júlí 31, 2003

svitabylgja

þessa dagana er einhver svitabylgja í gangi hérna. alveg yndislegt ef maður þyrfti ekki að mæta í vinnuna. þetta er nefnilega magnað að þegar rakinn er mikill þá þarf ekkert svo voðalega margar gráður svo maður fari að svitna við það að gera nákvæmlega ekki neitt. í dag og núna eru sennilega uþb 30 gráður eða kannski rétt tæplega og það er alveg ærandi. en það er kannski einmitt þess vegna sem danir brugga svona gott öl. best að fá sér einn eða tvo og skella sér svo á fimmtudagstónleikana í kongens have.

Posted by mundi at 03:02 EH | Comments (0)

júlí 30, 2003

...úff heitt í dag... nenni ekki að skrifa heyrumst bara seinna

Posted by mundi at 03:29 EH | Comments (1)

júlí 29, 2003

nokkuð viðburðaríkur dagur

dagurinn í dag hefur bara verið nokkuð viðburðarríkur miðað við vísitöludaginn. eftir hefðbundna byrjun með vinnu og kaffitímum lukum við vinnudeginum, komum heim og fórum í búðina keyptum mjólk, brauð og ost.
Stuttu seinna fór svanhildur á netið og fann flugmiða til london fyrir 15 kr danskar (+ skattar). og svo frá london til lyon á 20 pund. við höfum nefnilega verið að hugsa um að það væri kannski sniðugt ef hún færi aðeins á undan til frakklands, til að reyna að verða okkur úti um húsaskjól fyrir veturinn, á meðan gæti ég haldið áfram að vinna. þannig að ég fór í kvöld og talaði við meistara niels sem sagði að ég mætti vinna hjá sér svo lengi sem hann hefði einhver verkefni og ég mætti sofa í sófanum eina eða tvær vikur ef það væri það sem mig vantaði! svo þetta var ákveðið. þannig að í dag er planið að svanhildur fari til frans 1. sept, og ég kannski um þann 20. svo er bara að bíða og sjá hvernig gengur með húsnæðisleitina.

Posted by mundi at 08:43 EH | Comments (1)

júlí 28, 2003

húsnæðisvandi

sólskin í dag. það átti að vera í gær! en betra seint en aldrei, og komi það sem oftast.
í dag hringdi svanhildur til frakklands til að athuga með húsnæði. það blæs nú ekki byrlega þessa dagana í þeim efnum. allt "propfuld" í frans. gott að við eigum fínt tjald. ;) en svona mál hafa nú, því betur, einhverja einkennilega tilhneygingu til að leysast svo það er nú óþarfi að örvænta. en ef einhver sem les þetta veit um húsnæði þarna þá endilega hafa samband!!! ;)

Posted by mundi at 04:25 EH | Comments (3)

júlí 27, 2003

sunnudaxkvöld í odense

jæja við erum komin heim rétt eina ferðina. merkilegt hvað þessari vinnuviku text alltaf að slíta í sundur fyrir manni helgarnar.
þessa helgina fékk volfgang að rúlla rétt rúma 800 kíl - fórum til norður jótlands, að vesturströndinni á ofsalega fallegan stað, sem heitir svineklöv. grilluðum þar á fös, fórum svo til álaborgar á röltið og í heljar gönguferð þarna um svæðið á lau. ætluðum svo að flatmaga á ströndinni þarna í dag en ekki heppnaðist sólskinsspá veðurfræðinganna betur en það að þarna var ausandi riginig í morgun svo við pökkuðum saman og keyrðum í einhvern þjóðgarð sem er svona 70 kíl þarna frá og löbbuðum pínu þar en snérum frekar snemma við vegna rigningar. svo var ekið heim á leið með viðkomu í grillsteik í billund. svo er ég hér, þreyttur en ánægður og ný vinnuvika kl 700. en bara 37 vinnutímar fram að næstu helgi!

Posted by mundi at 07:42 EH | Comments (2)

júlí 24, 2003

út í guðsgrænan buskann

þá fer að koma helgi enn eina ferðina. sem er mjög gott. þetta skiptið er ekki alveg búið að taka stefnuna, nema gróflega, - vestur. planið er að fara eftir vinnu yfir á jótland og taka þar stefnuna norður eða suður, eftir því hvar sólin skín. huxanlega verður farið norður til lökken og blokhus, en þar er besta strönd danaveldis að okkur finnst. en spáin fyrir helgina er kannski ekki alveg nógu góð fyrir strandferðir, þó hún sé ágæt, en hver trúir svosem veðurfræðingum. svo er þýskaland alveg inn í dæminu líka... þetta kemur allt í ljós ...

Posted by mundi at 06:11 EH | Comments (1)

júlí 23, 2003

pælingar

við fengum jótana í heimsókn í gær. fórum með þeim í bíltúr til hasmark og eftir það út að borða hérna í odense. sérdeilis ljómandi gaman og ljúffengt, og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

meistari Niels var að segja mér frá eyju, sem er hérna norður af bænum bogense á fjóni. sú heitir æbleö. (eplaeyjan í lauslegri þýðingu undirritaðs). hún er ca. 3-5 km úti í hafi og hann segir að það sé hægt að vaða þangað. það eru víst 2 minni eyjar á leiðinni út í þessa. þar eru víst húsarústir og tilvalið segir hann að skella tjaldinu á bakið og rölta þarna út og eyða helgi. ég er mjög spenntur fyrir því að skoða þetta, kannski ekki núna um helgina en áður en ég yfirgef landið í það minnsta. þá verður nú líklega betra að hafa vaðið fyrir neðan nefið!!! ;)

Posted by mundi at 02:09 EH | Comments (3)

júlí 20, 2003

komin heim

eftir að hafa villst aðeins á leið að tjaldsvæðinu við charlottenlund fundum við það loxins. en þá var það auðvitað fullbókað. fundum svo annað alveg ágætt rétt við bröndbyöst station. þá var hent upp tjaldbúðum og svo var farið út að borða með lindu, þórhildi og skúla (www.bjorbandid.com). marta kom svo aðeins síðar. að áti loknu var tekið til við næturlífið fram undir morgun. á laugardagin skelltum við okkur í siglingu um canal-ana í kuben, sem var mjög gaman. og þvældumst síðan um í bænum langt fram eftir kvöldi. svo var farið snemma á fætur í morgun og ekið hingað "heim" á fjón. enda hitinn 30 stig í forsælu núna og ekki mjög spennandi að lúra í tjaldinu.

sýni ykkur hérna eina mynd úr siglingu laugardaxins

tn_marmarakirkjan.JPG

Posted by mundi at 12:04 EH | Comments (6)

júlí 18, 2003

Kóngsins...

erum farin í útilegu til Kuben!
heyrumst síðar og góða helgi.

Posted by mundi at 11:49 FH | Comments (1)

júlí 17, 2003

Hallargarður kóngsins... ...eða drottningarinnar!

eftir að veðurspáin brást í dag, sem allir voru held ég farnir að reikna með, ákvað ég að skella mér bara í miðbæinn eftir vinnu og kaupa mér skyrtu til að flíka á næturlífi kaupmannahafnar um helgina. eftir hina daglegu sturtu, þar sem leifarnar af vinnunni fara í svelginn, hjólaði ég til magga villa og við skelltum okkur saman í bæinn, höndluðum skyrtu og verðlaunuðum okkur fyrir erfiðið með ísköldum odense classic. ekki slæmur mjöður það. fórum svo hver sína leið. svo er ég að hoppa út aftur, því við ætlum að skella okkur á útitónleika í kongens have sem eru þegar hafnir. bless á meðan.

Posted by mundi at 05:36 EH | Comments (5)

júlí 16, 2003

ég er mjög ósáttur við kjör veðurfræðinga

...ekki viðrar nú til strandferða í dag eins og veðurfræðingarnir lofuðu, enda sá þjóðflokkur lygnastur allra. mér finnst þeir eigi aðeins að fá greitt standist spáin, sbr. það að ég fæ ekki greitt fyrir mína vinnu ef ég mála með rauðu það sem á að vera gult. þá neitar kúnninn að borga reikninginn. annars er veðrið ekki til að klaga yfir nú er gola og þægilegt veður. best að fara út og njóta þess...

Posted by mundi at 02:57 EH | Comments (7)

júlí 15, 2003

...ströndin

eftir ákaflega sveittann vinnudag ákváðum við að fara bara á ströndina og láta skína og blása aðeins á okkur. svo er líka hressandi að fá sér smá sundsprett í sjónum. fórum á ströndina í Hasmark í fyrsta skipti. höfum vanalega farið til Kerteminde. en þessi var ekki síðri. á meðan ég sólaði mig las ég bókina stolið frá höfundi stafrófsins sem er eftir dúskinn sjálfan. hann ætti bara að snúa sér að þessu sá ágæti maður. fín bók hjá honum. svo spáir áframhaldandi hita, á víst að vera heitast á morgun svo hver veit nema maður endurtaki sama leik. svo er það bara kuben um helgina. nóg að gera!

Posted by mundi at 06:16 EH | Comments (4)

júlí 13, 2003

Sunnudagur og sæla

þá er kominn sunnudagur. í gær vorum við á tónleikum. þar spiluðu Mew, car park north, lars h.u.g, junior senior og svo auðvitað strákarnir í Suede, sem voru foreldrum sínum til sóma. þetta voru alveg stórskemmtilegir tónleikar í ágætu veðri. svo drifum við okkur á ströndina í morgun og vorum bara að koma heim. svo ætla ég að kveikja upp í grilllinu á eftir. er þetta ekki fullkomið?

Posted by mundi at 01:38 EH | Comments (4)

júlí 10, 2003

hiti og sviti en brátt helgi!

hér er búið að vera alvöru sumar í dag. þvílíkur hiti. þannig að við drifum okkur í hjóltúr eftir vinnu í dag. eins og svo oft áður var endað niður í miðbæ og tekinn einn ískaldur bjór fyrir utan eitt kaffihúsið. en fyrst hjóluðum við í fötex og keyptum okkur miða í forsölu á tónleika helgarinnar. grönkoncert (www.groenkoncert.dk) er nefnilega í odense um helgina, nánar tiltekið á laugardaginn. þar spila nokkrar víðfrægar danskar hljómsveitir sem ég veit nákvæmlega ekkert um og svo hljómsveitin sem maður borgar fyrir að sjá, Suede. ekkert slor þar á ferð. þannig að eins og hjá öðrum brauðstriturum þá er beðið eftir helginni hér á bæ.

Posted by mundi at 06:55 EH | Comments (1)

júlí 07, 2003

Venjulegur dagur

dagurinn í dag hefur verið einn af þessum ofurvenjulegu dögum. lítið meira að segja um það! ;)

Posted by mundi at 04:29 EH | Comments (0)

júlí 06, 2003

DSC00682.JPG

vorum að koma heim til odense fyrir örfáum mínútum eftir að hafa eytt helginni við garðyrkjustörf á jótlandi. pabbi leigði litla gröfu alveg magnaða sem við notuðum til að grafa burt gamla trjástofna, gras, illgresi, runna og bara það sem varð á vegi okkar. meðal annars fundum við þennan, sem ég kýs að kalla friðrik.
ný vinnuvika klukkan 700 í fyrramálið, - mig langar nú meira í slátur!

Posted by mundi at 06:52 EH | Comments (3)

FÖSTUDAGURINN LANGI
Enn er eftir að segja frá ýmsu sem skeði á föstudeginum. Því miður gátum við ekki gefið okkur tíma til að hlusta á alla tónleikana með The Delgados því að Iron Maiden voru byrjaðir að spila og Munda langaði til að sjá þá. Við Bjössi vorum hinsvegar búin að fá okkar skammt af þungarokki. Við drifum okkur upp í tjald, þar sem við vorum búin að mæla okkur mót við Bjössa, til að klæða okkur í hlýrri föt fyrir kvöldið. En þegar viið vorum komin upp á tjaldstæði var svo ofsalega gott að setjast aðeins niður á stól og hvíla sig og spila Hróarskelduleikinn að við urðum sammála um að missa bara af Iron Maiden. Við heyrðum hvort sem er alla tónleikana upp í tjald en ég held að eftirá hafi Mundi séð svolítið eftir því að hafa ekki séð þá. En við skemmtum okkur vel uppi á tjaldstæðum við öldrykkju og leiki. Klukkan hálf tólf drifum við svo okkur á tónleikasvæðið til að sjá Sigurrós spila. Það var gjörsamlega troðið af fólki og við sáum ekki neitt. En allt í einu tókum við eftir því að það var komið grænt ljós við innganginn sem hleypir fólki fremst við sviðið (þeir hleypa bara ákveðið mörgum fremst til að forðast annað slys eins og varð á Pearl Jam tónleikunum 2000) svo við komumst alveg upp að sviðinu og tónleikarnir voru hreint út sagt frábærir. Strax að þeim tónleikum loknum byrjuðu Coldplay að spila á appelsínugula sviðinu. Þar hittum við Sólveigu og Baldur og fleiri og vorum með þeim á þeim tónleikum. Coldplay klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. Eftir Coldplay lá leiðin upp í tjald til að hvíla sig eftir viðburðaríkan og góðan dag.

Posted by svanhildur at 11:59 FH | Comments (0)

júlí 05, 2003

Torfi er alveg æstur í að heyra af einhverjum skandölum. Veit hann ekki að við erum svo prúð og góð að það er ekki frá neinum skandölum að segja?

Núna erum við í Billund og Mundi og Rabbi eru búnir að vera úti í allan dag á gröfu að hreinsa óræktina úr garðinum hjá tengdó. Mundi er að fíla sig vel á gröfunni en það verður þó að segjast að Rabbi ræður þónukkuð betur við hana, ég held samt að þetta sé allt að koma hjá Munda.

Það eru sennilega allir komnir með nóg af minni nákvæmu sögu af Hróarskelduhátíðinni, sérstaklega þar sem hún inniheldur enga skandala, en þar sem ég er byrjuð þá verð ég nú að ljúka þessu.

FÖSTUDAGUR frh.
Næst kíktum við á tónleika með Asian Dub Foundation. Við vissu ekkert um þetta band en þekktum öll nafnið og ákváðum því að kíkja. Við hefðum alveg getað sleppt því. Svo fórum við á tónleika með hljómsveit sem kallar sig Doves (UK) eða Dúfur. Okkur langaði til að sjá þá því þeim er líkt við hljómsveitir eins og Starsailor, Coldplay og Travis, sem eru allt fín bönd. Það er alveg rétt að þeir spila tónlist í svipuðum stíl en það vantaði eitthvað upp á. Fyrstu tónleikar dagsons á appelsínugula sviðinu (stærsta sviðinu) byrjuðu svo klukkan fimm með mjög vinsælli danskri hljómsveit sem kallar sig Kashmir. Þetta er fínt band og tónleikarnir voru fínir. Þvínæst kíktum við á tónleika með norskri hljómsveit sem heitir Turbonegro. Nafnið segir kannski allt sem segja þarf. Norðmaðurinn í næsta tjaldi var búinn að mæla með þessu bandi við mig en tónlistin var heldur þung fyrir okkar smekk. Það var samt troðfullt af fólki á þessum tónleikum og þeir fengu góða dóma svo að þeir sem fíla þungarokk ættu kannski að kíkja á þetta. Klukkan sjö byrjuðu svo Los Lobos að spila á appelsínugula sviðinu. Þetta voru verstu tónleikarnir sem ég sá og heyrði á hátíðinni. Þeir eru gjðrsamlega útbrunnir og spiluðu hvorki labamba né bambóléíó. Ef einhver var að spá í að kaupa sér nýja diskinn með þeim þá skal sá hinn sami hætta við núna.
Á þessum tímapunkti var Bjössa farið að líða mjög illa. Síminn hans var orðinn batteríislaus og þeir sem þekkja Bjössa vita að það er ekkert lítið vandamál. Hann er bara hálfur maður án símans. Ef ég þekki einhvern fíkil þá er það Bjössi og hans fíkn er SMS. Hann var farinn að líða sárar kvalir og ákvað því að segja skilið við okkur Munda að sinni og leggja upp í leit að stað þar sem boðið væri upp á símahleðslur. Við Mundi urðum eftir á tónleikasvæðinu og fórum næst á tónleika með dönsku bandi sem heitir The Raveonettes. Þau spila svolítið spes en mjög eftirtektaverða tónlist en voru heldur lítilfjörleg á sviðinu. En þá var komið að uppgötvun hátíðarinnar. Þegar maður fer á svona marga tónleika með hljómsveitum sem maður veit ekkert um, er ljóst að maður á eftir að sjá fullt sem er ekki að ná til manns. En stundum er maður heppinn og kynnist hljómsvet sem maður vissi ekki að væri til sem að spilar svona líka frábæra tónlist. Dæmi um þetta er skosk hljómsveit sem kallar sig The Delgados. Þessir tónleikar voru æði. Þetta er rokkhljómsveit sem spilar frekar létt rokk og inniheldur bandið m.a. sellóleikara, fiðluleikara og þverflautuleikara. Mæli með þessu.

Posted by svanhildur at 04:16 EH | Comments (2)

júlí 03, 2003

Dagbók frá Hróarskeldu frh.

Ég er búin að sitja við tölvuna í klukkutíma og skrifa á heimasíðuna og hvað haldiði að hafi gerst? Ég ýtti óvart á einhvern takka og allt hvarf. Þótt það sé frábært að tæknin sé orðin svona mikil og ég geti verið í stöðugu sambandi við ykkur heima þá er þetta óþolandi. Ég er svo pirruð núna að ég veit ekki hvort ég á að halda áfram að skrifa, ég er hrædd um að pirringurinn skíni í gegn hjá mér. En ég ætla samt að reyna að byrja aftur, en héðan í frá verður allt skrifað á word skjal og seivað á 5 mínútna fresti og svo copíað og peistað yfir á netið.

FÖSTUDAGUR
Eins og venjulega vaknaði ég allt of snemma í svitapolli með einkenni ofþornunar (það var víst mikið um að fólk kæmi í sjúkratjöldin með þannig einkenni). Á einhvern ótrúlegan hátt tókst strákunum þó að sofa (að mér fannst) endalaust lengi, svo ég settist út með Hróarskeldu biblíuna mína (lítil vasabók sem segir hvað er að gerast hvar og hvenær og lýsir líka tónlist allra bandanna í nokkrum setningum) og ég las það sem sagt var um allar hljómsveitirnar sem áttu að spila á föstudeginum og valdi úr það sem mig langaði til að sjá. Ég komst fljótlega að því að það var allt of margt sem mig langaði að sjá en reyndi að velja það áhugaverðasta úr. Mér til mikillar gleði vaknaði Norðmaðurinn í næsta tjaldi stuttu seinna, en við vorum orðnir bestu vinir í lok hátíðarinnar. Hann var þarna með 17 ára syni sínum sem langaði svo mikið til að fara á Hróarskeldu en foreldrar hans vildu ekki að hann færi einn svo pabbi hans fór bara með honum, flottur pabbi. Við spjölluðum um heima og geima þangað til að strákarnir vöknuðu. Þeir byrjuðu á því að skella í sig nokkrum bjórum áður en þeir yrðu of heitir en fyrir minn smekk voru þeir það nú þegar, en ég er nú líka algjör kelling þegar kemur að bjórdrykkju.
Á leiðinni inn á tónleikasvæðið komum við við í köldu sturtunum en það var mikil þörf á því þennan dag. Svo byrjuðum við á því að kíkja á norska hljómsveit sem kallar sig Gåte. Þau spiluðu í frekar litlu tjaldi og það var allt troðið af fólki þegar við mættum á svæðið svo við komumst ekki inn í tónleikatjaldið. Við ætluðum þá bara að sitja fyrir utan og hlusta en einhverra hluta vegna heyrðist aðeins bassinn út fyrir tjaldið svo við náðum ekki almennilega að heyra tónlistina. Mér fannst það litla sem ég heyrði samt hljóma áhugavert og eftir að við komum heim er ég búin að kíkja á þetta band á netinu og líst bara vel á. Þau spila norska þjóðlagatónlist með nútímarokkyfirbragði. Mörgum finnst það kannski ekki hljóma vel en mér finnst þetta flott.

Nú verð ég að hætta því við erum að fara á útitónleika með Tip Toe Big Band og Cæcile Norby en ég lofa að reyna að klára frásögnina um helgina.

Posted by svanhildur at 04:19 EH | Comments (1)

júlí 01, 2003

Dagbók frá Hróarskelduhátíðinni

Við komum heim af Keldunni í gærmorgun og ég er nánast búin að sofa síðan. Það voru sko engin vonbrigði með hátíðina og svona var þetta nokkurn vegin hjá okkur:

MIÐVIKUDAGUR
Við drifum okkur niður á lestarstöð um leið og Mundi kom heim úr vinnunni og vorum komin inn á hátíðarsvæðið um kvöldmatarleytið. Þá hófst leitin að tjaldstæði en hún var ekki eins erfið og í fyrra þar sem við Mundi þekkjum nú svæðið svo við þurftum ekki að ganga nema í svona þrjú korter með útilegugírinn, tvo bjórkassa, 3 lítra af víni, 1 líter af sterku, 24 flöskur af smirnoff ice, fullt af gosi og slatta af mat. Á endanum fundum við tjaldstæði en það var þó aðeins lengra frá tónleikasvæðinu en í fyrra því það var töluvert meira af fólki þetta árið. Þegar við vorum búin að tjalda var nestið og bjórinn dreginn upp úr bakpokunum og farið að kynna sig fyrir nágrönnunum. Þeir reyndust vera hinir fínustu Svíar og Norðmenn og sátum við að drykkju og spjalli með þeim fram á nótt.

FIMMTUDAGUR
Ég vaknaði klukkan 7 í svitabaði. Ajungilak svefnpoki sem þolir -15°C er ekki það sem maður þarfnast í tjaldútilegu í sól og 25 stiga hita! Mundi þoldi hitann eitthvað betur en ég og svaf vært og Bjössi var hvergi sjáanlegur. Hann hafði farið að hitta vini sína kvöldið áður og hafði greinilega eitthvað ílengst þar. Að lokum gafst ég upp á að leika við sjálfa mig og vakti Munda. Hitinn var óbærilegur svo við ákváðum að labba að sölubásunum og fá okkur vatn og skella okkur í kalda sturtu en það voru teknar nokkrar þannig á hverjum degi. Þegar fór að nálgast hádegi var ljóst að sólvörnin sem við höfðum tekið með okkur myndi ekki duga út daginn svo við ákváðum að kaupa meira en þá var sólvörnin á svæðinu uppseld. Við fórum þá aftur niður í tjald og þá var Bjössi kominn. Hann lá sofandi inni í tjaldi. Ég skil ekki alveg hvernig hann fór að því því þið getið ekki ímyndað ykkur molluna inni í tjöldunum en hann hlýtur að hafa átt erfiða nótt. Við ákváðum að skella okkur í bæinn og kaupa sólvörn. Við vissum ekkert hvaða númer við áttum að kaupa svo við keyptum bara 3 túpur. ÞAð var líka eins gott því þær kláruðust.
Tónleikadagskráin byrjaði svo á fimmtudagskvöldinu og við byrjuðum á að sjá sveit sem kallar sig Youngblood Brass Band. Þetta voru mjög skemmtilegir tónleikar og mæli ég með því að þeir sem hafa gaman af brass böndum kíki á þessa sveit. Þetta er brass band sem spilar hip hop og það eina sem mér fannst að er að það var rappað í sumum lögum og ég hef ekki ennþá náð að fíla rappið. Seinna um kvöldið voru svo tónleikar með Metallica. Þetta voru víst rosa góðir tónleikar og fengu 6 stjörnur af 6 mögulegum í blaðinu sem gefið er út á meðan á hátíðinni stendur en mér fannst þeir leiðinlegir. Þeir spiluðu engin lög sem ég þekkti nema rétt í restina sem aukalög. Þeir spiluðu nánast bara alveg brjálað þungarokk og það er ekki alveg minn smekkur. En þeir sem fíla það voru ánægðir. Þetta voru án nokkurs vafa fjölmennustu tónleikarnir á hátíðinni. Þegar þeir voru ca. hálfnaðir þurfti ég náttúrlega að pissa (ég hef alveg glataða samkvæmisblöðru) og ég hélt ég myndi aldrei komast út úr þvögunni, samt vorum við ekki einu sinni framarlega. Ég sá að það var ekki séns að reyna að komast inn í þvöguna aftur og hitta strákana svo ég ákvað bara að kíkja á aðra tónleika og hitta þá eftir að Metallica væri búin að spila. Mér fannst bara fínt að kíkja eitthvað annað því eins og ég sagði var ég ekkert að fíla þetta. Ég byrjaði á að kíkja á hvað væri að gerast í Metropol tjaldinu en það er mekka danstónlistar á hátíðinni. ÞAr var DJ Middelton að spila og ég dansaði eins og brjálæðingur þangað til ég var að kafna og gjörsamlega búin í fótunum, gönguskór eru ekki það besta á balli! Þaðan kíkti ég í Pavilion og hlustaði aðeins á hljómsveit sem heitir The Eighties Matchbox B-line Disaster (óþarflega langt nafn). ÞAð er í rauninni ekkert um það band að segja, það var allt í lagi en var samt ekkert að grípa mig. Svo gekk ég bara um og kíkti í búðir og fékk mér bjór þangað til ég hitti strákana. Ég minnist þess ekki að við höfum gert neitt sérstakt eftir það.

Nú ætla ég eð taka mér smá pásu. Segi ykkur frá restinni seinna í kvöld.

Posted by svanhildur at 03:42 EH | Comments (3)

enn í skýjunum

... maður er ekki enn alveg kominn niður á jörðina eftir tónlistarveisluna góðu. hugurinn kom ekki með lestinni frá sjálandi í gær. einhver blindfull kerling, sem var í norrænu, sem kom að máli við mig og svanhildi sagði okkur það að það væri betra að sigla erlendis en fljúga. því sálin ferðaðist með hraða úlfaldans. ekki veit ég hvort þessi kona hefur tekið múslímska trú en hitt veit ég að flugmenn og flugfreyjur eiga við vandamál að stríða ef satt reynist!

en nú er björn vinur minn að kveðja okkur á eftir. hann ætlar að taka lestina til kuben og gista hjá mývetingi einum mjóum síðustu nóttina í baunalandi. óska ég honum góðrar ferðar og heimkomu og vona að við sjáumst fyrr en seinna á ný.

ps. fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér blaðaskrif og dóma um tónleikana á hróarskeldu '03 þá bendi ég á www.gaffa.dk

Posted by mundi at 02:28 EH | Comments (0)