Eftirfarandi eru færslur í flokknum kaupæði
Mánudagur 13. apríl 2009 / 10:38 / Nýr JEPPI!
Þriðjudaginn 7. apríl fórum við Ingi í Bílabúð Benna og náðum okkur í eitt stykki 38" breyttan Musso-Jeppa, árgerð 2000. Við erum búin að eyða því sem af er af árinu í að skoða eeeendalaust marga jeppa og var þessi algjörlega tilbúinn á fjöllin, með GPS tæki, VHF-talstöð, læstur að framan og aftan, loftdælu á dempurum og skóflu á toppnum ;) Jeppinn ber nafnið VERA DÖGG en hann var skírður með mikilli viðhöfn af fyrsta eiganda og hefur heitið það síðan.
Strax á fimmtudag skelltum við okkur í fyrstu jeppaferðina á Verunni, fórum í samfloti með tveimur öðrum jeppadúddum upp á Snæfellsjökul. ÞVÍLÍK DÝRÐ og geggjuð ferð! Hefðum ekki getað verið heppnari með færi og veður. Yndislegt alveg hreint. Hera naut sýn í klessu og má sjá video af Herunni hérna.
Myndir úr ferðinni eru á Facebook, og hérna.
---
Þegar heim var komið eftir geggjaðann dag tókum við okkur til fyrir norðurlandsför. Við vöknuðum svo snemma á föstudaginn (langa) og drifum okkur af stað. Fyrst skutluðum við Bósa í flug til Vestmannaeyja (hundur í pössun, kemur á óvart?) og sendum svo Heru til Birnu vinkonu þar sem hún er núna í góðu yfirlæti. Villi fékk hinsvegar að sjá norðurlandið með okkur.
Við ákváðum að drolla aðeins á leiðinni norður og kíktum Hvalfjörðinn. Þaðan fórum við svo yfir í Reykholt og komum upp á þjóðveg aftur hjá Baulunni. Beygðum svo á ný út af þjóðveginum hjá Blönduósi, skruppum í kaffi til Ragga bróðurs og þaðan lá leiðin svo til Sauðárkróks og í gegnum sveitina aftur upp á þjóðveg. Á leiðinni suður ætlum við svo að reyna að keyra sem minnst á þjóðveginum og taka maaarga útúrdúra. Það er svo gaman að skoða landið sitt fallega
Örfáar myndir frá Hvalfirði eru hér, og líka nokkrar af Yoko, kisanum hennar Ingu Rutar, og Villa
Lífið
/ Veður
/ kaupæði
/ myndablogg
/
3
Sunnudagur 26. nóvember 2006 / 05:51 / Útsölur
Föstudagsnóttin var ansi viðburðarrík!
Eins og ég sagði frá í síðasta bloggi þá var stefnan tekin á útsölur snemma um morguninn/seint um nóttina daginn eftir. Við stóðum að sjálfsögðu við stóru orðin og vorum vöknuð kl 4 um nóttina!
Við byrjuðum í Gottschalks sem opnaði kl 5 og þar var ágætis röð við alla 3 inngangina. Hinsvegar í BestBuy (Ameríska BT) var röð nánast í kringum bygginguna!!! Bílaplanið fullt af bílum..
Við fórum svo í Target sem opnaði kl 6 (við vorum með vel skipulagðan og útpældann innkaupalista með tímasetningum á öllu.. híhí.. algjörir ameríkanar) og þar var lööönng röð. Við vorum reyndar svo dónaleg að smeygja okkur inn með fremsta fólkinu (HEY THEY ARE CUTTING THE LINEE!!! var öskrað á eftir okkur.. við lokuðum bara eyrunum.. algjörir svindlarar!) og pössuðum okkur svo að verða ekki undir þegar fólk ruddist af stað.. hljóp eins og brjálæðingar með körfurnar á undan sér og greip allt sem var á útsölu og helst tvennt af öllu! Þetta var það rosalegasta sem ég hef séð lengi! Hehehe Ekkert smá gaman og mikil stemming að vakna svona snemma og fara að versla. Kl 9 vorum við búin að versla allar jólagjafirnar (átti bara um 9 eftir) og fengum okkur Starbucks og fórum heim!
Snilldardagur. Vildi óska að ég hefði verið með videocameru og tekið þetta upp. Þetta var svo eitthvað bíomyndalegt! Fólk að slást um hluti.. öskrandi og tætandi úr hillunum.. algjör brandari. Hefði sko verið gaman að sýna ykkur.
Ég fór með myndavélina með, en kunni ekki við að láta sjást flass úr bílnum okkar þegar við keyrðum framhjá búðunum! Hefði verið frekar túristalegt ;)
Í dag var svo verslað RISASTÓRT jólatré! Við Eric söguðum smá neðan af því (opna svo það "drekki nú vatn") og reistum það við inní stofu. Við skreyttum það svo í kvöld og hlustðum á jólalög! Mikið verður ótrúlega gaman að koma heim beinustu leið í jólastemminguna! Getum varla beðið!!!
Í kvöld gerðum við svona smá tilraunar-pakk og pökkuðum öllu sem við erum komin með (búin að kaupa og svoleiðis) og er staðan í dag 3 stórar ferðatöskur og 3 litlar. Ekki svo slæmt finnst mér! ;) Þá er bara að halda aftur af sér þangað 18.des! :D Úff það verður erfitt.. en með Þorstein mér við hlið þá hlýtur það að hafast.
Jæja. Þessi dagur er búinn að vera langur, en skemmtilegur. Ætli það sé ekki best að fara að koma sér í bólið. Ekki það að það sé neitt sérstakt planað á morgun. Reyndar ætlum við að fara að sjá Happy Feet með krökkunum (Thor og Emmu) og svo ætlar Eric að leyfa mér að keyra Porsche-inn sinn! Það verður örugglega GEGGJAÐ gaman ;)
Læt vita hvort ég velti honum/klessi á! ;)
Góða nótt, sofið rótt í alla nótt... guð geymi ykkur og dreymi ykkur vel!



