Eftirfarandi eru færslur í flokknum myndablogg
Mánudagur 13. apríl 2009 / 10:38 / Nýr JEPPI!
Þriðjudaginn 7. apríl fórum við Ingi í Bílabúð Benna og náðum okkur í eitt stykki 38" breyttan Musso-Jeppa, árgerð 2000. Við erum búin að eyða því sem af er af árinu í að skoða eeeendalaust marga jeppa og var þessi algjörlega tilbúinn á fjöllin, með GPS tæki, VHF-talstöð, læstur að framan og aftan, loftdælu á dempurum og skóflu á toppnum ;) Jeppinn ber nafnið VERA DÖGG en hann var skírður með mikilli viðhöfn af fyrsta eiganda og hefur heitið það síðan.
Strax á fimmtudag skelltum við okkur í fyrstu jeppaferðina á Verunni, fórum í samfloti með tveimur öðrum jeppadúddum upp á Snæfellsjökul. ÞVÍLÍK DÝRÐ og geggjuð ferð! Hefðum ekki getað verið heppnari með færi og veður. Yndislegt alveg hreint. Hera naut sýn í klessu og má sjá video af Herunni hérna.
Myndir úr ferðinni eru á Facebook, og hérna.
---
Þegar heim var komið eftir geggjaðann dag tókum við okkur til fyrir norðurlandsför. Við vöknuðum svo snemma á föstudaginn (langa) og drifum okkur af stað. Fyrst skutluðum við Bósa í flug til Vestmannaeyja (hundur í pössun, kemur á óvart?) og sendum svo Heru til Birnu vinkonu þar sem hún er núna í góðu yfirlæti. Villi fékk hinsvegar að sjá norðurlandið með okkur.
Við ákváðum að drolla aðeins á leiðinni norður og kíktum Hvalfjörðinn. Þaðan fórum við svo yfir í Reykholt og komum upp á þjóðveg aftur hjá Baulunni. Beygðum svo á ný út af þjóðveginum hjá Blönduósi, skruppum í kaffi til Ragga bróðurs og þaðan lá leiðin svo til Sauðárkróks og í gegnum sveitina aftur upp á þjóðveg. Á leiðinni suður ætlum við svo að reyna að keyra sem minnst á þjóðveginum og taka maaarga útúrdúra. Það er svo gaman að skoða landið sitt fallega
Örfáar myndir frá Hvalfirði eru hér, og líka nokkrar af Yoko, kisanum hennar Ingu Rutar, og Villa
Lífið
/ Veður
/ kaupæði
/ myndablogg
/
3
Miðvikudagur 11. febrúar 2009 / 00:37 / Myndir
Búin að henda inn nokkrum myndum 2009 á myndasíðuna mína :) Endilega kíkið
myndablogg
/
0
Mánudagur 28. janúar 2008 / 00:58 / Myndir úr hundaslammi og af Brúnó
Jæja. Ætla að gera tilraun að setja smá myndir
Ekki flottar myndir enda teknar á símann í ekkert æðislegum birtuskilyrðum. En myndir þó ekki satt ;)
.... smellið á "framhald" hérna fyrir neðan :)
myndablogg
/
2
Miðvikudagur 16. janúar 2008 / 22:07 / Myndir á myndasíðuna
Ótrúlegt en satt þá er ég búin að setja inn nokkrar myndir á myndasíðuna mína
Endilega kíkið við og munið að það er hægt að skrifa komment undir þær :)
myndablogg
/
0
Þriðjudagur 25. desember 2007 / 22:37 / Video
Jólavideoið í ár
14 ára á gamlársdag og búin að hanna sína eigin aðferðir við að taka upp pakkana :)
myndablogg
/
1
Föstudagur 09. nóvember 2007 / 02:26 / Söknuður
Það er sárt að sakna....
myndablogg
/
5
Þriðjudagur 30. október 2007 / 14:09 / óheppin
Já óheppnin virðist elta mig á röndum þessa dagana. Eftir að ég bloggaði á laugardaginn fór ég á bílnum mínum í Kringluna (skömm að segja frá því þar sem ég bý virkilega nálægt) og þá kom rooosalega vond lykt af Rúfus og ég vissi strax að þetta hlyti að vera kúplingin þar sem hún var komin mjjjööög ofarlega. Jæja. Ég brunaði með kaggann til Munda bró sem staðfesti grun minn. Kúplingin farin og hann sagði mér að keyra Rúfus sem minnst. Síðan sló mér eitthvað niður á laugardagskvöldið og búin að vera hálf slöpp síðan. Fór reyndar út að skokka í gær með Brúnó (sem er riiisastór Doberman hundur, dökk brúnn og ótrúlega flottur. Kraftmikill með meiru svo ég fékk strengi eftir fyrsta skokkið með hann! Algjör snillingur) Hanna ferðast s.s. núna um með strætó um borgina, jú eða rölti/skokka milli staða. Bootcamp að byrja aftur í dag. Hlakka til, en kvíði líka fyrir þar sem ég er enþá með dúndrandi hausverk, hálsbólgu og ryksugaði íbúðina áðan í svitakófi. Enn ég ætla ekki að missa plássið þannig að það er eins gott að láta sjá sig :)
Jæja. Ætla að enda þetta blogg á myndum af Nick sem ég fékk á heimasíðunni hjá Kollu sem á hann núna. Takk Kolla!
------

Markús og Nick eru greinilega góðir vinir
------

Hr.fallegur
-----

Sakna hans - flottasti töffarinn
Lífið
/ myndablogg
/
2
Fimmtudagur 18. október 2007 / 13:22 / Kjánahrollur
Ef þetta er ekki bara bjánalegt.
Muna að hafa hljóðið á!
-----
myndablogg
/
3
Miðvikudagur 10. október 2007 / 17:25 / Norðurferð - myndir!
Haldiði að kella hafi ekki ákveðið að skella sér norður? Og sú ákvörðun var tekin á svona 5 mín, pakkað ofaní tösku, brunað útá völl og hlaupið inní vél sem var um það bil að lokast. Ljúf var lendingin á Akureyrarvelli, sem og pylsan og maltið sem pabbi gaf mér í Lindinni ;)
Það var svo
Lífið
/ myndablogg
/ vinir og vandamenn
/
3
Sunnudagur 23. september 2007 / 22:09 / Myndir
Jæja. Loksins komið að því. Ætla að setja inn smá myndir
Fór til Söndru og Sverris í mat á mánudaginn og elsku Jón Pétur steinsofnaði í fanginu mínu.
Ég og Katrín í Grasagarðinum
Ég og Ólöf Æði. Bekkjarsystir mín sem er alveg möögnuð :P
Bekkjarsystur mínar á leiðinni í Óvissuferð. Allar sætar með Lager í hönd :)
Fyrsta kvöldmáltíðin - Reynir og Jói bíða gríðarlega spenntir eftir að heyra: "Gjörið svo vel!"
Sæta dóttir Ella og Perlu. Algjör rúsína! Kem bráðum aftur að knúsa þig sæta mín! :D
Rúfus að fyllast rétt áður en ég lagði af stað suður.
--- Enda þetta á góðri mynd af okkur Ingu um Versló. Ótrúlega sætar!

myndablogg
/
0
Sunnudagur 24. júní 2007 / 16:03 / Það er gaman á Grímseyjarsundi...
Vá. Þessi helgi var alveg ótrúleg. Gott djamm á föstudaginn og í gær kom 50manna hópur í hádegis og kvöldmat. Það var crazyness!
Annars gengur lífið sinn vanagang hérna í eyjunni. Kl hálf 5 að nóttu sátum við Svafar við matarborðið inní eldhúsi. Ég að borða nætursnarl, hann að borða morgunmat. Síðan sagði hann Góða nótt, og ég sagði Góða ferð á sjóinn. Pínu súrrealískt.
Hérna er unnið, sofið og drukkið. Eða eiginlega drukkið, unnið og sofið! ;) Í þessari röð semsagt hehe. Ekki samt ég sem drekk svona mikið.. ónei ónei, ég er sú sem er alltaf bakvið barborðið. Vann 14.5tíma á föstudaginn og 15.5tíma í gær. Í dag er ég svo að vinna frá 6-?. Maður veit aldrei hvað þessum Grímseyingum dettur í hug að gera á ókristilegum tímum thíhí.
Frá því ég kom hingað er ég búin að eyða svona kannski 2000kr þannig að planið mitt um að spara er allavega að ganga mjög vel. Hlakka samt til að koma í land í brúðkaupið hennar Aníku. Ótrúlega leiðinlegt að komast ekki í gæsunina í gær. Skemmtu sér víst alveg rosalega vel gellurnar í gær. Sorry stelpur að ég komst ekki! :S
Jæja. er ekki kominn tími á myndir??
Langar að sýna ykkur Kríuna mína.

Þetta er fyrir utan.. ofcourse ;)

Barinn flotti.. ótrúlega glæsilegt.

----
Hérna eru líka einhverjar ruglmyndir.
Ég og Siggi Hennings í góðu geimi
Við Unnur hressar og sprækar í vinnunni einhverja nóttina
Katrín, Sigrún Edda litla "systir" og Helga Hrund sætu skvísur á sjómannadaginn
Farartækið okkar hérna í eyjunni. Algjör snilld :D
Bjarni Gylfa í Skeglueggjaleit
Ég og Gylfi sjóari. Hann er alveg yndislegur. Sagði við mig aftur og aftur þetta kvöld: "þú ert svo skemmtilega lík honum pabba þínum" :)
Sigrún Edda og Gyða mjög ferskar að kúra saman einhvern morguninn
---
Nóg af myndum í bili. Á eftir að setja fleiri myndir úr símanum yfir í tölvuna og kem þá með meira svona myndablogg.
---
myndablogg
/
1
Sunnudagur 01. apríl 2007 / 21:56 / Myndir
Jæja ég er búin að sitja sveitt hérna við að setja inn myndir.
Hérna eru myndir frá Þormars helgi, og hérna er spilakvöld með Dömmu, Gumma og Freyju, hérna eru myndir frá vorskemmtun Grenivíkurskóla, hérna myndir úr Laufási, myndir af litlu hans Ragga bróðurs sem fékk það fallega nafn Embla Lind og að lokum ýmsar myndir sem við tókum í Mars, m.a. myndir frá því að Inga og Júnía komu í heimsókn.
---
Páskarnir á næsta leyti. Djöss snilld sem það er. Get ekki beðið eftir að fara í smá frí. Páskaball uppí skóla með stórhljómsveitinni Ulrich. Ætli mamma gefi okkur páskaegg?? ;)
---
Ég kíkti á djammið í gær. Var bara edrú, enda er það orðinn vaninn og langtum skemmtilegast! :D Freyja og Jói kíktu með mér, en Þorsteinn var að djamma með Bjössa Kobba og Gunna (Magnúsi)
Það var alveg troðfullur bærinn af fólki, veit ekki hvaðan það kom! Komumst samt inná Kaffi Ak eftir smá tíma í biðröð og dönsuðum eins og við fengjum borgað fyrir það! Sigrún Jóna kom og dansaði smá með okkur (takk fyrir það gella!) og bara svaka stuð á öllum.
Alltaf gott að vakna sprækur daginn eftir með enga þynnku og tilbúinn í slaginn.
Það var svo æðislegt veður í dag að ég hengdi út þvott á snúruna sem þornaði á smá stund! Hlakka ekkert smá til þegar sumarið kemur!
---
Ég er eiginlega orðin alveg ákveðin í að fara í fjarnám í haust og fara þá í Þroskaþjálfann. Jább, kemur eflaust flestum ykkar á óvart (not) en held að það sé málið fyrir mig. Sjáum svo til hvernig gengur. Þarf víst fyrst og fremst að komast inn!!
Það þýðir að ég verð ekki í 100% vinnu í haust, eða allavega í þannig vinnu að ég geti stundað skólann svona nokkurnvegin skammlaust.
---
Smá dramatík í dag þegar ég hringdi í leigjandann okkar til að láta hann vita að íbúðin væri tilbúin og lyklarnir á leiðinni til Ak. Þá HÆTTI HANN VIÐ! Ég fékk vægt sjokk og langaði til að láta nokkur velvalinn orð falla, en ég kann mig og sagði honum bara að stundum væri lífið ófyrirsjáanlegt og maður þyrfti einfaldlega að gera það sem maður þyrfti að gera! (Man gotta do what he gotta do!).
Ég sótti því dagskrána og hringdi í nokkra sem höfðu auglýst eftir íbúð. Við fórum svo til Ak um fimm í dag og hittum indælispar sem fékk lyklana afhenta á staðnum! Já tók ekki langan tíma og leist okkur alveg ótrúlega vel á þau. Það vandamál leyst! ;)
----
Jæja, ég er að opna á morgun þannig að ég þarf að vakna snemma, en bara í þrjá daga því svo er komið páááskafrí! Jej!
Hafið það gott elskurnar
myndablogg
/
2
Mánudagur 26. febrúar 2007 / 21:00 / myndir frá námskeiðinu
Hérna koma nokkrar góðar myndir frá námskeiðinu.

Hera hans Birkis. Algjör bjútí. Hún er blanda af Border Collie, Siberian Husky og Boxer.

Nick var ekki alveg á því að hlýða :)

Jammi sló í gegn þegar átti að fara yfir svona "hindranir" eða hvað sem það er kallað :)
-----
Að lokum er mynd af Kormáki. Ég tók rosalega fáar myndir af Nick því þegar hann var í "vinnu" þá vorum við svo svakalega upptekin af því að fylgjast með að við slepptum eiginlega alveg myndavélinni.

----
Þeir sem hafa áhuga á að vita meira og skoða fleiri myndir, geta farið inná www.tofradogs.com
Hérna eru líka myndirnar sem ég tók.
Snilldar námskeið sem ég mæli með fyrir alla hundaeigendur!
myndablogg
/
0
Föstudagur 16. febrúar 2007 / 17:33 / Myndir!
Jæja Inga mín.. eftir kommentið frá þér þá ákvað ég að drífa loksins í að setja myndirnar inn. Það eru nokkrar góðar af þér ;)
Þær eru allar hérna.
----
Þormar er kominn til okkar. Hann kom í gær og gekk fyrsti dagurinn vel. Hann æsir samt Nick alveg svakalega upp.. og Nick æsir Þormar alveg svakalega upp! Góð blanda þar ;)
Í dag kom hann svo eftir hádegi með Þorsteini í leikskólann. Þorsteinn var svona "aukafóstra" frá 1-3 í dag og gekk alveg frábærlega. Reyndar var hann mest með Þormar svo að það var fínt. Það voru 5 börn í leikskólanum milli 3-4 í dag.. mjög rólegur dagur.
Á morgun ætlum við svo að sjá Skoppu og Skrítlu í Rýminu hjá LA.
Það er langt síðan ég fór síðast í leikhús og því verður gaman að sjá þetta vonandi-skemmtilega barnaleikrit.
Jæja. Best að halda áfram að horfa á fuglastríðið í Lumbruskógi! Það minnir mig alltaf á frænkur mínar í Hlíðskógum, Bárðardal. :)
Góða skemmtun við myndaskoðun og endilega muna að kommenta undir myndirnar!
p.s. Freyja - geggjaðar myndir af þér og Gulla!
myndablogg
/
1
Sunnudagur 04. febrúar 2007 / 19:36 / Myndir myndir myndir
Jább ég er búin að setja inn myndir af þorrablótinu og þær er að finna hér. Þær eru í albúmi sem heitir "2007" og þar eru myndir frá sveitaferðum í Laufás ofl skemmtilegt.
Helgin er búin að vera alveg svakalega góð. Ég fór í bæinn í gær til Ragga bró og Söndru. Alltaf gott og gaman að fara til þeirra, þó ég hitti þau nú alltof sjaldan :(
Þorsteinn Ingi ákvað að koma með okkur til Grensó, eiginlega til þess eins að spila FIFA með Þorsteini Björns. Ég fór bara snemma í bólið og þeir spiluðu FIFA fram á nótt :)
Á Laugardaginn fengum við svo Hörpu og Karen til að passa fyrir okkur hann Nick. Við fórum út að borða með Vigga vinnufélaga Þorsteins og Þóru kærustunni hans. Síðan skelltum við okkur í bío og horfðum á hálfsjötugann karlmann vera laminn í hringnum. Jább - við fórum á Rocky Balboa! Það var ágætis skemmtun. Nick hinsvegar hafði það miklu betra hérna heima. Stelpurnar dekruðu við hann og át hann meðal annars hálfa pizzu. Reyndar átti hann ekkert að borða hana - en þegar stelpurnar gleymdu henni á eldhúsborðinu þá stóðst hann ekki freistinguna. :)
Dagurinn í dag hefur bara verið eintóm leti leti leti. Ekkert að gera og ekkert gert í því að finna sér eitthvað að gera. Stelpurnar gistu og vöktu okkur um hádegisbilið! Njótum þess að sofa út saman loksins þegar tækifærið gefst!
Núna held ég samt að nóg sé komið af letilífinu og ég verði að fara að drífa mig í ræktina. Taka mig á í matarræðinu og hafa Jónu vinnufélaga minn fyrir fyrirmynd! ;)
Þorrablót heima í Árskógi næstu helgi og ég get varla beðið! Algjör snilld... bara spurning í hverju maður á að fara??!!!! Er einhver sem býður fram flottann kjól eða eitthvað flott?
myndablogg
/
0
Þriðjudagur 23. janúar 2007 / 22:26 / Myndir myndir myndir
Ég er ekki búin að gera annað í dag en að setja inn myndir!
Við erum nefninlega KOMIN MEÐ NETIÐ! Þvílík gleði og hamingja.
Hefði heldur ekki getað gerst á betri degi þar sem ég var lasin heima í dag :(
Allavega. Allt saman er komið upp og fullt af myndum komnar inn. Ég setti inn þetta albúm, þetta og þetta.
Þetta eru allt myndir frá Californíu, en bráðum koma sjóðheitar (eða ætti maður að segja "ísskaldar!) myndir frá Íslandi.
Endilega kíkið á þær ;)
Farin í bólið með mönnunum mínum
myndablogg
/
1
Föstudagur 22. september 2006 / 06:58 / Myndband
myndablogg
/
7
Mánudagur 18. september 2006 / 03:00 / Myndi-mynd!
Nýjar myndir!! Enjoy ;)
Já og munið eftir því að kommenta á myndirnar :D
myndablogg
/
2
Mánudagur 28. ágúst 2006 / 19:12 / Myndir
Ég steingleymdi að segja ykkur frá öllum myndunum sem við erum búin að setja inn.
Hérna eru þær:
LA Zoo
Rockstar Supernova
Út að borða
Góða skemmtun og ekki gleyma að kommenta! :D
myndablogg
/
1
Miðvikudagur 09. ágúst 2006 / 16:11 / Testing one two three...
Sjáiði video-ið??
myndablogg
/
3
Þriðjudagur 08. ágúst 2006 / 07:20 / Myndir myndir myndir!
Við erum komin heim gott fólk!
Já vikan í San Luis Obispo var alveg rosalega fljót að líða. Við skemmtum okkur alveg konunglega - time flies when having fun! :D Klukkan hérna er nú samt að nálgast hálf eitt að nóttu og Þorsteinn er sofnaður í rúmminu.. sem á eftir að búa um! Þetta er búinn að vera langur dagur í dag.. fótboltaæfing hjá TJ klukkan 9 og svo leiklistarnámskeið hjá þeim báðum klukkan 13:00 og við að keyra þeim útum allt ;) Ekki slæmt að vera 13ára með einkabílstjóra :D
Annars erum við búin að hanga í tölvunni í mest að kvöld að setja inn myndir. Ég er orðin svo þreytt að ég nenni ekki að skrifa San Luis ferðapistil núna - geri það við fyrsta tækifæri.
Mamma, Gauja, Guðný (mamma Ingvars!) og Freyja -- Gleðifréttir! Loksins hafiði eitthvað að gera í vinnunni!
Hérna eru nefninlega myndir frá Hawaii (restin af þeim) og því miður nennti ég ekki að skrifa við þær allar :S
Svo eru hérna myndir frá San Luis! Meira en 100 myndir sem ættu að stytta ykkur stundirnar í Sparisjóðnum og á Bjargi ;)
Dagný systir, Óli og Daníel eru flutt til Danmerkur. Ótrúlega fjarlægt samt þar sem maður er ekki á landinu til að kyssa þau bless. Sýnist samt á blogginu hans Danna að þau hafi skemmt sér vel á leiðinni út og hafi það nú bara ágætt þarna í Danaveldinu þar sem þau sleikja sólina eins og ég hérna í Kaliforníu! Guðný vinkona er líka farin til Danmerkur og býr núna með Bigga kærastanum sínum. Á morgun byrjar hún í skólanum sínum!! Linda vinkona er í NY núna og fer svo nánast beint í skóla í Svíþjóð þar sem hún mun vefja sænskum skólapiltum um fingur sér eins og henni einni er lagið! ;) Ellý frænka ásamt fjölskyldu er að flytja til Spánar núna á næstu dögum þar sem Alli maðurinn hennar er að fara í skóla. Maður er hreinlega komin með vinafólk útum allann heim!! Maður ætti kannski að leggja land undir fót eftir áramót og heimsækja allt þetta fólk (lesist: nýta sér allar þessar fríu gistingar!) Verst bara að Mundi og Svanhildur eru farin frá Frakklandi - forðuðu sér áður en ég fékk tækifæri til að koma! ;) Þá heimsæki ég bara Svönsu Londongellu í staðinn - og Hrefnu bekkjarsystur svona í leiðinni! :D
Það er nú samt gott að vita af góðum vinum heima á Íslandi sem bíða þolinmóðir eftir manni. Helga, Binni og Dagur bíða spennt veit ég og sama með Aniku og Helga. Lísbet vinkona saknar mín nú svo mikið að hún er (vonandi, hennar vegna!!) að safna uppí ferð til mín! (Er það ekki??!) Heyrði líka í Dömmu vinkonu um daginn og það var alveg frábært - takk fyrir spjallið! :D
Svo má nú ekki gleyma okkar ástkæru fjölskyldum sem við söknum meira en allt. Mamma og pabbi eru orðin vön því að eiga börn í öllum heimsálfum og vita að það þýðir ekkert að tjónka við þeim og reyna að halda þeim heima! Hugsa til þeirra oft á dag... Hvernig fiskast pabbi??! :D
Baddý systir tókst að fótbrjóta sig um daginn (á djamminu, að sjálfsögðu!) og ég hefði alveg verið til í að vera hjá henni og hlæja að klaufaskapnum með henni! Baddý - þú verður að taka mynd af þér og gifsinu!! Og skrifaðu líka á það "Hanna systir er best!" :D
Þorsteinn Ingi frændi er svo að fara ásamt fjölskyldunni og fleirum til útlanda (man aldrei hvert) núna í lok ágúst og eiga þau örugglega eftir að skemmta sér alveg konunglega! Ég sakna þess ekkert smá að sitja í sólskálanum í Öldugötunni og fylgjast með Unni Birtu sýna fimleika "trix" og spjalla við Höllu, Sævar og Þorstein Inga um allt milli himins og jarðar! Halla, ég verð að fara að heyra í þér! Ég var einmitt að segja Þorsteini Björnsyni í dag hvað það kæmi mér á óvart hvað ég saknaði Þorsteins Inga ótrúlega mikið. Það var svo æðislegt að fá hann í heimsókn í Hrísalundinn við áttum svo sannarlega okkar móment á dansgólfinu í höllinni á 17.júní! (hann og ónefnd áttu samt betri móment! hehehe)
Þarf nú varla að minnast á allt Grenivíkurliðið sem er örugglega búið að gera "Velkomin heim!" skilti handa okkur svona til að það sé POTTÞÉTT tilbúið þegar við komum heim ;)
Ég veit ekki hvað ég gerði ef maður hefði ekki internetið. Það er svo æðislegt að fá fréttir frá Grenivík í gegnum Eddu og Sissa-blogg (Hvernig á eiginlega að poppa út þessum unga svo ég geti farið að versla á krakkann??!!) og svo að sjálfsögðu bloggið þeirra Sunnu og Hörpu sem að er í daglegum blogg-hring hjá okkur, sem og síðan hennar Karenar frænku. (Karen, það er nú kominn tími á blogg!)
Úff. Þegar maður fer að skrifa svona um allt fólkið heima sem manni þykir vænt um (og getur ekki einu sinni skrifað alla, eins og Jonna og Baldvin, Jói, Jósi og Arna, Bjössi og Bára, Lukkudýrið okkar hann Gunni, Víddi (ótrúlegt en satt!) Hóffa mamma hans Gunna, Freyja frænka og hennar endalaust góðu brandarar - sem og dansfélagi minn hún Jóna!!...gæti haldið áfram í alla nótt!) þá langar manni bara mest að panta flug heim strax.
Hérna höfum við það hinsvegar mjög gott.. og langar eiginlega frekar að fá alla í heimsókn og halda bara áfram að vera hérna í blíðunni! ;)
Ætla að ljúka þessu væmna bloggi með því að segja ykkur öllum hvað mér þykir vænt um ykkur!
Þúsund kossar handa öllum og sérstaklega litla fólkinu sem vex svo hratt og okkur finnst við vera að missa af svo miklu!!! (Báðar Helgurnar, Fjóla og Sigga frænka! (og bráðum Edda líka) Takið NÓG af myndum af börnunum ykkar sem við getum skoðað þegar við komum heim!!)
Jæja. Óli lokbrá var að banka á gluggann og segja mér að "drullast í háttinn!!" (nákvæmlega hans orðalag)
Langar samt að enda þetta blogg með einni góðri mynd af mér og Dóru á "tuðrunni" góðu ;)
Good night everybody
myndablogg
/
5
Mánudagur 31. júlí 2006 / 22:06 / Myndir frá Hawaii
Þá erum við búin að setja inn myndir... allavega nokkrar! Aðeins 100 myndir eftir ;)
Við nennum ekki að bíða eftir því að þær hlaðist allar inn. Svo erum við líka með nokkur video sem við ætlum að skella inn seinna.
Þið fáið fleiri myndir þegar við komum heim.
Já og við erum heldur ekki búin að skrifa fyrir neðan neinar myndir vegna þess að við erum að reyna að komast af stað til San Luis áður en það kemur rush-hour. Höfum ekki tíma til að skrifa!!
Geri það samt við fyrsta tækifæri!
Þið megið samt alveg gefa ykkur tíma til að kommenta! :D
myndablogg
/
3
Þriðjudagur 25. júlí 2006 / 21:13 / Myndir
Við Þorsteinn erum gjörsamlega óstöðvandi með myndavélina. Vorum að setja inn myndir frá Santa Monica. Reyndar eru þetta ekki margar myndir... ennnn við tökum sko MARGAR myndir á HAWAiii!! Þá er nú í lagi að missa sig með myndavélina ;)
Annars fórum við í sund...og ég og piper chilluðum í lauginni :D
Endilega kíkið á þessar myndir og kommentið ;) Síðasta myndin af mér í sundlauginni er alveg einstaklega góð ;)
myndablogg
/
4
Miðvikudagur 19. júlí 2006 / 22:58 / myndir
Úbbs.. ég gleymdi víst alltaf að segja ykkur frá þessum myndum. Setti þær inn í fyrradag held ég hehehe.
Var samt bara að klára að skrifa undir þær. Endilega kíkið á þær og kommentið ;)
myndablogg
/
1
Mánudagur 17. júlí 2006 / 05:04 / Nýjar myndir
Við vorum að setja inn nýjar myndir hingað.
Þetta eru nú bara svona allskonar myndir frá síðustu dögum.
Dæmi:

Sundlaugin var notuð af gríð og erg ;)
Annars fórum við til Ventura (Ace Ventura hehe) og kíktum á ströndina, fórum smá í sjóinn (með tærnar) og fylgdust með íkornum!
Já svo má nú ekki gleyma risastóra mollinu sem við fórum í og... já.. keyptum bara pííínu lítið í viðbót ;) Hehe
Skrifa meira á morgun og set þá líka inn myndir frá Ventura.
Góða nótt / góðan dag!
p.s. ekki gleyma að kommenta undir myndirnar! :D ;D
myndablogg
/
6
Fimmtudagur 25. maí 2006 / 23:32 / Myndskilaboð
Flutningar hafnir!
myndablogg
/
0
Fimmtudagur 25. maí 2006 / 04:54 / Myndskilaboð
Ekki gott að laga sokkabuxurnar þegar maður er pínulítið í glasi ;) Hehehe
myndablogg
/
0
Fimmtudagur 25. maí 2006 / 04:28 / Myndskilaboð
Ég, Freyja og Jóna skemmtum okkur mjög svo vel á miðvikudagskvöldið! :D Vorum bara ööörlítið Tipsy ;) Híhí
myndablogg
/
1
Miðvikudagur 24. maí 2006 / 14:38 / Myndskilaboð
Dimmiso!
myndablogg
/
1
Miðvikudagur 17. maí 2006 / 11:31 / Myndskilaboð
Litlu Olympíuleikarnir í skólanum voru haldnir í morgun. Blíðskapar veður og frábær keppnisandi. Það var ekki hægt að sjá að neinn hefði reynt að svindla í neinni keppnisgrein, og allt fór friðsamlega fram. .... Allt í lagi, þetta var reyndar ekkert svona. 4.U. Rústaði kennurunum auðveldlega, enda fóru þau auðvelduleiðina ;) Það var mjög gaman að sjá Bjarna sálfræðikennara keppa í Listdans og Liðleikum, og Sonja sló í gegn í sápu-rennibrautar-keppnisgreininni. Guðjón Hauksson rústaði svo þrautabrautinni... Fyrstu Olympiuleikarnir sem ég er viðstödd á 5.ára skólagöngu minni í MA. Þetta er náttúrulega ekkert nema bara skömm að hafa verið svona léleg að mæta - og núna er orðið of seint :( Eftir nákvæmlega viku Dimmiterum við og það verður GEGGJAÐ! :D
myndablogg
/
0
Miðvikudagur 10. maí 2006 / 17:07 / Myndskilaboð
Myndarleg í fjallgöngunni!
myndablogg
/
2
Þriðjudagur 09. maí 2006 / 20:57 / Myndskilaboð
Til hamingju með afmælið elsku Binni okkar! :D
myndablogg
/
0
Þriðjudagur 02. maí 2006 / 11:25 / Hjólihjól
Ég hjólaði í skólann áðan. Þegar ég kom í skólann fékk ég að vita að það væri ekki tími. Ég hjólaði aftur heim! Takk Baddý fyrir að lána mér fallega rauða og silfraða fákinn þinn :) Ætla samt að hjóla aftur í skólann núna kl 13:00. Bensínverðið er svo hátt að einhvernvegin verður maður að spara!! :D
myndablogg
/
3
Þriðjudagur 25. apríl 2006 / 22:57 / Til minningar um Þórð
myndablogg
/
3
Laugardagur 22. apríl 2006 / 15:05 / Til hamingju Daníel!
myndablogg
/
1
Mánudagur 17. apríl 2006 / 14:44 / Fjör á Grensó!
myndablogg
/
0
Mánudagur 17. apríl 2006 / 14:44 / Ég og Damma að missa okkar
myndablogg
/
0
Sunnudagur 16. apríl 2006 / 19:56 / Harpa og Sunna
myndablogg
/
1
Fimmtudagur 16. mars 2006 / 16:31 / Picture entry
myndablogg
/
6
Sunnudagur 05. mars 2006 / 14:56 / Sesar
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, sem fengu að kynnast þér.
Blessuð sé minning allra okkra vina sem látist hafa um aldur fram.
myndablogg
/
4
Miðvikudagur 01. mars 2006 / 20:51 / Picture entry
myndablogg
/
0
Mánudagur 27. febrúar 2006 / 19:36 / Picture entry
myndablogg
/
0
Miðvikudagur 22. febrúar 2006 / 00:12 / Dagur
Dagur, Helga og Binni komu í heimsókn um daginn. Varð auðvitað að taka með myndavélina og smella af nokkrum myndum. Þær eru að finna hér.
Takk fyrir heimsóknina - eruð alltaf velkomin aftur ;)
Ég er farin að sofa... þ.e.a.s. ef ég get sofið fyrir áhyggjum! :S Ekki alveg mitt kvöld í kvöld!
myndablogg
/
2
Mánudagur 20. febrúar 2006 / 19:42 / Fæðingardagur?!
myndablogg
/
0
Miðvikudagur 08. febrúar 2006 / 23:49 / Fleiri myndir!!
loksins kom ég því í verk að skella inn einhverjum myndum af nýja árinu sem kom fyrir löngu! Þær er að finna hérna og endilega kíkjið á þær og kommentið! Sunna, þú færð leyfi til að setja myndir á síðuna ykkar Hörpu ef þú vilt ;) nokkrar sætar af ykkur þarna!! hehehe
myndablogg
/
2
Miðvikudagur 08. febrúar 2006 / 20:01 / myndir!!
Ótrúlegt en satt! Það eru komnar inn myndir!! Þær eru hérna, og endilega skoðiði. Svo langar mig að þakka Svanhildi fyrir að kommenta hjá mér því að það er alltaf frábært að vita hverjir kíkja hingað inn... Og þið sem hafið aldrei kommentað hjá mér megið alveg byrja á því núna!
myndablogg
/
2
Fimmtudagur 02. febrúar 2006 / 16:54 / .
myndablogg
/
0
Sunnudagur 29. janúar 2006 / 15:01 / Trabant
myndablogg
/
1
Fimmtudagur 26. janúar 2006 / 16:32 / Gísli og Kiddi!
myndablogg
/
2
Fimmtudagur 19. janúar 2006 / 12:46 / Daníel Skíði frændi :*
Ef að mig langar einhverntíman að líkjast systur minni, þá er það núna - hún er nefninlega hjá Danna frænda í borginni.. knús til ykkar allra!
myndablogg
/
0
Miðvikudagur 18. janúar 2006 / 14:02 / Gullmolinn mættur á svæðið!
Það er kominn lítill prins hjá Helgu og Binna! Til hamingju elskurnar mínar, þið eruð hetjur :) Fæddur: 18janúar kl 08:55, 17merkur og 56cm!
myndablogg
/
4
Miðvikudagur 18. janúar 2006 / 03:16 / Læri læri - tækifæri?
- alltaf að læra!! -
myndablogg
/
0
Þriðjudagur 10. janúar 2006 / 23:22 / Picture entry
myndablogg
/
3



























