...ég veit ekki hvar á að byrja. úff mar, mikið búið að gerast undanfarna daga. við vorum mjög aktíf á hróarskeldu þetta árið og kom fyrir að við hlupum milli tónleika. það er svo margt sem við sáum að ég nenni ekki að skrifa um það allt hér og því tek ég bara nokkur dæmi, svona það jákvæðasta sem ég varð vitni að.
MUNDI MÆLIR MEÐ:
The Sounds (S) - þvílíkt öflug á sviði, snilld að horfa á kraftinn í þeim, veit samt ekki hvort þau eru að virka svona vel heima í stofu, en örugglega hjá þeim sem sáu sviðsframkomuna.
The Delgados (SCO) - fjölskipuð hljómsveit karla og kvenna, ásláttar, blásturs og strengja. þjóðlagarokkbræðingur af einhverju tagi. mjög athyglisvert og skemmtilegt.
Dirty Vegas (UK) - hressir menn sem eiga góða spretti
Kashmir (DK) - danskir rokkarar í gæðaflokki
...svo voru margir aðrir að gera gríðarlega góða hluti. sigurrós troðfyllti græna tjaldið og gott betur en það, fólk var allt um kring. 20.000 manns á þeim tónleikum sagði festival-avisen. þeir voru alveg góðir og náðu vel til fólksins. helst til mikill kannabisreykur inn í tjaldinu samt fyrir minn smekk!
Metallica sýndu mér það að þeir eru engir viðvaningar í tónleikahaldi og sviðsframkomu. trommarinn þarf ekki á námskeið. þeir trylltu lýðinn, en eru helst til þugir fyrir minn smekk, en tóku unforgiven og nothing else matters sem eru jú góð.
...nú ætla ég að nema staðar við þessa upptalningu, ég gæti haldið lengi áfram. ekki verður þó hjá því komist að minnast aðeins á það sem kom mér mest á óvart. það var björk. ég held það sé ekki íslendingagrobb að segja að hún hafi átt flottasta konsertinn á Roskilde '03. ÞVÍLÍK SÝNING. hún mætti á sviðið í stórundarlegum búningi (eins og henni einni er lagið!), með strengjasveit með sér ásamt dj'um. Svo spilaði hún mest nýtt efni framan af tónleikum, sumt verulega skrítið fannst mér, en svo allt í einu þá keyrði hún upp fjörið, tók gömlu lögin sín, og þá þustu skyndilega flugeldar upp úr tjaldinu um leið og einhverjar "eldvélar" kveiktu gjörsamlega í sviðinu. ég næ aldrei að skrifa þannig um þetta þannig að fólk geti sett sig í spor þeirra sem þarna voru og sáu - en þvílík SNILLD. HÚRRA BJÖRK!
Svo minni ég á að roskilde '04 hefst 1. júlí að ári.
Hróarskelda hefur byrjad mjøg vel og búid ad vera thvílíkt gaman. Thad er búin ad vera sól allan tímann og sólvørnin á svædinu seldist upp á fimmtudag svo vid fórum nidur í bæ til ad ná okkur í vørn. Sumir hafa thó brunnid smá en ekkert alvarlegt. Vid erum búin ad vera thvílíkt dugleg ad fara á tónleika og høfum eiginlega bara verid inni á tónleikasvædinu allan tímann. Thad sem stendur upp úr ad mínu mati eru Sigurrós, Coldplay, The Delgados, Slovo, Lemon Jelly og svo eitt brass band sem vid sáum sem ég man ekki hvad heitir. Metallica og Iron Maiden voru ekki alveg ad høfda til mín. Í kvøld eru thad svo medal annars Cardigans og Blur og á morgun ætlum vid ad sjá Bjørk, Massive Attack, Queens of the Stone Age og Bonnie Prince Billie svo eitthvad sé nefnt.
Sem sagt áframhaldandi stud hjá okkur hér á Keldunni og spáin segir ad thad verdi sól fram á thridjudag. Heyrumst eftir hátídina!!!
Hæ hæ. Þá er loksins komið að því. Við erum að fara á Hróarskelduhátíðina í dag. Ég er búin að vera spent í marga daga. Mundi vaknar alltaf klukkan korter yfir sex á morgnana því hann á að mæta í vinnu klukkan sjö. Ég er vön að rétt rumska með honum og svo sofa áfram til klukkan hálf tíu, tíu. En í morgun leið mér eins og ég væri 5 ára og það væri aðfangadagsmorgunn. Ég vaknaði þegar klukkan hringdi á Munda með þvílíkan spenning í maganum og það var ekki sjéns að sofna aftur, ég reyndi og reyndi að sofna en hugurinn var bara á fullu að hugsa um Hróarskelduhátíðina. Mér finnst alveg ótrúlegt hvað ég er spennt. Það er langt síðan mér hefur liðið svona en þetta er alveg æðislega gaman. Ég vona bara að ég sé ekki búin að búa mér til of góðar minningar frá síðustu hátíð og verði fyrir vonbrigðum núna. Annars tel ég litlar líkur á því. Þetta verður frábært. Svo á líka veðrið að vera mjög gott allan tímann og það hefur auðvitað mikið að segja. En sem sagt þá hlakka ég mikið til og skrifa svo aftur á mánudaginn og segi ykkur hvernig var.
það verður bið á því að ég bjóði honum vini mínum gistingu aftur meðan ég dvel erlendis. það hefur verið skítaveður hér alveg síðan hann kom ef undanskildir eru fjórir klukkutímar í dag. við fórum seinnipartinn í bæinn að sýna honum herlegheitin, hann hafði bara séð þetta allt í myrkri!! eftir fínan túr, og við farin að hjóla heim, brast svo á með þrumum og eldingum og það var ekki þurr þráður á okkur þegar við komumst á leiðarenda. þar var svo farið í þurr föt. þá stytti upp, og við ákváðum að fara hérna aðeins út í skóg þar sem er haldin hátíð í kvöld með brennu og tónleikum. passlega komin þangað þegar himnarnir opnuðust aftur og nú vorum við að koma heim og það voru fataskipti á ný. ég vona bara að nú sé'ann búinn að ausa þessu úr sér og við fáum þurra og sólríka daga á keldinni.
við erum komin aftur til odense. ég, svanhildur og björninn skelltum okkur eftir vinnu í gær niður til þýskalands að kaupa bjór og gos. fórum að því loknu til billund og snæddum grillmat að hússins hætti, sem var snilldin eina. nágrannakonan margit kom og borðaði með okkur, það var gaman að hitta hana aftur og hlusta á jósku, sem á ekkert skylt með því sem kallast danska. svo á að fara að kveikja upp í grillinu aftur núna á eftir því maggi villi er að koma í mat. já svona er lífið... ..og svínvirkarágrillið
Jæja, tíðindalítill dagur er senn á enda. Í dag ákvað almættið að vera gott við gróðurinn og gefa honum að drekka. 'eg vona bara að það huxi svona vel til mín um helgina, þegar óðalsbóndasonurinn vinur minn mætir á svæðið.
Sautjánda júníhátíðin var vel heppnuð. Við fengum lambalæri heimanað að snæða, þennan fína varðeld, gítarleikara og allt. ég skellti mér í lopapeysuna og allt var klárt! það eina sem hefði mátt fara betur var það að ég var gersamlega étinn af þessum helvítis mosskító flugu ógeðum. ég er að upphuxa hefndaraðgerðir. Svo fórum við út að borða í legoland á sunnudeginum í boði foreldranna. það var alveg glimraandi. komum svo heim í gærkvöldi dálítð þreytt. Annars hefur nú verið hefðbundinn dagur í dag. svanhildur fer svo að vinna í Egeskov á morgun (www.egeskov.dk)
Þá erum við á jótlandi, nánar tiltekið í Billund. Erum að fara með settinu á 17. júní hátið íslendingafélaxins í jótlandshreppi. Það er bóndi hér skammt frá sem lánar tún, þar er tjaldað, grillað, kveikt bál, spilað og sungið. en meira af því seinna...
Skelltum okkur á útitónleika seinnipartinn í dag. Hér er slíkt mjög títt og þykir mér tónlistarlíf Dana vera í miklum blóma, hér í landi eru eilífir tónleikar, jafnt minni spámenn sem stærri. Hlakka mikið til Hróarskeldu.
Þar afsannast að betri sé krókur en kelda!
Hæ hæ
Ég er að reyna að læra á þetta líka. Nú erum við búin að vera úti í þrjár vikur og ég er ekkert búin að skrifa. Ég er alveg hræðileg. Það er ekki eins og það sé svo brjálað að gera hjá mér hérna úti. Er eiginlega bara búin að vera að leika mér. Er búin að vera að vinna einn dag og svo fóru tveir dagar í að fá vinnu. Annars er þetta bara búið að vera frí. En ég ætla ekkert að vera með samviskubit yfir því. Maður hefur gott af því að taka sér smá frí öðru hvoru. ÞAð versta er samt að maður verður svo latur af því. Ég sef bara hálfan daginn.
Við erum nú samt búin að gera ýmislegt og það er líka margt á dagskrá framundan. Við komum út laugardaginn 26. maí eftir frábæra ferð með Norrænu. Hún er rosa flott. Við vorum hjá foreldrum Munda fyrstu dagana og svo fór ég í heimsókn til Söru á fimmtudeginum og gisti hjá henni eina nótt (fyrir þá sem ekki þekkja Söru, þá er hún frænka mín og er í námi í Álaborg). Það var rosa gaman að hitta hana og við skelltum okkur á djammið í Álaborg og dönsuðum eins og okkur einum er lagið. Á laugardeginum brunuðum við svo yfir til Odense og eyddum laugardagskvöldinu við át, spjall og drykkju með Ingólfi og Áslaugu sem við leigjum af. Þau fóru svo heim til Íslands á sunnudeginum. Mundi byrjaði svo að vinna á mánudeginum og ég fór í vinnuviðtöl og fleiri reddingar.
Á miðvikudeginum fór ég í Legoland með mömmu, pabba og Gauta og það var æðislega gaman að hitta þau og vera með þeim. ÞAu komu svo með mér hingað yfir til Odense og voru hér fram á laugardag. Þá fórum við Mundi með þeim til Köben og vorum þar fram á mánudag. Þar skelltum við okkur á djammið og fórum á bakken. Þetta var allt voða gaman.
Svo var ég að vinna á miðvikudaginn en þar sem ég er að vinna hjá afleysingaþjónustu, þá er allt óljóst með framhaldið fyrir utan að ég er búin að fá vinnu í 5 vikur (júlí og fyrstu vikuna í ágúst) við að þrífa á elliheimili sem ég vann aðeins á í fyrra og líkaði mjög vel. Mér er nokkuð sama þó að þetta sé kannski ekki sérstaklega spennandi vinna því maður fær leið á því að hanga heima og það er gott að hafa eitthvað fast og þurfa ekki alltaf að vera að bíða eftir símtali í von um að fá eitthvað að gera. Svo er líka mjög góður mórall og fínt fólk þarna og það skiptir miklu máli.
Á morgun erum við að fara á 17. júní hátíð og gistum í tjaldi eina nótt. Þessi hátíð er haldin rétt hjá þar sem foreldrar Munda búa og við fórum líka á hana í fyrra og skemmtum okkur mjög vel. Allir tjalda og svo er grillað. Eftir matinn tekur fólk á við drykkju að íslenskum hætti, kveikt er upp í varðeldinum og söngbækurnar og gítararnir eru teknir upp. Er hægt að biðja um eitthvað meira?
Jæja, þá er ég búin að segja ykkur það helsta sem hefur drifið á mína daga hér í Danmörku. ég lofa að reyna að vera dugleg að skrifa.
...hvað ég er flinkur - eða er þetta kannski bara svona auðvelt?? humm... nú er bara að fara út að mynda bæinn og sýna ykkur aðeins hvernig umhverfið er. enn sem komið er kannn ég ekki að smækka myndir þannig að ég verð að stilla myndavélina á VGA mode en þá passa myndirnar svona líka ljómandi vel hérna inn. ef einhver er með lausn á þessu þá commenta á það. annars bið ég að heilsa öllum í bili, en ég verð örugglega hérna fljótlega aftur. hilsen MUNDI