 Grenoble FRANCE Mundi gsm 0033-(0)6 6316 3546 Svanhildur gsm 0033-(0)6 6654 7023 Fólk
daia
baddý hanna torfi og eva jón og guðrún ziggy beta georges heiða birta bjagga frænka hilda torfa bjarni og bryndís Nýlegar færslur
Gamalt efni
ágúst 2004
júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|