elskan hún daia systir setti upp teljara á síðuna okkar. ég var að skoða hann áðan og það kom mér á óvart hvað það eru margar heimsóknir á þessa síðu. alls eru komnar 1322 heimsóknir á hana það sem af er þessum mánuði. Þetta fer að verða spurning um að selja auglýsingar hérna!!! :)
annars heyrði ég í Haris áðan, en hann er bosníski vinnufélagi minn frá danmörku, en var í svíþjóð!! ekki var nú gott hljóðið í honum, meistari niels margbrotinn eftir fall og búinn að vera rúmar 2 vikur á spítala. með báðar hendur, öxl, viðbein, 4 rif og hné brotið. ég veit að hann sér ekki þessa síðu og mundi ekki skilja hana ef hann sæi - en ég sendi meistaranum mínar bestu bataóskir.
hér er bara orðið hlýrra. það gat nú verið fyrst maður er búinn að fá sér skíði!! en það er óskup notalegt samt. við fórum áðan og skráðum mig í "semi-intensivankúrs" í nóvember, því þessum "intensíva" sem ég er í lýkur á morgun. svo ætluðum við að græja landvistarleyfið mitt áðan en auðvitað var lokað hjá fógeta klukkan hálf fjögur. þannig það bíður morgundaxins. það nebblega kannski vinna í sigtinu, allavega viðtal (huxanlega eintal þá!!) þá verður leyfið að vera klárt - í það minnsta.
stundum verður ánægjan að víkja fyrir skynseminni. það er gott að spara, en til hvers að búa í ölpunum heilan vetur og ekki að fá sér ný skíði???
það mál er í höfn. ný skíði handa öllum....
Góðir hálsar, ....nei misgóðir hérna í Grenoble. 'Eg er búinn að vera með hálsbólgu frá helvíti þessa viku og er búinn að liggja í pest, eymd og volæði í nokkra daga. En er eitthvað að betrast. Þannig að það hefur lítið gerst sem mig hefur langað að deila hér, með ykkur.
Reyndar röltum við aðeins út í gær að skoða markað fyrir notuð skíði hérna niðrá campus í gær, en þar var ekkert betra að fá en það sem við eigum fyrir, svo það var lítið annað en göngutúrinn á því að græða. horfðum á rúv á netinu í gærkvöldi. og svo græddum við einn klukkutíma, því nú er kominn vetrartími hér. Spennandi helgi hér semsagt !! ;)
En ný vika að byrja og allt að verða betra....
Ps. mig langar að koma hamingjuóskum til margra þessa helgina. Sérstaklega þeirra sem giftu sig, útskrifuðust eða áttu afmæli - til hamingju öllsömul !
það er nóg bara að huxa um snjó og skíði þá fær maður kvef. ég er semsagt tekinn við af svanhildi á kvef-vaktinni
oj oj ojjjj
í morgun kl 7 gerði ég eins og sannur bóndi, fór á fætur og leit til veðurs. ég gerði það auðvitað á netinu. hér á að fara að kólna rækilega í vikunni þannig að við fórum og náðum okkur í skírteini á skíðasvæðin. sem þýðir að við borgum uþb. hálfvirði inn á þau þegar þau opna ákváðum að gera það meðan ég er með gilt skólaskírteini, vitum nefnilega ekki alveg hvernig frönskunámið verður hjá mér í næsta mánuði. þessir intensívu kúrsar eru ágætir, en dýrir svo við erum að skoða aðrar leiðir, sem eru margar.
svo erum við með urmul af bæklingum yfir ný skíði......
það er nefnilega byrjað að fara fyrstu ferðir á hæst-liggjandi skíðasvæðin, þau sem eru á jöklunum.....
ballið er rétt að byrja
þetta var mögnuð samkoma á föstudaginn. við hittumst heima hjá siggu og gísla, en þau leigja litla íbúð hérna í hjarta miðbæjarins. þau voru búin að elda handa okkur öllum bruchettur og lasagne og var sko nóg til og bragðaðist verulega vel. þökkum þeim fyrir frábæra veislu. og þessi veisla stóð fram eftir morgni, vorum við alls 12, 10 íslendirnar og 2 frakkar, makar betu og dóru.
þannig að í gær var farið seint á fætur. og ekkert gert neitt voðalega mikið, í raun fínn slökunardagur. svo á eitthvað að reyna að kíkja í bækurnar í dag
....en fyrst kaffibolli
í dag á aðeins að viðra á sér félaxleguhliðina. á eftir, eftir tæpa tvo tíma, er nefnilega samkunda á vegum íslendingá í grenoblehreppi. við ætlum að hittast þar öll sem erum hérna á svæðinu, alls átta stykki. og heyrst hefur að vinsældir okkar séu svo miklar (sennilega spurst út að ég kem EKKI með gítarinn!!!) að það er von á tveim til viðbótar alla leið frá landi kanslarans. þannig að það er dagur víns og annarra veiga....
hvað er hægt að tæknivæðast mikið? blogg gærdaxins fjallaði nú að mestu um það. nú erum við líka komin með Webcam, vefmyndavél. nú getur maður ekki bara talað við fólk, á netinu, heldur getur fólk líka séð okkur. og svo sjáum við auðvitað þá sem hafa sama búnað. ég orðaði það við vin minn að við þyrftum að slá upp sameiginlegu partíi, - bara sitt í hvoru landinu!!! ;)
annars er fallegt veður í grenoble í dag, sól og stilla.
það er stórkostlegt þetta internet. bráðum þarf maður örugglega ekkert annað en tölvuna og tenginguna. jú og sennilega klósett. þegar við vorum í danmörku þá prófuðum við einu sinni að panta okkur kvöldmatinn í gegn um netið. og viti menn ding-dong sendillinn var á tröppunum 20 mínútum síðar.
og yfirleitt allt sem manni vantar, nú eða vantar ekki, -langar bara í , það getur maður fundið hérna. skoðað, lesið gagrýni, gert verðsamanburð og verslað.
hér getur maður líka náð sér í tónlist, þætti og bíómyndir. horft á fréttir ríkissjónvarpsins eða kastljósið, án endurgjalds, nenni maður því og svo heyrt í Gesti Einari á morgnana, jafnvel hérna inni á milli fjallanna. og í gær toppaði netið sig enn einu sinni þegar ég talaði til íslands í gegn um MSN. talaði við góðan vin minn í tvo klukkutíma, og hann bara á innanbæjartaxtanum með módemið sitt!!!
þvílík snilld þetta er.
það er aðgerðalítið í Grenoble í dag. það er svona "ekkert" veður og ég hef frá litlu að segja. Svanhildur er hálf kvefuð, það eru nú helstu fréttirnar.
best að taka smá snúning á gítarnum....
í dag ætla ég að slá tvær flugur í einu höggi og sýna ykkur mynd af tveim nýjustu áhöldum hússins.
á leiðinni til avignon á föstudaginn stoppuðum við í kjörbúð hérna lengst uppí fjöllum til að kaupa brauð,ost og eitthvað fleira góðgæti til ferðarinnar. Var þá verið að selja þar svona líka fína litla bakaraofna. með herberginu fylgdi einn slíkur, helmingi minni. en helsti gallinn við hann var ekki stærðin heldur að hann hitnaði ekki!!! þannig að við festum kaup á nýjum ofni fyrir 20 evrur. kalla ég það góð kaup og mun herða mig í lasagne-áti í framtíðinni!
svo plantaði ég gítarnum ofan á ofninn til myndatöku. hann er líka ágætur en kostaði eins og 5 ofnar!!
póst fengum við að heiman í dag. fengum þar á meðal sendann diskinn með KK og Magga Eiríks frá Snæbirni og Gauta. 22 ferðalög með gítargripum eiga eftir að koma sér vel við sjálfsnámið. Takk fyrir, kærlega.
ps. það er að myndast sigg á fingurnar, það er ekki vont að spila lengur.... :)
En ekki eru nú öll verk mannsinns jafn falleg. eftir brúarskoðunina fórum við svo að halda heim á leið. við fórum styttri leið, héldum okkur utan við fjöllin, en keyrðum þó ekki hraðbrautina. hún er leiðinleg og dýr, en kemur manni hratt áfram. það finnst wolfgang reyndar voða gaman! rétt hjá nokkuð stórum bæ sem heitir valence, hérna suð-vestur af sáum við þetta kjarnorkuver. gríðarlegt mannvirki en stakk í stúf við alla þá fallegu náttúru, og byggingalist sem við vorum búin að upplifa um helgina.
en einhversstaðar verða vondir að vera
hugsa sér. allt þetta til að veita vatni - yfir á!! hefði ekki verið hægt að gera bara nokkrar fötur handa þrælunum???
eftir að hafa baðað tærnar í miðjarðarhafinu var svo ekið norður aftur. þarna þar sem við vorum er fenjasvæði, fullt af mosqito flugum svo við ákváðum að tjalda ekki þar. keyrðum sem leið lá að pont de gard og slógum upp tjaldinu enda farið að dimma. í morgun gengum við svo að brúnni og skoðuðum hana og umhverfið. þessi brú er byggð á árunum 60-40 fyrir krist, og var áveita. steinblokkirnar í brúnni vega 6 tonn hver og hún er 270 metra löng og 40 metra há. hvernig fóru menn að þessu????
Svo varð maður nú að kynda wolfgang aftur eftir þessar gönguferðir um gamlar rústir og byggingar og blússa þessa 30 kílómetra sem eftir voru niður að miðjarðarhafi. ekki til að gera neitt. bara til að ná þessari mynd!!!
næst var skoðað leikhús sem byggt var árið 100. það er nú ansi illa farið, bara rústir en samt heillegir hlutar inn á milli. mikið af útskornum marmara og þessar Öndvegis súlur, líka úr marmara. En eins og hringleikahúsið, enn í notkun.
það virðist vera nokkuð góður styrkur í þessu ennþá, eftir 1800 ár. Allavega gat ég alveg stutt mig við vegginn án þess að hann gæfi sig .....!!!
Að lokinni hallarskoðun, kirkjuskoðun og brúarrannsóknum í Avignon var wolfgang ræstur að nýju og ekið smá stund til suðurs, til Arles. þar er hringleikahús sem var byggt árið 200 eða þar um bil og er enn í notkun. Við skoðuðum það auðvitað...
Sur le pont d'Avignon, on y danse, on y danse....
þetta er þessi fræga brú, sem sungið er um. Hún var byggð var yfir Rón, að okkur minnir ellefuhundruð og eitthvað. Hluti hennar gaf sig svo í flóðum á 18. öld... ...en þið fáið að sjá meira af brúm....
þessi fær að fljóta með, þetta er innan úr hallargarðinum, - eða einum af þeim...
Hérna sjáum við höll páfans í avignon og notre dame kirkjuna þar. Páfinn hafði aðsetur í avignon frá þrettánhundruð og eitthvað. og í einhver 200 ár, en þarna hafa búið biskurpar og erkibiskupar fram á 19. öld. Keyptum okkur túr um bygginguna. þetta er ótrúlegt að skoða og að hugsa sér verkfræðina og arkítektúr síðan fyrir svona löngu síðan. og ekki síður vesenið við að gera þetta allt á handafli... ...en við erum nú bara rétt að byrja
Wolfgang fékk að rúlla sirka 700 kílómetrum inn á reynslumælinn um helgina. Og ekki í veðri af verra taginu. Fórum að stað suður á bóginn seinnipart föstudagsins og keyrðum fjallvegina til að byrja með. Þurftum meðal annars að snarstoppa þegar villisvínamamma hljóp yfir veginn með grislinginn sinn með sér. ókum svo niður Rónardalinn þaðan sem Côtes du Rhône vínin koma. enduðum á að kaupa eina rándýra flösku til að eiga spari. Chateau neuf du pape 1993. Tjölduðum svo út í sveit, 50 km frá avignon og fórum að sofa.
hér er undirritaður með vínekrurnar í baksýn.
Þá erum við að leggja af stað í útilegu. Tökum stefnuna suður á bóginn í góða veðrið. Spáin er fín, 20 til 25 stiga hiti og sól yfir daginn en fer alveg niður í 5 til 6 á nóttunni svo þetta fer nú að verða síðasti sjéns til að sofa í tjaldi. Ætlum að skoða Avignon og Arles og kannski líka Nîmes ef við höfum tíma en þetta eru allt gamlar rómveskar borgir fullar af minjum eins og hringleikahúsum, sigurbogum og gömlum rómverskum brúm. Svo hafði páfinn líka aðsetur í Avignon í nokkur hundruð ár, svo þar er líka fullt af flottum kirkjum.
Það er þá ekki eftir neinu að bíða, best að drífa sig af stað. Góða helgi!
einn dagur í helgina hjá mér, einn búinn af helginni hjá svanhildi!! já hún er með yndislega stundaskrá, en fær reyndar að svitna fyrir því þessa daga sem er skóli. ansi langir dagar.
ég er alveg kófsveittur yfir þessari frönsku. hver fann þetta eiginlega upp?!? :)
ég held að ég hafi jafnvel skorað aðeins of hátt á inntökuprófinu. ég lenti í 3 stigi. held jafnvel að ég ætti betur heima stiginu neðar. samt er ég ekki viss. því það sem af er, þá gengur sumt svona líka ljómandi vel en annað er alls ekki að gera sig. hvað er til ráða?
spyr sá sem ekki veit
jæja
einn alvöru skóladagur að baki. ekki blæs það nú byrlega í upphafi. ég held ég lýsi stöðu minni best með hinu ágæta íslenska orðatiltæki: "eins og álfur út úr hól"
...en héðan í frá getur þetta bara batnað, þannig að ég reyni að halda ró minni :)
það gengur betur með gítarinn, er strax búinn að læra D og C. nú er bara að bæta G-inu við og fara að æfa skiptingar. en maður verður aumur í fingurgómunum á vinstri af þessu. nú er bara að vera karlmaður, hætta að væla, læra bara þessa frönsku og safna siggi. þá verður allt gott.
ps. ....og enn betra ef það vari nú farið að kveikja á kyndingunni...
Ég er nýkomin heim úr skólanum og það styttist í að Mundi komi heim. Fyrsti alvöru skóladagurinn hans í dag og það verður spennandi að heyra hvernig honum líst á þetta. ég held hann sé eftir hádegi á þriðjudögum og fimmtudögum en fyrir hádegi mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Ég lenti í smá veseni með kúrsana mína. Það var þannig að ég var búin að ákveða í samvinnu við frönskudeildina heima að taka tvo málfræðikúrsa hérna úti, einn með fyrsta ári og annan með öðru ári. En svo þegar ég ætlaði að skrá mig í þessa kúrsa ´þá var mér sagt að þessir kúrsar væru allt of erfiðir fyrir útlendinga og að ég ætti að taka spes málfræðikúrs fyrir erasmus-nema. Svo ég gerði það en fékk svo að vita í síðustu viku að frönskudeildin heima myndi ekki meta þennan kúrs því hann væri of léttur og að ég þyrfti að skrá mig í hina tvo málfræðikúrsana. Svo ég gerði það og var að mæta í fyrsta skipti í þessa tíma í dag, búin að missa af fyrstu tveim vikunum og skildi ekkert hvað var að gerast í kúrsinum með öðru árinu. Svo ég er á leiðinni að fara að glugga í þessa 7 bækur sem ég er með um franska málfræði (í alvöru, ég á 7 málfræðibækur og þarf meira að segja að kaupa mér tvær í viðbót) en ég nenni því ekki alveg strax því ég er alveg uppgefin eftir þennan skóladag. Eftir hádegi var ég í tíma um franska bókmenntasögu (19. öld) sem mér finnst mjög áhugavert að læra um en þessar frönsku kennsluaðferir eru ekki alveg eins og maður á að venjast heima. Hver tími er tveir klukkutímar án frímínútna og við erum í þessum tíma ca 100 stk. í allstórum sal. Svo situr kennarinn bara og talar stanslaust í míkrafón og allir sitja og rembast við að glósa nógu hratt og hjá okkur útlendingunum fer mikil athygli í bara að reyna að skilja hvað hún er að segja því hún talar svo hratt að hún gleymir að anda. Þessi kennari er reyndar sérstaklega slæm og nennir aldrei að standa upp til að skrifa eitt einasta orð á töfluna, hvað þá að vera búin að undirbúa glærur. Og þetta með að geta fundið glærur frá kennaranum á netinu heima, ég held að flestir kennararnir hér kunni ekki á tölvur. Nei ég er nú kannski svolítið að ýkja en þessi kennari er mjög slæmur og maður er gjörsamlega uppgefinn eftir tíma hjá henni. En nóg um það. ég ætlaði að segja ykkur að Mundi er búinn að kaupa sér gítar og nú bíð ég bara eftir að okkur verði sagt upp leigunni. Nei bara að djóka. Mér finnst alveg frábært að hann sé búinn að fá sér gítar. Hann er búinn að tala um það lengi og það er aldrei að vita nema ég reyni eitthvað að læra á hann með honum. Ég held ég fari bara að prufa gítarinn núna og fresti lærdómnum.
Nú veit ég af hverju frakkar stofnuðu útlendingahersveitina....
.....það var svo þeir hefðu stað fyrir fólk sem stendur sig jafn vel og ég á frönskuprófum... :)
en þá er fyrsta áfanga lokið, munnlegt próf, skriflegt í skilningi og málfræði og svo hlustun, að baki. þetta eru að stærstum hluta krossar þar sem maður á að merkja við hversu mikið maður skilur. svo kemur í ljós á morgun í hvaða dilk ég verð dreginn.
ps. muna að hafa með sér tening næst ;)
jæja gott fólk, nú hefur heldur betur kólnað hérna í suður evrópu. í dag er bara frekar kalt (þarf að fara að fá mér hitamæli, é erfitt með að klæða mig eftir veðri hérna!!!) og grenjandi rigning. reykjavíkurveður.
en helgin er búinn að vera góð. við fórum til vizille til Jóns og Guðrúnar með grillið á föstudaginn. þar var svo grillað og étið og drukkið og jón tók fram nýkeyptann gítarinn og fór á kostum. þannig að við sátum úti í garði hjá þeim til kl eitt um nóttina. færðum okkur svo inn að spila. frábært kvöld.
í dag var svo bankað hjá okkur. par frá québec sem býr hérna á hæðinni með okkur, bauð okkur að koma með í fjölþjóðlegann hádegismat. þar voru samankomnir vinir þeirra og eitthvert annað fólk líka alls 17 manns. frakkar, spanjólar, ítalir, þjóðverjar, kanadamenn og svo við. hver þjóðflokkur hafði svo eldað einfaldan rétt frá sínu landi. mjög skemmtilegt. en vegna stutts fyrirvara gátum við ekki tekið neitt þjóðlegt með, sögðum bara sögur af súrum eistum, sviðakjömmum og hákarlsverkun og ég held að það hafi flestir verið sáttir við þessa 3 lítra af kók sem fylgdu okkur! :)
svo er minn að fara að kíkja í bækurnar núna því stöðuprófið er í fyrramálið kl 900. úff bækur...
hér er búin að vera gestagangur í dag. verkfræðinemarnir jón og guðrún (www.jonthor.com) litu í heimsókn og það var gaman að hitta þau. og var afráðið að halda grillveislu annaðkvöld heima hjá þeim í vizille sem er lítill bær hérna ca. 30 km fyrir sunnan. svo hittum við stelpu sem heitir elísabet en hún er að læra viðskiptafræði hérna og hún tjáði okkur að það væri eitt par frá íslandi hérna til viðbótar í námi. og gott ef hún talaði ekki um eina stúlku til viðbótar. það fer að verða fundafært hérna í grenoblehreppi!
vill svo skemmtiega til að umræddur jón er að leita sér að ódýrum gítar til að spila á. ég sagði honum að ég væri maður í að taka annann, og reyna svo að læra á hann en hann sagðist taka að sér kennslu.
margt í spilunum.
voðalegur munur er það nú að geta lesið moggann og hlustað á gest einar með morgunkaffinu. HA!!! þvílík forréttindi sem við hin íslenskumælandi höfum.
annars er allt við sama heygarðshornið hér, blóðið rennur í æðunum, en bara af gömlum vana þessa dagana.
hér fáið þið svo 3 myndir af "nýju" vistarverunum.