Eftirfarandi eru færslur í flokknum Lífið
Mánudagur 13. apríl 2009 / 10:57 / Fnjóskárdalur - Bleiksmýrardalur - Bárðardalur
Myndir úr ferðinni eru hérna
---
Ingi vakti mig eldsprækur kl 09:00 í gærmorgun, að drepast úr spenning fyrir komandi jeppaferð. Ég var ekki alveg sú hressasta en drullaði mér þó á fætur. Eftir að hafa skolað niður ristuðu brauði og kakói, hent útifötunum í bílinn og reimað á okkur gönguskóna, skelltum við okkur af stað til Akureyrar að tanka og kaupa nesti. Áætlað var að hittast við Leirunesti kl 10:00.
Þegar þangað var komið hittum við Jónsa, á rauðum Cherokee 38", Gunnari á gömlum Patrol 38", Dóra á nýrri Patrol 38" og Magnús sem kom alla leið frá Reykjavík í ferðina, á 46" Crusier trölli!!
Við byrjuðum á nettu ferðalagi inn Fnjóskárdalinn alla leið inn í Bleiksmýrardal. Þar skelltum við okkur yfir Fnjóskánna á tveimur stöðum og gekk það vel, fyrir utan það að ég er alltaf hrædd um að lenda á bólakafi og drukkna þegar við förum yfir svona ár. Þegar við vorum komin lengst inn í dalinn og höfðum engan snjó fundið enn, ákváðum við að snúa við og skella okkur upp skarðið milli Bæjarfjalls og Reits yfir til Bárðardals. Þarna liggur línuvegur meðfram rafmagnsstaurunum og hafði einn okkar (Dóri) farið þarna yfir að sumarlagi. Til þess að komast þangað þurftum við hinsvegar að fara aftur yfir Fnjóskánna á öðrum stað. Gunnar lenti í því óhappi að magalenda á stein út í miðri á! Bílinn sat pikkfastur og vatnið fossaði inn undir dyrnar. Þá mætti Magnús á tröllinu, með Jónsa á toppnum. Anna vippaði sér út fyrir Pattann og náðu þau í sameiningu að festa kaðall milli bíla. Trölli bjargaði málinu þarna meðan við stóðum sveitt með myndavélarnar í landi að smella af :) Eftir þetta ævintýr héldum við áfram sem leið lá yfir í Bárðardalinn
--
Fyrst um sinn var færið algjörlega frábært. Jeppamenn tóku kaffipásu og þá skellti ég undir mig gönguskíðunum og við Villi þeyttumst áfram á skíðunum þar til jeppakarlarnir náðu okkur og Ingi pikkaði mig upp í. Þá tók gamanið við. Upp snarbrattar brekkur eftir þröngum vegi inn á milli trjánna. Veðrið lék þó við okkur og færið var enþá sæmilegt svo að allt gekk eins og í sögu. Þegar við vorum komin nokkuð áleiðis mættum við tveimur fjórhjólatöppum með bilað hjól og ákvað Tröllið þá að snúa við og aðstoða þá með bilaða hjólið niður til byggða. Þar kvöddum við hann eftir góða samveru, aðstoð að ógleymdu samlokugrillinu í skottinu!! Já allt til alls í þessu kvikindi!
---
Þá hófst gamanið af alvöru! Við komumst 4km á 2 klukkutímum, festum okkur trekk í trekk, hnoðuðumst áfram, kipptum hvert í annað og giskuðum hvar línuvegurinn væri staðsettur. Dóri (nýr Patrol) varð fyrir því óhappi að affelga, enda var hann kominn niður fyrir 2 pund (loftið í dekkjunum) og rann niður á hlið. Þá voru góð ráð dýr. Þegar allir hjálpast að ganga hlutirnir nú samt upp og Pattinn var fljótt mættur á dekkið aftur eftir umfelgun og snjómokstur.
---
Þegar við loksins komumst eitthvað áfram sáum við á GPS tækinu að það væri á eða árfarvegur framundan. Þá greip ég til þess ráðs að hringja í Ingvar móðurbróðir sem var búsettur í Bárðardal og þekkti svæðið vel. Hann sagði okkur að halda okkur sunnan megin við línuna því þar kæmumst við yfir ánna. Það var eins og við manninn mælt, þegar við komum yfir ánna og litum norðan meginn við línuna sáum við hengju og svo risastórt gil, sem við hefðum vafalaust hrunið niður í ef frændi hefði ekki aðstoðað okkur! Allt fór þó vel og vorum við komin niður á veg um kl 20:00 og áttum þá eftir að keyra til Akureyrar, klára að dæla í dekkin og svo halda heim á Hauganes. Það var indælis páskasteik sem beið okkar, upphituð í örbylgjuofninum, og voru ferðalangar ekki lengi að gleypa hana í sig eftir langan og strangan dag. Það þarf vart að minnast á það að ég var sofnuð í sófanum hálftíma seinna...
---
Myndir úr ferðinni eru hérna
Mánudagur 13. apríl 2009 / 10:38 / Nýr JEPPI!
Þriðjudaginn 7. apríl fórum við Ingi í Bílabúð Benna og náðum okkur í eitt stykki 38" breyttan Musso-Jeppa, árgerð 2000. Við erum búin að eyða því sem af er af árinu í að skoða eeeendalaust marga jeppa og var þessi algjörlega tilbúinn á fjöllin, með GPS tæki, VHF-talstöð, læstur að framan og aftan, loftdælu á dempurum og skóflu á toppnum ;) Jeppinn ber nafnið VERA DÖGG en hann var skírður með mikilli viðhöfn af fyrsta eiganda og hefur heitið það síðan.
Strax á fimmtudag skelltum við okkur í fyrstu jeppaferðina á Verunni, fórum í samfloti með tveimur öðrum jeppadúddum upp á Snæfellsjökul. ÞVÍLÍK DÝRÐ og geggjuð ferð! Hefðum ekki getað verið heppnari með færi og veður. Yndislegt alveg hreint. Hera naut sýn í klessu og má sjá video af Herunni hérna.
Myndir úr ferðinni eru á Facebook, og hérna.
---
Þegar heim var komið eftir geggjaðann dag tókum við okkur til fyrir norðurlandsför. Við vöknuðum svo snemma á föstudaginn (langa) og drifum okkur af stað. Fyrst skutluðum við Bósa í flug til Vestmannaeyja (hundur í pössun, kemur á óvart?) og sendum svo Heru til Birnu vinkonu þar sem hún er núna í góðu yfirlæti. Villi fékk hinsvegar að sjá norðurlandið með okkur.
Við ákváðum að drolla aðeins á leiðinni norður og kíktum Hvalfjörðinn. Þaðan fórum við svo yfir í Reykholt og komum upp á þjóðveg aftur hjá Baulunni. Beygðum svo á ný út af þjóðveginum hjá Blönduósi, skruppum í kaffi til Ragga bróðurs og þaðan lá leiðin svo til Sauðárkróks og í gegnum sveitina aftur upp á þjóðveg. Á leiðinni suður ætlum við svo að reyna að keyra sem minnst á þjóðveginum og taka maaarga útúrdúra. Það er svo gaman að skoða landið sitt fallega
Örfáar myndir frá Hvalfirði eru hér, og líka nokkrar af Yoko, kisanum hennar Ingu Rutar, og Villa
Lífið
/ Veður
/ kaupæði
/ myndablogg
/
3
Sunnudagur 29. mars 2009 / 20:07 / Hundar, Hestar og Krossarar
Það krefst mikillar athygli að fara út með hund. Stanslaust þarf maður að hafa augun hjá sér og fylgjast með því hvort að fólk er að koma, aðrir hundar, hestar, kettir, krossarar, fjórhjól og svo mætti lengi telja. Hér í Vogunum er ansi mikið af hundafólki. Segja má að í hverju húsi búi 1-2 hundar ásamt eigendum sínum. Þegar Olga vinkona flytur hingað í Vogana fyrir rétt rúmum 5 árum síðan hringir hún í Bæjarskrifstofuna og talar þar við Kristján Bæjarfulltrúa sem gefur leyfi á það að sleppa hundunum lausum á Stapanum sem er svæðið milli Voganna og Njarðvíkur. Þar upp liggur gamall vegur sem er torfarinn og liggur í raun meðfram Reykjanesbrautinni. Við Olga höfum nánast daglega farið með hundana okkar þangað (samtals fjórir) og aldrei orðið fyrir neinu ónáði.
Þriðjudagur 06. janúar 2009 / 15:35 / Gleðilegt árið!
Komið 2009. Hálf ótrúlegt hvað tíminn flýgur hratt. 2009. Tvöþúsundogníu. 2ðús&9.
Já trúi þessu ekki ennþá. Núna er ég að njóta lífsins á Hauganesinu. Akkurat núna sit ég í náttfötunum fyrir framan sjónvarpið, samt er klukkan rétt að slá í fjögur að degi til. Ég er nú samt búin að afreka ýmislegt. Fór í klst göngutúr með hundinn, skellti mér í langt og gott freyðibað, vaskaði upp og ryksugaði húsið. Lífið heldur áfram þó að nýtt ár skelli á!
Ég vildi óska að ég gæti munað allt sem ég gerði árið 2008. Ekkert eitt stendur uppúr nema kannski brúðkaupið hjá Helgu Kristínu og Binna - sem og brúðkaupið hjá Munda og Svanhildi. Rosalega var það gaman!!
Árið 2009 er hinsvegar bjart og gott. Ég hlakka til að komast heim í Vogana og fá lífið aftur í fastar skorður. Ég tek 40 einingar í háskólanum sem er eiginlega 120% nám. Svo þarf að undirbúa ýmislegt í félagslífinu hjá Padeia þar sem ég er formaður (félag uppeldis-og menntunarfræðinema við HÍ.) Einnig ætla ég mér að sækja eins mörg hundanámskeið og ég get, taka Hlýðni prófið með Villa og skella okkur svo af fullum krafti í hundafimina. Ég ætla mér einnig að taka upp klikkerinn og fara að æfa Villa meira með honum - draga jafnvel Olgu vinkonu úr Vogunum með mér í vitleysuna :)
Ingi heldur áfram í fjarnámi en fer ekki í staðnám eins og var upphaflega hugmyndin. Það bara virkar ekki eins og efnahagurinn er núna að sleppa góðu plássi um borð í uppsjávarskipi eins og Aðalsteini Jónssyni. Ég neita ekki að ég væri alveg til í að fá hann heim að loknum vinnudegi, og kúra með honum í sófanum, fara í göngutúra og hrjóta svo í kór hverja einustu nótt. Eeeenn það þarf líka að borga hina ýmsu reikninga, fæða sig og klæða og námslánin mín duga skammt fyrir tvo fullorðna einstaklinga, tvo spræka stráka og hund.
----
Eftir að hafa keyrt landið þvert og endilagt í jólafríinu gáfum við Ingi okkur það loforð að næst þegar stefndi á ferðalag lengra en Seltjarnarnes myndum við vera búin að kaupa okkur jeppa! Þvílíkt og annað eins. Ímyndið ykkur fjögurra manna fjölskyldu með hund, farangur fyrir tvær vikur, útiföt, hundadót, hundabúr, tölvutöskur, skóladót, jólagjafir, nesti... þarf ég að segja meira?? Bíllinn var svo smekkfullur að ég sat í indjánastellingu eða með fæturnar upp á mælaborðinu alla leið þar sem gólfið hjá mér var troðið af töskum! Ferðalagið gekk þó furðulega vel og strákarnir virtust ekkert kippa sér upp við draslið.
Ég keyri svo ein suður á bóginn næstu helgi og ætla að stoppa hjá Ragga Bróður og Söndru í Efri-Mýrum. Einnig er stefnan tekin á að stoppa í Mosfellsbæ og klára samningsmálin mín þar svo Villi verði að mestum hluta minn. Það er ekki fræðilegur séns að ég muni nokkurntímann skila þessum hundi - og ef ég þarf einhverra hluta vegna að flytja úr landi kemur hann klárlega með! Ég hef aldrei kynnst svona yndislegu dýri sem elskar alla og allir elska hann.
---
Vonandi verður árið 2009 jafn spennandi og skemmtilegt fyrir ykkur og ég veit að það verður fyrir mig.
Gleðilegt ár!
Mánudagur 13. október 2008 / 23:17 / Kröfuhörð..
Ég held ég sé kröfuhörð. Stundum er ég einum of kröfuhörð, stundum bara smá... stundum krefst ég ekki nokkurs hluts. Sumir gera það að verkum að ég krefst meira af þeim en öðrum. Ef ég er t.d. lasin krefst ég þess ósjálfrátt að Baddý systir athugi með mig. Ef ég kem ekki í skólann, krefst ég þess í hljóði að skólafélagar sendi mér sms eða jafnvel hringi til að reka mig á fætur.
Flestar kröfur þær sem ég er með, færi ég ekki í orð. Hinsvegar berjast þær um inn í mér. Ég krefst mikils - en hvernig get ég gert það ef ég segi aldrei hvað flýtur um í hausnum á mér?
Gott dæmi er minn ástkæri Ingi, sem átti sér einskis ills von þegar hann kynntist ungri snót frá Hauganesi. Ljúf og góð var hún í byrjun. Núna er hinsvegar annað komið á daginn...
Ég krefst þess að hann hringi í mig á hverjum degi þegar hann er á sjónum. Hvort sem hann er þreyttur, á frívakt, lasinn eða hreinlega sofandi. Hringja skal hann!
Þegar hann hefur uppfyllt þessa sjúklegu þráhyggju mína - krefst ég þess að hann sendi mér sms af siminn.is þegar hann er að vinna. Bara svona til að minna á sig. Svo krefst ég þess líka að fá ástarjátningu í rafrænu formi amk 1x í viku. Lágmark! Svo væri nú ekki verra ef hann myndi panta blóm og láta senda mér - Það þarf ekkert að gerast oft sko, en væri vissulega mjög ánægjulegt! Mér finnst líka svo gaman að fá blóm, setja í vasa og fegra heimilið mitt um stund.
Ég geri mér samt grein fyrir því (enn sem komið er) að stundum verð ég bara að sætta mig við "I love you" í gegnum símtólið í lok hvers samtals. Að ég verð að slaka á kröfunum, anda inn um nefið og út um munninn... eða var það öfugt??
Fimmtudagur 09. október 2008 / 18:27 / Kreppan og allt það
Mig langar rosalega að blogga án þess að tala um kreppuna, en það er eiginlega ekki hægt.
Ég verð eiginlega að viðurkenna að þetta hræðir mig pínu. Það huggar mig samt sem áður að því veikari sem krónan verður, því hærri verða launin hjá Inga. Ekki að námslánin mín hækki - óneinei, lífið er ekki svo gott. Ég skil ekkert í því sem gengur á því allt gerist svo hratt. Varla búin að meðtaka einn hlut þegar sá næsti gerist og breytir öllu. Ég þakka bara guði fyrir að íbúðarlánin á Hrísalundinum hafa ekki hækkað neitt af ráði, sem gerir það að verkum að leigjendurnir halda sömu leigunni og vilja því vera áfram. Fjúkket. Nenni sko ekki að standa í því aftur að finna leigjendur. Lánið á bílnum mínum á hinsvegar eftir að koma í ljós því ég tók smá í erlendri mynt, spurning hvernig það fer. Ég held samt að ég hafi losað mig við Rúfus og Rex á hárréttum tíma. Mjög ánægð með það.
Í dag fór Hera á Voffaborg og skemmti sér þar alveg konunglega með hinum hundunum. Byrjaði reyndar á því að setja upp rosalegan kamb og sýna sinn innri Boxer, en svo skyndilega áttaði hún sig á því að þetta væri "partypleis" og hljóp um eins og brjálæðingur. Ég er líka aðeins búin að vinna í að klikka-hana (nota klikker til að þjálfa hana til að gera ýmislegt) og núna getur hún lagað til dótið sitt (Semsagt gengið frá dóti í körfu) og gefið "high five" sem er alveg hreint magnað. Hún er undrahundur!
Annars eru afskaplega spennandi tímar framundan sem ég á virkilega erfitt með að bíða eftir. Erfiðast af öllu er þó að bíða eftir að Ingi komi heim af sjónum, ég tel alveg niður dagana. Þessi Noregardvöl er ekki í uppáhaldi hjá mér ef ég á að segja eins og er! ;)
Best að halda áfram að skúra og skrúbba. Eins gott að hafa allt hreint og fínt áður en að Guðrún Veiga mætir á svæðið á morgun hehehe
Yfir&Út
Föstudagur 01. ágúst 2008 / 23:57 / Hljótt...
Það er undarlega hljótt í húsinu. Ég sit í kolniðamyrkri að horfa á mynd inní stofu. Hundurinn fékk í fyrsta sinn að koma uppí sófa og þjónar nú tilgangi armpúða fyrir hægri handlegg. Henni virðist líka hlutverkið vel og hrýtur eins og það sé enginn morgundagurinn. Húsið er tómlegt án Inga og enþá tómlegra án öskranna, grátursins, hlátursins og leiksins í strákunum hans. Snjólaug er að vinna 19-7 þessa helgina svo ég er bara ein með Trixie.
Ég verð samt að viðurkenna að mér finnst þetta gott. Ekki misskilja mig, ég gæfi annað nýrað fyrir að hafa Inga hérna hjá mér. Þögnin er samt svo góð. Núna skil ég hvað pabbi var að tala um þegar ég var unglingur (fyrir örfáum árum síðan). Hann var sífellt að skammast yfir því að ég hafði stanslausan hávaða í kringum mig; sjónvarpið, útvarpið, síminn, syngjandi, blístrandi...you name it. Þögnin er mikils virði og ég skil það núna.
Í kvöld ætla ég að njóta þess að vera ein, njóta þess að vera hamingjusöm og eiga yndislegt líf, frábærann kærasta, æðislega stjúpsyni, yndislega fjölskyldu og bestasta hund í heimi. :)
Fimmtudagur 12. júní 2008 / 22:18 / Garðavinna
Það er ansi mikil þögn í Mánagötunni núna. Strákarnir fóru til mömmu sinnar í dag og Snjólaug frænka Inga sem leigir hérna hjá okkur fór suður í viku. Frekar skrítið að vera svona ein í kotinu. Allt í einu eru tveir ærslabelgir farnir og Bósi, hundurinn, líka. Get samt ekki neitað því að það var ljúft að þurfa ekki að hugsa um kvöldmat, bursta tennur, þvo litla kroppa með viðeigandi "legg'í'lófa", koma í bólið og syngja "Dvel ég í draumahöll". Þess í stað unnum við í garðinum til rúmlega átta (heimanjólinn úr beðinu að framann farinn mamma mín, laaaangt út fyrir garðinn!), fórum með garðúrganginn á haugana og fengum okkur svo Quiznos. Aðeins að njóta þess að þurfa ekki að malla mat ;)
Hérna er allt að komast í stand. Bara eftir að festa upp nokkrar myndir og þá er húsið orðið fínt. Væri reyndar alveg til í að losna við þennan blessaða hornsófa úr stofunni, en það kemur. Í augnablikinu erum við með sæti fyrir svona 100 manns í stofunni, ef einhverjum vantar veislustað!
----
Dagarnir mínir fara semsagt í vinnu frá 8-15:30 (vinn stutt meðan strákarnir eru hjá okkur, annars vinn ég til amk 6) svo höfum við eytt restinni af deginum í garðinum þar sem strákarnir og hundarnir njóta sín í botn. Svo er kvöldmatur, koma öllum í bólið og svo höfum við venjulega farið aftur út í garð að dúlla okkur. Yndislegt alveg hreint - enda er veðrið búið að sýna sínar bestu hliðar undanfarið.
---
Það er svo gaman í vinnunni að ég hefði eiginlega ekki getað trúað því. Kannski er ég á rangri hillu - ætti að læra skrúðgarðyrkju! Mér finnst yndislegt að eyða deginum úti við. Raka, mála, kantskera, bera á áburð, hreinsa úr beðum og ýmislegt annað dundur. Frábært að fá að vera úti daglangt og ekki skemmir fyrir að unglingarnir hérna eru hver öðrum duglegri. Ekkert hangs-rugl í gangi og allir gera sitt besta... oftast.
--
Núna bíð ég bara eftir að fá hringingar frá vinum og ættingjum sem vilja gera sér ferð til Reyðarfjarðar - eða eiga bara leið hjá í sumarfríinu!!
---
Langar í lokinn að monta mig pínu - sjáiði muninn? Og þetta er sko EKKI mynd af smáatriðinum sem skipta svo miklu máli.
Garðurinn á mánudaginn (samt yfirlýst mynd, sorry það!)

Garðurinn í gærkvöldi

---
og svo sætustu ferfætlingar í heimi

p.s. sjóðheitarmyndir hérna
Flutningar
/ Lífið
/ Lífstíll og matur
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
2
Þriðjudagur 13. maí 2008 / 13:45 / Afmæli og prófin búin!
Takk allir fyrir afmæliskveðjurnar. Hafði varla undan að taka á móti sms skilaboðum, og fékk svo líka nokkur í gær frá gleymna fólkinu ;) Svo fékk ég líka kveðjur frá ótrúlegasta fólki og þakka ég öllum bara kærlega fyrir að muna eftir mér.
---
Prófin kláruðust í morgun. endaði á aðferðafræði, rosa stuð - vona að ég hafi náð! (allir að krossleggja fingur og tær!). Fór norður á laugardaginn í afmæli til Brynjars og breyttist það óvænt í brúðkaup! Ég fékk reyndar að vita það fyrirfram því ég ætlaði sko EKKI að fara norður á laugardegi bara fyrir afmælið hans Binna (þó ég elski þig alveg óendanlega mikið Binni minn..) þannig að Helga greyið neyddist til að segja mér og ég flaug norður med de samme! Ohh þetta var svo fallegt og ég skældi svo mikið með henni Aníku minni. Dagur var svo krúttlegur og Helga og Binni svo falleg saman. Til hamingju elskurnar mínar! Fékk brúðkaupið svona næstum-því í afmælisgjöf ;) Það var samt svo gott að sofa eina nótt í rúmminu hennar Baddýjar heima á Hauganesi. Hefði nú samt sofið mun betur ef ég hefði ekki skellt mér í ljós á föstudeginum og BRUNNIÐ svona líka svakalega á bakinu (þar sem ég náði ekki að setja vörn!) og smá í andlitinu líka. Þetta er allt að lagast, en enþá smá vont!
---
Eftir norðurferðina skellti ég mér til Akraness og naut þess í klessu að dvelja í góðu yfirlæti hjá Akranes-mömmunni minni henni Huldu (mamma Ólafar). Takk fyrir mig mæðgur!
Afmælisdagurinn fór semsagt í það að sitja inní FVA (framhaldsskólinn á Akranesi) og læra í aðferðafræði. Gaman gaman!
---
Jæja, ég er að vinna í H10 núna þannig að ég ætla að reyna að gera eitthvað gáfulegt eins og þrífa tækin eða skella mér bara á tækin sjálf ;) Takk aftur allir
Þriðjudagur 15. apríl 2008 / 23:18 / Ný vinna - nýtt upphaf?!
Jæja. Ég byrjaði nokkurnveginn í nýju vinnunni í dag. Ætli það sé ekki bara best að skella inn einni mynd af mér í vinnugallanum ;)

Jább. Ég er farin að vinna í Voffaborg sem er hundaleikskóli/hundahótel. Lýst rosalega vel á þetta og hentar mér fullkomlega! Ég er komin með íbúð í Grafarholtinu og er því bara svona ca 10mín í vinnuna sem er í Víðidalnum. Ég er líka komin með aukavinnu í H10 sport og spa þannig að nóg verður að gera hjá mér í sumar! Því miður byrja ég ábyggilega að vinna af fullum krafti strax eftir prófin, eða 15 maí, svo ég veit ekki hvort ég kem eitthvað norður á næstunni :( Aldrei að vita samt sem áður hvað mér dettur í hug að gera.
---
Árin eru farin að setja mark sitt á Rúfus greyið sem, eftir velútiláta ristilspeglun framkvæmd af Gunnari Smára, þarf hreinlega að skipta um ristilinn og hringvöðva. S.s. pústkerfið er eitthvað orðið lélegt og þarf að skipta um allt heila klabbið. Ekki langt síðan ég lét skipta um kúplingu,
og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildarmanni að hugsanlega þyrfti líka að skipta um bremsuklossa.
Iss núna er sko gott að geta bara hækkað í græjunum - þá hverfa öll svona vandamál :D
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/
7
Sunnudagur 13. apríl 2008 / 11:15 / Skjótt skipast veður í lofti
Jæja.... miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarið. Breytingar sem ég vildi ekki skrifa um fyrr en allir væru búnir að frétta það sem standa mér næst. Ég og Ingi hættum nefninlega saman fyrir ekki svo löngu síðan og ákváðum að vera bara vinir í sumar og sjá svo til hvað verður.
Ég hinsvegar ætla að vera í borginni í sumar (sorry Mamma&Pabbi, Helga, Aníka, Freyja, Damma, Jói, Karen frænka.....) og hefur verið voðalega lítið mál fyrir mig að fá vinnu. Eiginlega þarf ég að velja! Ég er að fara í eitt viðtal í dag kl 18, annað á þriðjudaginn kl 15 og þriðja á miðvikudaginn kl ? (man það ekki aaalveg.. Afhverju setti ég það ekki inní Google Calendar?!) Mig hinsvegar langar mest í vinnuna sem ég er að tjékka á í dag. Ef þeim lýst vel á mig og mig á þá -- þá verður ekki aftur snúið held ég :) Segi ykkur seinna hvaða vinna það er!
---
Annars er ég komin í smá aukadjobb og það er í H10-Sport og Spa. Nýja líkamsræktarstöðin í Kórnum, Kópavogi.
Þar verð ég bara aukamanneskja sem kíki við annað slagið og tek eina og eina vakt. Það verður semsagt nóg að gera hjá mér í sumar og ég sé nú ekki fram á mikið sumarfrí, enda veitir manni svosem ekki af því að hafa nóg milli handanna næsta vetur!!
----
Ég er búin að vera dugleg að fara út á hverjum degi með Trixie mína, og er að gæla við þá hugmynd að hafa hana í sumar meðan eigandinn er á sjó. Hún er svo mikill gullmoli þessi elska, og fer afskaplega lítið fyrir henni, svona miðað við að hún er 46kg!! Ótrúleg brussa svosem, en með þvílíkt og annað eins jafnaðargeð! Dýrka þennan hund. Ef ég fæ vinnuna sem ég vonast til að fá þá get ég líka haft hana með á hverjum degi sem munar miklu. Annars er hún rúmlega 2ja ára og vön því að vera ein heima. Ekkert hvolpalífsvesen :)
----
Skólinn gengur sinn vanagang. Brjálað að gera núna, enda er hann búinn núna á föstudaginn, svo eru það bara prófin 9 maí og 14 maí (akkurat sitthvorumegin við afmælið mitt, frábært!)
Er að vinna í ritgerð sem þarf að skila á föstudaginn, lagfæra skýrslu fyrir 24apríl og ritgerð 2 maí. BissíBee verð ég að segja!
---
Jæja. Þetta voru örugglega miklar fréttir fyrir ykkur að innbyrgða, svo ég læt þetta duga í bili.
Knús á línuna!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/
5
Föstudagur 28. mars 2008 / 16:07 / Nickarinn minn
Fyrir þá sem ekki vita þá tók ég Nick aftur til mín á miðvikudaginn þar sem eigendur hans gátu ekki haft hann lengur. Ég, í samráði við þau, tók þá ákvörðun að best væri að leyfa Nick bara að sofa svefni hinna réttlátu og þá gæti ég haldið áfram með lífið vitandi af honum á góðum stað.
Stelpa af hundaspjallinu hafði samband við mig og vildi endilega hjálpa mér að finna handa honum framtíðarheimili, en ég var nú ekki alltof bjartsýn á það, enda er hann búinn að flakka alltof mikið á milli heimila á sinni stuttu ævi. Ég var alveg orðin sannfærð í því að svæfing væri það eina í stöðunni - sérstaklega eftir að hafa fengið nokkur virkilega heimskuleg símtöl frá fólki sem vildi eeeendilega fá sér hund, en vissi greinilega ekkert um hunda!
Ég pantaði því tíma fyrir Nick í svæfingu í morgun kl 10.
---
Nóttin var afskaplega erfið. Ég lá með Nick hrjótandi við hliðiná mér, strjúkandi honum og horfði á hvert einasta smáatriði í andlitinu hans svo ég myndi nú aldrei gleyma neinu. Ég skældi og brosti til skiptist. Brosti yfir þeim stutta tíma sem við höfum átt saman, sem var frábær tími. Brosti yfir öllu því sem hann hefur gefið mér í gegnum tíðina og þakkaði honum með kossi á kollinn fyrir allt saman. Ég velti fyrir mér afhverju ég þyrfti að taka svona ákvörðun - var bókstaflega með líf hans í höndunum en fannst ég stöðugt rekast á vegg og sá enga aðra lausn. Enginn af þeim sem hafa haft samband við mig hefðu getað ráðið við hann. Ég lagði hendina yfir hann eins og ég hef gert svo oft áður og sofnaði með tárin í augunum.
---
Í morgun þegar ég vaknaði langaði mig helst til að sofa daginn af mér. Sleppa því að fara með Nick í Grafarholtið og hafa hann hjá mér undir sænginni allann daginn (já hann sefur uppí Embarassed ). En maður getur víst ekki flúið raunveruleikann endalaust svo ég drattaðist á lappir um 9leytið, fór út með Nick í smá göngu og svo inn, tók mig til, hringdi uppí Víðidal og spurðist fyrir um Brennsluna og hringdi svo í Grafarholtið og talaði við Islandus til að fá ýmsa hluti á hreint. Það var hreinlega erfitt að tala fyrir grátkökkinum sem var í hálsinum mínum. Ég lagði svo í hann, með tárin rennandi niður kinnarnar. Á leiðinni hringir síminn. Ég var ekki beint tilbúin til að svara en ákvað að láta af slag standa þar sem ég þekki ekki númer. Í ljós kom að þetta var yndisleg hundakona sem býr í Keflavík og vildi endilega fá að hitta Nick. Eftir stutt spjall ákvað ég að taka sénsinn og snéri við á punktinum, grátandi af gleði í þetta skiptið, og brunaði til Keflavíkur.
---
Til að gera langa sögu stutta, liggur Nick núna uppí sófa hjá nýja eigandanum, alveg búin á því eftir að hafa leikið við nýju "systur sína" sem heitir Röskva.
---
Ég er svo ánægð að orð fá því ekki lýst! Þvílíkar tilfinningasveiflur hef ég ekki upplifað lengi. Alveg frá því að vera þunglynd af sorg yfir í maníska gleði og hamingju. Nick á allt það besta skilið og þessi nýji eigandi virðist vera meira en tilbúin til að gefa honum allan þann tíma sem hann þarf. Hún kann á klikkerinn (sem Nick elskar) og er bara frábær í alla staði.
---
Svo sannarlega var þetta kraftaverka símtal á síðustu mínútu - ef hún hefði ákveðið að fá sér kaffibolla áður en hún hringdi hefði það verið of seint.
---
Skelli hérna inn mynd af drengnum - þvílíkur gullmoli!

Þriðjudagur 25. mars 2008 / 21:46 / Ísland í dag..
Fékk tölvupóst frá Baddý systir sem hljóðaði svo:
Tveir dómar sama dag á sama landinu.
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi,
þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun
gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar *sex
hundruð þúsund krónur* í miskabætur. --
----Hæstiréttur hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að
greiða Auði Laxness, ekkju Halldórs Laxness, *eina milljón og fimm
hundruð þúsund* í fébætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af
ævisögu Halldórs. Þá er Hannes Hólmsteinn dæmdur til að greiða 1,6
milljónir í málskostnað.
Hvor konan ætli hafi þjáðst meira, andlega og líkamlega?
--
Ekki nóg með það, heldur fletti ég uppá fyrri dómnum inná www.domstolar.is og fann þar allan málaflutninginn. Strákurinn er kærður fyrir:
„fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og nauðgun, aðfaranótt laugardagsins 28. maí 2007, með því að hafa farið inn í íbúð við A-braut, Laugarvatni, þar sem unnusta hans, X, var gestkomandi, togað hana út úr íbúðinni og inní bifreið sem hann ók að Gjábakkavegi, dregið hana út úr bifreiðinni og slegið hana í andlit eða líkama. Síðan að hafa sett X aftur inn í bifreiðina, ekið að B-braut 5, Laugarvatni, dregið hana, m.a. á hárinu, út úr bifreiðinni, eftir möl og gangstétt og upp stiga, inní íbúð hennar á 2. hæð hússins, inn á salerni, lokað hurðinni og veist að henni þar með ofbeldi, afklætt hana og sett fingur upp í kynfæri hennar, og við það sumpart notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar, slegið hana ítrekað í andlit og líkama, m.a. hnefahöggi í andlit sem varð til þess að hún skall utan í vegg með höfuðið. Hlaut X glóðarauga og mar, rispur og bólgur í andlit, mar á enni og á höfði, eymsl í hársvörð og skrámur og mar víðs vegar um líkamann."
---
Ekki nóg með það heldur skylst mér á því sem ég las þarna inni að þessi drengur ætlaði að flytja til stúlkunnar viku seinna - og varð því virkilega sár, skiljanlega, þegar hann gengur inná hana í faðmlögum við annan mann. Hann nánast dregur hana útúr þeirri íbúð því hún var of drukkin til að ganga sjálf. Fer með hana í íbúð hennar og hjálpar henni í sturtu, þar sem
"Hann hefði skrúfað frá sturtunni og þrifið kæranda. Ákærði kvaðst hafa misst algjörlega stjórn á sér inni á salerninu... og hann hafi því slegið kæranda ítrekað án þess að muna nákvæmlega hvernig hann gerði það"
---
Ég er hreint út sagt orðlaus. Þvílík vitleysa. Það á enginn skilið að vera dreginn á hárinu, lamin til óbóta í sturtunni og margir mun verri hlutir. HVAR ER UPPELDIÐ?!
Mánudagur 24. mars 2008 / 19:35 / Svona er Ísland í dag!
Það er erfitt að trúa þessu, en á okkar litla fallega Íslandi fer fram hvolpaframleiðsla! Ég gæti skrifað mjög svo langan pistil um þetta mál, en stór orð geta dregið dilk á eftir sér og því ætla ég bara að henda hérna inn myndbandi sem ég fann á youtube.
Góða "skemmtun"
Sunnudagur 09. mars 2008 / 15:49 / Life is like a box of chocolate...
... you never know which bite your going to get!
----
Viðurkenni fúslega að ég hef undanfarið opnað blogg-forritið á netinu nokkrum sinnum, og lokað því jafn harðan aftur.Almennt blogg-andleysi í gangi. Ég er líka búin að hafa nóg að gera. Fór austur 28.feb og suður aftur 3.mars og greip Inga g strákana hans með. Keyrðum frá Djúpavogi og það tók slétta 8 klst með viðeigandi "ég þarf að pissa"-stoppum. Svo var það bara skólinn og móðurhlutverkið í vikunni. Farið í Húsdýragarðinn, í sund og niður á tjörn að gefa "endunum" brauð. Rosa stuð og skemmtileg heit. Vegna þessa er ég búin að vanrækja alla mína vini og Jói greyið búinn að léttast um nokkur kíló, enda enginn að elda ofaní greyið. (Held hann hafi nú samt bara haft gott af því - segi svona hehe)
-----
Fór með Frostaskjóli (félagsmiðstöðin þar sem ég var í verknámi) á Samfés-ball og söngkeppni um helgina. 5000 unglingar samankomnir í Laugardalshöllinni. Getið rétt ímyndað ykkur hvað ég var þreytt þegar ég kom heim á rúmlega miðnætti á föstudagskvöldið. Leið eins og allir þessir 5000 unglingar hefðu traðkað á mér, flestir á alltof háum pinnahælum. Karen frænka ásamt Sunnu og Hörpu sungu "O happy day" og stóðu sig gríðarlega vel! Myndirnar eru því miður á austurleið í myndavélinni hans Inga, en ég græja þær við fyrsta tækifæri.
---
Núna sit ég heima í Mávahlíðinni, að borða harðfisk frá Darra (namminamm) og ætti að vera að læra undir lokapróf í Þroska barna og unglinga sem verður á miðvikudaginn. Æji ég er svo slök fyrir þetta próf að ég er farin að hafa áhyggjur af sjálfri mér! Þetta er agalegt. Birkir ætlar að koma eftir smá stund og veita mér andlegan lærdóms-innblástur og svo verður bara lesið fram á kvöld!
---
Ég var svo sorgmædd þegar ég þurfti að kveðja Inga og strákana í morgun að ég brunaði nánast beint uppí Smáralind undir því yfirskyni að þurfa að kaupa mér hleðslutæki fyrir símann (þar sem hitt er örugglega enþá í sambandi í stofunni hjá G.Veigu og Gumma! Mátt endilega senda mér það væan mín!) en í raun og veru kallaði peysa í Vera Moda svo gríðarlega sterkt á mig, að ég leyfði mér, í sorginni auðvitað, að splæsa á sjálfa mig einni peysu. Núna líður mér líka miklu betur :)
Mánudagur 25. febrúar 2008 / 15:12 / Loðnan fundin!
Feluleikurinn við loðnuna virðist vera á enda. Skrítið hvað þetta blogg virðist smám saman vera að breytast í Fiskifréttir ;) en jæja, þetta er ágætis frétt fyrir íslensku sjávarþorpin þar sem tap vegna loðnunar var talið nema um 6 milljörðum um land allt. Ekki gott. Aðalsteinn Jónsson, skipið hans Inga, lenti í lukkupottinum og hífði 1500tonnum í einu kasti. Þeir gáfu einhverju öðru skipi hluta af þessu og eru núna á landleið (eða mér skilst af "örvæntingarfullu húsfreyjunni" á Reyðarfirði að þeir séu komnir inní fjörðinn) með 600tonn í mallanum.Ég er svo óendanlega ánægð fyrir þeirra hönd. Vonandi verður banninu aflétt og þeir geta farið aftur að fiska eftir að hafa unnið þennan afla, fryst og landað.
-- Vona nú samt sem áður að Ingi fari núna í langt og gott frí (allavega 2 vikur) svo ég fá nú að hitta hann eitthvað! ;) Hinir (t.d. Gummi), geta bara séð um þetta sjálfir! :D
---
Af mér er annars það að frétta að ég er á fullu að læra undir próf, með öllu sem því fylgir, nammiát (er samt voða róleg í því) engin rækt né önnur hreyfing nema auðvitað fingraslátturinn góði á lyklaborðið og fáránlegar svefnvenjur. Prófið er kl 08:20 á morgun svo þessu fer að ljúka. Prófið sem ég er að fara í er tölfræðipróf og þeir sem þekkja mig vita að stærðfræði er ekki mín sterkasta hlið, en aldrei að vita nema það breytist hér með :) Vona það allavega og ætla svo sannarlega að gera mitt allra, allra besta.
Fimmtudagur 21. febrúar 2008 / 20:03 / Niðurskurður?
Á morgnanna vakna ég við Bjartmar Guðlaugs syngja:
"Sem dæmi um góðan dag má nefna daginn í dag, fuglar himins syngja lífinu lag!"
Það er gott að vakna við þetta lag, ég hef meira að segja vaknað syngjandi þetta stef. Ólöf er vitni um það ;)
Mánudagurinn var samt sem áður ekki góður dagur. Ég hringdi í Svæðisskrifstofu Málefna Fatlaðra á Reykjanesi og spurðist fyrir afhverju ég hafði ekki fengið útborgað. Símadaman gat ekki svarað mér og tilkynnti að Ásta, tengiliðurinn minn, myndi hringja fljótlega. Ég nýtti tímann og hringdi í uppáhaldsþjónustufulltrúann minn og hún fór yfir reikningana mína. Hafði ekkert fengið útborgað í febrúar, né janúar! Ásta hringdi stuttu seinna og sagði mér að vegna niðurskurðar væri ekki búið að endurnýja samningana mína sem stuðningsfjölskylda Katrínar, og óvíst að það yrði gert! S.s. Katrín, sem er í efsta fötlunarflokki, ætti hugsanlega að missa stuðningssólarhringana sína þrjá, og höfðu þau hjá SMFR ekki látið kóng né prest vita af þessum möguleika og var ég því búin að starfa samningslaus/greiðslulaus í tvo mánuði!!
Ég var svo reið að ég hringdi aftur í þjónustufulltrúann minn og lét gossa úr skálum reiðinnar. Engar áhyggjur, þjónustufulltrúinn er mamma - og mamma er með ansi stór eyru sem eru best að hlusta, og ansi breitt bak til að þola áhyggjur manns.
Sverrir, stjúpi Katrínar, hringdi í mig í dag og sagði mér það að nú væri verið að bíða eftir svari frá félagsmálaráðuneytinu um aukin fjárframlög til SMFR til að geta greitt fyrir stuðningsfjölskyldur.
Ég get alveg sagt ykkur það, að ef aukin fjárframlög verða ekki veitt, þá verður fjandinn laus.
Því miður hef ég ekki tölu yfir þá sem nýta sér stuðningsfjölskyldu á vegum SMFR, en þetta eru allt foreldrar langveikra/fatlaðra barna sem virkilega þurfa á hvíldinni að halda, sem og börnin að komast í nýtt og endurnærandi umhverfi.
Ég held að þessir plebbar í félagsmálaráðuneytinu ættu að prófa að hafa Katrínu eða annað sambærilegt barn inná heimili sínu (ásamt öllum þeim hjálpartækjum sem fötluðum börnum fylgir oftar en ekki) í eina helgi, og þá skilja þeir nákvæmlega hversu mikilvægt þetta er fyrir fjölskyldurnar og barnið.
---
Þetta fær mig til að rifja upp barninginn sem við stóðum í, við Sandra, til að fá ferðarúm fyrir Katrínu. Það er svo ótrúlega leiðinlegt, að allt sem viðkemur fötluðum börnum þurfi að kosta svona gríðarlega mikla frekju, orku, og stöðugt suð og nagg í ráðamönnum.
Foreldrar vilja ekkert frekar en að börnum sínum líði vel, hvort sem þau eru fötluð eða heilbrigð. Það að eignast fatlað barn þýðir því miður að barnið þarf hugsanlega hjólastól sem passar, sérstakan bílstól, sérstakan matarstól og sérstaka baðaðstöðu/svefnaðstöðu. Þetta er samt ekki eitthvað sem hægt er að "redda einn, tveir og þrír". Þetta kostar milljón símtöl, heimsóknir frá hinum og þessum sem taka út aðstæður, greiningu á greiningastöð, staðfestingu á fötlun frá lækni að ógleymdum heimsóknum til tryggingarstofnunar og hjálpatækjastofnunarinnar. Í sumum tilfellum þarf meira að segja að hanna og sérútbúa hluti, eins og við gerðum með ferðarúmið hennar Katrínar.
---
Af hverju þarf þetta að vera svona erfitt? Af hverju er ekki bara hægt að hlusta betur á foreldra sem þekkja börnin sín og þeirra þarfir betur en nokkur starfsmaður á félagssviðinu?
Hversvegna þarf að vera barningur að fá lífsnauðsynlega hluti eins og sérútbúið ferðarúm svo barn geti notið lífsins til fulls?
Lítur ríkisstjórnin á þetta sem "peningaeyðslu" og flokkar þetta í sama hóp og öryrkja og geðsjúka.. s.s. neðst á forgangslistann?
Þriðjudagur 19. febrúar 2008 / 00:43 / Afmælisbörn mánaðarins :)
Í þessum mánuði eiga nokkrir velvaldir vinir mínir og fjölskyldumeðlimir afmæli. Birti ég hér myndir þeim örugglega til mikillar gleði. Allir orðnir ári eldri, lífsreyndari og þroskaðri. Til hamingju!

Dagný Anna bróðurdóttir, með Emblu litlu systir sína, Til hamingju með afmælið Dagný mín!

Birkir Brestur - glæsilegur raksturinn sem ég framkvæmdi um daginn! Haha
Til hamingju með afmælið gamli brestur.

Sandra mágkona með Emblu sína. Embla á einmitt fyrsta afmælið sitt í næsta mánuði! :) Til hamingju Sandra mín!

Síðust, en alls ekki síst! Helga vinkona - sú eina sem virðist ekkert þroskast með árunum :P Hehehe, Til hamingju Helga mín, og leiðinlegt að hafa ekki getað knúsað þig á afmælisdaginn sjálfan... sakna þín!
Þriðjudagur 19. febrúar 2008 / 00:21 / Martröð!
Ég vaknaði upp við slæma martröð í nótt. Já bókstaflega. Slæm martröð. Svaf mjög illa og vaknaði trekk í trekk þegar eitthvað slæmt gerðist í draumaheiminum. Þetta var svona martröð sem eltir mann, þið vitið, svona þar sem maður sofnar aftur og heldur áfram að dreyma sömu vitleysuna! Þetta endaði ekki betur en svo að ég vaknaði rétt rúmlega 5 í nótt með tárin í augunum og öskrið á vörunum. Já "vondi karlinn" var að fela sig inní fataskáp og kíkti útúr honum með ógeðslegt augnaráð og glott á vörum.
Ég barðist við tárin (og öskrið sem vildi sleppa út) ákvað að taka mig saman í andlitinu og haga mér eins og sú fullorðna og þroskaða manneskja sem ég er.... svo ég tók upp símann og hringdi í Jóa.
Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf frammúr, þannig að Jói kom með koddann sinn yfir til mín og steinsvaf við hlið mér... á meðan ég starði útí loftið og reyndi að hugsa um hamingjusamar stundir í lífi mínu. Að lokum heimsótti Óli Lokbrá mig og dreifi yfir mig svefn-dufti og ég svaf vært og rótt. Vaknaði samt við aðra martröð. Sú var víst í raunveruleikanum. Síminn (þessi elska) varð straumlaus í nótt svo að hann hringdi ekki klukkan 10 eins og hann átti að gera, heldur steinsváfum við fram að hádegi!! Enginn skóli í dag svo þetta slapp.
--
Ég vona heitt og innilega að í nótt dreymi mig regnboga og blóm...
Sunnudagur 10. febrúar 2008 / 18:41 / Breyttir tímar
Mér finnst svo skrítið hvað ein ákvörðun getur breytt miklu. Stundum kemur það fyrir að ákvörðun er tekin fyrir mann, hvort sem maður vill það eða ekki, og lífið tekur U-beygju. Í mínu tilfelli tók Þorsteinn afdrifaríka ákvörðun sem ég var ekki sátt við á sínum tíma. Í dag er ég hinsvegar örugg um að þetta hafi hárrétt hjá honum og hugsanlega ákvörðun sem ég hafði ekki kjark í að taka sjálf. Ég fór að hugsa um þetta í gærkvöldi, þar sem ég sat í litlu kytrunni minni, að skrifa ritgerð með Ólöfu og Birki. Kytran mín sem inniheldur aðeins það lífsnauðsynlega, plús nokkur málverk sem ég tók með mér suður. Tvö kerti í stofuglugganum. Ekkert óþarfa skraut, samt svo kósý.
Þegar ritgerðin var komin vel á veg mætti vinur Birkis á svæðið. Jonah frá Boston, USA.. Hann hafði bjór í farteskinu sem var vel þegið af viðstöddum. Eftir það kíktum við heim til Birkis, og drógum svo Jonah með okkur niður í bæ, en Birkir varð eftir heima (gamli karlinn, þrítugur í næstu viku!). Við kíktum á The English Pub og svo á Black sem er skemmtistaður samkynhneigðra. Við dönsuðu við hrikalegasta DJ-sem nokkurntímann hefur litið dagsins ljós, en það var bara fyndið. Fimmtugur karl gaf Jonah öl, sem vakti mikla kátínu. Síðan fórum við í Hjálminn þar sem Birkir á heima og ég rakaði smettið á gamla manninum, enda var hann farinn að týna á sér kjaftinum, kinnarnar löngu horfnar í lubbann og ekki lengur skegg í andlitinu heldur var þetta farið að breytast í Amazon frumskóginn. Ekki ósvipað Gunnari Erni þegar hann hefur ekki rakað sig í 2 daga ;) Hann hafði aðeins fengið sér í tánna og var skítsama hvað var gert við hann. Hefur örugglega brugðið laglega þegar hann vaknaði því annar eins hrikalegur skeggrakstur hefur vafalaust ekki áður sést hérna megin við Atlandshafið. Ég sofnaði sæl og glöð við hlið Ólafar minnar í morgun klukkan hálf 6, til þess eins að vakna við sönginn í Bjartmar Guðlaugs, þegar síminn minn hringdi klukkan 11.
---
Ég get ekki annað sagt en að ég sé virkilega hamingjusöm. Það eina sem skyggir á er að kærastinn er alltaf lengst, lengst í burtu, hvort sem hann er á sjó eða á Íslandi. Það er víst andskoti langt til Reyðarfjarðar. Hann er samt á leið til Íslands akkurat þessa stundina, eins og sést á þessari mynd. Á næstu dögum flýg ég svo austur til að hitta hann. Jej! :)
---
p.s. Ég vil þakka kærlega henni Ólöfu fyrir að hafa tekið til hjá mér, og kveikt á kertinum þegar ég kom heim eftir göngutúr með Brúnó. Takk beibí, you rock! Sha Sha..
Fimmtudagur 07. febrúar 2008 / 10:45 / Fáránlegt!
1. mars á síðasta ári fengum við í Leikskólanum Krummafæti slæmar fréttir. Presturinn okkar, hann Pétur Þórarinsson í Laufási lést þá um nóttina/morguninn. Nú er að verða komið ár frá andláti hans. Í dag fékk ég e-mail frá Ástu í Höfða, sveitung Séra Péturs. Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að birta þetta bréf, ásamt fundargerð frá sveitastjórn Grýtubakkahrepps. Áhugaverð lesning og ekki laust við að maður fyllist reiði við að lesa þvílíkt óréttlæti Þjóðkirkjan er að beita þegnum sínum.
Baráttukveðjur sendi ég til Hóbbu og Þórarins um leið og ég þakka þeim kærlega fyrir allan þann tíma sem ég fékk að eyða í Laufási við hin ýmsu sveitastörf, þó aðallega sem áhorfandi :)
- Smellið á "framhald" til að lesa bréfin -
Fimmtudagur 31. janúar 2008 / 18:01 / Nick

Mikið var nú gaman að hitta hann Nick í morgun. Keyrði til Grindavíkur að kíkja á gæjann - Hann býr nú samt í Búðardalnum en er í "helgarfríi" með fjölskyldunni í Grindavík í augnablikinu. Sé svo sannarlega ekki eftir því að hafa skellt mér. Nick er enþá algjör orkubolti og hefur alveg ábyggilega þekkt mig (miðað við móttökurnar sem ég fékk), þó hann hafi kannski ekki gert sér grein fyrir tengingunni.
Allavega, smellti af nokkrum myndum. Skellti nokkrum í þetta albúm.
Setti líka myndir af hundaslammi með Birki (strákur), Heru (hundur) og Brúnó. Þær er að finna hér.
Gaman að'essu.
Miðvikudagur 30. janúar 2008 / 22:51 / Stress...
Nett stress í gangi. Er að fara að hitta Nick í fyrramálið. Blendnar tilfinningar. Hlakka til, en er líka kvíðin.
Vonandi er elsku strákurinn "minn" hress :)

Mánudagur 28. janúar 2008 / 17:58 / Hjálmar
Stal óvart Hjálma-diski af vini hans Inga. Úbbs! Færð hann bráðum.
Hlusta oft á hann og finnst þessi texti alveg einstaklega fallegur.
-----
Út við sjónarrönd
leynist gullin strönd
og þar kýs ég oft að dvelja
Þar er kyrrð og ró
út við lygnan sjó
og þar á ég lítinn kofa
Sumardægrin löng
ég hlýði á fagran söng
sem hvað berst mér oft til eyrna
-
Allir una við
hreina loftslagið
enginn þörf á því að menga
fólk hér kann sér hóf
ekkert græðgi kóf
hér er gagn og fyrir alla
ef þú sérð inn á við
inn á annað svið
munt þú heyra sönginn fagra
-----

Laugardagur 26. janúar 2008 / 14:23 / Gærdagurinn
Ohh það var svo gaman í gær! Dagurinn var eiginlega fullkominn.
Fór í skólann sem var auðvitað yndislegt og æðislegt enda er ég í frábæru námi með æðislegu fólki. Síðan sótti ég Brúnó og fór með hann heim í Mávahlíðina. Tók smá klikker-þjálfun á honum sem hann var nú ekki alveg að meðtaka, en það kemur :)
Síðan dúðaði ég mig upp í snjóbuxur og dúnúlpu og við skelltum okkur til Birkis og Heru. Það er nú eiginlega bara ágætis work-out að labba í þessu færi, dúðuð með 50kg hund sem togar eins og hann fái borgað fyrir það. Ég var með hann fastan utan um mig (s.s. taum sem nær utan um mig og svo í ólina hans) og líka með svona stuttann taum sem ég hélt í. Better be safe then sorry þegar um svona risaeðlu er að ræða.
Við Birkir fórum svo með hundana uppá hitaveitu-tankatún sem er í Holtunum og höfðum fótbolta með í för. Vá. Það sem maður svitnaði við að hlaupa á eftir hundunum, stökkva á þá, veltast um í snjónum, rífa af þeim boltann og dúndra honum eitthvert útí buskann og svo endurtekið svona 100x. Gríðarstuð. Gríðarstemming. Kem með betri myndir af þessu seinna þegar Birkir er búinn að senda mér þær. Vildi samt óska að ég hefði haft Nick með mér. En jæja, hann skemmtir sér í Búðardalnum í snjónum þar.
Eftir þetta ofur-hressandi-útivistardæmi þá nánast hlupum við Brúnó heim í ógeðslegu haglveðri. Ég stökk í sturtu heima meðan Brúnó chillaði með Jóa. Tók mig til og fór í bestu vísindaferð til þessa! Djöfull var gaman. Frábært fólk hjá Persónuvernd sem er greinilega að vinna gott og gjöfult starf í að halda öllum okkar persónuupplýsingum í skefjum hehe.
Ég þakka samt Rósulind fyrir að hafa skutlað mér heim rúmlega 1. Það var eiginlega mjög gott mál. Ég var reyndar vakin 3x í nótt við mjög skemmtileg símtöl. Takk fyrir það! :) - Þótti mjög vænt um þau.
Í dag er svo stefnan tekin á Hlöðuna að ná í heimildir fyrir ritgerðina mína - svo er það bara ritgerðarvinna fram á nótt og á morgun.
Ætlaði að setja inn smá myndir síðan í gær af mér og Brúnó, en netið er eitthvað ooofurhægt núna þannig að það bíður bara betri tíma. (Í kvöld þegar Jói er ekki heima til að downloada hehehe)
Miðvikudagur 23. janúar 2008 / 18:25 / Nóg að geeera
Vá hvað það er nóg að gera hjá mér þessa dagana. Er á fullu í skólanum, ritgerðarvinnu, verkefnavinnu, með Katrínu mína (mætti samt vera oftar þar hrmm) og svo var ég í dag að byrja í starfsnámi í Frostaskjóli. Þar verð ég ca 2 daga í viku fram að páskum við að kynna mér starfsemi Félagsmiðstöðvarinnar. Leist rosalega vel á hópinn þarna, hitti reyndar voðalega fáa krakka, en starfsmennirnir eru fínir. Meira að segja einn Akureyringur/MA-ingur (allstaðar leynast þeir víst!)
----
Jói og ég erum búin að liggja í hálfgerði pest, ég fyrst - svo Jói. Fyrst þjónaði hann mér meðan ég lá í sjálfsvorkun með nefið og hausinn fullann af hori, hálsinn fullann af kítli (óþolandi) og "svo illt í húðinni" að það var erfitt að skipta um föt! Þess vegna hélt ég mér bara í náttfötunum ;). Núna þjóna ég honum og ætla því að færa honum kvöldmat í rúmið. Hann kvartaði áðan undan nammileysi.. en vildi samt ekki að ég færði honum nammi því hann sagðist ekki hafa gott af því. (Óli & Dagný! Ég hef ekki borðað nammi né drukkið gos síðan miðnætti 13janúar hehe) Þannig að ég færði karlinum bara svona orku-heilsu-nammi-stöng og vakti það mikla lukku :)
------
Fór í gær í heilsuleysinu mínu með Aníku (sem betur fer, toppstykkið ekki að gera sig í gær - Takk elskan fyrir hjálpina!) að brasa útum allan bæ, sótti afmælisgjöfina hennar Mömmu (úúú forvitinn fær ekki að vita!) og kíkti í rúmfó og fjárfesti mér í einu stykki skrifborði. Komum seinna að því.Skrapp síðan í Bónus, keypti íslenskt nammi handa fólkinu mínu í CA --- Loksins hafði ég það að senda pakkann út!! Ætlaði víst að senda hann ...hrm.. í nóvember!! Úbbs. Sendi líka smá gúmmelaði til Nicks. Vonandi verður karlinn ánægður með það ;) Kolla - endilega láttu mig vita hvað honum finnst!
------
Aftur að skrifborðinu. Þeir sem þekkja mig vita hvað ég er innilega, ótrúlega, enganvegin þolinmóð þegar kemur að einhverju nýju. Allt á helst að gerast í gær. Þannig að mér tókst auðvitað ekki að bíða eftir því að Jói yrði búinn að vinna ... og byrjaði að setja saman skrifborðið með dyggri aðstoð Aníku. Það gekk hálfbrösulega þar sem leiðbeiningarnar voru bara ein bls! Jább góðir gestir - Ein blaðsíða!! Ikea vinnur klárlega Rúmfó þegar að þessu kemur. Þegar kom að því að setja borðplötuna á - klikkaði eitthvað í hausnum á okkur og við snérum skrúfunum öfugt (hljómar heimskulegra en það virtist vera þá stundina) og tróðum því einhverjum töppum ofaní vitlaus göt, og skrúfurnar þar ofaní. Þetta passaði svo engannvegin þannig að ég hringdi í Jóa og sagðist vera búin að klúðra málunum. Hann sagði orðrétt að mig minnir: "Hanna.. ég kem heim kl hálf 11, EKKI snerta skrifborðið!!". Ég hlýddi því auðvitað, settist niður í sófann en ákvað að glugga aaaðeins betur í leiðbeiningarnar. Við nánari skoðun áttaði ég mig á því hvað við höfðum gert vitlaust. Útskýrði það fyrir Aníku og fannst það svo heimskulegt að ég gæti hreinlega ekki sýnt Jóa það. Þannig að ég stóð upp.. gekk að skrifborðinu... tosaði í skrúfurnar (sem voru í vitlausum götum) .... og braut þær!!
Nú voru góð ráð dýr - eiginlega alveg fokdýr þar sem þetta borð kostaði 7000kr.
Jæja. Þetta reddaðist í dag þegar ég keypti bara vinkla og skrúfur, og ætlar JÓI (jább ég kem ekki nálægt svona samsetningum aftur) að skrúfa það saman fyrir mig í kvöld.
Hvað gerði ég án karlmannana í lífi mínu?!
---
Læt þetta blogg nægja í bili, og ætla að fara að koma mér í smá lærdóm.
Rúfus er að fara í smá læknisheimsókn í kvöld þar sem hann er farinn að taka uppá því blessaður að hleypa mér ekki út þegar kalt er í veðri. Sem væri nú svosem ágætt nema það að það er ekkert voðalega þægilegt að sofa í bíl! Hehehe. Vonandi virkar þessi heimsókn og þakka ég velgjörðarmanni mínum kærlega fyrir að nenna að standa í þessu! :)
Mánudagur 21. janúar 2008 / 01:27 / Að vera stuðningsfjölskylda
Eina helgi í mánuði er ég þess gæfu aðnjótandi að fá til mín 7 ára stúlku með CP (Cerebral Palsy). Hún getur ekki talað, hún labbar voðalega hægt og sjón hennar nær ekki alltaf að sjá misfellur sem á vegi hennar verða. Hún getur hinsvegar bablað, hlegið, knúsað mig og kreist.
Þessar helgar er hún einfaldlega hluti af mínu lífi. Við förum í sund, förum á rúntinn, fáum okkur ís, kíkjum í heimsóknir, matarboð eða bara höngum heima og gerum ekki neitt - saman.
Frá því 2004 hef ég verið með hana í stuðning, einhverfan dreng og unglingsbræður. Allt saman yndisleg börn sem eiga frábærar fjölskyldur.
Eins og alltaf, er mikill skortur á stuðningsfjölskyldum fyrir fötluð börn, börn sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu eða koma frá fjölskyldum sem einfaldlega geta ekki sinnt þeim nægilega vel. Þessi börn þurfa öll á okkur að halda. Þau þarfnast þess að verða hluti af eðlilegu fjölskyldulífi, upplifa eitthvað nýtt, fá hvíld frá dagsins amstri. Ekki má heldur gleyma fjölskyldum barnanna sem hlaða batteríin þær helgar sem börnin eru í fríi að skemmta sér.
Að vera stuðningsfjölskylda þarfnast ekki skattkorts, þú þarft ekki að skila inn tímum og þegar þú fyllir út skattaskýrslu þína ár hvert fylliru út viðeigandi reiti, reiknar út kostnað ofl og er skattur dreginn af þér í ágústmánuði. Ég sjálf ef aldrei, í alvöru, fundið fyrir þessum frádrætti. Það sem ég finn hinsvegar fyrir er gleði. Gleði að hafa kynnst stelpunni "minni". Gleði að þekkja fjölskyldu hennar og allra hinna "barnanna" minna. Gleði að kynnast lífi sem er virkilega frábrugðið mínu "venjulega" og "eðlilega" lífi.
Þetta er ekki flókið. Ein til tvær helgar í mánuði þar sem þið bjóðið annan einstakling velkominn í ykkar líf. Það þarf ekki stranga dagskrá eða stöðuga skemmtun. Oftar en ekki njóta börnin þess best að slappa af - þau eiga líka erfiða vinnuviku að baki eins og við.
Endilega hafið samband við félagssvið bæjarfélagsins ykkar, eða mig, og fáið frekari upplýsingar. Þið munuð ekki sjá eftir því.
Þriðjudagur 15. janúar 2008 / 23:57 / Er smá stund, bara smá stund?
Ég fór að velta fyrir mér í dag hvernig merkingu við setjum í setningar eins og "Ég kem eftir smá!".. "Hann á heima bara rétt hjá!"... "Það er bara smá stund í matinn!"... og klassískt "Bíddu aðeins!".
Hjá mér er smá stund, stundum heil eilífð. Allavega fyrir þann sem er að bíða. Fyrir mér er "Rétt hjá" er nokkrum húsum fyrir ofan/neðan, "rétt hjá" í USA er hinsvegar nokkrar götur.
"Bíddu aðeins" er samt alltaf stuttur tími, tja eða oftast. Hvenær á ég að mæta, rétt fyrir? okei.. þá kem ég hvað, tuttugu mínútur í? Korter í? Fimm mínútur í?
Tíminn er afstæður. Í Grímsey stóð hann stundum í stað. Jólafríið flaug áfram, en þó ekki framhjá mér sem betur fer. Árin líða furðuhratt - ég man samt eftir því hvað það var hriiikalega langt á milli jóla hérna í denn.
Stundum finnst manni eins og það sé heil eilífð síðan eitthvað gerðist, en samt átti það sér stað í gær. Mér finnst ég vera búin að vera í Reykjavík í nokkra daga - ég flaug hingað í hádeginu.
Ég er samt þakklát fyrir það að tíminn í raun og veru líður. Annað væri frekar fúlt :)
Mánudagur 14. janúar 2008 / 02:20 / heimkoma og Reykjavíkurför
Jæja. Komin heim frá Danaveldi eftir frábæra viku í faðmi fjölskyldunnar. Ótrúlega gaman að hitta Dagný, Óla og Danna frænda. Æðislegt. Skemmti mér mjög vel og Visakortið kom glóðvolgt heim... eða eiginlega sjóðandi heitt :S Verra fyrir bankareikninginn, frábært fyrir fataskápinn! Hehe
Annars er þetta óvenju langa og óvenju góða jólafrí senn á enda. Á morgun þarf ég að stökkva uppí flugvél og fljúga "heim". Hugsanlega ætla ég að reyna að draga það fram á þriðjudag, en það þýðir að ég missi af fyrsta skóladeginum, sem er þó nánast einungis að taka á móti kennsluáætlunum og hitta kennarana.
Fór í smá jeppaferð í dag - fengum geggjað veður fyrripartinn og sáum hreindýr og allar græjur. Ætla að skella inn nokkrum myndum...
Miðvikudagur 02. janúar 2008 / 16:29 / Uppskriftir -- DK
Það er svakalega gaman hérna í DK. Í augnablikinu er ég að undirbúa sjávarrétta Risotto og Baddy að ganga frá þvotti - voða heimilislegt :) Aðrir fjölskyldumeðlimir eru hjá Vibekku og Hans í heimsókn (vinafólk mömmu og pabba sem búa í Nim)
Annars ætla ég nú ekkert að skrifa neitt svakalegt heldur skella inn smá uppskriftum sem ég gruflaði upp hérna í risastóra uppskriftasafninu hennar Dagnýjar systur. Nammi namm.. Kannski þið prófið?? Ath að uppskriftirnar miðast við tvo :)
Lífið
/ Lífstíll og matur
/
1
Föstudagur 28. desember 2007 / 00:45 / Danmörk!
Vildi bara láta vita að á morgun pökkum við fjölskyldan niður í töskur, setjumst uppí Honduna, keyrum til Reykjavíkur og eigum flug til DK þann 29.desember þar sem við munum eyða áramótunum. Lending á Íslandi er áætluð 5.janúar og 6.jan flýg ég í einn eitt ævintýrið - reyndar innanlands :) Meira um það seinna
Gleðilegt nýtt ár segi ég því bara. Aldrei að vita nema maður komi með smá danska bloggfærslu :P
Þriðjudagur 25. desember 2007 / 22:44 / Jólin 2007
Æðisleg æðisleg jól! Takk fyrir mig allir!
Ég fékk svo ótrúlega mikið í jólagjöf að ég ætla ekki telja það allt upp. Bara takk fyrir mig þúsund sinnum :)
Smá jólamyndir

Ég og Embla sætar saman

Við systur með Emblu litlu

Sætar saman að knúsa dúkkuna
Miðvikudagur 19. desember 2007 / 18:52 / Prófin búin - og það eru að koma jól!!
Ég trúi þessu varla. Bara 5 dagar til jóla. Oh man! Síðasta prófið mitt var í dag, og kláraði ég það á 2klst en ekki 3 eins og gert er ráð fyrir. Ekki það að ég hefði eitthvað verið að klúðra þessu, gat reyndar ekki alveg allt - en gerði mitt besta. Fólk var almennt frekar óánægt með frammistöðu sína og fannst þetta frekar ósanngjarnt próf. En það er alltaf hægt að kenna einhverjum öðrum um. Maður lærir bara eins og maður getur, og vonar síðan það besta :)
Eftir prófið fór ég í jólagjafa-innkaupa-maraþon. Tókst að versla 15 jólagjafir á mettíma. Á samt enþá eftir 4 gjafir sem ég ætla að klára fyrir norðan. Það er pínu skrítið að sitja ein í Mávahlíðinni núna. Undanfarnar 2 vikur hef ég verið stanslaust (í alvöru, uppá hvern einasta dag) með Ólöfu bekkjarsystir og sl viku fór ég heim á Hauganes í Selvík að læra með Ólöfu og Birki. Það var algjör snilld. Rosalega góð ferð sem vonandi borgaði sig (kemur í ljós þegar ég fæ einkunnir!)
Núna er bara efst á dagskrá að pakka í Reykjarvíkurgjöfum, koma sér í sturtu, fara út að chilla og njóta þess að þurfa ekki að læra, og henda sér síðan norður yfir fjöll með flugfélaginu góða og slappa af í faðmi fjölskyldunnar í firðinum fallega :)
Later folks
Þriðjudagur 11. desember 2007 / 21:20 / "Úr einu í annað-blogg"
Ég varð fyrir nokkurnskonar "uppljómun" um daginn. Ég fór út að skokka með hann Brúnó karlinn, skokkaði frá Hallgrímskirkju - undir Miklurbrautina - meðfram flugvallarveginum, kringum Öskjuhlíðina, í gegnum Hlíðarnar, yfir Klambratún og aftur upp að Hallgrímskirkju þar sem Brúnó á heima rétt hjá. Allann þennan tíma var ég með dökkan hund og sjálf í hvítum íþróttaskóm, svörtum íþróttabuxum, svarti hettupeysu með svart hárband og dökkt hár.
Þegar ég var að keyra heim var ég stopp á ljósum. Hinu megin við götuna sé ég strák úti að skokka. Eða eiginlega má segja að ég sá ekki strák ... heldur buxur á skokki! já hann var í gráum buxum, og þegar eftir hlutinn bar við svartann himininn þá hreinlega hvarf hann inní myrkrið.
Eiginlega má segja að ég sé mjög heppin að það sé ekki búið að keyra á mig. Ég fór því um daginn og fjárfesti í svona blikk-ljósi sem ég hef á upphandleggnum (skárra en ekkert) og festi það síðan um hálsinn á Brúnó þegar ég sleppi honum lausum. Freyja frænka sendi mér síðan í djóki tvö endurskinsmerki sem dingla á mér meðan ég skokka. Mér er bara alveg sama þó það sé "asnalegt" að vera með dinglandi-bangsa-endurskinsmerki utan á sér...
Ég vil vera sýnileg í umferðinni!
-----
Ef einhverjum vantar jólagjafahugmynd handa mér þá langar mig í DVD-diskana með Venna Páer. Þvílíkt meistaraverk! :D
-----
Ég er að koma norður á morgun!
Reyndar engin skemmtiferð, svona þannig séð. Eiginlega meira leiðindaferð. Er að koma með Birkir (sem dyggir lesendur ættu nú orðið að þekkja hehe), Heru hundinum hans og Ólöfu vinkonu. Ekki það að þau séu leiðinleg, nei allsekki, langt því frá, heldur er markmiðið að lesa yfir okkur af bókum og fræðigreinum í Inngangi að uppeldis- og menntunarfræði.
----
Já ég er enþá í prófum
Já ég hef engann tíma til að hringja í einn né neinn
Já ég er búin að snúa sólarhringnum við
Já ég veit ég á að vera löngu farin að sofa
Já já já...
Fimmtudagur 06. desember 2007 / 06:45 / Að standa í stað
Akkurat núna finnst mér tíminn standa í stað. Ég sit við eldhúsborðið hjá Birki vini mínum að leggja lokahönd á ritgerð. Klukkan er tíu mínútur í sjö að morgni til og hérna er ég búin að sitja síðan 8 í gærkvöld. Næstum 12 klukkustundir. Birkir var orðinn þreyttur og rauðeygður þannig að hann ætlaði að hvíla augun í smá stund. Ég álsa honum ekki, sjálf er ég dauðþreytt. Það er samt ákveðin ró sem færist yfir mig þegar ég horfi yfir herbergið.Róleg tónlist ala Birkir svífur um herbergið úr maccanum hans. Hérna á eldhúsborðinu við hliðiná mér liggur hún Píla, smágerður kisi sem er ótrúlega blíð og góð. Í sófanum liggur Birkir, með krosslagðar fætur og hendur yfir andlitinu. Sá fæturnar á honum kippast til þegar hann féll í svefn. Hlakka til að skríða sjálf undir sæng. Á fótskemlinum við sófann liggur Hannes, annar köttur sem Birkir á. Rauður, feitur og pattaralegur. Hann breiðir úr sér, skottið lekur fram af skemlinum, fæturnir teygja sig langt og eyrun standa spert útí loftið. Inní búri sefur Hera, hundurinn hans Birkis. Hún er búin að vera hálf furðuleg í nótt. Ekki vön því að það sé vakað á "háttatíma". Kom fram trekk í trekk að athuga með okkur, hefur örugglega sofnað um leið og Birkir. Þau eru svo ótrúlega náin. Inní herbergi sefur Fríða, konan hans Birkis, ljúfum svefni. Svolítið síðan hún sofnaði. Örvar, þriðji kötturinn hans Birkis er einhversstaðar úti (örugglega á kvennafari)...jafnvel sofandi inní einhverju ókunnugu, hlýju, þvottahúsi. Hver veit.
Þeir einu sem vaka núna eru ég og fiskarnir. Syndum saman í gegnum nóttina....
Þriðjudagur 27. nóvember 2007 / 18:28 / Að kveðja...
Ég veit ekki alveg hvað ég á að skrifa, langar að skrifa eitthvað en orðin sitja föst.
-----
Hlutverk þitt í heimi hér
þú hafðir leyst af hendi
af þeim sökum eftir þér,
Guð Englahópa sendi.
-----
Takk fyrir síðast Jóhann - þú átt inni hjá mér feitt video-partý. Skemmtu þér vel á flotta mótorhjólinu þínu þarna uppi! Sjáumst vonandi eftir mörg mörg ár...
Fimmtudagur 22. nóvember 2007 / 16:11 / Akranes, Reykjavík, Bókhlaðan
Ég tel mig vera nokkurnveginn tilbúna til að flytja lögheimili mitt á Bókhlöðuna. Undanfarið hef ég dvalið þar til 10 á kvöldin, oftast frá hádegi, án þess að yfirgefa húsið. Gaman gaman. Ritgerðarvinnan er alveg að buga mig, enda nóg að gera í háskóla. Sé fram á að klára aðra á morgun, og hina vonandi fljótlega eftir helgi. Eftir það ætti að vera nægur tími til að lesa undir prófin sem byrja 11.des :S
Annars skellti ég mér til Akraness á mánudaginn. Ólöf bekkjarsystir mín og ein af mínum bestu vinkonum hérna fyrir sunnan býr á Akranesi og bauð mér í mat og gistingu. Það var ekkert smá frábært að sofna við sjávarniðinn (húsið hennar er alveg niður við sjóinn) og vakna við ilminn af nýbökuðum skonsum! Ekki frá því að ég sakni þess að búa í foreldrahúsum ;)
Næstu nótt gisti svo Ólöf hjá mér þar sem við vorum að læra fram eftir kvöldi, og í gærkvöldi fékk ég enn einn næturgestinn, hana Freyju frænku. Hún var á leið til Dublin með næturviðkomu í Reykjavík og fékk að kúra uppí í risa-rúmminu mínu. það er alltaf svo gaman að fá gesti. Þó að húsnæðið mitt sé nú reyndar ekki uppá marga fiska... en þröngt mega sáttir búa sagði Freyja í gær og er það hárrétt hjá henni.
Þriðjudagur 20. nóvember 2007 / 13:11 / Börn og ástin
Mamma sendir mér oft skondna e-maila, en ég verð nú að viðurkenna að sumir eru betri en aðrir. Þessi var til dæmis einstaklega flottur
Sunnudagur 18. nóvember 2007 / 18:17 / Bruni í Stærra-Árskógi
Pabbi hringdi í mig í dag til að segja mér frá brunanum sem varð heima á ströndinni í gær. Guggi í Stærra-Skógi missti um 200 skepnur.
Það er alltaf leiðinlegt að heyra svona fréttir, en þær snerta mann enþá meira þegar þær koma úr heimabyggð. Guggi tók í notkun fyrir nokkrum árum glænýtt fjós, sem kallast víst "tæknifjós" á bændamáli, að mér skilst. Þar var allt til alls og aðbúnaður hinn besti. Mikið grín var gert af Gugga á þorrablóti hérna um árið þar sem talað var um að núna gæti hann legið með tærnar uppí loftið og látið vélarnar sjá um allt.
Í gær var stormur á Norðurlandinu. Hríðarbylur og varla sást á milli stikna á aðalveginum. Mamma og pabbi voru að keyra til Akureyrar um það leyti sem þetta gerðist og mættu tveimur slökkviliðsbílum frá Akureyri. Þeir komust því miður ekki hratt yfir sökum veðurs. Þegar óhagstæð vindátt er og eldur kviknar þá er víst lítið annað hægt að gera en að þakka fyrir að ekki varð manntjón.
Vonandi fær Guggi þetta bætt að fullu frá tryggingunum. Veit ekki hvort það er viðeigandi að votta samúð sína, en ég ætla samt sem áður að gera það.

Þetta hefur vafalaust verið ljót aðkoma og óska ég engum þess að lenda í svona hremmingum. Ævistarfið hans fokið útum gluggann. En það þýðir víst lítið að hugsa um það sem var, núna er bara að horfa björtum augum fram á við og líta á þetta sem tækifæri til nýs upphafs.
Þriðjudagur 06. nóvember 2007 / 12:22 / Ó ljúfa líf
Ég elska Akureyri. Eiginlega elska ég alla "litla" staði sem eru ekki yfirfullir af bílum og fólki. Elska litla staði þar sem maður þekkir svo marga, er heilsað útá götu, veit hvar allt er, kann matseðlana á veitingarstöðunum nánast utan af, hefur nægan tíma fyrir vini og vandamenn (því það tekur ekki klst að keyra á milli staða), næg afþreying fyrir börn, góðar sundlaugar... allt til alls :)
Ég hafði það svo gott fyrir norðan. Þetta var æðisleg helgi svo það sé vægt til orða tekið. Alveg frábær. Þegar ég kíkti út á föstudagskvöldið með Helgu og Binna hitti ég Ingu mína, Elvu Ýr, Aníku og Helga! Gunnar Njál, Lalla... gæti lengi talað. Hitti líka Söndru vinkonu sem ég er ekki búin að hitta í... já.. sex ár! Það var ekkert smá gaman að sjá hana.
Á leiðinni suður aftur sat ég svo nánast við hliðiná Þóru ma-systir (hún var hinu megin við ganginn) og fylgdi einni 4ra ára skvísu suður til mömmu sinnar. Hún var ekkert flughrædd þó að vélin hristist MJÖG mikið og aðrir í kringum mann hafi verið orðnir freeekar hvítir/grænir í framan.
Jæja..
Nenni ekki að skrifa mikið meira um þessa ferð. Bara takk fyrir að gera hana ógleymanlega!
p.s. engar myndir í þetta skiptið þar sem ég á ekki myndasíma né myndavél! buhuhu
Föstudagur 02. nóvember 2007 / 09:17 / Norðurferð
Ég er mætt norður í snjóinn! Ég ákvað í vikunni að skella mér norður í gær þar sem það er enginn skóli hjá mér í dag (föstudag). Skráði mig í hopp á netinu í skólanum og var mætt á völlinn hálftíma fyrir brottför. Þegar ég er nýbúin að láta vita af komu minni og er að bíða eftir því að kallað verði útí vél, þá heyri ég að athuga eigi með flug vegna veðurs. Ég gerði passlega ráð fyrir því að verið væri að tala um flug til Ísafjarðar eða eitthvert í andsk. en neibb, það var verið að tala um ÖLL flug. Ísing og ókyrrð í loftinu og veðurstofan varaði við stormi. Frábært. Ég tók draslið mitt aftur saman og hringdi í Jóa sem mætti á hvíta hestinum að bjarga mér úr flugvallavandræðum. Við fórum heim, pöntuðum okkur pizzu því ég ætlaði að vera í lasagne hjá Helgu og Jói ætlaði að ... já... örugglega panta sér pizzu ;)
Ég fylgdist reglulega með textavarpinu (nei ég er ekki búin að fá mér sjónvarp, horfði í gegnum tölvuna!) og kl hálf 9 sá ég að brottför yrði kl 9! Ég dreif mig útá völl eins og helmingurinn að borgarbúum að mér virtist. Ég fékk loksins flug kl 10 og var komin norður rétt rúmlega hálf 11 af því að það var svo mikill meðvindur. Gríðarleg ókyrrð á leiðinni og maðurinn við hliðiná mér var svo vænn að gefa mér vænan koníaksopa fyrir ókyrrðina. Hann var að skála með félögum sínum.
Ljúf var samt sem áður lendingin í snjónum fyrir norðan. Ég í leggings og gallapilsi. Sem betur fer í n.k. kuldaskóm! Helga elskan náði í mig á völlinn og ég kíkti í heimsókn til hennar þangað til að Freyja sótti mig. Kjöftuðum við fram á nótt og sofnaði ég svo ljúflega í uppáhalds rúminu mínu - Freyja - Rúmið þitt er BEST! :D
Núna er ég farin að læra
Over&Out
Þriðjudagur 30. október 2007 / 14:09 / óheppin
Já óheppnin virðist elta mig á röndum þessa dagana. Eftir að ég bloggaði á laugardaginn fór ég á bílnum mínum í Kringluna (skömm að segja frá því þar sem ég bý virkilega nálægt) og þá kom rooosalega vond lykt af Rúfus og ég vissi strax að þetta hlyti að vera kúplingin þar sem hún var komin mjjjööög ofarlega. Jæja. Ég brunaði með kaggann til Munda bró sem staðfesti grun minn. Kúplingin farin og hann sagði mér að keyra Rúfus sem minnst. Síðan sló mér eitthvað niður á laugardagskvöldið og búin að vera hálf slöpp síðan. Fór reyndar út að skokka í gær með Brúnó (sem er riiisastór Doberman hundur, dökk brúnn og ótrúlega flottur. Kraftmikill með meiru svo ég fékk strengi eftir fyrsta skokkið með hann! Algjör snillingur) Hanna ferðast s.s. núna um með strætó um borgina, jú eða rölti/skokka milli staða. Bootcamp að byrja aftur í dag. Hlakka til, en kvíði líka fyrir þar sem ég er enþá með dúndrandi hausverk, hálsbólgu og ryksugaði íbúðina áðan í svitakófi. Enn ég ætla ekki að missa plássið þannig að það er eins gott að láta sjá sig :)
Jæja. Ætla að enda þetta blogg á myndum af Nick sem ég fékk á heimasíðunni hjá Kollu sem á hann núna. Takk Kolla!
------

Markús og Nick eru greinilega góðir vinir
------

Hr.fallegur
-----

Sakna hans - flottasti töffarinn
Lífið
/ myndablogg
/
2
Fimmtudagur 25. október 2007 / 13:28 / Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur..
Síðasti sólarhringur var svakalega erfiður. Tölvan mín byrjaði nefninlega á því fyrir nokkru að vilja ekki hleypa mér á netið. S.s. ég komst á msn, en ekki inná firefox/explorer. Fór með tölvuna til Dr.Sverris sem bjargaði mér úr þeirri klípu. Þá tók blessunin uppá því að hætta að opna Office-skjöl. Gat ekki glósað, skoðað glósur, opnað glærur... ekkert!
Þá var hún lögð inn. Dr. Sverrir gerði á henni aðgerð sem heppnaðist vel og er hún nú komin aftur til mín þessi elska. Hraðvirkari, fallegri og betri en nokkru sinni áður. Takk Dr.Sverrir!! :D
-----
Baddý systir er komin til mín í borgina. Oh það er svoooo gaman að hafa hana hérna! Bíð spennt eftir því að hún flytji suður næsta haust. (Er það ekki annars Baddý?!)
----
Ritgerðargrindarskil á morgun, verkefnaskil og tveir fyrirlestrar í næstu viku. Afhverju í andskotanum er ég að eyða tímanum í blogg???!
---
Rigning í Reykjavík
Kv. Hanna
Þriðjudagur 16. október 2007 / 12:07 / gömul frétt
Ég var að skoða bloggið mitt frá því á síðasta ári því ég vissi að þar leyndist mynd af okkur Þorsteini Inga frænda. Þurfti ég að scrolla yfir nokkrar færslur til að finna hana, og rakst þá á þessa hérna færslu síðan ég var úti í Kaliforníu. Verð nú að viðurkenna....
Miðvikudagur 10. október 2007 / 17:25 / Norðurferð - myndir!
Haldiði að kella hafi ekki ákveðið að skella sér norður? Og sú ákvörðun var tekin á svona 5 mín, pakkað ofaní tösku, brunað útá völl og hlaupið inní vél sem var um það bil að lokast. Ljúf var lendingin á Akureyrarvelli, sem og pylsan og maltið sem pabbi gaf mér í Lindinni ;)
Það var svo
Lífið
/ myndablogg
/ vinir og vandamenn
/
3
Mánudagur 01. október 2007 / 00:49 / Daginn í dag, daginn í dag gerði drottinn guð:)
Vá hvað þessi helgi var viðburðarík og skemmtileg. Byrjaði reyndar frekar rólega með föstudags-þrifi og rólegheitum hérna heima fyrir. Skutlaði Jóa í vísindaferð kl hálf 5 og var einmanna húsmóðir eftir það, eða þangað til Palli félagi bjargaði mér um miðnætti og við fórum á rúntinn. Sóttum Jóa niður í bæ klukkan hálf 1, en þá var hann alveg búinn á því greyið hehe.
Ég ákvað...
Lífið
/ Veður
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
3
Laugardagur 11. ágúst 2007 / 15:04 / Þvílíkt hneyksli!
Var að sjá þetta hérna á visir.is. Þetta er svo mikið hneyksli að það er fáránlegt.
Hreppsnefndin hérna í Grímsey tók skýrt fram að Grímseyjingar vildu EKKI þennan bát, en það var ekkert hlustað. Ræddi við einn sjómann hérna í gær og hann sagði að þessi bátur sem þeir keyptu og eru svo að berjast við að gera upp, væri gerður fyrir fjarðarsiglingar og myndi henta vel á milli Hríseyjar og Árskógssands, en er ekki með nægilega góðan kjöl fyrir úthafssiglingar, s.s. yfir Grímseyjarsundið. Þannig að þegar illa viðrar þá verða engar siglingar.
Fáránlegt...
Þriðjudagur 07. ágúst 2007 / 15:27 / Versló ofl...
Helgin búin. Þvílíkur bömmer. Þetta var yndisleg helgi í alla staði, fyrir utan smá þynnku hehe.
Reyndar má eiginlega segja að stuðið hafi byrjað á fimmtudagskvöldið því við Jói og Vala sátum hérna heima í Nýja-Sjálandi og spiluðum til 4 um nóttina. Algjör snilld. Ótrúlega gaman!
Á föstudeginum var opið á Kríunni til 4 og síðan tók við tiltekt og að græja sig fyrir "heimferð"
Flugið okkar var rúmlega 9 og náðum við að sötra örlítin öl fyrir flugið svo að ég var alveg sallaróleg í flugtakinu ;)
Fimmtudagur 02. ágúst 2007 / 13:19 / Allt í öllu - Jói að koma - ég að fara í land!
Undanfarna daga er ég búin að vera lasin. Var heima á mánudagskvöldið og Stella vann fyrir mig. Ég sleppti samveru (segi betur frá því á eftir) á þriðjudaginn og var bara heima fram að vinnu um kvöldið. Reyndi að sofa þessa flensudruslu úr mér. Það gekk nú ekkert rosalega vel og ég er enþá með í hálsinum, kvef og hausverk. Beinverkirnir eru sem betur fer farnir. En það þýðir ekkert að vera lasin þegar það er að koma versló! Jej! Versló í fyrra eyddi ég með fjölskyldunni minni í San Luis Obispo. Getið lesið um versló 2006 hérna.
Gaman að rifja upp "gamla" tíma :)
Í dag reif ég mig upp fyrir allar aldir (kl tíu híhí) og brunaði á vespunni flottu í féló og hitti þar 4 eldhressa krakkagríslinga sem ég fór með í fjöruna, týndum steina og fórum síðan í Féló og máluðum þá, hendurnar, andlitin og búkinn :) Já eða svona næstum því.. allavega þurfti að þvo þeim all rækilega eftir átökin við málinguna :P
Ég er semsagt byrjuð með samverustundir fyrir börn á leikskólaaldri hérna í Grímsey (reyndar uppí 7 ára, en það er aukaatriði)
Í dag mættu bara 4 börn þar sem það eru svo margir í landi yfir versló. Venjulega er ég með tvo hópa, einn fyrir hádegi og einn eftir hádegi. Yngri og eldri. Þetta er rosalega gaman og þau hafa virkilega gaman af því að hittast svona og brasa. Tala öll um að fara "í leikskólann" og kölluðu mig meira að segja kennara í dag hehehe. Enginn leikskóli hérna á svæðinu og þess vegna er þetta rosalega spennandi fyrir þau.
Núna kl 14:00 er ég svo á leið í næsta djobb. Sé um sundlaugina hérna meðan Gyða er í landi. Hún er opin frá 14:00-16:00 í dag og síðan fer ég að vinna á Kríunni kl 18:00.
Jebb nóg að gera í Grímseynni.
Það besta við daginn í dag er hinsvegar það að JÓI minn er að koma til mín!! Gaman gaman! Hann ætlar að fylgja mér í land á morgun (eins og sannur herramaður). Ég verð vonandi búin tímalega að vinna og get sýnt honum heimskautsbauginn, vitann og allt hitt skemmtilega hérna í Eyjunni :)
Best að klára hádegismatinn og drífa sig svo í sundlaugina.
Sjáumst vonandi sem flest um helgina!
og þið sem ég hitti ekki - góða skemmtun!
Mánudagur 18. júní 2007 / 00:17 / Þreyta...
Í kvöld er ég þreytt. Ég er alveg afskaplega afskaplega lúin, en samt er ég ekki farin að sofa. Afhverju ekki? Nú, ég er með internet!! Alveg óþolandi tímaþjófur, sérstaklega MSN.
Helgin var frábær í alla staði. Brjálað að gera í vinnunni og mikið djamm. Ég er auðvitað stillti karlinn (Grímseyska) og alltaf bakvið barborðið. Ferming á laugardaginn. Flestir eyjaskeggjar (og um 200 gestir) voru samt sem áður þunnir í þeirri fermingu þar sem ég var með opið á Kríunni til 4 um nóttina. Þá sagði ég bara hingað og ekki lengra, drullið ykkur út og farið að strauja skyrturnar fyrir morgundaginn.
Fermingarveislurnar voru haldnar í Féló, sem er skólinn/félagsheimilið hérna. Fjögur fermingarbörn og öll með eina stóra matar/tertuveislu. Mjög sniðugt þar sem allir þekkja alla, og öllum boðið! Borðaði á mig gat af mat, og síðan aftur af kökum. Ljúúúft ;)
---
Næstu vikur eru vandlega planaðar af allskonar rugli og vitleysu. Hópur næstu helgi (ef ekki bara tveir hópar! Ekki alveg komið á hreint). Vorum að fá Crepes-pönnu á Kríuna þannig að núna er bara að fara í að panta matvöru og byrja að gera Crepes alveg á fullu :) Ætla að leggja mig alla fram í að gera besta Crepes á norðurlandinu. Helgina eftir það er sjóstöng og þá mæta alveg hellingur af liði hingað, ball og skemmtileg heit. Inga Rut mín kemur þá!!!! Get varla beðið eftir að taka sporið með henni. VIð vorum að pæla í að skrá mig sem nýliða, og þá verð ég líka á sjóstöng. Hef aldrei farið (fyrir utan smá með Rannveigu og Bjarna um daginn) og spennandi að vita hvort skipstjóradóttirin getur eitthvað fiskað :P
---
Gyða og Unnur fóru út að skokka áðan. Ég var svo mikil sófaklessa að ég svaf bara á meðan :( Þær komu síðan eldsprækar (og sveittar) til mín áðan og voru með yfirlýsingar um morgunskokk kl 7 í fyrramálið. Sögðust ætla að rífa mig á lappir (ekki það að ég sé svona löt að fara aldrei út að skokka, fer nánast á hverjum degi)... vandamálið mitt liggur í því að vakna kl 7. Gengur ekkert alltof vel í þeim bransanum þar sem ég er að verða vön því að sofa fram að hádegi hehe.
----
Útí allt annað.
Við Jói erum komin með íbúð í Reykjavík fyrir næsta skólavetur. Skólinn hjá mér byrjar að öllum líkindum 3.sept (á eftir að double-checka þá dagsetningu) og við fáum íbúðina afhenta 1.sept. Hún er ekki stór, og ekki merkileg, en ódýr og mjög vel staðsett. Þeir sem ætla að fá gistingu hjá okkur verða bara að sætta sig við að sofa annað hvort uppí hjá mér eða dýnu á gólfinu.
Þröngt mega sáttir sitja verður bara mottóið okkar :D
----
Jæja börnin góð. Best að leggjast í bólið, komið gott í bili. Mjög innihaldslaust blogg en örugglega ágætis lesning. Ég nenni samt ekki að lesa það aftur yfir...
Eitt að lokum. Ég bið kærlega að heilsa fjölskyldunni "minni" á Grenivík ef að þið lesið þetta! Kem því allt of sjaldan í verk að hringja... :S
Góða nótt góðir vinir... góða nótt...
Fimmtudagur 14. júní 2007 / 03:12 / Ég sakna þín...
Ég sakna þín svoooo mikið elsku Nick minn :( :(

Takk fyrir alla skemmtunina, allt geltið, vælið og vesenið. Takk fyrir kúrið og knúsið. Takk fyrir að hafa komið inní líf mitt þegar ég þurfti mest á þér að halda.
Takk

Sunnudagur 10. júní 2007 / 22:26 / Helgarfrí
Ég skrapp heim um helgina. Reyndar engin skemmtiferð þannig séð, jarðaförin hennar ömmu á laugardaginn. Falleg athöfn en erfið. Alltaf erfitt að kveðja ástvin, en svona er lífið og maður er alveg sáttur fyrir hennar hönd.
----
Það er ekki laust við að ég sakni Grímseyjar. Bara búin að vera nokkra daga í burtu og get ekki beðið eftir að fara þangað aftur. Fer með ferjunni kl 9 í fyrramálið. Ekki laust við að ég sé með ööööörlítið meiri farangur heldur en ég tók með mér í land ;) Eiginlega einni ferðatösku og einum stórum kassa meira :P Maður verður nú að byrgja sig almennilega upp! hehehe
----
Kíkti á Freyju frænku á föstudagskvöldið. Horfði á MADtv og hló geðveikt mikið... þangað til ég sofnaði! Skemmtilegur gestur það. Við Trausti frændi lágum sitthvoru meginn í sófanum og hrutum - held reyndar að hann hafi hrotið meira en ég ;) Eða svo segir sagan hehe.
----
Dagný systir kom heim frá DK til að vera við jarðarförina. Tók Danna litla með sér og rosalega gaman að hafa þau hérna. Danni er svo mikið rassgat. Fór með hann á róló í kvöld og hann sagði mér hvernig maður segir "róla" á dönsku, "vegasalt" og fleiri orð.
----
Jæja, ég ætla að fara að setja inn einhverjar grímseyjar-myndir á meðan ég kemst á netið. Erum reyndar búin að fá sendan adsl-pakka til Grímseyjar, og ætla að setja það upp í vikunni. Þá get ég sko sörfað almennilega á netinu og hangið á msn fram á nóttu! :P
----
Fimmtudagur 07. júní 2007 / 14:43 / Grímsey
Lífið á norðurhjara veraldar er svo ljúft að þið trúið því ekki! Ætla ekki einu sinni að reyna að segja ykkur hvað þetta er yndislegt því ég veit að þið trúið því ekki.
Fyrir þá sem ekki hafa náð að fylgjast með mér persónulega, þar sem ég hef ekkert komist á netið, þá ætla ég bara að byrja á byrjuninni.
Ég fékk vinnu á Kríunni, sem er veitingarhús/bar hérna í Grímsey. Unnur "frænka" og Svafar eiga staðinn ásamt öðrum hjónum. Ég flutti á miðvikudaginn síðasta til Unnar og Svafars í leikherbergið sem Sigrún Edda og Brá (dætur þeirra) eiga. Herbergið mitt er semsagt mjög bleikt, og mikið af dóti! Hehe.
Vinnan gengur mjög vel. Búin að læra flest allt og er líka búin að vera ein með hana síðan á sunnudaginn. Báðir eigendur í landi og engin stórslys á meðan ;)
Vinnutíminn minn er mjög breytilegur. T.d. núna er ég heima hjá Guðrúnu Ingu vinkonu og á að opna kl 6. Skemmtiferðaskip að koma í kvöld þannig að hugsanlega verður nóg að gera hjá mér sem er auðvitað frábært.
------
Það hefur verið nóg að gera hjá mér undanfarið þrátt fyrir
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
1
Fimmtudagur 07. júní 2007 / 14:03 / Amma Hulda
Ég var nýkomin útí Grímsey þegar ég fékk símtal frá mömmu. Mamma spurði mig hvar ég væri, með hverjum og hvort ég væri að gera eitthvað sérstakt. Það lofar aldrei góðu. Síðan sagði hún mér að Amma Hulda hefði ákveðið að kveðja loksins lífið hérna á jörðu niðri og hefja eilíft líf uppi á himnum hjá afa og Guði.
Ég gleymi seint einu af síðustu skiptinum sem ég heimsótti ömmu. Þá var hún komin á Dalbæ eftir sjúkrahúsdvölina og var frekar lúin enda orðin 93 ára. Það var svo erfitt að kveðja hana, vitandi það að hugsanlega hitti maður hana ekki aftur. Ég sat við hliðiná henni lengi með tárin í augunum. Sagði henni frá öllu sem gengið hefur á hjá mér undanfarið og var með tárin í augunum. Þú hélst í hendina mína, brostir til mín og virtist skilja meira en manni grunar.
Það voru algjör forrréttindi að alast upp með Ömmu nánast í næsta húsi. Maður eyddi ótrúlega miklum tíma þar og var alltaf að kíkja í heimsókn til hennar. Fyrst til að fá knús, kleinur og pönnukökur, og svo eftir því sem maður eltist þá til að segja þér fréttir af manni (og slúðra kannski pínu í leiðinni) og bara spjalla um daginn og veginn. Ef maður var einn heima þá gat maður alltaf treyst á það að hjá ömmu hefði maður félagsskap.
Mér þykir ótrúlega vænt um vísurnar sem hún kenndi mér og þær ætla ég að kenna mínum börnum þegar þar að kemur. Algjörar perlur.
Núna líður ömmu samt sem áður vel, og maður getur ekki annað en glaðst í hjarta sínu yfir því að núna sé hún loksins búin að fá hvíldina sem hún hefur þráð svo lengi.
Bless amma mín
Mánudagur 14. maí 2007 / 12:31 / Alveg ekta...
Fyrsti vinnudagurinn minn í nýrri vinnu var í dag. Reyndar er þetta ekki framtíðarstarfið mitt (hvenær ætli ég fari eiginlega í þann pakkann??) heldur er ég að vinna hjá Elvari föðurbróðir mínum í Ekta fiski svona þangað til að ég fer útí Grímsey. Maður verður víst að gera eitthvað í millitíðinni.
Ég, Freyja og Inga Rut kíktum út á lífið á föstudagskvöldið. Það var alveg óóótrúlega gaman, enda æðislegir djammfélagar! Fullt af fólki í bænum sem maður þekkti og ég dansaði svo mikið að ég fékk strengi aftan í hálsinn!! Ekki spyrja.. úff úff, er rétt að skána núna ;) Dagný Anna var svo sótt til Húsavíkur á laugardeginum og brunað heim á Hauganes í skírn hjá litlu Emblu Lind. Fallegt barn og fallegt nafn. Það voru líka alveg frábærar kökur í veislunni.
Baddý systir hélt svo af stað til Danaveldis í morgun kl 7 og ætlar að heimsækja Danna og foreldra. Vildi óska að ég hefði getað farið með henni!! En mín Danmerkurheimsókn er víst búin í bili :) Góð var hún þannig að ekki kvarta ég.
Skyldan kallar - blogga meira seinna. Hef alltaf nóg að skrifa um :)
Fimmtudagur 10. maí 2007 / 23:23 / Grímsey here I come!
Skjótt skipast veður í lofti!
Haldiði að kellan sé ekki bara að fara útí Grímsey í sumar að vinna á Kríunni sem er veitingarhús þar. (Já ég veit, það ER veitingarhús í Grímsey!)
Ég var búin að fá vinnu á sambýlinu í Snægili, en ákvað að skella mér frekar útí Grímsey því það er það sem mig langar til að gera, og núna er kominn tími til að hugsa um mig. Ég um mig frá mér til mín! :)
Síðasti dagurinn minn í Krummafæti var í dag. Það var alveg svakalega erfitt að kveðja alla krakkana og elskulega samstarfsmenn mína. Æðislegt að vinna þarna. Börnin yndisleg og fólkið líka. Kristján Bjarki og Vésteinn Kári gáfu mér svona glerplatta og kúlukerti í kveðjugjöf. Alveg frábært af þeim. Ég var eiginlega alveg orðlaus.
Ég skrapp á Grenilund áður en ég fór frá Grensó (núna er ég flutt þaðan) og var með kökkinn í hálsinum og tárin í augunum meðan ég faðmaði Steinku mína bless. Hún er svo æðisleg og alltaf gott að koma til hennar á Grenilundinn.
Helgin er líklega svakaleg djammhelgi. Reyndar á að skíra elsku Emblu litlu frænku á Laugardaginn og verður maður víst að vera sprækur í það. Ætla að þrífa hérna heima á morgun og svona. Nick verður í pössun uppi í Ási (hjá Nínu) á meðan skírnarveislan er hérna heima svo hann borði ekki allar veitingarnar af gestunum híhí. Alltaf svangur greyið :)
Jæja. Ætla að skella mér í gott freyðibað og horfa á My Name is Earl á meðan. (Snilldar þættir) Reyni svo eftir bestu getu að vakna á skikkanlegum tíma á morgun - afmælisdaginn sjálfan! Gangi mér vel
Skelli inn einni loftmynd af Grímsey svona í lokin... þarna verð ég í sumar! Allir að koma í heimsókn!! (Krummafótargellurnar eiga pantaða jónsmessunótt!) ;)

Þriðjudagur 08. maí 2007 / 15:16 / Síðasta vikan á Grensó ofl.
Þessi vika er síðasta vikan mín hérna á Grensó. Það er alveg ótrúlegt að hugsa til þess að núna á ég eftir að koma hingað bara örsjaldan - bara í heimsóknir....
Síðasti dagurinn minn er núna fimmtudagurinn 10 maí og þá fer ég heim á Hauganes.
Hinsvegar er ekki búið að bjóða mér í Eurovision partý?!! Hvað er málið??!!! Ég skil ekkert í þessum svokölluðu vinum mínum.. hmm? ;)
Spurning hvort að ég ætti bara að halda smá teiti heima á Hauganesi því þar er verið að ljúka við sólskálagerð. Agalega flott hjá gömlu hjúunum. Binni hennar Helgu er búinn að vera að hjálpa pabba að flísaleggja og þeir klára örugglega í kvöld eða á morgun. Snilld! :D
Annars er ég farin að sakna Helgu minnar mikið.. líka Aníku sem er alltaf í borginni! :( Baddý systir hefur verið niðursokkin í próf líka en það fer allt að lagast - prófin búin á föstudaginn,..
Föstudagurinn sem er víst AFMÆLISDAGURINN MINN!
Já ég er að verða 22ja ára. Geggjað ;)
Allir að muna að óska mér til hamingju á föstudaginn!
Flutningar
/ Lífið
/ vinir og vandamenn
/
3
Laugardagur 05. maí 2007 / 23:07 / Danmerkurferð :)
Síðasta helgi var alveg æðisleg!
Við fórum 6 saman úr vinnunni að skoða leikskóla í Danmörk mánudaginn sl. Reyndar hófst ferðin á föstudeginum þegar við flugum til Reykjavíkur og ég fékk gistingu hjá Munda bró og Svanhildi (Takk!) Eldsnemma á laugardagsmorgni hófst ferðalagið. Þegar ég segi eldsnemma, þá meina ég sko ELDsnemma!
Föstudagur 27. apríl 2007 / 15:12 / Breyttir tímar...
Jæja. Núna eru svo sannarlega breyttir tímar hjá mér. Ég er samt enþá að vinna á Krummafæti hérna á Grenivík en í staðinn fyrir að búa í íbúðinni okkar í Melgötunni, bý ég hjá Ingólfi og Fjólu. Harpa dóttir þeirra var svo góð að lána mér rúmmið/herbergið sitt þannig að ég er í góðu yfirlæti hjá þeim ;)
Margt hefur breyst á tveimur vikum. Eiginlega bara allt. Ég sótti um í H.Í. í síðustu viku og aldrei að vita nema maður fái inn þar næsta haust. Þá er ég barasta farin suður á bóginn! Af mölinni og á malbikið. Merkilegt nokk. Hélt að það ætti seint eftir að gerast, en það verður eflaust magnað. Ég er búin að fá vinnu í sumar á Sambýlinu í Snægili sem ég var að vinna á sumarið 2005. Við Linda vinkona erum svo að leita okkur af einhverri ágætis íbúð á Akureyri til að leigja í sumar. Ef þið vitið um íbúð þá endilega hafið samband!
Í dag er ég hinsvegar að fara suður með flugi kl 18:40 og síðan til Danmerkur á morgun með leikskólagellunum. Djöfull ætla ég að skemmta mér vel og líka að versla mér smávegis drasl ;)
Jæja. Verð að rjúka. Er í vinnunni og þarf víst að passa einhver börn??!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
9
Mánudagur 23. apríl 2007 / 19:03 / lífið
ONE LIFE .... LIFE IT!
Sunnudagur 15. apríl 2007 / 17:50 / Fréttir...
Ég er með fréttir sem koma örugglega mörgum á óvart.
Við Þorsteinn erum hætt saman og ég er flutt heim á Hauganes í bili. Ég veit ekkert hvert framhaldið verður þannig að það þýðir ekkert að spyrja að því ;) Við hættum saman núna á fimmtudagskvöldið þannig að þetta er allt saman óákveðið og framtíðin óljós.
Lífið heldur samt áfram og núna fer ég bara að einbeita mér að sjálfri mér sem ég hef ekki gert lengi.
---
Helga vinkona og family komu heim frá Neskaupsstað í gærkvöldi og það var alveg frábært að hitta þau. Mikið hef ég saknað þeirra. Eftir heimsóknina hjá Helgu ákvað ég að kíkja aðeins út á lífið með Freyju og Jóa. Það var alveg ótrúlega gott að fá sér smá rauðvín í góðra vina hóp. Við vorum ekki komin niður í bæ fyrr en kl 3 sökum anna hjá BSO og varð því djammið frekar stutt en óóóótrúlega gaman. Við gistum síðan heima hjá Freyju og vöknuðum "spræk" kl 11 í morgun.
---
Það er fínt að vera hérna heima á Hauganesi í faðmi fjölskyldunnar. Raggi bróðir, Sandra og Embla Lind eru hérna í mat í kvöld og Baddý og Þorsteinn Ingi eru á leiðinni til okkar líka. Ilmurinn fyllir húsið enda er mamma með eindæmum góður kokkur ;)
---
Veit ekki hvenær ég blogga næst.. veit ekki einu sinni hvar ég ætla að eiga heima eða hvar ég ætla að vinna.
---
Lífið er oft hverfult en maður verður bara að taka því með stóískrí ró og horfa björtum augum framá við.
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
11
Fimmtudagur 29. mars 2007 / 22:28 / ýmislegt
Ég er búin að fá tvö vinnutilboð með stuttu millibili. Bæði mjög áhugavert, annað eiginlega áhugaverðara en hitt... en mjög mikil skuldbinding. Margir gallar, en margir kostir við báðar vinnurnar. Veit ekki hvernig ég á eiginlega að snúa mér. Mikil heilabrot í gangi þessa dagana. Úff úff hef aldrei hugsað jafn mikið undanfarna daga.
Ég var í fríi í vinnunni í gær. Fór á þriðjudaginn til Ömmu Huldu útá Dalbæ. Amma eitthvað farin að þreytast á lífinu og orðin slöpp. Hún er nú 93ja ára gömul. Það var rosalega gott að vera hjá ömmu þó ég hefði nú ekki verið eins mikið hjá henni og ég vildi. En jæja, ég ætla aftur "yfir um" næstu helgi (yfir um þýðir sko heim á Hauganes - Yfir á Hauganes..) og þá hittir maður hana meira.
----
Yfir í annað.
Ég sló held ég heimsmet í dag. Ég fór út að skokka með Jónu og JÁ við skokkuðum! Jóna reyndar aðeins meira en ég. Við erum svo miklir nördar að þegar við vorum komnar heim þá urðum við endilega að keyra sömu leið á bílnum hennar Jónu til þess að mæla hversu langt við fórum! Júbb við skokkuðum 5.7km á rétt rúmlegum hálftíma. Snilld. Síðan tókst henni að draga mig...Í BLAK! Það var reyndar algjör snilld þó ég sé alveg dauð í handleggnum eftir allar uppgjafirnar. Ég er líka uppgefin ;)
Það er aldrei að vita nema maður geri þetta að vikulegum viðburði, að fara í blak. Það var alveg merkilega skemmtilegt þó maður hafi nú verið alveg áberandi lélegur og ég kunni varla eina einustu reglu! Alveg vonlaus :P
---
Framtíðar línurnar okkar fara á skýrast fljótlega. Eiginlega bara núna á miðvikudaginn. Þá ætti þetta að koma í ljós hvaða vinnu við tökum og hvernig við háttum hlutunum.Ég veit það allavega að mig langar í fjarnám næsta haust... og vinna með því.
Læt ykkur vita í næstu viku hvernig lífið hjá okkur fer. Gætu orðið dramatískar breytingar ;)
Fimmtudagur 22. mars 2007 / 17:49 / Memories!
Úff ég er alveg að missa mig í minningunum hérna. Erum að tæma geymsluna okkar sem við eigum á Akureyri. Erum að fá nýjan leigjanda sem ætlar að leigja geymsluna með. Kemur ekki að sök þar sem flest allt okkar drasl er hvort eð er komið hingað til Grensó. Ég er svona að dunda mér við að fara í gegnum þessa kassa sem ég hafði með mér úteftir í gær. Í þeim fann ég m.a. kassetturnar mínar síðan ég var svona 12-13ára! Jább... 10 ára gamlar! Úff smúff. Ég man meira að segja hvaða lög eru á hvaða kassettum! Svo fann ég líka Celine Dion diska, Mariah Carey, Cypress Hill sem Damma skrifaði einhverntíman handa mér (enda var hún alltaf á undan sinni samtíð, átti tölvu með skrifara örugglega fyrst allra á Norðurlandi!) og ekki nóg með það að hún hafi skrifað diskinn, þá teiknaði hún líka svona dissara-par framan á hulstrið! Æðislegt alveg hreint ;) Verð að sýna þér þetta við tækifæri Damma mín.
Ég er líka búin að finna fullt af ljóðum eftir mig og fleiri. Eitt snilldarljóð eftir Sunnu sem heitir "Föstudagurinn langi í lífi Jóhönnu" og fjallar á mjög dramatískan hátt um harm minn vegna dauða Þorsteins.. hann varð nefninlega fyrir bíl og blóðið slettist útum allt! Hádramatískt alveg hreint! ;) Hún samdi þetta þegar hún var 11ára, eða 2004.
Myndaalbúmin láta heldur ekki standa á sér. Líka árshátíðarmyndir, uppskrifta-hittings bókin okkar stelpnanna úr MA (Fimm Feitar, man einhver eftir því? hehe)
Svo er auðvitað ENDALAUST mikið af skóladóti, verkefni og fleira sem ég einfaldlega tími ekki að henda!! En afhverju að eiga þetta? Æji lífið er svo flókið stundum. Mannist svo heimskulegt að eiga fulla geymslu af drasli sem maður skoðar aldrei og notar aldrei, en samt vill maður engu henda! Stundum skil ég pabba, og hans 4 ísskápa, mjög vel!
----
Í kvöld er vorskemmtun hérna á Grenivík. Þetta var nú alltaf kallað "Skólaskemmtun" heima í Árskógarskóla, veit ekki afhverju þetta heitir vorskemmtun hérna, þar sem það er enþá vetur þegar þetta er! En allavega, þau ætla að sýna Kardimommubæinn. Verður eflaust svakalegt show ;)
Miðvikudagur 07. mars 2007 / 18:00 / Þessir eru helv. góðir
Það er stundum nauðsynlegt að hlæja svona í skammdeginu. Mamma og Sandra Péturs eru duglegar að senda mér e-maila með allskonar djóki í, en ég verð nú að viðurkenna að ég les þá ekki alla. Ég las þó þessa tvo og vildi deila þeim með ykkur:
----
Hæ hæ elskulegi eiginmaður.
Áður en þú kemur heim úr viðskiptaferðinni vil ég bara láta þig
vita um smá óhapp sem varð hér heima.
Ég vil samt taka fram að það er allt í lagi með mig og ég er alveg ómeidd,
svo þú hafir ekki óþarfa áhyggjur.
Málið er að þegar ég var að koma heim úr búðinni í gær á stóra
pallbílnum og var að beygja inn í innkeyrsluna varð ég fyrir því að, í stað þess
að stíga á bremsuna, steig ég óvart á bensíngjöfina.
Bílskúrshurðin beiglaðist dálítið en það sem verra var að antik-Ferrariinn
þinn, sem ég veit að þú heldur svo mikið uppá, beyglaðist dálítið
mikið þegar pallbíllinn stoppaði uppá honum.
Ég ætlaði að reyna að rétta hann aðeins og eina sem ég fann til
þess voru nýju flottu golfkylfurnar sem þú lést sérsmíða fyrir þig.
Ég bara gerði mér ekki grein fyrir því hvað væri veikt í þeim, en þær bara
beygluðust líka. Þá hugsaði ég með mér að reyna að bæta fyrir þetta allt með því að
hafa allavega allt hreint og fínt þegar þú kæmir heim svo ég ákvað að
þvo öll nýju sérsniðnu jakkafötin þín.
Þú manst, þessi gráu voru með oggolitlum sósublett á innanverðum
jakkanum og þessi grænu voru pínu krumpuð á innanverðu fóðrinu.
Því miður tókst ekki betur til en svo að ég setti þvottavélina óvart á suðu
svo öll fötin þín hlupu um tvö númer.
Elsku ástin mín, ég bara vona að þú fyrirgefir mér þennan
klaufaskap, þetta var bara röð óhappa.
Hlakka mikið til að fá þig heim,
þín eigikona
XXX
P.S. ... Ó,,já og kærastan þín í Frakklandi hringdi....
-------
-------
Það stoppaði stór trukkur á rauðu ljósi í Reykjavík. Ljóshærð kona
stekkur út úr bílnum sínum, hleypur að trukknum og bankar á dyrnar.
Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna og hlustar á hvað hún hefur að segja.
"Hæ ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.
Bílstjórinn gerði ekkert með þetta og hélt bara áfram. Þegar trukkurinn
stoppaði aftur annars staðar á rauðu ljósi, stoppaði stúlkan hann
aftur. Hún stökk út úr bílnum sínum og bankaði á dyrnar hjá
bílstjóranum. Aftur skrúfaði hann niður rúðuna. Eins og þau hefðu
aldrei talað saman, sagði sú ljóshærða skýrt og
greinilega: "Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.
Hristandi hausinn, hunsaði bílstjórinn hana aftur og hélt áfram niður
götuna. Á þriðja rauða ljósinu, þá gerðist það sama. En þegar hann stoppaði í þetta skiptið, dreif hann sig út úr
trukknum og hljóp aftur að bíl ljóshærðu konunnar. Hann bankaði
bílrúðuna og þegar hún skrúfaði hana niður, sagði hann:
"Hæ, ég heiti Birgir, það er vetur í Reykjavík og ég er að keyra SALTBÍLINN."
-----
-----
Sunnudagur 04. mars 2007 / 23:11 / helgin góða
Þessi helgi var vægast sagt frábær. Á föstudagskvöldið efndi Freyja loksins loforð sín um að færa okkur lökin.. já og koma í mat og spil! Damma og Gummi mætti líka á svæðið og fórum við í pictionary og Trivial. Þurfum ekkert að segja frá úrslitinum ;)
Það var gríðarlegt stuð og ég hef sjaldan hlegið jafn mikið.
Í gærkvöldi fór ég svo aftur með Freyju frænku í Sjallann. Jóna vinkona hennar kom líka með og þakka ég þeim KÆRLEGA fyrir danssporin. Eins vil ég þakka Frikka nokkrum fyrir glæsilega takta á dansgólfinu! Váá hvað ég hló mikið og skemmti mér vel. Ég hitti líka Helgu vinkonu á djamminu - það var alveg frábært að dansa við hana!! Núna verðum við að fara oftar á djammið Helga mín!!
Ég var nú bara driver og naut þess í botn. Mhh það er stundum svooo gott að vera edrú! Versta var bara að einhver andsk.. belja steig á löppina á mér á háhæluðum skóm - og tók einn snúning á ristinni á mér! Djöfull sem það var vont. Vont en það venst og ég býst við því að geta mætt í vinnu á morgun ;)
----
Gríðarlegar fréttir úr Hrísalundinum góða. Edda Lóa leigjandinn minn góði er flutt út!
Hér með auglýsi ég því íbúðina mín til leigu í óákveðinn tíma. Leigjandinn verður að vera reyklaus, gæludýralaus og skóhillulaus samkvæmt gömlum kerlingum á stigaganginum! Einu reglurnar sem ég hinsvegar set er reykleysið.
Núna er því allt sett á fullt í leit að öðrum leigjendum. Vonandi gengur það vel.
Þið sem þetta lesið megið alveg hafa augun opin fyrir hugsanlegum leigjendum! Það kemur líka auglýsing í næstu dagskrá.
---
Læt þetta gott heita í bili. Ætla að klára rauðvínsglasið mitt og skríða svo í bólið. Langur vinnudagur framundan :)
Góðar stundir kæru vinir
Laugardagur 03. mars 2007 / 14:50 / Séra Pétur í Laufási
1.mars sl. lést presturinn okkar Grenvíkinga, og margra fleiri. Hann var ótrúleg manneskja og yndislegur maður. Ég var svo heppin að fá að kynnast honum vel í gegnum Heiðu vinkonu mína sem er dóttir hans, og síðar í gegnum Þorstein en Pétur var tengdafaðir Hóbbu systur hans.
Þorsteinn er líka búinn að vera sauðburðarmaður í Laufási síðan hann var unglingur.
Þorsteinn kann margar sögur af Pétri og sauðburðinum en það er alltaf gaman að rifja þær upp.
Það var gott að vera nálægt Pétri og hann lifði lífinu svo sannarlega til fullnustu. Inga er ógleymanleg hetja sem á heiður skilið. Hún stóð sem stytta við hlið mannsins síns og var án efa honum ómetanlegur stuðningur.
Í janúar kom Pétur og var með síðasta kirkjuskólann sinn í leikskólanum þar sem ég er að vinna. Hann átti góða stund með börnunum. Ræddi um náungakærleik og tillitssemi. Hann minnti börnin á að þau sem stærri væru ættu t.d. alltaf að standa fyrir aftan þá sem væru minni.
Börnunum þótti vænt um að fá þau hjónin í heimsókn og þótti ekkert eðlilegra en að presturinn væri ekki með neinar fætur.
Þegar ég sagði börnum frá andláti hans, sagði eitt barnið "Þegar ég fer til Guðs þá ætla ég að hitta prestinn.."
---- Ég votta aðstandendum sem og öllum íbúum Grýtubakkahrepps samúð mína á þessari sorgarstundu. Við munum öll sakna Péturs mikið.
Ég vil enda þessa færslu á ljóði með texta sem Pétur samdi. Við þekkjum þetta lag öll
Í BLJÚGRI BÆN
Í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín. Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér.
Því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
Texti: Sr. Pétur Þórarinsson, prófastur í Laufási
Laugardagur 24. febrúar 2007 / 20:22 / Hundanámskeið
Góðan og blessaðan! Vika síðan ég skrifaði síðast. Uss uss að þetta skuli gerast! ;)
Við erum semsagt stödd í Reykjavík. Nánara tiltekið á Nýbýlaveginum hjá Völu og Kristni. Erum þar í mjög svo góðu yfirlæti. Vorum að koma heim frá Pizzaria Rizzzo. Mhh það var góð pizza.. Reyndar engin svakaleg þjónusta, en so what. Sama er mér!
Núna situm við með sunnlenskan "þeyting" fyrir framan okkur (Bragðarefur) úr svona hálfgerðum "Brynjuís". Nammi namm..
---
Hundanámskeiðið í dag gekk alveg rosalega vel. Nick stóð sig eins og hetja og þetta var mjög svo forvitnilegt. Fengum klikker og töfrasprota til eignar (tvennt af hvoru) og hann tók vel við æfingunum. Morgundagurinn verður einstaklega skemmtilegur þar sem við munum bara gera æfingar, eins og t.d. hoppa yfir stangir, hringja bjöllu, stíga á mottu og fleira skemmtilegt.
---
Jæja. Spaugstofan er byrjuð þannig að ég verð að hafa athyglina á því ;)
Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
1
Laugardagur 17. febrúar 2007 / 18:42 / Laugardagsleti
Við erum búin að hafa það virkilega gott og gaman í dag. Við fórum ekki á lappir fyrr en kl 11 þó við værum búin að vera vakandi þónokkuð lengi að horfa á Bubba Byggi. Eða "Buggi Byggir" eins og Þormar segir :)
Síðan gerði ég hafragraut handa liðinu og við fórum svo til Akureyrar að sjá Skoppu og Skrítlu. Það gekk alveg vonum framar og Þormar skemmti sér manna best. Allavega var hann duglegur að hlæja og fylgjast með. Eftir það tók við rúntur til og frá um bæinn þar sem við versluðum hitt og þetta, aðallega þetta. Þegar heim var komið var Þormar á útopnu eftir svona langa setu og hljóp um eins og brjálæðingur. Við ákváðum þess vegna að fara í smá göngutúr. Það breyttist hinsvegar í rúmlega klst fjöruferð og skemmtileg heit! Ég er enþá á bömmer yfir því að hafa gleymt myndavélinni!! Þormar t.d. datt í fjörunni og svo kom stóóór alda og náði honum. Menn voru ekki alveg sáttir þá! ;) Það er samt búinn að vera aðal saga dagsins svo þetta var nú ekki alslæmt. Núna situm við með nammipoka úr Hagkaup að horfa á Eurovision. Þormar er sofnaður núna enn átti alveg ÆÐISLEGT móment hérna í kvöld. Allt í einu tók hann uppá því að byrja að dansa við "Þú tryllir mig", fór fyrir framan sjónvarpið og dillaði sér.. og svo tók hann bara undir hástöfum "ÞÚÚ TRYLLIR MIIIGG!" og það besta er að ég náði því á video! :D Æðislegt :) :)
----
Ég vil samt óska afmælisbarni gærdagsins til hamingju með afmælið. Dagný Anna elsku sæta frænka mín varð 8.ára í gær og hélt uppá það í dag, en því miður komst ég ekki :( En ég verð bara að taka rúnt til Húsavíkur einhvern daginn! :D
Svo eru fleiri afmæli á döfinni. Helga Kristín á afmæli á morgun... reyndar heyrði ég í henni í dag og hún var orðin veik :( Úbbs ekki skemmtilegt það! Sandra mágkona á líka afmæli á morgun!
Til hamingju báðar tvær! :D :D
Þriðjudagur 13. febrúar 2007 / 19:24 / Þorrablót í Árskógi
Vááá hvað það var ótrúlega gaman! Þorsteinn kom með mér (í fyrsta eða annað sinn, man ekki alveg) og Sigga og Galdi komu líka. Ásdís, Sævar og Co voru á næsta borði við hliðiná sem gerði þetta bara enþá skemmtilegra. Ég dansaði svo ógeðslega mikið að ég er enþá þreytt í fótunum.
Dansarnir við Gulla frænda voru ótrúlega skemmtilegir, sem og allir aðrir dansar! Ég þakka Guðrúnu og Hólmar alveg KÆRLEGA fyrir lánið á drivernum þeirra ;) Það var alveg magnað!
Ég tók endalaust margar myndir sem ég ætla að setja inn í kvöld.
Það hefði nú samt verið enþá skemmtilegra að hafa Baddý systir þarna, Dömmu, Hófý, Elvu.. alla þessu gömlu góðu vini ;)
Jæja. Ætla að fara að hlaða inn myndum
Þangað til næst..
Miðvikudagur 07. febrúar 2007 / 18:46 / what??
Ég er algjörlega, gjörsamlega orðlaus!
Miðvikudagur 24. janúar 2007 / 16:26 / Nick
Það er alveg hreint yndislegt líf að eiga hund. Ég get nú samt ekki leynt því að oft er það drulluerfitt!
Nick t.d. dregur mig út að labba 2x á dag, þ.e.a.s. eftir vinnu. Við förum alltaf í einn stuttann göngutúr eftir vinnu og einn langan um kvöldið, eða öfugt ef það er gott sjónvarpsefni ;)
Nick vill líka athygli. Hann er ekkert skárri en grenjandi smábarn þegar hann tekur sig til. Hann er samt mjög klár og geltir ekki nema hann vilji eitthvað sérstakt, og veit alveg nákvæmlega hvað hann kemst upp með að gera og hvað ekki. Eiginlega kemst hann samt upp með allt hehe
Ég er samt alltaf pínu smeyk við hann. Ekki að hann sé svona grimmur, nei af því að allstaðar sem ég les um þessar tvær tegundir, þar stendur að þetta sé hundur fyrir vana hundaeigendur, því þeir eru svo klárir að þeir eru fljótir að finna það ef þeir eru klárari en eigendurnir!
Þetta stendur t.d. um Parson Russel Terrier
Þriðjudagur 23. janúar 2007 / 16:44 / myndir
Hérna kemur smá myndasyrpa sem ég stal af síðunni hennar Baddýar! Takk ;)

Sleðafólk - Ég, Þorsteinn, Sigga, Galdi og Nick og Danni þarna neðst

Sætasti hundurinn í heimi ;)

Sæti sæti

Ég á þrettándabrennunni - flott mynd!

Mér finnst þessi algjör snilld! hehehe
Miðvikudagur 17. janúar 2007 / 14:27 / Ekkert net
Það er svo ótrúlega asnalegt að hafa ekki nettengingu heima. Samt erum við búin að setja upp heimilistölvuna OG eigum líka glænýja og fína fartölvu sem er sjaldan notuð (nema til að horfa á My Name is Earl sem er í miklu uppáhaldi núna! -- Takk Baddý!!)
Ég þarf eiginlega að hafa samband við emax aftur og fá þá til þess að renna hingað úteftir og setja þetta upp fyrir mig sem fyrst. Maður er enganveginn tengdur við umheiminn!
Jæja, þá er ég hætt þessu kvarti.
Héðan frá Krummafæti er allt gott að frétta. Það er allavega mitt "plug" við umheiminn! ;)
Hvað á ég að segja meira...
Gærdagurinn var frábrugðinn öðrum dögum. Ja hérna hér. Ég fór á göngu eftir vinnu og bjóst sko ekki við því sem koma skyldi. Ég skrapp líka til tengdó þar sem síminn hringdi fljótlega eftir að ég var komin þangað og það var símtal til MÍN! Ég varð auðvitað alveg steinhissa þegar þetta var hún Hóffa leikskólastýri og hélt ég kannski að hún væri að segja mér upp.. já eða gefa mér launahækkun! En allt kom fyrir ekki. Hún átti bara í vandræðum með son sinn sem var víst "fastur" á Akureyri. Ég renndi því til Akureyrar um kvöldmatarleytið!!! Já geri aðrir betur! Mér finnst eins og það sé heil eilífð síðan ég fór síðast til Akureyrar... fór reyndar þangað á föstudaginn en það er annað mál.
Ef ég færi ekki stundum á bílnum í vinnuna þá kynni ég eflaust ekki lengur að keyra! Alveg svakalegt.
Ég fór svo á kynningu til hennar Hóffu eftir Akureyrar-sækjið mitt og prófaði allskonar Aloe-Vera vörur. Keypti samt ekki neitt þar sem fjárhagurinn er frekar mikið skakkur um þessar mundir.
----
Það er búið að snjóa alveg heilan helling hérna á Grensó. Svo mikið að í fyrradag þá áttum við Þorsteinn EKKERT STÆÐI til að leggja bílnum! Ég stoppði bara í miðri Melgötunni (það var bara búið að moka eina rönd í gegn) og Þorsteinn hljóp beint útí bíl og brunaði í vinnuna áður en við myndum stífla alla umferð um Melgötuna (já, hlæið bara, en það er í alvöru stundum umferð á Grenivík!!!) Ég tók mig svo til og MOKAÐI ruðningana í burtu og gerði smá svona "stæði" þannig að þegar Þorsteinn kom heim úr vinnunni þá gaf hann bara allt í botn og þrumaði inní stæðið okkar. Í gær var hinsvegar klárað að moka svo að núna er allt fínt í Melgötu 4a.
---
Lífið mitt er greinilega orðið frekar innantómt þar sem ég skrifa ekki um neitt nema snjómokstur og bæjarferðir!
---Hjálp! Ég held að ég sé að breytast í aðþrengda, Grenvíska eiginkonu!!!-----
Þriðjudagur 09. janúar 2007 / 10:28 / Sama farið...
Þessa dagana er maður eiginlega alveg fastur í sama farinu. Ég kem heim úr vinnunni og þá fer Þorsteinn í vinnuna. Ég horfi á Bev.90210 og fer svo út að labba með Nick í svona klst. Eftir það hangir maður heima, föndrar, saumar, skrifar uppskriftir í bók, horfir á sjónvarpið eða skreppur til tengdó. Kvöldmaturinn samanstendur af gríðarlegri hollustu, eða samlokum, cheeriosi, kjúkling, pasta eða einhverju álíka merkilegu.
Í gær var samt brugðið útaf vananum og farið í afmæli í Laufás. Þar voru tvö læri í boði (ekki reyndar læri húsfreyjunnar þó þau séu vafalaust ágæt!) og meðlæti. Í eftirmat var kaloríu-inntaka vikunnar, eða rjóma/ís/kókosbollukaka með nóakroppi og jú, jarðarberjum! Mhh þetta var syndsamlega gott! Namminamm
----
Manni finnst nú hálf ómerkilegt að halda úti heimasíðu eftir að maður kemur heim frá USA. Maður hefur einhvernvegin ekki frá neinu merkilegu að segja!!
---
Þessi helgi var algjör útivistarhelgi! Á laugardeginum löbbuðum við uppá Höfðann með Baddý systir, Siggu Systir mömmu og Birnu dóttur hennar (við=ég, Þorsteinn og Nick)
Það var ekkert smá gaman og vorum við bara rétt rúmlega klst upp og niður. Alveg frábær gönguferð.
Á sunnudeginum fórum við í brekkuna hjá Jarlstöðum og renndum okkur á sleðum, snjóþotum, þoturössum, eigin rössum,snjóbrettum, skíðum og bara því sem okkur datt í hug! Túngötu-fjölskyldan var að sjálfsögðu með í för og kom Galdi með snjósleðann og fékk maður aðeins að reyna á upphandleggsvöðvana með nokkrum hringum á snjósleðanum þar sem ég sló algjörlega í gegn sem frábær vélsleðaökumaður! :D
---
Það eru nú ekki margir búnir að koma í heimsókn til okkar á Grenivíkina. Algjör synd ;( Þið verðið nú að fara að drífa ykkur sem flest í heimsókn til okkar! Núna snjóar og snjóar og þá er um að gera að hafa með sér vetrargallann og finna barnið innra með sér og leyfa því að brjótast út í smá stund á meðan við rennum okkur, löbbum og bara gerum einhvern andsk...
----
Hanna Krummafótur kveður!
Fimmtudagur 04. janúar 2007 / 15:16 / Gleðilegt ár 2007!
Jæja. Þá er komið nýtt ár með blóm í haga og syngjandi fuglum... eða svona næstum því þar sem það er nánast snjólaust hérna á Grenivík þó kuldaboli sjáist nú samt annað slagið.
Við erum semsagt alveg búin að koma okkur fyrir á Grensó, þó við eigum enþá eftir að sækja nokkra hluti til Freyju okkar ;) Enda ætlumst við eiginlega frekar til þess að hún komi með þá til okkar!!! :D Verður að fara að drífa þig í heimsókn fröken Freyja! ;)
Ég byrjaði núna 2.jan að vinna í Krummafæti sem er leikskólinn hérna. Það er alveg frábært að vinna hérna, 25 börn og 4 starfsmenn (+ afleysing og matráðskona)
Börnin eru öll alveg afskaplega ljúf og er ég búin að vera núna með yngstu krökkunum í samveru. Minn hópur er samt mið-hópurinn eða Danni frændi (hennar Siggu systir mömmu) og þeir félagar :) Mjög fínn hópur og fyrsta hópastarfið mitt gekk mjög vel þó það væri enganvegin undirbúið!! ;D Hehe
Dagarnir líða því frekar hratt núna. Ég kem heim úr vinnunni, og þá fer Þorsteinn í vinnuna! Ég er svo sofnuð þegar hann kemur heim og farin þegar hann vaknar. Mjög gaman eða þannig. Ég og Nick erum því ein heima mest öll kvöld og förum út að labba og kúrum í sófanum... jább hann má koma uppí sófa hjá okkur! Annað er bara ekki hægt þegar maður er alltaf einn heima :S :)
Jæja. Pásan mín hérna í leikskólanum er að verða búin, sem og vinnudagurinn (búin 16:15) þannig að ég læt gott heita í bili.
Gleðilegt ár allir!!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/
3
Mánudagur 25. desember 2006 / 11:35 / Jólin allstaðar!
Takk allir kærlega fyrir mig!!
Við fengum svo mikið af góðum og fallegum gjöfum að ég nenni varla að telja það allt upp.
Tvær stærstu gjafirnar voru samt tvíbreið sæng frá mömmu og pabba og gríðarlegt matarstell frá Tengdó!
Svo voru auðvitað fullt fullt af fleiri pökkum
Takk allir... þessi jól voru frábær! Utan við það að ég er með bullandi kvef, beinverki og svo ældi ég rjúpunum í nótt ;S Þetta kennir mér bara að borða ekki svona mikið hehehe. Nei nei, ég borðaði nú ekki það mikið, bara með einhverja bölvaða pest. Ég er að fara að taka okkur Nick til og svo ætlum við að drífa okkur til Grensó. Það er jólaboð í Melgötunni svo maður verður nú að drífa sig til að ná í einhverja kökuafganga! Nehh ég ætla reyndar örugglega ekki að mæta þangað því ég vil helst bara leggjast undir nýju sængina mína þangað til í kvöld, því þá fer ég að vinna! Jább kellan á að mæta á Grenilund kl 7 í kvöld! Fussumsvei.. fyrsti "vinnu"dagurinn minn í 6 mánuði!
Læt ykkur vita hvernig fer ;)
Takk enn og aftur
Jólakveðja frá Hauganesi
Jókaspóka
Mánudagur 04. desember 2006 / 01:53 / Skemmtileg helgi
Eins og venjulega var þessi helgi sem er senn að ljúka, mjög skemmtileg. Á föstudaginn fórum við Dóra og fengum okkur gervineglur á einhverri víetnamískri naglastofu. Það var strákur sem heitir Thai sem gerði mínar neglur og tók það hann 40 mínútur!!! Ég hef aldrei vitað annað eins. Geðveikt fljótur og þær eru mjög flottar! Setti svona fallega bleikt naglalakk á þær - algjör gella ;)
Eftir hádegið á föstudeginum fórum við í vínsmökkun í þremur víngerðum hérna. Það var alveg rosalega gott og kom ég heim með tvær dessert-vínflöskur sem einhverjir velvaldir fá að smakka um jólin ;)
Á laugardaginn gengum við í kringum Atascadero-lake sem er lítið vatn með fullt fullt af fallegum risastórum húsum. Þau voru öll skreytt gríðarlega og útum allt voru kórar að syngja og fólk að bjóða smákökur og heitt kakó. Ótrúlega rómantísk ganga með kertaluktum meðfram göngustígnum. Tókum nokkrar myndir en útaf því hversu lélegt netið er hérna þá getum við ekki sett neinar myndir inn :( Stundum komumst við ekki á netið heilu dagana þannig að þið verðið bara að fyrirgefa ef það líður langt á milli blogga og við sjáumst lítið á skype/msn...
Í dag var svo home-tour dæmi í gangi hjá skólanum hjá Thor. Hann er í kaþólskum einkaskóla og þetta er ein af fjáröflunum hjá þeim, að einhverjar 4 fjölskyldur opna húsið sitt fyrstu helgina í desember og þar eru seldir ýmsir varningar og fleira. Við skoðuðum öll húsin 4 og voru þau hvert öðru flottara! Eitt var með þreföldum bílskúr, og þar var bmw parkeraður og porsche á svona bílalyftu fyrir ofan BMW-inn! Þarna var líka studio og fullt af hljóðfærum. Geðveiki alveg hreint en rosalega gaman að sjá þetta.
Núna er eiginlega allur vindur úr okkur því maður skrifar aldrei allt sem maður gerir hingað inn og oftast eru inní dagskránni hjá manni leikir með krökkunum og tiltekt/þvottur/eldhúsþrif...
---
Gleðifréttir samt! Allavega fyrir okkur. Ása hefur ákveðið að taka í gegn aðra íbúð og ætlar að gera það á með tíma! eða rétt um viku. Við verðum semsagt að vinna núna í næstu viku (frá og með morgundeginum) í íbúðinni frá morgni til kvölds og fáum mange mange penge fyrir! :D Snilld snilld. Hinsvegar slæmar fréttir fyrir ykkur eru þær að þetta þýðir ennþá minni tími á netinu, en ég blogga samt um leið og ég hef tíma til að setjast niður og slappensíaf ;)
---
Við heyrðum í Eddu systir Þorsteins um daginn sem sagði okkur að þau í Melgötunni ætla að gera laufarbrauð núna á föstudaginn! Hér með leggjum við inn þessa stafi:
H fyrir Hanna
J fyrir Jóhanna
A fyrir Ameríka
Þ fyrir Þorsteinn
F fyrir Forgarður
og að sjálfsögðu
M fyrir MORGENROTH! :D
---
Hans og Stephanie eru í mat í kvöld (Hans er bróðir Dóru) og það er núna steik og kjúlli á grillinu. Nammi namm
Auðvitað erum við með rauðvínsglas í hönd enda erum við orðin háð rauðvíni ;) Orðnir algjörir rauðvíns-meistarar! :D
Best að fara að hjálpa til í eldhúsinu!
Loads of love
Hannah
Föstudagur 01. desember 2006 / 02:03 / Planið fyrir helgina
Við Þorsteinn sváfum leeengi í morgun. Reyndar vaknaði ég á eftir Þorsteini, þá var hann kominn framúr og var að horfa á "Walker, Texas Ranger" með stórleikaranum Chuck Norris. Ég vaknaði við hlátrarsköllin :)
Við fórum í dag og versluðum tvær jólagjafir. Reyndar keyptum við eiginlega 4 jólagjafir svona þegar ég hugsa betur útí þetta. Úff allar þessar verslunarferðir eru farnar að renna í eina móðu hehe
Þorsteinn keypti sér geggjaða Hurley skó, en ég keypti mér vetrar-bomsur (í staðin fyrir vetrar"dekkin" mín gömlu ljótu) á 20dolls, eða 1400kr! Þvílík snilld að versla skó hérna.. ég kem örugglega heim með fulla ferðatösku af SKÓÓÓM! :D
Í gær voru sendir af stað 6 kassar (sem reyndar voru settir í tvo stærri kassa þannig að þetta eru bara tveir kassar núna) til Grenivíkur. Þeir ættu að koma í næstu viku eða þarnæstu viku. Vil bara beina þeim tilmælum til Melgötuliðsins að ÞESSA KASSA MÁ EKKI OPNA! Þeir innihalda sprengjuefni og skordýr... og nokkrar jólagjafir! ;D
Endilega skellið þeim bara beint ofan í kjallara og leyfið þeim að bíða rólegum þar til við mætum á svæðið!
--
Plönin fyrir helgina eru loksins orðin skýr. Á morgun förum við í vínsmökkun með Dóru og Eric og fáum að smakka gæða rauðvín og hvítvín sem koma frá hinum fjölmörgu vínekrum í nágrenni San Luis Obispo (SLO).
Um kvöldmatarleytið er svo skrúðganga niður í bæ, þar sem Emma verður með fimleikaliðinu sínu og Thor með skátaliðinu sínu á svona "float" eða einhverskonar kerru sem rennur ljúflega í gegnum miðbæinn. Þetta er allt saman í tilefni jólanna, að sjálfsögðu ;)
Laugardagurinn er svo stútfullur þar sem Eric og Þorsteinn ætla að byrja daginn snemma á því að hjálpa Hans að höggva niður eitt stykki tré í eldivið. Síðan ætlum við Dóra að mæta á svæðið og halda smá "partý" heima hjá Hans og Stephanie og um kvöldm.leytið er "walk around the lake"... hef eiginlega ekki hugmynd hvaða vatn á að ganga í kringum. Kannski göngum við öll Á vatninu svona í tilefni jólanna. Hvur veit.
Um kvöldið fara svo Dóra og Eric í eitthvað vinnu-jóla-partý til yfirmanns Dóru og við Steini ætlum að passa ljúflingana á meðan. Við ætlum að fylla þau af poppi, glápa á sjónvarpið og halda á þeim örþreyttum inní rúm! :D Magnað!
Á sunnudaginn fer Dóra svo að vinna í einhverju "opnu húsi" fyrir skólann hans Thors. Hann er í mjög góðum kaþólskum einkaskóla og fer í skólabúning í skólann á hverjum degi - ekkert smá sætur! ;)
Eftir hádegi á sunnudeginum, þegar Dóra er búin að vinna, förum við Dóra ásamt fleirum að skoða þessi opnu hús (þetta virkar þannig að það eru 4 opin hús, hús foreldra eða ömmu og afa krakka sem eru í skólanum með Thor. Í fyrra var t.d. Dóra með opið hús! Þetta eru hús sem eiga sér langa sögu, eru sérstök að einhverju leyti eða bara fáránlega flott! Húsin eru öll skreytt fyrir jólin af atvinnu-skreyturum og inní þeim eru svo seldir allskonar varningar, jólabrauð, skartgripir ofl skemmtilegt. Þetta er semsagt eins og 4 litlir markaðir.. heima hjá einhverjum!)
Á Sunnudagskvöldið ætlum við svo að grilla steikur og kjúkling.. nammi namm! :D
Dóra er búin að kenna mér fullt af hlutum að gera í eldhúsinu! T.d. GEÐVEIKT GÓÐ hrísgrjón. nammi namm! Heppnir þeir sem fá að koma í mat til mín eftir áramót ;)
Jæja. Það var verið að kalla "Dinner!" Þorsteinn og Eric fóru niður í bæ og keyptu fullt af Ribs til að borða í kvöld því það er Farmers Market og þá eru alltaf elduð Ribs niður í bæ. Svaka gott.
Elskið friðinn og kyssið á kviðinn
Over AND out!
Þriðjudagur 28. nóvember 2006 / 07:04 / Það sem ég vil ekki segja ykkur..
Veit nú ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna í kvöld. Ég gæti svosem sagt ykkur frá því að við fórum að versla í dag... en það er bara gömul tugga þannig að ég fer nú ekki að telja upp alla boli, jakkana, úlpurnar, peysurnar og jólagjafirnar sem við fjárfestum í. Enda finnst ykkur ekkert gaman að heyra um það.
Svo gæti ég líka sagt ykkur frá því að á morgun förum við að vinna fyrir Ásu. Þið eruð nú búin að heyra okkur segja það svo oft að það nennir enginn að lesa neitt um það.
Kannski finnst einhverjum áhugavert að heyra að hérna er okkur alveg skítkalt á kvöldin/næturnar og um daginn sofnaði Þorsteinn í fötunum og ég þurfti að slást við hann til að ná honum úr sokkunum. Það kemur ykkur svosem ekkert við, enda er ykkur hlýtt í vel kyntum húsum á Íslandi.
Ég þarf nú varla að minnast á það að í dag eru bara 21 dagur í að við komum heim. Þið eruð nú örugglega ÖLL að telja niður þannig að fyrir ykkur eru þetta nú bara gamlar fréttir.
Við söknum Gunna alveg svakalega, enda vita nú flestir að hann fór heim fyrir viku síðan. Gaman að því, ekkert merkilegt samt sem áður.
Já það er sko margt sem ég gæti sagt ykkur... en nenni því bara ekki.
Góða nótt :)
Miðvikudagur 15. nóvember 2006 / 06:35 / Lífið heldur áfram...
...sinn vanagang hérna í SLO.
Það er allt í góðum gír og engir stormar eða stórhríðir hér á bæ! Bara smá rigning í gær. Þriðja skiptið sem það kemur rigning frá því að við komum til USA. Oh já við erum sko farin að sakna Íslands og ófyrirsjáanlega veðursins sem þar ríkir. Mamma sagði mér að pabbi væri búinn að skutla henni í vinnuna tvo daga í röð núna vegna veðurs. Iss.. þetta er alveg ótrúlegt. Á sama tíma liggur maður í svitabaði í sólinni hérna í Kaliforníu. Stundum er lífið bara hreint út sagt óréttlátt :)
Ingrid (systir Dóru) kom á mánudaginn ásamt 13 ára dóttur sinni, henni Katie. Þær eru báðar alveg frábærar. Þær búa í Maine sem er miklu ofar en New York og eiginlega á landamærunum USA/Canada. Í tilefni af því að þær eru hérna var fjölskyldumálsverður um daginn þar sem eldaðar voru tvær gerðir af súpu og corn-bread sem er alveg ótrúlega gott.
Í dag voru svo pantaðir HUMRAR sem koma í hús á morgun... LIFANDI! Þeim verður svo skellt oní sjóðandi vatn við mikla viðhöfn á morgun. Jább ég verð með myndavélina á lofti! Engar áhyggjur ;)
Hérna er lítið annað gert en að éta.. og svo stíga strákarnir á vigtina og keppast hvor sé búinn að þyngjast meira. Ég hef ekki enþá þorað :S Þetta er alveg svakalegt ástand hérna. Það er í ALVÖRU alltaf forréttur, aðalréttur og eftirréttur! Yfirleitt er forrétturinn smá pizzasneið, hnetur, flögur (bakaðar, ekki djúpsteiktar) eða einhverjir smáréttir í ofni. Aðalréttirnir eru nú heimagerðir hollusturéttir (eða svona...) og svo er eftirmaturinn yfirleitt heimagerður ís og eplakaka, íspinni, heimagerðar súkkulaðibitakökur, ávextir... you name it.
Eins og ég segi.. þetta er alveg svakalegt ástand!
Hinsvegar tekur bara sama gamla góða hollustu lífið við þegar maður kemur til Íslands. Tala nú ekki um þegar maður fer að fara í ræktina á Grensó og skokkar uppá Höfðann sér til dundurs - er það ekki annars Olla? :D Þú verður að að draga mig í göngutúra! :D Svo er ég viss um að Eddu Breddu vantar einhvern félagsskap þegar hún fer út að labba með Ollu Bollu.. og svo má ekki gleyma krökkunum á Krummafæti sem láta mig örugglega hafa fyrir lífinu! ;) Ætli maður skelli sér svo ekki í Spinning með Helgu Kristínu? Hmm aldrei að vita! :D
Jájá.. núna er ég í fríi og ætla ekkert að hugsa um neina hollustu. Það má bíða betri tíma ;)
Laugardagur 11. nóvember 2006 / 21:40 / Ýmisleg málefni
Eftir mikla umræðu hjá okkur Þorsteini var sú erfiða ákvörðun tekin um að koma ekki til Íslands um jólin. Við ætlum hinsvegar að eyða þeim hérna hjá Dóru og Eric og koma heim eftir áramót.
-----
DJÓÓÓK! :) Stoppaði hjartað? Fékkstu í magann? Múhahah
En það var hinsvegar tekin erfið ákvörðun hérna fyrir helgi. Við ákváðum nefninlega að fara ekki til Las Vegas :(
Við ákváðum þess í stað að spara peninga og gefa öllum geðveikt stóra jólagjöf uppá fáránlega háa upphæð! Nehh aftur djók. Við ætlum að njóta þess að eiga hugsanlega smáá pening þegar við komum heim - eða allavega ekki háar skuldir.
Við erum búin að vera að skoða bíla á netinu. Þurfum víst að fá okkur einhvern góðan og fjórhjóladrifin... Svona ef Þorsteinn ætlar að keyra á milli þá vil ég nú að hann komist heim eftir vinnu! :)
---
Það er búið að vera svakalega gaman hérna í SLO. Við erum vakin með gríðarlegum fagnaðarlátum á hverjum morgni. Helst vilja krakkarnir nú vekja okkur svona um 6 leytið en Dóra nær að halda aftur af þeim til svona 8 ;) Það er fínt.
Þau eru alveg upptjúnnuð að hafa okkur hérna en eru svona aðeins farin að róast.
Þorsteinn og Gunni settu inn myndband á forgarðs-síðuna sem þið skuluð endilega kíkja á. Ef þið sjáið þá ekki fljúga af blöðrunni þá verðið þið bara að gera "refresh" og reyna aftur.
Ég ætla svo að fara að vinna í því að koma inn myndum. Við erum eiginlega að "stelast" á netið hjá einhverjum nágranna sem er með unsecure-wireless network og við erum alltaf að detta út. Ekki gaman að hlaða inn myndum í svoleiðis ástandi.
---
Jæja. Ég læt þetta nægja í bili. Ég læt vita ef að ég kem inn einhverjum myndum!
Miðvikudagur 08. nóvember 2006 / 04:58 / Ó ljúfa líííf...
Við erum búin að vera GEÐVEIKT dugleg undanfarna 2 daga. Við máluðum allt grindverkið fyrir Ásu á tveimur dögum! Það hefur yfirleitt tekið hana svona 2 vikur að gera það sjálf þannig að við höfum svo sannarlega sparað henni vinnu og tíma :)
Núna erum við bara að plana einhver skemmtileg-heit. T.d. ætlum við til Las Vegas núna í næstu viku. Leigja okkur blæjubíl (það er mun ódýrara en að fljúiga) og keyra þangað. Það er reyndar 6 tíma keyrsla, en við verðum bara dugleg að stoppa og þá verður það fínt. Síðan ætlum við bara að finna okkur ódýrasta hótel í Vegas og gista þar (hey, ætlum nú ekki að eyða Vegas-ferðinni okkar inná hótelherbergi!). Planið er svo að keyra til Grand Canyon og koma við í Hoover-stíflunni. Það er víst svona 3-4tíma akstur til Grand Canyon þannig að það ætti að vera fínt.
Við erum líka orðin svakalega spennt fyrir því að koma heim! Jibbííí það verður svooo gaman.
Fyrir þá sem ekki vita þá er ég búin að fá vinnu í leikskólanum á Grenivík og við erum líka komin með íbúð þar!! Jább. Melgata 4a verður heimilið okkar.. allavega þangað til næsta haust! Þorsteinn ætlar að reyna að fá aftur vinnu hjá ISS og verður þá að vinna næturvinnu :( En það er allt í lagi því hann fær mikinn pening ef hann verður fastráðinn! :D
Íbúðin "okkar" á Grensó er 4ra herbergja = þrjú svefnherbergi! Þannig að allir sem vilja eyða góðri helgi á Grensó eru velkomnir til okkar :D
Það verða örugglega haldin MÖRG matar/gistiboð hjá okkur í vetur og næsta vor! Svo er þetta auðvitað íbúð á JARÐHÆÐ þannig að ekki lengur margir margir stigar upp til okkar (Lína og co frá mývatnssveit geta semsagt heimsótt okkur oft oft, Jibbí!) og hún er með GARÐI sem er algjör draumur fyrir mig og Þorstein.
Jæja. Ég ætla að halda áfram að sörfa netið eftir hótelum í Vegas ;)
Kveðja frá sælureitnum, San Luis Obispo.
Hanna
p.s. Baddý... mig vantar: Meik, andlitskrem, body lotion, mascara (eru þeir ekki frekar slæmir þegar þeir eru orðnir 2ja ára annars?), augnskugga, sólarpúður, gloss, eye-liner....and so the list goes ooooonnnn :D
Laugardagur 04. nóvember 2006 / 02:44 / Farin!
Vildi bara láta vita að við erum núna á leiðinni "heim" í Boníta og erum að fara að pakka niður öllu okkar hafurtaski. Á morgun förum við svo til Thousand Oaks að ná í bílaleigubíl, komum aftur og hlöðum bílinn af dótinu okkar, kveðjum fjölskyldu og nágranna og brunum svo sem leið liggur beint til San Luis Obispo - eða "heim" :D
Ég veit ekki alveg hvernig net-ástandið er hjá Dóru, en ég ætla að kippa því í liðinn fljótlega því ég þarf víst að geta lært.. hef nú ekki gert mikið af því undanfarið en ætla að bæta úr því hjá Dóru.
Blogga um leið og ég get ;)
Kveðja frá the three amigos sem eru alsælir þessa stundina :D
Föstudagur 27. október 2006 / 19:46 / Puppies!
Síðustu sólarhringar hafa verið frekar langir hjá mér. Kimberly hringdi í mig um 9 leytið þann 25okt og sagði mér að Tilly (hundurinn hennar) væri orðin óróleg og væri að gera sig klára til að eignast hvolpa! Ég auðvitað fór beint heim til mömmu hennar Kim (sem hugsar um hundana hennar Kim) og aðstoðaði hana með Tilly sem var frekar óróleg, enda er hún bara unglingur og vissi ekkert hvað var í gangi.
Ég var mætt til Patty (mamma Kim) klukkan 9:30 rúmlega um kvöldið og um miðnætti kom Kim á svæðið þar sem Tilly átti í einhverjum erfiðleikum. Við hringdum í dýraspítalann og lýstum ástandinu fyrir þeim, og þeir sögðu okkur að koma STRAX til þeirra. Við græjuðum okkur því á örfáum mínútum og brunuðum útá spítala sem tók um 20mín! (Mjöög langar 20mín) og þá var Tilly alveg hætt að rembast útaf öllu óðagotinu í kringum hana.
Þegar við komum uppá spítala var Tilly litla drifin í röntgen og svo fengum við að sjá myndir - svona eins og sónarmyndir! Ekkert smá flott að sjá þessa litlu hvolpa í maganum á Tilly. Á röntgen kom í ljós að fyrsti hvolpurinn var á leiðinni út bara með annan framfótin í réttri stöðu, hin var beygður afturfyrir. Það boðar ekki gott hjá svona svakalega litlum hundum. Læknirinn gat heldur ekki sagt til um það hvort að hvolparnir væru enþá á lífi, en ég fann þá samt hreyfast svona um 11 leytið þannig að hún hélt að það væri nú ennþá frekar góð von um að þeir væru sprell-alive ;) Fyrsta hvolpinum var ýtt aftur inn í von um að hann myndi laga sig, en þar sem það var frekar þröngt þarna inní hjá þessum FJÓRUM hvolpum var það ekki mjög líklegt. Svo fékk Tilly sprautu til að hjálpa henni að krampa svo hún gæti rembst betur. Hún var sett í búr svo hún gæti hún yrði óróleg og myndi frekar reyni að rembast.
Hún hinsvegar tók það ekki mál að vera skilin eftir, klemmdi saman afturfæturnar og gelti og gelti og vældi og vældi. Við sátum inná biðstofu og heyrðum í henni, mjög sárt. Allt í einu birtist læknirinn og sagði að hún væri greinilega spilltur hundur og vildi bara vera hjá okkur! :D Ekki stóð á því að tíu mínútum eftir að hún kom til okkar, var fyrsti hvolpurinn á leiðinni út. Hann hinsvegar sat fastur á öxlinni þannig að Tilly var drifin inná læknastofu og hvolpurinn nánast dreginn úr henni! :( Frekar sárt að horfa á það... Hvolp greyjið var dáinn :( En læknirinn sýndi snilldartakta og snör handtök og bjargaði greyjinu!! :D
Eftir það átti Tilly aðra 3 heilbrigða hvolpa og klukkan 5 um nóttina fengum við að fara heim með nýju mömmuna.
Já hún Tilly litla stóð sig eins og hetja og átti fjóra heilbrigða STRÁKA! :)
Ég lagðist semsagt með hausinn á koddann klukkan 6 í gærmorgun og steinrotaðist.
Þetta var samt alveg æðisleg lífsreynsla og mér finnst ég hreinlega eiga heilan helling í hvolpunum litlu.
-----

Þarna er Tilly með bumbuna útí loftið. Krúttið litla.
----

hvernig er hægt að vera svona krúttleg??
----

Hérna eru litlu hvolparnir komnir til mömmu sinnar. Algjörar dúllur
----
Fimmtudagur 26. október 2006 / 02:08 / hmmm...
Ég sem hélt að hérna í Kaliforníu værum við Þorsteinn stödd í einhverskonar framandi landi, langt í burtu frá ættingjum og vinum og værum að upplifa ótrúlega margt nýtt. Þetta hélt ég þangað til ég las bloggið hjá Emblu bekkjarsystir. Vá vá vá. Hún er í Rússlandi að vinna á leikskóla með fötluðum börnum og virðist oftast ekki vita hvað snýr upp og niður í heiminum, en kann samt alltaf að sjá broslegu hliðarnar. Það er alveg stórkostleg lesning að lesa bloggið hennar, hún er frábær penni.
Ég er búin að átta mig á því að hérna í Kaliforníu höfum við það mjög mjög mjög gott.
Akkurat núna mallar uppáhalds kjúklingarétturinn minn (ala Dagný systir - pestó og tagliatelle pasta! Mhh) í ofninum og strákarnir horfa á 60' sjónvarpið. Ætli það sé ekki rétt að við Embla erum á sitthvorum endanum. Öfgarnar í báðar áttir.
Ísland er í miðjunni. Búin að sjá það fyrir löngu.
Ef þú lest einhverntíman bloggið mitt Embla, þá sendi ég þér styrkjandi strauma á hverjum degi!
Og hættu svo að hlæja að rússnesku löggunni ;)
Mánudagur 23. október 2006 / 16:17 / Dive Devil
Ég, Gunni og Þorsteinn gerðum eitt það GEÐVEIKASTA sem ég hef hingað til gert á ævinni. VIð fórum nefninlega í Dive Devil í Six Flags.
Það virkar þannig að maður klæðir sig í einhverja rosalega múderingu, fer á pall, erum öll bundin saman og svo er maður hífður upp... upp... upp....
Hér getiði svo séð hvað gerist næst!!
Sunnudagur 22. október 2006 / 18:58 / Lærilæri - tækifæri?
Í gærkvöldi var ég EIN heima í fyrsta skipti í mjög svo langan tíma. Ég sat heima í Boníta (við erum alveg flutt í litlu íbúðina, mjög kósý) og hafði Piper með mér (verð nú að haf varðhund/félagsskap!).
Ég lærði og fór svo út að skokka með Piper og svo aftur að læra. Eftir mikinn lærdóm nennti ég ekki meiru og horfði á Grey's það sem eftir lifði kvölds.
Strákarnir komu svo heim klukkan að ganga tvö um nóttina, og þá var mín bara enþá spræk. Þeir fóru semsagt á Iron Maiden tónleika í gær. Þeir blogga sjálfir um það seinna.
Í dag er ferðinni heitið til Valencia að kaupa afmælisgjöf handa Christy sem á einmitt afmæli í dag. 15 ára gellan.
Síðan stefnum við viðstöðulaust í Magic Mountain þar sem rússíbanarnir fara Afturábak! :D Jibbbí
---
Það er nú samt sem áður margt búið að ganga á. Fasteignasalinn sem er búinn að vera að reyna að selja Boníta var brjálaður útaf Tim þar sem Tim reykti víst inní herberginu sínu og var með almennan sóðaskap. Hann vildi Tim út.
Tim var svo með lykla að íbúðinni okkar og valsaði hingað inn þegar við vorum ekki heima og notaði ísskápinn (vonandi ekkert fleira!)
Í vinnunni var hann svo með eintóma stæla, hætti alltaf snemma því núna má hann ekki drekka í vinnunni þannig að greyjið var orðinn bjórþyrstu strax um 3 leytið.
Hann var líka eitthvað fúll við Hróbjartinn þannig að það endaði bara með því að karlaumingjinn var bara REKINN!
Jább. VIð munum aldrei aftur sjá Tim Havens, og verð ég nú bara að segja að mér sé mjög létt.
Við fórum t.d. út að borða og þegar kom að því að borga, upplýsti hann að hann væri ekki með neinn pening! Þetta kom fyrir oftar en einu sinni. Eins ef við fórum með honum á djammið, þá þurftum við að borga alla bjóra og allt ofaní hann.. hann bara pantaði sér og pantaði og fékk svo alltaf "lánað". Við sáum reyndar ekkert eftir þeim peningum þar sem við vissum alveg að við myndum aldrei sjá þá aftur. En jæja. Hann er farinn og vonandi á hann eftir að takast á við þennan Alkahólisma og hætta að kenna öðrum um það sem fer miður í hans lífi.
Lengi lifi Tim Havens - Húrra Húrra Húrra!
---
Þorsteinn fer eins og hreingerningarstormur um herbergið á meðan ég stend hérna og blogga með annari og slétti hárið með hinni. Við eigum líka morgundaginn í frí þannig að þá ætla ég að reyna að læra meira og kannski blogga strákarnir þá, eða í kvöld. Eins er nú kominn tími á að setja inn einhverjar myndir? Þó við séum nú ekki búin að vera dugleg með myndavélina, því miður.
---
Kveð að sinni. Verið hress - Bless
Hanna
Fimmtudagur 19. október 2006 / 05:04 / Fyrsta vinnuvikan
Þessi vika sem senn er hálfnuð (mið-viku-dagur) er búin að vera fyrsta alvöru vinnuvikan hjá strákunum í langan tíma.
Við unnum öll eins og brjálæðingar í dag við að setja upp einangrun í loftið milli hæða. Af þessari vinnu kom GRÍÐARLEGA mikið ryk og annað drasl og vorum við því líka dugleg að þrífa eftir þetta allt saman. Þurftum meira að segja að þrífa veggina í húsinu því það var allt þakið í ryki.
Í gær gerðum við svo okkur lítið fyrir og bókuðum eitt stykki ferð til LAS VEGAS og ætlum við að fara með Rob og Kim þann 9 nóv og vera til 12 nóv. Úff vonandi verður það alveg ógeðslega gaman og vonandi náum við að bæta allt fjárhagslega tapið sem við höfum orðið fyrir hérna í USA. ;) Híhíhí
---
Núna sit ég með fínu fartölvuna mína uppí rúmi, með heyrnartól á hausnum (er ekki enþá búin að setja neitt í spilarann!) og á að vera að læra. Þorsteinn er að horfa á einhverja leiðinlega mynd með Sean Penn & Al Pacino og ef ég þekki okkur rétt þá verðum sofnuð eftir svona klst.
---
Í gær fórum við þrenningin og Kim í Pilates. Það var algjör snilldar tími og við ætlum að reyna að fara sem oftast.
Gunni frjálsíþróttakóngur tók vel á því og við erum öll frekar aum eftir miklar æfingar ;) Pilates í Pilates-bekkjunum er alveg GEGGJAÐ. Mæli EINDREGIÐ með því. Við erum nú hreinlega komið á það að flytja inn þessa snilldar bekki ef þeir eru ekki til á Íslandi. Ég hef nefninlega bara heyrt tala um (og séð auglýst) mottu-Pilates.
---
Annars er stefnan tekin á Six Flags á sunnudaginn þar sem að Halloween er í hámarki og þar af leiðandi eru sumir rússíbanarnir breyttir og fara nú AFTURÁBAK! Algjör snilld.
---
Jæja. Ætli maður verði ekki að læra eitthvað. Freyja, þú spurðir í hvaða fjarnámi ég væri. Ég er semsagt í fjarnámi frá Versló og er að læra Stjórnun (þar sem ég uppgvötaði áðan að ég átti víst að kaupa eitthvað hefti í því fagi! Fór algjörlega framhjá mér!), Menningarfræði þar sem aðal lesefnið er heimspekisaga eftir Gunnar Skirbekk!! Úff. Þvílík leiðindi. Og svo er það uppáhalds fagið mitt, Fjölmiðlafræði. Það versta er bara að mig langar aldrei að þær neitt annað en fjölmiðlafræði! :S
---
Góða nótt kæra fjölskylda, elskulegu vinir og ágætu kunningjar. Góða nótt líka til þeirra sem rákust bara hingað inn, eða þekkja mig ekki neitt ;)
Kveðja frá Kali þar sem stuttermabolirnir ríða rækj...ráða ríkjum! :D
Mánudagur 16. október 2006 / 21:07 / Bara 62 dagar í heimkomu!!
Þeir sem lásu fyrirsögnina, lásu rétt! Við komum heim eftir 62 daga! :D
VIð eyddum helginni í rólegheitunum í San Luis Obispo. Það er svo gott að koma til Dóru og Erics. Algjör draumur.
Þar fengum við gott að borða, lékum okkur í sundlauginni, sváfum í sófanum, lékum við krakkana og bjuggum til vín úr vínberjum ;)
Við ætluðum á djammið á laugardaginn.. en uppsöfnuð þreyta hafði yfirhöndina og Gunni svaf inní herbergi á meðan Þorsteinn svaf í sófanum. Við Dóra drukkum hinsvegar rauðvín og spjölluðum til 01:30 um nóttina. Ótrúlega fínt laugardagskvöld. Hún minnir mig svo mikið á Siggu "systir" (móðursystir) og Höllu "frænku". Svona frábær samblanda af þeim tveimur.
---
Fjóla mágkona Þorsteins sendi okkur e-mail í dag og sagði okkur að Lauga gamla væri dáin. Ég vil votta öllum virðingu mína og ég vildi óska að ég væri heima á Íslandi til að knúsaTúngötu-liðið. Þið vitið bara af því að ég knúsa ykkur í huganum og sendi styrkjandi strauma heim á leið.
---
Hérna í Carver Ct tökum við eitt skref í einu, einn dag fyrir í einu. Það er frekar erfitt að skipuleggja eitthvað.. og ég ætla fljótlega að kaupa eina stóra og góða ferðatösku til þess að vera tilbúin ef allt færi nú í hundana. Það er enn sem komið er ekki komin nein niðurstaða á húsbreytingum þannig að það er allt óákveðið. Semsagt voðalega lítil vinna fyrir Þorstein og Gunna. Því miður. Ef það heldur áfram mikið lengur þá veit ég ekki alveg hversu lengi Þorsteinn þraukar í því að dunda sér hérna með mér. Þó að 62 dagar séu ekki mikið.. þá eru þeir lengi að líða þegar maður getur ekkert gert nema hjálpað "kellingunni" að skúra gólf eða þrífa klósett. Ekki beint það mest spennandi í heimi og ég skil það mjög vel að Þorsteinn nenni því ekki í tvo mánuði í viðbót.
En eins og ég sagði. Við tökum einn dag fyrir í einu og við vitum að Dóra og Eric (og Ása) eru með nóg pláss fyrir okkur.
Eins og mamma sagði: Þar sem er hjartarúm, þar er húsrúm!
---
Fleiri fréttir koma vonandi í kvöld. Ætla að reyna að stytta þessa pistla mína eitthvað svo að einhver nenni að lesa þá!
:D
Föstudagur 13. október 2006 / 06:23 / Sæludagar í Kaliforniu
Fyrirgefið kæru ættingjar, vinir, kunningjar og allir aðrir að við skulum ekki láta vita af okkur fyrr. Örugglega ekki gott fyrir ykkur að lesa svona þunglyndis blogg og hafa áhyggjur. Eða bara að lesa svona þunglyndisblogg, þó þið hafið engar áhyggjur! :) Ég vil þakka öllum fyrir að kommenta hjá mér. Greinilegt að ég þarf oftar að vera í niðurdregnu skapi því þá fyrst fær maður almennilegan fjölda af kommentum! :D
Ég vil sérstaklega þakka þeim sem kommentuðu, en hafa ekki kommentað áður. Það var virkilega gaman að sjá hversu margir fylgjast með manni.
----
En svo þið getið andað léttar þá hafa undanfarnir dagar verið fínir og dagarnir framundan verða örugglega enþá betri.
---
Það sem gerðist eftir þetta blessaða þunglyndiskast okkar var að við fluttum yfir í Bonita. Jább þið lásuð rétt. LOKSINS erum við komin í íbúðina sem við áttum að fara í fyrir löööngu síðan. Við erum komin með rúmið okkar (eða rúmið hennar Kim) náttborðin tvö, sjónvarp og stóran skenk. Hérna er svo eldavél og ísskápur og vonandi fáum við bráðlega eldhúsborð og stóla. Þetta er ekkert smá næs. Núna vöknum við á morgnana og mætum í vinnu og förum svo aftur heim að kvöldi til! Frábært! Gunni er reyndar ekki fluttur til okkar strax, en hann flytur inní stóra einbýlishúsið núna eftir helgi vonandi. Við hreinlega nenntum ekki að flytja rúmmið hans yfir.
Nú jæja. Á mánudagsmorgninum flaug Hróbjarturinn til Austin, TX til að kaupa íbúð þar fyrir peningana sem hann fékk þegar hann seldi hina íbúðina sína. Ekki spyrja. Það þýddi að við vorum bara ein heima með Kim og það var ekkert smá frábært. Vildi óska að það væri alltaf þannig. Hún skutlaði manninum sínum á flugvöllinn um morguninn (ég átti að gera það, en hún bauðst til þess svo ég gæti sofið lengur.. mhhh!) og svo kom hún heim og fékk FLOG inní bílskúrnum og henti svo miklu drasli að þið trúið því ekki! Mánudagurinn fór semsagt bara í það að henda út drasli. Já ekki samt segja Hróbjarti að draslinu hans hafi verið hent. Við sögðum honum nefninlega að við hefðum farið með það til vinkonu hennar Kim sem ætlaði að halda bílskúrssölu, og að við hefðum líka farið með fullt í hjálpræðisherinn, sem er bull. Hehe ;)
------
Þriðjudaginn fluttum við svo hingað til Bonita! Reyndar þurfti ég að þrífa íbúðina alveg ÓGEÐSLEGA vel þar sem Tim er búinn að vera hérna mjög lengi og hann hefur REYKT inni (ógeð, viðbjóður!) plús að skilja eftir óhreina tau í langan tíma á gólfinu. Mhhh,.. mjög svo girnilegt eða þannig.
Eftir að ég skrúbbaði gólfið og setti eitthvað lyktarpúður á gólfteppið þá var loksins hægt að setja eitthvað af dótinu okkar hingað inn! Hérna líður okkur vel ;)
----
Miðvikudagur. Við vöknuðum ekkert svakalega snemma þar sem við vorum í fríi. Við græjuðum okkur og "sprengdum" svo íbúðina, eða settum af stað skordýra-sprengju. (Þetta kallast á enskunni "To bomb the house!") og það virkar þannig að maður setur svona brúsa á gólfið og ýtir svo á takka og þá spreyjast út af fullum krafti eitthvað baneitrað skordýraeitur sem drepur öll skordýri í x-stórum radíus í kring.
Við fórum svo heim í Carver og náðum í Gunna sem beið spenntur eftir því að eyða deginum í IKEA! (Hey, við þurftum nú að versla aðeins fyrir nýju íbúðina okkar híhí)
Við ákváðum á sprengja líka Carver og Gunni fór upp með eina sprengju, ég var niðri með tvær og Þorsteinn í bílskúrnum með eina.
Það gekk svo vel að helv. reykskynjarinn fór í gang og hann virkjaði Securitas kerfið okkar! Þorsteinn REIF reykskynjarann úr sambandi (í bókstaflegri merkingu) og ég slökkti á öryggiskerfinu eftir smá púl. En þá hringdi síminn! og ég vissi að það var öryggisfélagið að hringja og athuga hvort það væri ekki allt í lagi. Nema hvað að síminn var inn í eldhúsi þar sem allt eitrið var!
Ég greip fyrir andlitið og hljóp inn, náði í símann og beinustu leið aftur út! Þeir frá öryggisfélaginu spurðu hvað væri í gangi, og ég auðvitað sagði "It's okay, there's no fire.. we were just BOMBING THE HOUSE!" Og svo fattaði ég hvað ég sagði og bætti við (mjög hratt) "Bomb for Spiders and Insects!!!!" Hehehe
Þetta bjargaðist samt allt saman og í dag sáum við svarta ekkju (kóngulóna) steindauða fyrir utan bílskúrshurðina hjá okkur... hefur verið á innleið þegar eitrið drap hana! Múhahaha! :D
Restinni af deginum eyddum við svo í að villast um Burbank þar sem asninn hún ég tók hægri beygju en ekki vinstri beygju (ég kann ekki enþá muninn á hægri og vinstri!) en það bjargaðist og við fundum IKEA (enda erfitt að komast hjá því að sjá þessa riiiisastóru verslun). Mér til mikillar gleði var IKEA á tveimur hæðum! Vúhú! :D Algjör snilldar verslun. Strákunum fannst ekkert SMÁ gaman þarna. Misstu sig hreinlega ;)
Við fórum svo í Burbank Mall sem tók Smáralindina og Kringluna hreinlega í NEFIÐ. Gunni fór í einhversskonar vatnsnudd þarna - erfitt að útskýra - og á meðan röltum við Þorsteinn milli búða. Við keyptum okkur ekki neitt enda erum við að spara fyrir einu ótrúlega dýru sem við ætlum að fá okkur á næsta ári! ;) ;)
---
Deginum í dag var varið í húsinu hennar Pattyar, sem er mamma hennar Kim. Þorsteinn, Gunni og Jeremy (vitum ekkert hver það er..) hjálpuðu Brian (bróðir Kim) að tæææma algjörlega bílskúrinn, þrífa hann, setja upp "háaloft" og setja aftur inní hann. Reyndar var ég auðvitað á staðnum líka með pennann og merkimiðana á lofti. Sá sko til þess að enginn kassi fór ómerktur aftur inn í bílskúrinn ;) Ég gerði líka eitthvað meira sko, ekki misskilja mig ;)
Það má eiginlega segja það að við Þorsteinn séum orðnir professional garage cleaners og eigum framtíðina fyrir okkur í því. Fyrsta verkefnið okkar heima á Íslandi verðum samt án efa ÁSVEGUR 3 HAUGANESI! (Pabba til mikillar gleði híhí)
Já og Hróbjarturinn kom heim í morgun og er búinn að vera í fýlu síðan þá. Varla talað við okkur. Kannski hefur það eitthvað að gera með að húsið hans var nánast tómt þegar hann kom heim. Kim henti meira að segja öllum handklæðunum þeirra OG sænginni þeirra! Híhí
---
Í fyrramálið, nákvæmlega klukkan 08:45 er ferðinni svo heitið til San Luis Obispo þar sem heilaga þrenningin ætlar að eyða tíma með Dóru og Eric --- verðum víst að sýna Gunna að það eru ekki allir kanar jafn geðveikir og Morgenroth fjölskyldan híhí
Við ætlum semsagt að ferðast FIRST CLASS með lestinni sem fer frá LA alla leið upp í rassg... nehh ;) Veit ekki alveg hvar hún endar ;) Þetta er fjögra tíma ferð, og við fórum í Albertsons áðan og nestuðum okkur upp með samlokum og drykkjum! Þetta verður örugglega fínasta ferð.
Það er nú ekki mikið á dagskránni þarna í SLO en við ætlum að reyna að fara og týna vínber með þeim og búa til rauðvín! :D Það verður örugglega stuð að prófa að fara á svona alvöru vínekru og týna niður vínberjaklasana.
---
Þið fáið engar fréttir (held ég) fyrr en eftir helgi. Hef reyndar tölvuna með en Dóra og Eric eru ekki með netið heima hjá sér. Reyndar erum við ekki með netið hérna í Bonita heldur - bara einhver góðhjartaður nágranni sem læsti ekki fyrir þráðlausa netið hjá sér ;) Híhí
Kannski verðum við jafn heppin í SLO eins og hérna og fáum frítt net. Vona það því fartölvan fer svo sannarlega með! :D
---
Ég ætla að enda þetta blogg á nokkrum lélegum myndum úr tölvunni hjá mér (jább, tölvan mín er svo frábær að hún er með myndavél!) Þetta eru nokkrar myndir af Þorsteini, Gunna, Mér, Dylan og svo smá héðan frá Boníta.
Enjoy!
---
P.s. Anika, takk fyrir spjallið í kvöld, síminn minn varð batt.laus :/ Heyri betur í þér eftir helgi elskan. Ekki segja samt neinum frá því sem ég sagði þér! :D Danke beibí
Já og ekki þú heldur Helga Kristín! :D
----

--

--

--

--

--

--

Mánudagur 09. október 2006 / 07:09 / Að vera eða ekki vera
Ég hef aldrei litið á sjálfa mig sem "quitter" þ.e. manneskju sem gefst auðveldlega upp. Ég hef oft gefist upp á bjánalegum hlutum eins og að fá ekki sjónvarpið/videoið til að virka osvfrv. en venjulega þá stend ég við stórar ákvarðanir sem ég hef tekið. Sem dæmi má nefna þá féll ég 5 sinnum í stærðfræði í MA en gafst ekki upp og hélt ótrauð áfram, jafnvel þó ég hefði fallið um bekk. Þetta var vandamál sem hægt var að yfirstíga og mér tókst það með sanni og útskrifaðist í vor með ágætis einkunnir. Sama má segja um ræktina. Ég gafst ekki upp þó mig hefði oft langað til þess og náði líka góðum árangri þar. Flest ykkar vita að ég hef mikið unnið með fötluðum og þó ég hafi oft verið nálægt því að gefast upp, þá hef ég alltaf bitið á jaxlinn sama hvað á gengur og uppsker ég því eftir því, enda finnst mér æðislegt að vinna með fötluðum börnum og veit núna að þar er ég á heimavelli.
En stundum þarf maður að spyrja sig, hvenær setur maður fótinn fyrir dyrnar? Er virkilega ekki stundum gott að gefast bara upp, pakka saman og skríða heim til mömmu með skottið á milli lappanna. Það þarf ekki að búa nein skömm á bakvið það að "gefast upp". Stundum hreinlega ganga hlutirnir ekki upp. Á þessari stundu langar okkur Þorsteini og Gunna mjög mikið að pakka bara saman og fara á flakk um bandaríkin og fara svo bara heim í nóvember.
Það er alls ekki það að hér sé slæmt að vera, það er bara allt svo "erfitt". Alveg sama hvað það er, þá er svo mikið stress og vesen í kringum allt. Það er ætlast til svo mikils að það er eiginlega fáránlegt. Við erum ekki unglingstúlkur frá eystrasaltsríkjunum sem þrá ekkert heitar en að þræla sig út í Ameríku. Við erum ungt, gáfað og heilbrigt fólk sem vill lifa lífinu lifandi, en ekki kramið undir skósólanum hjá einhverjum uppa sem heldur að hann eigi pening.
Eins og staðan er í dag þá eigum við að vera alltaf með allt á hreinu, vita nákvæmlega hvað við eigum að gera allann daginn, alla daga og ekki bara "glamra á gítarinn og glápa á sjónvarpið" eins og þetta var svo skemmtilega orðað. Eigum bara að drífa okkur í að gera eitthvað og hann veit ekki einu sinni sjálfur hvað hann vill gera!!
Núna eru plönin fyrir húsið ekki enþá komin inn og þegar þau koma til baka frá bænum þá þurfa þau að fara aftur til arkitektsins - og svo aftur til bæjarins! Það veit enginn hversu langan tíma það mun taka.
Asnaeyrun okkkar eru að verða ansi útteygð og spurning hversu mikið af svona óvissu maður getur höndlað.
Jább. Stundum langar manni hreinlega að pakka niður og hverfa í skjóli nætur.
Við erum í fríi núna á þriðjudag og miðvikudag. Vinnum á fimmtudag og svo fríi föst-sun. Þá ætlum við vonandi til Dóru og Erics og reyna aðeins að fá smá hvíld. Ég er síþreytt, alltaf pirruð útí greyji Þorstein sem á það alls ekki skilið og útúr stressuð á þessu fjölskyldulífi hérna ... eða á maður að segja þessu ófjölskyldulífi hérna?
---
Eins og ég sagði samt áðan. Ég hef aldrei talið mig vera Quitter, og ég ætla ekki að byrja á því núna.
Það er bara að duga eða drepast.. og fyrr skal ég dauð liggja en koma heim með skottið á milli lappanna og láta þennan andskotans karlpung "vinna".
Og hana nú!!!
Föstudagur 06. október 2006 / 06:36 / Ósanngirni
Frá því að skólarnir byrjuðu hérna í September hafa orðið 3 skotárásir í skólastofum (svo við vitum)
Í fyrstu árásinni réðst maður inní skólastofu og sendi alla út nema 6 stelpur. Hann hleypti seinna 2 stelpum út og skaut svo hinar 4 og svo sjálfan sig.
Í öðrum skóla dulbjó fertugur maður sig sem ungling og sat í tíma með high-school krökkum. Í miðjum tíma stendur hann upp og skýtur nokkra nemendur.
Núna í byrjun okt réðst mjólkurbílstjóri inn í pínu litla skólastofu þar sem Amish-krakkar sátu við lærdóm. Hann sendi út alla fullorðna og alla drengi og skaut 5 stúlkur, ein lifði af. Stelpurnar sem hann skaut voru á aldrinum 7-9ára.
Ég las á fréttavef nbc að sú sem hann skaut fyrst, hafi boðið sig fram í von um að kaupa tíma fyrir hinar stelpurnar. Hún sagði: "Please, shoot me first" og systir hennar bað svo um að vera skotin á eftir henni.
Í öllum tilfellum framdi árásarmaðurinn sjálfsvíg eftir atburðina.
Það sem mér finnst svo merkilegt að lesa um morðin á Amish-stelpunum er að Amish trúin leyfir ekki reiði. Hún leyfir heldur engar refsingar og Amish-fólk trúir ekki á réttarsali eða lög ameríska ríksins.
Samkvæmt fréttavef nbc var greinilegt að samúð ríki á útför stelpnana, sem fór fram í gærm, fyrir árásarmanninum og Amish fólkið talaði um það að það væri mjög leiðinlegt að hann hafi framið sjálfsvíg, því hann hefði öðlast fyrirgefningu hjá guði.
---
Meira hef ég ekki að segja í bili
Inga - kíktu á póstinn þinn!! :D
Þú líka Lísbet :D
Jonna.. ég sendi þér bráðum
Sama með þig Damma mín ;)
Fimmtudagur 05. október 2006 / 00:09 / Þetta er yndislegt líf...
Hérna sit ég að skrifa á NÝJU tölvuna mína!! Ohh hvað þetta er æðislegt! :)
Þegar hundarnir fóru að gelta núna seinnipartinn þá vissi ég strax að nú væri elsku tölvan mín mætt á svæðið. Ég hljóp eins elding út og var komin út áður en karlinn var kominn útúr bílnum! Ég beið eins og smá krakki meðan hann náði í pakkann og nánast hrifsaði hann af honum.
Fyrsta sem ég gerði var auðvitað að stinga henni í samband og byrja á því að ná mér í Mozilla Firefox svo ég gæti nú farið á netið. Ég nenni nefninlega enganvegin að nota Explorer. Svo af því að tölvan er ný, þá varð ég auðvitað að næla mér í nýtt look á firefoxinn. Svo setti ég inn íslenskuna og er að fara að ná í msn og skype! Þá er þetta allt klárt. Þessi tölva er svo mikil snilld að hún er með myndavél í skjánum (fyrir ofan skjáinn) þannig að ég get alltaf talað við alla í gegnum video þegar ég tala á skype! :D
Verst bara að það eiga svo fáir myndavél við sínar tölvur þannig að fólk fær alltaf að sjá hvað ég er sæt, en ég get aldrei séð hvað aðrir eru sætir :( Koma svo fólk! Kaupa sér Cameru!! :D
Jæja. Ég ætla að fara að brasa eitthvað skemmtilegt í nýju tölvunni minni. Jibbý! Svo er ég líka að fara að læra og hjálpa krakkarössunum að læra líka. Vúhú! :D
Miðvikudagur 04. október 2006 / 05:26 / Daginn í dag, daginn í dag gerði drottinn guð!
Dagurinn í dag var mjög fínn. Ég var heima og þreif eins og mófó og hafði það bara alveg ágætt. Gerði crockpott í kvöldmatinn. (Crockpot virkar þannig að maður setur eitthvað matarkyns í svona stórann rafmagnspott, í kvöld setti ég kjúkling, svo setti ég cambells sveppasósu yfir allt saman, krydd og allskonar grænmeti. Síðan fær maturinn að malla í allt að TÍU TÍMA!) Mér finnst cockpott hinsvegar svo ógeðslega ógirnilegt og viðbjóðslega vont (afsakið orðbragðið) að ég get ekki borðað það. Allavega. Kim og ég fórum svo klukkan hálf sjö í Pilates sem ég er alveg að fíla í klessu!! Af því að ég eldaði svo ógeðslegan kvöldmat þá fórum við Kim bara á Sushistað og fengum okkur Sushi. Það var ekkert smá gott. Fengum okkur líka smá rauðvín með. Komum svo við í Trader Joes og keyptum Lambrusco (þrjár flöskur, kostar ekki nema 5 dollara hérna!!!) og drukkum heila flösku í heitapottinum áðan. Mhh.. á svona dögum þá langar mig bara að vera hérna eeeendalaust - auðvitað með rauðvínsflösku í hönd ;)
Á morgun byrja ég svo að vinna eftir strangri "dagskrá" þar sem karlinn var víst eitthvað óánægður með vinnuna mína hérna (kjaftæði) þannig að ég ákvað að gera bara almennilega dagskrá og athuga hvernig mér gengur að fylgja henni eftir. Ef það gengur ekkki þá bara "fokk-it!" og við komum snemma heim ;)
Annars erum við orðin ákveðin í að koma heim um áramótin og fara ekki út aftur. Það er allt eitthvað svo óákveðið hérna (á heimlinu) og allt í lausu lofti (vinna, hjónaband, nefnið það bara!) og við nennum ekki að standa í svoleiðis!
Þess í stað ætlum við bara í öryggið og reikningana heima á Íslandi ;) Þið megið endilega hafa augun opin fyrir íbúð á Grensó eða Hauganesi sem losnar í desember/janúar. Við erum alveg topp leigendur! :D
Jæja.. Best að fara að sofa. langur dagur á morgun. Krakkarnir í skólann og þrif eftir nýju skipulagi! ;) Spennó!
Góða nótt elskurnar mínar. Elska ykkur öll! :D
Þriðjudagur 03. október 2006 / 06:56 / Hmm
Hvar á að byrja. Það er svo langt síðan ég bloggaði síðast að það er alveg ótrúlegt.
Fyrsta og mikilvægasta mál á dagskrá er auðvitað að tölvan mín er ekki komin í hús :( Tölvulánið er hinsvegar komið í gegn þannig að kannski ég kaupi mér bara föt fyrir 100þúsundkjall! :D Neinei, ég er víst búin að versla nóg af fötum (segir Þorsteinn.. ég er algjörlega, gjörsamlega ósammála!)
Það er svaka fjör að hafa Gunna hérna. Reyndar breyttist ekkert voðalega mikið. Núna eru bara tveir strákar hangsandi hérna heima en ekki bara einn. Breytingarnar á húsinu er nefninlega ekki ENÞÁ byrjaðar þar sem við erum að enþá að bíða eftir samþykki frá bænum. Það hlýtur að koma fljótlega.
Á meðan dunda þeir sér í tölvunni og ég er komin með ansi sprækann trúbador sem glamrar á kassagítarinn í tíma og ótíma, að ógleymdum söngnum sem fylgir með! :D
Við fórum svo í six flags í gær. Það var hörku stuð. Strákunum tókst að draga mig í hvert tryllitækið á fætur öðru. Fórum t.d. í rússibana þar sem maður var STANDANDI allann tímann. Fórum líka í annan sem að hristi hvern einasta líkamspart á manni - Þorsteinn kallaði hann Þvottabrettið ;)
Sá besti var samt án efa sá sem fór beinustu leið upp.. upp.. upp! Og maður horfði bara BEINUSTU LEIÐ niður! Svo allt í einu var bara frjálst fall niður.. beint áfram, í hring eftir hring og svo afturábak upp.. upp.. upp þangað til að maður horfði beint uppí loftið og svo frjálst fall aftur niður.. afturábak! Þetta var svo geðveikt að það er algjörlega ólýsanlegt. Ég hljóp eins og smástelpa á milli tækjanna. Okkur tókst líka að fara í 15 rússíbanaferðir á 8 tímum sem mér þykir nokkur góð frammistaða miðað við að bíða líka í röð og fá okkur að borða, allt röltið og bara allt þess á milli. Þetta var alveg frábært dagur.
Þorsteinn var með einhverjar yfirlýsingar um að blogga nánast á hverjum degi. Það hefur hinsvegar ekki gengið eftir þannig að núna skora ég bara á manninn minn að blogga sem fyrst! Fullt af aðdáendum sem bíða í ofvæni eftir nýju bloggi frá kappanum ;)
Jæja. Ég verð að koma mér í bólið. Er búin að senda svona milljón e-maila í kvöld (nema til þín Lísbet, sorry!! geri það vonandi á morgun) og svo ætla ég bara að sitja við útidyrahurðina á morgun og bíða eftir því tölvan mín birtist!! :D Þá verður sko bloggað like kreisí! :D
Góða nótt / góðan dag kæru lesendur
Hafið það sem allra best
Sérstakar kveðjur fara uppí Mývatnssveit! Hlakka til að hitta ykkur um jólin ströndungar! ;)Nafna mín; Vettlingarnir sem þú prjónaði handa okkur Þorsteini fóru í sérstakann kassa svo við gætum notað þá heima í kuldanum um jólin :D Þeir eru alveg frábærir! Eins og þú ;)
Mánudagur 25. september 2006 / 21:28 / Frábær helgi!!
Þessi helgi sem nú er liðin var ein besta helgi sem við höfum átt frá því að við komum hingað!! Þetta var ekkert smá æðisleg helgi.
Hún byrjaði semsagt þannig að við stukkum á lappir á föstudags morgninum, kláruðum allt sem við þurftum að gera hérna heima, hentum töskunum uppí trukkinn og brunuðum af stað til Pasadena þar sem ég átti tíma hjá augnlækni klukkan 12:00 svo ég gæti nú fengið mér linsur.
Hér kemur svo augnlæknasagan:
---
Við mætum á svæðið rétt fyrir 12 og ég skrái mig inn og við setjum svo. Eftir smá bið (svona 10mín) þá er nafnið mitt kallað. Jújú, ég fer inní eitthvað herbergi með japönskum dúdda sem mælir eitthvað á mér augun og segir mér svo að fá mér sæti, læknirinn kalli á mig! Þetta var semsagt ekki læknirinn heldur bara einhver strákur sem gerir nokkur test. Jæja, ég tylli mér aftur hjá Þorsteini og bíð í smá stund þegar doksinn kallar á mig. Ég fer með henni eitthvert annað og hún gerir allskonar sjóntest, skoðar á mér augun og bakvið augun (jább, ég er með 3 ör á hægri auga og 1 á vinstri auga.. ekki gott! en reeeeddast) Svo segir hún mér að fá mér aftur sæti og bíða eftir að linsu konan komi. Ég sest niður og eftir svona korter kemur linsukonan (rússnesk) og horfir á mig setja linsurnar í augun á mér (það nægir ekki bara að segja að maður sé búinn að nota linsur í 3 ár, heldur verða þau að sjá mann setja þær í..) Svo kemur að annari bið, þar sem augnlæknirinn þarf að sjá mig með linsurnar í augunum svo ég geti nú farið heim!! Loksins eftir 1 og hálfan tíma hjá augnlækninum er mér sleppt út... en þarf samt að mæta aftur í þessari viku til að fá staðfestingu á að linsurnar passi mér!!! HALLÓ! Þetta var mesta vesen sem ég hef nokkurntímann átt í. Kostaði líka 7000kr!!
But well.. þá veit ég allavega að augun á mér eru við "hesta" heilsu þrátt fyrir að vera smá örótt.
Núna get ég líka pantað mér linsur á netinu (það er mun ódýrara heldur en að kaupa þær í búð) því ég er komin með recept frá bandarískum lækni! jibbí!
----
Áfram með æðislegu helgarsöguna okkar.
---
Eftir þessa skemmtilegu augnlæknisheimsókn keyrðum við af stað til Lake San Antonio. Þar sem Pasadena er í klst fjarlægð frá Simi - í akkurat hina áttina frá Lake San Antonio, þá bættist klst við keyrsluna okkar. Úff..
Við fórum af stað um hálf 2 og vorum mætt rúmlega 6 á "tjaldstæðið".
Þar biðu Dóra og Eric ásamt Míu og Kees (borið fram "Keis") sem eru mamma og pabbi Erics. Auðvitað voru Emma og Thor (uppáhöldin okkar) þarna líka.
Eric og Dóra komu með tjald handa okkur, en þau sváfu í húsbílnum sem Mía og Kees eiga.
Tjaldstæðið okkar var semsagt alveg uppvið vatnið, á sandinum. Eric og Dóra voru með bátinn sinn og við fórum 1 sinni út á bátinn á föstudeginum. Svo grilluðum við steikur og Bratwursts (pylsur) og höfðum það kósí með varðeld og allar græjur. Emma vildi svo endilega sofa í tjaldinu með okkur Þorsteini þannig að við kúrðum með Emmu á milli okkar á föstudagskvöldið. Laugardagurinn var svo tekinn snemma (eiginlega bara útaf því að Emma vakti okkur klukkan 6.. en jæja!) með pönnsum í morgunmat. Namminamm ;)
Lynn og Mark, vinafólk Dóru og Erics, komu svo uppúr hádegi á laugardeginum. Þau eru alveg ótrúlega hress og skemmtileg. Við fórum svona 5 sinnum útá bátinn á laugardeginum og það var alltaf jafn gaman. Þess á milli lá maður í sólbaði, lék sér í vatninu eða fór í tennis við krakkana. Eric og Mark prófuðu báðir að fara á sjóskíði og var það mjög gaman að fylgjast með þeim ;) Við Þorsteinn vorum ekki alveg að treysta okkur í það ;) Við hinsvegar fórum nokkuð margar ferðir í Viperinn (tuðrann) og það var alveg GEEEEEGGJAÐ. Þorsteinn fór einu sinni með Mark og Mark FLAUG útúr tuðrunni á fleygiferð, en Þorsteinn ætlaði sko ekki að detta útí vatnið og hélt sér sem fastast.
Við erum bæði með hálfgerða strengi eftir þetta. Sérstaklega í brosvöðvunum þar sem maður brosir allann hringinn meðan maður þeysist út og suður á þessu tæki. Maður rígheldur sér svo í að maður er með alla vöðva líkamans spennta. Þetta er alveg geggjað!
Laugardagskvöldið var afskaplega kósí. Heimagerðir hamborgarar, varðeldur og skátasöngvar.. neehh reyndar ekki skátasöngvar, bara mikið spjall ;)
Á sunnudeginum var áframhaldandi stuð og fjör. Vaknað snemma, morgunmatur, út á vatnið (Ég var alla helgina í bikiníinu mínum - og JÁBB.. Hanna er komin með smá FAR!! Vúhú!) heim, borðað hádegismat, leikið sér í vatninu, pakkað saman og keyrt heim.
Við stoppuðum hjá Dóru og Eric og stukkum í sturtu (það var mjög ljúft) og svo eldaði Dóra rosalega gott pasta handa okkur svo við yrðum nú ekki svöng á leiðinni heim :) Við keyrðum svo heim í einum grænum og vorum komin heim klukkan 9 í gærkvöldi.
Úff ég á eftir að lifa lengi á þessari helgi. Hún var alveg hreint ÆÐISLEG! Dóra og Eric eru svo frábært. Við erum svo ánægð að þekkja þau og getum ekki beðið eftir að þau komi til Íslands næsta sumar. Þá ætlum við að reyna að launa þeim gestrisnina, bjóða þeim í góðan mat (íslenskt lambalæri?) og í einhverjar skemmtilegar gönguferðir og svona (þau eru algjörir göngugarpar)
Ég er búin að setja inn myndir frá helginni hingað inn. Svo setjum við líka inn einhver myndbönd á youtube.com síðuna okkar. Set þau annað hvort inná mína síðu eða þá Þorsteins ;)
Lífið
/ vinir og vandamenn
/
6
Fimmtudagur 21. september 2006 / 01:18 / Long time no see...
Vá mér finnst eins og það sé heil eilífð síðan ég bloggaði síðast! Samt var það á mánudaginn :)
Það er nú harla lítið búið að ganga á hérna í USA. Ég vakna á morgnana, smyr nesti, drepst næstum úr stressi yfir því að við séum of sein þegar við loksins leggjum af stað í skólann.. en samt reddast þetta alltaf einhvernvegin! Þegar ég kem heim aftur, svona uppúr 8, þá annað hvort skríð ég aftur í bólið til hans Steina míns, eða fer að laga til og þrífa.
Endajaxlinn minn (visdómstönnin mín) tók vaxtakipp um helgina og var ég eins og hamstur í framan. Ekki gaman. Því fylgdi líka gríðarlegur sársauki og ömurleg heit. En jæja.. þetta er búið núna :)
----
Já meðan ég man. Uppáhaldslagið mitt þessa stundina er "Holding out for a hero" með söngkonu sem kallar sig Frou Frou. (Önnur útgáfa en þessi gamla góða) Endilega tjékkið á þessu lagi því það er kreisí gott.
---
Hef svo svakalega lítið að segja frá þessa stundina að ég ætla bara að hætta í bili.
Feel free to comment, býst nú samt ekki við miklu þar sem þetta var hrikalega léleg færsla.
Vona að mér sé fyrirgefið!
Laugardagur 16. september 2006 / 07:49 / Umferðarslys
Halló öll
Nú er mál að linni. Umferðarstofa hvetur alla til að leggjast á eitt til
að sporna við þessari hræðilegu þróun, allir sem að ekki geta skrifað
undir þetta eru ekki tilbúnir til að leggja sitt að mörkum til þess að
gera umferðina öruggari.
Þriðjudagur 12. september 2006 / 07:49 / 9/11
Það hefur nú eiginlega ekki farið framhjá neinum hérna í USA að í dag (eða í gær.. hjá mér er enþá mánudagur því ég er ekki enþá farin að sofa) voru 5 ár liðin frá árásinni á tvíburaturnana.
Föstudagur 08. september 2006 / 07:18 / Lífið er ljúft!
Í nótt áttu Morgenroth-hjónin flug til New York þar sem þau eru að fara á einhverja ráðstefnu útaf vinnunni hennar Kim. Þau misstu af fluginu. Þau endurbókuðu flug klukkan 12:20... og þau misstu af því líka. Reyndar lögðu þau aldrei af stað - þannig að þetta var meira svona ákveðið-miss-af-flugi heldur en óvart-miss-af-flugi. Loksins kl 4 í dag kom Limmósína og náði í þau og keyrði þau á flugvöllinn. Á meðan fórum við Þorsteinn með trukkinn í viðgerð þar sem það á að laga á honum húddið. Á morgun förum við svo með Vaninn í viðgerð og svo förum við seinna með Cadillacinn. Já og Kim keyrði AFTUR á, á Vaninum. Strauk bílnum uppvið steinvegg. Farþegahliðin svona skemmtilega rispuð! :) Bara fyndið samt sem áður.. þó þetta sé líka mjög leiðinlegt fyrir greyjið.
Við erum semsagt búin að vera ein heim í allan dag. VIð fórum því í smá verslunarleiðangur (sá fyrsti síðan við komum hingað... NOT!) og keyptum okkur eitthvað smotterí. Ég keypti mér t.d. nærfatasett og á móti fékk Þorsteinn að kaupa sér nýja diskinn með Iron Maiden (enn æðislegt). Við skruppum líka í Borders þar sem ég sat á gólfinu (og lá, til skiptis) og las í Scrapbook-bókum. Jább, ég er alveg komin með ÆÐI fyrir því að byrja aftur í scrappinu. Var einmitt að senda 308 myndir frá Kaliforníu í framköllun svo ég geti nú gert svona California-Scrapbook ;) Þessar 308 myndir kostuðu ekki nema 3500kr með sendingu heim að dyrum og allt! Hver mynd á 7kr eða eitthvað þannig. Algjör snilld!
Ég endaði með 3 Scrapp-bækur í fanginu. Þorsteinn með eina bíomynd og uppskriftarbók að allskonar drykkjum! Svo komum við hingað heim, gerðum okkur Margaritas, Buttery nipples (skot) og Malibu og skelltum okkur svo í heitapottinn..
Mhh þetta var ekkert smá ljúft. Drykkur + nuddpottur = getur ekki klikkað! Já og svo auðvitað kertaljós líka svona til að hafa þetta aðeins rómó ;) Þessi pottur er líka alveg geggjaður. Ekki svona venjulegur, blár, heitapottur.. heldur er þetta sko alvöru nuuudddpottur! Með svona sérstökum stað þar sem maður getur legið nánast flatur og það eru nuddstútar við hvern einasta þreytta blett í líkamanum! Líka við iljarnar! :D
---
Tilkynning:
Í dag erum við búin að vera saman í 4 ár! -- 8.september 2002 byrjaði þessi vitleysa og virðist engan endi ætla að taka :D
---
Við bíðum svo spennt eftir því að Lína og Kristín komi í heimsókn. Svo margt sem manni langar til að sýna þeim. Mismerkilegt, en samt! Vonandi hafa þær gaman að því að kíkja á okkur hérna í Simi :D ---> Stelpur! Farið að hringja í mig!! Ég er að bíða eftir símtali :D
---
Jæja. Þorsteinn er lagstur uppí rúm með poppskál að horfa á The Good, The Bad and the Ugly. Ætli ég fari ekki að skríða í bólið svo ég geti nú eyðilagt myndina fyrir greyjinu með hrotum :)
Verið hress, ekkert stress..bless!
Miðvikudagur 06. september 2006 / 02:13 / Laborday
Í gær var Laborday, eða Hríðardagurinn eins og við Þorsteinn kölluðum hann ;) Þetta var semsagt nokkurnskonar verslunarmannahelgi. Mjög gaman. Gerðum reyndar ekkert spes um helgina, vorum bara að vinna og chilla. Í gær var hinsvegar haldið smá sundlaugarpartý. (Sjá myndir hérna). Bara við fjölskyldan, Tim og Zac sonur hans og Dandei (borið fram Denei!), Erin og sonur þeirra Elliot. Jú og svo komu einhverjir tveir nágrannaguttar, vinir hans TJ's. Við grilluðum hamborgara, grænmetisborgara, kjúklingabringur (geggjaðar) og heita hunda (pylsur). Það skelltu sér nú flestir í sundlaugina, en ég hélt mig á þurru landi og þjónaði gestunum :) Svo skyndilega er gripið í mig, einhver lyftir mér upp og heldur á mér að lauginni! Ég reyndi að berjast um en gafst bara upp. Tim ákvað nefninlega að það væri kominn tími til að kæla mig niður. Úff.. hann hoppaði með mig í fanginu útí laugina. Ég fékk þvílíkan hnút í magann en þetta var samt geðveikt skemmtilegt. Hefði nú reyndar kosið að fá að fara í sundföt fyrst, en það var víst ekki í boði. Næst fór Tim og sótti Kimberly inní eldhús þar sem hún var að ganga frá og hélt á henni útí laugina. Hún var að sjálfsögðu fullklædd og ætlaði sko EKKI í sund. Þær áætlanir breyttust ;) Tim henti líka Christy útí laugina, en það sem fyndast var, var þegar hann tók Piper í fanginn og stökk með hann af stökkbrettinu!! Vá það var svo fyndið. Greyjið Piper :) Held að hann hafi nú samt sem áður skemmt sér ágætlega!
Eftir sundsprettinn og tiltektina, ákváðum við fullorðna fólkið að skella okkur á Fílabarinn eða Elephantbar og fá okkur nokkra drykki. Þar sem ég er svo stillt og prúð var ég bara edrú og keyrði. Síðan fór Morgunroðinn heim í háttinn en við hin skelltum okkur í Pool á Snookies. Það var stuð :D Ég var fyrst í liði með Þorsteini og vann þar sem Kimberly gave a wrong call on a pocket. Of mikil langloka að útskýra það á íslensku :) Seinni leikinn vann ég líka þar sem Tim skaut niður bæði hvítu og svörtu, í sitt hvorn vasann! Ég vann semsagt ekki útaf því að ég er svo góð, heldur bara útaf því að hinir klúðruðu ;)
Sakna ykkar allra alveg svakalega mikið og get varla beðið eftir því að koma heim! :D
Sunnudagur 03. september 2006 / 07:10 / Sorpmál
Já eitt enn! Sorry.. svo er ég hætt! :D
Sorpmál. Mjög sniðugt system í gangi hérna í USA. Hér á heimlinu erum við með þrjár ruslatunnur. Eina fyrir almennt sorp, eina fyrir endurvinnslu og eina fyrir dósir og flöskur. Við förum með dósir og flöskur í endurvinnsluna og fáum pening fyrir (alveg eins og heima) Við söfnum líka saman öllum innkaupapokum úr verslunum og skilum þeim aftur í verslanirnar, pokarnir eru bræddir og búnir til nýjir pokar!
Hér fyrir utan erum við svo með 4 ruslatunnur. Eina bláa undir almennt sorp, eina græna undir garðaúrgang og svo tvær svartar undir endurvinnslu. Á fimmtudagskvöldum trillum við tunnunum útá götu. Föstudagsmorgna koma svo þrír bílar hingað í götuna. Einn tekur almennasorpið, annar tekur endurvinnsluna og sá þriðji garðúrgang!!
Ótrúlega hentugt kerfi hérna sem virkar því miður ekki heima þar sem snjórinn stoppar mann eiginlega algjörleg frá því að trilla ruslatunnunum sínum útá götu.
Samt gott við þessar tunnur að við notum enga ruslapoka. Endurvinnslan fer beint úr ruslatunnunni inní eldhúsi, útí endurvinnslutunnuna úti - engir pokar í hvorugu! Svo skolum við bara tunnurnar regluna. Mjög hentugt allt saman.
-- Sorry hvað þetta var leiðinlegt blogg. Langaði bara að skrifa það! :D Meira fyrir mig að muna en ykkur að njóta! :D
---
HKJ, ég sakna þín!
Sunnudagur 03. september 2006 / 07:01 / Office Space
Já og meðan ég man. Ég var að horfa á Office Space (bíomynd með Jennifer Aniston) hérna inní stofu um daginn þegar Rob tilkynnti mér að hann hefði unnið að þessari mynd hérna í denn þegar hann var í kvikmyndabisnessinum. Hann benti mér á það sem þeir hefðu gert t.d. með alla tölvugrafík í myndinni. Í einu atriðinu er Jennifer Aniston og mótleikarinn hennar sem ég man aldrei hvað heitir, að horfa á sjónvarpið. Rob bætir þá inní: "Oh yeah, and by the way.. the TV Jennifer is watching, thats actually our TV - the same TV you are watching!"
---- Oh yeah! Jennifer Aniston er búin að horfa á sjónvarpið okkar!! :D
How great is that! :D
Sunnudagur 03. september 2006 / 06:08 / Planið mikla
Í kvöld settumst við Morgenroth-fjölskyldan niður og gerðum nokkur plön. Í fyrsta lagi þá fórum við í gegnum vinnudaginn hjá mér. Mikið sem ég var fegin að það gerðist... sá frammá að vinna frá 6 á morgnana til 9 á kvöldin og fá ekkert aukalega fyrir það!! En neibb.. við græjuðum þetta þannig að ég þarf ekki að vekja krakkana á morgnana, bara vakna, gera nestið þeirra fyrir skólann og skutla þeim í skólann. Pabbi þeirra sér um morgunmat + vakningu! Jibbý! Kim þarf sjálf að mæta í vinnuna kl 8 þannig að hún hefur ekki tíma til að hjálpa. Svo þegar ég kem heim aftur eftir að hafað losað mig við krakkaskarann, þá get ég annað hvort farið aftur að sofa eða unnið.. ræð því algjörlega sjálf! Þarf bara að klára ákveðin verkefni yfir daginn og ræð algjörlega hvernær ég geri það. T.d. mánudaga ryksuga ég uppi og skúra gólfin niðri. Thats not that hard. Svo geri ég hádegismat handa vinnumönnunum sem vinna að breytingunum fyrir húsið. Seinnipartinn fer ég í ræktina þannig að Steini sækir stundum krakkana (ef ég er í ræktinni) og svo geri ég kvöldmat 3x í viku. Við erum líka búin að skipta niður hver gengur frá eftir kvöldmatinn þannig að það er orðið nokkuð gott skipulag á því. Spurning samt hvernig gengur að fylgja því eftir.
Á morgun er svo fundur með krökkunum (ekki beint kannski fundur, en svona til að athuga hvað þau hafa að segja) þar sem við segjum þeim frá skipulaginu okkar, fáum hugmyndir frá þeim ofl. T.d. ætlum við að athuga hvort þau séu ekki til í 1klst á dag sem heimanámstíma. Þá sit ég með þeim inní stofu við stofuborðið og við lærum saman í klst. Þau fá líka hjálp frá mér og hjálp frá hvert öðru.
innskot: Ég komst inní fjarnám frá Versló þannig að ég mun sjálf hafa "heimanám"! :D
Svo fáum við alla sunnudaga í frí (nema það sé eitthvað sérstakt) og svo erum við í fríi núna frá 7-10sept og aftur 23-26sept. Æðislegt það :D Já og líka annan hvern föstudag + laugardag nema það sé eitthvað sérstakt.
Á meðan Þorsteinn er að vinna við að byggja við húsið þá fáum við 400dollara á viku í staðinn fyrir 350dollara. Semsagt 1600dollara eða 112.000kr. Plús auðvitað fæði, húsnæði og bíll!! Úff this is almost too good to be true! :D
----
Svo gerðu þau tilboð til okkar í kvöld. Ef við komum aftur eftir áramót þá borga þau flugfarið fyrir okkur aftur hingað út OG heim. Svo borga þau líka eitt ferðalag fyrir okkur - hvert sem við viljum fara innan bandaríkjana (Hawaii er innan bandaríkjana!) semsagt flug+hotel!
Erfitt að hafna þessu tilboði. Þurfum alvarlega að pæla í því að fara aftur út í Janúar. Við förum samt ekki aftur út nema fá einhverja í HEIMSÓKN til okkar eftir áramót!! Mamma! Þú hreinlega VERÐUR að koma til mín!! Ég sakna þín svo mikið!! Sama með Baddý og Lísbet vinkonu, Þorstein Inga og bara alla!! Komið í heimsókn, plís!! Annars koma Lína og Kristín næstu helgi og það verður sko stuð :D :D
---
Utan við allt þetta gengur lífið sinn vanagang. Krakkarnir fara í skólann. Dylan fór með vinum sínum í Magic Mountain en hann kemur heim á morgun. Christian litli er búinn að eignast vin hérna í næsta húsi og spurði mig í dag hvort hann mætti borða hádegismat hjá honum.. og spurði mig svo hvort hann mætti gista hjá honum... og spurði mig líka hvort hann mætti borða kvöldmat hjá honum! Greinilegt að hann skynjar (þetta hefur ekki verið rætt við hann) að ég er one of the grown-ups og ég sé um ákvarðanatökur. Eða þá að hann veit að ég er soft-ass fyrir krúttlegum börnum og segi alltaf já ;)
Já og þið munið auðvitað öll eftir því sem stendur í síðasta bloggi um að einhver hafi skemmt húddið á truckinum meðan við vorum á tónleikunum... Núna eru allir bílarnir á heimilinu skemmdir! Kimberly bakkaði nefninlega á Cadillacinn á Vaninum þannig að núna er Caddinn skemmdur bílstjóramegin og vaninn á afturstuðaranum. Gaman að því! Ég er bara mjög ánægð að það var ekki ég sem skemmdi bílana ;)
---
Eini gallinn við að vera hérna í Kaliforníu er að manni vantar svo VINI! Meina, þetta er stór og skemmtileg fjölskylda, og það er alltaf gaman að hanga með Tim,.. en okkur vantar alveg sárlega vini á okkar aldri. Kannski maður íhugi alvarlega að skrá sig á einhver námskeið eða taka ræktina með trukki og kynnast öllum þar. Æji ég veit það ekki.. enn sem komið er unum við okkur ágætlega hérna með fjölskyldunni, bara við tvö.
---
Inga vinkona sendi mér skemmtilegan e-mail um daginn -- takk kærlega fyrir það Inga mín, ég fer í það að svara þér á morgun! :D
Lísbet sendir mér líka reglulega e-maila og ég skelli alltaf uppúr þegar ég les þá :) Æðislegt að fá fréttir að heiman.
Svo er Skype alveg að redda málunum þar sem ég hringi heim og tala líka mikið við Dagný systir sem býr núna í Danmörku. Tala örugglega meira við hana núna heldur en þegar hún var í Rvk og ég á Akureyri! :D Bara frábært.
---
Jæja Þorsteinn er sofnaður hérna í rúmminu við að hlusta á iPodinn sinn góða. Ætli ég fari ekki fram og finni mér einhverja góða DVD mynd og sofni út frá henni. Á morgun ætlum við í kirkju kl 11:30 og svo hingað heim að vinna með Kim. Það er bara gaman ;)
---
Góða nótt öll sömul! Eða kannski ætti ég að segja góðan dag þar sem dagurinn er að byrja hjá ykkur :D
Föstudagur 01. september 2006 / 18:14 / Red Hot Chilli Peppers
Í gær fórum við Þorsteinn að sjá R.H.Chili Peppers spili í The Great Western Forum í Inglewood, LA. Þvílíkir tónleikar! Þetta var svo geggjað að ég fæ bara gæsahúð af því að hugsa um þetta!
Fyrstir á svið vorum MARS VOLTA ... skemmtilegt að segja frá því að ég heyrði ekki í tónlistinni fyrir hávaðanum í hljóðkerfinu,.. og svo voru augnlokin svo ótrúlega þung að ég bara hallaði mér aftur í stólnum og STEINSOFNAÐI með öskrandi aðdáendur allstaðar í kring og hljómsveitin að spila á fullu. Mig dreymdi meira að segja og allt :)
Ég vaknaði nú samt alveg tímanlega til að sjá aðal númerið stiga á svið. Ég hélt hreinlega að þakið myndi RIFNA af höllinni vegna fagnaðarláta. Þeir spiluðu í næstum því 2klst öll sín helstu lög og ég dansaði eins og bavíani allann tímann. Geðveikt gaman. Ég var hinsvegar orðin mjög svo þreytt þegar við fórum loksins af stað heim kl hálf 12 í gærkvöldi. Vegna umferðar frá tónleikasvæðinu vorum við ekki komin heim fyrr en rúmlega 1 og þá áttum við eftir að setja út ruslatunnurnar. Það vorum ánægðir og þreyttir kroppar sem STEINSOFNUÐU og sváfu í alllllaa nótt án þess að vakna (vöknum yfirleitt svona 2-3 yfir nóttina, mjög pirrandi)
Ekkert útá tónleikana að setja, en á meðan á þeim stóð eða eftir þá/undan þeim þá gerði einhver sér "glaðan dag" á húddinu á bílnum. Skellti lyklunum sínum ofaní húddið og eftir situr RISASTÓR rispa yfir það allt :( Morgunroðinn sagði nú samt að þetta væri tryggingarmál og þess vegna væri þetta allt í lagi. Samt ömurlegt að þetta skuli gerast meðan við vorum með bílinn :(
-----
Daglegt líf:
----
Skólinn er loksins byrjaður. Christy og Dylan eru búin að vera hérna heima þessa vikuna og ég er skutla þeim í skólann undanfarna daga. Til þess að sleppa við umferð þurfum við að leggja af stað klukkan 07:15 á morgnana héðan frá Carver Court. Fyrst stekkur Dylan út úr bílnum og fer í sinn High-School sem heitir Santa Susana Magnet. Þar eru víst allir leiklistarnördarnir og X-arar (eðlisfræði/efnafræðinördar).
Svo fer ég með Christy í Simi High sem er skólinn hennar. Simi High er þar sem allar Plastic stelpurnar fara í skóla (þið sem hafið séð Mean Girls vitið hvað ég á við -- aðrir verða bara að giska hihi) og íþróttastrákarnir.
Í næstu viku bætist svo TJ við en hann fer í Valley View sem er Junior High School. Seinna (samt fyrr en seinn) bætast svo Colin og Christian við. Sem betur fer er Colin í sama skóla og TJ en Christian er í Elementry School þannig að þá bætist við 4 stoppustaðurinn minn! Við erum að tala um klukkutíma ferðalag á morgnana! Þetta er nú meiri vitleysan. Bara senda öll börnin í hverfisskóla þar sem þau geta labbað í skólann svona eins og heima á Íslandi. Meira ruglið. Annars labbar t.d. Dylan heim úr skólanum en hin eru of langt frá til að geta labbað þannig að ég verð að sækja þau aftur seinnipartinn.
Úff ég sé frammá að vinnudagurinn minn byrji milli kl 5-6 á morgnana þegar TJ er hérna því það tekur heila eilífð að fá hann á lappir!!
----
Ætli ég fari nú ekki alltaf þreytt að sofa á næstunni. Hér er alltaf nóg að gera og sérstaklega þegar maður þarf að vakna fyrir allar aldir og koma krökkunum á lappir, smyrja nesti og búa til morgunmat.
---
Úff... ;)
Þriðjudagur 29. ágúst 2006 / 07:28 / Justin!
Ó já beibí! Ég hef alla tíð vitað það að hann Justin minn (eða ætti ég að segja, Justin okkar Lindu!) er ekki dauður úr öllum æðum. Nýtt lag með honum er komið út (reyndar fyrir svolitlu síðan) og ég ætla rétt að vona að þið séuð að hlusta á það heima á Íslandi því það er hot mama lag! OMG (því á þessu heimili má víst ekki segja Oh My God eða God Damn!)
Það heitir semsagt Sexyback og er alveg GEGGJAÐ. Diskurinn hans sem heitir futersex/lovesounds er ótrúlega góður og maður getur allavega dillað rassinum yfir þessari mjúsík! :D
Kíkið á þessa síðu og þar getiði hlustað á lagið. Snilld!
(p.s. Þorsteinn má nú fara að halda fastar í mig ef að ég verð dugleg í ræktinni hérna! Þá gæti vel verið að ég verði barasta í næsta myndbandi með JT shakin' that bootie!) :D
Mánudagur 28. ágúst 2006 / 23:23 / GSM!
LOKSINS erum við Þorsteinn komin í samband við umheiminn. Þorsteinn keypti sér nefninlega geggjað flottan síma í dag: Motorola eitthvað eitthvað. Svartur og þunnur. Klikkaður. Það er hægt að fletta upp skjánum og tengjast öllum helstu sjónvarpsstöðvum hérna í USA og horft á þætti. Svo gaf kallinn Þorsteini snúru til að tengja við gítarinn þannig að hann getur spilað inná hann hringitóna! Myndavélin í honum er 5megapixla og með geggjuðu zoomi og svo eru þrír takkar á honum tengdir Taco Bell, Dominos og Fatburger þannig að maður þarf ekki einu sinni að vita númerin á stöðunum heldur bara ýta á takkann og síminn man hvað maður pantar svo að maður bara ýtir á takkann og þá kemur maturinn heim til manns eftir ca hálftíma! Svo er innbyggður translator í honum, maður talar í hann á ensku og hann þýðir yfir á öll helstu tungumálin eins og frönsku og spænsku. Þú getur tengt hann við heimavörnina hjá þér þannig að ef þú ferð að heiman og gleymir að setja á öryggiskerfið þá geturu gert það úr símanum. Eins líka með bílskúrshurðina, takki til að opna bílskúrshurðina! Þetta er bara geggjaður sími! :D Kostaði ekki rassgat svona miðað við allt sem honum fylgir.
Gsm númerið okkar er 001-805-304-8960 og þið megið endilega hringja í okkur hvenær sem er! Enginn sem svarar nema við. Svo viljum við biðja einhvern um að senda okkur sms í þetta nr við tækifæri og athuga hvort við fáum það ekki alveg örugglega ;)
Thank you so much
Hanna
Sunnudagur 27. ágúst 2006 / 20:42 / hmmm
Ég er ekki frá því að það votti fyrir smá þynnku hjá manni í dag. Við fórum út að borða í gær eftir bílskúrssöluna (sem gekk mjög vel, en ætlum samt að halda aðra og stærri þar næstu helgi) og fengum okkur nokkra koktaila. Tim kom með okkur þar sem hann er nú algjör einstæðingur og við eiginlega fjölskyldan hans þannig að við vorum 6 sem fórum. Kim, Rob, Ég, Steini, Tim og Dylan. Seinna bættist Christy svo við hópinn. Það var alveg GEÐVEIKT gaman og allir í alveg súper góðu skapi. Við fórum í smá Dare-leik þar sem við skiptumst á því að koma upp með misvitlausar hugmyndir. T.d. borðaði Dylan hár sem var í kökunni okkar (bjakk) og fékk fyrir það 5 dollara. Christy borðaði svo tvær sítrónu sneiðar með MIKLU salti og fékk líka 5 dollara. Ég vann Tim í veðmáli um hvaða Zip-code (póstnúer) við værum með og þá fékk ég 5 dollara! Sem ég tapaði svo seinna til Dylans. Frekar flókið allt saman, en var MJÖG skemmtilegt. Við vorum örugglega háværasta borðið á staðnum og fólk mjög fegið þegar við loksins drulluðumst heim.
Eftir að við komum heim þá vorum við Tim enþá í svo miklu stuði að við ákváðum að skella okkur á Snookys sem er bar hérna í nágrenninu. Það verður nú að segjast eins og er að þetta er ekkert flottasti barinn á svæðinu og sem dæmi má nefna þá var barþjóninn í nærfötunum einum klæða! (Stelpa) Hún var samt mjög hress og skemmtileg og ég spjallaði svolítið við hana. Tim bauð mér svo í pool sem ég gerði lítið fyrir og vann!! Get nú samt ekki sagt að ég hafi farið algjörlega eftir reglunum, en hann tók ekkert eftir því ;) Hann kenndi mér líka nokkur "trix" þannig að núna er stefnan tekin á Snookies á hverju kvöldi til að æfa pool-taktana! Þorsteinn missti af miklu, en hann var mjög þreyttur eftir að hafa vaknað kl 6:00 um morguninn til að undirbúa Garage-Sale. Ég vaknaði reyndar líka þá, en lagði mig á gólfinu í Van-inum hérna á bílastæðinu uppúr hádeginu og nældi mér í smá auka orku. Mjög gott að sofa með sólina skínandi á kroppinn og vindinn blásandi í gegnum bílinn. Mhhh..
----
Já og ég átti alveg eftir að blogga meira um Rockstar tónleikana. Við fórum semsagt ekki á upptöku á þættinum, heldur bara tónleika þar sem þau sungu öll 2 lög. MJÖG skemmtilegir tónleikar þó svo að við Þorsteinn værum orðin mjög þreytt á því að standa alltaf í sömu sporunum ;)
Ég ætla núna að fara að vinna í því að setja inn FULLT af myndum - nokkrar frá því í gærkvöldi og svo FULLT af myndum af Rockstar. Magni er nú enþá bestur en WOW hvað Toby er ótrúlega sætur svona í nálægð! :D namminamm.
---
Fólkið hérna er alveg þvílíkt hrifið af öllum íslenska matnum sem við fengum, háma alveg hreint í sig harðfiskinn og finnst lyktin bara góð! :D Osturinn og silungurinn renna líka út eins og heitar lummur þannig að það er best að mamma fari bara að undirbúa næstu sendingu! :D
---
Farin í myndastúss! :D
Miðvikudagur 23. ágúst 2006 / 07:28 / Vegir liggja til allra átta
Í kvöld er ég alveg gríðarlega hugsi. Alls ekki það að við séum orðin leið á því að vera hérna, heldur togar framtíðin alltaf í okkur. Með hverjum deginum sem líður styttist í það að við komum heim og þá þarf að taka ákvarðanir.
Þegar við komum aftur heim til Íslands rétt fyrir jólin, þá erum við bíllaus, íbúðarlaus og atvinnulaus. Við þurfum að leita til fjölskyldna okkar sem báðar eru jafn yndislegt og vilja báðar fá okkur til sín -- þar kemur fyrsta ákvörðunin.
1. Hauganes vs Grenivík.
Hauganes:
Kostir: Mamma og pabbi (alltaf best að vera hjá mömmu og pabba), örfáum km styttra til Akureyrar, mjög stutt til Dalvíkur = Meiri möguleikar á atvinnu. Möguleiki á íbúðum til leigu (ódýrara en á Akureyri)
Gallar: Varla neinir vinir okkar búa þarna. Halla frænka og Co, Inga og Júnía... búið. Þó mamma og pabbi séu mjög skemmtileg, þá er hreinlega ekki hjá því komist að dauðleiðast þarna.
Grenivík:
Kostir: Tengdó og öll stóra fjölskyldan hans Þorsteins, sem og Sigga "systir" og co. Þar búa margir vinir okkar.
Gallar: Lengra frá Ak en Hauganes og enginn annar staður fyrir atvinnuleit en Grenivík og Akureyri. Fáar íbúðir á lausu (ef það eru þá nokkrar?)
-- Ma+Pa og Tengdó, þó þið séuð öll alveg yndislega frábær og skemmtileg þá er eiginlega ómögulegt að búa inná ykkur í 8-9mánuði! Sorry!!
En ætti maður kannski bara að losna við allt þetta "vesen" og ákvörðunartöku og skella sér bara aftur til Kali?
Kalifornía
Kostir: Hér höfum við frítt húsnæði, mat og fría sól ;) Hér erum við búin að eignast "nýja" fjölskyldu sem okkur þykir mjög vænt um (þó hún sé skrítin! híhí) Þurfum ekki að kaupa okkur bíl, engar fjárhagslegar áhyggjur. Þurfum aldrei að moka snjó!!!! :D
Gallar: Alltof langt frá öllum sem okkur þykir vænt um.
Eða á maður að feta á nýjar slóðir, sækja um sem Au-Pair einhversstaðar annarsstaðar? Erum með Visa til USA þannig að við getum farið eitthvert annað núna. Kannski á austurströndina (New York og nágrenni)
gallar: Hver býður betur en Morgenroth fjölskyldan??
Kannski er það bara Evrópa sem kallar? Á maður að fara til Spánar sem Au-pair, eða Ítalíu/Frakklands?
Og hvað með skóla? Hvert á ég að fara í skóla í haust?
Hugsanlega væri best fyrir okkur að flytja beint til Reykjavíkur (í Janúar/Febrúar) og finna okkur vinnu þar og svo færi ég í skóla um haustið (Þroskaþjálfann í KHÍ)
Eða á maður að slá þessu uppí kæruleysi og fara til Svergie í skóla, eða halda aftur til USA á vit ævintýranna þar sem skólinn kostar milljónir á ári en er á ensku (stórkostur) og flestir mjög virtir.
Hvar er MA þegar maður þarf á honum að halda? Óvissan eftir MA er bara einum of erfið!!!
Kannski þið getið sagt mér hvað við eigum að gera?
Mánudagur 21. ágúst 2006 / 06:45 / Mánudagsskammturinn!
Jæja. Þá er ég búin að setja inn myndir fyrir alla þá sem hafa aðgang að tölvu í vinnunni ;) Þið verðið nú að hafa eitthvað skemmtilegt að gera á mánudagsmorgni! :D
Dagurinn í dag er búinn að vera alveg frábært. Við sváfum út -- mhhh -- og svo fórum við í LA Zoo. Myndir frá dýragarðinum koma samt seinna, nennti ekki að setja þær líka inn.
---
Á föstudagskvöldið fórum við út að borða á brasilískan veitingarstað. Það var mjög áhugaverð upplifinun. Við biðum á barnum eftir borðinu okkar og fengum okkur koktaila og forrétt sem var kjúklingabringur vafðar í beikon. Namm hvað það var gott! Skyndilega hætti hljómsveitin að spila (já það var lifandi hljómsveit með brasilískri söngkonu sem Þorsteinn sagði að væri flott!) og þá birtust dansarar sem löbbuðu á milli fólks og dönsuðu seiðandi brasilíska dansa (seiðandi = brjósta + rassahristingar!) Svo þegar borðið okkar var tilbúið þá útskýrði Rob fyrir okkur hvernig þetta gengi fyrir sig. Við semsagt lásum enga matseðla og pöntuðum engan mat, heldur var bara hlaðborð (þetta var samt MJÖG fínn staður) og þar voru bæði heitir og kaldir réttir (svona eins og sunnudagskaffi hjá Olínu) og við fengum okkur sitt lítið af hverju. Þessir réttir voru samt eiginlega bara meðlæti, því þegar við vorum sest niður með diskinn okkar birtust þjónar með glóðasteikt kjöt á teini og skáru fyrir okkur beint á diskinn, sjóðandi heitt kjöt! Það kom ekki bara einn þjónn með eina tegund að kjöti, heldur komu þjónar reglulega með allskonar kjöt sem maður bara sagði annað hvort Já eða Nei við. Ég hefði getað setið þarna alla nóttina ef ég hefði bara ekki borðað svona hratt ;)
Eftir nokkra koktaila og góðan mat þá vorum við orðin svo þreytt að við brunuðum bara beint heim og uppí ból. Þorsteinn var afskaplega ánægður með matinn - enda buðu þau okkur út að borða í tilefni af afmælinu hans! :D
Bara drykkirnir okkar kostuðu yfir 100dollara og ég veit ekkert hvað maturinn kostaði ... alveg frábær afmælisgjöf!
---
Gærdeginum eyddum við svo í það að taka uppúr kössum, raða dótinu hennar Kimberlys inní draslið hérna (Skipulagt Kaos er það sem gildir núna) og svo bara í almenn leiðinleg heit (þrif og annað)
---
Það eru samt mjög spennandi tímar framundan. Garage Sale (þar sem ég vonast eftir því að þau selji meiri en helm. af draslinu sínu!), nokkra daga frí þar sem við heimsækjum kannski Dóru og Eric aftur (ef ég kem mér í það að hringja í þau!), Magni og Supernova að spila í City Walk og auðvitað förum við og styðjum samlanda okkar, Red Hot Chillipeppers tónleikar og svo koma Kristín og Lína bekkjarsystur minar í heimsókn núna 9 sept!! :D :D Þær eru búnar að panta sér flug og ég er búin að panta hótel þannig að það er allt klárt! Þær fá reyndar bara að sjá rjómann af því besta (man ekki alveg hvernig þetta máltæki var.. Böddi tengdó hlær örugglega núna) þar sem þær stoppa bara hérna í 4daga. Við ætlum samt sem áður að gefa okkur tíma til að fara með þær til Hollywood og Six flags skemmtigarðinn - allavega það! :D
---
Bruce, blindi félagi okkar úr brúðkaupinu hjá Rob og Kim, hringdi svo á afmælisdaginn hans Þorsteins og las inn skilaboð á símsvarann og óskaði Þorsteini til hamingju með afmælið!!! Hann er svo yndislegur þessi maður. Við höfum ekki hugmynd um hvernig hann vissi afmælisdaginn hans Þorsteins! Nema við höfum kannski óvart nefnt það (þá finnst mér nú reyndar líklegra að ég hafi baulað því út heldur en Þorsteinn.. hann segir aldrei neitt) en þessi maður er með minni á við fíl. (Nú hefði verið fyndið hefði ég skrifað Fýl með Y-loni!.. en ég veit betur!)
Vonandi getum við nýtt okkur vinskapinn við þennan frábæra mann (til hvers eru vinir ef maður getur ekki notað þá?!) og farið í nokkra daga heimsókn til San Fransisco, en hann á einmitt heima þar! :D Mikið væri það æðislegt. Aldrei að vita!
----
Hróbjarturinn situr núna sveittur inní stofu að flokka niður reikningana sína. Ég skipaði honum (blíðlega) að skipta þessu pappírsdrasli niður í bunka svo ég geti sett þá í rétta "foldera" á morgun og þá eru þeir frágengnir! Nenni ekki að hafa svona blaðarusl útum allt alltaf hreint! Já ég læt sko þessa Kana heyra'ða! :) Hann nefndi það líka einhverntíman að ég fengi extra borgað ef að ég myndi líka sjá um bókhaldið hans (engir útreikningar, bara raða þeim í "foldera") þannig að auðvitað gríp ég þá gæs með glöðu geði! (og hvað eru mörg G í því?)
----
Þorsteinn er svo ánægður með nýja iPodinn sem ég gaf honum í afmælisgjöf að hann hefur varla tekið heyrnartólin af hausnum frá því að hann fékk hann. Svo átti Kimberly líka gríðarflott iPod sound system þar sem maður setur iPodinn bara í þar til gert "hús" og þá hljómar tónlist að eigin vali útum allt hverfið. Stórsniðug hugmynd - endar örugglega með því að við komum með eitt svoleiðis stykki heim til Íslands!
---
Ljósin í herberginu hafa nú verið slökkt sem þýðir: "ég er farin að sofa kelling! Hættu þessu endalausa pikki og drullastu í háttinn!" þannig að það er best að hlýða.
Endilega kommentið sem flest (eins og alltaf) og svo auðvitað er hægt að kommenta undir myndirnar á myndasíðunni!)
Góða nótt kæru landsmenn - og sofið rótt.
---
p.s. Böddi... við kíkjum á póstinn okkar á 10mín fresti og bíðum eftir myndum af nýja barnabarninu þínu! Koma svo!!
Miðvikudagur 16. ágúst 2006 / 19:27 / Ég og frændinn
Einu sinni vorum við öll börn. Myndin hérna fyrir neðan sýnir glögglega hvernig ég og uppáhalds frændinn minn hann Þorsteinn Ingi höfum breyst í gegnum tíðina. Myndin til vinstri var tekin 92-93 og seinni myndin 2006.
Ástar þakkir mamma og Baddý fyrir að brasa í þessu og senda mér! Þetta er æðisleg mynd!

Miðvikudagur 16. ágúst 2006 / 00:35 / Afmæli!
Til hamingju með 23ára afmælið elsku Þorsteinn minn!!

Það er svo gaman að koma þér á óvart! :D
Þriðjudagur 15. ágúst 2006 / 00:52 / Því það er allt á fullu allstaðar!
Aldrei dauð stund hérna hjá Morgenroth fjölskyldunni. Kim er hér með flutt inn (Jibbý!) og erum við bestu vinkonur (ekki kaldhæðni, hún er æði!) Við hjálpuðum henni að pakka til klukkan 4:30 am á laugardagsnóttina og svo aftur í gærkvöldi. Alveg kreisí - en mjög skemmtilegt. Greg, Tim og Richardo vinna svo hérna frá átta á morgnanna og frameftir. Núna eru þeir að gera viðbygginginu við bílskúrinn sem verður svona utanáliggjandi hillur með tveimur stórum hurðum þannig að maður hefur greiðann aðgang að draslinu sínu :)
Tim málaði nýja herbergið hans TJ's í dag og við Þorsteinn settum rúmmið hans saman og ég bjó um það. Krakkarnir eru núna hjá mömmu sinni, en fljúga á morgun til Chicago að hitta ömmu sína (í móðurætt) og sjáum við þau ekkert aftur fyrr en sunnudaginn næsta! (Jibbý!)
Á morgun á mr. beautiful svo afmæli. Við ætlum að hefja daginn á því að fara bæði í klippingu á einhverja fokdýra klippistofu sem klippir víst ekki svona hallærislegar-ameríska vegu heldur kúl-evrópskavegu ;) Það verður spennandi. Svo það sem eftir er dags ætlum við bara annað hvort að vinna eða ekki.. kemur í ljós.. Þorsteinn veit svo ekkert meira, en við ætlum samt sem áður að reyna að gera eitthvað skemmtilegt. Á föstudaginn verður svo sameiginlegt afmæli hjá Þorsteini og Dylan þar sem Morgenroth-fjölskyldan fer á einhvern brasilískan stað sem við vitum ekkert meira um! Spennandi! :D :D
Annars var gærdagurinn mjög góður. Við skelltum okkur í sund seinnipartinn og Hróbjartur grillaði í sundskýlunni (ekki súperman-sundskýla, sem betur fer!) á meðan Þorsteinn og Christian voru í "Hver getur stokkið lengra og gert meiri gusu"-keppni á stökkbrettinu. Það var mjög gaman að fylgjast með :)
Þessa dagana er eiginlega ekkert nema vinna framundan. Húsið er svo yfirfullt af kössum að maður getur varla labbað um. En það verður samt svooo gaman þegar allt er komið í réttar skorður og við komin með eigið herbergi+baðherbergi inní bílskúrnum!
Chewy er svo alveg að missa sig í að ná í allt úr ruslatunnunum og dreifir skóbúnaði, sokkum og NÆRBUXUM um allt hús (ég hef mínar á góðum stað!) Piper labbar svo um og opnar hurðir, MEÐ MUNNINUM! Ekki með framlöppunum eins og við héldum.
Já og Robert lokaði Kim útúr svefnherberginu í yfir klst í nótt.. óvart! Það var frekar fyndið svona í morgunsárið. Hefði ekki viljað vera Robert þegar hann loksins vaknaði og hleypti kellu aftur inn. Hún var víst reyndar of þreytt til að skamma hann. Samt fyndið! :)
Meira er það ekki í dag
Góða nótt kæru lesendur sem ekki eru nú þegar sofnaðir!
Laugardagur 12. ágúst 2006 / 00:03 / Skutli-skutl!
Þessi vika er eiginlega búin að vera algjört "hell". TJ fór á viku fótboltanámskeið sem þýddi það að ég þurfti að draga hann á lappir klukkan 8 á morgnana (og það er sko meira en að segja það! OMG hvað það er leiðinlegt!!) og hann var ALLTAF of seinn! Í gærmorgun týndi hann svo legghlífunum sínum (shinguards) og eyddi góðum 45mínútum í að leita.. EKKI.. af þeim! Ég og pabbi hans vorum að leita þegar ég gómaði hann við að sitja inní herbergi að lesa STAR WARS blað!! Jább drengurinn fékk sko að heyra það! Jæja. Hann fann blessuðu hlífarnar og mætti á æfingu klukkan 10 en ekki 9. Sama er mér. Ekki minn peningur ;) Svo í gærkvöldi þá sagði ég honum svona 5x að gera fótboltadótið klárt og setja það í kassa svo að hundurinn næði ekki í það og færi með það eitthvert annað. Hann setti allt nema eina legghlíf í kassann (nennti örugglega ekki að finna hina í gærkvöldi!) þannig að við eyddum hálftíma í að leita í morgun! Vá þið trúið því ekki hvað ég var orðin KREISÍ! ... En allt er gott sem endar vel og þetta var síðasti dagurinn hans í fótboltanum (thank god!) Núna tekur bara við að koma honum á lappir og í skólann á réttum tíma - gangi mér vel! :D
---
Það tekin ákvörðun um að kaupa ekki nýtt hús og stækka ekki heldur þetta hús. Því eru síðustu dagar búnir að fara í skipulagningu og málin hafa verið rædd fram og til baka! Ég og Rob töluðum t.d. til hálf þrjú í nótt um húsið, lífið og afmælið hans Þorsteins míns í næstu viku!!
Ég er alveg búin að fá að missa mig í að vera með í öllum ákvörðunartökum og segi mínar skoðanir alveg óspart! :D
Þannig tókst mér að koma í veg fyrir að krakkarnir fengju sér "teen-room" undir sjónvarp og þythokkí! Semsagt, að unglingarnir á heimilinu fengu hvert sitt herbergi, gætu horft á sjónvarpið í fjölskylduherberginu (stofunni) og svo LÍKA teen-room! Aðeins of mikið af hinu góða!! Þess í stað fær Kimberly skrifstofu og ég stórt og fínt þvottaherbergi - vonandi með innréttingum úr IKEA :D Ég er svo mikil frekja að það nær engri átt! Ég er svo að vinna í því núna að losna við þessa öööömurlegu eldhúsinnréttingu því í IKEA bæklingnum var mynd af draumaeldhúsinu mínu. Ekki samt útlitslega séð, heldur skipulagslega séð! Hver einasti hlutur átti sinn stað. Hvert einasta pottlok var raðað í grind þannig að þau tóku ekki eins mikið pláss og bara allt var fullkomið þarna ;) Rob og Kim leist alveg rosalega vel á þetta og Kimberly er alveg sammála mér um hversu ómöguleg þessi eldhúsinnrétting er ;)
En ég lék mér pínu í paint-forritinu og teiknaði upp hvernig húsið er, og hvernig það mun verða. Semsagt bara neðri hæðin ;) Efri hæðin verður bara áfram eins og hún er núna.
Svona er húsið semsagt núna

og svona verður það eftir breytingarnar!

Nokkuð gott ;)
Þetta rauða er semsagt eldhúsinnréttingin. Það verður bætt við innréttingu á einum stað.
Já og ég gleymdi að teikna að það verður bætt við 4 fetum utan á bílskúrinn til að gera geymslupláss (fyrir allt helv. draslið sem má ekki henda!)
----
Rob kom heim áðan með bjór handa vinnuliðinu hérna.
Við sátum svo öll saman inní eldhúsi/sjónvarpsherbergi og fengum okkur smá öl og svona þegar Þorsteinn kallar að löggan sé að koma!! Við bara "What?!" og hún kom svo og bankaði hjá okkur!! Það var semsagt útaf Piper sem nágranninn hringdi á lögguna og löggan vildi koma og athuga hvort það væri eitthvað animal cruelty í gangi hérna!
Þvílík vitleysa. Málið er semsagt það að þegar verið er að vinna í húsinu er bílskúrshurðin alltaf opin, og oftast opið úr bílskúrnum inní garðinn eða úr húsinu og út. Piper slapp þrisvar sinnum út í gær og ákváðum við því bara að binda hann við tréð útí garði meðan verið væri að vinna í húsinu og svo auðvitað losum við hann þegar vinnudeginum er lokið. Annað gengur hreinlega ekki - því miður :( En allavega, hann var semsagt búinn að hlaupa nokkra hringi í kringum tréð, og svo flækja löppina í spottanum og lá rólegur úti og vældi pínu afþví að hann vildi losna (skiljanlega)
Þegar við vorum svo að losa hann (rétt áður en löggan kom og kíkti á hann) þá kíkti nágrannin góði yfir girðinguna og sagði "I called the police and they are on their way!" ég sagði kellu að löggan væri komin og við værum að tala við hana. Þá sagði hún "I called be cause the dogs leg is tied up and hes been crying and nobody heard him! - his leg could fall off!!"
Á þessari stundu langaði mig nú hreinlega að skella uppúr. Einmitt að löppin myndi bara detta af þegar hundurinn liggur grafkyrr. Hann vældi ekki einu sinni þegar ég losaði hann þannig að hann hefur nú ekki fundið mikið til. Svo sagði hún "You should never tie your dog to a tree!" (eins og það sé ekki gert á fleiri stöðum) og ég sagði henni bara eins og var, að ef hann væri ekki bundinn þá myndi hann hlaupa í burtu! Frekar viiljum við hafa hann skælandi yfir því að vera bundinn við tréð og fá ekki að vera með, heldur en dauðann því einhver keyrði yfir hann þegar hann slapp út!!
Kellan var ekki alveg sátt við okkur og ég sagði bara "thank you for letting us know!" og hún kvaddi óblíðlega! :D
---
Það er aldrei dauð stund hérna í Carver Court og við eigum fjörugan mánuð framundan þar sem það er áætlað að það taki 1mánuð að klára húsið. Nú þegar er búið að græja herbergið niðri (í borðstofunni!) og það á bara eftir að mála það. Bílskúrinn + eldhúsið (og parket á family room) + að mála allt heila klabbið og skipta um gólfefni á efri hæðinni...
okei það er greinilega slatti eftir!! ;)
---
Jæja. hakkið steikir sig varla sjálft þannig að það er best að fara að malla...
Bestu kveðjur til allra
Hanna
(sem getur ekki beðið eftir pakkanum frá Íslandi! (reyktur silungur, harðfiskur OG OSTUR!!)) :D
Miðvikudagur 09. ágúst 2006 / 18:33 / Brjálaður hundur
Ég var að laga til hérna heima áðan og fann loksins hundaólina sem ég er búin að leita svo lengi af. Piper (hundurinn) varð svo ánægður að sjá ólina að hann vildi ólmur fara út að labba og ég gat bara ekki sagt nei við svona ánægðan hund og ákvað að labba bara smá hring hérna í götunni.
Hann er rosalega góður í taumi þannig að það er alltaf mjög auðvelt og skemmtilegt að fara með hann út að labba. Svo erum við að labba framhjá einhverjum stórum jeppa þegar það koma allt í einu tveir hundar hlaupandi "undan" jeppanum. Annar er pínu lítill "tösku" hundur (svo lítill að hann passar í töskuna hjá manni!) en hinn er stór scheffer!! Schefferinn var ekkert smá GRIMMUR og gelti og urraði á okkur. Piper greyjið stóð bara kyrr og ég stóð við hliðná honum. Yfirleitt þegar maður hittir svona aðra hunda þá urra þeir pínu fyrst, gelta og "heilast" svo og leika sér. Þessi Scheffer var greinilega varðhundur og byrjaði að hlaupa í hringi í kringum okkur! Eigandi kom þá og kallaði hann en það æsti hundinn bara meira og hann stökk á Piper og glefsaði í hann! Piper færði sig bara nær mér og við byrjuðum að labba hraðar og hraðar og Schefferinn hljóp alltaf í hringi, hlustaði ekkert á eigandann og reyndi aftur og aftur að bíta greyji Piper! Ég var næstum búin að kúka í buxurnar af hræðslu, en pældi samt ekkert í því að hann gæti hugsanlega bitið MIG því ég var svo hrædd um elsku Piper. Það endaði með því að við sluppum inn. Ég hálf grenjandi og Piper skjálfandi. Eigandinn af Scheffernum sagði bara "I'm so sorry..." aftur og aftur (ég er í USA) og ég sagði alltaf bara "its okay, its not your fault.." sem er alveg satt því við höfum greinilega bara verið "of nálægt" heimilinu hans (að hans mati, við vorum á gangstéttinni) og þessvegna hefur hann viljað verja húsið sitt.
Úff ég skelf enþá. Greyji Piper. Ég er samt rosalega stolt af honum að hafa bara haldið ró sinni og staðið eins og stytta við hliðná mér og hlýtt mér í einu og öllu. Ég veit ekki hvað ég hefði gert ef að hann hefði brjálast líka!
Já það er ekki alltaf bara draumur að búa í Ameríkunni! Hundar á hverju heimili og eins gott að passa sig.
Mánudagur 31. júlí 2006 / 19:05 / Ferðasaga - Langt!
Aloha! Við erum LOKSINS komin heim frá Maui! Þetta var virkilega skemmtileg ferð í alla staði, en hún endaði því miður ekki neitt afskaplega skemmtilega. En jæja...
Hérna kemur svo ferðasagan:
p.s. Þeir sem ná að lesa í gegnum hana alla mega endilega kommenta! heheheh
Líka þeir sem gefast upp á miðri leið ;) Eða taka sér pásu í nokkra daga hehe
Föstudagur 28. júlí 2006 / 23:00 / Blogg handa Lindu :)
Aloha allir! Vid Steini erum nuna stodd a Hawaii i "roki" og rigningu. Jabb.. herna er udi i augnablikinu, sem er agaett thvi vid solbrunnum adeins i gaer og fint ad fa sma solarlausandag svo vid getum nu farid aftur i sjoinn a morgun!
Vid erum a stodd a eyjunni Maui sem er onnur staersta eyjan herna a Hawaii. Vid erum a Kaanapali strondinni og a hoteli sem heitir Kaanapali Shores. Vid vorum i herbergi a 9 haed (penthouse - efsta haedin) en erum nuna flutt nidur a 7 haed thar sem brudkaupid er i dag/kvold og Rob gistir thvi a odru hoteli med nyju konunni sinni :)
Thad er algjor draumur i dos ad vera herna a Hawaii. Godar strendur, hlyr sjor, flottar sundlaugar og aedislegt umhverfi!
Annars er frekar leidinlegt ad blogga a ekki-islenskt lyklabord herna i lobbyinu a hotelinu, og vid thurfum lika ad fara ad graeja okkur fyrir brudkaupid. Vid skrifum meira thegar vid komum heim a sunnudaginn.
Kvedjur fra Maui, Hawaii! :)
Hanna og Steini
Mánudagur 24. júlí 2006 / 18:33 / Blómabeð, Santa Monica og flutningar
Afsakið hvað það er langt síðan ég hef skrifað. Hér er allt búið að vera á fullu. Á föstudaginn þóttist ég vera með græna fingur og gróðursetti þúsund blóm (tja... kannski ekki alveg þúsund, en mjög mörg!) í garðinum í Bonita. Það var mjög gaman að gróðursetja og núna skil ég alveg afhverju mamma færir blóm til á hverju sumri. Þetta var samt extra skemmtilegt þar sem ég byrjaði með alveg hreint beð = engin blóm og fékk að ráða hvernig þau voru niðursett. Kom líka alveg rosalega vel út, þó ég segi sjálf frá! ;)
Boníta átti svo að vera tilbúið kl 11 á laugardagsmorgninum. Við fórum hinsvegar út að borða á föstudagskvöldið með strákunum úr Boníta og þar var aðeins fengið sér í glas (þ.e.a.s. þeir fengu sér í glas, við Þorsteinn vorum nú bara róleg!) og allt á milli himins og jarðar rætt af mikilli áfergju! T.d. var guð mikið ræddur! Þarna sátum við semsagt á veitingarstaðnum. Bob, Tim, Richard, Greg, Steini (Stæní) og ég og fórum með BORÐBÆN! Jább mikið rétt. Tim karlinn sagðist aldrei borða góða máltíð án þess að þakka guði fyrir allt sem hann hefur gert fyrir hann. Þetta var nú frekar skondið og við Þorsteinn vorum næstum því farin að hlæja, og hefðum gert það ef að hinir karlarnir hefðu ekki verið mjög alvarlegir með þetta allt saman. Borðbænin innihélt t.d. orðin blessing, thank you og oft og mörgum sinnum kom orðið "Father God" fyrir. Væmið en fallegt.
Laugardagurinn var svo tekinn snemma þar sem Bonita átti að vera kláruð. Neibb, Greg fékk sér víst aðeins of mikið kvöldið áður og mætti ekki!! Kom reyndar bara seinnipartinn og þess vegna var Boníta ekki kláruð. Hún verður samt að vera búin á miðvikudaginn áður en við förum til HAWAII!!! :D :D
Eftir hádegi á Laugardeginum fór ég svo til Kim að hjálpa henni að pakka því hún og Dylan (sonur hennar) flytja hingað inn til okkar þegar við komum heim frá Hawaii.
Það er allt í eitthvað svo miklum ruglingi, margt óákveðið og við vitum ekkert hvernig þetta verður. En okkur er samt eiginlega alveg sama hvernig allt þetta fer, því þetta fer allt saman einhvernvegin ;)
Í gær áttum við Þorsteinn svo kærkominn frídag. Við fórum til Santa Monica þar sem við áttum góðan dag. Fórum í Parísarhjól (hefur verið draumur minn lengi) og skemmtum okkur rosalega vel. Borðuðum karmelluhúðað popp (allavega var það mjög sætt) og hentum meira en helmingnum af því. (Ekkert svakaleg gott!)
Rob sagði svo að við ættum að eiga frí fram að Hawaii þar sem við værum búin að vera svo dugleg undanfarið
(sem er engin lygi!) og því er stefnan tekin á Albertsons að kaupa gjafapappír, pakka inn gjöfum sem eiga að fara í Túngötu 15, Grenivík, og senda heim. Birna litla frænka átti nefninlega afmæli núna 22júlí! Orðin 6ára!! Karen Björg systir hennar á svo afmæli núna í Ágúst og líka Danni bróðir þeirra þannig að þau fá bara öll pakka á sama tíma ;)
Svo veit ég ekki hvað við gerum meira í dag. Kannski við skellum okkur bara í sundlaugina. Það er reyndar frekar skýjað hérna núna. Ótrúlegt, en satt!!
Myndir koma svo inn þegar við nennum að setja þær inn ;)
Hafið það gott heima á Íslandi. Ég skila kveðju til Carlos frá öllum Desperate Houswive-unum heima á Íslandi :P
Þúsund kossar
Hanna
Fimmtudagur 20. júlí 2006 / 17:14 / MUSE!
Í gærkvöldi fórum við Þorsteinn á snilldar tónleika í Greek Theatre sem er í Griffith Park í LA. Vá, þetta var svo flott. Við spöruðum okkur smá penge og ákváðum að panta ekki sæti í miðjunni, heldur aðeins til hliðar. Við lentum semsagt nánast við hliðná sætunum sem voru í miðjunni! Híhí - þokkalega sáum við ekkert eftir þessari ákvörðun.
Við vorum í 11 sætaröð frá sviðinu = mjög nálægt! Samt þannig að við sáum alveg yfir sviðið og allt. Þetta var bara geggjað. Svo þegar MUSE birtist þá stóðu allir upp og maður dansaði eins og brjálæðingur alla tónleikana, og enginn troðningur!! Þetta var æðislegt! Núna erum við búin að ákveða (eða allavega ég!!) að við förum á aðra tónleika þarna í Október, með Keane. Það var allt svo vel skipulagt þarna, við vorum enga stund að komast úr tónleikahöllinni og inní bílinn okkar og svo burtu. Auðvitað var biðröð eftir því að komast, en maður bara chillaði með Muse í græjunum og endurupplifði gæsahúðina sem maður fékk þegar þeir byrjuðu að spila og allir stóðu upp, öskrandi.
Eeeennn tónleikarnir urðu skyndilega aukaatriði þegar þessi maður kom í sætið við hliðná mér! Vá ég hélt ég myndi bráðna. Þvílíkur kynþokki! Úff. Allt í einu var ég hætt að horfa beint niður á sviðið og horfði bara alltaf að tjaldið við hliðná okkur (því þá gat ég haft annað augað á Muse, hitt augað á Richardo - eða Carlos!)
Jább gott fólk sem ekki nennti að opna tengilinn hérna fyrir ofan. Ég sat semsagt við hliðná Carlos úr Desperate Housewives!!!
Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég sá hann koma labbandi - hvað þá þegar hann beygði inní okkar sætaröð og eg þurfti að færa mig svona aðeins svo hann kæmist framhjá okkur og þá snerti ég hann!
Þorsteinn skildi ekkert í mér - fyrir honum var þetta afskaplega ómerkilegt ;) Híhí
Hinsvegar sá Þorsteinn líka einn Celeb sem að var ansi ómerkilegur fyrir mér - en svakalegt móment fyrir hann.
Hann ætlar sjálfur að blogga um þann atburð ;) Og segir örugglega meira frá tónleikunum (svona laga-lega séð, þar sem ég þekki engin nöfn á lögum hehe).
Yfir & út
Hanna sem er að missa það í Kaliforníu!! :D
Miðvikudagur 19. júlí 2006 / 17:08 / Svefninn...
Á hverju einasta kvöldi segi ég við Þorstein; "Í kvöld förum við snemma að sofa!!" og svo líður tíminn og áður en maður veit af er klukkan orðin tólf! Þvílíkt pirrandi! Við horfðum auðvitað á Megní í Supernova í gærkvöldi, og Þorsteinn gerði sitt besta til að kjósa hann en netið var eitthvað að stríða okkur :(
Magni stendur sig alveg rosaleg vel. Það væri æðislegt ef hann kæmist nú sem lengst! Mér finnst hann ekkert síðri en margir þarna. Allavega eru margir mun verri en hann!!
Ég fór fyrir Rob í Lowe's verslun sem er í næsta bæ við hliðiná. Í leiðinni ætlaði ég að sækja Muse miðana okkar þar sem ég missti af FedEx bílnum um morguninn (vegna pósthúsferðar). Klukkan var 17:30 þegar ég fór inn á skrifstofuna hjá FedEx og þar var mér tilkynnt að pakkinn minn væri enþá í bílnum sem kæmi ekki í hús fyrr en 18:00! Bömmer. Ég var með flísar í bílnum sem þurftu að komast til Boníta sem fyrst.. þannig að ekki gat ég beðið í hálftíma. Ég spurði hvenær ég mætti eiga von á að fá pakkann heim daginn eftir og hann sagði bara "ehh.. milli 8 og...(hérna bjóst ég við að heyra "10" eða jafnvel "12")......og.... þrjú!!" - æðisleg tímasetning! Hehehehehe
Ég gat ekki annað en hlegið. Þetta þýðir að í dag yfirgef ég ekki húsið, og bíð spennt við útidyrahurðina frá 8 til 3! :D Við verðum að fá miðana í dag því tónleikarnir eru í kvöld klukkan hálf 8 og ég hef heyrt því fleygt að það sé erfitt að komast inn miðalaus! ;)
Ég sæki Þorstein því í vinnuna kl hálf 5, við förum heim svona 5 ef ég þekki Boníta rétt (alltaf eitthvað aaaaðeins meira sem þarf að gerast áður en við förum) og brunum heim í Carver Court, Steini stekkur í sturtu og svo reynum við að leggja af stað til LA klukkan svona korter í sex.
Við keyptum okkur miða í A svæðið á svæði sem er aðeins tli hliðar. Það verður flott að sitja bara og horfa á þá. Allavega skárra en að límast við sveitta og háruga líkama eins og í Egilshöllinni! Bjakk það var ekki girnilegt hehe
---
Ég sem ætlaði að ryksuga efri hæðina í dag, og taka til í fataherberginu hans Rob. Get eiginlega hvorugt gert fyrr en miðarnir koma, þar sem ég mun ekki heyra í bankinu fyrir ryksugunni, og ekki heldur ef ég er einhverstaðar lengst inní fataherberginu!
Bömmer. Skipti bara um á rúmmunum í staðinn ;)
---
Ég ætla þokkalega að fá mér au-pair þegar við erum orðin "stór"! :D
Þriðjudagur 18. júlí 2006 / 19:32 / Pósthúsið
Jæja. Ég fór og skutlaði Christy þangað sem hún var að passa. Eftir það fór ég í næstum-því tveggja tíma ferð í pósthúsið. Ég þurfti auðvitað að pakka öllu í kassa og merkja þá í bak og fyrir. Tókst svona skemmtilega að merkja þá vitlaust,.. en jæja. Alltaf er maður að læra. Karlinn í afgreiðslunni var afskaplega indæll (eins og allir hérna) og spurði mig um Ísland og ég auðvitað sagði honum allt um það hvað Ísland væri frábært og fallegt land. Hann spurði um tungumálið (það halda mjög margir að við tölum norsku, og að Ísland sé lítil eyja rétt hjá Danmörk..) og ég sagði honum hvernig við segðum "endursenda" og tókst honum afskaplega vel að segja það hehe
Núna er nóg skápapláss hjá mér, og líka nóg pláss í veskinu þar sem allar þessar sendingar (+ umbúðir, límband, penni og nokkur umslög!) kostuðu 100dollara. Það er spennandi að vita hvað fólkinu heima finnst ;)
Annars fer nú að líða að því að Friðrik Ingi, Karen Björg og Birna Eyfjörð eigi afmæli! Þá fer líklegast ein sending beint í Túngötuna ;)
En allavega. Anika mín - pakkinn þinn er farin af stað! :D Líka afmælis pakkinn hennar Sigríðar Eddu og Katrínar!
Njótið vel..
Þriðjudagur 18. júlí 2006 / 06:02 / Ruglum bull
Þegar Þorsteinn var farinn í vinnuna í morgun kl 8 þá lokaði ég augunum í smá stund. Þegar ég opnaði þau aftur þá var klukkan að skríða tíu og krakkarnir (og ég!) greinilega steinsofandi!!! Jæja. Ég dreif mig á fætur og sótti smá þvott niður í bílskúr/þvottahús og fór að brjóta saman þvott á náttfötunum. Það var ekki seinna vænna því stuttu seinna kom Rob heim! Næstum því bösted ;) Hehe. Slapp til! :D
Hann bað mig um að skutla krökkunum á leiklistarnámskeiðið sem byrjar klukkan 13:00 og við erum svona 45mín á leiðinni.
Rúmlega 12 sagði ég krökkunum að græja sig og við fórum útí bíl. Þá uppgvötaðist að Kim hafði tekið bíllyklana með sér þegar hún fór um morguninn!! Mamma hennar Kim kom svo eftir rúmlega hálftíma, og þá var klukkan rétt að verða 13. Hún keyrði svo í burtu og ég opnaði bílinn. Þá sá ég að tölvuna vantaði í bílinn!! Frábært, æðislegt þar sem ég rata ekki rassgat alla leið til North Hollywood án þess að hafa tölvuna til að vísa mér leiðina. Ég fór inn að hringja í Rob, en þá slapp Piper út (stóri hundurinn) - Æðislegur dagur ekki satt?!! Hehehehe
Við Christy hlupum á eftir hundinum meðan TJ talaði við pabba sinn, og svo Kim! Klukkan korter yfir 1 var ákveðið að við myndum koma við hjá Kim og sækja tölvuna og bruna svo á námskeiðið. Kæmum alltof seint, en kæmum samt!
Þegar við LOKSINS komumst heim til Kim þá var klukkan hálf tvö. 45mín eftir að leiðarenda sem þýddi að við kæmum ekki fyrr en korter yfir tvö og þá væru bara 45mín eftir af námskeiðinu. Kim var miður sín yfir þessu öllu saman (þar sem þetta var í rauninni henni að kenna, hún gleymdi að skilja eftir lyklana OG tölvuna, en við erfum það ekkert híhí) þannig að hún lét okkur fá 70dollara til að eyða í hvað sem við vildum. Við Christy ákváðum því að fara í Simi Valley Mollið og versla (auðvitað.. kaupa kaupa!!) hehe. Einhverra hluta vegna vildi TJ ekki koma með okkur í mollið (skil það ekki, hvaða strákur vill ekki fara með tveimur stelpum að skoða föt??) þannig að við byrjuðum á því að skutla honum heim. Eftir ágætis tvo klst í mollinu (og þá var ég einum gallabuxum ríkari - kostuðu heila 14dali eða rétt um 1000kr!! Það er náttúrulega algjör snilld :D ) sóttum við TJ heim og ég ætlaði að skutla þeim í Borders og fara á meðan í pósthúsið með alla pakkana sem eiga að fara heim til Íslands. Ennnn neiii... TJ vildi endilega að ég biði í smá stund eftir sér, og þá kom í ljós að hann átti víst pantaðan tíma hjá lækni og pabbi hans beið heima! Nú jæja, ég beið í svona 20mín eftir TJ fyrir utan einhverja búð og las í Artemis Fowl á meðan (góð bók!). S'iðan skutlaði ég honum heim, sótti Þorstein, fór í búðina og sótti svo Christy sem var enþá í Borders. Loksins þegar við komum aftur heim þá var klukkan að ganga hálf 8 og ég átti eftir að elda kvöldmat!!! --- og niðurstaðan í þessari sögu er sú að ég fór ekki í pósthúsið! :( :( Það lokaði víst klukkan 18 og ég var orðin alltof sein. Í fyrramálið þarf ég hinsvegar að skutla Christy eitthvert þar sem hún er að fara að passa og þá kem ég við í pósthúsinu á heimleiðinni. I promise!!!!!
----
Áfram með söguna:
Ég var ekki leng i að galdra fram gómsætan fiskrétt (sem Sandra benti á, rosalega góður!!) og var hann boraður með bestu lyst klukkan 9 í kvöld ;) Já, og þessi fiskréttur var ekki með þorsk eða ýsu, heldur Catfish sem er Steinbítur að mér skilst. Hér er heldur ekki til þorskur eða ýsa .. en nóg til af skötu, lúðu, steinbít og fleiri "furðufiskum!"
Og ekki nóg með það, þá geta þeir ekki bara kallað fiskana t.d. "lúða" eða "lude" heldur þurfa þeir endilega að heita nöfnum eins og "Halibut" eða "Red Snapper" eða "Catfish" sem er mjög erfitt að muna! :D
----
Utan við að muna ekki nöfnin á fiskunum, þá erum við Þorsteinn að aðlagast mjög vel. Það er eiginlega svolítið svekkjandi að geta ekki sagt frá neinum "ömurlegum" og "Krassandi" fréttum.. en þetta er, í alvöru, bara allt æðislegt!
Næstu viku er svo LOKSINS Hawaii ferðin! (Við vorum algjörlega búin að ruglast á dögum hehehe) og leið og við komum heim frá Hawaii þá förum við til San Luis Obispo og verðum þar í viku! Það verður örugglega æðislegt. Dóra og Eric eiga tvö yndisleg börn sem heita Emma og Thor. Þau eru 4 og 6 ára og þá fær Þorsteinn loksins tækifæri til að spila fótbolta við einhvern þar sem Thor er víst mjög liðtækur í boltanum ;) Við ætlum svo að eyða versló hjá þeim, þar sem þau buðu okkur að vera yfir helgina þegar vinafólk þeirra kemur í mat. Þá er svona "franskt" þema hjá þeim og það þýðir að við hlustum á franska tónlist og borðum franskan mat á laugardagskvöldið! Það verður spennandi ;) Eitthvað fyrir Munda bró og Svanhildi :D
Jæja. Ég skrifa alltaf alltof mikið þegar ég loksins blogga. Oftast nær er ég líka bara að skrifa einhverja bölvaða vitleysu!! En vonandi nennir einhver að lesa þetta ;)
Já og Helga Kristín, elsku vinkona, e-mailið mitt er fyrir allra augum hérna á forsíðunni vinstra megin! :) hehehehe
Enþá að bíða eftir e-mail frá þér! :D :D
Aníka, Linda, Lísbet og Helga - hvenær er svo Skype tími??
VIð Þorsteinn erum að fara á Muse tónleika núna á miðvikudagskvöldið, en hvað með fimmtudaginn? Endilega kommentið og sendið mér e-mail um hvenær þið komist á netið og þá getum við hringst á!! Ég er líka komin með webcam svona ef þið eruð búnar að gleyma hvað ég er óeðlilega falleg ;)
Verið í bandi!!
Laugardagur 15. júlí 2006 / 23:50 / Simi Valley :)
Góðan dag. Nú verða lesnar veðurfregnir. Veðurfregnir les: Þú.
Í Simi Valley er nú rétt í kringum 40°c eða 102°F. Hæg norð-suð-aust-vestlæg átt (hver þekkir áttirnar hérna? Held samt að hún sé að austan...) Sólin er hátt á lofti og ekki ský á himni. Í dag er upplagt veður fyrir sundferð og bikini-far.
-------
Kvöldin hérna eru besti tíminn. Þá er hreinlega eins og bærinn lifni við. Fólk fer út að labba með hundana sína og börnin. Allir eitthvað svo afslappaðir og matvöruverslanirnar eru opnar til svona 9 eða 11 á kvöldin og því um að gera að versla í matinn að kvöldi til þegar eggin steikjast ekki sjálfkrafa í bílnum á leiðinni heim.
Í gærkvöldi fórum við í bío og sáum PIrates II og höfðum gaman af. Sérstaklega var samt gaman að sjá Þorstein engjast í sætinu síðustu mínúturnar því hann var alveg að míga á sig (hef aldrei séð annað eins!) og beið ég eiginlega eftir því að hann segði "of seint... búinn að pissa á mig!"
Hann lét sig hafa það og stóð upp þegar það voru svona 3mín eftir af myndinni hehehe.
Hinsvegar var svolítð sérstakleg að sjá hjón með tvö börn á sýningu kl 10 um kvöldið. Börnin voru svona 2ja ára og 6mánaða. Litla barnið svaf í vagni mest alla myndina og hitt barnið annað hvort sat rosalega þægt og gott eða svaf í fanginu á foreldrunum. Note Bene, þetta var 3ja tíma mynd! En þetta gekk alveg rosalega vel hjá þeim og gaman að sjá að þetta er greinilega hægt! :D HKJ - þú kannski prófar þetta einhverntíman með Dag? Hehehe.
Eða Helga Kristín á Grensó með Sunnu Billu og Gísla? ;)
--------
Í dag fórum við "fjölskyldan" í bankann og ég fékk bankareikning. Það tók ekki nema rúmlega 2 klst en er vonandi þess virði ;) Ég fékk 25 dollara fyrir að skrá mig í viðskipti við bankann, og svo fæ ég aftur 25dollara þegar Þorsteinn skráir sig OG hann fær líka 25dollara! Þannig að þá erum við orðin 75dollurum ríkari af því að skipta við þennan banka ;) Frábært ekki satt? Hehehe.
Núna getur Rob bara millifært launin sjálfkrafa í hverri viku og þá þarf aldrei að hafa áhyggjur af því meira. (Ekki það að við hefðum einhverjar áhyggjur... hehe)
-----
Jæja. Ég gæti skrifað endalaust langan pistil um allt sem að gerist hérna. Ég ætla hinsvegar að athuga hvort að Þorsteinn sé nokkuð drukknaður í sundlauginni og svo slétta á mér hárið. Kannski Þorsteinn vilji líka koma með mér til Ventura í mollið þar ;) Aldrei að vita.
Annars þarf ég að sýna ykkur smá mynd sem ég tók í gær af öllum fötunum sem ég er búin að kaupa mér hérna úti. Við erum samt að tala um að þetta eru bara föt sem ÉG er búin að kaupa Á MIG! Ekki ALLT sem að búið er að kaupa! :D
Bíðið bara spennt. Við setjum inn myndir í kvöld ;)
Kv. sunddýrin
Fimmtudagur 13. júlí 2006 / 21:46 / Leiðist! :(
Þetta er nú ekki eintóm gleði hérna í Californiu.
Mér alveg dr***u leiðist núna. Krakkarnir eru hjá mömmu sinni og Robert og Þorsteinn alltaf í vinnunni. Það er nú ekki mikið sem hægt er að þrífa eftir.. tja.. mig? Það er rétt hjá Baddý sem hún kommentaði um að allt hlyti að vera orðið fínt fyrst ég væri alltaf hreint að þrífa,.. og já - þetta gerist varla betra!
Núna sit ég bara að vafra á netinu og borðandi vínber. Mhh.. ávextirnir hérna eru alveg rosalega góðir. Ég kaupi alltaf vínber og jarðarber og set í skál inní ísskáp og svo er maður alltaf að fá sér eitt og eitt vínber - en ekki eitt og eitt nammi! :)
Hérna eru tvö hjól í lamasessi sem bíða eftir viðgerð. Úff það verður magnað að fá hjól - þá get ég hjólað í allar fatabúðirnar :) Og jafnvel hjólað í vinnuna til Þorsteins og aftur heim svona til að hafa eitthvað að gera. Ætli það taki ekki svona rúmlega 20mín að hjóla þá leið. Spurning bara hvenær þessi hjól komast í gagnið.
Eigum reyndar að fá bíl á morgun eða annað kvöld/laugardaginn. Það verður magnað.
Ætli Þorsteinn verði ekki að vinna á laugardaginn og jafnvel við bæði. Held að ég fái smá djobb við að gróðursetja blóm og þrífa þarna í Bonita. Krakkarnir koma svo á sunnudaginn og ég er búin að útbúa matarlista/menu fyrir næstu viku. Fiskur, Kjúklingur, Kjöt, grænmeti, ávextir og meira grænmeti ;) Hollt og gott.
Reyndar fá þau að venja sér einn skyndibita á viku - en það er líka bara eðlilegt finnst mér. (Miðað við hvað það er borðað gríðarlega mikið af skyndibita hérna í Ameríkunni!!)
Jæja. Ég ætla að reyna að googla einhver námskeið hérna í nágrenninu sem við Þorsteinn getum skellt okkur á. Kannski ég finni mér hvernig-á-að-búa-til-bréfaklemmur-námskeið eins og Embla stakk uppá hehehe ;)
Lifið heil
Hanna Panna.. pottur og kanna :D
Miðvikudagur 12. júlí 2006 / 22:39 / Peanutbutter and Jelly
Jæja. Þá er vinnudeginum mínum lokið. Ég er reyndar varla búin að setjast niður í dag og búin að þrífa heilan helling. Ekkert skrítið að ég sé búin snemma ;)
Þorsteins vinnudagur er hinsvegar ögn lengri en minn.. Ég fór með honum á mánudaginn og hafði nákvæmlega ekkert þangað að gera. Var eins og illa gerður hlutur mest allann tímann. Þorsteinn líka :) Hehe. Það er nefninlega búið að gera mest allt sem þarf að gera þarna, nema það "stóra" eins og að ganga frá eldhúsinnréttingunni og leggja parket. Það er eitthvað sem að smiðirnir sjá um. En þegar Rob kom heim áðan þá sagði hann að Þorsteinn væri að vinna alveg á fullu núna í einhverju verkefni. Hann hafði reyndar áhyggjur af því að Þorsteinn myndi annað hvort:
A) Drepast úr hita
B) Drepast úr svengd
En það kemur í ljós í lok dagsins hvort hann komi heim eða ekki! :D
Við vorum bæði í fríi í gær vegna þess hversu lítið er að gera í Boníta og að krakkarnir eru ekki heima. Kim kom svona um 2 leytið með bíl handa okkur og við skruppum í smá verslunarferð - sem reyndist síðan vera ansi kröftug! Keyptum t.d. Skype-heyrnartól þannig að núna getum við talað á fullu í gegnum Skype ;)
Við keyptum líka fullt af afmælisgjöfum handa liðinu heima og er ætlunin sú að komast í póshús sem fyrst - en það er reyndar hægara sagt en gert þar sem Robert kemur aldrei heim fyrr en svo seint og við fáum ekki bíl for good fyrr en á föstudaginn! Þannig að þið verðið bara að bíða þolinmóð (Anika) - þetta kemur seint, en kemur þó! :D
Dylan var hjá okkur mest allan gærdaginn. Það er rosalega fínt að "hanga" með honum. Hann hefur alveg sjúklegan áhuga á íslenskunni og hlustar af áfergju þegar við Þorsteinn tölum saman. Uppáhalds bókin hans þessa dagana er því ensk/íslensk orðabók og les hann hana eins og skáldsögu! :D Hehehe
Við fórum í Bed-Bath and Beyond í gær (þeir sem hafa séð bíomyndina Click ættu að kannast við þetta nafn!!)
og keyptum okkur rúmföt þar sem rúmfötin hérna eru.. tja.. æji ekkert spes ;)
Núna erum við með lak + sængurver + koddaver sem er allt með eins munstur!! Mjög skondin sjón ;)
Annars sofum við nú ekki með sæng, heldur bara einfald sængurver þar sem sæng myndi hreinlega drepa mann úr hita.
Jæja. Ég er að hugsa um að skreppa niður og jafnvel alla leið útí sundlaug svona í tilefni af því að hitinn hérna inni í herberginu er að nálgast 40gráðurnar (mætti halda!)
Hafið það gott og haldið áfram að kommenta eins og brjálæðingar! :D Það er svo gaman að fá komment!
Svo setjum við inn myndir þegar við erum búin að safna aðeins fleirum ;)
Laugardagur 08. júlí 2006 / 00:39 / Chino og bílskúrinn..
Þvílíkt og annað eins drasl hef ég bara aldrei á ævi minni séð áður. Bílskúrinn var svo yfirfullur af dóti að það var ekki fyndið, en við Þorsteinn tókum okkur til í dag og tæmdum hann nánast algjörlega! Það tók okkur rúmlega 2klst að koma öllu dótinu út og á stéttina fyrir framan. Við skiptum því í þrjá parta - Hlutir sem á að eiga, hlutir sem á að henda og hlutir sem á að selja. Vúhú.. Verst bara að eiga-parturinn er svolítið stór partur! Svona um hádegi kom svo Rob og sótti Þorstein og Þorsteinn fór að vinna. Ég hélt áfram að tæma skúrinn.. þrífa hann og svona. Þvoði nokkrar vélar af þvotti sem var orðinn ansi skrautlegur einhverstaðar í hrúgu inní bílskúrnum og dundaði mér bara. Sem dæmi um hvað það er mikið að gera hjá Rob, þá er ég búin að bíða eftir honum síðan klukkan 1 í dag (núna er kl næstum 6) svo hann geti farið í gegnum allt draslið með mér. Hann er búinn að koma hingað heim 2x í dag og í bæði skiptin verið á hlaupum. Hann veit samt að ég er að bíða og ég veit vel að hann er upptekinn þannig að ég nýt þess bara að hanga í tölvunni á meðan ég bíð ;)
Bílskúrinn var semsagt svona... en er núna svona... og þetta er allt draslið sem við fórum með út!! Bara smotterí, hvað er ég að kvarta?! ;)
---
Í fyrrakvöld bað Robert okkur Þorstein um að skreppa fyrir sig til Chino daginn eftir (í gærmorgun) og ná í einhverja steina sem honum vantaði fyrir arininn í Bonita (hitt húsið). Hann pantaði þá semsagt um daginn og gat fengið þá morguninn eftir ef við myndum sækja þá, en þurfti hinsvegar að bíða í 6vikur ef þeir ættu að sendast. Við Þorsteinn vöknuðum því eldsnemma í gærmorgun og renndum á eftir þessum steinum. Það tók ekki nema svona.. tja.. rúmlega klst að komast á staðinn og alveg rúmlega 3 tíma að komast tilbaka. Með smá stoppi í LA og í Balwin Park þar sem við sóttum einhverja tölvu fyrir Robert. Þetta var heljarinar ævintýr og þeir sem fylgjast með O.C. á Skjá einum vita að Ryan er frá Chino!! Ég fór semsagt í heimabæinn hans Ryans úr O.C. ;) Bara snilld! Þetta var eiginlega algjört Ghetto.. svona eins og staðnum er lýst í þáttunum. Mjög svona rykugur bær með litlum og "ljótum" húsum.
---
Ég er farin að elda á fullu. Annað hvort sýð ég pasta eða elda kjúkling - er það ekki ekta ég? hehehe
Nei nei,.. í kvöld verða bara grillaðir hamborgarar þar sem við verðum örugglega framá kvöld að ganga frá þessu blessaða bílskúrsdrasli og þess vegna ætlum við að hafa eitthvað fljótlegt en gott. Já þeir verða sko heimagrillaðir með nóg af grænmeti! :D - og engin Koktailsósa á þessum bæ hehehe
---
Ég var að setja inn fleiri myndir. Nokkrar frá Chino-ferðinni, myndir teknar útum gluggann á bílnum ;) og svo myndir hérna heima þar sem við erum að chilla með familyunni.. fáið loksins að sjá krakkana og litla Chewy sem týndist, en er fundinn aftur!
Endilega kommentið fyrir neðan myndirnar - fleiri en bara Helga og Mamma (takk fyrir kommentin, mjög skemmtileg!!)..
Skora á Freyju, Lindu, Sunnu, Lísbet og Helgu Kristínu grenivíkurmær að kommenta undir myndirnar, og svo auðvitað mega HKJ og mamma halda áfram að kommenta! Já og hvar eru systur mínar?!!! Og bróðir (mundi?!) Afhverju hafið þið ekki kommentað á myndirnar? hmmm.. þetta er farið að vera eitthvað gruggugt? Eruði að plana fjölskyldumót á meðan við erum í burtu eða hvað? hehehe ;) Dagný - pakkaðir þú þér kannski óvart ofaní kassa með Danmerkurdótinu? Híhí ;)
Miðvikudagur 05. júlí 2006 / 17:27 / Jæja!
Er ekki kominn tími á blogg eða hvað??
Sunnudagurinn var alveg ótrúlega skemmtilegur - að sjálfsögðu ;)
Þriðjudagur 04. júlí 2006 / 18:10 / Stórfréttir!!
Í dag er Hanna með slétt hár og Þorsteinn með fullhlaðinn síma!!! :D :D
Mánudagur 03. júlí 2006 / 06:05 / Hollywood - myndir ofl!
Jæja dyggu á-lesendur? (er það orð eða?!)
Ég verð því miður að svekkja ykkur. Við Þorsteinn tókum alveg svaaakalega margar myndir í dag... en föttuðum ekki að þær eru víst alveg rosalega stórar og ég nenni enganvegin að finna útúr því að minnka þær núna í kvöld því dagurinn var langur og viðburðarríkur og núna langar mig mest að skríða í bólið. Ég ætla líka að láta það eftir mér og er því farin að sofa!
Þið fáið svo heitustu fréttirnar og sjóðheitar myndir vonandi annað kvöld (sem sagt í kvöld hjá ykkur! Mánudagskvöld!) :D
Kv. Hanna þreytta
Sunnudagur 02. júlí 2006 / 18:49 / Jibbí!
Við Þorsteinn sátum sallaróleg að horfa á sjónvarpið í gær þegar síminn hringdi. Við vorum búin að undirbúa rólegan dag heima fyrir - horfa á sjónvarpið, laga til í herberginu okkar og þrífa sundlaugina. En nei.. þetta var víst Kimberly að hringja til að segja okkur að hún kæmi með bíl handa okkur í dag sem við gætum notað, allavega um helgina! :D
Mjög sátt við það og við Þorsteinn fórum strax að gera einhver plön. Mætti svo ekki skvísan með TRIGGER (flotta cadillacinn) handa okkur.. vúhú! :D Við fórum og tókum bensín (sem var mjög flókið, en hafðist) og rúntuðum svo eins og brjálæðingar í leit að myndavélabúð! Þær sem við fundum voru lokaðar þannig að við ákváðum bara að rúnta til Hollywood með dyggri aðstoð Ivette sem var nú stundum að gefa upp öndina greyjið.
Á Hollywood Blvd fundum við myndavélabúð og gátum keypt okkur myndavél! Þá vorum við reyndar búin að labba um götuna og svona,... og ég er svo mikið chicken að ég vildi bara fara BEINUSTU LEIÐ í bílinn eftir að við vorum komin með myndavélina í hendurnar. Vildi ekki labba um með poka með rándýrri myndavél í!
Reyndar smá gleði.. við keyptum Canon powershot A700 myndavél og 1gb minniskort. Það kostaði 444dollara eða 33þúsund. Við fórum svo á netið þegar við komum heim og reiknaðist okkur það til eftir að hafa skoðað að ef við hefðum keypt þetta nákvæmlega sama heima á Íslandi, þá hefði það kostað okkur 55þús kall eða 700dollara! :D Algjör snilld.
Svo fengum við líka launin okkar í dag fyrir fyrstu alvöru vinnuvikuna, og þau borguðu bara nánast upp myndavélina! Geggjað ekki satt ;)
Þorsteinn er líka búinn að blogga um gærdaginn og líka um vinnuna sína, þannig að endilega kíkið líka á hans blogg og kommentið like crazy hjá okkur báðum! Það er svo ótrúlega gaman að lesa það! ;)
Þið fáið svo að sjá myndir á morgun býst ég við.. ætli við skellum ekki inn myndum í kvöld ;) (þá er nótt hjá ykkur!)
kv. Hanna
p.s. Gunna Sigga, skilaðu nú kærri kveðju til elsku Línu nöfnu, Steina, Kalla og Helga Steina :D Ég veit að þú lest alltaf bloggið mitt og sýnir þeim svo! Hlakka til að koma í heimsókn eftir áramót til ykkar :D
Fimmtudagur 29. júní 2006 / 16:10 / Skrambinn..
Það hlaut að koma að því að eitthvað slæmt gerðist hérna...
Ég vaknaði í fyrradag með svona rosalegan kláða í handleggnum. Júbb mikið rétt! Bugbite.. ekki mjög skemmtilegt það!!
Mánudagur 26. júní 2006 / 17:15 / Sunnudagurinn
Jæja, fólk orðið óþreyjufullt að fá fréttir sá ég á síðasta kommenti hehe ;)
Við vöknuðum í gærmorgun svona um 9 leytið og komum niður og þá var Rob að sjálfsögðu að steikja egg og bacon. Lucky me þá borða ég ekki egg (nema í salati) og allsekki bacon þannig að ég fæ mér alltaf bara einhver "morning sunshine" sirjós dæmi í morgunmat og helli útá mjólk úr BRÚSA! hehe. Rob spurði okkur hvort að við vildum koma með í kirkjuna og við sögðum auðvitað já.. því hvað er betra en messa á sunnudögum?
Já.. það er eiginlega best að stoppa hérna og segja ykkur frá því að á Laugardaginn fóru Rob og Kimberly út að versla.. og komu heim með eitt stykki glænýjan mini-van!! Toyota Sierra held ég að hann heiti og við Þorsteinn fengum að fara smá rúnt á svona family-wagon. Ótrúlega gott að keyra hann. Allavega.. aftur að messunni.
Þar sem bæði Leeroy og Mini (vaninn) voru heima en Rob þurfti að sækja Kimberly og strákana þá þurftum við að fara á báðum bílunum! Semsagt.. ÉG þurfti að keyra þennan risastóra pallbíl.. en það bjargaðist auðvitað því ég er í smá æfingu eftir að hafa keyrt Toyotuna hans pabba ;) Ég elti bara Rob heim til Kimberly (frekar löng leið) og TJ og Colin komu svo með mér og Þorsteini í bíl í kirkjuna. Kirkjan var auðvitað ekkert kirkjuleg. Bara eins og stórt samkomuhús. Þegar við komum inn var hlaðborð af KLEINUHRINGJUM með allskonar húð (súkkulaði húðaðir, smarties húðaðir, sykurhúðaðir.. you name it!) og öðru bakarís gúmmelaði. Við Þorsteinn fengum okkur einn sykurhúðaðann amerískan donut saman og hann var ótrúlega góður ;) Svo gat maður líka fengið drykki eins og maður vildi og á veggjunum hengu stór sjónvörp sem sjónvörpuðu messunni. Þetta var skrítnasta messa sem ég hef farið í. Held að hún hafi verið svipuð og hvítasunnumessa (þó svo að ég hafi aldrei farið í hvítasunnumessu!) en presturinn var í gallabuxum og gæjaskyrtu. Örugglega bara svona 30+ ára og labbaði um allt og talaði meira með höndunum en munninum. Sitthvoru megin í stóra "messuherberginu" voru breiðtjöld þar sem hann varpaði upp annað slagið einhverjum bútum úr biblíunni ofl guðs-bókum. Það var samt margt mjög merkilegt sem hann var að segja. T.d. tók ég sérstaklega eftir því þegar hann ræddi um það að þeir sem bæru "bitter jeoulusy in their hearts" myndu á enddanum lendi í "battle with their loved ones" og ég gat alveg verið sammála þessu því ég held að allir þekki einhvern sem er öfundsjúkur útaf öllu og þar af leiðandi lendir maður alltaf í einhverjum leiðindum útí þessa öfundsjúku manneskju. Þegar presturinn var búinn að tala, þá kom hljómsveit upp (kassagítar, hljómborð, trommusett, rafmagnsgítar og bassi) og byrjaði að spila einhver þau væmnustu jesú-lög sem ég hef á ævi minni heyrt. "We surrender everything to you jesus.. lift our love higher jesus!" Þetta var samt rosalega fallega sungið hjá stráknum sem söng, og textanum var varpað uppá breiðtjaldið þannig að allir gátu sungið með. Eftir smástund tók ég eftir því að nokkrir voru staðnir upp og lyfti höndunum um leið og þeir sungu "lift our hearts high jesus!" og fólk var bara almennt mjög að fíla sig inní sönginn. Við Þorsteinn þögðum hehe. Þetta var samt mjög áhrifaríkur söngur og þegar allir byrjuðu að syngja með þá fór ég barasta næstum því að gráta úr geðshræringu.. Fann alveg andann koma yfir mig! Neeeiii reyndar ekki.. en þetta var samt fallegt.
Á meðan á söngnum stóð gekk silfraður dallur með svona oblátum í (pínkulitlar, gular oblátur) - líkami krists - og svo annar dallur með pínuglösum af JARÐARBERJASAFA - blóð krists -. Svo gekk líka karfa þar sem fólk gat sett einhverja miða sem maður mátti fylla út.. einhver bænamiði eða eitthvað þannig.. og svo gat maður líka sett peninga en við Þorsteinn vorum nú ekki miklir þátttakendur í messunni, meira svona áhorfendur.
Eftir kirkjuna fórum við svo og fengum okkur ávaxta smoothie sem var mjög gott því þá var hitinn kominn uppí 94°f eða svona 34-5°c. Þessi smoothie var ekkert smá góður. Með Frozen Yogurt og svo einhverjum ávöxtum. Fyrsta og eina hollustu-búllan sem ég hef séð hingað til.
Við Þorsteinn keyrðum svo Leeroy heim, (eða ég keyrði og Þorsteinn var mér til halds og traust) og gekk heimferðin svo vel að ég tók vitlausa hægri beygju (beygði of snemma) og endaði uppá FREEWAY eða hraðbrautinni og þar að auki á leið í vitlausa átt!!! Ekki mjög góð tilfinning það. En Ivette sem er tölvan í bílnum, sagði bara "endurskoða route" og svo kom hún með lausnina heim! Reyndar 5milum lengri leið en jæja. Við komumst fljótt af hraðbrautinni og gátum fylgt Ivette alla leið heim ;)
Við erum ekki enþá búin að kaupa gemsa :( Og ég veit ekki alveg hvenær það verður. Ég er alveg að drepast ég get ekki beðið eftir að fá bíl til að keyra um á, því stundum finnst mér ég vera hálf föst hérna. Sérstaklega þegar Þorsteinn er að vinna og ég búin með allt sem ég get gert yfir daginn og þá get ég ekkert farið.. nema niður að horfa á sjónvarpið :S Kimberly talaði samt um það að við myndum fljótlega fá bíl, og ég ætla að biðja Rob um að vera búinn að redda bíl og tryggingum fyrir 14júlí því þá fara þau til Hawaii og við Þorsteinn ætlum til San Luis Obispo að vinna fyrir Ásu í Selvík og passa krakkana þeirra Dóru og Erics. Að sjálfsögðu nýtum við okkur líka það að vera í smá "fríi" og förum á ströndina og djammið í San Luis.
Það er svo margt sem okkur langar til að gera, en mér finnst Rob eiginlega hafa voðalega lítinn tíma. Hann er mjög sjaldan heima.. og við höfum t.d. ALDREI borðað kvöldmat hérna heima. Einu sinni fórum við á Del Taco sem er svona Taco staður, einu sinni fórum við á kínverska staðinn og svo einu sinni komu þau heim með kínverskan mat. Voðalega lítill tími til að elda heima.. en samt er sko einn RISASTÓR frystiskápur í bílskúrnum FULLUR af kjöti, kjúklingi, fiski, grænmeti, grillmat ofl ofl.... ?essvegna væri frábært að fá bíl því þá erum við miklu sjálfstæðari og þurfum ekki hann til að skutla okkur útum allt. Ég skil samt vel að hann sé ekki tilbúinn til að lána okkur þessa dýrindis bíla sem hann á þar sem við erum ekki tryggð fyrir tjóni á öðrum bílnum en okkar eigin. Þetta kemur allt saman samt fyrir rest.. þeir sem þekkja mig vita bara hvað ég er óþolinmóð, og þeir sem þekkja Ameríkana vita að hér gerist allt í slow-motion!!
Illu er best aflokið ekki satt? Þarf að taka til í herberginu hennar Christyar og fá Christy með mér í það. Núna er hún búin að loka sig inní svefnherb. hans Robs og er að horfa á sjónvarpið, bara til að þurfa ekki að laga til með mér held ég hehehe.. en hún sleppur ekki! Múhaahahaha
Ég ætla samt að byrja á því að hringja heim til mömmu.. maður er strax farinn að sakna hennar og pabba!
Ekki öfunda náungann því þá mun ykkur líða miklu betur. Verið ánægð með það sem þið hafið.
xoxo
Hannah
Þriðjudagur 13. júní 2006 / 17:02 / Ýmislegt
Loksins fann ég mér tíma til að blogga (já eða bara loksins nenni ég því!). Ætla að taka saman smá "pistil" um undanfarna daga sem hafa verið rosalega skemmtilegir eins og allir aðrir dagar í lífinu ;)
Á föstudaginn fór ég í óvissuferð með 4.bekk í MA sem var ekkert smááá skemmtileg. Við áttum víst að mæta með útprentað kort af Skagaströnd! Ég vissi strax að það var bara trix og prentaði ekki út neitt kort. Það runnu nú samt á mig tvær grímur þegar rútan lagði af stað og fór ekki í átt að Leirunni heldur í átt að Skagaströnd!! EEEnnn sem betur fer var það bara grín og við snérum við á Húsasmiðju-planinu. Fyndið!
Næsta djók-stopp var Vaglaskógur. Vorum komin þangað rétt um 4 leytið og vorum nú ekki alveg sátt við það að fara ekki lengra en bara í Vaglaskóg! En eins og áður þá var það bara grín og við héldum sem leið lá að Húsavík þar sem við fórum í sund, stoppuðum svo á einhverju túni á leiðinni í Ásbyrgi og fórum í leiki. Mjög gaman það.
Við komum svo í Ásbyrgi svona uppúr 20 og þá var maður aðeins orðin tipsy enda opnaði ég fyrsta ölinn á Húsavík. Kvöldið leið ótrúlega hratt og var alveg geeeggjað gaman! Ég átti mín móment. Byrjaði á því að sýna "frábæra" takta í fótbolta (ég er búin að átta mig á því að ég mun aldrei getað sparkað sómasamlega í bolta...) svo datt ég svona skemmtilega þegar Jón Ingi tók mig á hestbak. Uppskar beygjað bak og boginn háls, en það var alveg þess virði því þetta var alveg ógeðslega fyndið fall hjá mér. Síðasta en ekki sísta skemmtiatriðið af minni hálfu var svo þegar ég tók sprett, þvert yfir tjaldstæðið, en flaug (í bókstaflegri merkingu) á hausinn þegar löppin á mér flæktist í tjald-bandi. Á meðan ég var að detta (sem tók mig allavega 20sek) þá öskraði ég svona skemmtilega þannig að mér tókst að láta nánast allan 4.bekk horfa á mig detta svona laglega. Jæja. ég bjó allavega til ágætis minningu með þessum föllum mínum, og ekki bara minningu fyrir mig því ég frétti að fólk væri enþá að tala um það hvað ég var misheppnuð þetta kvöld. Af myndunum að dæma sem ég sendi hingað inná síðuna mína, þá skemmti ég mér konunglega! Hinsvegar var laugardagurinn ekki alveg jafn skemmtilegur. EKki gott að vakna þunn, í tjaldi og í svona 20+ stiga hita! Rútuferðin heim var hinsvegar alveg ágæt, svaf, mest alla leið enda svaf maður ekki mikið um nóttina. Sökum þynnku þá tókst mér ómögulega að mæta í útskriftarveisluna hjá Helga Hrafni (hennar Aniku) og er ég eiginlega enþá í smá bömmer yfir því :( Sorry guys! :(
Um kvöldið drullaði ég mér þó í partý til Ingu sem var mjög skemmtilegt. Ennnnn hinsvegar gafst ég upp svona um miðnætti því fólk var orðið frekar drukkið og maginn minn kominn á hvolf við að horfa á fólk skola niður öllu þessu áfengi þannig að ég dreif mig bara heim. Takk samt Inga mín fyrir ótrúlega skemmtilegt partý! :D Gaman að hitta þig og alla hina! Á sunnudeginum fórum við Þorsteinn eldsnemma á Amour að þrífa (síðsta helgin mín!) og var það ágætt. Eftir þrifin fórum við svo í æðislega sjómannadagssiglingu á Huldunni með pabba og vegna þess hversu frábært veðrið var þá var siglingin rúmlega 2 klst löng! Við fórum í hvalaskoðun og sáum hrefnur og svo sáum við líka hnýsu með lítinn sætan kálf. Eftir siglinguna fórum við í afmæli til Sigríðar Eddu og átum á okkur gat - Enda tengdafjölskyldan mín ekki þekkt fyrir annað en frábærar veislur!
Núna er bara undirbúningur á fullu fyrir næstu helgi. Mamma hefur nú alltaf haft græna fingur, en núna er hún barasta eins og HULK (öll orðin græn) því hún er alveg að missa sig í garðinum. Maður uppsker víst eins og maður sáir og ég held að garðurinn hafi aldrei litið betur út. Á morgun er svo síðasti vinnudagurinn minn á Amour og á fimmtudaginn kemur Baddý systir heim úr 3vikna reisu á Ítalíu. Föstudaginn er svo æfing fyrir útskriftina sem verður á laugardaginn. Sunnudaginn er svo veisla hérna heima og á mánudaginn förum við Þorsteinn suður og klukkan 17:00 á þriðjudaginn fljúgum við Þorsteinn út á vit ævintýranna!!!
Mér finnst tíminn vera að hlaupa frá mér, en samt er ég eitthvað svo afspyrnu afslöppuð yfir þessu öllu saman.
Það borgar sig svo sannarlega að hugsa bara: "Þetta reeeeeddast!"
Flutningar
/ Lífið
/ Lífstíll og matur
/ vinir og vandamenn
/
3
Mánudagur 05. júní 2006 / 15:06 / Svar við kommenti
Jæja. Ég ætlaði nú eiginlega ekkert að blogga í dag. Fékk hinsvegar spurningar frá Svönsu vinkonu í London í kommenti og skrifaði komment til baka. Það varð hinsvegar svo gríðarlega langt að ég ákvað að búa bara til færslu úr því svari.
Hérna kemur þetta - líka smá svar til Söndru ;)
Sandra: Já að sjálfsögðu megiði kíkja til mín fyrr - bara spurning hvort að það verði eitthvað í boði þá?!! Híhí.. jú það verður nú auðvitað eitthvað til handa ykkur að narta í. Ætla að hafa kjúkl.salat (sem við gerðum einu sinni saman!) og líka pastasalat þannig að þið fáið örugglega eitthvað í gogginn :) Láttu mig bara vita svona nokkurnvegin tímasetningu svo maður geti nú verið búin í lagningu ;)
Svansa: Já það er alltaf gott að vera forvitin ;) Í desember var stefnan tekin á skóla í Svergie nk haust. Á rúntinum fórum við Þorsteinn að tala um Guðný vinkonu okkar sem var að fara sem au-pair til Ítalíu þá í Janúar og ég sagði að ég væri sko alveg til í að vera svona au-pair. Mér til mikillar furðu (en samt ekki) þá sagði Þorsteinn "Já ég væri alveg til í það líka.." Þannig að þá var rúntinum hjá okkur lokið því við brunuðum heim og ég googlaði nokkrar au-pair síður (misgóðar) og setti inn nokkrar auglýsingar þar sem við auglýstum okkur sem Au-pair couple. Það gekk vonum framar og fólk í Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Ástralíu og BNA sem sýndi okkur áhuga. Fljótlega varð okkur ljóst að við hefðum lítið að gera tvö til Frakklands, Þýskalands og/eða Ítalíu þar sem fólkið þar hafði ekki svo mikið handa okkur að gera. Hinsvegar í Ástralíu var okkur boðið að vinna á vínekru þegar við (ég) væri/um ekki með börnin. Þau hinsvegar gerðu ekki ráð fyrir neinum ferðalögum af okkar hálfu og sögðu bara að þau vildu að við ferðuðumst áður en við byrjuðum að vinna hjá þeim. Á meðan við vorum að tala við Áströlsku hjónin þá vorum við einnig í smávegis e-mail sambandi við mann í Californiu. Við sendum nokkra e-maila á milli og svo spurði hann hvort hann mætti einhverntíman hringja. Ég gaf honum upp heimasímann og svo pludselig hringdi síminn og það var Robert. Eftir hálftíma spjall þá sagði hann bara "hvað þarf ég að bjóða ykkur svo þið komið frekar til okkar en farið ekki til Ástralíu?!" og svo bauð hann okkur ýmis fríðindi sem við hefðum ekki fengið í Ástralíu og þá var bara gerðum "munnlegur samningur" og ákveðið að við færum til Californiu!
Sem betur fer er Ása í Selvík (litla húsið beint á móti gömlu búðinni hérna á Hauganesi) búsett í Cali ásamt dóttur sinni og tengdasyni. Ég hafði samband við Ásu og Dóru dóttur hennar og Dóra fór svo og heimsótti Robert og hitti börnin/skoðaði aðstæður fyrir okkur og gaf grænt ljós á allt saman. Þá vorum við alveg 100% á því að fara þar sem við vorum búin að fá smá "garentí" fyrir því að þetta væri allt saman a-okay! Þetta var semsagt milliliðalaust og ekki í gegnum nein samtök þar sem BNA LEYFA EKKI KARLKYNS AU-PAIR! Algjörlega fáránlegt. En whaddaheck, þetta gekk og við erum í skýjunum!! Brottför eftir.. tja 15 daga?! :D
Au-pair síðurnar sem ég notaði voru, að ég held:
www.aupairinamerica.com
www.greataupair.com (þar fann Robert okkur)
www.aupair.com
www.aupair.net
ofl ofl ofl...
Flutningar
/ Lífið
/
4
Sunnudagur 04. júní 2006 / 00:11 / Bloggidiblogg
Hvar skal byrja. Þessi helgi er svo ótrúlega viðburðarrík. Fór í síðasta prófið mitt í MA núna á föstudaginn. Fékk nettann fiðring í magann þegar ég var komin að svona spurningu nr 60 í prófinu (100krossa spurningapróf) því þar kannaðist ég bara ekkert við að hafa lesið nokkuð um Kína, en næstu 10 spurningar fjölluðu einungis um Kína! Ég hélt að ég hefði bara verið svona mikill tossi en nei nei, kennarinn var bara sjálfur tossi og setti ÓVART inn spurningar úr kafla sem við áttum ekkert að lesa! Svona er þetta þegar kennarar reyna að sleppa auðveldlega og gera bara copy/paste við gamallt próf!! Busted! ;)
Eftir prófið fórum við Anika niður á Amour að skúra (Takk Anika!!) og svo fór ég í smá verslunarleiðangur að leita mér að fötum (bol) fyrir ferminguna hennar Sunnu sem er á morgun (í dag, það er víst komið miðnætti!) Ég fann hinsvegar ekkert og fór því tómhent til Grensó í klippingu til Sveinlaugar. Frá henni kom ég út sem algjör red-head og keypti meira að segja djúpnæringu sem heitir "Dumb Blonde!" .. mjög fyndið nafn. Djúpnæringin er reyndar líka fyrir Racy-Redhead sem ég veit ekki alveg hvað er. Spyr að því þegar ég er komin til Ameríku. ;)
Næsti dagskráliður var að ná í Þormar. Hann vildi að sjálfsögðu koma til mín strax og við brunuðum heim á Hauganes eftir að hafa erindast smávegis í bænum. Um kvöldið var ég svo þreytt að ég sofnaði meðan ég svæfði Þormar, og sofnaði svo aftur í sófanum inní stofu fyrir kl. 11. Það var mitt próflokadjamm ;) híhí
Dagurinn í dag byrjaði með þessum orðum "Hæ.. máé fala flammúl?!" og þar með var ég ræst, klukkan 9 í morgun.. Reyndar fínt að fá að sofa til 9! Við dúlluðum okkur í garðinum, fórum í heimsókn til Höllu og Sævars úti á Sand og nutum svo bara veðurblíðunar hérna heima við. Ég þvoði líka í leiðinni svona 5 vélar (af þvotti sko) því það var svo góður þurrkur (já já, þó ég sé hætt að búa sjálf þá leynist samt enþá í mér húsmóðir!)
Elsku Danni frændi kom svo seinnipartinn með foreldrum sínum. Mamma kom heim úr bænum með "pakka" handa mér, en hún fór í búðir fyrir mig og keypti fyrir mig tvo boli/kjóla sem eru geggjað flottir! Héðan í frá læt ég einhvern annan versla á mig föt því ég finn mér aldrei neitt, en er alltaf ánægð með það sem aðrir finna á mig!!
Kvöldmaturinn í kvöld var svo borðaður í góðu yfirlæti hjá tengdaforeldrum Dagnýjar systur. Gauja eldaði glæsilegan KALKÚN sem var ógó góður. Rögnvaldur gerði svo gríðarlega gott Waldorf-salat með matnum ;) Hjá þeim var setið við langborð því við vorum hvorki meira né minna en 9 fullorðnir og 4 börn. Gaman að því. Misjafnlegar málefnalegar umræður við matarborðið en það var mjög skemmtilegt hjá þeim og alltaf gott að koma til þeirra.
Að sjálfsögðu sofnaði ég meðan ég svæfði Þormar í kvöld um 9 leytið, sem gerir það að verkum að ég er ekkert þreytt núna eins og sést á þessum ótrúlega langa pistli mínum. Ég er að rústa Söndru í langri-pistla-gerð! :D
Ég fékk líka gleðifréttir í dag. Þorsteinn hefur lokið skyldustarfi sínu í Laufási og er nú kominn til að vera hjá mér, ma og pa. Ef ég tel saman dagana sem við höfum hisst frá því 2.mai þá slagar það varla uppí viku! Alveg ömurlegt.. en hey, eftir hálft ár saman í Cali þá mun ég pottþétt segja "get outah my face, f**k faceah!" ;) - Neh þarna var ég nú bara að slá á létta g-strengi! (Eins og Björnsson orðar það) Hætt þessu rugli,.. held áfram með hinn hefðbundna pistil:
Morgundagurinn hefst á sundi í Þelamörk, eða á Dalvík. Svo tek ég mig til og bruna til Grensó í fermingarveislu aldarinnar. Veisluþjónusta Ólínu sér um þessa fermingarveislu svo ég er viss um að ég verði ekkert svikin af því sem verður á boðstólnum þarna. (Veisluþjónusta Ólínu a.k.a. Olla mamma hans Þorsteins og fermingarbarnsins!)
Jæja. Pabbi er farinn að tuða yfir því að ég þurfi að fara að sofa. Ætli hann sé ekki bara að hugsa um símreikningin þar sem þau eru svo gríðarlega ekki-móðins og eru því tengd með módemi!! (Úff ég trúi ekki að ég sé að segja frá þessu.. svo ógó hallærislegt, skilurru!) :D
Góða nótt dyggu lesendur og komið vel fram hvort við annað - nema þið séuð óvinir, þá er í lagi að vera leiðinlegur!
TTYS (Talk To You Soon!) - Alltaf að æfa mig í slettunum...
Hanna
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
2
Föstudagur 26. maí 2006 / 13:21 / Flutningar og kosningarbaráttan
Flutningar hófust formlega í gær. Ma og Pa komu og hjálpuðu mér að flytja, og svo fékk ég einn riddara (eða ridduru?) á hvítum hesti til að aðstoða mig, en það var hún Freyja frænka (Freyja, þú klikkar ekki!!, snillingur!) Núna er hálft hafurtaskið mitt komið í kassa - en þessi helmingur sem eftir er virðist vera alltof mikið :( :( Þetta er ekkert smá leiðinlegt og "erfitt" þ.e.a.s. að skipuleggja allt þetta dótarí og drasl. Ég hef aldrei áður flutt úr heillri íbúð! Yfirleitt bara verið með smá eldhúsdót og svo dótið í mínu eigin herbergi. Núna hinsvegar hafa allir skápar verið fullir og drasl í hverri einustu smugu. En jæja, þetta hefst allt saman að lokum.
Þegar ég hef lokið við að pakka úr svefnherb.skápunum þá ætlum við Helga vinkona og Dagur að kíkja niður í bæ því þar er allt að gerast. Kosningarbaráttan er að ná hámarki þar sem kosningar eru á morgun. Við Helga erum báðar svona nokkurnvegin óákveðnar um hvað skal kjósa, og ákváðum að sá flokkur sem grillar besta matinn og hefur skemmtilegustu dagskránna - fær okkar atkvæði!! Allavega útilokaði L-Listinn sig algjörlega þegar hann birti barnalegustu og bjánalegustu "auglýsingu" í dagskránni í fyrradag. Þetta snérist svo við hjá greyjunum og held að þetta hafi nú skemmt meira fyrir þeim heldur en sjálfstæðisflokknum. Algjörir bjánar þetta lið.
Jæja. Best að hafa sig af stað - illu er best aflokið!!
Flutningar
/ Lífið
/
0
Mánudagur 15. maí 2006 / 16:50 / Flutningar
Núna er allt að bresta á í samb. við þessa blessuðu flutninga. Það virðist ríkja smá misskilningur hjá fólki þegar ég tala um að við séum að flytja núna 1.júní. Við erum ekki að fara til útlanda þá! Við munum þá flytja (að öllum líkindum) til Grenivíkur þar sem Þorsteinn er að vinna í Laufási fram að brottför sem verður 20.júní.
Við erum komin með leigjendur (ef ég var ekki búin að segja ykku frá því) en það er ungt par með 8 ára strák. Mér líkar alveg rosalega vel við þau og held að þetta eigi eftir að ganga vel (crossing my fingers!).
Við erum ekki enþá búin að selja neitt af ráði, en ég stefni á að birta enn og aftur auglýsingu í dagskránni núna á miðvikudaginn. Okkur tókst þó að selja sjónvarpsskenkinn okkar og núna stendur sjónvarpið á stofuborðinu - mjög smekklegt! Sjónvarpið er þó hálfeinmanna þessa dagana og getur ekki beðið eftir því að komast til nýrra eigenda sem eru Freyja frænka og Trausti frændi.
Sófasettið stendur óhreyft í stofunni, og blái sófinn er enþá í pössun hjá Kristínu. Við ætlum þó að sækja sófann og borðið til Kristínar í vikunni og vonandi verður það farið fyrir helgi.
Við erum búin að gera loka"samning" við Robert í útlandinu, og hljómar sá samningur bara askoti vel og ég stefni að því að sækja um í California State University Northridge þegar ég kem út, og þá get ég jafnvel byrjað í skólanum í Janúar :D Það væri algjör snilld.. en mig langar samt pínulítið að vera aðeins lengur í fríi. Háskóli í USA hræðir mig pínulítið... sérstaklega fjárhagslega! :S -- Það er semsagt alveg inní myndinni að við komum heim 18desember og förum aftur strax í byrjun Janúar eða milli jóla og nýárs! Þ.e.a.s. ef okkur líkar vel þarna og allt gengur upp! :D (Sem við vonum að sjálfsögðu!)
Talandi um peninga - þá fékk ég nú margar góðar gjafir á afmælisdaginn. Anika & Helga (ásamt viðhengjum) gáfu mér dollara í gjaldeyri, sem og ma+pa+baddý+Píla. Núna erum við Þorsteinn vel sett af gjaldeyri :) Gunni frændi Þorsteins gaf mér æðislega flott leikfanga-hesta-sett sem heitir "Black Beauty" og varð mér þá bara hugsað til tengdapabba híhíhí. Já - hann gaf mér líka Pez sem ég er sjálfsögðu búin með! :D
Dagný systir og viðhengin hennar sendu mér svo pakka alla leið frá borginni. Í honum var Blue Lagoon húðvörur, bodyscrub og lotion og verður alveg frábært að hafa það með til útlanda.
Annars held ég að ferðataskan verði hálftóm á leiðinni út þar sem við Þorsteinn fórum, mjög kaldlynd, í gegnum fötin okkar og gáfum heilan ruslapoka til Rauða Krossins, og hentum svo öðrum ruslapoka. Ég gaf líka 2 haldapoka af skóm!! Það sem maður safnar að sér er alveg ótrúlegt....
Næstu helgar eru svooo ótrúlega vel skipulagðar að það er ekki venjulegt.
Svona hljómar dagskráin fyrir þau ykkur sem nenna að lesa (aðrir geta bara hætt núna!)
19-21 Maí: Ráðstefna í Kvosinni - strákarni koma
26-28 Mai: Flutningar - aðstoð vel þegin!
2-4 Júní: Sunna fermist!!! - Afhending íbúðar
9-11 Júní: Anna Birna útskrifast - óvissuferð á vegum 4.bekkjar í MA. - Partý hjá INGU!!!! :D
16-18Júní: Útskrift og útskriftarveisla - note to self: Klára boðskort og senda!!
23-25Júní: Komin til útlanda = Slappa af í SIMI VALLEY og njóta þess að slappa af! :D
Úff... hvernig á maður eiginlega að hafa tíma til að gera allt sem maður þarf að gera í lífinu?! Það verður svo notarlegt að breyta aðeins til og hafa eitthvað annað að snúast í kringum en undirbúning og skóla. Áhyggjur mínar í sumar verða örugglega hvort að krakkarnir hafi ekki alveg örugglega gert heimavinnuna sína, hvort að gluggarnir séu nokkuð skítugir og blómin í garðinum dauð vegna þurrks. Já - lífið á svo sannarlega eftir að breytast!!
Flutningar
/ Lífið
/
3
Laugardagur 29. apríl 2006 / 04:26 / Páskaball
Ég vil hér með þakka Guðjóni á Bárðatjörn kærlega fyrir að hafa tekið mig á háhest á páskaballinu á Grensó. Hann fær einnig þakkir fyrir að hafa sagt mér frá þessu í kvöld - Guðjón.. þú ert flottur á dansgólfinu!! ;)
Föstudagur 28. apríl 2006 / 19:40 / Kreisí!
Í dag þræddi ég nokkrar fatarbúðir hérna á Akureyri (alveg gríðarlegt úrval eða þannig) og var orðin frekar þreytt, pirruð og önug yfir því að finna engar gallabuxur sem pössuðu 100%. Svo loksins þegar ég fann hinar einu sönnu gallabuxur þá voru þær á 8.990kr! Þvílíkt og annað eins!! Okei ég veit að margir kaupa sér svona dýrar buxur, en kommon.. ég er ekki ein af þeim. Þær voru samt svoooooo flottar. Kvart-gallabuxur frá Hummel.. og bleikur Hummel-polo-bolur við. Já og belti... úff...
Já þetta var erfiður dagur!
Í staðinn fyrir að kaupa mér einar gallabuxur á 9þús kall, þá ákvað ég í staðinn að eyða bara 9000kr í Hagkaup. Verslaði 2x Bra svarta og náttföt + smá mat. Já og svo ég haldi nú áfram að kvarta undan verðilagi.. þá kostuðu Bra-arnir 1999kr! Í alvöru, mér finnst þetta ekkert fyndið. Það er ekkert smá dýrt að búa hérna! Ég vona að það sé ódýrar í henni Ameríkunni...
Kveðja
Jóhanna kaupóða sem tímir ekki að eyða peningum en vill samt alltaf kaupa allt!!
Þriðjudagur 25. apríl 2006 / 21:51 / Þórður
apríl 26, 2004
lífið
"Skrítið hvað lífið getur verið ósanngjarnt. Ungt fólk hrifsað af manni í blóma lífsins og eftir sitja ættingjar og vinir með stórt, blæðandi hjarta. En svona er lífið og við fáum víst litlu breytt.
Kærar kveðjur til allra sem eiga um sárt að binda núna."
Tíminn er svo ótrúlega fljótur að líða, að ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég las bloggið hjá Ingu Rut, að það eru tvö ár liðin frá því að Þórður kvaddi þennan heim. Úff ég fæ alveg sting í magann þegar ég hugsa um það þegar Inga hringdi í mig og sagði mér hvað hefði gerst. Ég ætlaði ekki að trúa henni.. en neyddist víst til þess þar sem Inga grét svo mikið,.. og svo grétum við saman. Þórður var góður og fallegur drengur. Hann var hvers manns hugljúfi og ég man ekki eftir honum öðruvísi en brosandi.. eða með körfubolta í hendinni.. eða labbandi um með besta vini sínum sem var, án gríns, 40cm minni en Þórður. Þórður gerði það líka sér til gamans að labba mjög nálægt mér og horfa niður á mig því honum fannst svo fyndið hvað ég var miklu minni en hann (rétt um 1.55 og hann var þá 1.98!) og ég var alltaf fljót að forða mér lengra frá honum... og þá hló hann sínum yndislega hlátri.
Já þær eru margar minningarnar sem rifjast upp þegar maður byrjar að hugsa til baka. Núna hinsvegar ætla ég að kveikja á kertum inní stofu, setja rólega tónlist á fóninn og hugsa til Þórðar, Tótu, Willard, Birnu, Össur og alla aðra sem sakna hans svo mikið...
Ég ætla að enda þetta á smá spakmæli sem við Inga settum í minningargreinina um Þórð.. spakmæli sem er svo satt...
"Ég held að í vináttu felist skyndileg hughrif - einhverskonar ást. Þar nægir eitt orð af hendingu, hönd sem er snert. Þó er sárt að skilja, og broddur saknaðar fylgir okkur alla tíð." (H.M.E)

Föstudagur 21. apríl 2006 / 10:41 / Páskar, vinna ofl ofl...
Hvar á maður að byrja? Ömurlegt þegar maður bloggar ekki svona lengi, því þá veit maður ekkert hvað maður á að skrifa! Páskarnir voru ljúfir eins og svo oft áður, og var ég í faðmi tengdafjölskyldunnar þar sem foreldrar mínir stungu af til Tallin að tjékka á Eistum ;) Á páskadag fór ég á ball sem mig langar ekkert að segja neitt meira frá :)
Damma: Takk fyrir bóndabeygjuna!
Það sem er nú helst að segja frá páskunum er að Dagur litli var skírður og eru myndir úr skírninni hérna. Það eru nú samt nokkrar myndir ennþá í tölvunni hjá tengdó þar sem ég tók ekki nema 99myndir í veislunni! (já, ég missti mig aaaðeins!)
Ég rifjaði líka upp gönguskíða-hæfileika mína og fór á kostum! Djöfull sem það var gaman. Note to self: Fara oftar á gönguskíði!
Það sem er samt aðal atriðið er að páskaeggið mitt liggur óhreyft inní ísskáp! Ég held að þetta hafi nú barasta aldrei gerst áður... Það var samt ekki útaf einhverju hollustu-"rugli". Mig bara einfaldlega langar ekkert í það. Það er nú samt huggandi að vita af því inní ísskáp þegar súkkulaði craving-in kemur yfir mann :)
Áfram streyma fréttirnar. Ég er komin í tvær nýjar vinnur. Núna er ég farin að skúra upp eftir mörg ykkar sullið niðri á Cafe Amour og svo erum við Þorsteinn komin með nýjan gæja í stuðning þangað til að við förum út. Dagskráin fram að brottför er svo þéttskipuð, og hefst formlega með afmælisveislunni hans Danna frænda á morgun. Ég ætla svo að mæta með alvöru gulrótarköku í farteskinu, og aldrei að vita nema maður skelli í nokkrar jógúrtkökur/muffins til að prófa ;) Það verður eflaust svakalegt fjör í veislunni á morgun, og gaman að hitta Danna loksins (maður sér hann alltof sjaldan!!)
Annars gengur allt saman vel, nenni samt varla í ræktina þessa dagana, enda alltaf erfitt að koma sér af stað eftir langt stopp (páskafríið) EEnnn.. það kemur... ég hef allavega ekki neinar stórvægilegar áhyggjur!
Best að stökkva í sturtu, fara svo í búðina, baka kökur og svo kemur Þormar stuðningsstrákur í dag klukkan 17:00 og ætlar vonandi að gista!
Svona í lokin: Þeir sem vilja hitta okkur (hvað þá djamma með okkur) mega endilega hafa samband og við sjáum til hvort við höfum lausa stund áður en við yfirgefum klakann! :)
Mánudagur 10. apríl 2006 / 18:30 / Hingað og ekki lengra!!
Í dag sagði ég stopp við veikindin. Ég ákvað að nenna þessu ekki lengur og drullaði mér í föt og í klippingu!! Úff, mér líður eins og breyttri manneskju með þetta nýja look. Brownie ;)
Þorsteinn fór í vinnuna áðan í fyrsta skipti í viku. Ég sit semsagt ein heima núna í afneitun. Ég nenni þessu ekkert lengur þó svo að ég sé að kafna úr hita, en samt ískalt. Svo er ég líka með hausverk dauðans en ég læt þetta ekkert stoppa mig! Hef ekkert tíma í þetta lengur. Ég er að fara með Pílu bjútí á snyrtistofuna Loðnar Loppur á morgun. Það verður spennandi að sjá hvernig það fer. Svo eru mamma og pabbi á leiðinni til Tallin að kíkja á Eistun ;) (Mundi, þú ert svo fyndinn!!) og fara þau á miðv/fimmtudag. Við systur, Ég, Baddý og Píla, verðum því einar (eða Tvennar eins og Sesar heitinn sagði oft) yfir páskana. Baddý og Píla fá mat hjá Siggu systir (mömmu) og ég fæ mat hjá tengdó. Hún reyndar harðneitaði að hafa kjúkling í páskamatinn.. þannig að kannski ég fari bara líka til Siggu... neeehhh ekki séns ;)
Vonandi tekst manni svo að fara nokkrar salibunur niður Grenivíkurfjall/Kaldbakinn um páskana, og svo líður að því að Danni frændi eigi afmæli! Íííkk.. svooo spennandi tímar framundan!
Laugardagur 08. apríl 2006 / 22:13 / Hiti
Welcome back, Hiti!! 38° alveg að slá í gegn :(
Laugardagur 08. apríl 2006 / 15:23 / Slappleiki
Fór í ræktina í gær með Elvu og vorum við báðar eitthvað hálf aumingjalegar (tókum reyndar ROSALEGA á því í fyrradag, kannski var það bara það!) en svo þegar ég kom heim, þá skalf ég eins og hrísla í vindi og var komin með beinverki. Mældi og var með ca 38°hita. Mér fannst það ekkert smá fúlt! Í nótt skalf ég svo og svitnaði til skiptist, mældi mig og var þá með rúmlega 39°hita. Ekki skemmtilegt það! Mælirinn sýndi svo 38,6° kl 9 í morgun, og svo 36.4° tveimur tímum seinna!! Já þvílík og önnur eins snilld! Ég er barasta orðin spræk aftur! :D Er reyndar með hausverk og kvef.. en það er nú bara eins og er alltaf hjá okkur íslendingnum ;)
Þorsteinn er líka orðinn sprækur, og aldrei að vita nema við kíkjum útúr húsi á morgun ef að ég verð hitalaus í dag og í kvöld!
- kaflaskipti -
Erum að horfa á forkeppni söngkeppni framhaldsskólanna. Fimm lög búin og tvö af þeim voru blame it on the sun og foolish games. Kommon! Ætlar fólk aldrei að læra? Maður er alveg komin með óóóógeð af þessum lögum.. það er sko búið að semja eitthvað síðan þá!!
Jæja, ætla að snýta mér og leggjast svo undir sæng fyrir framan sjónvarpið!
Mánudagur 03. apríl 2006 / 22:30 / skemmtilegir dagar!
Undanfarnir dagar hafa verið mjög skemmtilegir! Laugardagurinn var frábær. Fór í mat til Helgu og Binna þar sem Anika og Helgi mættu líka á svæðið. Við borðuðum YFIR okkur af pizzu (djö sem það var gott!!! - þangað til eftir á, þá var mér MJÖG illt í maganum!) Svo spiluðum við snilldarspilið UNO þar sem lág við sambandsslitum hér og þar ;) Svo spiluðum við leirspilið sem er líka ótrúlega skemmtilegt! (Helgi, við vorum LANGTUM BEST!) og að lokum tókum við smá Teningaspil. Eftir pizzu, spil og nokkra bjóra skelltum við Þorsteinn okkur á Kaffihúsarölt með Freyju frænku og enduðum á Kaffi Ak dansandi við sömu tónlist og síðustu helgi! Meina, hvað er málið? Afhverju hafa dj þegar maður er bara með EINN PLAYLISTA! Hemmi Gunn og Flottur Jakki stóðu reyndar fyrir sínu,.. annað var mest allt bara crap!
Sunnudagurinn var svo tekinn með trompi þar sem við Þorsteinn brunuðum til Grensó, söfnuðum liði (allir undir 13ára!) og fórum út að renna okkur. Það var ekkert smá æðislegt og þakka ég krökkunum kærlega fyrir!
Núna sé ég fram á að hafa MJÖG mikið að gera. Félagsfræði árshátiðin í skólanum er núna á miðvikudaginn og erum við á fullu við að undirbúa hana. Svo er ég líka að byrja í tveimur nýjum vinnum! Áður en ég veit af verð ég komin í 100 vinnur... En hvað gerir maður ekki fyrir peningana!
Ég og Freyja frænka fórum í smá mæðgna-ferð með mæðrum okkar á Jesus Christ Superstar. Sindri fyrrv. bekkjarbróðir sló alveg hreint stórkostlega í gegn, sem og Eyþór frændi Þ.Inga líka. Rosalega flott leikrit. Verst samt að það endaði með pyntingum og dauða.. en jæja. Við sem þekkjum sögu Jesús huggum okkur við það að hann reis víst aftur upp frá dauðum.
Best að fara að hjúkra kærastanum. Hann hóstar eins og M.F. inní herbergi og bíður eftir því að ég komi og vorkenni honum ;) Vona bara að hann sé ekki að fá Inflúensuna skæðu sem allir virðast vera að fá þessa dagana! :(
Nóg í bili
Fimmtudagur 30. mars 2006 / 11:52 / Vani - smá hugleiðing
Það er ótrúlegt hvað maður getur vanið sig á hluti. Ég er t.d. mjög vön því að naga neglurnar. Eiginlega er mér alveg lífsins ómögulegt að naga þær ekki. Ég veit, þetta hljómar eins og mig skorti gríðarlegan sjálfsaga, en það er bara ekki það. Ég hef reynt að naga ekki neglurnar, en svo bara allt í einu átta ég mig á því að þær eru allar komnar uppí kviku. Ég hafði líka mjög slæman ávana hérna "einu sinni" (já okei, fyrir svona 5mánuðum síðan!) en það var að borða alltaf óhollt. Ég var orðin vön því að vera í lélegu formi, og vön því að hugsa ekkert um matarræðið. Það hefur heldur betur breyst, og mér finnst það vera breyting til batnaðar! Í vinnunni er ég líka búin að venja mig á að sitja alltaf í sama básnum. Mér leið illa þegar ég sat ekki í básnum "mínum" um daginn og því færði ég mig. Dagatalið á skrifborðinu hjá mér í vinnunni er líka alltaf á sama stað. Það fer líka í taugarnar á mér þegar einhver leggur í "mitt" stæði hérna fyrir framan húsið. Ég reyni hinsvegar að anda rólega og segi við sjálfa mig að ég eigi ekkert í stæðinu þó svo að ég sé vön að leggja í það. Fólki finnst líka fyndið hvað ég hef vanið mig á að sleikja útum þegar ég vanda mig eða erfiða. Mokaði t.d. svalirnar í fyrradag og áttaði mig á því þegar ég kom inn að ég var með varaþurrk því ég hafði sleikt svo mikið útum á meðan ég mokaði. Ég held samt að ég hafi ekki neinn slæman ávana (lengur). Ég nota engin ávanabindandi efni. Ég er ekki vön því að ljúga. Ég er heldur ekki vön því að lemja einn né neinn, þó svo að ég dangli einstaka sinnum í Þorstein ef hann er með einhver leiðindi. ;) Ég hef líka vanið mig á að hafa fötin sem ég ætla í á morgun, annað hvort á ofninum inní stofu eða í sófanum. Upphaflega gerði ég það til að vekja ekki Þorstein meðan ég brölti í fötin í myrkvuðu herbergi. Átti það líka til að mæta í ræktina í buxunum öfugum (rassinn framan á!) eða bolnum úthverfum. Það var fyndið fyrst, en er þreytandi til lengdar. Núna er það orðinn vani að setja fötin inní stofu. Það er líka vani hjá mér að segja "þannig að..." og "Þúst". Ég klára líka setningar hjá fólki sem að hugsanlega er eini slæmi ávani minn (sem ég veit af!) því það getur verið mjög pirrandi fyrir þann sem er að segja einhverja æsispennandi sögu.
Ætti maður að reyna að venjast ekki hlutunum heldur vera duglegur að breyta til? Eða er allt í lagi að vera vanafastur? Máltakið segir einmitt það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja og mætti í framhaldi af því bæta við enda er hann orðinn vanur því að standa!!
Læt þetta gott heita í bili enda engar fréttir héðan - allavega ekki strax! :D
Over & Out
Laugardagur 25. mars 2006 / 00:22 / Ósanngirni
Það er svo skrítið hvernig maður getur "tengst" einhverjum sem maður þekkir ekki neitt. Frá því í janúar hef ég verið að fylgjast með Bryndísi Evu og baráttu hennar við óþekktan sjúkdóm. Núna er komið í ljós að þessi sjúkdómur er efnaskiptasjúkdómur sem kallast orkukornasjúkdómur og er ólæknandi. Það er svo skrítið að vera búin að fylgjast náið með fjölskyldu sem maður þekkir ekki neitt og veit varla hvernig lítur út. Þeir sem þekkja mig vita hvernig ég á það til að "detta" inní það sem ég er að horfa á / lesa. Ég hef algjörlega "dottið" inní færslurnar hennar Bebbu og fundið margar tilfinningar brjótast um inní mér á meðan ég les þær. Bebba og Hjörleifur, foreldrar Bryndísar hafa án efa staðið sig sem sannar hetjur í baráttunni við þennan sjúkdóm sem elsku litla dóttir þeirra er með. Bryndís sjálf hefur líka verið algjör Herkúles og varla kveinkað sér. Það er svo lítið sem hægt er að segja við svona fréttum. Hver vill taka ákvörðun um það hvernig lífið hjá barni manns skuli enda?
Mig langaði bara til að krota smá niður um þessa fjölskyldu sem að eru miklar fyrirmyndir í íslensku samfélagi. Sannar hetjur. Vonandi finna allir tíma til að hugsa fallega til þeirra og senda þeim góða strauma og jafnvel bæta þeim inní bænirnar sínar. Ég veit allavega að ég bið fyrir þeim öllum.
Föstudagur 24. mars 2006 / 21:45 / Lasin :(
Í dag er ég lasin. Var það reyndar í gær og í fyrradag líka. En loksins viðurkenndi ég það og var heima. Fór í ræktina í gær og svo að vinna (auðvitað í skólann líka, en það er svo ómerkilegt!) Mér gengur alveg þrusuvel í nýju vinnunni og gaman að hringja í skemmtilegt fólk. Sumir líka skella strax á, en það er líka í fínu lagi ;) Fékk reyndar svona líka skemmtilegt hóstakast þegar ég var að tala við eina konu, að ég bara nánast skellti á greyjið. Annars fékk ég líka hláturskast þegar ég var að tala við einn 32ára gæja, tveggja barna faðir. Hann talaði um konuna sína sem "Tjellinguna" með hreimnum og allt! Það var algjör snilld og ég veit ekki hvort okkar hló meira híhíhí :)
Útí annað - Þorsteinn er svo óheppinn að hafa "save-að" passwordið inná síðuna sína í tölvuna, þannig að ég fiktaði aðeins áðan og setti inn svona niðurtalningar-fídus. Þá sá ég að það eru bara 88dagar í ferðina til California! Ussussuss þetta er rosalegt!
Svo many things to do and so little time!
Í sambandi við íbúðina, þá erum við að pæla að flytja út í maí, og þá bara heim til tengdó (hef reyndar ekki spurt þau hvort að við megum koma... en það er seinni tíma vandamál!) og keyra á milli í Mai/Júní.. semsagt í ca 40daga. Þá spörum við okkur smá penge. Ekki veitir af.
Oh það er svo leiðinlegt að vera lasin. Ég er enþá í náttfötunum og búin að horfa á 7 þætti af SURFACE (mæli með þeim.. geggjaðir!) varla búin að borða, er ógeðslega svöng en langar ekki í neitt. (Ekki það að það sé eitthvað til á þessu guðsvolaða heimili!)
Ég er enþá að berjast við þessa blessuðu skattaskýrslu. jibbí. Hver fann eiginlega uppá þessum skatti? What a killer.. Ennnn vonandi næ ég að klára hana í kvöld og bara senda hana. Mér er orðið eiginlega alveg sama þó svo að það vanti helminginn af upplýsingunum inná skýrsluna - ég vil hana bara burt!
Þessi pistill hjá mér er heldur betur sundurlaus. Æji mér er alveg sama. Ég er eitthvað svo sundurlaus í dag. Langar líka í súkkulaði. Oh my god já mig langar í súúúúkkulaði!!! Helst brak.. mhh.. Góu Brak.. nammi namm! Annars er kúlusúkkið líka gott.
Jæja - þá er ég búin að rugla nóg hérna og örugglega allir hættir að lesa. Ætla að halda áfram með blessuðu skýrsluna og svo fara beint í þýðingarverkefni fyrir félagsfræðiárshátíðina (nei.. ekki hin eina sanna fyllerís-árshátíð heldur þessi hátíðlega í skólanum!)
Ef einhver vill íbúð eða dót þá má sá hinn sami hafa samband við okkur Þorstein! :D
Þriðjudagur 21. mars 2006 / 15:42 / Casper
Jæja. Þá var elsku Casper svæfður í dag. Fyrir þá sem ekki vita þá var Casper hundurinn sem Helga og Binni fengu sér þegar við bjuggum öll saman í Skarðshlíðinni. Hann var ekkert smá yndislegur og hafði rosalega gaman af því að leika sér og var yfirleitt alltaf stutt í fíflalætin í honum.
Sunnudagur 19. mars 2006 / 02:15 / Ungfrú, Kóróna og Sporty-spice
Þá eru úrslitin orðin kunngjörð. Jonna varð í 3ja sæti í Ungfrú Norðurland, Lísbet varð kórónu-stúlkan (Corona? hehe) og ég varð Sportstúlkan! Þvílík gleði og þvílík hamingja. Algjört snilldarkvöld. Ég vil bara þakka Bjargi fyrir að gera mér það kleift að vinna sport-stúlku tiltilinn. Sérstakar þakkir til skíðavélarinnar og handlóðanna sem hafa stutt mig hvað mest. Auðvitað þakka ég líka fjölskyldu og vinum, þó svo að mamma og pabbi hafi nú ekki látið sjá sig þegar ég var krýnd í Vanabyggðinni klukkan 12 í nótt. Jæja, þau hljóta að elska mig samt. Takk allir.
Sunnudagur 19. mars 2006 / 02:05 / Ungfrú Norðurland!
Til hamingju með 3ja sætið elsku Lísbet!! Þú stóðst þig eins og hetja og við erum öll alveg afskaplega stolt af þér!!! Þú ert svo sannarlega fegurðardrottningin okkar og munt slá í gegn í Ungfrú Ísland. You Beautiqueen ;)
Föstudagur 17. mars 2006 / 20:16 / Vitleysa...
Sá svona lista á netinu og ákvað að "herma.." - Vitleysurnar sem ég hef gert í lífinu ;)
Fimmtudagur 16. mars 2006 / 09:37 / Hræðilegt
Átt þú einhvern að sem er öryrki eða ellilífeyrisþegi ?
Ertu ánægð/ur með kjörin hans/hennar?
Veistu það ekki?......... Fáðu þá að kíkja á launaseðla viðkomandi.
Öryrkjum og ellilífeyrisþegum er haldið í fátæktarkreppu með óréttlátum lögum, þeir missa húsin sín og aðrar eigur, safna skuldum og jafnvel svelta.
Myndir þú vilja sækja um vinnu og komast að því að launin þín væru algerlega miðuð við laun maka þíns?.... Nei, ég hélt ekki. Tekjutenging við laun maka veldur því að ef makinn hefur 250 þús. kr. á mán. eða meira fær öryrkinn frá 40 þús. og niður í ekki neitt. Úr lögum: Lífeyririnn byrjar að skerðast ef tekjur einstaklings eða hjóna hvors um sig eru hærri en að meðaltali 160.857 kr. á mánuði, en fellur alveg niður þegar tekjurnar ná að meðaltali 252.349 kr. á mánuði Þess vegna heiti ég á þig að skrifa undir áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar um að breyta lögum á þessu þingi: Afnema tekjutengingu og hækka laun öryrkja og ellilífeyrisþega.
Vegna ömmu þinnar, afa, vinar, systkina eða annarra öryrkja eða ellílífeyrisþega sem þú þekkir. Einnig vegna þín sem á morgun gætir lent í því að verða öryrki. Já, og öll eldumst við vonandi.
Miðvikudagur 15. mars 2006 / 11:31 / Flugmiðar!
Já flugmiðarnir eru komnir í hús! Það var ekkert smá góð tilfinning að fá þá loksins í hendurnar. Núna er ekki aftur snúið. Núna er ég bara byrjuð að undirbúa útskriftarveisluna/kveðjuveisluna "á fullu", þó aðallega byrjuð að græja matseðilinn ;)
Þegar útskriftin er búin þá tekur við viðáttan. Fuuuullt af möguleikum og endalaust af tilboðum. Mér líst samt best á þennan möguleika, en auðvitað á maður eftir að pæla betur í þessu haustið 2007.
Núna er eiginleg bara tvennt sem þarf að redda = Leigjendur (góðir) fyrir fínu íbúðina okkar, og svo "barnapössun" fyrir snáðann meðan við erum í útlandinu.
Býst samt við því að hvorugt verði mikið mál... Sunna er kannski tilbúin að passa fyrir okkur? Svo vill örugglega einhver leigja íbúðina.. er það ekki??
Föstudagur 10. mars 2006 / 21:11 / Þá er það ákveðið!!
Já börnin mín stór og smá, þá er þetta komið á hreint. Við Þorsteinn erum búin að kaupa okkur flugmiða til Los Angeles.
Ferðaáætlun hljómar svona
Ferðaáætlun
Flug Icelandair FI615
Frá: KEF
Brottfarardagur: 20. Júní, 2006 Tími: 17:00
Sætisnúmer: 15E, 15F
Til: JFK
Flug Icelandair DL1847
Frá: JFK
Brottfarardagur: 20. Júní, 2006 Tími: 20:50
Sætisnúmer: 18E, 18F,05A,05B
Til: LAX - Los Angeles
Svo fáum við flugmiðann sendan heim í næstu viku. Algjör snilld! Þegar við fáum flugmiðann í hendurnar þá er þetta alveg orðið svo raunverulegt eitthvað.
Fékk líka frábæran e-mail í gær. Dóra Drexler, vinkona okkar í San Louis Obispo CA ætlar að koma til Íslands 1júní með manni sínum og tveimur börnum! Þá fáum við loksins að hitta konuna sem er búin að hjálpa okkur alveg ótrúlega mikið. Þau ætla líka að vera á Hauganesi alveg til 17júní og þá fljúga þau út. Það verður frábært að kynnast þeim fyrst hérna þar sem við erum á "heimavelli" því þá verðum við örugglega ófeimnari við að hringja í þau og heimsækja þegar við erum komin út. Frábært yndislegt æðislegt líf sem við lifum við Þorsteinn minn..
Æði!
Föstudagur 10. mars 2006 / 00:55 / Snilld snilld snilld
Var að tala við Bob í Californiu. Spurði hann að því hvort að það væri einhver séns fyrir mig að fara í Jay Leno þátt (svona áhorfandi í sal!!) því Tonigth show er tekið uppí Burbank sem er rétt hjá þar sem við flytjum. Haldiði að Robert hafi ekki bara sagt "Heyrðu, ég hef nú reyndar unnið með Jay Leno þannig að ég skal auðvitað redda ykkur miðum! Það er nú minnsta málið!"
Eins gott að karl-helv.. standi við stóru orðin því ég eeellska Jay Leno (Sorry Steini, en þú veist að þú verður alltaf #2!) og hjartað mitt myndi kremjast ef hann sviki þetta loforð! Snilld snilld snilld...
Snilld númer 2 er að ég var að búa til svona quiz um mig - veit reyndar að þetta er gamallt og "Lame" en mig langar bara svo að vita hverjir vita hvað um mig ;) Reyndar eru þetta kannski frekar svínslegar spurningar, og ég verð ekkert brjáluð ef þið getið ekki neitt! Býst reyndar ekki við því að neinn geti neitt nema kannski Lísbet og/eða Jonna, því þær eru nú einu sinni með mér allann daginn.
Jæja, ætla að drífa mig í bólið.. er bara í svo mikilli sæluvímu eftir þessar Jay Leno fréttir að ég er viss um að mig dreymir kallinn í nótt ;)
Sjáumst hress..ekkert stress.. bless!
Laugardagur 04. mars 2006 / 04:51 / USA
Gleymdi alltaf að setja hingað inn.. að við fengum vegabréfin okkar send frá BNA-sendiráðinu á þriðjudaginn síðasta. Inní því var komin falleg áprentun - "Tourist Visa" sem gildir til 2016, 6mánuði í senn.
Algjör snilld. Núna er þetta allt eitthvað svo raunverulegt. Margt að huga að, t.d. tryggingar. Svo vantar okkur líka leigendur í fínu íbúðina okkar. En sem komið er eru 5mánuðir í þetta svo að ég er ekkert alltof stressuð. Það sem við eigum erfiðast með, er að safna penge fyrir flugfari.. enda kosta 2 flugmiðar báðar leiðir 218þús. Eeeennn ætli yfirdráttarheimild reddi því ekki þangað til við eigum penge. Var meira að segja að koma úr vinnu í 10/11 þar sem var vörutalning. Svaka stuð.. vonandi fæ ég smá klink í vasann fyrir það.
Blogga meira seinna.. langar að skríða uppí rúm og fara að hrjóta eins og Þorsteinn (WIGWAM aðdáandi #1) :D
Góða nótt :*
Þriðjudagur 28. febrúar 2006 / 01:14 / Samúðarkveðjur
Mínar dýpstu samúðarkveðjur til elsku Ásdísar hans Tomma heitins, fjölskyldu hans, fjölskyldunnar hennar Ásdísar og vinum þeirra. Þetta er virkilega erfiður tími núna og gott að vita að þið hafið öll góða að.
Mánudagur 27. febrúar 2006 / 23:24 / Reykjavík
Reykjavík er ótrúlega þreytandi borg. Ég er alveg komin með uppí kok af því að hanga bara.. fara í búðir og geta ekkert keypt! Þegar ég fór út í morgun þurfti ég að byrja á því að skafa bílinn - ömurlegt. Þá hugsaði ég bara um Simi Valley í CA. Þorsteinn fór heim með flugi í dag og í kvöld áttaði ég mig á því að ég myndi aldrei meika það að fara til útlanda (eins og hetjan hún Guðný) án þess að hafa Þorstein með. Eflaust er það þroskandi og "gott" fyrir sambandið að fá smá time apart, en ég er einhvernvegin ekki tilbúin í það að yfirgefa steina minn í 6mánuði. Enda þarf ég ekkert að hugsa um þetta - hann kemur með hvort sem mér líkar betur eða verr! ;)
Á hverjum degi eyði ég örugglega svona samtals 6klst í það að hugsa um útlönd. Margt sem þarf að redda, en það er mest allt smávægilegt. Allt nema peningar. Ef einhver veit um vinnu handa mér (kvöld/helgar) þá má sá hinn sami endilega hafa samband! Er reyndar búin að sækja um hjá BM ráðgjöf sem ég er pínu spennt fyrir. Vonandi gengur það upp, því við verðum að fara að hala inn krónum... and loads of it!
Dagarnir hjá Dagný systir hafa verið fínir. Danni er farinn að tala alveg ótrúlega mikið, og er duglegur að gera sjálfur. Ég fékk sko að heyra það þegar ég ætlaði að hjálpa honum út með ruslið.. hann getur sko alveg séð um það sjálfur! Svo hitti ég líka elsku Katrínu á föstudaginn. Það var alveg frábært að hitta hana, og auðvitað gaman að hitta Söndru og Sverri líka. Borðuðum saman kjúklingasalat sem var algjört æði. Ég, Lísbet og Þorsteinn fórum líka að sjá leikritið Hungur með Elmu Lísu, Helgu Braga ofl. og var það tær snilld.
Starfskynningunum er svo lokið á morgun um 14:00 og vonandi getum við Lísbet lagt af stað um 16:00. Þá verð ég komin tímanlega heim til að horfa á close to home (ég veit, algjör chick-flick sucker!)
Annars verða næstu dagar hálf undarlegir. Þorsteinn verður að vinna þegar ég kem heim.. Skólinn á fullu,... Baddý systir farin Austur á Neskaupsstað, og Helga og Dagur fylgja henni svo eftir á föstudaginn þegar þau fara heim í viku. Já ætli ég verði ekki svolítið einmanna... Ég lifi þetta samt eflaust af,.. verð bara dugleg að mæta í ræktina með Lindu OG Elvu :)
Jæja.. læt þetta nægja í bili. Annars er myndin hérna að neðan af okkur Svennanum, tekin um jólin. Varð bara að senda hana hingað inn því hún er svo skemmtilega asnaleg...
Yfir&út (til CA!)
Hanna Borgarmær
Föstudagur 24. febrúar 2006 / 12:35 / California!
Þegar ég fór að sofa í kvöld barðist hjartað á mér svo hratt og svo fast að ég hélt að það myndi hreinlega detta niður í brækurnar. Svo þegar ég vaknaði í morgun var maginn kominn í hnút og hjartað dottið ofaní brækurnar. Við ætluðum aldrei að drulla okkur á fætur, en vissum að við yrðum að mæta í Sendiráðið.
Vi'ð lögðum af stað klukkan rúmlega 11, enda þekktum við leiðina því við keyrðum þar framhjá í gær. Við vorum komin niður eftir korter yfir 11, og kunnum ekki við að fara strax, enda áttum við ekki pantaðann tíma fyrr en hálf. Svo kom að því. Klukkan nálgaðist hratt og við urðum að halda af stað. Dyraverðirnir í Sendiráðinu tóku vel á móti okkur, og töluðu íslensku (okkur til mikillar gleði!). Við fórum í gegnum píp-tæki og settur draslið okkar á bakka (Þorsteinn var með endalaust mikið drasl í vösunum... mjög fyndið hehe). Móttökuritarinn lét okkur kvitta hér og þar og allstaðar og var einnig mjög viðkunnarleg. Við fengum okkur sæti og eftir ca 30mín var kallað á okkur. Við settumst saman í stól og jibbý! kallinn sem tók á móti okkur var gamall kunningi! Þetta var maðurinn sem sagði "thank you for choosing America!" með MJÖG SVO bandarískum hreim, þegar við fórum á háskólakynninguna hérna í Reykjavík í haust. Mjög gott að kannast við hann, enda er þetta hressasti kall.
Þá hófst yfirheyrslan. Við urðum að færa virkilega góð rök fyrir máli okkar, og vorum spurð spjörunum úr um allt okkar ferðalag. Hann lét okkur nánast sverja uppá líf fjölskyldna okkar, að við værum ekki að fara út til að flytja og myndum koma aftur til Íslands þegar dvalarleyfið rynni út. Lófarnir svitnuðu, fæturnir titruðu og hjörtun börðust um. Svo sagði karlinn: "Let me think about it for a minute" og við sátum, stjörf af stressi og báðum til guðs að kall(andskotinn) væri í góðu skapi.
Svo sagði hann einfaldlega "I will mail these papers back to you, and have a nice trip to America!!!!" Þar með er það komið á hreint. Við erum að fara til Bandaríkjana 20júní 2006!!!
Fimmtudagur 23. febrúar 2006 / 11:11 / Stress!
Vá.. ég er orðin svo stressuð fyrir morgundeginum að ég fer úr hárum!! Alveg rosalegt hárlos sem hrjáir mig í dag :( Mæting í sendiráðið klukkan 11:30 og þá kemur í ljós hvort við förum til Bandaríkjanna eða ekki!!!
Úfff... Þetta verður að ganga vel!
Þriðjudagur 21. febrúar 2006 / 23:48 / Áhyggjur
Úff.. ég held að ég sé að fá svona nett kvíðakast. Það er svolítið mikið að gera hjá mér núna, án þess þó að ég sé eitthvað að drukkna í verkefnum. Smá útlistun á verkefnum vikunnar og framtíðarinnar:
- Ég er búin að standa í því að undirbúa starfskynningarferð til Reykjavíkur (ásamt fleirum) og það hefur ekkert gengið allof vel. Ég vona bara að listinn nái að ganga á morgun svo að allt reddist nú.
- Á morgun er verkfall nemenda í MA til að mótmæla styttingu náms til stúdentsprófs. Við ætlum að leggja niður "vinnu" eftir 2.tíma á morgun og ekki byrja aftur fyrr en eftir 2.tíma á fimmtudag. Vonandi taka sem flestir þátt svo þetta hafi sem mest áhrif.
- Ég ætla mér að mæta í ræktina á morgun þó ég hafi ekki mikinn tíma. Stefni á að fara á morgun milli 10 og 11, svo aftur annað kvöld.
- Þarf að fara í heimsókn til mömmu í vinnuna til að sækja pappíra fyrir Bandaríska sendiráðið.
- Þarf að klára travel-plan sem við Steini erum að undirbúa fyrir BNA-sendiráðið.
- Langar að kíkja í smá heimsókn til Huldu Ömmu á Dalbæ... skal finna tíma.
- Var að sjá að flugmiði fyrir okkur bæði til San Fransisco kostar 117þúsund.
þ.a.l. verð ég að fá mér vinnu a.s.a.p. en það má ekki vera vinna tengd mat! = sambýli, sjoppur, veitingarhús eru off!
- Mæta í viðtal í BNA-sendiráðið á föstudagsmorgun. Cross my fingers að allt gangi vel! Vonandi hugsið þið fallega til okkar!!! *hnúturímaga*
- Redda tryggingum fyrir ferðina
- Hugsa um útskrifarveisluna, hverjum á að bjóða, hvenær á að halda, hvað á að hafa í matinn...
Svo eru það þessi venjulegu, daglegu áhyggjuefni sem aldrei virðast ætla að hætta: Peningar, peningar, peningar!
Allt bendir til þess að blóm og gjafir verði afþakkað í útskrifargjöf, og þess í stað má veita frjáls framlög! Og þetta er ekki djók...
Mánudagur 20. febrúar 2006 / 19:36 / E-mail
Vá hvað það er þreytandi að bíða eftir e-mail sem aldrei kemur. Ég er örugglega búin að athuga póstinn minn svona ca 10.000x í dag en aldrei kemur neinn mail. Ömurlegt.
En að öðru.
Ég uppgvötaði í dag að líf mitt hefur allt verið lygi. Mamma, pabbi, systur, bræður, stórfjölskylda og vinir nær sem fjær hafa logið að mér í næstum því 21ár. Í dag fékk ég loksins að vita hið eina sanna! Ég er í raun ekki fædd 11 maí eins og haldið hefur verið fram. Ég er fædd 11 nóvember. Ég komst að þessu þegar ég fékk fæðingarvottorðið mitt sent í pósti í dag frá hagstofunni. Þar stendur skýrt og greinilega að ég sé fædd 11 Nóvember 1985.
Ég hreinlega veit ekki hverju ég á að trúa!...
Hvað kemur næst? Er Þorsteinn bróðir minn??
Sunnudagur 19. febrúar 2006 / 13:37 / Til hamingju Ísland!
Bara byrja á því að afsaka mig: Ég ætlaði að blogga í gær og setja inn myndir, en sökum tæknilegra örðugleika þá gat ég því miður hvorugt. Hins vegar er ég búin að kippa því í lag, og því eru komnar inn myndir hérna úr afmælinu hennar Dagnýar frænku. Skvísar var að halda uppá 7ára afmælið sitt í gær, og bauð fuuullt af fólki í kaffi. Kökurna r voru æðislegar, spjallið frábært og gestgjafarnir yndislegir! Takk kærlega fyrir mig! Dagný fékk fullt af góðum gjöfum og var ánægð með þær allar (að sjálfsögðu). Kjóllinn frá Helgu Ömmu og Ragga afa (og okkur systrum) náði þónokkrum vinsældum og var Dagný í honum mest allann tímann ;) Það var ótrúlega gaman að kíkja á Húsavík, og í hvert skipti lofar maður sjálfum sér að láta ekki líða TVÖ ÁR á mili heimsókna.. en tíminn er bara svo fljótur að líða og maður kemur því aldrei í verk að keyra austur! Eeeennn.. Dagný ætlar að koma í heimsókn til mín einhverntíman og taka með skíðin sín. Svo ætlum við uppí fjall og ég (skíðadrottningin sjálf) ætla að (reyna) kenna henni á skíði. Sjáum til hvernig það fer - en við eigum samt örugglega eftir að skemmta okkur vel!!
------- Kaflaskipti -------
Gærkvöldið byrjaði nú ekki beint vel. Þegar ég er á Húsavík, sé ég að ég á skilaboð á talhólfinu hjá mér. Þorsteinn (sem var heima þegar ég fór), hringdi þegar hann var á leiðinni til Grenivíkur til að tilkynna smá vesen heima.
Þorsteinn skrapp á klósettið áður en hann fór, en lenti í smá klípu þegar hann gat ekki opnað hurðina! Þannig var hurðinn líka (læst) þegar ég kom heim. Þorsteinn náði að skríða út um "glugga" á baðherberginu sem vísa í þvottahúsið og slapp þannig. Hinsvegar slapp hurðin ekki eins vel... Þegar ég kom frá Húsavík, reyndu mamma og pabbi líka að opna hurðina. Klukkan var að ganga 8 og ekkert gekk. Eurovision að byrja og von á góðum gestum!!! Eins og flestir vita, þá verður oft mikið um klósettferðir þegar bjór ef við hönd, og því nokkuð slæmt að bjóða í partý með læsta baðherbergishurð!!
Mamma hringdi svo í Leibba sem kom og bjargaði málunum! Núna er enginn hurðarhúnn á hurðinni okkar, aðeins gat. Stórt gat. Við urðum samt að fylla í gatið þegar öskur heyrðust í Lindu sem skrapp á klósettið, settist niður og leit í gegnum gatið og horfði beint í augun á Þorsteini. Mjög fyndið.
Við buðum nokkrum útvöldum í partý, en Viggi, Linda og Gunni voru þau einu sem létu sjá sig (plús ma+pa&leibbi) Hins vegar kíktu Elín og Simmi + Egill og Sara hingað og var rosalega gaman að fá þau! Allir voru ágætlega vel í glasi þegar haldið var á Amour (sumir samt í vel í flösku, en ekki glasi!) og Óli Palli stóð alveg fyrir sínu!
Núna er Gunni búinn að koma í sinn hefðbundna eftir-djamm-mat og ég hyggst skúra eftir sullið í gær.
Speki dagsins í dag: Ekki kvarta yfir draslinu frá því í partýinu í gær - því það þýðir að þú átt góða vini!! :D
Fimmtudagur 16. febrúar 2006 / 23:55 / Firefox!!
Einu sinni er allt fyrst! Firefoxinn bara SLÖKKTI á sér! Og ég sem var búin að blogga svo mikið :/ Já greinilegt að allt er hverfult í þessum heimi, ef að firefoxinn er farinn að klikka líka :(
Ég var semsagt í miðjum klíðnum að segja frá rosalegri skautaferð sem 4.bekkur í MA fór í í dag. Við Jón Ingi slógum í gegn á svellinu, og verð ég nú að viðurkenna að ég var orðin SVOLÍTIÐ þreytt á að draga 90kg mann á eftir mér!
Nei okay.. smá ýkjur! Hann dró mig nú áfram mest allan tímann ;) Hann kemst líka miklu hraðar en ég!!
Þegar ég opnaði augun í morgun (og eyrun) þá heyrði ég hvað það var ógeðslegt veður úti. Þegar ég svo var komin út (rétt fyrir 8) fann ég varla bílinn sökum óveðurs!! Ég lét það samt ekkert stoppa mig og fór í ræktina samt sem áður. Meðalhraðinn á leiðinni var svona 30km/klst því maður sá varla í næsta bíl! Þá er lítið hægt að gera en láta sig dagdreyma um Californiu og 25-30+ hitann sem er þar núna!! Mmmhh.. engar rúður til að skafa! ;) Bara jarðskjálftar og skógareldar,.... sweet!
Annars dró Linda mig aftur í ræktina í kvöld. Það er alveg ótrúlega hressandi að fara í ræktina á kvöldin, sérstaklega þegar Steini er alltaf að vinna. Á morgun er mér reyndar boðið í stórafmæli á Hótel KEA og svo koma Guðjón og Þórunn í pössun til mín! Á Laugardaginn er svo afmæli hjá elsku frænku minni, Dagný Önnu, og svo Eurovisionpartý og matarboð um kvöldið!! Úff.. það er eins gott að maður verði duglegur í ræktinni með allar þessar freistingar framundan!!
Linda! Við verðum að standa okkur!!! :D
Yfir&út
Sunnudagur 12. febrúar 2006 / 18:16 / Þorrablót
Fór á hið árlega þorrablót Árskógsströndunga í gær. Það var ekkert smá gaman! Byrjaði á því að taka mig til hjá Höllu og Sævari og svo fórum við uppeftir (þau voru MJÖG ánægð með það að ég var driver hehe). Þegar uppeftir var komið settumst við hjá elsku Ásdísi vinkonu sem ég tala alltof sjaldan við! (Á svona 2ja ára fresti!!) og það var rosalega gaman að hitta hana og Sævar, kærasta hennar. Ma+Pa voru formenn nefndarinnar og stóð pabbi sig ekkert smá vel sem kynnir. Hann var mér bara ekkert til skammar og er ég bara stolt af gamla kallinum ;) Ég lofaði Helgu að taka FULLT af myndum.. þannig að ég tók ekki neinar! nei okay, ég tók svona 5 eða eitthvað... set þær samt inn svo að fólk geti nú skoðað eitthvað! Þær eru hérna. Annars voru alfa og elva mun duglegri en ég við að mynda. Alfa eiginlega sleppti aldrei myndavélinni og vonandi setur hún myndirnar fljótlega á netið! Það skal tekið fram að Skagfirska sveiflan, með Geirmundi Valtýs í fararbroddi sló í gegn. Ég er enþá með "Nú er ég léttur..." á heilanum!! ;)
Elva, Ásta og Anna Borg fengu svo far með mér til Akureyrins klukkan 4 í nótt og voru þær allar hressar.. en þó mishressar híhíhí.
Fyrsta alvöru stuðningshelgin okkar með bræðurnar er nú lokið og hún var alveg rosalega fín. Eins og áður sagði, þá eru þeir með einsdæmum kurteisir og hlýðnir drengir. Þeir eru meira segja svo hlýðnir að við Steini sváfum til 11 í morgun :D Yndislegt! Þeir fóru bara út að hjóla og dunduðu sér sjálfir. Ég gerði reyndar góða drápstilraun við yngri bróðurinn í gær, þegar ég faldi mig og þegar hann hljóp framhjá stökk ég fram.. og honum brá svo greyjinu að hann stökk hæð sína í loft og hljóp eins og brjálæðingur. Þetta var svooo fyndið, en líka svona "had to be there" dæmi. Við allavega hlógum okkur máttlaus þegar við vorum búin að fullvissa okkur um það að hann væri lifandi ;)
Læt þetta nægja í bili
Yfir&út
p.s. ég setti líka myndir inní þetta albúm! Endilega kíkjið á gullið :*
Fimmtudagur 09. febrúar 2006 / 18:21 /
Var viktuð og mæld í bak og fyrir í dag. Ekkert rosalega spennandi tölur sem komu útúr þessu þar sem þessi mánuður hefur eiginlega verið algjört stopp hjá mér :( Eeenn... ég er búin að ná góðum árangri og það er bara allt í fína þó að hlutirnir gangi ekki alltaf smurt! Maður kann líka mun betur að meta þá ef maður þarf að hafa fyrir þeim!
Nýjustu tölurnar eru semsagt að á þessum mánuðu náði ég af mér 2.5kg (ekkert stórkostleg tala, en þó tala!) og tólf cm...
Síðustu tvo mánuði hef ég náð 30+cm þannig að cm var pínu fúlt :(
Þessi niðurstaða er því komin í málið:
Síðan ég byrjaði í okt/nóv þá er ég búin að ná af mér 14.5kg og 78cm! Það er nú bara ágætt held ég barasta!
Fór í tilefni af þessum áfanga (þ.e.a.s. að vera búin að ná af mér næstum-því 15kg!) og keypti mér kjól í Gallerí. Hann er pínu þröngur, en það er líka fínt því ég á nú eftir að láta fleiri cm fjúka áður en yfir lýkur :D
Svo set ég inn nýja andlitsmynd fljótlega!
Þriðjudagur 07. febrúar 2006 / 18:15 / klukk
Ég er svo ofvirk í blogginu þessa dagana (ætli það hafi eitthvað að gera með það að ég er ein heima öll kvöld??) að ég blogga 5x á dag eða eitthvað!
Allavega, ég var klukkuð (hélt reyndar að það dæmi væri löngu búið, enn jæja..) svo að hér kemur "klukkið" mitt:
# 4 vinnur um ævina :Olís Dalvík, Bakaríið á Dalvík, Sambýli aldraðra Grensó og Sambýli fyrir geðfatlaða með þroskafrávik á Akureyrins.
# 4 bíómyndir sem ég held uppá: Sleeping with the enemy, Stevie Griffin - the untold story, Sister Act myndirnar og footloose!!
# 4 staðir sem ég hef búið á.: Akureyri (víðsvegar), Hauganes og Grenivík.. thats it!
# 4 sjónvarpsþættir sem ég held uppá : Judging Amy sem er núna hætt ;( Dead like me (líka hætt!), LOST og Desperate housewives!
# 4 staðir sem ég hef heimsókt í fríum: Spánn, Krít, Færeyjar og Danmörk (auðvitað ferðast víðsvegar um ísland í fríum, en er ekki verið að tala um útlönd?)
# 4 síður sem ég skoða á hverjum degi : Dagný sys, Baddý sys, Daníel frændi, Sandra, Katrín & krissi ofl ofl..
# 4 matarkyns sem ég held uppá : Allt grænmeti, kjúklingur, kjúklingur, kjúklingur
# 4 staðir sem ég vildi ég væri núna: Simi Valley, Los Angeles, San Fransisco, Laguna Beach
# 4 sem ég ætla að klukka: linda, Guðný, Sunna Björns og Inga Rut!! :D
Mánudagur 06. febrúar 2006 / 16:08 / Áfram Silvía!!
Allir að skrifa undir svo Silvía fái nú alveg örugglega að vera með áfram! ;) Okei.. skilurru!
Mánudagur 06. febrúar 2006 / 15:47 / Jíbbí!
Viktin hjá mér er búin að standa í stað í 3vikur. Það var farið að verða nett-pirrandi, en ég bjóst samt alveg við því þar sem þetta er búið að ganga vel fram að þessu. Tók þá ákvörðun að borða enga mjólkurvöru í viku, og athuga hvort að það myndi breyta einhverju. Byrjaði á föstudaginn og í dag eru 800gr farin síðan þá!! Næstum því kíló sem fór bara af því að ég hætti að borða mjólkurvörur/skyr. Greinilegt að það hentar mér bara enganvegin að borða svona oft skyr (var nýlega byrjuð á því að fá mér alltaf skyr eftir æfingu) Svo hef ég reyndar saxað rosalega á brauðið hjá mér (meira en áður) og líka aukið við ávextina (pera á dag kemur vextinum í lag!). Í kvöld ætla ég svo að hafa rosa góðan grænmetis/fiskrétt í ofni.
Mikið er lífið skemmtilegt! ;)
Laugardagur 04. febrúar 2006 / 16:27 / last.fm
Já vildi bara láta vita af þessari snilldar síðu þar sem þú getur hlustað á "útvarpið" og sett upp þinn eigin tónlistar profile.. mjög svo skemmtilegt ;)
Fimmtudagur 02. febrúar 2006 / 00:25 / Ég um mig frá mér til mín!
Vil byrja á því að þakka fyrir frábær komment á síðustu færslum. Og líka þakka fyrir sms og hringingar í sambandi við þau - alveg frábært! ;)
Annars ætlaði ég nú bara að þakka henni lindu minni fyrir að lána mér bolina og beltin! Búin að máta þá alla við allar buxurnar mínar og tek mig bara helvíti vel út þó ég segi sjálf frá!! Geggjað! takk elskan :*
Þriðjudagur 31. janúar 2006 / 00:00 / Myndir
Ég er búin að setja inn svona "fyrir/eftir" andlitsmyndir af mér.. og mynd frá því í sumar og svo aðra mynd síðan núna um jólin í færsluna hérna að neðan! Endilega kíkjið og enn frekar kommentið!! :D
Mánudagur 30. janúar 2006 / 10:06 / Sl 3mánuðir..
Það vita það nú líklega flestir að í oktober 2005 ákvað ég að breyta um lífstíl. Ég hef aldrei skifað um það hérna inni, enda er þetta eitthvað sem að kemur ekki öllum við, og ég hef haldið fyrir sjálfa mig. Núna hinsvegar langar mig að deila með ykkur hvað þetta er búið að vera æðislegt og jafnvel vera innblástur til þeirra sem ætla sér alltaf en fara aldrei af stað!
...





