Nú er komið að síðustu fyrirlestrunum um merkjamál hunda þar sem þú lærir að skilja hundinn þinn betur. Fyrirlestrarnir verða haldnir í Voffaborg í Víðidal líkt og áður.
Fyrri fyrirlesturinn verður n.k. fimmtudagskvöld, 3.júní, kl 20.30-22.30 og sá seinni mánudaginn 7.júní kl. 20:00-22:00 og kostar 1000kr inn.
Fullt hefur verið á síðustu fyrirlestra og færri komist að en vildu - því vil ég hvetja fólk til að skrá sig sem fyrst! :)
Einungis 10 manns komast að hverju sinni sem skapar skemmtilegar umræður og persónulegri nálgun á viðfangsefninu. Það er ekki posi á staðnum og hundarnir mega hvíla sig heima þar sem þetta er einungis fyrirlestur en ekki námskeið.
Eins og fyrr verður heitt á könnunni í kaffinu og fyrirlestrargögn afhent að fyrirlestri loknum.
Skráning fer fram í gegnum tölvupóstfangið hundahanna@gmail.com
Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til að kynnast hundinum þínum betur og frá nýju sjónarhorni.
-----
Seinnipartinn í Júní mun ég svo koma til með að byrja nýja fyrirlestra. Þar sem flestir fyrirlestrar mínir koma til með að tengjast eru fyrri fyrirlestrar grunnur að næstu fyrirlestrum. Því fáið þið mest út úr fyrirlestrunum með því að mæta á þá alla, fáið heildarsýnina og byggið þannig ofan á þekkingu ykkar :)