Jóhanna

Allt að gerast í Lyngdalnum!
Eins og ég hef áður sagt þá er aldrei lognmolla hérna í Lyngdalnum. Róma Líf er komin með nýtt heimili, Hendrix og Gaylord tjúabræður voru í pössun hjá mér í viku og núna er Scout Golden Retriever í vikupössun. Nóg að gera. Ofan á þetta nældi ég mér í ógeðis veiki (í bíoinu með Jóa mínum á miðvikudaginn!!) og er búin að liggja flöt síðan. Reyndar með smá undantekningum þegar ég hef andvarpað djúpt, ákveðið að vera ekki lengur lasin og farið út með hundana. Það fékk ég hinsvegar aftur í hausinn í dag þegar ég vaknaði með dúúúndrandi hausverk og ógleði. Fór á læknavaktina í dag og eyddi 8600kr í læknisheimsókn og lyf. Já það er ekkert spaug að vera veikur!

Það er svo langt síðan ég hef bloggað að ég nenni varla að fara yfir allt sem hefur gerst. Síðasti tíminn í sumarskólanum var í dag - missti af honum út af veikindunum en svona er bara lífið. Núna tekur bara við ritgerðarsmíð um aðlögun stjúpbarna í stjúpfjölskyldum og afdrif stjúpfjölskyldna. Spennandi verkefni framundan :)

Þegar Ingi var í landi síðast skruppum við í "smá" ferðalag um Suðurlandið. Ákvörðunarstaður var Bragðavellir en við ákváðum að keyra eins lítið á Þjóðvegi 1 og við gætum. Ingi vildi líka skoða allar virkjanirnar á Suðurlandinu svo að við keyrðum Þjórsárdalinn þveran og endilangan. Við tjölduðum svo á litlu rólegu tjaldstæði í Þjórsárdalnum og hundarnir sváfu í fyrsta skipti með okkur í tjaldi. Róma plummaði sig vel, þó að Ingi hefði verið MJÖG ósáttur að finna hundapiss í peysunni sinni daginn eftir hehehe. En þvottavélarnar redda ýmsu.

Ég setti inn myndir frá ferðalaginu hingað ef einhver vill skoða.  Inga skyldi ég svo eftir á Eskifirði mánudaginn eftir sjómannadag og hélt sem leið lá heim á Hauganes. Skemmtilegt það, en alveg sama hvert ég er að fara - þá virðist ég alltaf vera á leiðinni "heim".... "Heim á Bragðavelli", "Heim á Hauganes", "Heim í Vogana" :)

Jæja best að fara að sofa og reyna að ná úr sér þessari pest. Leiðinlegt að vera lasinn þegar hitinn fer varla niður fyrir 15°. Búin að fara smá á línuskauta og ég veit ekki hvor skemmtir sér betur, ég eða hundarnir!

Róma er komin með eigin albúm hérna þar sem þið getið skoðað myndir af henni.

Tíminn flýgur og hvolpaskottið stækkar
Þá er komið að því að finna heimili fyrir Rómu Líf. Hún er 9 vikna óættbókafærð Am.Cocker Spaniel tík og er tilbúin til afhendingar á 11-12 viku. Heilsufarsskoðuð, ormahreinsuð og bólusett.

Henni fylgir:

Matarpokinn

Nagbein

Hálsól&taumur

Trygging í 1 ár

Gjafabréf í snyrtingu á Voffaborg

Gjafabréf fyrir 3 daga á Leikskólanum Voffaborg (eftir 6mánaða aldur)

Stútfull hvolpamappa með upplýsingum fyrir nýja eigendur um margt sem viðkemur Cockernum og hundahaldi almennt.

Tíkin fer á 100.000kr. Ef þú hefur áhuga vertu þá endilega í bandi við mig í gegnum facebook eða missreykjalin@gmail.com - svo veistu líka ábyggilega símanúmerið hjá mér ;)

Sumarskólinn
Jæja þá eru prófin frá og sumarskólinn byrjaður. Verð að viðurkenna að maður er ekki alveg tilbúinn í þriðju önnina í röð. Er í áfanga sem heitir Fortíðin í nútíðinni og fjallar um textagerð á 18 og 19 öld út frá textagerð nútímans. Erum að skoða allskonar ljóð, kvikmyndir og lagatexta. Spennandi en þungur áfangi. Ég tók líka áfanga sem heitir "Stjúpfjölskyldur" sem er kenndur á mánudögum frá 15-18. Í Júlí mun ég svo skrá mig í annan áfanga sem fjallar um þroska barna og tek ég próf í þessu öllu í ágúst. Hljómar þetta ekki alveg ótrúleg spennandi svona yfir hásumarið???

Annars er veðurblíðan búin að vera alveg hreint einstök undanfarið. Þvílík sól og blíða - enda sólbrann ég líka á nebbanum :) Strákarnir voru hjá okkur yfir helgi og svo flaug Ragnar Björn (eldri) á undan Gísla heim.. aleinn og ótrúlega duglegur! Gísli var svo hjá okkur út vikuna og flugum við saman norður á föstudaginn síðast liðinn. Ragnar Björn lærði að hjóla án hjálpardekkja hérna hjá okkur og hef ég sjaldan séð barn brosa svona breitt eins og hann gerði þegar hann sveiflaðist til hliða á hjólinu, en datt þó ekki! Eftir þetta var sko ekkert mál að fljúga í fyrsta skipti einn heim - enda hjóla bara stórir strákar án hjálpardekkja ;)

Ætla að enda þetta á nokkrum gullkornum frá strákunum okkar - vonandi brosið þið yfir þeim, þó það sé ekki nema út í annað :)

12 júlí 2008

Fórum í bílferð til Mjóafjarðar. Á leiðinni spyr Ragnar um allt á milli himins og jarðar, eins og t.d.

"afhverju eru hundar til?" og ”afhverju heita Bragðavellir, Bragðavellir?” Hanna segir við hann; "Ragnar, mér finnst þú spyrja rosalega mikið". Þá svaraði stráksi

"Jáh, ekki get ég spurt mig!!"

8 júlí 2008

Hanna þurfti að fara með Trixie til dýralæknis og bauð Ragnari að koma með. Ragnar spyr hvort að Trixie sé lasin,

hanna játar því. Þá spyr hann: "er hún með hita?" "jááá smá" og þá segir Ragnar: "Ertu búin að mæl'ana?!"

Ragnar og Gísli voru í sundi með mömmu sinni sumar 2008. Í sturtunni bendir Ragnar á konu og segir "Mamma sjáðu konuna þarna!"

konan brosir blítt á móti og Fanney svara hægt og rólega.."jááá". Þá segir Ragnar, hátt og snjallt:

"Sjáðu hvað hún er LJÓT!"

Nóvember 2008

Ragnar við Hönnu: Ég elska þig alla leið uppí geim!

Hanna svarar: Og ég elska þig í kringum ALLAR stjörnurnar!

Ragnar lítur hissa á hönnu og segir svo með miklum svipbrigðum: VÁ! Það er GEÐVEIKT mikið!

Ragnar Björn lærði að hjóla án hjálpardekkja í maí 2009. Hann var rosalega stoltur og eltist hann um mörg ár við þetta afrek. Pabbi hans þurfti að fara í skyndi út í búð, stökk á hjólið og brunaði af stað. Ragnar Björn vildi endilega elta en þá var Ingi horfinn út götuna. Hanna sagði honum að hjóla á eftir honum sem og hann gerði. Þegar Ingi kemur út úr búðinni sér hann hvað Ragnar kemur aðsvífandi á hjólinu, sveiflast til hliðanna án þess að detta og öskrar: ”PABBI ÉG ELSKA ÞIG!”

Sól sól skín á mig
Klukkan er rétt rúmlega hálf níu á laugardagsmorgni. Mörg ykkar kunna að spyrja ykkur afhverju í a*********m ég sé vöknuð, en það er góð ástæða fyrir því. Gísli Valgeir skreið nefninlega upp í til okkar kl 05:00 í morgun, og Ragnar Björn fylgdi á eftir upp úr klukkan 06:00. Gísli svaf til 7 og þá fór hann fram að leika. Að sjálfsögðu valdi hann sér háværasta leikfangið, eða smíðadótið og negldi dótanagla eins og hann ætti lífið að leysa. Ég ákvað að hætta að berjast við að líma augun aftur og bara drulla mér á lappir. Við ætlum svo að skella okkur í sund á eftir þegar sundlaugin opnar kl 10. Ég held samt að við verðum klárlega að fjárfesta í stærra rúmi. Þegar við erum komin fjögur í 150cm breitt rúm er orðið ansi þröngt á þingi! Ennn þröngt mega sáttir..liggja :)

Í gærkvöldi fór ég á fyrirlestur á vegum Hundaræktarfélags Íslands um áfalla- og skyndihjálp HUNDA og svo Litaafbrigði í feld hunda. Mjög fræðandi fyrirlestrar. Fyrst var farið í gegnum undirstöðu atriði í skyndhjálp hunda, hvernig bregðast ætti við slysum og hinum ýmsu áverkum. Svo var farið í gegnum erfðamengi hunda og mismunandi litaafbrigði.

Af Rómu Líf er það að frétta að hún er farin að labba pínu pons. Skríður ekki lengur áfram á maganum heldur stendur í fæturnar og þokast rólega áfram. Lady er öll að koma til. Fór í 2ja klst göngu í gær sem endaði með því að hitta Olgu með Heruna og Oddu með Önju Malamute og Penny Rottweiler. Lady stóð sig prýðisvel og panikkaði ekki voðalega mikið.

Framundan er svo bjart og fallegt sumar - stútfullt af ferðalögum og grillveislum!

Litla-Líf viku gömul
Ég trúi því varla að það sé strax komin vika síðan Litla Líf kom til mín. Hún stækkar ekkert smá hratt en er enþá með lokuð augu/eyru. Ég get varla beðið eftir því þegar hún opnar augun og fer að skoða heiminn í kringum sig!

Hún þyngist ágætlega en ég þarf samt að fylgjast með því að hún fari pottþétt á spena og haldist á honum. Næturnar eru því nokkuð sundurslitnar en ég er samt alveg furðulega spræk yfir því á daginn. Ég tók mig líka til og rakaði mömmuna alveg niður. Já sumarklippingin er mætt á svæðið! Ég þurfti nefninlega að klippa fallega feldinn hennar frá spenunum og þá var alveg eins gott að raka þetta bara allt saman af. Núna er smávegis eftir framan á bringunni og eyrun eru eftir, en það kemur bara hægt og rólega. Hún er ekkert aaalltof hrifin af rakvélinni þannig að ég geri bara lítið í einu.

Ræktin á hug minn allann eins og svo oft áður, og fer ég á hverjum morgni inn í Hafnarfjörð og púla í Hress þar sem ég skráði mig í hópþjálfun. Rosalega gott að byrja daginn svona, og mun meira hressandi en að sofa til hálf 10!

Já ég er líka með páfagauk! Toooppið það! Eitt stykki Ringneck-gauk sem heitir Sesar og er svaka öskur-api. Hann talar ekki, en gólar alveg eins og hann eigi lífið að leysa. Hann er samt farin að samþykkja mig (og ég hann) svo að samveran verður alltaf skárri frá degi til dags. Fyrsta daginn hélt ég að ég myndi enda á því að reka grilltein í gegnum hann og éta hann í kvöldmatinn! Djöfull sem öskrin geta verið pirrandi! Núna er ég komin með fuglastandinn hans svo hann nýtur þess bara að snyrta sig þar í friði. Það er nú samt lúmskt gaman af honum...

Ástæðan fyrir því að ég er með hann er sú að Hera er í pössun hjá Olgu, eiganda Sesars. Ég er ekki frá því að Heru langi jafn mikið og mér að éta léttgrillaðan Sesar - eða jafnvel meira en mér!

Sesar að fá sér smá ávaxtasafa...

Litla-Líf í gær:

Tík og hvolpur á einu bretti
Í gærkvöldi fékk ég hringingu. Ég var beðin um að taka að mér Amerískan Cocker, tík sem var nýbúin að gjóta. Hún átti einn lítinn sætan hvolp kl 9 í gærmorgun. Segja má að þetta sé hálfgerður kraftaverka hvolpur því búið var að fara með tíkina á dýraspítala þar sem sprautað var úr henni (fóstureyðing). Þetta grey virðist hinsvegar hafa haldið ansi fast í mömmu sína því öllum að óvörum mætti hann á svæðið. Eigandinn var enganveginn undir þetta búin. Á fleiri hunda og allt í vitleysu svo að tekin var sú ákvörðun að finna tíkina og hvolpinum rólegan og góðan stað til að vera á þangað til að hvolpurinn væri orðinn nægilega vel braggaður og tíkin búin að jafna sig. Þess vegna sit ég hérna upp í rúmi núna, með hvolpakassann á gólfinu. Set hvolpinn á spena á 1-2klst fresti og blanda hvolpamjólk ef hann er ekki nægilega duglegur að taka spenann. Þess á milli klára ég verkefni fyrir skólann og undirbý prófalestur.

Það er semsagt aldrei nokkurntímann lognmolla hérna í Vogunum!

Fnjóskárdalur - Bleiksmýrardalur - Bárðardalur
Myndir úr ferðinni eru hérna

Ingi vakti mig eldsprækur kl 09:00 í gærmorgun, að drepast úr spenning fyrir komandi jeppaferð. Ég var ekki alveg sú hressasta en drullaði mér þó á fætur. Eftir að hafa skolað niður ristuðu brauði og kakói, hent útifötunum í bílinn og reimað á okkur gönguskóna, skelltum við okkur af stað til Akureyrar að tanka og kaupa nesti. Áætlað var að hittast við Leirunesti kl 10:00.

Þegar þangað var komið hittum við Jónsa, á rauðum Cherokee 38", Gunnari á gömlum Patrol 38", Dóra á nýrri Patrol 38" og Magnús sem kom alla leið frá Reykjavík í ferðina, á 46" Crusier trölli!!

Við byrjuðum á nettu ferðalagi inn Fnjóskárdalinn alla leið inn í Bleiksmýrardal. Þar skelltum við okkur yfir Fnjóskánna á tveimur stöðum og gekk það vel, fyrir utan það að ég er alltaf hrædd um að lenda á bólakafi og drukkna þegar við förum yfir svona ár. Þegar við vorum komin lengst inn í dalinn og höfðum engan snjó fundið enn, ákváðum við að snúa við og skella okkur upp skarðið milli Bæjarfjalls og Reits yfir til Bárðardals. Þarna liggur línuvegur meðfram rafmagnsstaurunum og hafði einn okkar (Dóri) farið þarna yfir að sumarlagi. Til þess að komast þangað þurftum við hinsvegar að fara aftur yfir Fnjóskánna á öðrum stað. Gunnar lenti í því óhappi að magalenda á stein út í miðri á! Bílinn sat pikkfastur og vatnið fossaði inn undir dyrnar. Þá mætti Magnús á tröllinu, með Jónsa á toppnum. Anna vippaði sér út fyrir Pattann og náðu þau í sameiningu að festa kaðall milli bíla. Trölli bjargaði málinu þarna meðan við stóðum sveitt með myndavélarnar í landi að smella af :) Eftir þetta ævintýr héldum við áfram sem leið lá yfir í Bárðardalinn

Fyrst um sinn var færið algjörlega frábært. Jeppamenn tóku kaffipásu og þá skellti ég undir mig gönguskíðunum og við Villi þeyttumst áfram á skíðunum þar til jeppakarlarnir náðu okkur og Ingi pikkaði mig upp í. Þá tók gamanið við. Upp snarbrattar brekkur eftir þröngum vegi inn á milli trjánna. Veðrið lék þó við okkur og færið var enþá sæmilegt svo að allt gekk eins og í sögu. Þegar við vorum komin nokkuð áleiðis mættum við tveimur fjórhjólatöppum með bilað hjól og ákvað Tröllið þá að snúa við og aðstoða þá með bilaða hjólið niður til byggða. Þar kvöddum við hann eftir góða samveru, aðstoð að ógleymdu samlokugrillinu í skottinu!! Já allt til alls í þessu kvikindi!

Þá hófst gamanið af alvöru! Við komumst 4km á 2 klukkutímum, festum okkur trekk í trekk, hnoðuðumst áfram, kipptum hvert í annað og giskuðum hvar línuvegurinn væri staðsettur. Dóri (nýr Patrol) varð fyrir því óhappi að affelga, enda var hann kominn niður fyrir 2 pund (loftið í dekkjunum) og rann niður á hlið. Þá voru góð ráð dýr. Þegar allir hjálpast að ganga hlutirnir nú samt upp og Pattinn var fljótt mættur á dekkið aftur eftir umfelgun og snjómokstur.

Þegar við loksins komumst eitthvað áfram sáum við á GPS tækinu að það væri á eða árfarvegur framundan. Þá greip ég til þess ráðs að hringja í Ingvar móðurbróðir sem var búsettur í Bárðardal og þekkti svæðið vel. Hann sagði okkur að halda okkur sunnan megin við línuna því þar kæmumst við yfir ánna. Það var eins og við manninn mælt, þegar við komum yfir ánna og litum norðan meginn við línuna sáum við hengju og svo risastórt gil, sem við hefðum vafalaust hrunið niður í ef frændi hefði ekki aðstoðað okkur! Allt fór þó vel og vorum við komin niður á veg um kl 20:00 og áttum þá eftir að keyra til Akureyrar, klára að dæla í dekkin og svo halda heim á Hauganes. Það var indælis páskasteik sem beið okkar, upphituð í örbylgjuofninum, og voru ferðalangar ekki lengi að gleypa hana í sig eftir langan og strangan dag. Það þarf vart að minnast á það að ég var sofnuð í sófanum hálftíma seinna...

Myndir úr ferðinni eru hérna

Nýr JEPPI!
Þriðjudaginn 7. apríl fórum við Ingi í Bílabúð Benna og náðum okkur í eitt stykki 38" breyttan Musso-Jeppa, árgerð 2000. Við erum búin að eyða því sem af er af árinu í að skoða eeeendalaust marga jeppa og var þessi algjörlega tilbúinn á fjöllin, með GPS tæki, VHF-talstöð, læstur að framan og aftan, loftdælu á dempurum og skóflu á toppnum ;) Jeppinn ber nafnið VERA DÖGG en hann var skírður með mikilli viðhöfn af fyrsta eiganda og hefur heitið það síðan.

Strax á fimmtudag skelltum við okkur í fyrstu jeppaferðina á Verunni, fórum í samfloti með tveimur öðrum jeppadúddum upp á Snæfellsjökul. ÞVÍLÍK DÝRÐ og geggjuð ferð! Hefðum ekki getað verið heppnari með færi og veður. Yndislegt alveg hreint. Hera naut sýn í klessu og má sjá video af Herunni hérna.

Myndir úr ferðinni eru á Facebook, og hérna.

Þegar heim var komið eftir geggjaðann dag tókum við okkur til fyrir norðurlandsför. Við vöknuðum svo snemma á föstudaginn (langa) og drifum okkur af stað. Fyrst skutluðum við Bósa í flug til Vestmannaeyja (hundur í pössun, kemur á óvart?) og sendum svo Heru til Birnu vinkonu þar sem hún er núna í góðu yfirlæti. Villi fékk hinsvegar að sjá norðurlandið með okkur.

Við ákváðum að drolla aðeins á leiðinni norður og kíktum Hvalfjörðinn. Þaðan fórum við svo yfir í Reykholt og komum upp á þjóðveg aftur hjá Baulunni. Beygðum svo á ný út af þjóðveginum hjá Blönduósi, skruppum í kaffi til Ragga bróðurs og þaðan lá leiðin svo til Sauðárkróks og í gegnum sveitina aftur upp á þjóðveg. Á leiðinni suður ætlum við svo að reyna að keyra sem minnst á þjóðveginum og taka maaarga útúrdúra. Það er svo gaman að skoða landið sitt fallega

Örfáar myndir frá Hvalfirði eru hér, og líka nokkrar af Yoko, kisanum hennar Ingu Rutar, og Villa

Hundar, Hestar og Krossarar
Það krefst mikillar athygli að fara út með hund. Stanslaust þarf maður að hafa augun hjá sér og fylgjast með því hvort að fólk er að koma, aðrir hundar, hestar, kettir, krossarar, fjórhjól og svo mætti lengi telja. Hér í Vogunum er ansi mikið af hundafólki. Segja má að í hverju húsi búi 1-2 hundar ásamt eigendum sínum. Þegar Olga vinkona flytur hingað í Vogana fyrir rétt rúmum 5 árum síðan hringir hún í Bæjarskrifstofuna og talar þar við Kristján Bæjarfulltrúa sem gefur leyfi á það að sleppa hundunum lausum á Stapanum sem er svæðið milli Voganna og Njarðvíkur. Þar upp liggur gamall vegur sem er torfarinn og liggur í raun meðfram Reykjanesbrautinni. Við Olga höfum nánast daglega farið með hundana okkar þangað (samtals fjórir) og aldrei orðið fyrir neinu ónáði.

Fyrir rúmlega mánuði síðan er ég að setja hundana inn í bílinn (var þá með Olgu hunda líka) og allir komnir inn nema Hera. Þá kemur maður á fjórhjóli akandi og ég sé einbeitinguna hjá Heru - þetta hjól ætlar hún að veiða! Ökumaður fjórhjólsins stöðvar hjólið hinsvegar þegar hann sér í hvað stefnir, drepur á tækinu og bíður á meðan ég sæki Heru og kem henni í bílinn. Að sjálfsögðu þakkaði ég honum kærlega fyrir þessa kurteisi og aðstoðina því ekkert er verra en að missa hund á eftir fjórhjóli því fátt er meira spennandi en jafnframt hættulegt og hundur að elta ökutæki! Í síðustu viku lenti ég svo í því að missa Heru á eftir hestamönnum sem voru svo sannarlega ekki sáttir við það, sem skiljanlegt er. Ég hef hinsvegar að reyna að þjálfa Heru í það að elta ekki það sem hratt fer og var þetta því afskaplega óheppilegt þar sem þeir birtust skyndilega fyrir hæð, og var Hera löngu búin að sjá þá á undan mér. Til að gera langa sögu stutta urðu nokkur hvöss orðaskipti okkar á milli þar sem mér var vinsamlega bent á það að Kristján bæjarfulltrúi sem gaf leyfi fyrir lausagöngu hunda á Stapanum "vissi ekkert um hvað hann var að tala" og þetta væri einfaldlega "bull og vitleysa".

OIga vinkona var því miður EKKI svo heppin í dag þegar hún skrapp með sína tvo (Rottweiler og Íslensk blanda) ásamt Heru í fjöruna. Hún ákvað einmitt að fara í fjöruna til að koma í veg fyrir að trufla hestafólk sem þykist eiga heiminn. Allavega, í fjörunni eru tveir drengir á krossara svo að Olga gengur með hundana í taum eftir fjörunni þangað til hún er komin í hæfilega fjarlægð, sleppir þeim og nýtur þess svo að ganga um meðan þau hlaupa og leika sér. Gamanið fékk snöggann endi þegar drengirnir á krossaranum óku greitt í áttina að þeim, augljóslega til að ögra hundunum sem æstust allir upp og hófu að elta hjólin. Þeir stoppuðu, biðu þangað til að hundarnir voru komnir nálægt (gáfu alltaf reglulega inn til að vekja athygli og æsa hundana) og gáfu að lokum allt í botn og spændu af stað. Olga reyndi og reyndi að vekja athygli þeirra og biðja þá um að stoppa en allt kom fyrir ekki! Það þarf varla að nefna það hversu hættulegt það er að keyra á ofsa hraða á krossara með ÞRJÁ hunda allt í kring. Hundar eru ekki fyrirsjánlegir, og það er ALDREI hægt að fara of varlega þegar þeir eru annars vega. Ég vil ekki hugsa dæmið til enda hefði annar hvor drengjanna keyrt á hundinn og skotist af krossaranum.

Þegar hundarnir voru orðnir þreyttir gáfust þeir upp á þessum hættulega leik og eltu Olgu í bílinn. Olga átti svo gott samtal við drengina tvo (19 ára frá Hafnarfirði) sem virtust þó enganveginn gera sér grein fyrir því hversu hættulegt þetta athæfi er.  Vart þarf að minnast á það hversu reið Olga var.

ÞAR AÐ AUKI hafa þessir drengir eyðilagt mikla og erfiða þjálfun sem það er að fá hunda OFAN AF þeirri hugsun að elta ökutæki á fullri ferð. Flestir hundar hafa það í eðli sínu að elta það sem hratt fer, hægja á því, leika við það eða róa niður. Núna þurfum við Olga að byrja upp á nýtt að kenna hundinum sjálfstjórn þegar svona stendur á. Þvílíkt ÖMURLEGT þegar sú mikla vinna sem maður hefur lagt í þjálfunina er eyðilögð af einhverjum bjánum á krossara.

Olga var svo heppin að hafa myndavél með í för og náði að taka myndir af þessu hættulega athæfi. Ég læt nokkrar fylgja af þessum glæpamönnum og hundunum....

Hér sjáið þið hvernig hann bíður eftir að Doppa og Hera koma nær..

og nær....

Svo var aaaallt gefið í botn!

Hér sjáiði Heru hverfa í reykinn og sandinn frá krossaranum!

FORELDRAR! Ef börnin ykkar eru að leika sér á krossurum, EÐA ÞIÐ SJÁLF sýnið þá tillitssemi, stoppið og leyfið hundaeigendum að NÁ hundunum sínum, og jafnvel hjálpið þeim ef illa gengur!!!!!

plenty to do plenty to do!
Já það er nú ekki mikil lognmolla í kringum mig núna frekar en fyrri daginn. Stunda skólann af áfergju og hef komið sjálfri mér á óvart með frábærri mætingu þessa önninna :) Er búin að skrifa eina ritgerð, Þunglyndi og lyfjalaus meðferðarúrræði fyrir áfanga sem heitir Hugur, Heilsa og Forvarnir. Núna er ég að skrifa um tengsl stjúpforeldra og stjúpbarns fyrir Foreldrafræðslu og uppeldis-ráðgjöf og síðasta ritgerðin mun fjalla um Dr.Benjamin Spock og þau áhrif sem hann hafði á uppeldisaðferðir bandaríkjamanna eftir 1950.

Í raun er hálf sorglegt að allar þessar ritgerðir....

....endi bara í möppu upp í hillu, og jafnvel í ruslinu. Kannski maður ætti að fá Dagný systir til að græja smá "ritgerðarhorn" hérna á síðunni minni þar sem hægt væri að næla sér í ritgerðir eftir mig (og jafnvel aðra) til að glugga í og lesa sér til fróðleiks eða dægrarstyttingar. Ha, Dagný, hvað segiru um það? ;)

Hundalífið gengur sinn vanagang. Ingi (alpha-hundurinn sko) fór á sjó 4.febrúar og hefur sést í mýflugu mynd hérna heima síðan þá. Stoppað 3x í innan við sólarhring hvert skipti. Hann stefnir samt á það að vera á sjó fram yfir páska mér til ómældrar gleði :( Á meðan nýt ég þess að labba með Villa og Heru, hanga með Olgu vinkonu og hennar fjölskyldu (sonur hennar situr hérna við hliðiná mér akkurat núna að pússla! Smá pössun í gangi) ásamt því að senda bílinn minn í viðgerð eftir að hafa drepist 2x með stuttu millibili. Annað skiptið meira að segja nánast á miðjum gatnamótum! Rétt náði að smella mér upp á umferðareyju hehehe. Nett vandræðarlegar aðstæður, fékk "thumbs-up" frá nokkrum bílstjórum ásamt góðu glotti.

Hera tók upp á því að gleðja nokkra hestamenn, eða hitt þó heldur og fékk ég duglegar skammir frá þeim en ég hikaði ekki við að hvæsa á móti. Þvílíkt og annað eins að fólk geti ekki tekið tillit, sýnt smá skilning og verið kurteist! Ekki fleiri orð um það.

Skrapp á sunnudaginn síðasta að hitta ástmanninn, fór alla leið til Reyðarfjarðar til að knúsa hann og strákana okkar. Hann kom í land kl 10 á sunnudagskvöldið og við ákváðum að vera bara "grand" á því og gistum á Hótel Reyðarfjörður. Mjög notalegt og fínt. Mánudagurinn fór í það að brasa fyrir skipið ásamt því að fá smá sýnisferð um borð í Aðalstein Jónsson, SU11. Vorkenni honum ekki lengur að vera fastur á lúxus-fiskiskipi einhversstaðar út á ballarhafi! Hafa allt til alls og klefinn hans er á stærð við fínasta hótelherbergi. Voðalega fínt allt saman.  Við sóttum svo strákana upp úr kl 14 og nutum þess að eiga frábæran dag með þeim sem endaði með gúmmelaði hamborgurum hjá Steinunni og Eið! Takk fyrir okkur :)

Sjálf er ég búin að vera voðalega dugleg í ræktinni. Skráði mig á 6 vikna átaksnámskeið hjá Hress í Hafnarfirði og keypti mér kort í Ultratone sem er svipað og trimform Berglindar, vitið ábyggilega hvað það er :) Saman er þetta alveg hörkublanda! Og svo auðvitað hundagöngutúrarnir! Labbaði einmitt upp á Svartengis-fellið í dag með Berglindi og hundunum okkar :) Kílóin eru nefninlega lúmskt fljót að hrúgast á mann svo að það er eins gott að passa sig og hreyfa sig jafnt á við átið hehehe. Þrjú kíló samt farin núna á stuttum tíma svo að ég er bara sátt. Finnst ég alltaf vera í góðu formi svosem, get allavega skokkað, hlaupið, beygt mig niður og gert það sem mig langar! Nema kannski að ég get ekki troðið mér í buxurnar sem ég keypti haustið 2007 hehe :P

Jæja læt þetta nægja í bili, ætla að koma mér af stað í ritgerðarsmíð! Endilega kommentið ef þið nennið. Annars blogga ég nú frekar fyrir sjálfa mig en aðra - svo gott að geta flett upp á hvenær maður gerðir hvað og með hverjum :)

Ísafjörður
Hún lokaðu augunum leið og hún var búin að koma sér vel fyrir í sætinu. Hallaði höfðinu að rúðunni, kvaddi borgina í huganum og sveif á vit drauma. Fyrir aftan hana sat grenjandi krakki með heimtufrekju, en ekkert gat truflað væra svefninn. Drunurnar í flugvélinni veittu henni vissa hugarró.

Það var rétt liðinn hálftími þegar flugfreyjan tilkynnti í kallkerfinu að lending væri í vændum. Hún skakaði sér til í sætinu og leit út um gluggann. Við henni blasti gríðarleg náttúrufegurð. Flugvélin sveif ljúflega um himinbláman og sólin skein skært inn um gluggann á vélinni, farþegum í öðrum helmingi til mikils ama. Vélin lenti mjúklega á mjórri flugbrautinni og ekki laust við að fiðrildin í maganum færu á fullt flug. Já hún var lent á Ísafirði. Þekkti engan, aldrei komið þangað áður og vissi ekkert hvað væri í vændum. Þegar hún steig úr vélinni brosti sólin blíðlega við henni, farþegar týndust inn í flugstöðina og farangurinn kom fljótlega. Full taska af bæklingum getur verið ansi þung. Eftir að hafa hringt í Taxa ákvað hún að bíða utan dyra eftir bílnum og leyfa sólina að sleikja silkimjúka húðina. Taxinn mætti á svæðið og var stefnan tekin á Menntaskóla Ísafjarðar. Hún stóð sig vel í að kynna menntavísindasvið, en þráði lítið heitar en að komast út úr byggingunni og aftur út í sólina. Klukkan 14:00 pakkaði hún bæklingum og blöðungum niður í tösku og trítlaði út í ferska loftið. Ísafjörður er fallegur bær, því leikur enginn vafi á. Hún rölti ásamt vini sínum um stræti og torg, skoðaði gamlar byggingar, kíkti inn í verslanir, skoðaði gamla bæinn og fékk sér að lokum kakóbolla á Kaffi Edinborg.

Það var með fögrum fyrirheitum um endurnýjun kynna sem hún kvaddi Ísafjörð. Kom sér vel fyrir í flugvélinni, lokaði augunum og svaf þar til hún vaknaði við lendingu á Reykjavíkurflugvelli.

Takk menntavísindaferð fyrir að bjóða mér í tilgangslausa en skemmtilega ferð til Ísafjarðar!

Meira hundalífið!
Meðan Ingi hangir á sjó daginn út og inn, stunda ég skólann af áfergju sem og hundasportið. Ég fór á námskeið á vegum HRFÍ um sýningar og svo í sýningaþjálfun eftir það með Villann. Hörkustuð og gaman að vera þarna innan um 50-60 aðra kreisí hundaaðdáendur. Villi kann þetta auðvitað alveg út í gegn, en eigandinn er hinsvegar að læra. Ásta María vinkona var svo góð að kenna mér að stilla honum upp og svona. Hera unir sér vel að venju. Skammast og gólar þegar ég kem heim og fagnar eins og enginn sér morgundagurinn. Þau eru rosalega dugleg að vera ein heima þegar ég fer í skólann og hanga saman í sama búrinu. Á föstudögum fara þau svo á Voffaborg sem að orsakar mikil fagnaðarlæti. Þau dýrka þennan stað :)

Sera, ´Rottweilerinn hennar Olgu vinkonu var í pössun þar síðustu helgi, og Bella púðlastelpan þeirra Sigrúnar og Jóa er hjá mér núna. Á svo von á gömlum Golden Retriever á næstunni. Rosa stuð hjá Hunda-Hönnu. Þá er sko yndislegt að búa í 160fm húsnæði með náttúruna steinsnar frá húsinu. Æðislegt!!

Hef svosem ekkert mikið meira að segja. Er á fullu í verkefnavinnu og svo hef ég verið svo lánsöm að Ingi landar í Hafnarfirðinum þessa dagana svo við fáum að knúsast á viku fresti í 12-24klst í einu. Voðalega notalegt en samt erfitt að sjá hann bara í svona stuttan tíma í einu.

Ætla að enda þetta á nokkrum hundamyndum, smellið bara á "framhald" ef þið viljið kíkja á þær :)

Félagarnir að kúra eftir göngutúrinn...

Já þessi snillingur finnur að sjálfsögðu leið til að sjá yfir grindverkið!!!

Svo chillar maður bara eftir að hafa fylgst með grönnunum

Seran að háma í sig nautatyppi... jammijamm!

Allir í skóginum eiga að vera vinir - og naga bein saman :)

Svona leika þau sér - Hera bítur í fæturnar á honum og hann dillar skottinu hehe

Jói kom í heimsókn og Sera alveg dýrkaði hann - og Villi vildi auðvitað líka knús :)

Ooog Sera bara hreinlega ýtti Villa niður með nebbanum hehe

Smásögur
Ég veit ekki hversu margir vita það, en ég er einn af þessum skúffuskáldum sem leynast víða. Samdi þessa smásögu í hitteðfyrra og ætla að henda henni hingað inn mér og öðrum til gamans. Endilega kommentið ef þið hafið eitthvað fallegt að segja, jú og uppbyggjandi gagnrýni er líka vel þegin! :)

Hún horfir út um gluggann. Úti fyrir geysar stormur sem slær trjánum til og þeytir sjónum upp á bakkana. Þetta er sá þriðji sem gengur yfir landið á stuttum tíma. Hún hlustar á Rás 1. Dánarfregnir. Heyrir þar að gömul vinkona sé látin. Einu samskipti þeirra á milli í gegnum tíðina voru jólakortin. Henni þótti samt alltaf jafn vænt um að fá kort frá henni, þó að hún vildi stundum óska þess að þær væru aftur orðnar ungar og hressar. Saman að gera ýmiskonar prakkarastrik. Það er nú liðin tíð.

Signi fiskurinn sýður í pottinum og hún vonar að maðurinn fari nú að skila sér heim. Innan úr herbergi heyrir hún þungarokk tónlist. Hún getur ekki annað en brosað út í annað þegar hún hugsar til þess hversu margar tónlistarstefnur hafa fengið að hljóma frá þessu herbergi.  Blessuð börnin. Vonandi hugsa þau fallega til hennar. Mörg þeirra senda þeim enþá pakka á jólunum, enn önnur kíkja reglulega í heimsókn. Sum hefur hún þurft að fylgja í gröfina. Það er alltaf erfitt að horfa á eftir unglingunum hverfa út í hinn stóra heim sem hefur leikið þau grátt nú þegar. Hún veit samt að þau hjónin hafa gert góða hluti í gegnum tíðina, takandi til sín hina og þessa krakka sem hafa brotið allar brýr að baki sér. Kennt þeim að elda sér mat, þrífa fötin sín, þrífa sjálf sig, bera virðingu fyrir sér og umhverfinu og síðast en ekki síst reynt að kenna þeim að elska náungann.

Hún hafði aldrei viljað ná langt í lífinu. Ekki í þeirri merkingu sem aðrir lögðu í þessi orð. Að ná langt. Öðlast frama. Kannski var hún barnaleg að fara út í þennan bissness. Kannski hefði hún frekar átt að taka viðskiptafræðina, stjórnmálafræðina, bókmenntafræðina eða lögfræðina. Kannski hefði hún átt að flytja til útlanda og reyna að “meika það”. Kannski.  Að ala upp þrjú heilbrigð börn. Að eiga mann sem hún elskaði og elskaði hana til baka, aðstoða tugi barna, ef ekki hundruði við að fóta sig í lífinu eftir að hafa tekið alltof mörg og alltof stór hliðarskref. Baka kleinur og lagtertur fyrir barnabörnin og kjafta við kerlingarnar í hverfinu þess á milli. Fyrir henni var það að ná langt. Öðlast frama. Kannski höfðu þau ekki alltaf haft mikla peninga milli handanna, en þau höfðu nú alltaf gert það sem þeim langaði til og létu það ekkert aftra sér í því að njóta lífsins.

Hún stendur upp, gengur hægum skrefum að eldavélinni. Stingur í kartöflurnar. Tilbúnar. Tekur signafiskinn uppúr pottinum, græjar kartöflurnar, rófurnar og smjörið. Í því er útidyrahurðinni skellt aftur. Hún hefur nú aldrei sagt honum það, en hún fær ennþá sting í hjartað þegar hún kveður hann á morgnanna, og andar alltaf léttar þegar hann kemur heim á daginn. Sjórinn hefur tekið þá of marga og hún vill ekki horfa á eftir honum í vota gröfina.

Hún kallar á strákinn í mat. Hlær þegar hann opnar hurðina, finnur lyktina og grettir sig. Hann er ekki sá fyrsti sem bölvar signafiskinum í byrjun. Þau læra nú flest að borða almennilegan heimilismat, svona á endanum.

Þau setjast niður, þrjú saman við borðið. Ræða um daginn og veginn, hlusta á útvarpið og njóta þess að vera saman. Hún lítur yfir borðið, beint í augun á manni sínum. Hann horfir til baka og brosir.

Hún hefur náð lengra en margir aðrir.

Myndir
Búin að henda inn nokkrum myndum 2009 á myndasíðuna mína :) Endilega kíkið

Því það er allt á fullu allstaðar..
Nóg að gera hjá minni síðustu daga! Já ég hef ekki setið auðum höndum kæru lesendur, þó að bloggið mitt hafi verið hljótt núna í 3 vikur!

Svo ég stikli nú á stóru ætla ég að gera punktablogg örugglega í fyrsta skipti á mínum bloggferli

- Ingi kom í land mér til mikillar gleði og ánægju. Þetta átti að vera stutt stopp, en karlpungurinn er enþá hjá mér :)

- Hera kom líka til mín og hún og Villi urðu perluvinir strax frá fyrsta degi. Hera fór svo fljótlega í geldingu, og var afskaplega róleg og slöpp næstu 2 daga á eftir en tók fljótt gleði sína á ný. Sérstaklega þegar ég tek fram Klikkerinn! Stelpan hreinlega elskar að æfa með klikkernum :)

- Villi fór að grennast hjá mér alveg á fullu og fór ég með hann til læknis. Þessi elska var víst með hálsbólgu en er allur að koma til og holdarfarið á góðri leið með að verða eðlilegt. Það þakka ég líka síðubitunum sem Olga vinkona færði honum - spikaðir og fínir bitar! Takk Olga! Hann var á sterum og sýklalyfjum í 1-2vikur en varð samt aldrei neitt veikur né slappur sem betur fer.

- Strákarnir hans Inga komu og voru hjá okkur í viku. Fóru heim í dag og ekki laust við að maður sakni ruglsins og bullsins í þeim. Yndislegir drengir og uppfullir af skemmtilegum orðaforða. Bara gaman að fylgjast með þeim og hafa þá þó þetta sé stuttur tími í einu.

- Ég fór með Villa í Garðheima á laugardaginn og var þar í 2 klst að kynna hann og tegundina. Ótrúlega gaman, og líka gaman að hitta annað hundafólk og sjá alla fallegu smáhundana sem við eigum hérna á Íslandi. Villi var tegundinni til sóma og tók ég þá ákvörðun að hafa samband við RauðaKrossinn við tækifæri og láta meta hann. Þá getum við farið á námskeið og orðið Rauðakross hundar og farið í heimsóknir á stofnanir og glatt gömul, veik eða fötluð hjörtu. Alltaf gott að láta gott af sér leiða, og Villi elskar mannfólkið svo mikið, mun vafalaust standa sig vel í þessu.

- Ég skrapp á Þorrablót heima í Árskógi. Ferðin byrjaði nú ekki vel þar sem taskan mín gleymdist í Vogunum og þurftum við að sækja hana (gat ekki án djammgallans verið!) og missti ég því af fluginu mínu. Eeeenn ég fór bara með næsta flugi og skemmti mér konunglega með systrum mínum og mágum. Ásamt foreldrunum að sjálfsögðu. Nefndin stóð sig rosalega vel og Kristján var með frábæran Annál að vanda. Sé ekki eftir þeim pening sem fór í að fljúga fram og til baka. Stoppað í innan við sólarhring á norðurlandinu, svo að ég heimsótti ekki neinn. Vonandi er mér fyrirgefið!

- Ekki má gleyma Aníku sem klippti mig stutt á fimmtudaginn! Ótrúlega flott og vel gert hjá stelpunni - Takk Aníkan mín! Ég er algjör gella ;)

Læt þetta duga í bili, ætla að fara að kúra upp í sófanum með mannsefninu og njóta þess að vera þunn og mygluð.