Jóhanna

Þreyta
Ég er alveg rosalega, ótrúlega, svakalega þreytt. Afhverju er ég ekki farin að sofa? Góð spurning.

Síðast liðnir 5 dagar eru búnir að vera stórmerkilegir. Fyrsta skóladaginn sagði Sheila kennari við okkur að þessi staðarlota væri langtum erfiðust. Sumir nemendur myndu verða mjög "emotional" eða "hrærðir" yfir því sem verið væri að tala um og ættu erfitt með að stjórna tilfinningum sínum. Við, víkingarnir frá Íslandi, blésum nú auðvitað á það. En þetta reyndist alveg hárrétt hjá henni. Dagarnir voru langir og umræðuefnin í skólanum oft erfið. Ekki bætti úr skák að líta út um gluggann í herberginu okkar í morgun og reka augun í labrador-hunda nágrannans sem eru geymdir í einhverskonar vír-girðingar-búri út í garði. Við héldum að hann væri með hænur þar inni! Út úr búrinu kom einn sá horaðasti, stífasti og sorglegasti Labrador hundur sem ég hef á ævinni séð. Úr glugga á annarri hæð gat ég talið rifbeinin á honum: 6stk. Mjaðmirnar stóðu út í loftið og höfuðið virtist hanga á skinninu einu saman. Engar áhyggjur - Sarah hringdi í Dýralögguna.

Í gær töluðum við um hunda sem eru uppfullir af streitu. Í raun svo uppfullir að þeir eru hættir að ráða við daglegt líf og eru komnir í svokallað "shut down". Þá einfaldlega slökkva þeir á sér og bregðast ekki við neinu áreiti neinsstaðar frá. Ekki einu sinni snertingu. Við sáum video af einum slíkum hundi og það var hryllingur að horfa á. Ein konan í hópnum fór fram grátandi og ég þurfti gjörsamlega að berjast við tárin.

UK taka 2
Við erum komnar til UK!

Ég ákvað að blogga ferðasöguna á þetta blogg en hundasögur á hitt bloggið mitt.

Ferðin gekk eins og í lygasögu. Engin seinkunn á flugi, ekkert vesen við lendingu, frábært lestarkerfi og skiptum bara 1x um lest. Vorum komnar hingað til Chartley, Staffordshire kl 13:30 eftir góða pásu á lestarstöðinni í Stafford.

Gistiheimilið er rosalega fínt. Það heitir Mill Cottage og er út í sveit. Við ákváðum að gista hérna því Sarah, ein af bekkjarsystrum okkar, tekur hundinn sinn Mitus með í skólann. Þetta gistiheimili leyfir hunda (meira að segja inn í svefnherberginu hennar) svo að það hentaði best. Sarah er líka á bíl svo við fáum far með henni í skólann sem er mjög gott.

Góður nætursvefn
Það ert oft svo erfitt að hlusta á foreldrana þegar maður er unglingur. Pabbi sagði við mig á hverju einasta kvöldi að ég þyrfti að fara að sofa fyrir kl 11 til að ná almennilegum nætursvefn. Þess í stað vakti ég frameftir, hékk á ircinu (sælla minninga), í símanum eða las Rauðu seríuna.

Núna hefur Facebook tekið við af ircinu, sjónvarpsþættir teknir við af símanum og hundabækur teknar við af Rauðu seríunni.

Það er í raun ekkert gagnlegt sem ég gerir frá kl 22 á kvöldin - eða svona sjaldnast.

Frá því á mánudaginn hef ég því farið að sofa milli hálf 10 og 10. Þegar klukkan hringir svo 07:45 er ég eldhress og úthvíld, ég vaknaði meira að segja á undan henni í gær!

Það þýðir líka að þegar ég er búin í ræktinni um 09:30 á ég allann daginn framundan, úthvíld, nýhreyfð og tilbúin í slaginn við BA-ritgerðina og önnur verkefni sem bíða mín.

Verð að segja að þessi byrjun á Líkami fyrir lífið er svo sannarlega að gefa mér aukna orku og vellíðan - bæði líkamlega og andlega!! :)

Markmið
Til að ná árangri er nauðsynlegt að setja sér markmið.

Fyrstu vikuna mína er ég með tvö markmið:

1. Fylgja matseðlinum frá Siggu þjálfara (sem er mjög raunhæfur og girnilegur!!) og öll -kg sem fara er bara plús.

2. Mæta í ræktina og hreyfa mig á hverjum degi. Vikan er plönuð svona.

Mánudagur: Sigguþjálfun

þriðjudagur: Sigguþjálfun

Miðvikudagur: Sund með Sigrúnu

Fimmtudagur: Sigguþjálfun

Föstudagur: BodyAttack

Laugardagur: Brennsla 30mín plús útivist.

Sunnudagur: Hvíld -- Sýningaþjálfun&Klikkernámskeið.

Svo er auðvitað markmiðið fyrir næstu viku það nákvæmlega sama, en þá hækka ég kröfurnar og set mér kannski einhver "töluleg" markmið.

Ég er samt að reyna að einblína ekki á vigtina, því hún segir bara hálfan sannleikann. Ég vil frekar horfa á þolið sem eykst, sjálfstraustið og andlega vellíðan! Það er jú það sem skiptir öllu máli :)

Líkami fyrir lífið!
Á föstudagskvöldið steig ég á vigtina eftir langa fjarveru frá þessari vinkonu/óvinkonu minni. Ég lýg því ekki þegar ég segi að ég steig STRAX af henni aftur, nánast hljóp inn í eldhús - opnaði nammiskápinn og sturtaði úr honum beint í ruslið. Ruslið fékk svo að fjúka beinustu leið ofan í tunnu þá um kvöldið.

Ég fór svo inn í herbergi, skrifaði Siggu þjálfaranum mínum á Hress e-mail og bað um að byrja aftur hjá henni ekki seinna en mánudagsmorgun. Mér leið strax betur þegar ég fékk svar um að ég væri ævinlega velkomin og mætti mæta á mánudaginn kl 08:00.

Í kvöld lá ég svo sofandi fyrir framan sjónvarpið eftir að hafa borðað næstum því heila 9" Dominos Sizzler plús ostagott. Skolaði því svo auðvitað niður með Coke Light.  Síminn pípti og það var sms frá Jóa félaga.

"Líkami fyrir lífið átak hefst á morgun, 12 vikur og læti. Ég ætla að skrá mig, ertu með?!" Ég spratt á fætur, beint í tölvuna og SKRÁÐI MIG.

Þetta var punkturinn yfir i-ið. Hvatningin sem ég þurfti. Áhuginn vakinn.

ÉG VÖKNUÐ.

Fylgist spennt með mér næstu 12 vikur því þær verða að sjálfsögðu í beinni :)

Ég ætla ekki að setja inn fyrir-myndirnar fyrr en ég er orðin sátt við eftir-myndirnar hehehe

IN IT TO WIN IT

Ísland, fagra Ísland!
Það er langt síðan við Olga stigum aftur á Íslenska grundu eftir langt og strangt ferðalag. Verð að viðurkenna að ég er ekki alveg að nenna þessu ferðalagi 8-10x í viðbót ef veðrið verður alltaf svona!! En ég treysti á að mesta lagi rigning eigi eftir að hrjá okkur næst þegar við förum út þann 26 febrúar.

Annars er það helsta að frétta að hún elskulega Píla okkar kvaddi heiminn þann 16.janúar síðast liðinn. Afskaplega sorglegt slys sem hún lenti í og mjög erfitt að sætta sig við það að "litla systir" skyldi kveðja okkur svona. Þegar mamma var búin að segja mér fréttirnar pakkaði ég niður mínu hafurtaski, setti hundana mína í búr og brunaði út á flugvöll. Ég átti sorglega en jafnframt góða 3 daga fyrir norðan þar sem ég náði að kveðja Pílu mína og styðja (og fá stuðning) foreldra mína í sorginni. Lífið heldur samt sem áður áfram þó að það sé tómlegra án Pílu! Það verður vafalaust hálf kjánalegt að koma heim til mömmu og pabba í framtíðinni og engin Píla. Við vermum okkur samt við þær fjölmörgu minningar sem við eigum um þennan yndislega hund, félaga og fjölskyldumeðlim.

Annars er það af mér að frétta að ég er að drukkna í verkefnum eins og svo oft áður! Já það er ekki beint rólegt hjá mér frekar en fyrri daginn. Ég kom heim frá Bretlandi með stóran bókalista sem ég þarf að lesa fyrir næstu staðarlotu - auk þess að ég uppgötvaði mér til mikillar skelfingar að það er nákvæmlega ekkert samræmi milli einingafjölda kúrsa í Kennó og verkefna vinnu í kúrsunum svo að ég er alveg að farast úr lesefni í fjarnámskúrsunum mínum tveimur, ásamt BA-ritgerðinni og málstofunni.

Einhvernveginn kemur þetta samt allt með kaldavatninu og vonandi helst meðaleinkunninn áfram í kringum 8. Þá er ég sátt :)

Bretland :)
Eins og flestir vita sem hafa fylgst með mér þá er ég núna stödd í Bretlandi í Hundaþjálfaraskóla Sheila Harper IDBTS. Rosalega rosalega skemmtilegt og fróðlegt. Hann er uppbyggður sem fjarnám með staðarlotum svo að ég flýg út á 6 vikna fresti næsta 1,5árið.

Þetta er svo sannarlega draumur að rætast hjá mér enda finnst mér æðislegt að vera í kringum fólk sem talar BARA um hunda og hefur í raun sömu ástríðu á hundum og ég. Olga vinkona ákvað að skella sér líka í skólann enda er magnað að vera tvær og hjálpast að í enskunni/breskunni. Get ekki sagt að það sé auðvelt að skilja fólkið hérna, sérstaklega ekki þá sem eru af skoskum ættum! Það er alveg hrikalegt.

Gistiheimilið sem við erum á heitir Park Farm Bed&Breakfast og er eins og nafnið gefur til kynna sveitabær sem er samt "í" borginni. Það er vinnumaður hérna sem heitir Russel og hjónin heita Mr. and Mrs. Lewis. Þau eru eldri en sólin held ég, en rosalega hress og kát miðað við það. Það var gjörsamlega ÍSKALT hérna inni þegar við komum en núna þá fer Mrs.Lewis inn í herbergið okkar áður en við komum heim og kveikir upp í arninum sem er voðalega næs. Húsið er byggt 1750 og því er engin miðstöð og bara einn lítill ofn inn í stóra herberginu okkar. Við vorum svo heppnar að það eru tvær stelpur sem gista hérna líka, ein Bresk og ein Hollensk. Mjög fínar báðar tvær og við eyðum miklum tíma saman.

Þó að gengið sé ekki hagstætt er samt mun ódýrara að lifa hérna. Ég keypti til dæmis 4 nærboli í pakka (2pakka) á strákana og pakkinn kostaði 4pund. Það eru um 800kr. Heima hef ég fundið mest tvo nærboli saman í pakka á 1299kr.

Við borðum yfirleitt á sama veitingarstaðnum sem heitir Ash Tree og er í göngufæri. Þar er alltaf tveir-fyrir-einn díll af aðalréttum svo að við Olga erum að borga svona 12pund fyrir máltíðirnar með gosi/bjór. Það er um 2400kr sem er alls ekki svo hræðilegt :)

Annars gengur vel í skólanum, en þeir sem vilja lesa hunda-hliðina á Bretlandi geta kíkt á www.reykjalin.com/hundahanna

Sjáumst á miðvikudaginn!! :)

jólin mín.. jólin mín og þín!
Enn eitt árið - enn einu yndislegu jólin!

Við ákváðum að eyða jólunum saman bara við fjögur (eða sex, ef þið teljið hundana með) og það var alveg hreint yndislegt. Ég var svona nett kvíðin yfir því að fá heimþrá, enda fyrstu jólin sem ég held EKKI í Ásveginum, en þurfti sko ekki að hafa neinar áhyggjur af því. Teddi vinur Inga kom og græjaði rjúpuna fyrir okkur - ég fyllti hana af þurrkuðum ávöxtum ala mamma. og þá var hún klár fyrir aðfangadag!

Aðfangadagur var svo ljúfur að við náðum meira að segja að hanga í náttfötunum fram eftir degi, horfa/sofa yfir barnajólamynd og strákarnir skoðuðu pakkana í bak og fyrir. Fljótlega fyllti rjúpnailmurinn húsið og ykkur að segja þá er þessi rjúpuuppskrift BULLET PROOF og grííííðarlega góð.

Pakkaflóðið náði langt út á gólf og fengu strákarnir meðal annars Nintendo Wii leikjatölvu og rafmagnsbílabraut! Svaka stuð.

Sjálf fékk ég geggjaða skó frá Inga og gaf honum myndavélatösku og úr. Mamma og pabbi gáfu mér kodda og hver gjöfin var annarri flottari.

Ég og mínir þökkum kærlega fyrir okkur þessi jólin!

Gleðileg jól!

Hundahandbók Voffaborgar!
Ég var að gefa út Hundahandbók Voffaborgar :)

Hundahandbókin er í raun bæklingur í A5 stærð, rúmlega 40bls að lengd.

Þar er að finna ýmsar handhægar upplýsingar sem ég hef tekið saman ásamt áhugaverðum greinum. Þær greinar hef ég fengið að láni, þýtt sjálf eða endurbætt að einhverju leyti. Greinarnar eiga það allar sameiginlegt að vera ekki “common sense” heldur ættu allir að finna eitthvað NÝTT í handbókinni – eitthvað sem þeir vissu ekki áður. Annars vegar inniheldur Handbókin upptalningu á dýralæknastofum á höfuðborgarsvæðinu, hugmyndir að góðum útivistarsvæðum með ferfættu vinum okkar ásamt öðrum gagnlegum upplýsingum eins og til dæmis nokkur hótel um allt land sem leyfa hunda. Hinsvegar eru í henni gagnlegar greinar eins og til dæmis Hvað hundurinn má EKKI borða, Hvernig streita lýsir sér í hundum, Gelt og lausnir við mismunandi gelti, Upplýsingar um hráfóður og svo mætti lengi telja.

Bókin er fallega uppsett af Guðrúnu Hilmisdóttur (www.designbygudrun.com) sem sá einnig um alla hönnunarvinnu á bakvið bókina. Ljósmyndirnar eru teknar af Berglindi Kolbeinsdóttur sem er mikil áhugamanneskja um hundaljósmyndun.

Kussungur ehf. gaf mér ríflegan útgáfustyrk sem sá til þess að draumurinn gat ræst.

Voffaborg sér um sölu á bókinni endurgjaldslaust og kann ég þeim bestu þakkir fyrir, enda hafa þau reynst mér mjög vel og stutt mig í öllum þeim hunda-hugmyndum sem hafa flogið í gegnum kollinn á mér.

Eftir áramót stefni ég á nám í Hundaþjálfun til Bretlands í hundaþjálfaraskóla Sheila Harper sem er staðsettur í Staffordshire og er bókin því fjáröflunarleið fyrir mig. Eintakið kostar litlar 2000kr og hver veit nema þú og þinn ferfætti félagi þurfið aðstoð mína seinna meir? ;)

Þú getur haft samband við mig í missreykjalin@gmail.com eða einfaldlega kíkt upp á Voffaborg og trítlað út með eintak í hönd!

Nú er því upplagt að slá tvær flugur í einu höggi: Kaupa þér fallega og upplýsandi bók um hundahald ásamt því að styrkja gott málefni!

Þar sem ég veit að þessi handbók mun vekja mikla lukku get ég lumað því að ykkur að ég er að safna efni í bók númer tvö! ;)

Bestu kveðjur

Jóhanna Reykjalín

a.k.a. Hunda-Hanna

Góð helgi að baki
Ég get varla lýst því með orðum hvað þessi helgi er búin að vera yndisleg. Inga og Einar komu nefninlega í heimsókn með hana Eyvöru sína og Kasper Cavalier.

Þar sem ég er í prófum var ég búin að gera stífa dagskrá þar sem lærdómurinn tók mestan tímann en ég gaf mér einnig tíma til að sinna gestunum. Ég var svo ótrúlega dugleg að læra á föstudaginn að í hádeginu á laugardaginn var ég búin með bókina sem ég hafði áætlað að klára á sunnudaginn! Við stelpurnar fórum því í smá jólagjafa leiðangur og tókst mér að kaupa þrjár jólagjafir - þar á meðal gjöfina hans Inga :) eða allavega hluta af henni hehehehe

Þau voru svo yndisleg að bjóða mér út að borða í gær og nutum við matarins á Ruby Tuesday. Eftir Ruby fórum við smá rúnt og fengum okkur svo ís í Ísbúðinni í Garðabæ. Þegar heim var komið skelltum við löppunum upp á sófaborð, teygðum vel úr okkur og sötruðum á hvítvíni. Ég fór því sæl að sofa í gær eftir frábæran dag með skemmtilegu fólki.

Íslenska tíkin hún Hátíð (7mánaða) kom í smá pössun yfir helgina. Rosalega skemmtileg tík og alveg hreint ómótstæðilega falleg. Garðurinn kemur vel að notum þessa dagana þar sem minna er um göngutúra svona í prófatíð.

Fyrra prófið mitt er núna á föstudaginn (11des) og seinna prófið mánudaginn 14.des. Þar að auki er jólahlaðborðið hjá Allanum á laugardagskvöldið og Ragnar&Gísli verða hjá okkur um helgina. Það er því nóg að gera næstu helgi, en ég ætla þó að loka mig kyrfilega af með námsbókunum og pabbinn fær að sinna sonunum eins og honum einum er lagið.

Talandi um pabbann. Í dag er akkurat mánuður frá því að Ingi stakk af út á sjó. Heill mánuður. Þessi tími er samt búinn að vera rosalega fljótur að líða því ég er búin að fá bæði Dagný og mömmu í heimsókn auk Ingu&Einars sem eru núna. Baddý systir eignaðist líka yndislega fallegan strák 16.nóvember sem er algjör sólargeisli. Mundi bróðir bætti svo um betur og eignaðist litla fallega stúlku 19.nóvember. Heldur betur fjölgun í þessari ætt! :)

Hr. Mókollur
Fór í dag og ætlaði að fjárfesta í jólagjöfinni hans Jóa. Ég sá nefninlega á heimasíðunni hennar Dagnýjar systir www.eitthvadannad.is alveg rosalega flott íslensk sauðabindi, prjónuð úr íslenskri ull. Íslensk framleiðsla alveg í gegn! (Núna kaupi ég bara íslenskt, þó það sé stundum aaaðeins dýrara!).

Nema hvað, ég trítla inn í Epal og skoða djásnina. Gríðarlega fallegt. Fer með bindið að kassanum og hugsa með sjálfri mér að þetta kosti tvöþúsund-níuhundruð-og-eitthvað... en NEI!

Bindið sem Jói fær EKKI í jólagjöf, kostaði nefninlega heilar 6970kr! Eða rétt tæpar SJÖÞÚSUNDKRÓNUR!

Tek það fram að það voru engar verðmerkingar á pökkunum, í hillunni né á sýnishornunum. (Neytendasamtök?!)

Þetta verð þykir mér fáránlegt okur og ekkert annað.

Jóla hvað??
Tíminn líður svo hratt að ég bara steingleymi alltaf að blogga! Nóvember flýgur hjá og mér finnst önnin í skólanum rétt vera að byrja, en í dag sat ég í síðasta tímanum þessa síðustu haustönn mína í Háskóla Íslands. Kellan er nefninlega á síðasta árinu í BA-námi ;) Hressandi það.

Annars eru nú nokkrar fréttir í gangi frá mér sem að þeir sem eru ekki á Facebook missa kannski af. Ég er nefninlega á leið í Hundaþjálfaranám til Bretlands eftir áramótin! Örvæntið samt ei, því ég er ekki að flytja út heldur er ég að fara í fjarnám með staðarlotum. Ég flýg semsagt reglulega út til Manchester næsta 1,5 árið. Ég er að fara í skóla sem er í Staffordshire og heitir International Dog Behavior and Training School (IDBTS) eða Alþjóðlegi hunda-hegðunar og þjálfunarskólinn.

Þar að auki er ég orðin nemi hjá Töfralausnir - Hundaþjálfun  sem halda klikkernámskeið hérna í borginni. Þau eru að fara í samstarf við Voffaborg og vonandi verða klikkernámskeið þar eftir áramót ef allt gengur að óskum.

Jæja allir komnir með ógeð á að lesa um hundamálin mín hehehe.

Hafa ekki allir áhuga á að heyra eitthvað um jólin?? Við erum búin að ákveða að vera bara hérna fyrir sunnan, við fjögur. (eða sex, með hundunum sko). Fá okkar eigið jólatré, gera okkar eigin rjúpur með eigin sósu, pökkum og hefðum. Það verður virkilega skrítið að vera ekki hjá mömmu og pabba um jólin á Hauganesinu, en við stefnum á að fara norður strax eftir jólin eða 27des giska ég.

Áramótin eru algjörlega óskrifað blað svo að ekki spyrja út í þau!!

Hafið það gott kæru vinir

Þangað til næst :)

um svínaflensu og fle
Maður er nú eiginlega ekki maður með mönnum nema maður hripi niður nokkur orð um svínaflensuna. Hingað hefur hún ekki náð að teygja sig að neinu leyti. Ég er fíl-hraust en ekki svína-veik en ég spyr nú reyndar sjálfa mig að því hvort einstaklingur sem stundar nám við fjölmennasta skóla landsins muni sleppa? Það kemur í ljós. Ég er nú samt ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma svo ég læt allar bólusetningar vera (plús að ég þoli ekki sprautur).

Annars er Ingi búinn að vera heima núna í nokkra daga eftir 10 daga fjarveru. Það styttist nú samt í að hann fari aftur en alveg óákveðið hvenær það verður.

Jólin nálgast, er það ekki? Það var allavega einhver sem sagði mér það. Systir mín hún Baddý er búin að baka allar sortir af smákökum sem til eru í heiminum held ég hreinlega og geymir þær í frystinum. Ég er eiginlega alveg viss um að það er lás á kistunni því annars væri Gunni örugglega búinn með þær hehehe. Ég er nú ekki enþá byrjuð að baka að neitt svoleiðis enda er nóg að gera í skólanum og hundalífinu. Ég þarf nú samt að fara að setja saman jólakortalista og jólagjafalista! Alltaf nóg að gera í þeim bransanum :)

Jæja Ingi er skriðinn á fætur. Við ætlum nú ekki að gera neitt merkilegt fram að hádegi en þá förum við í ofur-Box-tíma í Hress hfj og sækja svo Ragnar Björn á flugvöllinn kl 13:30. Stráksi ætlar að vera hjá okkur fram yfir helgi og það verður sko fundið eitthvað skemmtilegt að bardúsa.

Yfir&Út elskurnar

nýjasta nýtt
Undanfarnar vikur hef ég verið að fylgjast með Griffon goti hjá Himna-ræktun. Þar fæddust 18.ágúst 5stk Griffon hvolpar (óvenju stórt got!) en af þeim fimm var bara einn strákalingur. Hann er af tegundinni Griffon Petite Brabracon og er algjör snúllirass. Eftir heimsóknina á sunnudaginn ákváðum við Ingi að bæta við í Griffon gengið þessum litla sæta strák og er hann væntanlegur á heimilið fljótlega eftir helgi. Hann er algjört æði og ég gæti ekki beðið um betri ræktanda!

Hérna eru myndir af strákalingnum

Annars erum við flutt í nýju íbúðina og líkar það mjög vel. Við erum alveg búin að koma okkur fyrir, það eina sem á eftir að gera er að loka garðinum almennilega svo að strákarnir (bæði tvífættir og fjórfættir) geti leikið sér í garðinum án þess að við foreldrarnir höfum áhyggjur :)

Fleiri fréttir seinna!

Það sem á daga mína hefur drifið :)
Ýmislegt hefur gengið á frá síðasta bloggi. Flestir njósna nú bara um mann í gegnum facebook en ég treysti á fólkið mitt í Mŷvó og Gauju ská-tengdó til að líta annað slagið hingað inn að forvitnast. Ég veit allavega að Jói minn skoðar þetta aldrei þar sem allar færslur eru svo langar hehehe.

Svona fyrir sjálfa mig ætla ég að skrifa "smá" pistill svo ég hafi nú nokkurnveginn á hreinu eftir mörg ár hvað ég gerði nú sumarið 2009.

Hefst nú lesturinn...