við keppumst við að bæta um betur enda í raun margt að segja eftir svona "langa" fjarveru frá upplýsingamiðli!
fyrir þá sem vilja vita (ekki hina) þá erum við bæði komin með frönsk gemsanúmer. en sá galli er á gjöf njarðar að við getum ekki sent sms til íslands, enn sem komið er. til þess að opna fyrir það þurfum við að senda inn beiðni til símafyrirtækissins. og á þessari beiðni þurfa að vera upplýsingar um allann andskotann þar á meðal bankareikningsnúmer og hvaðeina. gallinn er sá að ég á enn sem komið er ekki bankareikning eða landvistarleyfi og hvað þetta nú allt er. hvað var verið að blanda finnum í málið þegar orðið "skriffinnska" fundið upp. mun ég héðan í frá kalla þetta skriffrönsku.
svanhildur er búin að senda inn sína beiðni og ætti hennar númer að fara að opnast innan skamms. einhverjir dagar verða í að mitt opnist en bíðum róleg!!!
númerin eru:
Svanhildur 0033-666-5470-23
Mundi 0033-663-1635-46
í jesú nafni
AMEN
Hæ hæ
Ég ætla bara að bæta nokkrum orðum við það sem Mundi sagði.
Ég byrjaði í skólanum síðasta mánudag og líst bara vel á. Er í sex fögum en þetta raðast svona rosalega vel á stundatöfluna, ég er bara í skólanum mán, þri og mið og hef svo fjögurra daga helgi. Er hægt að biðja um það eitthvað betra?
Það lítur út fyrir að ég taki flest jólapróf fyrir jól (verða 1-2 í janúar) þannig að þið sem voruð að spá í að koma í heimsókn í janúar getið farið að kíkja á miðaverð. Ég held það sé ódýrast að fljúga með Iceland Express til London og þaðan til Lyon með annað hvort Easy Jet eða Rayan air, en það er hægt að panta miða hjá þessum flugfélögum í gegnum netið. En ef einhver vill eyða einhverjum tíma í París þá er kannski einfaldast að fljúga bara beint þangað.
Annars hef ég voða litlu að bæta við það sem Mundi sagði. Heyrumst bara seinna.
ég gat ekki á mér setið að smella einni mynd af skítum á veggjunum, þó var ég búinn að fara létt með tusku í þetta og svo með sandpappírinn þannig að nýja málningin fengi nú viðloðun einhversstaðar!!!
HÆHÆHÆHÆ heimur
Eftir mikið japl jaml og fuður er loxins nettengingin okkar komin í gagnið. Héðan í frá veit maður þá eitthvað. Því ekki er sjónvarpi fyrir að fara hér í landi fraskbrauðs og osta, og útvarpsefnið fer að mestu fram hjá mér ennþá!!!
hjá mér hefur semsagt verið "status quo" frá því að mörkin var yfirgefin, í alþjóðlegum skilningi.
en hér er boltinn byrjaður að rúlla. ég er búinn að mála klefann, ekki var nú vanþörf á, skítugri veggi hef ég ekki séð og hef þó marga hildina háð í útihúsum víðsvegar á landi ísa. svo erum við búin að koma okkur vel fyrir núna. við erum virkilega vel staðsett í bænum, 5 mín að labba í miðbæinn og 1 mín að labba út á sporvagnastoppustöð þaðan sem vegir liggja til allra átta. svo er ég að byrja í skólanum á mánudaginn. nóg um að vera hér semsagt.
á laugardaginn síðasta skelltum við okkur í stuttan bíltúr, sem dróst reyndar á langinn, hvort það var vegna þess að bílstjórinn beygði í vitlausa átt eða hvort co-driverinn las vitlaust á kortið skal ósagt látið en í öllu falli voru þessir 5 - 6 tímar mjög skemmtilegir og margt að sjá hérna í ölpunum. wolfgang fékk sinn skammt af brekkum þann daginn og er enn í hvíld.
ef allt er að virka sem skyldi þá koma hér nokkrar myndir frá því þegar "fjósið var málað" og þessum stutta bíltúr til suð-vesturs.
hverfid okkar er tarna fyrir nedan, handan vid ànna
...enn à leid upp ...gott ad hvila sig i skugganum
tetta er markadur sem er vist à hverjum degi hérna rétt hja tar sem vid bùum
tetta er notre dame kirkjan i Grenoble. Eitthvad er nu katholskan a undanhaldi tvi tad er buid ad byggja kaffihus utan i hana!!!
Nú erum við loxins komin bæði á franska grundu. Ókum af stað frá Billund seinnipart föstudagsins og keyrðum svolítið suðurfyrir Hannover í þýskalandi, eða alls 500 km. Þar fundum við þetta fína hótel sem við gistum á þá nóttina. Eftir morgunmatinn á hótelinu, gáfum við wolfgang sopann sinn og lögðum af stað í seinni legginn um kl 800. svo var ekið sem leið lá fram hjá Frankfurt, í átt að Frönsku landamærunum.
Þar breyttist umferðartempóið mikið. Hér er auðvitað ekið mun hægar en í þýskalandi en svo var líka umferðin ekki nema lítið brot af því sem hún var þar. Svo var ferðalagið bara klárað kl 1930 þegar við renndum í hlað hér á Rue Ernest Calvat. 1580 km að baki.
Í gær vorum við aðeins að koma okkur fyrir, samt ekki mikið, því ég á eftir að sletta málningu á vistarverurnar, ekki veitir nú af. En við löbbuðum líka hérna upp í fjallið fyrir ofan. Þar er gamalt virki, Bastillan, sem við skoðuðum í ofboðslega góðu veðri. Mér finnst eins og maður hafi spólað aftur í júlí við að koma hingað, - það er bara hásumar ennþá!!
Myndirnar sem ég sýni ykkur hérna eru héðan úr bænum og svo úr göngutúrnum, ásamt mynd af útsýninu okkar hérna út um gluggann. Allar teknar í gær, sunnudag.
Við erum með smá leiðréttingu á heimilisfangi, það gleymdist víst eitt núll í póstnúmerinu. En rétt utanáskrift til okkar væri þá:
Mundi/Svanhildur
Chez an Gonord
7 Rue Ernest Calvat
38000 Grenoble
FRANCE
Svo fáum við vonandi nettengingu inn í herbergið sem fyrst og ég fæ mér GSM-númer núna í vikunni, en við segjum frá þessu öllu hérna þegar þar að kemur.
sólarkveðjur
komiði nú öll blessuð og sæl
nú erum við bæði stödd hérna í billund og erum að fara akandi til frakklands á morgun saman. svanhildur kom með flugmaskínunni hingað í gær, og ég kom frá Lyngby í gærkvöldi. ég er reyndar hálf kvefaður. en það er nú ekkert sem koníakið í frans fær ekki reddað !! :)
ég ætla svo að renna til odense í fyrramálið, áður en við förum, og kveðja vinnufélaga mína. ég á eftir að sakna þeirra. skemmtilegur hópur.
ég gæti sagt frá ýmsu ef ég nennti, því ég var í kaupmannahöfn með torfa, evu og bjössa um síðustu helgi. það var mjög gaman. en ég bendi fólki bara á að kíkja inn á síðuna torfa og evu en það er linkur á hana hérna hægra megin.
eitthvað á bloggið eftir að verða stopult núna fyrst um sinn en við verðum með nettengingu í frakklandi þannig að þetta fer vonandi að komast aftur í gang innan skamms. svo ekki gefast alveg upp á að kíkja hérna inn.
bestu kveðjur til allra þarna í sköflunum á norðurlandi... MUNDI
dæmigerður mánudagur i dag. ég lagði af stað í vinnuna, til kaupmannahafnar, fyrir klukkan hálfsex í morgun. þegar ég var kominn ca. 15 km héðan þá sögðu vinnukonurnar upp störfum. við nánari skoðun kom í ljós að tvistur sem ég gjarnan hef í húddinu til að nota við olíumælingar hafði vafist utan þurrkumótorinn og slitið arminn sem hreyfir þurrkublöðin úr sambandi.
en sökum mikillar syfju (enda haninn bara nýsofnaður á þessum tíma) þá fór ég eitthvað að fálma í þetta, þarna í myrkrinu. hélt reyndar að ég væri búinn að slökkva á þurrkunum (hafði víst sett á letingjann!). og kvissbæng klemmdi á mér puttann því móturinn fór alltíeinu af stað.
nú voru góð ráð dýr - grenjandi rignig, hánótt og handlami.
nú á ég bláa nögl, sem heldur takti, hérna í billund og ný vinnuvika hefst á morgun - Á ÞRIÐJUDEGI
Ps. ég óska ekki eftir skemmtilegum kommentum frá félögum mínum í dag!
það er aðeins búið að taka til hendinni hérna í billund um helgina. ég er búinn að vera í hvíta vinnugallanum að lakka og sparsla. svo fór ég aðeins í bláa vinnugallann, skipti um smurningu á wolfgang. fékk að nota gryfjuna hans bjarna. bjarni er nauðsynlegur. þakka honum fyrir hjálpina og afnotin af verkfærum og aðstöðu.
svo fer maður að pakka sig niður núna á eftir til tveggja vikna veru í kupenhávn. það er síðasta lota fyrir Frakklandsferðina löngu.
talaði við svanhildi áðan - allt ágætt að frétta þaðan heyrðist mér - en kannski ekkert allt að gerast eða við að vera. því mælist ég til að allir sem lesa þetta taki sig til og skrifi einn brandara í commentin fyrir hana að lesa, svona til hressingar.
heyrumst síðar
þá er ég kominn í langt helgarfrí. og fríinu ætla ég að eyða hérna í billund með penslinum mínum. aðeins að snurfusa.
gott að heyra frá frakklandi að þar er allt í sóma. hvet alla sem mér finnst skemmtilegir til að koma og heimsækja mig og okkur þarna í vetur.
torfi, eva og bjössi að koma að heimsækja mig, og fara á stuðmannatónleika í leiðinni, um næstu helgi. þannig að næstu helgi mun ég eyða í kaupmannahöfn. það verður semsegt lítið um uppfærslur þessarar síðu af minni hálfu á næstunni. kannski eitthvað núna um helgina, gerist eitthvað sem er í frásögur færandi.
Hae hae
èg lauk loksins vid ad trìfa herbergid ì dag. Tid getid ekki ymindad ykkur hvad tad getur verid mikil vinna ad trìfa eitt herbergi. Tad var ansi skìtugt. En ég spurdi leigusalann tegar ég kom hingad hvort vid maettum màla herbergid tvì veggirnir eru svo ògedslega skìtugir. Tegar ég sagdi honum ad Mundi vaeri màlari tà sagdi hann ad tad vaeri ekkert màl og baetti vid: "hann getur kannski màlad allt hùsid?" ég sagdi ad tad gaeti hann vel gert gegn greidslu og svo toludum vid ekkert meira um tad. En svo hitti ég hann ì dag og tà fòr hann ad spyrja mig meira ùt ì tetta og var tà held ég adallega ad hugsa um ad fà hann til ad màla hùs sem hann à ùti ì sveit en hann byr tar ì gomlu hùsi sem hann er ad taka ì gegn. Hann taladi um ad fà Munda til ad màla gegn tvì ad vid tyrftum ekki ad borga leigu ì einhvern tìma ( fer eftir tvì hvad hann màlar mikid). Tannig ad Mundi er naestum kominn med vinnu, ekki kominn til landsins og kann lìtid annad ì màlinu en "jà" "nei" og "einn bjòr takk". Ekki amalegt tad! Vid erum sannarlega farin ad trùa tvì ad madur eigi ekki ad hafa of miklar àhyggjur tvì tad reddast alltaf allt. Allt ì einu fengum vid herbergi og tad reddadist svona bara allt ì einu. Vid vorum bùin ad hafa svolìtid miklar àhyggjur af tvì ad tad yrdi erfitt ad finna hùsnaedi en tad kom ì ljòs ad taer àhyggjur voru àstaedulausar. En tegar tad var leyst voru enn eftir àhyggjur af vinnu fyrir Munda en nù virdist sem vid getum haett ad hafa àhyggjur af tvì, allavega ì bili.
Annars fòr ég upp ì skòla ì morgun à kynningarfund og til ad skrà mig. Svo er ég bùin ad kaupa mér sjùkratryggingu svo ég fài engar fleiri logfraedingahòtanir. à morgun tarf ég ad fara aftur upp ì skòla til ad sjà hvenaer ég à ad maeta til ad skrà mig ì kùrsa og svo aetla ég ad fara til France Telecom til ad panta ADSL ì herbergid.
Vedrid er bùid ad vera fràbaert frà tvì ég kom og verdur sennilega tannig ùt september. Tad er ekki amalegt ad flytja bara sunnar tegar tad fer ad kòlna ì Danmorku!
Jaeja, nù aetla ég ad fara ad borda baguettid mitt og ostana sem ég var ad kaupa og opna eina raudvìn. Heyrumst sìdar.
Jaeja tà er ég komin til Grenoble, bùin ad fà herbergi og byrjud ad redda ymsum màlum. Nù sit ég à netkaffi og rembist vid ad skrifa ìslensku à franskt lyklabord sem er ekki svo audvelt. Tad er ekki bara tad ad tad vanti ìslenska stafi heldur er fingrasetningin allt odruvìsi. En èg verd ad tola tetta tangad til Mundi kemur med tolvuna okkar en tà getum vid notad hana tvì vid erum ì lùksus herbergi: baedi med sìmatengi og ìsskàp. Tetta telst lùksus hjà fronskum nemum. Allir hinir sem bùa tarna (held tad sèu 5 herbergi ì vidbòt à haedinni en tad er enginn kominn nema ég) verda ad deila einum ìsskàp og svo er einn sìmi à ganginum fyrir alla. Vid deilum lìka oll saman einu klòsetti en erum med eigin sturtu, tvaer eldavèlahellur og pìnkulìtinn ofn inni à herberginu. En hvad tarf madur meira? Tetta gaeti ekki verid betur stadsett, 5mìn ad labba nidrì midbae og 1 mìn nidrà sporvagnastoppistodina en tadan gengur sporvagn beint upp ì skòla. Svo er lìka betra ad leygja herbergi en ìbùd upp à ad kynnast fòlki og auk tess er tad òdyrt.
ég kom hingad à mànudagskvoldid alveg uppgefin eftir rùmlega sòlarhringsferdalag. Bidin à Stansted var samt skàrri en ég hafdi bùist vid. ég drò bara upp svefnpokann og sofnadi og tegar èg vaknadi fòr ég bara ad lesa. ég skal samt alveg vidurkenna ad ég hefdi getad barid einhvern tegar tad var tilkynnt um seinkun à vélinni til Lyon. En ég komst hingad à endanum er er bara bùin ad hafa tad fìnt tvì ég hef nòg ad gera svona fyrstu dagana og ymsar svona smà reddingar taka tìma ì Frakklandi. Tad er algjort bull ad tala um ad tad sé einhver bid à skattstofunni ì Reykjavìk. ì gaer skrifadi ég undir leigusamninginn, keypti mér àrspassa ì straetò (klukkutìmabidrod), versladi ì matinn og fullt af hreingerningarvorum og fòr svo heim ad trìfa tvì herbergid var vaegast sagt skìtugt. ì morgun fòr ég svo og stofnadi bankareikning og svo à ég ad maeta upp ì skòla à morgun à kynningarfund fyrir ùtlenda nemendur. Svo get ég dundad mér vid ymislegt skemmtilegt tangad til Mundi kemur eins og ad saekja um dvalarleyfi (tekur minnst hàlfan dag) og hùsaleigubaetur. Svo fara krakkarnir sem bùa med okkur ì hùsinu ad fara ad tìnast à stadinn og vonandi eru tau bara skemmtileg tvì ég er strax komin med pìnu leid à ad vera alltaf ein.
ég taladi vid Munda ì gaer og af honum er tad ad frétta ad hann er ad vinna ì Lyngby en er eini màlarinn og fannst tad frekar òspennandi en er eitthvad byrjadur ad spjalla vid smidina svo tetta er ekki svo slaemt hjà honum. Hann vinnur bara frà morgni til kvolds màn, tri, mid og svo til hàdegis à fimmtudag og tà er hann kominn ì helgarfrì svo tetta er nù bara àgaett.
Ef einhver hefur àhuga à ad skrifa okkur bréf tà er heimilisfangid okkar:
Svanhildur eda Mundi chez An. Gonord (tad stendur An. Gonord à pòstkassanum)
7 rue Ernest Calvat
3800 Grenoble
France
Fyrir tà sem vilja frekar hringja tà er sìminn: (0033) 476 42 67 06
Tad mà to ekki hringja eftir klukkan tìu à kvoldin sem er klukkan àtta ad ìslenskum tìma en nìu eftir 26. oktòber tegar breytt er um klukku.