ágúst 31, 2003

þetta reddast

dagurinn í dag hefur goldið lítillega fyrir gleði gærdagxins! nett þynnka í dag, en ekkert alvarlegt. áttum saman góða kvöldstund með ingólfi og áslaugu í gær, matur og vín, trivial pursuit og mikið spjallað. kaffi, koníak og viskí í ómældu magni.

síðan komum við hingað til billund um kl eitt í dag. svanhildur átti svo flug um kl 19 til london, frá esbjerg. hún kíkti aðeins á tölvupóstinn sinn þegar hún kom hingað og viti menn BINGÓ!! ...við erum komin með herbergi í grenoble. þannig að 3 tímum fyrir brottför þá leystist málið. flest vandamál hafa þessa tilhneygingu, - þau leysast. þannig að hún fær þetta herbergi annaðkvöld þegar hún kemur á svæðið.

þannig í stuttu máli, allt gott að frétta - bara leiðinlegt að vera svona í sitt hvoru landinu.

Posted by mundi at 06:47 EH | Comments (1)

ágúst 30, 2003

allt klárt!

jæja búið að pakka, ryksuga, skúra og allt það. ingólfur og áslaug koma eftir klukkutíma, ég fer og næ í þau á lestarstöðina. svo er kjötið komið í lög þannig að það verður átveisla hérna í kvöld.

maður er einhvernveginn með nettann blús að vera að fara.

Posted by mundi at 12:24 EH | Comments (0)

ágúst 29, 2003

súld í grennd

þá er mínum síðasta vinnudegi hérna í odense sennilega lokið, allavega þetta árið. byrja af krafti í kuben á mán. svanhildur er enn að vinna, en hún kemur heim um hálf fjögur á föstudögum. svo nú er bara að pakka saman og hreingera það sem eftir lifir dax.

það er farið að rigna.

Posted by mundi at 12:32 EH | Comments (3)

ágúst 28, 2003

í dag í Lyngby

tn_DSC01374.JPG


eins og glöggir sjá er ekki lengi verið að skvetta á veggina hérna - hér eru notaðar fullorðins rúllur ...!!!!

Posted by mundi at 04:15 EH | Comments (1)

ZZZZZZZZZzzzzzZZZZzz

tn_DSC01372.JPG

gamall bóndabær í endurbyggingu

hæ aftur

nú er ég kominn til baka frá Lyngby - búinn að sparsla og mála eina íbúð af 19. líka búinn að sjá þá aðstöðu sem ég fæ að búa við á næstunni. hún er tæplega tveggja stjörnu, með bjartsýni, mundi ég segja. ég sef hálfpartinn í kústaskáp og langt í eina klósettið sem ég deili annars með 25 dönskum iðnaðarmönnum! en þetta kostar ekkert svo ég er ekkert að væla - ...enn sem komið er.

og hafi einhver haldið því fram að ég hrjóti hátt, -þá vil ég benda þeim hinum sömu á að prófa að sofa í næsta herbergi við hliðina á 160 kílógramma dönskum múrara. það er eitthvað sem kjöt er í....

Posted by mundi at 04:12 EH | Comments (1)

ágúst 26, 2003

operation lyngby

já venjulegur dagur að baki. á morgun fer ég til kaupmannahafnar að vinna. áætluð heimkoma er seinnipart fimmtudax eða þar um bil. þá fæ ég að sjá hvers konar húsnæði ég fæ að búa við og svo hvað ég á að gera, því ég reikna með að vera að vinna þar fram að brottför. á meðan bið ég að heilsa

Posted by mundi at 05:01 EH | Comments (0)

ágúst 25, 2003

um daginn þó meira veginn

jæja nú vinnuvika hafin á ný. enn er ég að sinna sérverkefnum, ek um bæinn og týni upp ýmislegt sem þarf að klárast. svo getur verið að ég verði sendur til kaupmannahafnar að byrja á verkefninu sem niels var að fá þar á miðvikudaginn. það kemur í ljós á morgun.
annars er nú lítið að frétta. við vorum að skoða evrópukortið áðan og aðeins að reyna að finna út úr því hvaða leið verður best fyrir mig að aka niður til frans þegar þar að kemur. okkur sýnist best að aka niður í gegn um þýskaland og lúxemborg og svo til frakklands. nú fer þetta nefnilega að styttast. síðasta vinnuvika svanhildar er yfirstandandi og hún fer af stað á sunnudaginn. við eftirlátum ingólfi og áslaugu íbúðina á laugardag.
semsagt, næsta vika verður spennandi, þá fer vonandi eitthvað að skýrast með húsnæðismálin í frakklandi

ps. mig langar í gæsaveiði á kortérs fresti

Posted by mundi at 06:56 EH | Comments (3)

ágúst 24, 2003

gödding mölle

tn_DSC01353.JPG

Posted by mundi at 07:29 EH | Comments (0)

augustinborg

DSC01294.JPG

volfgang fékk aðeins að puða um helgina. rúmir 700 kíl að baki.
eftir vinnu á föstudaginn var reykspólað til billund því margit hin jóska, nágrannakona foreldra minna bauð okkur í mat. 6-réttað var það í þetta skiptið. hún er atvinnumanneskja í eldhúsinu. svo gistum við í billund, ég fór svo á fætur á undan hananum á laugardaginn og gerði klárt fyrir útilegu, þvoði bílinn, tók bensín og náði í ný rúnstykki til bakarans. svo blússuðum við til þýskalands, röltum um miðborg flensborgar á laugardaginn en seinnipart laugardags ókum við til baka yfir grensuna, og fórum út á Als sem er eyja sem tilheyrir sönder-jyllands amti. skoðuðum augustinborghöllina fórum svo og tjölduðum við ströndina grilluðum og opnuðum rauða. í dag var svo ekið og Gödding-mölle skoðuð, en það er sögufrægur staður, þar töpuðu danir stríði gegn prússum og þar með slésvík og holstein og meira til. hluta af því endurheimtu þeir 1920. sönderborg og sönderborgslot voru barin augum og að lokum komum við, við í billund og snæddum hangikjöt. þannig var helgin hjá okkur.

Posted by mundi at 07:22 EH | Comments (6)

ágúst 21, 2003

bosnía er málið

í dag fór ég aftur að vinna í þessu tölvupartaframleiðslufyrirtæki sem er aldeilis ljómandi tilbreyting frá þessari nýbyggingu sem aldrei klárast. eftir vinnu keyrðum ég og Haris til hesselager, sem er smábær hér ca. 40 km suðausturaf. þar býr vinur hans hinn bosníski bifvélavirki shamir. hann tengdi fyrir mig innstungu fyrir ljósabretti í einum grænum, svo nú get ég loksins verið löglegur með reiðhjólin aftan á bílnum.
svo ókum við heim aftur og haris bauð mér í kaffi. sýndi mér vídeóupptökur frá sumarfríinu sínu niðrí bosníu. mikið assgoti langar mig að fara þangað einhvern daginn, þetta er ofsalega fallegt þarna. hann og nina eru búin að bjóða okkur gistingu þarna næsta sumar, ef við viljum koma meðan þau eru í fríi. það er eitthvað sem maður ætti alvarlega að skoða held ég því það er svo allt öðruvísi að skoða heiminn í fylgd með heimafólki en þegar maður er að finna upp hjólið sjálfur. sumarfrí í bosníu 2004, -hljómar það ekki vel?

Posted by mundi at 06:50 EH | Comments (2)

ágúst 20, 2003

til hamingju með daginn veiðimenn

Posted by mundi at 04:50 FH | Comments (8)

ágúst 19, 2003

Æ Æ æææææææ...

Gra.jpg

fallegur dagur í dag - en ekkert frábrugðinn öðrum svosem.
mikið held ég að ég fari að eiga bágt næstu daga því gæsaveiðitímabilið hefst jú á miðnætti. allar fréttir aðrar en af lélegri veiði eru hér með vinsamlegast afþakkaðar.

Posted by mundi at 03:40 EH | Comments (6)

ágúst 18, 2003

börnehaven

ég skrapp í tvo tíma í dag að háþrýstiþvo á barnaheimili. rosalega hafa börn margar spurningar! og ekki batnarða þegar þetta eru mörg börn! og tala öll dönsku!!!

"maler, bor du i Åsum?"
"nej, jeg bor på island!"
" ISLAND?!?!?!?!? ...det er langt væk"
"jamm"
"men maler, har du også været på grönland?"
"nej, der har jeg aldrig været"
"hvorfor ikke?" ...

svona voru samtölin - stórskemmtileg mörg hver.. þangað til að einn guttinn benti mér á að ég væri með hrukkur á enninu, alveg eins og pabbi sinn. þá sagði ég þeim að vera ekki að þvælast fyrir og fór aftur að vinna!!! ;)

Posted by mundi at 02:06 EH | Comments (5)

ágúst 17, 2003

óskup lítið.. ...meinhægt

þá er þessi helgi senn á enda eins og þær sem á undan komu. helgin hjá okkur hérna hefur nú verið með rólegra móti. við létum plata okkur í vinnu á laugardag. ég kom heim kl hálfþrjú en svanhildur hafði komið hálfeitt, enda farið fyrr af stað en ég. svo ekkert varð nú ferðalagið þessa helgina. en við ákváðum að fara út að borða til að gera nú eitthvað og fórum á tyrkneskan veitingastað sem var aldeilis magnaður. kannski ekki heimsins flottasti veitingastaður en maturinn var góður og það er nú það sem telur.
svo erum við búin að eyða deginum í dag í að vinna upp gamalt hangs, þvo föt, þurrka af, ryksuga og allt þetta skemmtilega.

að lokum ég óska torfa til hamingju með að vera í fríi í komandi viku. fríin lengi lifi...

Posted by mundi at 05:47 EH | Comments (4)

ágúst 15, 2003

DSC00698.JPG

GÓÐA HELGI!!!!

Posted by mundi at 12:09 EH | Comments (4)

ágúst 14, 2003

litlir dropar - stórir dropar - láréttir dropar - heitir hlussudropar - vindhviða - litlir kaldir stingandi dropar - alltíeinu sólskin - köld vindhviða.

nei þetta er ekki reykjavík síðdegis

þetta var odense í dag. hitabylgjunni hefur verið aflýst

Posted by mundi at 06:44 EH | Comments (1)

ágúst 13, 2003

rummungar

það er aðeins temmilegra hitastigið í dag en verið hefur. skýjað þurrt og hlýtt, eiginlega alveg stórfínt. í dag var ég að vinna í hinum enda bæjarins í einhverju tölvuíhlutafyritæki. fyrirtækið er í eigu hjóna, sem og vinna þar. viti menn þau eiga íslenska tengdadóttur. þar með var spjallað við mig um gullfoss og geysi og hvaðeina! alveg ljómandi. en verra var að snemma í morgun, keyrði ég á hinn vinnustaðinn þar sem ég er vanur að vera, til að ná
í heyrnarhlífarnar mínar (peltorinn góða). þá kom ég að opnum dyrum. þjófar höfðu komið í nótt, spennt upp glugga á vinnuskúrnum okkar og auðvitað þurftu þeir að stela peltornum. ég óska þeim alls hins versta í lífinu. ætli þetta hafi verið jesper, kasper eða jónatan??

Posted by mundi at 01:54 EH | Comments (7)

ágúst 12, 2003

tn_DSC01196.JPG

og þessi mynd sem er sú síðasta að sinni er sólarlagið á æbelö. myndin er tekin í gegn um sólgleraugun mín - heitir það ekki "filter" á máli ljósmyndara!!! ;)

Posted by mundi at 05:48 EH | Comments (1)

tn_DSC01161.JPG´

og undirritaður í góðum fílíng

Posted by mundi at 05:44 EH | Comments (2)

tn_DSC01263.JPG

humm... ég get bara sett inn eina mynd í einu. tölvukunnáttan gríðarleg!! hérna sjáum við út í eyjuna.

Posted by mundi at 05:25 EH | Comments (0)

hugljómun

tn_DSC01195.JPG

eitthvað er nú farið að rofa til hjá tölvugúrúinu guðmundi með þessar myndir. málið virðist vera að ef ég nefni þær eftir að ég smækka þær þá neitar tölvan að setja þær inn á síðuna. eða það sýnist mér vera. annars læt ég aðra alfarið um svona spekúlasjónir, ég bara nota tölvuna. þannig að nú ætla ég að prófa að dúndra inn nokkrum myndum frá helginni. að öðru leiti er allt við það sama, og sem betur fer á að fara að kólna niður í 20 stig á fimmtudag

Posted by mundi at 05:22 EH | Comments (0)

tn_DSC01151.JPG

jæja helgin var góð.
ókum yfir á jótland eftir vinnu á föstudaginn til að snæða kvöldverð með gamla settinu og óla ben og co. vel heppnuð máltíð það, svo keyrðum við til baka aftur um kvöldið því ég fór að vinna á laugardaxmorguninn kl 7 og vann fram að hádegi, og var nærri dauður úr hita þann daginn.
eftir vinnu drifum við okkur af stað í átt að æbelö, margumræddri. við óðum svo út í hana, en það eru 4,5km, með stoppi í annarri eyju sem er á leiðinni. svo gengum við gat á lappirnar þarna um eyjuna í 30 stiga hita það sem eftir var laugardax og tjölduðum síðan á ströndinni um kvöldið. kveiktum upp í "engangs-grilli" og snæddum svínakjöt og kartöflusalat. huggeligt. vöknuðum svo við það, um kl 7 á sunnudaginn, að sólin var að steikja okkur. gengum þá út á norðurodda eyjunnar og skoðuðum okkur um þar. sáum þar bamba. að því loknu gengum við áleiðis til baka, lögðumst í sólbað á ströndinni í 3 tíma og gengum svo áleiðis í land.

svo vorum við boðin í mat til michael og lene, sem við bjuggum með hérna síðasta sumar, um kvöldið og það var mjög gaman að hitta þau aftur.

svo byrjaði svanhildur að vinna á nýjum stað í dag.

þannig að eins og þið heyrið(eða lesið) þá er allt að gerast hér um þessar mundir - en það má alveg fara að kólna aðeins, svona um stundarsakir...

Posted by mundi at 05:15 EH | Comments (0)

ágúst 10, 2003

það er búið að vera mikið að gera um helgina, en nú er klukkan margt svo ég segi ykkur það kannski á morgun og lauma inn einni mynd eða tveim. góða nótt

Posted by mundi at 08:03 EH | Comments (0)

ágúst 08, 2003

erum komin til billund 32 stig hér - og það er eitthvað í gangi þegar maður ekur um hraðbrautirnar með allt opið og það dugir ekki til kælingar!!!

Posted by mundi at 03:04 EH | Comments (2)

það er engu logið um þessa hitabylgju. var að lesa um hana á mbl. hún er greinilega mjög svæsin um sunnanverða evrópu en það er líka búið að vera hálfgert ólífi hér. mikill raki með þessu. hvað ætli rakastig loftsins á akureyri sé á heitum degi, já eða í reykjavík? ég hefði gaman af því að heyra það til samanburðar. en hér er, að ég held 65-75%.
annars er spennandi helgi framundan. ætlum að skjótast yfir til billund á eftir og hitta óla ben og familí en þau eru í heimsókn þar. svo verður viti menn yfirvinna hjá mér á morgun en bara til hádegis og þá er meiningin að labba út í umrædda eyju. gott fólk - góða helgi

Posted by mundi at 12:20 EH | Comments (0)

ágúst 07, 2003

RÁS 2 !?!

ég er svo heppinn að eiga peltor með útvarpi, sem er minn besti vinnufélagi. en hvað er með danskar útvarpsstöðvar. best að dissa þær aðeins núna. hérna eru margar stöðvar en allar eins. allar eins og fm957. sem er afleitt. svo er reyndar ein sem er eins og gufan... hvað er til ráða????

Posted by mundi at 07:32 EH | Comments (2)

ágúst 05, 2003

Sólarlagið á N-Fjóni sl. laugardag

tn_DSC00970.JPG

Posted by mundi at 02:09 EH | Comments (2)

allavega ekki tölvunörd

úff ekki fæ ég nú háa einkun fyrir tölvukunnáttu!! þetta blogg mitt í gær var ekki að gera sig. fyrst kom ekki myndin sem átti að koma og svo kom allt aftur án myndar. og svo get ég hvorugu eytt út! en þið takið viljann fyrir verkið er það ekki? annars allt gott að frétta frá odense... engir verslunarmannahelgartimburmenn hér í dag....! ;)

Posted by mundi at 01:53 EH | Comments (1)

ágúst 01, 2003

handelsmændernesweekenden

fínir tónleikar í gær í kongens have. aldrei séð svona marga þar. meistari niels sagði mér svo í morgun að þarna hefðu verið 15000 manns.

en nú er von á góðum gestum. þau dagný systir og óli voru að senda mér SMS og tjá mér að þau væru lögð af stað með lestinni frá Kuben. þannig að minn fer að tendra í grillinu von bráðar. svo verður gert eitthvað skemmtilegt um helgina. veðrið á víst að fara hlýnandi, ekki að þess þurfi nú, þannig að það er allt opið í alla enda. óska að lokum vinum og vondum mönnum gleðilegrar verslunarmannahelgar

Posted by mundi at 03:32 EH | Comments (3)