Eftirfarandi eru færslur í flokknum vinir og vandamenn
Miðvikudagur 02. desember 2009 / 22:29 / Hr. Mókollur
Fór í dag og ætlaði að fjárfesta í jólagjöfinni hans Jóa. Ég sá nefninlega á heimasíðunni hennar Dagnýjar systir www.eitthvadannad.is alveg rosalega flott íslensk sauðabindi, prjónuð úr íslenskri ull. Íslensk framleiðsla alveg í gegn! (Núna kaupi ég bara íslenskt, þó það sé stundum aaaðeins dýrara!).
.
Nema hvað, ég trítla inn í Epal og skoða djásnina. Gríðarlega fallegt. Fer með bindið að kassanum og hugsa með sjálfri mér að þetta kosti tvöþúsund-níuhundruð-og-eitthvað... en NEI!
Bindið sem Jói fær EKKI í jólagjöf, kostaði nefninlega heilar 6970kr! Eða rétt tæpar SJÖÞÚSUNDKRÓNUR!
Tek það fram að það voru engar verðmerkingar á pökkunum, í hillunni né á sýnishornunum. (Neytendasamtök?!)
Þetta verð þykir mér fáránlegt okur og ekkert annað.
Fimmtudagur 12. júní 2008 / 22:18 / Garðavinna
Það er ansi mikil þögn í Mánagötunni núna. Strákarnir fóru til mömmu sinnar í dag og Snjólaug frænka Inga sem leigir hérna hjá okkur fór suður í viku. Frekar skrítið að vera svona ein í kotinu. Allt í einu eru tveir ærslabelgir farnir og Bósi, hundurinn, líka. Get samt ekki neitað því að það var ljúft að þurfa ekki að hugsa um kvöldmat, bursta tennur, þvo litla kroppa með viðeigandi "legg'í'lófa", koma í bólið og syngja "Dvel ég í draumahöll". Þess í stað unnum við í garðinum til rúmlega átta (heimanjólinn úr beðinu að framann farinn mamma mín, laaaangt út fyrir garðinn!), fórum með garðúrganginn á haugana og fengum okkur svo Quiznos. Aðeins að njóta þess að þurfa ekki að malla mat ;)
Hérna er allt að komast í stand. Bara eftir að festa upp nokkrar myndir og þá er húsið orðið fínt. Væri reyndar alveg til í að losna við þennan blessaða hornsófa úr stofunni, en það kemur. Í augnablikinu erum við með sæti fyrir svona 100 manns í stofunni, ef einhverjum vantar veislustað!
----
Dagarnir mínir fara semsagt í vinnu frá 8-15:30 (vinn stutt meðan strákarnir eru hjá okkur, annars vinn ég til amk 6) svo höfum við eytt restinni af deginum í garðinum þar sem strákarnir og hundarnir njóta sín í botn. Svo er kvöldmatur, koma öllum í bólið og svo höfum við venjulega farið aftur út í garð að dúlla okkur. Yndislegt alveg hreint - enda er veðrið búið að sýna sínar bestu hliðar undanfarið.
---
Það er svo gaman í vinnunni að ég hefði eiginlega ekki getað trúað því. Kannski er ég á rangri hillu - ætti að læra skrúðgarðyrkju! Mér finnst yndislegt að eyða deginum úti við. Raka, mála, kantskera, bera á áburð, hreinsa úr beðum og ýmislegt annað dundur. Frábært að fá að vera úti daglangt og ekki skemmir fyrir að unglingarnir hérna eru hver öðrum duglegri. Ekkert hangs-rugl í gangi og allir gera sitt besta... oftast.
--
Núna bíð ég bara eftir að fá hringingar frá vinum og ættingjum sem vilja gera sér ferð til Reyðarfjarðar - eða eiga bara leið hjá í sumarfríinu!!
---
Langar í lokinn að monta mig pínu - sjáiði muninn? Og þetta er sko EKKI mynd af smáatriðinum sem skipta svo miklu máli.
Garðurinn á mánudaginn (samt yfirlýst mynd, sorry það!)

Garðurinn í gærkvöldi

---
og svo sætustu ferfætlingar í heimi

p.s. sjóðheitarmyndir hérna
Flutningar
/ Lífið
/ Lífstíll og matur
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
2
Mánudagur 10. mars 2008 / 16:50 / "Litli" frændi
Það er ótrúlegt að "litli" frændi minn hann Þorsteinn Ingi sé orðinn 18 ára í dag. Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem hann sat milli sætanna á bílnum hjá Ingólfi afa sínum í barnastólnum, fæturnar á sitthvorum hauspúðanum frammí og smjattandi á nammi sem hann dró uppúr stútfullum nammipoka. Í fyrra dag gengum við saman heim úr skólanum til Ömmu á Hauganesi (mömmu minnar) og ræddum heima og geima, hann spurði mig hvað það væri að vera Lesbía og hvað það væri að vera Hommi. Ég svaraði eftir bestu getu. Þetta var nú reyndar ekki í fyrradag, heldur giska ég á að það séu svona 8-10 ár síðan þetta átti sér stað! Litli frændi sem er alltaf tilbúinn að gera hluti fyrir mann, og duglegur að biðja mann um aðstoð ef þess þarf að halda. Litli frændi sem gerði mig gráhærða þegar ég var yngri, litli frændi sem er bara alls ekki lítill lengur. Stendur sig frábærlega í VMA, enþá betur í fótboltanum og er alltaf með doo-ið og klæðnaðinn á hreinu ;)
Dýrka þig og dái elsku Þorsteinn minn og til hamingju með 18 ára afmælið! Mússímússí múúú

Ég og Þ.Ingi 1994 og aftur á útskriftinni minni 2006.
Laugardagur 16. febrúar 2008 / 23:52 / Þriggja barna móðir í Kópavogi
Í dag og fyrripartinn á morgun er ég einstæð, þriggja barna móðir. Ég er hinsvegar svo heppin að börnin "mín" eru einstaklega vel upp alin þannig að þetta er nú mestpartinn yndislegt :)
Ég er s.s. búin að fá að finna fyrir því hvernig það er að eiga þrjú börn með öllu því sem fylgir, matartímar, háttatímar, drífa sig út-tímar og svo mætti lengi telja.
Verð nú samt að viðurkenna að mér finnst nú ekkert leiðinlegt að elda fyrir þessa gríslinga, gefa þeim að borða, svara heimspekilegum spurningum frá Kristófer eins og t.d. "Hvað er sólin heit?" og "Hvað þekur sjórinn mikið af jörðinni?" og "Veist þú hvað það eru margir sykurmolar í kókómjólk?!"
Jón Pétur segir "neejj" við flest öllu, eins og t.d. þegar ég ætlaði að klæða hann í skóna snéri hann enninu í vegginn og sagði bara "nej!" og þóttist vera í felum. Þvílíkt rassgat. Katrín er auðvitað yndisleg á sinn einstaka hátt. Hlær að aulagangnum í okkur hinum og berst við að troða sér hvar sem hún kemst. Lagðist flöt í sófann í kvöld, og skellti löppunum uppá öxlina á mér, þegar ég ýtti þeim niður og sagði svona "æjh, Katrín mín... plís!" þá sprakk mín bara úr hlátri og veltist nánast framúr sófanum. Algjört æði.
Þegar ég lagði Jón Pétur í rúmið rétt rúmlega 9 í kvöld var hann ekki lengi að lognast útaf. Katrín sömuleiðis. Krissi mátti vaka eins lengi og hann vildi, og var steinsofnaður yfir Men In Black klukkan 10. Þegar ég ýtti við honum kl 11 fékk ég bara svarið: "En þú sagðir að ég mætti vaka eins lengi og ég viii..." og þá sofnaði hann aftur.
Ég get ekki annað sagt en að Sandra og Sverrir eru ótrúlega rík.
Miðvikudagur 10. október 2007 / 17:25 / Norðurferð - myndir!
Haldiði að kella hafi ekki ákveðið að skella sér norður? Og sú ákvörðun var tekin á svona 5 mín, pakkað ofaní tösku, brunað útá völl og hlaupið inní vél sem var um það bil að lokast. Ljúf var lendingin á Akureyrarvelli, sem og pylsan og maltið sem pabbi gaf mér í Lindinni ;)
Það var svo
Lífið
/ myndablogg
/ vinir og vandamenn
/
3
Mánudagur 01. október 2007 / 00:49 / Daginn í dag, daginn í dag gerði drottinn guð:)
Vá hvað þessi helgi var viðburðarík og skemmtileg. Byrjaði reyndar frekar rólega með föstudags-þrifi og rólegheitum hérna heima fyrir. Skutlaði Jóa í vísindaferð kl hálf 5 og var einmanna húsmóðir eftir það, eða þangað til Palli félagi bjargaði mér um miðnætti og við fórum á rúntinn. Sóttum Jóa niður í bæ klukkan hálf 1, en þá var hann alveg búinn á því greyið hehe.
Ég ákvað...
Lífið
/ Veður
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
3
Þriðjudagur 25. september 2007 / 10:53 / Pabbi minn
Haldiði að pabbi gamli sé ekki orðinn 59ára í dag! Til hamingju með daginn pabbi minn!
-----

----
Glæsilegur aflakóngur :)
Fimmtudagur 06. september 2007 / 16:50 / ekta fiskur
Elvar bróðir pabba á saltfisk-fyrirtæki heima á Hauganesi sem er sífellt að færa út kvíarnar. Núna er hann kominn með ekta-eldhús sem framleiðir Ekta-rétti úr úrvalshráefni.
Dagný systir var að setja upp síðu fyrir frænda og er hún öll hin glæsilegasta! Ekki laust við að maður finni fyrir stolti að eiga svona klára stóra systur. Lít svo sannarlega upp til hennar :D
Endilega kíkir á síðuna. Hana má finna hérna.
Þriðjudagur 07. ágúst 2007 / 15:51 / Smááá grín :)
Ég var frekar mikið kvikindi í gær. Reyndar fannst mér ég vera rosalega fyndin, en það voru ekki allir sammála því hehehe.
Eftir vinnu í gær skruppum ég, Siggi og Árni (synir Gunnu og Binna sem eru eigendur af Kríunni) á rúntinn. Þeir voru eitthvað að tala um einhverja ferð út á Fót, en það er nyrsti oddi eyjunnar. Þangað hef ég aldrei komið svo að við ákváðum að skella okkur. Þangað er hinsvegar ekki fólksbílafært, þó við værum nú á Suzuki Vitara, og fékk ég því stóra stóra trukkinn hans Hennings lánaðann.
Það var nú minnsta málið að fá bílinn lánaðann og ég taldi Jói bróðir Hennings trú um að ég væri vön að keyra bíl með svona stór dekk. Thíhí
Við lögðum af stað í einhverja svakalegustu svaðilför sem ég hef farið í lengi. Ég var með hjartað í buxunum allann tímann. Keyrðum niður brekkur í gríðarlegum halla þar sem við horfðum nánast beint niður björgin, keyrðum niður Brattann (rosaleg brekka) og upp hann aftur! Árni var duglegur að segja mér til (það mátti ekki alltaf fara ofaní hjólförin, stundum þurfti ég að keyra með annað dekkið ofan á miðjunni milli hjólfaranna, þið skiljið hvað ég meina. Þá kom sér nú vel að vera gríðarlega góður driver og vita nákvæmlega hvar dekkin á bílnum eru hehehe)
-----
Við förum niður einhvern rosalegan halla og þá segir Árni "Það er nú eins gott að við veltum ekki hérna, þá förum við beint niður í sjó!" og þá dettur mér í hug að stríða aðeins Henning, sem er staddur í Vestmannaeyjum. Ég sendi honum því sms sem hljómaði nákvæmlega svona:
"ég velti bílnum.,"
Fimmtudagur 07. júní 2007 / 14:43 / Grímsey
Lífið á norðurhjara veraldar er svo ljúft að þið trúið því ekki! Ætla ekki einu sinni að reyna að segja ykkur hvað þetta er yndislegt því ég veit að þið trúið því ekki.
Fyrir þá sem ekki hafa náð að fylgjast með mér persónulega, þar sem ég hef ekkert komist á netið, þá ætla ég bara að byrja á byrjuninni.
Ég fékk vinnu á Kríunni, sem er veitingarhús/bar hérna í Grímsey. Unnur "frænka" og Svafar eiga staðinn ásamt öðrum hjónum. Ég flutti á miðvikudaginn síðasta til Unnar og Svafars í leikherbergið sem Sigrún Edda og Brá (dætur þeirra) eiga. Herbergið mitt er semsagt mjög bleikt, og mikið af dóti! Hehe.
Vinnan gengur mjög vel. Búin að læra flest allt og er líka búin að vera ein með hana síðan á sunnudaginn. Báðir eigendur í landi og engin stórslys á meðan ;)
Vinnutíminn minn er mjög breytilegur. T.d. núna er ég heima hjá Guðrúnu Ingu vinkonu og á að opna kl 6. Skemmtiferðaskip að koma í kvöld þannig að hugsanlega verður nóg að gera hjá mér sem er auðvitað frábært.
------
Það hefur verið nóg að gera hjá mér undanfarið þrátt fyrir
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
1
Þriðjudagur 08. maí 2007 / 15:16 / Síðasta vikan á Grensó ofl.
Þessi vika er síðasta vikan mín hérna á Grensó. Það er alveg ótrúlegt að hugsa til þess að núna á ég eftir að koma hingað bara örsjaldan - bara í heimsóknir....
Síðasti dagurinn minn er núna fimmtudagurinn 10 maí og þá fer ég heim á Hauganes.
Hinsvegar er ekki búið að bjóða mér í Eurovision partý?!! Hvað er málið??!!! Ég skil ekkert í þessum svokölluðu vinum mínum.. hmm? ;)
Spurning hvort að ég ætti bara að halda smá teiti heima á Hauganesi því þar er verið að ljúka við sólskálagerð. Agalega flott hjá gömlu hjúunum. Binni hennar Helgu er búinn að vera að hjálpa pabba að flísaleggja og þeir klára örugglega í kvöld eða á morgun. Snilld! :D
Annars er ég farin að sakna Helgu minnar mikið.. líka Aníku sem er alltaf í borginni! :( Baddý systir hefur verið niðursokkin í próf líka en það fer allt að lagast - prófin búin á föstudaginn,..
Föstudagurinn sem er víst AFMÆLISDAGURINN MINN!
Já ég er að verða 22ja ára. Geggjað ;)
Allir að muna að óska mér til hamingju á föstudaginn!
Flutningar
/ Lífið
/ vinir og vandamenn
/
3
Föstudagur 27. apríl 2007 / 15:12 / Breyttir tímar...
Jæja. Núna eru svo sannarlega breyttir tímar hjá mér. Ég er samt enþá að vinna á Krummafæti hérna á Grenivík en í staðinn fyrir að búa í íbúðinni okkar í Melgötunni, bý ég hjá Ingólfi og Fjólu. Harpa dóttir þeirra var svo góð að lána mér rúmmið/herbergið sitt þannig að ég er í góðu yfirlæti hjá þeim ;)
Margt hefur breyst á tveimur vikum. Eiginlega bara allt. Ég sótti um í H.Í. í síðustu viku og aldrei að vita nema maður fái inn þar næsta haust. Þá er ég barasta farin suður á bóginn! Af mölinni og á malbikið. Merkilegt nokk. Hélt að það ætti seint eftir að gerast, en það verður eflaust magnað. Ég er búin að fá vinnu í sumar á Sambýlinu í Snægili sem ég var að vinna á sumarið 2005. Við Linda vinkona erum svo að leita okkur af einhverri ágætis íbúð á Akureyri til að leigja í sumar. Ef þið vitið um íbúð þá endilega hafið samband!
Í dag er ég hinsvegar að fara suður með flugi kl 18:40 og síðan til Danmerkur á morgun með leikskólagellunum. Djöfull ætla ég að skemmta mér vel og líka að versla mér smávegis drasl ;)
Jæja. Verð að rjúka. Er í vinnunni og þarf víst að passa einhver börn??!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
9
Sunnudagur 15. apríl 2007 / 17:50 / Fréttir...
Ég er með fréttir sem koma örugglega mörgum á óvart.
Við Þorsteinn erum hætt saman og ég er flutt heim á Hauganes í bili. Ég veit ekkert hvert framhaldið verður þannig að það þýðir ekkert að spyrja að því ;) Við hættum saman núna á fimmtudagskvöldið þannig að þetta er allt saman óákveðið og framtíðin óljós.
Lífið heldur samt áfram og núna fer ég bara að einbeita mér að sjálfri mér sem ég hef ekki gert lengi.
---
Helga vinkona og family komu heim frá Neskaupsstað í gærkvöldi og það var alveg frábært að hitta þau. Mikið hef ég saknað þeirra. Eftir heimsóknina hjá Helgu ákvað ég að kíkja aðeins út á lífið með Freyju og Jóa. Það var alveg ótrúlega gott að fá sér smá rauðvín í góðra vina hóp. Við vorum ekki komin niður í bæ fyrr en kl 3 sökum anna hjá BSO og varð því djammið frekar stutt en óóóótrúlega gaman. Við gistum síðan heima hjá Freyju og vöknuðum "spræk" kl 11 í morgun.
---
Það er fínt að vera hérna heima á Hauganesi í faðmi fjölskyldunnar. Raggi bróðir, Sandra og Embla Lind eru hérna í mat í kvöld og Baddý og Þorsteinn Ingi eru á leiðinni til okkar líka. Ilmurinn fyllir húsið enda er mamma með eindæmum góður kokkur ;)
---
Veit ekki hvenær ég blogga næst.. veit ekki einu sinni hvar ég ætla að eiga heima eða hvar ég ætla að vinna.
---
Lífið er oft hverfult en maður verður bara að taka því með stóískrí ró og horfa björtum augum framá við.
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
11
Föstudagur 16. mars 2007 / 16:48 / Til hamingju Sandra og Raggi!
Brói og Sandra áttu litla stelpu í gærmorgun kl 05:44. Hún var algjört flykki, eða 18,5merkur og 54cm. Smellpassaði í fermingarfötin ;)
Ég fór í heimsókn til þeirra í gær og er skottan algjör rúsína og ég er ekki frá því að hún líkist föðurfjölskyldunni ;)
Til hamingju Sandra og Raggi með heilbrigðu og fallegu dóttur ykkar.
Ég tók fullt af myndum, en þangað til ég nenni að setja þær inn, þá er mynd af henni hérna.
Laugardagur 24. febrúar 2007 / 20:22 / Hundanámskeið
Góðan og blessaðan! Vika síðan ég skrifaði síðast. Uss uss að þetta skuli gerast! ;)
Við erum semsagt stödd í Reykjavík. Nánara tiltekið á Nýbýlaveginum hjá Völu og Kristni. Erum þar í mjög svo góðu yfirlæti. Vorum að koma heim frá Pizzaria Rizzzo. Mhh það var góð pizza.. Reyndar engin svakaleg þjónusta, en so what. Sama er mér!
Núna situm við með sunnlenskan "þeyting" fyrir framan okkur (Bragðarefur) úr svona hálfgerðum "Brynjuís". Nammi namm..
---
Hundanámskeiðið í dag gekk alveg rosalega vel. Nick stóð sig eins og hetja og þetta var mjög svo forvitnilegt. Fengum klikker og töfrasprota til eignar (tvennt af hvoru) og hann tók vel við æfingunum. Morgundagurinn verður einstaklega skemmtilegur þar sem við munum bara gera æfingar, eins og t.d. hoppa yfir stangir, hringja bjöllu, stíga á mottu og fleira skemmtilegt.
---
Jæja. Spaugstofan er byrjuð þannig að ég verð að hafa athyglina á því ;)
Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
1
Sunnudagur 28. janúar 2007 / 14:30 / Þorrablót!
Þorrablót Höfðhverfinga var í gær og tókst alveg frábærlega vel upp. Skemmtiatriðin voru alveg hreint mögnuð, maturinn góður (hangikjöt, harðfiskur og flatbrauð...getur varla klikkað!) og dansinn dunaði til 3 í nótt.
Mamma og pabbi fóru með okkur og sátum við hjá tengdafjölskyldunni minni.
Við tókum alveg helling af myndum - en eigum eftir að fara í gegnum þær og birtum aðeins þær sem eru birtingarhæfar ;)
Ég vil bara þakka öllum kærlega fyrir skemmtunina! Sunna, takk fyrir alla dansana - þú stóðst þig frábærlega!! Damma; Takk fyrir alla brandarana ;)
-----
Gærdagurinn var líka frábær. Það vildi nefninlega þannig til að mamma mín átti afmæli!! (Til hamingju mamma!) kellan mætti auðvitað á svæðið með FULLT af kræsingum og gerðum við okkur glaðan dag. Sigga móðursystir og hennar family kom og líka tengdaforeldrar mínir og Sunna. Við sóttum líka afgangsdót sem við áttum hjá Freyju frænku. Skenkurinn er kominn í stofuna og tekur sig alveg rosalega vel út.
Hún lánaði okkur líka rúm sem er 140 á breidd þannig að núna geta Fjórir gist hérna hæglega! Erum reyndar líka með einbreitt rúm í okkar herbergi sem Þormar svaf í. Nægt er plássið...
Bara ef einhver færi að láta sjá sig hérna!!
---
Freyja, þú manst! Kemur með lök og bjór við fyrsta tækifæri! Mamma var að koma með Twister-spilið.. geggjað stuð! ;)
Laugardagur 07. október 2006 / 05:10 / Grey´s!
Vúhú! :D Ég er LOKSINS farin að horfa á Grey's Anatomy seríu 2! Fékk þetta til að virka núna rétt í þessu. Magnað :) Takk Dagný! Og takk Baddý fyrir brasið híhí :)
Annars eru góðar fréttir héðan frá Simi. Robert er kominn með vinnu, og flensuna. Hann byrjar að vinna núna 23okt.
Þetta er eitthvað editing fyrirtæki í Burbank. Hann verður head of buisness development. Veit ekki hvernig á að útskýra það á íslensku.
Slæmu fréttirnar eru þær að bærinn samþykkti EKKI breytingarnar á húsinu, vill að við gerum einhverjar breytingar. Jæja, þá verðum við að senda þetta aftur til arkitektsins og svo aftur til bæjarins. Jæja. Þetta seinkar framkvæmdum um.. já.. óákveðinn tíma!! Þetta er alveg frábært eða þannig.
Hinsvegar ætlum við að setjast niður á morgun og tala um þær breytingar sem hægt er að gera ÁN þess að það komi nokkrum við, t.d. breytingar á eldhúsinu. Það ætti að vera ágætis byrjun.
Núna dugar ekkert annað en að hugsa bara: Þetta reeeeddast.
og svo má bæta við þessari hugsun: Bara 77 dagar þangað til við komum heim!! :D
Mánudagur 25. september 2006 / 21:28 / Frábær helgi!!
Þessi helgi sem nú er liðin var ein besta helgi sem við höfum átt frá því að við komum hingað!! Þetta var ekkert smá æðisleg helgi.
Hún byrjaði semsagt þannig að við stukkum á lappir á föstudags morgninum, kláruðum allt sem við þurftum að gera hérna heima, hentum töskunum uppí trukkinn og brunuðum af stað til Pasadena þar sem ég átti tíma hjá augnlækni klukkan 12:00 svo ég gæti nú fengið mér linsur.
Hér kemur svo augnlæknasagan:
---
Við mætum á svæðið rétt fyrir 12 og ég skrái mig inn og við setjum svo. Eftir smá bið (svona 10mín) þá er nafnið mitt kallað. Jújú, ég fer inní eitthvað herbergi með japönskum dúdda sem mælir eitthvað á mér augun og segir mér svo að fá mér sæti, læknirinn kalli á mig! Þetta var semsagt ekki læknirinn heldur bara einhver strákur sem gerir nokkur test. Jæja, ég tylli mér aftur hjá Þorsteini og bíð í smá stund þegar doksinn kallar á mig. Ég fer með henni eitthvert annað og hún gerir allskonar sjóntest, skoðar á mér augun og bakvið augun (jább, ég er með 3 ör á hægri auga og 1 á vinstri auga.. ekki gott! en reeeeddast) Svo segir hún mér að fá mér aftur sæti og bíða eftir að linsu konan komi. Ég sest niður og eftir svona korter kemur linsukonan (rússnesk) og horfir á mig setja linsurnar í augun á mér (það nægir ekki bara að segja að maður sé búinn að nota linsur í 3 ár, heldur verða þau að sjá mann setja þær í..) Svo kemur að annari bið, þar sem augnlæknirinn þarf að sjá mig með linsurnar í augunum svo ég geti nú farið heim!! Loksins eftir 1 og hálfan tíma hjá augnlækninum er mér sleppt út... en þarf samt að mæta aftur í þessari viku til að fá staðfestingu á að linsurnar passi mér!!! HALLÓ! Þetta var mesta vesen sem ég hef nokkurntímann átt í. Kostaði líka 7000kr!!
But well.. þá veit ég allavega að augun á mér eru við "hesta" heilsu þrátt fyrir að vera smá örótt.
Núna get ég líka pantað mér linsur á netinu (það er mun ódýrara heldur en að kaupa þær í búð) því ég er komin með recept frá bandarískum lækni! jibbí!
----
Áfram með æðislegu helgarsöguna okkar.
---
Eftir þessa skemmtilegu augnlæknisheimsókn keyrðum við af stað til Lake San Antonio. Þar sem Pasadena er í klst fjarlægð frá Simi - í akkurat hina áttina frá Lake San Antonio, þá bættist klst við keyrsluna okkar. Úff..
Við fórum af stað um hálf 2 og vorum mætt rúmlega 6 á "tjaldstæðið".
Þar biðu Dóra og Eric ásamt Míu og Kees (borið fram "Keis") sem eru mamma og pabbi Erics. Auðvitað voru Emma og Thor (uppáhöldin okkar) þarna líka.
Eric og Dóra komu með tjald handa okkur, en þau sváfu í húsbílnum sem Mía og Kees eiga.
Tjaldstæðið okkar var semsagt alveg uppvið vatnið, á sandinum. Eric og Dóra voru með bátinn sinn og við fórum 1 sinni út á bátinn á föstudeginum. Svo grilluðum við steikur og Bratwursts (pylsur) og höfðum það kósí með varðeld og allar græjur. Emma vildi svo endilega sofa í tjaldinu með okkur Þorsteini þannig að við kúrðum með Emmu á milli okkar á föstudagskvöldið. Laugardagurinn var svo tekinn snemma (eiginlega bara útaf því að Emma vakti okkur klukkan 6.. en jæja!) með pönnsum í morgunmat. Namminamm ;)
Lynn og Mark, vinafólk Dóru og Erics, komu svo uppúr hádegi á laugardeginum. Þau eru alveg ótrúlega hress og skemmtileg. Við fórum svona 5 sinnum útá bátinn á laugardeginum og það var alltaf jafn gaman. Þess á milli lá maður í sólbaði, lék sér í vatninu eða fór í tennis við krakkana. Eric og Mark prófuðu báðir að fara á sjóskíði og var það mjög gaman að fylgjast með þeim ;) Við Þorsteinn vorum ekki alveg að treysta okkur í það ;) Við hinsvegar fórum nokkuð margar ferðir í Viperinn (tuðrann) og það var alveg GEEEEEGGJAÐ. Þorsteinn fór einu sinni með Mark og Mark FLAUG útúr tuðrunni á fleygiferð, en Þorsteinn ætlaði sko ekki að detta útí vatnið og hélt sér sem fastast.
Við erum bæði með hálfgerða strengi eftir þetta. Sérstaklega í brosvöðvunum þar sem maður brosir allann hringinn meðan maður þeysist út og suður á þessu tæki. Maður rígheldur sér svo í að maður er með alla vöðva líkamans spennta. Þetta er alveg geggjað!
Laugardagskvöldið var afskaplega kósí. Heimagerðir hamborgarar, varðeldur og skátasöngvar.. neehh reyndar ekki skátasöngvar, bara mikið spjall ;)
Á sunnudeginum var áframhaldandi stuð og fjör. Vaknað snemma, morgunmatur, út á vatnið (Ég var alla helgina í bikiníinu mínum - og JÁBB.. Hanna er komin með smá FAR!! Vúhú!) heim, borðað hádegismat, leikið sér í vatninu, pakkað saman og keyrt heim.
Við stoppuðum hjá Dóru og Eric og stukkum í sturtu (það var mjög ljúft) og svo eldaði Dóra rosalega gott pasta handa okkur svo við yrðum nú ekki svöng á leiðinni heim :) Við keyrðum svo heim í einum grænum og vorum komin heim klukkan 9 í gærkvöldi.
Úff ég á eftir að lifa lengi á þessari helgi. Hún var alveg hreint ÆÐISLEG! Dóra og Eric eru svo frábært. Við erum svo ánægð að þekkja þau og getum ekki beðið eftir að þau komi til Íslands næsta sumar. Þá ætlum við að reyna að launa þeim gestrisnina, bjóða þeim í góðan mat (íslenskt lambalæri?) og í einhverjar skemmtilegar gönguferðir og svona (þau eru algjörir göngugarpar)
Ég er búin að setja inn myndir frá helginni hingað inn. Svo setjum við líka inn einhver myndbönd á youtube.com síðuna okkar. Set þau annað hvort inná mína síðu eða þá Þorsteins ;)
Lífið
/ vinir og vandamenn
/
6
Fimmtudagur 14. september 2006 / 05:34 / Íslendingadagar búnir
Lína og Kristín eru farnar heim (Adda kærasta Kristínar til mikillar gleði skilst mér...)
Við skemmtum okkur ekkert smá vel saman (fannst mér allavega!! Stelpur, þið eruð æði!) og m.a. fórum við í Magic Mountain!! :D Við röltuðum líka um Hollywood og þær versluðu svo á heilann her í Target. Ég hef aldrei á ævinni séð jafn margar töskur inní einum bíl... töskur sem aðeins tveir einstaklingar áttu!! Við erum að tala um 2 risa ferðatöskur, þrjár minni töskur og tvær mini-töskur! Þvílíkt og annað eins. Núna sitja þær hinsvegar rólegar í flugvélinni á leiðinni heim til Íslands. :) Á meðan þær checkuðu sig inn fórum við Þorsteinn til Delta Airlines og breyttum flugmiðanum okkar til New York. Þetta var semsagt þannig gert (af Icelandair, tek allsekki á mig sökina þar sem ég vissi ekki betur!) að við áttum að hafa tæplega 1 og hálfan tíma til að koma okkur útúr vélinni frá LA, ná í farangurinn, koma okkur á milli staða, tjékka okkur inn aftur hjá Icelandair og setjast uppí vél. Þar með talið að 45mín fyrir brottför hætta þeir að checka inn!! Alveg fáránlegt. Ekki alveg tilbúin til að taka þann séns að morgni dags þann 17 des!! Aðeins of nálægt jólunum til að missa af fluginu heim! ;) Gellan hjá Delta (sem var japönsk) var algjör grjónagrautur í hausnum (ha-ha .. Þorsteinn átti nú reyndar þenna brandara!) því hún virtist ekkert vita hvað hún var að gera. Eftir tæpa klst hjá Delta þá loksins "mátti" hún breyta miðanum okkar!! Hún sagði fyrst við okkur að hún mætti ekki breyta miðanum, en við gætum hinsvegar komið snemma að morgni dags þann 17 og athuga hvort það væri eitthvað laust í vélina!! Þá langaði mig eiginlega til að slá hana utanundir :) Allavega, miðunum okkar var breytt þannig að við fljúgum frá LA klukkan 07:30, lendum í NY klukkan 3:52 og förum heim til Íslands klukkan 20:15 og lendum í Keflavík klukkan 6:45 að morgni dags þann 18 des!! Þá förum við beint frá Kef til RVK, þaðan uppí vél sem flýgur með okkur til Akureyrar! Þurfum varla að segja frá því að við viljum móttökunefnd á flugvöllinn á AK takk fyrir takk!! Allir sem vettlingi geta valdið EIGA að mæta á flugstöðina og knúsa okkur! Nákvæm tímasetning kemur þegar nær dregur ;)
Hinsvegar er einstaklega gaman að segja frá því að Gunni, stórfrændi Þorsteins og besti vinur, er núna búinn að fjárfesta í flugmiða til Kaliforníu og kemur til okkar 23 sept!! :D Fyrst ætlum við að skemmta okkur eitthvað saman.
Svo byrjar hann að vinna við að smíða húsið þann 2 okt! :D Hann verður hérna fram í miðjan Nóv að vinna með okkur!! Þetta gæti ekki verið meiri snilld - alveg æðislegt!
---
Útí annað. Helga og Baddý.. myndirnar eru komnar úr framköllun og þær eru mjög góðar. Mjög vel prentaðar. Ég er svo að bíða eftir annari sendingu sem kemur líklegast á morgun -- það eru myndir af fólkinu okkar heima á Íslandi ;) Jej!! Svo ætla ég að byrja á fullu í scrappinu.. og líka auðvitað að sinna skólanum - svona ef að skólabækurnar mínar frá Íslandi fara að koma í hús fljótlega ;)
Edda -- er pakkinn til þín ekki enþá kominn??? Hvað er eiginlega í gangi?! Vonum það besta...
Sunnudagur 10. september 2006 / 17:22 / Íslendingadagar!
Vúhú! Þessa dagana eru íslendingadagar hérna í Kaliforníu!! :D Lína og Kristín eru nefninlega mættar á svæðið.
Við sóttum þær í gær á flugvöllinn í LA og rúntuðum svo aðeins um Hollywood með þær. Svo fórum við heim og skelltum okkur í heitapottinn. Mhh það var mjög ljúft lífið hjá okkur í gær. Í dag erum við hinsvegar að fara í Six Flags skemmtigarðinn. Úúú það skal verða gaman! Og við SKULUM ná að koma þeim í allavega einn rússíbana! :D Hehehe
Þær ætla að vera hérna fram að miðvikudagsmorgni, og við sjáum svona til hvað við getum gert mikið með þeim því á mánudaginn á að byrja á framkvæmdum hérna. Veit samt ekki hversu mikið verður gert.. en það kemur í ljós ;)
Tíminn flýgur, verð að fara að græja mig... já og taka smá til því hjónin koma heim í dag!
Bestu kveðjur til allra
p.s. Kæja UPPÁHALDS frænkan mín.. ég reyni og reyni oft að kommenta á síðuna þína, en það gengur aldrei :( Þannig að ekki halda að ég fylgist ekki með þér - ég geri það bara í leyni ;) Love you sæta mín!!
Fimmtudagur 07. september 2006 / 18:26 / Myndir að heiman
Jább við erum búin að fá margar myndir sendar frá Íslandinu. Í dag fékk ég svo myndir sendar frá Ingu Rut! Takk Inga mín. Flestar myndir sem við erum búin að fá eru samt frá tengdapabba.. :) Sunna sendir okkur líka stundum myndir!
Takk öll sömul.
Mikið er ég ánægð með tölvutæknina... án hennar væri maður nú hálfeinmanna hérna næstum-því-hinu-megin á hnettinum!
Hérna er hún Júnía mín sæta

Þú átt alveg hreint ótrúlega fallega litla stelpu Inga mín! :D
Miðvikudagur 06. september 2006 / 17:45 / Sending!
Takk Dagný fyrir sendinguna!! Grey's Anatomy, sería 2, mun héðan í frá ylja mér á köldum vetrar nóttum ;)
Föstudagur 25. ágúst 2006 / 06:19 / Sendingar að heiman
Það er ekkert sem yljar mann jafn mikið um hjartarætur þessa daga og að sjá stóran, gulan kassa merktan íslandspósti fyrir utan útidyrahurðina hjá okkur. Á stuttum tíma erum við búin að fá tvo pakka, einn frá Haugó og einn frá Grenó.
Fyrst sendi mamma okkur harðfisk, silung, bók um Ísland, lakkrís og að ógleymdum íslenska ostinum! Það var sko kátt í höllinni þegar þessi pakki barst í hús ;) Baddý systir sendi mér líka Grey's Anatomy season 2.. en diskurinn var tómur!! Óvart sent vitlausan disk!! En jæja.. það var nú svolítið fyndið þegar ég var búin að jafna mig á svekkelsinu.
Í dag fékk Þorsteinn pakka frá Hóbbu systur sinni og co. Það var afmælispakki með blönduðu innihaldi. Darra harðfiskur (nammi namm) og fleira góðgæti sem þið getið vonandi fljótlega lesið um hérna. Ætla ekkert að segja of mikið frá honum þar sem þetta var nú einu sinni Þorsteins pakki ;) Takk Hóbba, Þórarinn og krakkarnir! :D
Hóbba sendi okkur reyndar rúna-spil. Svona svipað og Tarrot spil. Við byrjuðum auðvitað á því að leggja þau fyrir Þorstein, og þar kom í ljós að "hver vegur að heiman er vegurinn heim" -- tökum því sem skilaboðum um að við eigum að flytja heim á Ísland ;) Ég fékk svo spil sem þýddi að þó ferðalög væru stundum erfið og krefjandi þá væru þau líka mjög þroskandi og gott að búa að þeim í framtíðinni.
Saman fengum við svo spjald sem sagði eitthvað flókið en í grófum dráttum sagði það: "Heima er best að vera" þannig að það örlaganornirnar eru greinilega að reyna að segja okkur eitthvað!! Kannski maður hlusti á þær? Aldrei að vita ;)
---
Það er búið að vera brjálað að gera í dag. Garage Sale nálgast óðfluga (Jibbí!) sem þýðir að bráðum fær maður eitthvað pláss til að hreyfa á sér rassgatið á þessu heimili! Úff hvað það verður gott að hafa ekki lengur kassa við hvert fótmál. Við Kim fórum í gegnum ÖLL fötin hennar (með dyggri aðstoð Þorsteins sem var sérlegur tískuráðgjafi) og samtölin í dag voru svona:
Kim: "You think this is a keeper?"
Ég: "eehhh .. yeah, for your GRANDMA!"
Steini: "óó já!"
Eða á þennan veg
Kim: "You like this?"
Ég: "no!"
Steini: "This is just fugly!" (fugly er fallegra orð yfir "fucking ugly!")
Þannig að núna standa í bílskúrnum SEX fatarekkar (svona fataslár á hjólum, vitið örugglega hvað ég meina) með fötum frá hinum ýmsu tímabilum. Flest allt ógeðslega dýr föt (hún er algjör merkjafrík) sem eru enþá með miðunum á því hún hefur aldrei farið í fötin!!!
Vonandi græðum við (þau) milljónir af því að selja öll þessi föt. I just hope so! :D
---
Við Þorsteinn gáfum okkur annars tíma til að skreppa aðeins í búðir og versluðum FUUUULLT á nýja fjölskyldumeðliminn! Við ætlum svo að skreppa á pósthúsið á morgun og senda heim pakka handa litlu músinni. Ætli við förum ekki líka í gegnum okkar föt, athugum hvort við getum ekki aðeins létt í ferðatöskunum og selt nokkrar flíkur í bílskúrsölunni. Svo er eitthvað sem má fara heim í bílskúrinn til Ma+pa þar sem bílskúrinn tekur eeeendalaust við drasli ;)
---
Í næstu viku eigum við að eiga frí. Ég veit ekki alveg hvort að við tökum því fríi því við getum eiginlega ekki farið til San Luis fyrr en í endaðann september. Það hentar Dóru og Eric betur. Svo kannski vinnum við bara alla næstu viku en förum seinna til San Luis. Kim gaf okkur líka miða á American Idol tónleika sem verða núna á laugardaginn. Það verður nú spennandi að sjá :)
Við gáfum Dylan afmælisgjöf í dag, en það var bók + 2 geisladiskar sem heitir: Teach your self icelandic eða kenndu sjálfum þér íslensku!
Núna er hann alveg brjálaður yfir því að þurfa að læra spænsku í skólanum því hann vill bara læra íslensku! :D
Verst þegar hann fer að skilja allt sem við Þorsteinn segjum! Þá þurfum við nú að fara að passa okkur ;) Hehehe
---
Jæja. Klukkan er að verða tólf hérna í Ameríkunni. Hún er semsagt hálf 7 á Íslandi og hálf 9 hjá Dagný systir!
Ég var einmitt að tala við Dagný um daginn og hún kom með þá snilldar hugmynd að fjárfesta í 4 klukkum; ein fyrir Ameríku, ein fyrir Ísland, ein fyrir Danmörk og ein fyrir Svíþjóð. Dagný systir er nefninlega flutt til Denmark og Raggi bróðir og Sandra verða í Svergie fram að jólum eða lengur. Úff - þetta er nú meira ástandið á þessari fjölskyldu - allir að flýja land!! Ætli það sé útaf því að við vitum hvað pabba finnst leiðinlegt að ferðast? ;) Híhí - nei nei bara djók pabbi minn --- ég vildi óska að þið mamma gætuð kíkt í heimsókn!! Það væri algjör draumur! Á meðan læt ég mér bara nægja að smjatta á harðfisknum frá þér og silungnum sem þú veiddir :D
---
Góða nótt kæru lesendur og takk fyrir að vera svona dugleg að kommenta! Ég elska að lesa kommentin frá ykkur ;)
Sunnudagur 20. ágúst 2006 / 06:58 / Nýr fjölskyldumeðlimur!
Loksins er kominn nýr fjölskyldumeðlimur í fjölskylduna hans Þorsteins. Við höfum beðið spennt eftir honum í 9 mánuði og loksins lét hann sjá sig. Reyndar ætti ég að tala um fjölskyldumeðliminn í kvenkyni þar sem Eddu og Sigþóri fæddist dóttir klukkan 3:30 í nótt að íslenskum tíma. Æðislegt og frábært.
Til hamingju elsku Edda og Sissi og auðvitað þið öll hin líka. Stúlkan er hin myndarlegasta (enda ekki langt að sækja myndarlegheitin) og sendum við Þorsteinn bestu kveðjur til Grenvíkinga sem nú eru orðnir 301! :D
Fimmtudagur 10. ágúst 2006 / 22:36 / Dagur
Dagur hann vex svo hratt að það er alveg ótrúlegt.
Okkur Þorsteini finnst við vera að missa af svo miklu heima á Íslandi og þá sérstaklega missa af börnunum vaxa úr grasi... þegar við komum heim aftur, þá verður Dagur rétt að verða 1árs, Sigríður Edda orðin 18 mánaða og Edda orðin mamma!!
Ég var að fletta í gegnum myndaalbúmið hjá Helgu minni og ákvað að stela smá myndum og sýna ykkur..
Svona var Dagur þegar við fórum frá Íslandi.
Núna, rúmlega mánuði seinna, er hann orðinn svona:

Hann er svo mikið rassgat!
Knús handa þér Dagur!!
Þriðjudagur 13. júní 2006 / 17:02 / Ýmislegt
Loksins fann ég mér tíma til að blogga (já eða bara loksins nenni ég því!). Ætla að taka saman smá "pistil" um undanfarna daga sem hafa verið rosalega skemmtilegir eins og allir aðrir dagar í lífinu ;)
Á föstudaginn fór ég í óvissuferð með 4.bekk í MA sem var ekkert smááá skemmtileg. Við áttum víst að mæta með útprentað kort af Skagaströnd! Ég vissi strax að það var bara trix og prentaði ekki út neitt kort. Það runnu nú samt á mig tvær grímur þegar rútan lagði af stað og fór ekki í átt að Leirunni heldur í átt að Skagaströnd!! EEEnnn sem betur fer var það bara grín og við snérum við á Húsasmiðju-planinu. Fyndið!
Næsta djók-stopp var Vaglaskógur. Vorum komin þangað rétt um 4 leytið og vorum nú ekki alveg sátt við það að fara ekki lengra en bara í Vaglaskóg! En eins og áður þá var það bara grín og við héldum sem leið lá að Húsavík þar sem við fórum í sund, stoppuðum svo á einhverju túni á leiðinni í Ásbyrgi og fórum í leiki. Mjög gaman það.
Við komum svo í Ásbyrgi svona uppúr 20 og þá var maður aðeins orðin tipsy enda opnaði ég fyrsta ölinn á Húsavík. Kvöldið leið ótrúlega hratt og var alveg geeeggjað gaman! Ég átti mín móment. Byrjaði á því að sýna "frábæra" takta í fótbolta (ég er búin að átta mig á því að ég mun aldrei getað sparkað sómasamlega í bolta...) svo datt ég svona skemmtilega þegar Jón Ingi tók mig á hestbak. Uppskar beygjað bak og boginn háls, en það var alveg þess virði því þetta var alveg ógeðslega fyndið fall hjá mér. Síðasta en ekki sísta skemmtiatriðið af minni hálfu var svo þegar ég tók sprett, þvert yfir tjaldstæðið, en flaug (í bókstaflegri merkingu) á hausinn þegar löppin á mér flæktist í tjald-bandi. Á meðan ég var að detta (sem tók mig allavega 20sek) þá öskraði ég svona skemmtilega þannig að mér tókst að láta nánast allan 4.bekk horfa á mig detta svona laglega. Jæja. ég bjó allavega til ágætis minningu með þessum föllum mínum, og ekki bara minningu fyrir mig því ég frétti að fólk væri enþá að tala um það hvað ég var misheppnuð þetta kvöld. Af myndunum að dæma sem ég sendi hingað inná síðuna mína, þá skemmti ég mér konunglega! Hinsvegar var laugardagurinn ekki alveg jafn skemmtilegur. EKki gott að vakna þunn, í tjaldi og í svona 20+ stiga hita! Rútuferðin heim var hinsvegar alveg ágæt, svaf, mest alla leið enda svaf maður ekki mikið um nóttina. Sökum þynnku þá tókst mér ómögulega að mæta í útskriftarveisluna hjá Helga Hrafni (hennar Aniku) og er ég eiginlega enþá í smá bömmer yfir því :( Sorry guys! :(
Um kvöldið drullaði ég mér þó í partý til Ingu sem var mjög skemmtilegt. Ennnnn hinsvegar gafst ég upp svona um miðnætti því fólk var orðið frekar drukkið og maginn minn kominn á hvolf við að horfa á fólk skola niður öllu þessu áfengi þannig að ég dreif mig bara heim. Takk samt Inga mín fyrir ótrúlega skemmtilegt partý! :D Gaman að hitta þig og alla hina! Á sunnudeginum fórum við Þorsteinn eldsnemma á Amour að þrífa (síðsta helgin mín!) og var það ágætt. Eftir þrifin fórum við svo í æðislega sjómannadagssiglingu á Huldunni með pabba og vegna þess hversu frábært veðrið var þá var siglingin rúmlega 2 klst löng! Við fórum í hvalaskoðun og sáum hrefnur og svo sáum við líka hnýsu með lítinn sætan kálf. Eftir siglinguna fórum við í afmæli til Sigríðar Eddu og átum á okkur gat - Enda tengdafjölskyldan mín ekki þekkt fyrir annað en frábærar veislur!
Núna er bara undirbúningur á fullu fyrir næstu helgi. Mamma hefur nú alltaf haft græna fingur, en núna er hún barasta eins og HULK (öll orðin græn) því hún er alveg að missa sig í garðinum. Maður uppsker víst eins og maður sáir og ég held að garðurinn hafi aldrei litið betur út. Á morgun er svo síðasti vinnudagurinn minn á Amour og á fimmtudaginn kemur Baddý systir heim úr 3vikna reisu á Ítalíu. Föstudaginn er svo æfing fyrir útskriftina sem verður á laugardaginn. Sunnudaginn er svo veisla hérna heima og á mánudaginn förum við Þorsteinn suður og klukkan 17:00 á þriðjudaginn fljúgum við Þorsteinn út á vit ævintýranna!!!
Mér finnst tíminn vera að hlaupa frá mér, en samt er ég eitthvað svo afspyrnu afslöppuð yfir þessu öllu saman.
Það borgar sig svo sannarlega að hugsa bara: "Þetta reeeeeddast!"
Flutningar
/ Lífið
/ Lífstíll og matur
/ vinir og vandamenn
/
3
Sunnudagur 04. júní 2006 / 00:11 / Bloggidiblogg
Hvar skal byrja. Þessi helgi er svo ótrúlega viðburðarrík. Fór í síðasta prófið mitt í MA núna á föstudaginn. Fékk nettann fiðring í magann þegar ég var komin að svona spurningu nr 60 í prófinu (100krossa spurningapróf) því þar kannaðist ég bara ekkert við að hafa lesið nokkuð um Kína, en næstu 10 spurningar fjölluðu einungis um Kína! Ég hélt að ég hefði bara verið svona mikill tossi en nei nei, kennarinn var bara sjálfur tossi og setti ÓVART inn spurningar úr kafla sem við áttum ekkert að lesa! Svona er þetta þegar kennarar reyna að sleppa auðveldlega og gera bara copy/paste við gamallt próf!! Busted! ;)
Eftir prófið fórum við Anika niður á Amour að skúra (Takk Anika!!) og svo fór ég í smá verslunarleiðangur að leita mér að fötum (bol) fyrir ferminguna hennar Sunnu sem er á morgun (í dag, það er víst komið miðnætti!) Ég fann hinsvegar ekkert og fór því tómhent til Grensó í klippingu til Sveinlaugar. Frá henni kom ég út sem algjör red-head og keypti meira að segja djúpnæringu sem heitir "Dumb Blonde!" .. mjög fyndið nafn. Djúpnæringin er reyndar líka fyrir Racy-Redhead sem ég veit ekki alveg hvað er. Spyr að því þegar ég er komin til Ameríku. ;)
Næsti dagskráliður var að ná í Þormar. Hann vildi að sjálfsögðu koma til mín strax og við brunuðum heim á Hauganes eftir að hafa erindast smávegis í bænum. Um kvöldið var ég svo þreytt að ég sofnaði meðan ég svæfði Þormar, og sofnaði svo aftur í sófanum inní stofu fyrir kl. 11. Það var mitt próflokadjamm ;) híhí
Dagurinn í dag byrjaði með þessum orðum "Hæ.. máé fala flammúl?!" og þar með var ég ræst, klukkan 9 í morgun.. Reyndar fínt að fá að sofa til 9! Við dúlluðum okkur í garðinum, fórum í heimsókn til Höllu og Sævars úti á Sand og nutum svo bara veðurblíðunar hérna heima við. Ég þvoði líka í leiðinni svona 5 vélar (af þvotti sko) því það var svo góður þurrkur (já já, þó ég sé hætt að búa sjálf þá leynist samt enþá í mér húsmóðir!)
Elsku Danni frændi kom svo seinnipartinn með foreldrum sínum. Mamma kom heim úr bænum með "pakka" handa mér, en hún fór í búðir fyrir mig og keypti fyrir mig tvo boli/kjóla sem eru geggjað flottir! Héðan í frá læt ég einhvern annan versla á mig föt því ég finn mér aldrei neitt, en er alltaf ánægð með það sem aðrir finna á mig!!
Kvöldmaturinn í kvöld var svo borðaður í góðu yfirlæti hjá tengdaforeldrum Dagnýjar systur. Gauja eldaði glæsilegan KALKÚN sem var ógó góður. Rögnvaldur gerði svo gríðarlega gott Waldorf-salat með matnum ;) Hjá þeim var setið við langborð því við vorum hvorki meira né minna en 9 fullorðnir og 4 börn. Gaman að því. Misjafnlegar málefnalegar umræður við matarborðið en það var mjög skemmtilegt hjá þeim og alltaf gott að koma til þeirra.
Að sjálfsögðu sofnaði ég meðan ég svæfði Þormar í kvöld um 9 leytið, sem gerir það að verkum að ég er ekkert þreytt núna eins og sést á þessum ótrúlega langa pistli mínum. Ég er að rústa Söndru í langri-pistla-gerð! :D
Ég fékk líka gleðifréttir í dag. Þorsteinn hefur lokið skyldustarfi sínu í Laufási og er nú kominn til að vera hjá mér, ma og pa. Ef ég tel saman dagana sem við höfum hisst frá því 2.mai þá slagar það varla uppí viku! Alveg ömurlegt.. en hey, eftir hálft ár saman í Cali þá mun ég pottþétt segja "get outah my face, f**k faceah!" ;) - Neh þarna var ég nú bara að slá á létta g-strengi! (Eins og Björnsson orðar það) Hætt þessu rugli,.. held áfram með hinn hefðbundna pistil:
Morgundagurinn hefst á sundi í Þelamörk, eða á Dalvík. Svo tek ég mig til og bruna til Grensó í fermingarveislu aldarinnar. Veisluþjónusta Ólínu sér um þessa fermingarveislu svo ég er viss um að ég verði ekkert svikin af því sem verður á boðstólnum þarna. (Veisluþjónusta Ólínu a.k.a. Olla mamma hans Þorsteins og fermingarbarnsins!)
Jæja. Pabbi er farinn að tuða yfir því að ég þurfi að fara að sofa. Ætli hann sé ekki bara að hugsa um símreikningin þar sem þau eru svo gríðarlega ekki-móðins og eru því tengd með módemi!! (Úff ég trúi ekki að ég sé að segja frá þessu.. svo ógó hallærislegt, skilurru!) :D
Góða nótt dyggu lesendur og komið vel fram hvort við annað - nema þið séuð óvinir, þá er í lagi að vera leiðinlegur!
TTYS (Talk To You Soon!) - Alltaf að æfa mig í slettunum...
Hanna
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
2
Laugardagur 22. apríl 2006 / 22:24 / Afmæli!
Myndin hérna fyrir neðan er tileinkað honum Danna frænda sem varð tveggja ára í dag! Hann hélt uppá afmælið sitt heima á Hauganesi og var ekkert smá gaman í því afmæli! Drengurinn var svo pollrólegur yfir pökkunum, að ég var eiginlega spenntari en hann :) Það voru fullt af góðum kökum, enda ekki amarlegt þegar þrjár húsmæður leggjast á eitt! Núna hinsvegar er ég alveg að farast úr þreytu, og er að hugsa um að fara snemma í bólið - enda mun dagurinn að öllum líkindum byrja snemma hjá okkur hérna í H20H því hann Þormar gæji sem gistir hjá okkur er víst algjör morgunhani ;)
Læt þetta gott heita í bili - Til hamingju með afmælið elsku Danni!
Mánudagur 10. apríl 2006 / 23:39 / Næturljóð úr Fjörðum
Ösp bekkjarsystir og vinkona voru í Kastljósinu í kvöld með mömmu sinni, Kristjönu Arngríms. Þær mæðgur sungu saman undurfallegt ljóð eftir Böðvar Guðmundsson sem heitir Næturljóð úr Fjörðum. Þetta er án efa eitt fallegasta lag sem ég hef heyrt, ever. Þetta var líka fallegasti söngur sem ég hef heyrt lengi, rosalega fallega útsett. Textinn er líka ótrúlega fallegur. Það er svo skrítið að hugsa til þess að í Fjörðum, staðurinn sem sungið er um, bjuggu forfeður mínir... á Kussungsstöðum svona til þess að hafa allt á hreinu. Þetta ljóð snertir mann kannski pínulítið öðruvísi en aðra sem vita ekki hvernig staðurinn lítur út og sumir vita ekki einu sinni hvar á landinu hann er. Ég, google-meistarinn sjálfur, google-aði auðvitað Kussungsstaði áðan og fékk upp skemmtilegan texta um forfeður mína. Þið getið lesið hann hérna aðeins neðar, ásamt textanum að ljóðinu sem mæðgurnar sungu svo ógleymanlega!
p.s. Freyja, ég treysti á þig að koma með mér á tónleikana hennar Kristjönu!!
Mánudagur 27. mars 2006 / 13:00 / Sætasti
Ég kíkti eitt augnablik til Helgu vinkonu áðan, en hún og Dagur voru að koma heim frá Neskaupsstað. Dagur er orðinn rosalega "stór" og duglegur, enda líka rúmlega tveggja mánaða! Mér finnst eins og það hafi verið í gær þegar Helga sagði mér að hún væri ólétt... Mér finnst þetta alveg ótrúlega yndislegt og held að ég standi mig bara ágætlega í "frænku" hlutverkinu. Dagur hló bara og brosti þegar hann sá mig þannig að vonandi líst honum vel á mig (ekki nema hann hafi verið að hlæja af mér en ekki með mér?!)
Lífið er svo ótrúlegt.
Annars er það að frétta af mér að ég á svona ca 7kg eftir í loka takmarkið mitt. Ohh ég get ekki beðið eftir því að verða loksins 100% sátt ;) - þá verð ég líka orðin fituskert vöðvabúnt! nei nei, segi svona.. en ég mun allavega taka Þorstein í bekkpressu!! :D múhahaha!
Þorsteinn vakti mig með þeim gleði fréttum í morgun að ég þyrfti að skutla honum í vinnunna. Ég bað hann vinsamlega um að fara bara á hjólinu en drengurinn tók það ekki í mál. Ég hugsaði með mér "hvurslags aumingjaskapur er þetta að nenna ekki að hjóla niður í vinnu þegar það er allt niður í móti!!"... en svo leit ég útum gluggann. Þvílíkur viðbjóður! Ég fyrirgaf manninum mínum að sjálfsögðu um leið og stökk á fætur (Þorsteinn myndi örugglega orða þetta frekar.. rétt drullaðist á lappir!) og skutlaði honum í vinnuna. Skyggnið var mjög takmarkað og mér datt bara í hug setningu úr Dýrin úr Hálsaskógi, þegar músamamman sagði "Skárra væri það nú veðurofsin!!" Sem ég botna ekki alveg í.. en hljómar vel í vondum veðrum!
Núna sit ég bara heima og bíð eftir því að klukkan slái hálf þrjú því þá þarf ég að fara í skólann. Svo klukkan 5 mæti ég í vinnuna og heng þar til tíu. Vonandi tekst mér að selja eitthvað því þá er svo gaman ;)
Jæja, ætla að búa um rúmmið og setja í þvottavél - reyna að gera eitthvað gagn!
Over&out
Föstudagur 10. mars 2006 / 21:27 / Afmæli!

Til hamingju með afmælið elsku Þorsteinn Ingi frændi!! :D Sjáumst á sunnudaginn, þá mætum við með pakka! ;)
Sunnudagur 29. janúar 2006 / 21:37 / Gærkvöldið...
Gærkvöldið var alveg þrælmagnað. Ég fór með Gunna og Marín (ásamt fleirum) á Trabant sem voru að spila á Oddvitanum. Þvílíkt stuð!! Þetta var alveg magnað! Það skemmdi heldur ekki fyrir að það var alveg hópur af hressum Haugnesingum á svæðinu, eiginlega bara ættarmót. Gulli, Hlynur og Trausti voru þarna, og svo komu Elmar og Guðni líka með. Svo er það bara þorrablót bráðum heima á Strönd og það verður án efa skemmtilegt eins og alltaf. Halla og Sævar buðu mér að sitja hjá sér og ég tók því tilboði, en auðvitað mun ég nú dansa af mér fæturnar með öllu gömlu félögunum!
Jæja.. ætla að halda áfram að horfa á walk the line (myndin um Johnny Cash) með Baddý sys..
Yfir&út
p.s. Tók þessa mynd hér að neðan í gær á tónleikunum. Þessi maður er náttúrlega bara snilld. Rauðar þröngar leðurbuxur og FULLT af glimmeri! wooowww... hot as hell ;) híhí
Laugardagur 14. janúar 2006 / 19:56 / Júnía Efemía 2ja ára!
Til hamingju með afmælið elsku Júnía og takk fyrir góða afmælisveislu!
Við vorum semsagt að koma úr afmæli hjá Júníu elskunni. Mamma hennar (Inga) var búin að baka alveg heilan helling og það var FULLT af góðum kökum á boðstólnum ;) Reyndi samt að halda aftur af mér hehe..
Svo fórum við í leik sem heitir BUZZ, spurningarleikur um tónlist, og hann var alveg ótrúlega skemmtilegur! Ég hætti samt að spila hann til að leika pínu við Júníu mína því ég hitti hana alltof sjaldan. Ég kenndi henni "legg-í-lófa-karls-karls!" og þvoði henni um hendurnar þannig.. ekkert smá mikið stuð ;) Mamma hennar á örugglega eftir að lenda í vandræðum þegar Júnía biður næst um "lej-í-lóa!" og Inga veit ekkert hvað barnið er eiginlega að tala um! :) Hún er algjör snillingur!
Svo stoppuðum við í smá stund hjá Höllu og Sævari. Halla var reyndar ekki heima, en Þorsteinn fór beinustu leið í tölvuna með Þorsteini Inga frænda og þeir kepptu í fótbolta í klst. Meðan spjallaði ég við Unni Birtu skvísu. Hún var að æfa sig að skrifa þegar ég kom.. Veit sko alveg hvernig á að skrifa nafnið hennar mömmu sinnar, pabba og skrifaði meira að segja mitt nafn! (Hanna - ekki alla rununa hehe) Hún er svo dugleg, að hún kann að skrifa alla stafina í stafrófinu, og á kvöldin fyrir svefninn þá er lesnar stafrófsbækur fyrir hana! Það komu samt tár í augun þegar hún sagði mér það (alveg miður sín) að hún færi sko ekki í skóla fyrr en eftir tvö ár! (semsagt haustið 2007) Bara ef að allir væru svona æstir í skólagöngu!!
Jæja.. nóg í bili - verð víst að lesa eitthvað í dag, þýðir ekkert að nota bara prófatíðina til að háma í sig kökur og kíkja í heimsóknir!!




