Eftirfarandi eru færslur í flokknum skóli
Sunnudagur 13. apríl 2008 / 11:15 / Skjótt skipast veður í lofti
Jæja.... miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarið. Breytingar sem ég vildi ekki skrifa um fyrr en allir væru búnir að frétta það sem standa mér næst. Ég og Ingi hættum nefninlega saman fyrir ekki svo löngu síðan og ákváðum að vera bara vinir í sumar og sjá svo til hvað verður.
Ég hinsvegar ætla að vera í borginni í sumar (sorry Mamma&Pabbi, Helga, Aníka, Freyja, Damma, Jói, Karen frænka.....) og hefur verið voðalega lítið mál fyrir mig að fá vinnu. Eiginlega þarf ég að velja! Ég er að fara í eitt viðtal í dag kl 18, annað á þriðjudaginn kl 15 og þriðja á miðvikudaginn kl ? (man það ekki aaalveg.. Afhverju setti ég það ekki inní Google Calendar?!) Mig hinsvegar langar mest í vinnuna sem ég er að tjékka á í dag. Ef þeim lýst vel á mig og mig á þá -- þá verður ekki aftur snúið held ég :) Segi ykkur seinna hvaða vinna það er!
---
Annars er ég komin í smá aukadjobb og það er í H10-Sport og Spa. Nýja líkamsræktarstöðin í Kórnum, Kópavogi.
Þar verð ég bara aukamanneskja sem kíki við annað slagið og tek eina og eina vakt. Það verður semsagt nóg að gera hjá mér í sumar og ég sé nú ekki fram á mikið sumarfrí, enda veitir manni svosem ekki af því að hafa nóg milli handanna næsta vetur!!
----
Ég er búin að vera dugleg að fara út á hverjum degi með Trixie mína, og er að gæla við þá hugmynd að hafa hana í sumar meðan eigandinn er á sjó. Hún er svo mikill gullmoli þessi elska, og fer afskaplega lítið fyrir henni, svona miðað við að hún er 46kg!! Ótrúleg brussa svosem, en með þvílíkt og annað eins jafnaðargeð! Dýrka þennan hund. Ef ég fæ vinnuna sem ég vonast til að fá þá get ég líka haft hana með á hverjum degi sem munar miklu. Annars er hún rúmlega 2ja ára og vön því að vera ein heima. Ekkert hvolpalífsvesen :)
----
Skólinn gengur sinn vanagang. Brjálað að gera núna, enda er hann búinn núna á föstudaginn, svo eru það bara prófin 9 maí og 14 maí (akkurat sitthvorumegin við afmælið mitt, frábært!)
Er að vinna í ritgerð sem þarf að skila á föstudaginn, lagfæra skýrslu fyrir 24apríl og ritgerð 2 maí. BissíBee verð ég að segja!
---
Jæja. Þetta voru örugglega miklar fréttir fyrir ykkur að innbyrgða, svo ég læt þetta duga í bili.
Knús á línuna!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/
5
Fimmtudagur 13. mars 2008 / 21:36 / Uppeldisfræði
Uppeldisfræði sem skyldufag í framhaldsskólum
Þegar ég var í framhaldsskóla voru nokkrar stúlkur að verða mæður, og nokkrir piltar að verða feður. Einhverjir áttu nú þegar börn og leiða má líkur til þess að flest allir framhaldsskólanemar muni, einhverntímann á lífsleiðinni, verða foreldrar.
Hinsvegar má segja að skólakerfið geri afskaplega lítið til að styðja við unga foreldra, eða byggja grunn að foreldrum framtíðarinnar. Foreldrarnámskeið eru í boði fyrir verðandi foreldra á vegum heilsugæslustöðvanna, en ekki allir sækja það og má segja að á því námskeiði sem ekki tekið djúpt í árina hvað uppeldisfræðina varðar. Sem nemi í Uppeldis-og menntunarfræði við Háskóla Íslands velti ég oft fyrir mér hversu hagnýtt nám mitt er fyrir mín framtíðarplön, mínar barneignir. Spurning mín er hinsvegar sú,
Afhverju er uppeldisfræðin ekki gerð að skyldufagi í framhaldsskólum?
Ég tók þrjá uppeldisfræðiáfanga í Menntaskólanum á Akureyri, sem voru áhugaverðir og skemmtilegir, en samt sem áður ekki hugsaðir sem fræðsluáfangar fyrir foreldra framtíðarinnar.
Ég tel mjög gagnlegt fyrir samfélagið í heild ef að framhaldsskólanemar fengju lágmarksfræðslu um t.d. uppeldisfræðilegar kenningar. Allt frá kenningum Piaget að kenningu Baumrind um uppeldishætti foreldra. Hægt væri að fara í gegnum þroskaferli barna, viðmiðunaraldur á hinum ýmsu þroskaáföngum, siðgæðisþroski væri tekinn fyrir og svo mætti lengi telja.
Staðreyndin er sú að um 20-22% barna eru í sérkennslu í grunnskólum landsins vegna hinna ýmsu vandamála og þar má nefna hegðunarvandamál. Kennarar hafa fengið spurningar frá foreldrum eins og: “Hva, kenniði börnunum ekki mannasiði hérna í skólanum?!” þar sem augljóslega er spurt af fáfræðslu. Ábyrgðin liggur að sjálfsögðu í höndum foreldra barnanna. Foreldrar eru þeir sem þurfum að leiðbeina börnunum, styðja þau í hvívetna, hvetja þau þegar illa gengur, sýna þeim hlýju og ekki má gleyma því að börn þarfnast ákveðins aga þar sem agaleysi barna og unglinga virðist vera mikið í samfélagsumræðunni. Með breyttum fjölskylduaðstæðum eru foreldrar sífellt verr í stakk búnir að takast á við það krefjandi verkefni sem uppeldi er. Þess vegna tel ég mikilvægt að skólayfirvöld ígrundi vel þátttöku sína í því að skapa vel upplýsta, leiðandi foreldra framtíðarinnar!
Þriðjudagur 26. febrúar 2008 / 13:45 / lasin :(
Það er allt búið að ganga á afturfótunum hjá mér í gærkvöldi/nótt. Prófið í morgun tókst ekki betur en svo að ég varð lasin í gærkvöldi, ældi tvisvar, skalf svo eins og hrísla í vindi, skreið uppí rúm og svaf alveg hrikalega illa í nótt - svitnaði eins og svín og velti mér þúsund sinnum fram og til baka því allar stellingar voru vondar sökum beinverkja. Vaknaði kl hálf 7 og lá kjökrandi þangað til íbúfenið fór að virka, og þá loksins náði ég almennilegum svefni.
Já þannig fór um sjóferð þá og ég fæ 0 á þessu hlutaprófi, sem er ansi svekkjandi þar sem ég byrjaði að læra undir það á fimmtudaginn, og fékk aukakennslu og allt í gær. En jæja. Það þýðir ekki að gráta Björn bónda og núna verður maður að horfa jákvæðum augum fram á veginn. Tek næsta hlutapróf bara með trukki ;)
---
Gunnar Smári hennar Baddýjar systur fékk Rúfus lánaðann í gær og tók hann heldur betur í gegn, smurð'ann, bónað'ann, þreif'ann, pússað'ann, lagaði "sprungna" hátalarann sem var víst bara svona rykugur hehe, úbbs! og tengdi græjurnar uppá nýtt.. Núna keyri ég um með græjurnar í botni á nýbónuðum bílnum. Eða nei annars, ég tími því varla því hann verður allur í salti!! Tek bara strætó þessa vikuna ;)
---
Búin að bóka mér flug austur og þar bíður systir mín blísperrt eftir mér. Hún er að vinna á sjúkrahúsinu á Norðfirði þessa dagana og fæ ég að berja hana augum eina kvöldstund eða svo, því á föstudaginn fer hún norður, og ég fer svo suður á sunnudaginn, vonandi með Inga og strákunum hans.
---
Jæja, ætla að reyna að koma ofaní mig smá matarbita. Matarlystin ekki búin að vera uppá marga fiska í gær og í dag, en ég er alveg að leka niður úr orkuleysi. Best að fá sér líka rautt kók svona fyrir sálartetrið.
---
Langar að koma með smá gagnrýni. Kíkti á heimasíðuna hans Bubba Morthens og þætti vænt um að vita hvort að kóngurinn sjálfur sé að skrifa þarna inn. Hrikalegt þegar það er ekki einu sinni hægt að skrifa "Villi í Naglbítunum" og "símakosning" rétt! (þó síma"kostning" sér reyndar frekar fyndið!) Agalegt á svona "opinberri" síðu sem fær örugglega mörg hundruð flettingar á dag. - Biðst afsökunar á þessari fullkomnunaráráttu, einhver Freyja í mér þessa stundina hehe
Miðvikudagur 23. janúar 2008 / 18:25 / Nóg að geeera
Vá hvað það er nóg að gera hjá mér þessa dagana. Er á fullu í skólanum, ritgerðarvinnu, verkefnavinnu, með Katrínu mína (mætti samt vera oftar þar hrmm) og svo var ég í dag að byrja í starfsnámi í Frostaskjóli. Þar verð ég ca 2 daga í viku fram að páskum við að kynna mér starfsemi Félagsmiðstöðvarinnar. Leist rosalega vel á hópinn þarna, hitti reyndar voðalega fáa krakka, en starfsmennirnir eru fínir. Meira að segja einn Akureyringur/MA-ingur (allstaðar leynast þeir víst!)
----
Jói og ég erum búin að liggja í hálfgerði pest, ég fyrst - svo Jói. Fyrst þjónaði hann mér meðan ég lá í sjálfsvorkun með nefið og hausinn fullann af hori, hálsinn fullann af kítli (óþolandi) og "svo illt í húðinni" að það var erfitt að skipta um föt! Þess vegna hélt ég mér bara í náttfötunum ;). Núna þjóna ég honum og ætla því að færa honum kvöldmat í rúmið. Hann kvartaði áðan undan nammileysi.. en vildi samt ekki að ég færði honum nammi því hann sagðist ekki hafa gott af því. (Óli & Dagný! Ég hef ekki borðað nammi né drukkið gos síðan miðnætti 13janúar hehe) Þannig að ég færði karlinum bara svona orku-heilsu-nammi-stöng og vakti það mikla lukku :)
------
Fór í gær í heilsuleysinu mínu með Aníku (sem betur fer, toppstykkið ekki að gera sig í gær - Takk elskan fyrir hjálpina!) að brasa útum allan bæ, sótti afmælisgjöfina hennar Mömmu (úúú forvitinn fær ekki að vita!) og kíkti í rúmfó og fjárfesti mér í einu stykki skrifborði. Komum seinna að því.Skrapp síðan í Bónus, keypti íslenskt nammi handa fólkinu mínu í CA --- Loksins hafði ég það að senda pakkann út!! Ætlaði víst að senda hann ...hrm.. í nóvember!! Úbbs. Sendi líka smá gúmmelaði til Nicks. Vonandi verður karlinn ánægður með það ;) Kolla - endilega láttu mig vita hvað honum finnst!
------
Aftur að skrifborðinu. Þeir sem þekkja mig vita hvað ég er innilega, ótrúlega, enganvegin þolinmóð þegar kemur að einhverju nýju. Allt á helst að gerast í gær. Þannig að mér tókst auðvitað ekki að bíða eftir því að Jói yrði búinn að vinna ... og byrjaði að setja saman skrifborðið með dyggri aðstoð Aníku. Það gekk hálfbrösulega þar sem leiðbeiningarnar voru bara ein bls! Jább góðir gestir - Ein blaðsíða!! Ikea vinnur klárlega Rúmfó þegar að þessu kemur. Þegar kom að því að setja borðplötuna á - klikkaði eitthvað í hausnum á okkur og við snérum skrúfunum öfugt (hljómar heimskulegra en það virtist vera þá stundina) og tróðum því einhverjum töppum ofaní vitlaus göt, og skrúfurnar þar ofaní. Þetta passaði svo engannvegin þannig að ég hringdi í Jóa og sagðist vera búin að klúðra málunum. Hann sagði orðrétt að mig minnir: "Hanna.. ég kem heim kl hálf 11, EKKI snerta skrifborðið!!". Ég hlýddi því auðvitað, settist niður í sófann en ákvað að glugga aaaðeins betur í leiðbeiningarnar. Við nánari skoðun áttaði ég mig á því hvað við höfðum gert vitlaust. Útskýrði það fyrir Aníku og fannst það svo heimskulegt að ég gæti hreinlega ekki sýnt Jóa það. Þannig að ég stóð upp.. gekk að skrifborðinu... tosaði í skrúfurnar (sem voru í vitlausum götum) .... og braut þær!!
Nú voru góð ráð dýr - eiginlega alveg fokdýr þar sem þetta borð kostaði 7000kr.
Jæja. Þetta reddaðist í dag þegar ég keypti bara vinkla og skrúfur, og ætlar JÓI (jább ég kem ekki nálægt svona samsetningum aftur) að skrúfa það saman fyrir mig í kvöld.
Hvað gerði ég án karlmannana í lífi mínu?!
---
Læt þetta blogg nægja í bili, og ætla að fara að koma mér í smá lærdóm.
Rúfus er að fara í smá læknisheimsókn í kvöld þar sem hann er farinn að taka uppá því blessaður að hleypa mér ekki út þegar kalt er í veðri. Sem væri nú svosem ágætt nema það að það er ekkert voðalega þægilegt að sofa í bíl! Hehehe. Vonandi virkar þessi heimsókn og þakka ég velgjörðarmanni mínum kærlega fyrir að nenna að standa í þessu! :)
Mánudagur 01. október 2007 / 00:49 / Daginn í dag, daginn í dag gerði drottinn guð:)
Vá hvað þessi helgi var viðburðarík og skemmtileg. Byrjaði reyndar frekar rólega með föstudags-þrifi og rólegheitum hérna heima fyrir. Skutlaði Jóa í vísindaferð kl hálf 5 og var einmanna húsmóðir eftir það, eða þangað til Palli félagi bjargaði mér um miðnætti og við fórum á rúntinn. Sóttum Jóa niður í bæ klukkan hálf 1, en þá var hann alveg búinn á því greyið hehe.
Ég ákvað...
Lífið
/ Veður
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
3
Þriðjudagur 07. ágúst 2007 / 15:59 / Stundaskrá
Það er komin drög að stundaskránni minni.
Þeir sem vilja sjá hana geta kíkt hingað inn og smellt á Uppeldis- og menntunarfræði, 1.ár.
Veiii hvað ég get ekki beðið eftir að byrja í skóla!!
Föstudagur 27. apríl 2007 / 15:12 / Breyttir tímar...
Jæja. Núna eru svo sannarlega breyttir tímar hjá mér. Ég er samt enþá að vinna á Krummafæti hérna á Grenivík en í staðinn fyrir að búa í íbúðinni okkar í Melgötunni, bý ég hjá Ingólfi og Fjólu. Harpa dóttir þeirra var svo góð að lána mér rúmmið/herbergið sitt þannig að ég er í góðu yfirlæti hjá þeim ;)
Margt hefur breyst á tveimur vikum. Eiginlega bara allt. Ég sótti um í H.Í. í síðustu viku og aldrei að vita nema maður fái inn þar næsta haust. Þá er ég barasta farin suður á bóginn! Af mölinni og á malbikið. Merkilegt nokk. Hélt að það ætti seint eftir að gerast, en það verður eflaust magnað. Ég er búin að fá vinnu í sumar á Sambýlinu í Snægili sem ég var að vinna á sumarið 2005. Við Linda vinkona erum svo að leita okkur af einhverri ágætis íbúð á Akureyri til að leigja í sumar. Ef þið vitið um íbúð þá endilega hafið samband!
Í dag er ég hinsvegar að fara suður með flugi kl 18:40 og síðan til Danmerkur á morgun með leikskólagellunum. Djöfull ætla ég að skemmta mér vel og líka að versla mér smávegis drasl ;)
Jæja. Verð að rjúka. Er í vinnunni og þarf víst að passa einhver börn??!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
9
Fimmtudagur 08. júní 2006 / 16:12 / Einkunnir
Lífsleikni = 10
Íþróttir = 10
Sálfræði = 9
Mentor = 9
Uppeldisfr. = 9
Saga = 8
Ekki slæmt svona síðustu önnina! :D
Við Þorsteinn fórum eitthvað að erindast inná Ak í dag. Skruppum í Bókval og eyddum þar dágóðri summu í bækur.
Keyptum okkur svona pocket-bækur um Los Angeles, San Francisco og Las Vegas. Svo keyptum við líka stærri bók um LA og eina um Californiu. Keyptu líka 3 flugvéla-bækur. Þorsteinn keypti sér ævisögu Michael Owen og ég keypti Draumalandið eftir Andra Snæ og bók sem heitir On the run - svona til að æfa mig í enskunni ;)
Brottför nálgast á svo gríðarlegum hraða að ég veit bara ekki hvernig ég á að haga mér! Úff úff...
Flutningar
/ skóli
/
5
Sunnudagur 04. júní 2006 / 00:11 / Bloggidiblogg
Hvar skal byrja. Þessi helgi er svo ótrúlega viðburðarrík. Fór í síðasta prófið mitt í MA núna á föstudaginn. Fékk nettann fiðring í magann þegar ég var komin að svona spurningu nr 60 í prófinu (100krossa spurningapróf) því þar kannaðist ég bara ekkert við að hafa lesið nokkuð um Kína, en næstu 10 spurningar fjölluðu einungis um Kína! Ég hélt að ég hefði bara verið svona mikill tossi en nei nei, kennarinn var bara sjálfur tossi og setti ÓVART inn spurningar úr kafla sem við áttum ekkert að lesa! Svona er þetta þegar kennarar reyna að sleppa auðveldlega og gera bara copy/paste við gamallt próf!! Busted! ;)
Eftir prófið fórum við Anika niður á Amour að skúra (Takk Anika!!) og svo fór ég í smá verslunarleiðangur að leita mér að fötum (bol) fyrir ferminguna hennar Sunnu sem er á morgun (í dag, það er víst komið miðnætti!) Ég fann hinsvegar ekkert og fór því tómhent til Grensó í klippingu til Sveinlaugar. Frá henni kom ég út sem algjör red-head og keypti meira að segja djúpnæringu sem heitir "Dumb Blonde!" .. mjög fyndið nafn. Djúpnæringin er reyndar líka fyrir Racy-Redhead sem ég veit ekki alveg hvað er. Spyr að því þegar ég er komin til Ameríku. ;)
Næsti dagskráliður var að ná í Þormar. Hann vildi að sjálfsögðu koma til mín strax og við brunuðum heim á Hauganes eftir að hafa erindast smávegis í bænum. Um kvöldið var ég svo þreytt að ég sofnaði meðan ég svæfði Þormar, og sofnaði svo aftur í sófanum inní stofu fyrir kl. 11. Það var mitt próflokadjamm ;) híhí
Dagurinn í dag byrjaði með þessum orðum "Hæ.. máé fala flammúl?!" og þar með var ég ræst, klukkan 9 í morgun.. Reyndar fínt að fá að sofa til 9! Við dúlluðum okkur í garðinum, fórum í heimsókn til Höllu og Sævars úti á Sand og nutum svo bara veðurblíðunar hérna heima við. Ég þvoði líka í leiðinni svona 5 vélar (af þvotti sko) því það var svo góður þurrkur (já já, þó ég sé hætt að búa sjálf þá leynist samt enþá í mér húsmóðir!)
Elsku Danni frændi kom svo seinnipartinn með foreldrum sínum. Mamma kom heim úr bænum með "pakka" handa mér, en hún fór í búðir fyrir mig og keypti fyrir mig tvo boli/kjóla sem eru geggjað flottir! Héðan í frá læt ég einhvern annan versla á mig föt því ég finn mér aldrei neitt, en er alltaf ánægð með það sem aðrir finna á mig!!
Kvöldmaturinn í kvöld var svo borðaður í góðu yfirlæti hjá tengdaforeldrum Dagnýjar systur. Gauja eldaði glæsilegan KALKÚN sem var ógó góður. Rögnvaldur gerði svo gríðarlega gott Waldorf-salat með matnum ;) Hjá þeim var setið við langborð því við vorum hvorki meira né minna en 9 fullorðnir og 4 börn. Gaman að því. Misjafnlegar málefnalegar umræður við matarborðið en það var mjög skemmtilegt hjá þeim og alltaf gott að koma til þeirra.
Að sjálfsögðu sofnaði ég meðan ég svæfði Þormar í kvöld um 9 leytið, sem gerir það að verkum að ég er ekkert þreytt núna eins og sést á þessum ótrúlega langa pistli mínum. Ég er að rústa Söndru í langri-pistla-gerð! :D
Ég fékk líka gleðifréttir í dag. Þorsteinn hefur lokið skyldustarfi sínu í Laufási og er nú kominn til að vera hjá mér, ma og pa. Ef ég tel saman dagana sem við höfum hisst frá því 2.mai þá slagar það varla uppí viku! Alveg ömurlegt.. en hey, eftir hálft ár saman í Cali þá mun ég pottþétt segja "get outah my face, f**k faceah!" ;) - Neh þarna var ég nú bara að slá á létta g-strengi! (Eins og Björnsson orðar það) Hætt þessu rugli,.. held áfram með hinn hefðbundna pistil:
Morgundagurinn hefst á sundi í Þelamörk, eða á Dalvík. Svo tek ég mig til og bruna til Grensó í fermingarveislu aldarinnar. Veisluþjónusta Ólínu sér um þessa fermingarveislu svo ég er viss um að ég verði ekkert svikin af því sem verður á boðstólnum þarna. (Veisluþjónusta Ólínu a.k.a. Olla mamma hans Þorsteins og fermingarbarnsins!)
Jæja. Pabbi er farinn að tuða yfir því að ég þurfi að fara að sofa. Ætli hann sé ekki bara að hugsa um símreikningin þar sem þau eru svo gríðarlega ekki-móðins og eru því tengd með módemi!! (Úff ég trúi ekki að ég sé að segja frá þessu.. svo ógó hallærislegt, skilurru!) :D
Góða nótt dyggu lesendur og komið vel fram hvort við annað - nema þið séuð óvinir, þá er í lagi að vera leiðinlegur!
TTYS (Talk To You Soon!) - Alltaf að æfa mig í slettunum...
Hanna
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
2
Miðvikudagur 24. maí 2006 / 18:10 / Dimmiso/Dimmisson/Dimmisso...
Þessi dagur er búinn að vera langur og strangur. Við erum þvílíkt búnar að vinna að því að gera þennan dag skemmtilegan og flottan - og tókst það vel til!! Eitthvað voru þó veðurguðirnir að stríða okkur, en þó ekki eins mikið og virtist vera í gær þar sem það var fínasta veður í dag, bara kalt ;)
Þrautabrautin var innandyra vegna kulda, og héldu hraustir karlmenn á mér í kóngastól að þrautabrautinni. Þar fékk ég að grípa í hendina á öðrum karlmanni sem leiddi mig í gegnum þrautabrautina, þar sem ég var jú með bundið fyrir augun. Við áttum að fara undir stangir, yfir stangir, gegnum dekk og klifra að lokum uppá íþrótta-hest og stökkva niður á dýnu. Það var ekkert smá erfitt að standa uppá hesti og hoppa niður á eitthvað sem maður hafði ekki hugmynd um hvað var ;)
Restin af deginum gekk fínt, og er ég komin í pínu tímaþröng og skrifa bara meira á morgun í þynnkunni ;)
Laugardagur 20. maí 2006 / 18:20 / Ráðstefna
Í dag var ráðstefna í skólanum. Hún stóð frá 10-15 og var ágætlega mætt á hana. VIð vorum semsagt að kynna lokaverkefni okkar í Uppeldis- og menntunarfræðum. Þetta var einnig síðasta verkefnið mitt í framhaldsskóla!!
Gestirnir voru svona mismerkilegir, en mér þótti alveg extra vænt um að mamma lét sjá sig og studdi við bakið á mér þar sem maður er ekki beint vanur að tala fyrir hálffullri kvos um niðurstöður úr rannsókn! Þetta var samt mjög góð æfing fyrir það sem koma skal - þ.e.a.s. að kynna verkefni í háskóla.
Núna er lífið rétt að byrja og ég get ekki beðið!!!!!
Mánudagur 15. maí 2006 / 16:43 / Skólinn
Mér finnst ég aldrei vera í skólanum, samt er svo ótrúlega mikið að gera. Ég er t.d. á fullu þessa dagana að undirbúa Uppeldisfræði ráðstefnu sem haldin verður laugardaginn 20maí nk og stendur frá 10-15 með veitingum í hádeginu! (nýta tækifærið og auglýsa!) Þið megið ENDILEGA kíkja og hlusta á mig og Jonnu kynna niðurstöður úr könnun sem við gerðum í grunnskólum við Eyjarfjörð um viðhorf grunnskólanema til fatlaðra. Ætli okkar kynning verði ekki eitthvað um klukkan 14 fyrir þá sem vilja bara sjá mig ;) Ykkur er velkomið að koma hvenær sem er dags, en það er kannski ekkert voðalega vel séð ef þið mætið BARA í hádegismatinn hehehe
Hjólað í vinnuna átakið er líka búið að standa yfir í tvær vikur og hefur hjólið hennar Baddýar verið mikið nýtt í sambandi við það. Eitthvað hefur farið minna fyrir ræktarferðum hjá mér núna eftir páska en ég hugsa um ræktina á hverjum einasta degi og ætla mér alltaf að fara. Það er bara stundum svo erfitt að koma sér af stað seinnipartinn núna þegar ég er farin að skúra á Cafe Amour á morgnanna og það er sko meira en að segja það!! Ég er allavega farin að bera MIKLA virðingu fyrir bláa hernum í MA, þó svo að þær skrúbbi nú ekki upp bjórsull, vodkasull, skóför og blóðbletti nánast á hverjum morgni.
Jæja, ætla að blogga aðra færslu um flutningana - svona svo ég blandi nú ekki öllu saman. Hugsa líka að ég geri nýjan flokk hérna til vinstri sem mun heita "flutningar" :) Ef þið hafið ekki fattað hvernig þessir flokkar virka, þá flokka ég færslurnar niður eftir innihaldi og þær fara í ákveðinn flokk. Ef þið t.d. viljið bara lesa hvað ég hef skrifað um lífsstíl og mat þá smelliði á þann flokk. Þá koma líka upp einhverjar uppskriftir og svona skemmtilegt sem ég hef bloggað um. :)
Lífstíll og matur
/ skóli
/
0
Miðvikudagur 05. apríl 2006 / 12:53 / Skólinn
Stundum er bara svo brjálað að gera í skólanum...
Þriðjudagur 04. apríl 2006 / 12:37 / Auli!!
Ég get stundum verið algjör auli.. eiginlega er þetta í þriðja skiptið í vetur sem ég er algjör auli. Mætti hress og kát í skólann klukkan 12:20 til þess eins að mæta í tóma stofu!! Helv. Djö. I did it again..tíminn byrjar semsagt ekki fyrr en 13:05! Núna gæti ég verið heima hjá veikum kærasta að horfa á family guy...
Úfff.... það er pirrandi að horfa svona vitlaust á stundatöfluna!
Ég get nú samt sagt ykkur smá fréttir. Ég var að fá e-mail frá Robert í CA. Ég var ekki búin að heyra í honum lengi og var orðin freeeekar smeyk um að hann væri hreinlega död! En nei... eins og hann skrifaði sjálfur "It's alive.. It's aliveee!" og hann, Tom og Christy (börnin hans) bíða spennt eftir komu okkar í Júní.
Mér finnst hlutirnir samt ganga svoooo hægt. Það gengur voðalega illa að finna leigjendur sem eru tilbúnir til að leigja frá 15.mai eða 1.júní. Svo er ég ekki búin að selja nema nokkra hluti, en er samt heldur ekkert búin að reyna neitt voðalega mikið að selja þetta dótarí. Svo ef að einhverjum finnst græni kagginn okkar alveg roooosalega girnilegur og vill eeendilega kaupa þetta gæða eintak, þá má sá hinn sami hafa samband við okkur!
Já það eru bara 77 dagar í að við förum og mér finnst það líða ótrúlega hratt! Sem er frábært.. en líka hræðilegt! Ég er alveg að kafna í verkefnum, vinnu og öllu og get ekki beðið eftir því að fara í páskafrí núna á föstudaginn. Páskafríinu mun ég eyða á Amtsbókasafninu við ritgerðarsmíð,.. en það er samt allt í lagi ;) Amtið er fínt heimili no 2.
Jæja.. ætli það séu ekki einhverjir mættir í stofuna mína - ég er allavega orðin þreytt á að sitja hérna í tölvustofunni og skrifa í gömlu hægvirku tölvuna hérna.
Lifið heil og ekki fá inflúensu!
- Þorsteinn og Freyja - Látið ykkur batna ;)
Laugardagur 04. febrúar 2006 / 16:20 / Stundataflan
Þá er stundataflan komin í hús. Ég er eiginlega alveg rosalega lítið í skólanum, og mun bara njóta þess að eyða deginum í ræktinni... og kaupa mér húð-krabbameinskort (ljósakort) þegar ég eignast einhverja aura. Föstudagarnir eru samt frekar leiðinlegir þar sem ég á bara að mæta í EINN tíma! Hefði verið fínt ef að ég hefði bara fengið frí alla föstudaga.. ennnn það er nú ekki svo erfitt að stökkva í skólann í 40mín.
Baddý sys er í Reykjaví vísindaferð (vínsyndaferð) með bekknum sínum og þess vegna fékk ég loksins minn ástkæra Rúfus að láni. Ég dekraði svolítið við hann svona fyrst að hann kemur svona sjaldan til mín og þvoði hann að innan og utan (enda veitti ekki af) og núna stendur hann stoltur á stæðinu fyrir utan. (Rúfus er sko rauða þruman / fyrsti bíllinn minn) Við Linda rúntuðum á Rúffa kallinum langt fram á nóttu í gær, og tjúnnuðum græjurnar af gömlum vana. Spiluðum reyndar ekki It's raining men, en það verður bara tekið vel á því í kvöld ;)
Jæja, veit eiginlega ekki alveg hvað ég er að bulla hérna... langaði bara að skrifa eitthvað..
Miðvikudagur 25. janúar 2006 / 10:32 / Síðasta prófið búið!!!
Þvílík gleði! Þvílík hamingja!! Ég er svo ánægð að ég er að rifna! Var að klára það núna.. var reyndar 120mín próf sem ég kláraði á 90mín - vona að það sé nú ekki slæmt!! Ég skrifaði nú samt næstum því bls við hvert einasta svar þannig að eitthvað hlýt ég að hafa gert rétt?!
Úff.. ég fór ekki að sofa fyrr en 4 í nótt og vaknaði 8 til að fara í prófið, þannig að ég ætla að skríða uppí ból til Steina sem kom heim eftir kl 4 í nótt og ætli við sofum ekki til hádegis...
ÉG ER BÚIN!!!! :D :D :D Síðustu haustannarprófunum mínum er hér með LOKIÐ!
P.s. búin að ná öllum öðrum prófum og stóð mig bara ágætlega ;)
Mánudagur 23. janúar 2006 / 20:17 / hm...
Ég er svo enganvegin að meika það að læra undir þessa lífeðlisfræði. Afhverju í andskotanum var ég að velja þetta fag?? Ekki það að þetta sé eitthvað leiðinlegt.. ég bara nenni ekki að leggja á mig svona mikla vinnu fyrir eitthvað djö. valfag!.. já ég veit, ég er aumingji!! Fyrst maður er samt að þessu á annað borð, ætli maður verði þá ekki að gera þetta almennilega?
Annars bíð ég bara spennt eftir fyrstu einkunnum... spennó að fá að sjá hvernig heimspekin gekk!!
Þessa stundina langar mig alveg ótrúlega mikið á rúntinn með Ásdísi vinkonu sem ég hef varla talað við síðan á þorrablótinu.. tja.. í hitt'eð'fyrra!! Hvað er málið? Það væri nú alveg ótrúlega gaman að taka nokkra hringi á Rúffa og tjúnna græjurnar og dansa eins og geðsjúklingar - maður fer nú bráðum að verða of gamall fyrir þetta rúnt... Fer afskaplega sjaldan á rúntinn og þegar ég fer á rúntinn þá þekki ég engan :(
Jæja.. ætla að halda áfram að læra (eða bara dagdreyma inní eldhúsi yfir skólabókunum).. verð nú að reyna að vera svolítið dugleg! (að dagdreyma)..
Over&out ;)
Miðvikudagur 18. janúar 2006 / 03:15 / Það er leikur að læra..
Já það er svo sannarlega leikur (einn) að læra! Lísbet var að yfirgefa bygginguna og klukkan er að nálgast hálf 4 að nóttu! Við Ösp lærðum líka til hálf fimm sunnudagsnóttina (aðfaranótt mánudags).. vonandi að ég uppskeri eins og ég sái! Hinsvegar er ég ekki að frumlesa allt eins og margir og er búin að vera svona þokkalega dugleg yfir önnina. Prófin eru samt í rauninni bara rétt að byrja hjá mér þó að ég sé hálfnuð, landafræði og lífeðlisfræðin eru eftir og það verður killer... Ég kann EKKERT í landafræði og þar verð ég sko að frumlesa.. Lífeðlisfræðin verður líka pínu svona happa-glappa þar sem engin verkefni eru til þess að vega á móti prófeinkunn - verð því þokkalega að standa mig þar!
Jæja.. vildi bara fá smá útrás fyrir próf kvíðanum sem er þó furðulega lítill!
Ætla að fara að sofa með Steina mínum,... hann kom heim úr vinnunni um 2 leytið í nótt svo að við erum bæði alveg ótrúlega fersk eða þannig! Ætla sko ekki að stilla klukkuna mínútu fyrr en 11 á morgun!
Gute nacht elskurnar!
Miðvikudagur 11. janúar 2006 / 11:40 / Heimspeki
Þessa dagana langar mig til að gera allt annað en læra heimspeki - mig langar meira að segja að þrífa sameignina!!
Nýja lúkkið gerir líka það að verkum að mig langar til að blogga allan daginn, alla daga ;) Núna get ég sett inn myndir á forsíðuna, og líka sent myndir úr nýja flotta símanum mínum ;) Það er náttúrulega bara best!
Það eru ekki allir svo heppnir eins og ég að eiga frábæra systur!! *suckup*
Laugardagur 07. janúar 2006 / 16:18 / Lífið sjálf
Prófin nálgast svo hratt að ég er eiginlega ekki farin að hugsa um þau! Ég er að fara í sex próf - skemmtilegt það! Annars get ég bara ekki beðið eftir nýrri stundatöflu. Ég vona að hún verði skárri en þessi sem ég er með núna, sem er algjör killer. Annars er ég byrjuð aftur í ræktinni og er það MIKIL gleði! Mér finnst bara lífið hafa algjörlega breyst eftir að ég fór að lifa svona "hollu" lífi.. eða lífi sem að mér finnst allir eiga að lifa! Ég t.d. horfði á Jamie Oliver's school dinner og þar kom fram að þegar börnin voru hætt að fá fiskistangir og franskar í hádegismat og farni að borða ALVÖRU mat, þá bara breyttist öll hegðan hjá þeim, þau voru glaðari, áttu auðveldara með að einbeita sér og lærðu mun betur. Ég finn fyrir þessu öllusaman.. ég er orðin skemmtilegri, gáfaðri og fallegri en nokkru sinni áður ;) Hehehe..
Þorsteinn var að reyna að draga mig í bío í gær á mynd sem heitir "Hostel". Það gekk nú hálf illa hjá greyinu og ég er ekki að fara á þessa mynd. Hann ætlar hinsvegar með Gunna á hana í kvöld og ég, Helga og jafnvel Linda ætlum að hafa stelpukvöld hérna heima og horfa á einhverjar ógeðslega væmnar myndir eins og "Just like heaven". Annars er Helga alveg ótrúlega spræk og ég bíð bara eftir því að fá krílið hennar í hendurnar. Stundum held ég að ég og Steini séum spenntari en hún og Binni ;)
Nýji síminn minn svínvirkar, fötin frá mömmu og pabba eru líka æðisleg og allar skálarnar sem við fengum frá mörgum eru líka ótrúlega góðar. Ég hef ekki enþá notað töfrasprotann (eða "töfratyppið" eins og mamma sagði alltaf hehe) frá tengdó, en það kemur að því!
Kaffi í Laufási á morgun og þá er nú eins gott að ég vakni í ræktina á morgun!! Það er ekkert jafn gott um helgar og að byrja morgnana á því að skella sér í ræktina, enda er Bjarg besti staður í heimi! :D
Jæja - kominn tími til að skella skólabókum í tösku, fartölvunni í "vasann" og skunda heim á Nes. Kannski ég fari bara á hjólinu hennar Baddýjar (það er rosa gott og flott!) og reiði Þorstein á stýrinu!! Ætli ég yrði ekki glæsileg niður moldhaugaháls-brekkuna! Hehe
þangað til næst
Over & out




