nóvember 28, 2003

tn_DSC02489.JPG

það var kalt í nótt og snjóaði greinilega mikið í fjöll því fjallið fyrir utan gluggann okkar fékk hvíta húfu, í annað skiptið í vetur. en hér eins og víða annarsstaðar stefnir í helgi. við erum boðin í mat hérna upp í fjall í kvöld til Mike, sem er englendingur sem ég var með í skólanum í október. í fyrramálið er svo ræs á undan hananum, því við erum loksins að fara á skíði. gaman gaman. ég hef í hyggju að taka vél mynda með, og verða því vonandi myndir úr skíðaferðinni hérna um helgina. sunnudagurinn er svo óráðin gáta ....

...speki daxins: hnoðri í norðri verður að veðri þótt síðar verði.

Posted by mundi at 01:29 EH | Comments (0)

matur - skíði og rólegheit

hér eins og víða annarsstaðar stefnir í helgi. við erum boðin í mat hérna upp í fjall í kvöld til Mike, sem er englendingur sem ég var með í skólanum í október. í fyrramálið er svo ræs á undan hananum, því við erum loksins að fara á skíði. gaman gaman. ég hef í hyggju að taka vél mynda með, og verða því vonandi myndir úr skíðaferðinni hérna um helgina. sunnudagurinn er svo óráðin gáta ....

...speki daxins: hnoðri í norðri verður að veðri þótt síðar verði.

Posted by mundi at 01:24 EH | Comments (0)

nóvember 27, 2003

þvottur og fleira

viðtalið í gærkvöldi gekk svona líka ljómandi vel og nú stefnir bara allt í að ég fari að vinna sem málari hérna í frönsku ölpunum. það ætti að skýrast endanlega í kring um helgi.

annars er þvottadagur hérna í dag, óhreint tau hefur safnast upp og þá þarf að fara með það í þar til gert þvottahús. ....en fyrst kaffi.

Posted by mundi at 08:04 FH | Comments (3)

nóvember 26, 2003

eitt og annað að gerast.... ...vonandi !

þá fer vonandi að komast skriður á atvinnumál hjá mér. fórum í gærkvöldi að tala við mann sem þekkir mann og eigum að fara aftur í kvöld. það er bara vonandi að það komi eitthvað gáfulegt út úr þessum samtölum. svona áður en ég gleymi alveg hvernig á að "munda" pensilinn!!
ég er líka búinn að melda mig í samskonar kvöldnám í desember, og ég er í núna. að því loknu ætla ég að láta staðar numið í frönskunáminu, allavega í bili.

í gær varð ég svo vitni að því þegar miðaldra frakki var að leggja bílnum sínum í stæðið fyrir framan aumingja volfgang. manninum var það mikið í mun að troða sér í stæðið og dúndraði tvisvar á volfgang og einu sinni á sítrónuna fyrir framan áður en hann loksins náði árangri. djöfull er pirrandi að horfa á svona, en það er víst lítið við því að gera, þetta er víst eitt af því sem ég og bíllinn minn verðum að þola hérna. þannig að núna er ég farinn að gera eins og frakkarnir skilja bílinn eftir í hlutlausum og handbremsulausann. það er sem ég segi, þessi þjóð á ekki að hafa ökuréttindi.

annars fallegt veður í ölpunum í dag - léttskýjað og logn.

ps. óskum þeim sem tilkynntu okkur um komu í gær til hamingju með það... ...það verður gaman þá!

Posted by mundi at 01:44 EH | Comments (3)

nóvember 25, 2003

er ekkert að fatta .....

frönsk fornöfn .......ég er að snappa......... arrrghhhh!!!

Posted by mundi at 01:50 EH | Comments (8)

morgunkaffi

þá er maður búinn að fara í bakaríið og kaupa sér franskbrauð og hella upp á kaffi. með þessu er ég búinn að vera að hlusta á besta útvarpsmann íslands hann Gest Einar og kíkja í moggann á netinu. hugguleg morgunstund. en nú verð ég víst að fara að læra eitthvað - kennarinn setti nefnilega fyrir, djöfuldóm af einhverju sem ég ekki skil ekkert í, fyrir kvöldið.

p.s. vegna kommenta á síðustu færslu þá verð ég að hvetja þá sem ekki hafa séð myndina Leon nýlega til að sjá hana hið snarasta - þetta er ein af mínum uppáhalds ræmum....

Posted by mundi at 09:35 FH | Comments (4)

nóvember 23, 2003

uppgjör helgarinnar

við gerðum ágætan leiðangur til Lyon og Vizille um helgina. borðuðum góðan kvöldmat í sveitinni með verkfræðiparinu, spiluðum og áttum saman mjög skemmtilega kvöldstund.
svo var farið snemma á lappir og blússað sem leið lá til Lyon á laugardaxmorguninn. þar var farið í verslunarmiðstöð, sem er sú stærsta í evrópu að okkur skilst. enda var hún stór, það vantaði ekki. þar var jólagjafavandamálið leyst að stærstum hluta. síðan kíktum við aðeins í miðbæinn þar, að búðarápinu loknu. alveg svakalega mikið af fólki í þessari borg, það var allsstaðar troðið fannst mér. enda Lyon næst stærsta borg Frakklands. að þessu öllu loknu, var haldið heim á leið, sveitalubbunum skilað og komið heim, horft á fréttir og gísla martein á netinu og farið að sofa. verst að myndavélin gleymdist heima þannig að ég á enga mynd frá Lyon handa ykkur í þetta skiptið.

Posted by mundi at 05:35 EH | Comments (10)

nóvember 21, 2003

stórborgarferðir til vizille og lyon

þá er loxins kominn botn í hvernig fer með þessa helgi. við ætlum að skella okkur í sveitasæluna til Jóns og Guðrúnar til Vizille. gista þar í nótt og, svo ætlum við öll að fara saman á volfgang til Lyon í fyrramálið. eitthvað að reyna að bjarga jólagjafainnkaupum að mér skilst.

...já jólin koma - svo er mér sagt allavega...

Posted by mundi at 05:00 EH | Comments (0)

bara reiður núna...

hvað er eiginlega að þessum bjálfum þarna hjá kaupþingi?? við hlustuðum á hádegisfréttirnar á RÚV, í rólegheitum, með kaffibollann okkar hérna í ölpunum. ég varð bara reiður að hlusta á fréttir af framkvæmdum þessara örvita. þvílík fífl. það góða við þetta er þó að nátttröllið davíð dúskur hefur verið vakið. og það veit víst ekki á gott að vekja tröll. ég er búinn að vera með lífeyrinn minn hjá kaupþing undanfarin 3 ár, - ég sendi þeim tölvupóst í dag og bað um að það sem hægt væri að færa annað yrði fært. í þetta skipti ætla ég ekki bara að nöldra yfir kaffibolla heldur gera eitthvað. hef líka ekkert að gera með fleiri teppi frá þeim...

....ætli ég sé kominn með franskbrauðseitrun???? ;)

Posted by mundi at 01:57 EH | Comments (4)

átt þú hugmynd?

þá er helgin framundan. og ekkert planað, mér líst nú ekki alveg nógu vel á það. þarf að melta það eitthvað í dag hvort ekki er hægt að gera eitthvað skemmtilegt allavega annan daginn. skreppa í góðan bíltúr og/eða labba eitthvað, spáin er góð, hér eiga að vera 14-18 stig um helgina.

Posted by mundi at 08:48 FH | Comments (2)

nóvember 20, 2003

bubbi fínn kall :)

tn_DSC02417.JPG

að lokum gaf bubbi okkur heimilisfangið sitt og bað okkur að senda sér mynd af okkur saman. já fínn kall bubbi og ekki spurning hver mun leika kónginn þegar kvikmynd verður gerð um ævisöguna...

Posted by mundi at 01:24 EH | Comments (2)

bubbi frakka ????

tn_DSC02416.JPG

þarna erum við svo farin að skemmta okkur með innfæddum í tjaldinu stóra. þar var þessi maður sem var svo sláandi líkur kóngnum að við létum mynda okkur með honum.... :)

Posted by mundi at 01:21 EH | Comments (0)

skrúðgangan

tn_DSC02336.JPG

hérna er skrúðgangan á leið í gegn um bæinn, mikið af kyndlum og mögnuð stemming.

Posted by mundi at 01:17 EH | Comments (0)

GAMAN GAMAN

tn_DSC02325.JPG

liðin nótt var æði. það tók svona um 2 og hálfan tíma að keyra til Beaujou með rútunni. auðvitað sungum við íslendingarnir hástöfum alla leiðina. þegar þangað var komið þá var farið beint í skrúðgöngu þar sem fólk gengur með logandi kyndla í gegn um bæinn og inn á torg þar sem tunnan táknræna er. svo er talið niður og þegar klukkan er 12 þá er neglan tekin úr tunnunni, flugeldum skotið upp, og eftir það er svo gefið vín. svo þegar fólk er búið að fagna þarna og bragða á víninu, þá er haldið til baka og farið á sveitaball sem er haldið í risastóru tjaldi sem er reist í tilefni af þessu. þar sáum við mann sem var sláandi líkur þekktum íslenskum tónlistarmanni !!!! virkilega gaman að upplifa þetta alltsaman en það voru margir orðnir ansi þreyttir þegar heim var komið í morgun klukkan 7. og lítið um fjöldasöng í langferðabifreiðinni.

ELÍSABET skrifar líka um þetta á síðunni sinni í dag

Posted by mundi at 01:05 EH | Comments (1)

nóvember 19, 2003

hátíðin alveg að fara að hefjast

.......en núna, la fête du Beaujolais nouveau, fram undir morgun. áætluð heimkoma er 7 í fyrramálið. þá vonandi smá saga og myndir.

Posted by mundi at 05:21 EH | Comments (2)

hugleiðing um líðandi stund

já það er ekki á frakkana logið með þessi verkföll og mótmæli. stundum gengur þetta nú kannski út í öfgar samt, hef ég heyrt. ég er samt ekki að tala um þetta sérstaka tilfelli sem svanhildur er að lenda í núna, -ég skil gremju nemenda hérna vel, ef þær upplýsingar sem ég hef fengið eru réttar.

hins vegar fer maður að huxa um í framhaldi af þessu hversu geðlausir aumingjar íslendingar eru. ég er ekkert að undanskilja sjálfan mig þessum dómi. það er alveg sama hvað er gert heima, það er ómögulegt að hreyfa við því sem ég held að heiti félaxvitund. samanber þegar alþingismennirnir lækkuðu skatta á jeppum, eða núna þegar á að fara að svipta fólk atvinnuleysisbótum fyrstu þrjá dagana (já best að sparka hressilega í liggjandi mann!!!) þá sitja bara allir og bölva pólítíkusunum á kaffistofum víðsvegar um landið. eins voru margir á móti margumtalaðri virkjun við kárahnjúka, þar á meðal undirritaður, en drullaði hann sér á mótmælafund, NEI. af hverju er þetta svona ?? hvað er að ??

Posted by mundi at 11:58 FH | Comments (2)

nóvember 18, 2003

Stúdentaverkfall

Ég var komin óvenju snemma heim úr skólanum í dag og þar sem ég er stödd í Frakklandi ætti það ekki að koma neinum á óvart að ástæðan er verkfall. En að þessu sinni eru það ekki strætóbílstjórar, lestarstjórar eða kennarar sem eru búnir að samþykkja verkfall heldur eru háskólanemar búnir að samþykkja verkfall. Eftir því sem ég best veit hefur þetta ekki gerst frá því í óeyrðunum í maí 1968 þegar háskólanemar hér í Frakklandi mótmæltu úreltu skólakerfi með því að hertaka nokkra háskóla hér í Frakklandi.

En það eru sennilega margir sem spyrja sig að því hvernig þetta virkar eiginlega? Hvernig geta nemar farið í verkfall? Ég var allaveg ekki alveg að skilja þetta en er nú búin að afla mér upplýsinga og ætla að reyna að útskýra þetta fyrir ykkur. Þannig er mál með vexti að á plani menntamálaráðherra eru ýmsar endurbætur sem lúta að háskólamenntun á dagskrá, eins og í svo mörgum öðrum löndum. Það á að veita háskólum meira sjálfstæði og þeir eiga að verða meira sjálfbærir en þeir eru í dag. Þetta segja forsvarsmenn verkalýðsfélags stúdenta (já þeir eru með verkalýðsfélag hérna) að muni leiða til þess að hætt verði að kenna "óarðbær" fög eins til dæmis nánast öll húmanístísk fög og að hætt verði að stunda óarðbærar frumrannsóknir. Auk þess á að hækka skólagjöld töluvert sem leiðir til þess að framhaldsmenntun verður ef til vill ekki möguleiki fyrir alla. Þetta er auðvitað hið versta mál, en er í sjálfu sér ekki ósvipað því sem er að gerast í þessum málum heima á Íslandi (sem er að sjálfsögðu líka hið versta mál). Þannig að undanfarnar tvær vikur hefur mikið verið um það að nemendur sem starfa í verkalýðsfélaginu hafa komið inn í tíma, dreift miðum og hvatt fólk til að mæta á fundi sem haldnir hafa verið í hverju hádegi undanfarnar tvær vikur. Í dag var svo haldinn rosa stór fundur þar sem samþykkt var með miklum meirihluta að fara í verkfall( og ef ég hef skilið rétt þá eru allir ´stóru háskólarnir í Grenoble, 3 talsins búnir að samþykkja verkfall). Ég var í bókmenntasögutíma í fyrirlestrarsal beint fyrir neðan salinn þar sem fundurinn fór fram og bárust mikil læti af fundinum niður til okkar svo að kennarinn var í miklum vandræðum með að kenna. Ég hélt kannski að kennarinn myndi fara og segja þeim að hafa lægra svo hægt væri að kenna en það hefði aldrei komið til greina því þetta var skipulagður fundur að verkalýðsfélagi stúdenta og það hefur rétt á að halda fundi ef það vill. Svo að kennarinn reyndi bara að öskra hærra í míkrafóninn. Eftir u.þ.b. hálftíma kennslu ruddust svo um 200 nemendur og tóku orðið af kennaranum. Sá sem fór fyrir hópnum tylkinnti að það væri búið að samþykkja verkfall og vildi vita hversu margir í hópnum væru samþykkir. Slatti af fólki var með verkfalli en stærsti hlutinn sat hjá, enginn var á móti. Ég ákvað að sitja hjá þar sem mér finnst þetta ekki vera mín barátta verandi útlendingur. En mér finnst þetta mjög gott framtak, það er látið í sér heyra hérna, eitthvað sem við Íslendingar ættum að taka okkur til fyrirmyndar. Ég vona nú samt að þetta verði ekkert alvarlegt verkfall þar sem ég er nú komin hingað til að læra.

Kennarinn tók saman dótið sitt án þess að segja orð og fór út og hópurinn sem komið hafði inn í tímann hvatti alla til að koma með sér til að boða verkfallið í öðrum tímum. Þegar öllu þessu var lokið spurði ég tvær stelpur hvernig í ósköpunum þetta virkaði eiginlega og fannst þetta allt hálf framandi. Þá snýst þetta um það að þeir sem eru með verkfalli mæta ekki í tíma heldur safnast saman og fara inn í kennslutíma og trufla kennslu. Svo eru haldnir mótmælafundir á hverjum degi. Svona á þetta víst að ganga þangað til að stjórnmálamennirnir hætta við þær umbætur sem falla ekki að geði stúdentanna.

Það verður spennandi að fylgjast með hvað gerist. ég ætla að vera verkfallsbrjótur og mæta í skólann á morgun en veit ekki hversu mikil kennsla verður. Læt ykkur vita hvað gerist.

Posted by svanhildur at 02:57 EH | Comments (4)

morgunhugleiðing - góðan daginn

hvað er meira hressandi en að vakna snemma?? flest, - held ég þó einkum hið andstæða!! ég kvöldskólaneminn ákvað samt að sýna dugnað i þessum efnum í dag.
í gærkvöldi fékk ég fyrstu opinberu kvörtunina vegna gítarleiks!! :) (vonum seinna!!!) ég var að glamra hérna klukkan kortér í tíu í gærkvöldi þegar hann Gonni vinur okkar allra og leigusali birtist hérna á náttfötunum, og sagði mér á frönsku að ég yrði að æfa mig seinna því hann væri farinn að sofa! (ég hafði ekki hugmynd um að hann væri hérna í herberginu við hliðina.) en enginn verður óbarinn biskup. ég er samt bara ánægður með að skilja kallinn :) ég held að þetta sé smá að koma með frönskuna. ég er með miklu betri kennara núna á þessum kvöldnámskeiðum, hann er skipulagðari og útskýrir hlutina mun betur en kennarinn sem ég hafði í október. annars hefðbundinn dagur framundan, innkaupatúr og skólabækur ásamt kaffi og croissant.

ps. mikki mús á 75 ára afmæli í dag - til hamingju mikki

Posted by mundi at 07:24 FH | Comments (2)

nóvember 17, 2003

vá hvað saltkjöt er gott

Vorum að ljúka við að borða kvöldmatinn og það var sko ekkert slor í matinn í dag. Er til eitthvað jafn gott og saltkjöt og baunir? Ég held ekki. Eða jú kannski slátur, grillmatur, jólamatur, lundir, villibráð....Matur er góður.
En núna erum við afvelta, gjörsamlega búin að borða yfir okkur og líður bara ansi vel. Svona á þetta að vera... þangað til maður stígur á vigtina.

Posted by svanhildur at 08:06 EH | Comments (3)

svona sirka hálf miljón í þessum bæ

í dag... ...þoka.

...en margt býr í þokunni!

Posted by mundi at 11:35 FH | Comments (1)

nóvember 16, 2003

daxkráin framundan

verð að koma því að hérna að við erum að fara á Bojoulais-hátíðina á miðvikudaginn. mig er búið að hlakka til þess síðan í sumar. þann 19. verður neglan tekin úr fyrstu boujoulais tunnunni þetta árið. svaka hátíð í þessum litla bæ það kvöldið sem heldur svo áfram um allt frakkland kvöldið eftir. reyndar finnst mér þetta ekkert sérstaklega gott vín, en það verður örugglega gaman að vera á staðnum. elísabet segir nokkuð vel frá þessu á síðunni sinni þann 13. nóv. og það er linkur á hana hér til hægri.

PS. kem til þess að sakna Magna vinar míns og víngúrús þetta kvöld....

Posted by mundi at 02:41 EH | Comments (2)

sunnudagur

enn á ný er kominn sunnudagur. þetta eru rólegir dagar hérna svona alla jafna. allt lokað og lítið hægt að gera annað en að bregða sér í bíltúr eða bíó. svanhildur er í prófum á morgun, þriðjudag og á miðvikudag og svo eru líka verkefnaskil á þriðjudag þannig að við höldum okkur heimvið í dag. annars allt gott að frétta.

....en hjá þér?

Posted by mundi at 02:00 EH | Comments (2)

nóvember 14, 2003

þreyttur í dag en ánægður!

tn_DSC02276.JPG

já það var ekkert slor veislan hérna í gær. enda vakti hún mikla lukku og síðustu gestir fóru seint. þetta var mjög gaman við vorum 10 stykki hérna, étið og drukkið að hætti íslendinga.

og það besta er... ...afgangur af grjónagraut svo núna er svanhildur að græja lummur eftir uppskriftinni frá daiu og óla...

Posted by mundi at 03:41 EH | Comments (4)

erum loxinz að fara að sofa!!

þessi íslenska hátíð hér í grenoble tókst betur en við þorðum að vona. hvað er klukkan??? meira og myndir seinna í dag. athugið að "blogg" klukkan er á íslenskum tíma. góða nótt.

Posted by mundi at 05:26 FH | Comments (3)

nóvember 13, 2003

a la carte

matarboð hér í kvöld. nú á að ganga fram af "úllunum"

matseðill kvöldsins er eftirfarandi:

"sheepblood-with-fat-in-it"
"liver-sausage"
"sheepfaces-with-kartöflustappa"
"mjólkurgrautur-with-plenty-of-rúsíns"

og í eftirrétt verður:

"dried-stonebite-with-butter"
"rotten-shark-served-with-chilled-icelandic-black-death"

vonandi komast allir sem við buðu, en það eru spanjólar, þjóðverjar, frakkar og kanadabúar. þetta verður spennandi....

Posted by mundi at 03:30 EH | Comments (2)

nóvember 12, 2003

skrítið bragð

fór á grænmetismarkaðinn í morgun. keypti grasker. á þetta að vera svona á bragðið?? eða er þetta fóður fyrir dýrin sem við eigum svo að borða kjötið af???

Posted by mundi at 12:06 EH | Comments (8)

gonni alveg straumlaus í dag

þessi dagur byrjar vel. ég var bara kominn framúr fyrir klukkan átta! allt leigusalanum okkar honum monsieur Xavier Gonord, eða Gonna eins og ég kalla hann að þakka. kall greyið var hérna í nótt og bíllinn hans varð straumlaus. wolfgang reddaði því léttilega. en tapaði auðvitað bílastæðinu mínu á þessum 6 mínútum sem það tók að kapla Gonna í gang. þið hélduð kannski að ég hefði verið að grínast þarna á dögunum?´


ps. til hamingju jón og guðrún. þau eru komin með svona dagbókarsíðu og það er linkur á hana hérna til hægri - skoðiði!

Posted by mundi at 07:27 FH | Comments (4)

nóvember 11, 2003

allt lokað

í dag er ellefti ellefti. það er almennur frídagur hér í landi. þetta heitir vopnahlésdagurinn eða eitthvað þvíumlíkt. ég er búinn að vera að reyna að æsa fólk með mér á skíði í dag en það gekk nú ekki betur en svo að ég sit hérna. sem betur fer kannski - því í gærkvöldi komst ég að að skíðasvæðið sem ég ætlaði á er lokað fram til 29. þessa mánaðar. (www.les2alpes.com)

...svanhildur les og les. stór fyrirlestur hjá henni í gær og erfitt próf á morgun. þannig að ég verð víst að taka að mér að slappa af fyrir okkur bæði, einu sinni enn.... ;)

Posted by mundi at 11:35 FH | Comments (4)

nóvember 10, 2003

á ferð og flugi

tn_DSC02105.JPG

Frábær helgi liðin og kominn mánudagur. Snæbjörn og Ella voru hérna hjá okkur um helgina. og við sátum sko ekki aðgerðalaus. á laugardaginn fórum við snemma á stað og keyrðum hérna upp í fjöllin. fórum þar í gönguferð, skoðuðum út um allt og fengum okkur að borða í litlu þorpi. enduðum svo daginn á svona nokkurskonar "kaffileikhúsi" hérna í Grenoble þar sem við borðuðum góðan mat og hlustuðum á braselískann gítarleikara sem hafði bumbuslagara sér til halds og trausts. svo þvældum við meira um fjöll í gær og skoðuðum hella, fjöll og það sem á vegi okkar varð. sýni hérna nokkrar myndir frá bíltúrum helgarinnar.

.... auðvitað komu þau færandi hendi þannig að nú eigum við saltkjöt og saltfisk, slátur, svið hákarl og harðfisk. TAKK TAKK

þetta getur bara ekki verið betra.

Posted by mundi at 09:55 FH | Comments (3)

tn_DSC02261.JPG

Posted by mundi at 09:43 FH | Comments (1)

tn_DSC02135.JPG

Posted by mundi at 09:41 FH | Comments (0)

tn_DSC02158.JPG

Posted by mundi at 09:40 FH | Comments (0)

tn_DSC02203.JPG

Posted by mundi at 09:39 FH | Comments (0)

tn_DSC02191.JPG

Posted by mundi at 09:38 FH | Comments (3)

nóvember 07, 2003

Er einhver ljósmyndari þarna ???

ég auglýsi eftir ljósmyndum. ef einhver liggur á fallegum myndum úr náttúru íslands, í góðri upplausn, þá endilega senda mér þær. mig langar að prenta þær út og hengja upp á veggi hérna.

...ég er búinn að leita um allt á netinu og hef ekkert fundið nema "litlar" myndir. á mbl.is og íslandsmyndir.is er hægt að fá þetta en ég ætla mér ekki að borga fyrir - nei takk...

ef eitthvað liggur á lausu einhversstaðar, þá sendið það á: mundi74@wanadoo.fr

Posted by mundi at 02:23 EH | Comments (8)

ég get hvergi lagt bílnum :(

ég er fæddur í stórum bæ sem þó telst líklega lítill á heimsvísu. ég er líka fæddur í stóru landi með nóg af plássi - samt smáríki.

ég hef aldrei átt heima á grettisgötunni og þekki því ekki þessi þrengsli og BÍLASTÆÐAVANDAMÁL. djöfull er þetta óþolandi að geta hvergi lagt bílnum sínum.......

.....spurning um að fá sér einn lítinn Austin....

Posted by mundi at 11:58 FH | Comments (3)

nóvember 06, 2003

utilisez les comments s'il vous plaît....

jæja.

ég er kominn heim úr skólanum, erum við sest niður og búin að opna eina rauðvín og erum að hlusta á sigurrós. fín blanda. ég er búinn að eiga rólegan dag, en er þó búinn að tala við fullt af fólki á MSN í dag. gaman gaman.
svo hef ég voða gaman af því að fylgjast með teljaranum sem segir mér allt um umferðina hérna á síðunni. hingað hafa rambað inn 66 gestir í dag, sumir reyndar oftar en einu sinni.

mig langar bara að hvetja þá sem skoða, til að notfæra sér að kommentin. það er svo gaman að fá þannig og vita að þið sem hingað komið eruð lífs en ekki liðin!

...svo langar okkur líka auðvitað að þakka þeim sem hafa verið duglegastir við þetta. maður mundi ekki nenna þessu nema af því að maður fær þetta "feedback" !!!

Posted by mundi at 11:14 EH | Comments (6)

Slaki

rólegur dagur í grenoble í dag. púls 4. alveg magnaður fjandi. nei annars... púls 2......

Posted by mundi at 04:08 EH | Comments (0)

nóvember 05, 2003

bara að láta vita að ég er á lífi

ég hef ekkert skrifað svo lengi að ég verð bara aðeins að láta heyra frá mér. er orðin hrædd um að allir séu búnir að gleyma mér heima. en ástæðan fyrir því að ég hef ekkrt skrifað er að ég hef ekkert að segja. hef lítið annað gert undanfarnar tvær vikur en að sitja yfir skólabókunum. allt brjálað að gera þessa dagana og töluvert erfiðara að læra frönsku með Frökkum en Íslendingum, aðeins meiri kröfur. ég ætla bara rétt að vona að öll þessi vinna mín endurspeglist eitthvað í einkunnunum, er nefnilega skíthrædd um að falla í nokkrum fögum. svo það er víst best ég haldi áfram að læra. verð að eiga frí um helgina því mamma og pabbi eru að koma í heimsókn! Hæ hó jibbý jei og jibbý jei jei!!!

Posted by svanhildur at 06:07 EH | Comments (4)

nóvember 04, 2003

fjöll út um allt

tn_DSC02030.JPG
við erum í ölpunum, lítið meira um það að segja.

Posted by mundi at 02:11 EH | Comments (3)

"téléphérique"

tn_DSC01995.JPG
það eru þessar "diskókúlur", sem eru nokkurskonar tákn bæjarins. með þeim getur maður farið upp í bastilluna og jafnvel niður aftur. var það ekki sveinn í kálfsskinni sem vildi láta græja svona upp á topp hlíðarfjalls?? ég styð svein í því.

Posted by mundi at 02:10 EH | Comments (4)

blíðviðri

tn_DSC01981.JPG
mér datt í hug í hádeginu að skella mér upp í bastillu til þess að taka myndir fyrir síðuna. hér er fallegt veður í dag og hlýtt þar sem sólin nær að skína. tók fullt af myndum en ætla að láta sýnishorn duga. haustlitirnir hérna eru ansi fallegir eins og heima.

Posted by mundi at 02:06 EH | Comments (0)

Svolítið pirraður núna!

flestar lífverur hafa sér einhvern tilgang. grasið handa lömbunum, -lömbin handa grillinu og svo framvegis. hvar kemur moskítóflugan inn í þetta? djöfull hata ég þessi kvikindi.


...lengi lifi DDT

Posted by mundi at 09:54 FH | Comments (3)

nóvember 03, 2003

idols og spanjólar

já fín helgi að baki.
á laugardaxkvöldið fórum við í heimsókn til elísabetar og george því beta hafði fengið senda vídeóspólu að heiman með IDOLS. ekki var ég nú mjög spenntur yfir því að vera að fara í heimsókn til að horfa á "raunveruleikasjónvarp" því mér leiðist það alla jafna alveg hryllilega. þetta kom mér samt á óvart - þetta var bara hin besta skemmtun, gaman líka fyrir okkur hin íslenskumælandi að hittast og gera eitthvað svona saman.
verkefni kvöldsins verður að skutla jóni og guðrúnu ti vizille - þau koma með lestinni kl 20.
annars venjulegur mánudagur hér eins og víða um heim...

Posted by mundi at 04:21 EH | Comments (0)

nóvember 01, 2003

skíðin bíða - það rignir og rignir

fyrsta fönskunámskeiðið mitt hér er afstaðið. eftir það fórum við að sækja um atvinnu- og landvistarleyfi fyrir mig. það gekk svona líka vel. mér var sagt að finna mér vinnu og koma svo. allt klárt eins og ágætur maður sagði mjög eftirminnilega.
svo héldum við að dagurinn mundi enda rólega hérna heima eftir þetta. en klukkan átta kom spánverjinn sem býr hérna á neðri hæðinni og bauð okkur að koma niður en þar voru hann og 4 aðrir spánverjar að spjalla og drekka rautt. við þangað auðvitað og enduðum á bar með þeim.
svo við vorum bara að koma heim núna!

...aldeilis ljómandi byrjun á helgi...

Posted by mundi at 01:26 FH | Comments (1)