Eftirfarandi eru færslur í flokknum Veður
Mánudagur 13. apríl 2009 / 10:38 / Nýr JEPPI!
Þriðjudaginn 7. apríl fórum við Ingi í Bílabúð Benna og náðum okkur í eitt stykki 38" breyttan Musso-Jeppa, árgerð 2000. Við erum búin að eyða því sem af er af árinu í að skoða eeeendalaust marga jeppa og var þessi algjörlega tilbúinn á fjöllin, með GPS tæki, VHF-talstöð, læstur að framan og aftan, loftdælu á dempurum og skóflu á toppnum ;) Jeppinn ber nafnið VERA DÖGG en hann var skírður með mikilli viðhöfn af fyrsta eiganda og hefur heitið það síðan.
Strax á fimmtudag skelltum við okkur í fyrstu jeppaferðina á Verunni, fórum í samfloti með tveimur öðrum jeppadúddum upp á Snæfellsjökul. ÞVÍLÍK DÝRÐ og geggjuð ferð! Hefðum ekki getað verið heppnari með færi og veður. Yndislegt alveg hreint. Hera naut sýn í klessu og má sjá video af Herunni hérna.
Myndir úr ferðinni eru á Facebook, og hérna.
---
Þegar heim var komið eftir geggjaðann dag tókum við okkur til fyrir norðurlandsför. Við vöknuðum svo snemma á föstudaginn (langa) og drifum okkur af stað. Fyrst skutluðum við Bósa í flug til Vestmannaeyja (hundur í pössun, kemur á óvart?) og sendum svo Heru til Birnu vinkonu þar sem hún er núna í góðu yfirlæti. Villi fékk hinsvegar að sjá norðurlandið með okkur.
Við ákváðum að drolla aðeins á leiðinni norður og kíktum Hvalfjörðinn. Þaðan fórum við svo yfir í Reykholt og komum upp á þjóðveg aftur hjá Baulunni. Beygðum svo á ný út af þjóðveginum hjá Blönduósi, skruppum í kaffi til Ragga bróðurs og þaðan lá leiðin svo til Sauðárkróks og í gegnum sveitina aftur upp á þjóðveg. Á leiðinni suður ætlum við svo að reyna að keyra sem minnst á þjóðveginum og taka maaarga útúrdúra. Það er svo gaman að skoða landið sitt fallega
Örfáar myndir frá Hvalfirði eru hér, og líka nokkrar af Yoko, kisanum hennar Ingu Rutar, og Villa
Lífið
/ Veður
/ kaupæði
/ myndablogg
/
3
Mánudagur 01. október 2007 / 00:49 / Daginn í dag, daginn í dag gerði drottinn guð:)
Vá hvað þessi helgi var viðburðarík og skemmtileg. Byrjaði reyndar frekar rólega með föstudags-þrifi og rólegheitum hérna heima fyrir. Skutlaði Jóa í vísindaferð kl hálf 5 og var einmanna húsmóðir eftir það, eða þangað til Palli félagi bjargaði mér um miðnætti og við fórum á rúntinn. Sóttum Jóa niður í bæ klukkan hálf 1, en þá var hann alveg búinn á því greyið hehe.
Ég ákvað...
Lífið
/ Veður
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
3
Mánudagur 26. júní 2006 / 20:04 / Veðurfréttir
92.0 °F / 33.3 °C
Mostly Cloudy
Svona er veðrið hérna í dag. og svona verður það fram á fimmtudag. Þá breytist það heldur betur!
Fimmtudagur & föstudagur
92° F | 33° C -- að degi til
57° F | 14° C -- að nóttu til!



