Eftirfarandi eru færslur í flokknum heimilið
Fimmtudagur 12. júní 2008 / 22:18 / Garðavinna
Það er ansi mikil þögn í Mánagötunni núna. Strákarnir fóru til mömmu sinnar í dag og Snjólaug frænka Inga sem leigir hérna hjá okkur fór suður í viku. Frekar skrítið að vera svona ein í kotinu. Allt í einu eru tveir ærslabelgir farnir og Bósi, hundurinn, líka. Get samt ekki neitað því að það var ljúft að þurfa ekki að hugsa um kvöldmat, bursta tennur, þvo litla kroppa með viðeigandi "legg'í'lófa", koma í bólið og syngja "Dvel ég í draumahöll". Þess í stað unnum við í garðinum til rúmlega átta (heimanjólinn úr beðinu að framann farinn mamma mín, laaaangt út fyrir garðinn!), fórum með garðúrganginn á haugana og fengum okkur svo Quiznos. Aðeins að njóta þess að þurfa ekki að malla mat ;)
Hérna er allt að komast í stand. Bara eftir að festa upp nokkrar myndir og þá er húsið orðið fínt. Væri reyndar alveg til í að losna við þennan blessaða hornsófa úr stofunni, en það kemur. Í augnablikinu erum við með sæti fyrir svona 100 manns í stofunni, ef einhverjum vantar veislustað!
----
Dagarnir mínir fara semsagt í vinnu frá 8-15:30 (vinn stutt meðan strákarnir eru hjá okkur, annars vinn ég til amk 6) svo höfum við eytt restinni af deginum í garðinum þar sem strákarnir og hundarnir njóta sín í botn. Svo er kvöldmatur, koma öllum í bólið og svo höfum við venjulega farið aftur út í garð að dúlla okkur. Yndislegt alveg hreint - enda er veðrið búið að sýna sínar bestu hliðar undanfarið.
---
Það er svo gaman í vinnunni að ég hefði eiginlega ekki getað trúað því. Kannski er ég á rangri hillu - ætti að læra skrúðgarðyrkju! Mér finnst yndislegt að eyða deginum úti við. Raka, mála, kantskera, bera á áburð, hreinsa úr beðum og ýmislegt annað dundur. Frábært að fá að vera úti daglangt og ekki skemmir fyrir að unglingarnir hérna eru hver öðrum duglegri. Ekkert hangs-rugl í gangi og allir gera sitt besta... oftast.
--
Núna bíð ég bara eftir að fá hringingar frá vinum og ættingjum sem vilja gera sér ferð til Reyðarfjarðar - eða eiga bara leið hjá í sumarfríinu!!
---
Langar í lokinn að monta mig pínu - sjáiði muninn? Og þetta er sko EKKI mynd af smáatriðinum sem skipta svo miklu máli.
Garðurinn á mánudaginn (samt yfirlýst mynd, sorry það!)

Garðurinn í gærkvöldi

---
og svo sætustu ferfætlingar í heimi

p.s. sjóðheitarmyndir hérna
Flutningar
/ Lífið
/ Lífstíll og matur
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
2
Þriðjudagur 15. apríl 2008 / 23:18 / Ný vinna - nýtt upphaf?!
Jæja. Ég byrjaði nokkurnveginn í nýju vinnunni í dag. Ætli það sé ekki bara best að skella inn einni mynd af mér í vinnugallanum ;)

Jább. Ég er farin að vinna í Voffaborg sem er hundaleikskóli/hundahótel. Lýst rosalega vel á þetta og hentar mér fullkomlega! Ég er komin með íbúð í Grafarholtinu og er því bara svona ca 10mín í vinnuna sem er í Víðidalnum. Ég er líka komin með aukavinnu í H10 sport og spa þannig að nóg verður að gera hjá mér í sumar! Því miður byrja ég ábyggilega að vinna af fullum krafti strax eftir prófin, eða 15 maí, svo ég veit ekki hvort ég kem eitthvað norður á næstunni :( Aldrei að vita samt sem áður hvað mér dettur í hug að gera.
---
Árin eru farin að setja mark sitt á Rúfus greyið sem, eftir velútiláta ristilspeglun framkvæmd af Gunnari Smára, þarf hreinlega að skipta um ristilinn og hringvöðva. S.s. pústkerfið er eitthvað orðið lélegt og þarf að skipta um allt heila klabbið. Ekki langt síðan ég lét skipta um kúplingu,
og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildarmanni að hugsanlega þyrfti líka að skipta um bremsuklossa.
Iss núna er sko gott að geta bara hækkað í græjunum - þá hverfa öll svona vandamál :D
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/
7
Sunnudagur 13. apríl 2008 / 11:15 / Skjótt skipast veður í lofti
Jæja.... miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarið. Breytingar sem ég vildi ekki skrifa um fyrr en allir væru búnir að frétta það sem standa mér næst. Ég og Ingi hættum nefninlega saman fyrir ekki svo löngu síðan og ákváðum að vera bara vinir í sumar og sjá svo til hvað verður.
Ég hinsvegar ætla að vera í borginni í sumar (sorry Mamma&Pabbi, Helga, Aníka, Freyja, Damma, Jói, Karen frænka.....) og hefur verið voðalega lítið mál fyrir mig að fá vinnu. Eiginlega þarf ég að velja! Ég er að fara í eitt viðtal í dag kl 18, annað á þriðjudaginn kl 15 og þriðja á miðvikudaginn kl ? (man það ekki aaalveg.. Afhverju setti ég það ekki inní Google Calendar?!) Mig hinsvegar langar mest í vinnuna sem ég er að tjékka á í dag. Ef þeim lýst vel á mig og mig á þá -- þá verður ekki aftur snúið held ég :) Segi ykkur seinna hvaða vinna það er!
---
Annars er ég komin í smá aukadjobb og það er í H10-Sport og Spa. Nýja líkamsræktarstöðin í Kórnum, Kópavogi.
Þar verð ég bara aukamanneskja sem kíki við annað slagið og tek eina og eina vakt. Það verður semsagt nóg að gera hjá mér í sumar og ég sé nú ekki fram á mikið sumarfrí, enda veitir manni svosem ekki af því að hafa nóg milli handanna næsta vetur!!
----
Ég er búin að vera dugleg að fara út á hverjum degi með Trixie mína, og er að gæla við þá hugmynd að hafa hana í sumar meðan eigandinn er á sjó. Hún er svo mikill gullmoli þessi elska, og fer afskaplega lítið fyrir henni, svona miðað við að hún er 46kg!! Ótrúleg brussa svosem, en með þvílíkt og annað eins jafnaðargeð! Dýrka þennan hund. Ef ég fæ vinnuna sem ég vonast til að fá þá get ég líka haft hana með á hverjum degi sem munar miklu. Annars er hún rúmlega 2ja ára og vön því að vera ein heima. Ekkert hvolpalífsvesen :)
----
Skólinn gengur sinn vanagang. Brjálað að gera núna, enda er hann búinn núna á föstudaginn, svo eru það bara prófin 9 maí og 14 maí (akkurat sitthvorumegin við afmælið mitt, frábært!)
Er að vinna í ritgerð sem þarf að skila á föstudaginn, lagfæra skýrslu fyrir 24apríl og ritgerð 2 maí. BissíBee verð ég að segja!
---
Jæja. Þetta voru örugglega miklar fréttir fyrir ykkur að innbyrgða, svo ég læt þetta duga í bili.
Knús á línuna!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/
5
Mánudagur 01. október 2007 / 00:49 / Daginn í dag, daginn í dag gerði drottinn guð:)
Vá hvað þessi helgi var viðburðarík og skemmtileg. Byrjaði reyndar frekar rólega með föstudags-þrifi og rólegheitum hérna heima fyrir. Skutlaði Jóa í vísindaferð kl hálf 5 og var einmanna húsmóðir eftir það, eða þangað til Palli félagi bjargaði mér um miðnætti og við fórum á rúntinn. Sóttum Jóa niður í bæ klukkan hálf 1, en þá var hann alveg búinn á því greyið hehe.
Ég ákvað...
Lífið
/ Veður
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
3
Fimmtudagur 07. júní 2007 / 14:43 / Grímsey
Lífið á norðurhjara veraldar er svo ljúft að þið trúið því ekki! Ætla ekki einu sinni að reyna að segja ykkur hvað þetta er yndislegt því ég veit að þið trúið því ekki.
Fyrir þá sem ekki hafa náð að fylgjast með mér persónulega, þar sem ég hef ekkert komist á netið, þá ætla ég bara að byrja á byrjuninni.
Ég fékk vinnu á Kríunni, sem er veitingarhús/bar hérna í Grímsey. Unnur "frænka" og Svafar eiga staðinn ásamt öðrum hjónum. Ég flutti á miðvikudaginn síðasta til Unnar og Svafars í leikherbergið sem Sigrún Edda og Brá (dætur þeirra) eiga. Herbergið mitt er semsagt mjög bleikt, og mikið af dóti! Hehe.
Vinnan gengur mjög vel. Búin að læra flest allt og er líka búin að vera ein með hana síðan á sunnudaginn. Báðir eigendur í landi og engin stórslys á meðan ;)
Vinnutíminn minn er mjög breytilegur. T.d. núna er ég heima hjá Guðrúnu Ingu vinkonu og á að opna kl 6. Skemmtiferðaskip að koma í kvöld þannig að hugsanlega verður nóg að gera hjá mér sem er auðvitað frábært.
------
Það hefur verið nóg að gera hjá mér undanfarið þrátt fyrir
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
1
Föstudagur 27. apríl 2007 / 15:12 / Breyttir tímar...
Jæja. Núna eru svo sannarlega breyttir tímar hjá mér. Ég er samt enþá að vinna á Krummafæti hérna á Grenivík en í staðinn fyrir að búa í íbúðinni okkar í Melgötunni, bý ég hjá Ingólfi og Fjólu. Harpa dóttir þeirra var svo góð að lána mér rúmmið/herbergið sitt þannig að ég er í góðu yfirlæti hjá þeim ;)
Margt hefur breyst á tveimur vikum. Eiginlega bara allt. Ég sótti um í H.Í. í síðustu viku og aldrei að vita nema maður fái inn þar næsta haust. Þá er ég barasta farin suður á bóginn! Af mölinni og á malbikið. Merkilegt nokk. Hélt að það ætti seint eftir að gerast, en það verður eflaust magnað. Ég er búin að fá vinnu í sumar á Sambýlinu í Snægili sem ég var að vinna á sumarið 2005. Við Linda vinkona erum svo að leita okkur af einhverri ágætis íbúð á Akureyri til að leigja í sumar. Ef þið vitið um íbúð þá endilega hafið samband!
Í dag er ég hinsvegar að fara suður með flugi kl 18:40 og síðan til Danmerkur á morgun með leikskólagellunum. Djöfull ætla ég að skemmta mér vel og líka að versla mér smávegis drasl ;)
Jæja. Verð að rjúka. Er í vinnunni og þarf víst að passa einhver börn??!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
9
Sunnudagur 15. apríl 2007 / 17:50 / Fréttir...
Ég er með fréttir sem koma örugglega mörgum á óvart.
Við Þorsteinn erum hætt saman og ég er flutt heim á Hauganes í bili. Ég veit ekkert hvert framhaldið verður þannig að það þýðir ekkert að spyrja að því ;) Við hættum saman núna á fimmtudagskvöldið þannig að þetta er allt saman óákveðið og framtíðin óljós.
Lífið heldur samt áfram og núna fer ég bara að einbeita mér að sjálfri mér sem ég hef ekki gert lengi.
---
Helga vinkona og family komu heim frá Neskaupsstað í gærkvöldi og það var alveg frábært að hitta þau. Mikið hef ég saknað þeirra. Eftir heimsóknina hjá Helgu ákvað ég að kíkja aðeins út á lífið með Freyju og Jóa. Það var alveg ótrúlega gott að fá sér smá rauðvín í góðra vina hóp. Við vorum ekki komin niður í bæ fyrr en kl 3 sökum anna hjá BSO og varð því djammið frekar stutt en óóóótrúlega gaman. Við gistum síðan heima hjá Freyju og vöknuðum "spræk" kl 11 í morgun.
---
Það er fínt að vera hérna heima á Hauganesi í faðmi fjölskyldunnar. Raggi bróðir, Sandra og Embla Lind eru hérna í mat í kvöld og Baddý og Þorsteinn Ingi eru á leiðinni til okkar líka. Ilmurinn fyllir húsið enda er mamma með eindæmum góður kokkur ;)
---
Veit ekki hvenær ég blogga næst.. veit ekki einu sinni hvar ég ætla að eiga heima eða hvar ég ætla að vinna.
---
Lífið er oft hverfult en maður verður bara að taka því með stóískrí ró og horfa björtum augum framá við.
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
11
Laugardagur 24. febrúar 2007 / 20:22 / Hundanámskeið
Góðan og blessaðan! Vika síðan ég skrifaði síðast. Uss uss að þetta skuli gerast! ;)
Við erum semsagt stödd í Reykjavík. Nánara tiltekið á Nýbýlaveginum hjá Völu og Kristni. Erum þar í mjög svo góðu yfirlæti. Vorum að koma heim frá Pizzaria Rizzzo. Mhh það var góð pizza.. Reyndar engin svakaleg þjónusta, en so what. Sama er mér!
Núna situm við með sunnlenskan "þeyting" fyrir framan okkur (Bragðarefur) úr svona hálfgerðum "Brynjuís". Nammi namm..
---
Hundanámskeiðið í dag gekk alveg rosalega vel. Nick stóð sig eins og hetja og þetta var mjög svo forvitnilegt. Fengum klikker og töfrasprota til eignar (tvennt af hvoru) og hann tók vel við æfingunum. Morgundagurinn verður einstaklega skemmtilegur þar sem við munum bara gera æfingar, eins og t.d. hoppa yfir stangir, hringja bjöllu, stíga á mottu og fleira skemmtilegt.
---
Jæja. Spaugstofan er byrjuð þannig að ég verð að hafa athyglina á því ;)
Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
1
Miðvikudagur 07. febrúar 2007 / 22:28 / Leeeheiiiðist!
Það er svo skrítið að búa hérna á Grenivík. Mér líkar mjög vel við staðinn og mjög vel við fólkið hérna, en OMG hvað mér leiðist! Ég hangi hérna heima eftir vinnu og geri ekki rassgat. Reyndar lýg ég því. Ég er t.d. mjög mikið í tölvunni og svo er ég líka dugleg að horfa á sjónvarpið! ;)
Í dag hef ég samt gert óvenju mikið. Gengið frá þvotti, þvegið þvott, hengt upp þvott, vaskað upp, lagað til, lagað til í fatahenginu frammi, farið út að labba með hundinn, farið í búðina... and the list goes on.
Ég skrapp líka í heimsókn til Sólveigar nágranna og vinnufélaga (bý í parhúsi og hún er í hinum endanum!) Á meðan skyldi ég Nick eftir einan heima. Það hefur gengið hálf brösulega að hafa hann einan heima og síðast skyldi ég hann eftir í klst á meðan ég fór í nudd (Til Soffíu sem býr beint á móti.. ég er alveg uppáþrengjandi á nágranna mína hehe) og hann vældi og gelti allann tímann. Sólveig var alveg að verða geðveik greyjið. Núna skyldi ég hann EKKI eftir í búrinu heldur leyfði honum að vera lausum (lokaði inní öll herbergi og inná bað) og setti nammi útum allt. Undir sófaborðið, bakvið sjónvarpið, undir kistilinn, ofaná skenkinn... you name it. Hann dundaði sér svo við að þefa uppi nammi og ég heyrði bara 2 gelt frá honum í þennan klukkutíma sem ég var í burtu! Það er skárra en klst af gelti og væli!
Jább þetta er allt að koma.
Við ætlum líka suður núna 23.febrúar á hundanámskeið. Læra að verða betri eigendur og læra að þjálfa Nick upp í því sem honum finnst skemmtilegast - t.d. að þefa! ;)
----
En allavega. Ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er þessi skemmtilegi listi sem ég rakst á. Hann er reyndar stuttur og margt við hann að bæta, en mér fannst hann samt sem áður alveg frábær og sérstaklega gaman að lesa kommentin! Komment nr.7 er t.d. ALGJÖR snilld! :D
----
Svo vil ég líka benda á þetta blogg. Óli Helgi mágur var semsagt að byrja að blogga í dag. Til hamingju með það Óli minn! Ég mun án efa skoða bloggið á hverjum degi!
Miðvikudagur 24. janúar 2007 / 16:26 / Nick
Það er alveg hreint yndislegt líf að eiga hund. Ég get nú samt ekki leynt því að oft er það drulluerfitt!
Nick t.d. dregur mig út að labba 2x á dag, þ.e.a.s. eftir vinnu. Við förum alltaf í einn stuttann göngutúr eftir vinnu og einn langan um kvöldið, eða öfugt ef það er gott sjónvarpsefni ;)
Nick vill líka athygli. Hann er ekkert skárri en grenjandi smábarn þegar hann tekur sig til. Hann er samt mjög klár og geltir ekki nema hann vilji eitthvað sérstakt, og veit alveg nákvæmlega hvað hann kemst upp með að gera og hvað ekki. Eiginlega kemst hann samt upp með allt hehe
Ég er samt alltaf pínu smeyk við hann. Ekki að hann sé svona grimmur, nei af því að allstaðar sem ég les um þessar tvær tegundir, þar stendur að þetta sé hundur fyrir vana hundaeigendur, því þeir eru svo klárir að þeir eru fljótir að finna það ef þeir eru klárari en eigendurnir!
Þetta stendur t.d. um Parson Russel Terrier
Miðvikudagur 17. janúar 2007 / 14:27 / Ekkert net
Það er svo ótrúlega asnalegt að hafa ekki nettengingu heima. Samt erum við búin að setja upp heimilistölvuna OG eigum líka glænýja og fína fartölvu sem er sjaldan notuð (nema til að horfa á My Name is Earl sem er í miklu uppáhaldi núna! -- Takk Baddý!!)
Ég þarf eiginlega að hafa samband við emax aftur og fá þá til þess að renna hingað úteftir og setja þetta upp fyrir mig sem fyrst. Maður er enganveginn tengdur við umheiminn!
Jæja, þá er ég hætt þessu kvarti.
Héðan frá Krummafæti er allt gott að frétta. Það er allavega mitt "plug" við umheiminn! ;)
Hvað á ég að segja meira...
Gærdagurinn var frábrugðinn öðrum dögum. Ja hérna hér. Ég fór á göngu eftir vinnu og bjóst sko ekki við því sem koma skyldi. Ég skrapp líka til tengdó þar sem síminn hringdi fljótlega eftir að ég var komin þangað og það var símtal til MÍN! Ég varð auðvitað alveg steinhissa þegar þetta var hún Hóffa leikskólastýri og hélt ég kannski að hún væri að segja mér upp.. já eða gefa mér launahækkun! En allt kom fyrir ekki. Hún átti bara í vandræðum með son sinn sem var víst "fastur" á Akureyri. Ég renndi því til Akureyrar um kvöldmatarleytið!!! Já geri aðrir betur! Mér finnst eins og það sé heil eilífð síðan ég fór síðast til Akureyrar... fór reyndar þangað á föstudaginn en það er annað mál.
Ef ég færi ekki stundum á bílnum í vinnuna þá kynni ég eflaust ekki lengur að keyra! Alveg svakalegt.
Ég fór svo á kynningu til hennar Hóffu eftir Akureyrar-sækjið mitt og prófaði allskonar Aloe-Vera vörur. Keypti samt ekki neitt þar sem fjárhagurinn er frekar mikið skakkur um þessar mundir.
----
Það er búið að snjóa alveg heilan helling hérna á Grensó. Svo mikið að í fyrradag þá áttum við Þorsteinn EKKERT STÆÐI til að leggja bílnum! Ég stoppði bara í miðri Melgötunni (það var bara búið að moka eina rönd í gegn) og Þorsteinn hljóp beint útí bíl og brunaði í vinnuna áður en við myndum stífla alla umferð um Melgötuna (já, hlæið bara, en það er í alvöru stundum umferð á Grenivík!!!) Ég tók mig svo til og MOKAÐI ruðningana í burtu og gerði smá svona "stæði" þannig að þegar Þorsteinn kom heim úr vinnunni þá gaf hann bara allt í botn og þrumaði inní stæðið okkar. Í gær var hinsvegar klárað að moka svo að núna er allt fínt í Melgötu 4a.
---
Lífið mitt er greinilega orðið frekar innantómt þar sem ég skrifa ekki um neitt nema snjómokstur og bæjarferðir!
---Hjálp! Ég held að ég sé að breytast í aðþrengda, Grenvíska eiginkonu!!!-----
Fimmtudagur 04. janúar 2007 / 15:16 / Gleðilegt ár 2007!
Jæja. Þá er komið nýtt ár með blóm í haga og syngjandi fuglum... eða svona næstum því þar sem það er nánast snjólaust hérna á Grenivík þó kuldaboli sjáist nú samt annað slagið.
Við erum semsagt alveg búin að koma okkur fyrir á Grensó, þó við eigum enþá eftir að sækja nokkra hluti til Freyju okkar ;) Enda ætlumst við eiginlega frekar til þess að hún komi með þá til okkar!!! :D Verður að fara að drífa þig í heimsókn fröken Freyja! ;)
Ég byrjaði núna 2.jan að vinna í Krummafæti sem er leikskólinn hérna. Það er alveg frábært að vinna hérna, 25 börn og 4 starfsmenn (+ afleysing og matráðskona)
Börnin eru öll alveg afskaplega ljúf og er ég búin að vera núna með yngstu krökkunum í samveru. Minn hópur er samt mið-hópurinn eða Danni frændi (hennar Siggu systir mömmu) og þeir félagar :) Mjög fínn hópur og fyrsta hópastarfið mitt gekk mjög vel þó það væri enganvegin undirbúið!! ;D Hehe
Dagarnir líða því frekar hratt núna. Ég kem heim úr vinnunni, og þá fer Þorsteinn í vinnuna! Ég er svo sofnuð þegar hann kemur heim og farin þegar hann vaknar. Mjög gaman eða þannig. Ég og Nick erum því ein heima mest öll kvöld og förum út að labba og kúrum í sófanum... jább hann má koma uppí sófa hjá okkur! Annað er bara ekki hægt þegar maður er alltaf einn heima :S :)
Jæja. Pásan mín hérna í leikskólanum er að verða búin, sem og vinnudagurinn (búin 16:15) þannig að ég læt gott heita í bili.
Gleðilegt ár allir!!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/
3
Sunnudagur 24. desember 2006 / 12:01 / Nick
Gleðileg jól aftur ;)
Bara láta vita að ég var að dunda mér í gær við að búa til heimasíðu til að setja inn myndir af Nick.
Þið getið kíkt á hana hérna.
Ég er búin að setja inn einhverjar myndir og eitthvað fleira.
Megið alveg skilja eftir ykkur smá "fótspor" í gestabókinni.
Laugardagur 02. desember 2006 / 22:20 / Emma sæta
Þetta "syngjum" við Emma á hverjum degi:
"What's ya doin'?"
"Eating chocolate!"
"Where'd you get it?"
"My doggie dropped it!"
"Wheres your doggie?"
"Behind the door"
"what's he doin'?"
"Making more!!"
Föstudagur 24. nóvember 2006 / 04:58 / Thanksgiving
Hérna sitjum við Þorsteinn með bumbuna útí loftið. Úff þetta var allsvakalegur át-dagur! Byrjaði létt með nokkrum forréttum UM EITTLEYTIÐ þegar gestirnir komu í hús. Rækjusalat ala Hanna (sem þeim fannst mjög merkilegt og gott), spínat-ídýfa sem var furðulega góð og bruchetta brauð sem Stephanie kom með. Allt saman mjög gott.. svo auðvitað voru súkkulaðirúsinur svona í bland ;)
Nú, um 4 leytið var Kalkúninn svo tilbúinn og þá hófst hin mikla átveisla. Shit hvað við borðuðum mikið. Í eftirrétt var svo flottasta karamellukaka sem ég hef augum litið. RISASTÓR og svo sæt að ég ældi næstum því eftir svona 4 bita og þambaði vatn! Það voru samt 3 aðrar kökur að velja um.. þannig að engar áhyggjur, ég þurfti ekkert að svelta! Hehe
Núna er kl 9 og manni líður eins og hún sé miðnætti þar sem kvöldmaturinn var borðaður svo snemma.
Á morgun eru svo ROSALEGAR útsölur hérna. Í dag kom FULLUR POKI af auglýsingarbæklingum. Við erum búin að renna í gegnum þá flesta og ætlum að reyna að versla afganginn af jólagjöfunum á morgun. Við ætlum semsagt að vakna kl 4 í nótt og vera mætt fyrir utan Gottschalk kl 5 til að ná því þegar það er opnað. Auðvitað verð ég með myndavélina með mér og tek myndir af brjáluðu Ameríkönunum sem bíða í ofvænu eftir því að hurðirnar opnist.
Síðan er stefnan tekin á Bed, Bath and Beyond og svo Target! Úff þetta verður langur dagur! Híhí
Eftir það ætlum við að mála fyrir Ásu og sofnum örugglega MJÖG þreytt annað kvöld.
----
Annars fengum við video sent frá geðveiku fjölskyldunni í Lækjarvöllum tvö! Ekkert smá gaman að horfa á það. Fengum alveg sting í magann af heimþrá. Hlógum ekkert smá mikið, enda er Sissinn ekkert smá góður myndasmiður! Á meðan við horfðum smjöttuðum við á möndlum og Þorsteinn fékk sér Draum. Takk kærlega fyrir!! Ég er líka búin að lesa Dagskránna og Extra í bak og fyrir og rak þar augun í tvo nýja skemmtistaði á Akureyri og einn nýjan veitingarstað!!! Það munar ekkert um það! Þetta er alveg svakalegt. Maður má ekki fara í burtu í nokkra mánuði án þess að hlutirnir breytist þvílíkt. Það vakti líka mikla lukku að sjá Sviðakjamma auglýsta frá Nettó! ;)
Takk KÆRLEGA Edda og Sissi fyrir frábært Video og æðislega sendingu! Gladdi okkur ekkert smá.
Það eina sem ég hef útá þetta að setja er að eftir að við settum diskinn í tölvuna, þá er hún búin að fyllast af vírusum!! Ef einhver veit um góða leið til að eyða út spyware og trojan þá má sá hinn sami ENDILEGA benda okkur á eitthvað forrit í Kommentunum, og ég mæli með því að þú, Edda, náir þér líka í eitthvað forrit og rennir því í gegnum tölvuna hjá þér. Veit ekki hvernig þetta virkar en held að þetta hafi komið af disknum þínum.. ef það er mögulegt...
Jæja. Best að fara að skríða í bólið svo maður nái nú einhverjum svefni fyrir verslunardaginn mikla!
Edda - Er búið að kaupa gjöf handa honum föður þínum? Við Þorsteinn ætlum nefninlega að fjárfesta í einu atriði á morgun til að gefa honum. Ef hinsvegar er búið að kaupa eitthvað handa honum þá erum við alveg til í að eiga þetta bara sjálf ;) ;D
Enda þetta á nokkrum myndum frá kvöldinu í kvöld. Það er svo erfitt að setja inn myndir á myndasíðuna svo þið fáið bara að sjá fullt af myndum þegar við komum heim!
Svona klippti Anthony mig fínt á mánudagskvöldið. Sorry mamma,.. enþá dökkhærð! :D
Svona er ég sæt á hlið ;) Hárið á mér er samt síðara aftan á. Ég náði bara ekki góðri mynd af því :S
Fallega skreyta veisluborðið okkar Dóru. Já og Steini...

Fallegi Kalkúninn áður en við skelltum honum í ofninn...
...kominn útúr ofninum! Steina leist vel á hann! Gunni - Þessi mynd er tileinkuð þér!
Mhh þessi var góð.. en sykruð!! Oh man..fæ bara í magann af því að horfa á hana..
Enda þetta á mynd af okkur skötuhjúum

Farin að sofa! :D
Mánudagur 20. nóvember 2006 / 06:34 / Heim úr útilegu!
Þessi helgi var hreint út sagt frábær. Við fórum á föstudaginn upp alla ströndina norður í átt að San Fransisco. Við fengum lánaðann Camperinn eða húsbílinn þeirra Míu og Kees (ma og pa Erics) og áttum sælustundir alveg þangað til í dag.
Á föstudaginn var Dóra eftir heima í SLO því hún þurfti að vinna, en hún kom svo til okkar á Laugardaginn. Við sváfum öll 6 í húsbílnum á föstudagsnóttina og það fór nú barasta asskoti vel um okkur ;) Ég held barasta að ég sé aftur farin að safna í húsbílasjóð!! Þið í Mývó - viljiði aftur fara að gefa mér tómar flöskur/dósir?! Híhí.. nei nei, bara djók! (segir Djóka híhí) Föstudagskvöldið grilluðum við okkur steik og borðuðum í myrkrinu því sólin settist svo snemma. Það kom ekki að sök, maturinn var bara enþá betri fyrir vikið!
Eftirmaturinn (því hérna er alltaf eftirmatur) var svo S'mores eða "Can I have Some More! = S'more) sem er svona súkkulaði/kex/sykurpúða samloka! Geri svoleiðis handa ykkur í útilegunum næsta sumar ;) Lofa!
Á Laugardaginn kom svo Dóra við mikinn fögnuð viðstaddra, og líka Dave gamall vinur Erics. Við skelltum okkur í göngutúr niður á strönd (sem var ekkert smá stór og flott) og strákarnir (og krakkarnir) léku sér í sjónum, kastandi sandi hver á annan, á meðan við Dóra lágum í sólbaði. Þetta var hinn fullkomni dagur! Þegar við vorum orðin þreytt á strandarlífinu héldum við á tjaldstæðið og grilluðum okkur kvöldmat (klukkan var 04:30pm en sólin sest kl 5 á daginn þannig að eftir það er alveg SVARTA myrkur) Við sátum svo við varðeldinn fram eftir kvöldi en grilluðum bara sykurpúða en gerðum ekki S'more vegna þess að það er algjört sykursjokk að fá sér svoleiðis..
Því miður var ekkert símasamband í útilegunni þannig að við gátum ekki hringt í afmælisbörn helgarinnar! Svo núna kemst ég ekki inná blog.central.is að kommenta þannig að hérna kemur kveðjan;
Sunna og Harpa! Til hamingju með afmælið!!!
Vonandi áttuði alveg geeeeggjaða afmælishelgi! Ég veit allavega að kistukaffið hjá Olínu var um helgina og þótti okkur Þorsteini mjög leiðinlegt að missa af því :( En jæja. Við étum nógu anskoti mikið hérna..
Í dag fórum við svo í svakalega gönguferð þar sem við löbbuðum um Limekiln state park og skoðuðum risastóra ofna sem voru notaðir fyrir meira en 120 árum síðan. Mjög áhugavert. Sýni ykkur myndir þegar við komum heim ;)
---
Á morgun heldur Gunnar Örn heim á leið... Við ætlum að taka daginn snemma og versla síðustu hlutina og svo ætlar gæinn að leigja sér bíl til að keyra niður til LA á. Hann á flug á miðnætti á þriðjudeginum, en það er einmitt afmælisdagurinn hans! :D
---
Við Þorsteinn höfum hinsvegar tekið þá ákvörðun að flýta ekki fluginu okkar heim til Íslands þar sem Delta (flugfélagið) er með eintómt vesen og ég beið í klst í símanum um daginn og gafst upp. Þið verðið þess vegna bara að bíða spennt eftir okkur - við komum blísperrt þann 18. des - beint í jólakræsingarnar! :D Júhú
Ása hefur næga vinnu handa okkur hérna þannig að það ætti að stytta okkur stundirnar þangað til við komum heim. Eftir minna en mánuð! ;)
---
Kominn tími á að skríða í bólið.
Gunni setti inn alveg fullt af myndum á síðuna þeirra Þorsteins. og hvet ég landsmenn alla að kommenta á myndirnar þar sem þið eruð hvort eð er föst inní einhverjum snjóhúsum! Múhaha! :D
Góðar stundir
Laugardagur 28. október 2006 / 16:41 / Stundum er mesta snilldin...
..beint fyrir framan nefið á manni.
Fimmtudagur 28. september 2006 / 23:16 / Fartölva!!
Ég var að fjárfesta í nýrri fartövlu. Þvílík gleði! Þegar ég áttaði mig á því að hér er hægt að kaupa frábærar fartölvur, meira en helmingi ódýrara en heima á Íslandi þá hreinlega gat ég ekki sofið án þess að fjárfesta í einni. Ég keypti mér semsagt Sony FE770G Core 2 Duo T5600 1.83ghz, 1gb Ram, Camera, 120gb SATA HD, 15.4" LCD fyrir þá sem hafa áhuga á að vita.
Fyrir þá sem vita ekkert um tölvur þá keypti ég semsagt silfraða og hvíta fartölvu sem er extra þunn og létt ;)
Það verður svo gaman að geta LOKSINS lært (er í fjarnámi) útí við sundlaugina (ekki samt oní sundlauginni,.. ónei ónei) þar sem það er enþá 30+ hérna yfir daginn. Núna getum við Þorsteinn líka tölvunördast almennilega þar sem hann hangir í borðtölvunni og ég í fartölvunni. Jibbý! :D
En ástæðan fyrir að ég keypti tölvuna var samt fyrir háskólann næsta haust.
Ég ætla að fara alveg extra vel með þessa tölvu og passa hana SVO vel!
Ég vil enga græna línu yfir skjáinn eftir nokkra daga!! :) Hehehe
----
Annars er Gunninn mættur á svæðið. Hann vaknaði klukkan 9 í morgun.. við Þorsteinn fórum á fætur hálf 11 ;)
Hann er alveg að drepast úr hita greyjið.. við erum samt dugleg að segja honum að það hafi nú verið miklu heitara þegar við komum hingað! (40+ en ekki 30+)
Við erum búin að gefa honum fullt af hamborgurum (en eigum eftir að fara á Fatburger) og líka stærstu pizzasneið í heimi! Ætli við förum ekki með kallinn á "The Habit" sem er uppáhalds "veitingar-skyndibita" staðurinn okkar Þorsteinn. Þar fær Þorsteinn sér alltaf (undantekningarlaust) kjúklingasamloku, og ég fæ mér BBQ Chicken Salad sem er alveg óóóótrúlega gott.
Í kvöld á svo að vera "frænda-tími" þar sem Þorsteinn og Gunni ætla í Bío (held ég) og ég ætla að sitja heima með sárt ennið. Nei nei, bara grín. Ég þarf að læra alveg heilann helling :( Er komin 3 vikum á eftir áætlun í fjarnáminu og ætlaði að reyna að klára þessar 3 vikur á einu bretti. Kemur í ljós hvernig það gengur.
Hollywood var tekin með trompi, og svo er það bara Six Flags um helgina!
---
Breytingarnar á húsinu hefjast svo á mánudaginn næsta. Það verður sko fjör!
Hugsanlegt er að krakkarnir verði hjá Lindu mömmu sinni á meðan á breytingunum stendur, og þá verð ég að vinna "fyrir" Lindu. Þ.e.a.s. fer þangað á morgnana, skutla krökkunum í skólann, sæki þau seinnipartinn og sé um að koma TJ á fótboltaæfingar + heimanám með þeim. Það er eiginlega ómögulegt að hafa þau hérna þar sem eldhúsið mun allt fara út, allar flísar af neðri hæðinni, teppin af efri hæðinni + brjóta niður fullt af veggjum!! Ekki séns að þau geti lært t.d.
---
Af mér er það hinsvegar að frétta að ég er búin að missa 2% í líkamsfitu.. bara svona 200% eftir! (nehh djók!) og mér gengur alveg ágætlega að mæta í ræktina. Missi svona einn og einn dag úr, en er samt mjög samviskusöm. Matarræðið gæti alveg verið betra, en ég panta mér t.d. alltaf salat í staðinn fyrir franskar... og kjúkling en ekki hamborgara!
Eins gott að mér finnst grænmeti rosalega gott, og flestir vita að ég elska kjúkling! :D
Svo er líka freeekar erfitt að halda sig frá namminu þar sem mamma (og fleiri) voru svo góðir að senda okkur fullt af nammi. Ég reyni að láta Þorsteinn um þetta, en stelst samt alltaf annað slagið til að fá mér smá! :) Eignaðist reyndar nokkra vini í ræktinni þegar ég fór með poka af BOMBUM í ræktina og gaf þeim. Þeim fannst þær ekkert smá góðar :)
---
Ég keypti mér geggjaða skó í gær. Þeir eru ekkert SMÁ flottir.. verð eiginlega að taka mynd af þeim og setja hingað inn. Ykkur finnst þeir örugglega viðbjóðslegir, en ég er alveg að fíla þá!
Fílaði þá líka enþá meira þar sem þeir kostuðu ekki nema 14dollara eða um 1000kr! :)
Ég er alveg staðráðin í því að kaupa alveg ógeðslega mikið af skóm hérna. Þeir eru svo ódýrir! Svo eru líka til endalaust margar "gerðir" af skóm. Ég á svo erfitt með að finna mér skó heima á Íslandi. En hérna er það ekkert mál.
Svo er maður samt svo nískur. Sá t.d. Puma-strigaskó á tilboði í gær, 30dollara. Ég bara: "Piff.. ég fer nú ekki að eyða 30 dollurum í strigaskó!"
Svo þegar ég var komin úr búðinni.. þá fór ég að reikna.."10dollara, eru 700 kr. Þá eru 20 dollarar 1400kr... og 30 dollara.... 2100 KRÓNUR!!! HVAÐ VAR ÉG AÐ PÆLA??!!"
Langaði helst að snúa við og hrifsa þá úr hillunni.... Þorsteinn hélt aftur af mér ;)
---
Jæja. Verð að fara að gera eitthvað á heimilinu. Var að enda við að tala við múttu (alltaf jafn gott og gaman að heyra í þér mamma mín) því auðvitað þurfti hún að gefa mér grænt ljós á fartölvukaupin (Ég á enþá erfitt með að taka "stórar" fjármálaákvarðanir án þess að tala við "yfirvaldið" hehe)
Þorsteinn og Gunni eru búnir að þrífa trukkinn að innan, þannig að það er komið að mér að þrífa baðherbergin!
---
Bara eitt að lokum:
Kyssið og knúsið hvert annað frá mér.
Laugardagur 24. júní 2006 / 15:39 / Dagurinn i dag
Thorsteinn er farinn i vinnuna og eg sit herna "ein" heima thvi ad krakkarnir eru ekki vaknadir og eg nenni ekki ad vekja thau strax. Rob svaf yfir sig i morgun, their aetludu ad vera farnir klukkan 7:30 en voru bara ad fara rett i thessu eda 8:30 hehe. Thorsteinn er alveg ad fila thessa vinnu i klessu, en hja mer er halfgert letilif i gangi. T.d. i dag vinna their bara fram ad hadegi thannig ad eg tharf bara ad gera eitthvad fram ad hadegi og thad ad taka herbergin hja krokkunum er sko miklu meira en 3-4 tima vinna thannig ad eg er ad hugsa um ad thrifa eldhusinnrettinguna.
Adan var eg ad horfa a sjonvarpid nidri og heyrdi svona "slurp-slurp" hljod. Thegar thad haetti ekki tha for eg ad ath hvad vaeri eiginlega i gangi.. haldidi ad Piper (stori hundurinn) hafi ekki verid ad DREKKA UR KLOSETTINU herna nidri. Oj thad var ogedslegt. Svo sagdi eg "Piper NO!" og tha sneri hann ser snoggt vid og skvetti klosettvatni utum allt golf og thad lak alveg ur munnvikunum a honum og bara bjakk! Thetta var nu samt pinu fyndid svona eftir a, en nuna aetla eg alltaf ad loka klosettsetunum ef ad eg se ad thaer eru uppi!
Thorsteinn bloggadi i gaerkvoldi um kinverskastadinn sem vid forum a. Hann gleymdi samt ad segja fra thvi fyndna. Thad voru bara kinamenn ad vinna tharna og their toludu svo ogedslega hratt ad madur atti alveg fullt i fangi med ad fylgja theim eftir ... svo toludu their svona kina-ensku t.e.a.s. ensku med gedveikt kinverskum hreim! Thetta var svo fyndid ad var naestum buin ad pissa a mig af hlatri. "Wu-u-lik-mo-cok!" sogdu their og vid Thorsteinn thurftum ad hugsa okkkur um adur en vid fottudum ad their voru ad spyrja hvort Thorsteinn vildi meira Coke! Hehehe
Vonandi finnur Thorsteinn einhvern sima sem honum langar i svo vid getum farid ad hringja heim. ROb leyfir okkur alveg ad hringja, en madur kann bara ekki alveg vid thad ad hringja svona long-distance ur heimasima.
Jaeja, tha er Christy voknud, eg heyri bara pikkid i tolvunni hennar tharna hinumegin vid vegginn! :) TJ vaknar orugglega ekki fyrr en um hadegi! Eg reyndi 3x ad vekja hann i gaer, en eg held ad jardskjalfti myndi ekki vekja hann hehe..
Hafid thad gott elskurnar. Sakna ykkar allra...
Sunnudagur 04. júní 2006 / 00:11 / Bloggidiblogg
Hvar skal byrja. Þessi helgi er svo ótrúlega viðburðarrík. Fór í síðasta prófið mitt í MA núna á föstudaginn. Fékk nettann fiðring í magann þegar ég var komin að svona spurningu nr 60 í prófinu (100krossa spurningapróf) því þar kannaðist ég bara ekkert við að hafa lesið nokkuð um Kína, en næstu 10 spurningar fjölluðu einungis um Kína! Ég hélt að ég hefði bara verið svona mikill tossi en nei nei, kennarinn var bara sjálfur tossi og setti ÓVART inn spurningar úr kafla sem við áttum ekkert að lesa! Svona er þetta þegar kennarar reyna að sleppa auðveldlega og gera bara copy/paste við gamallt próf!! Busted! ;)
Eftir prófið fórum við Anika niður á Amour að skúra (Takk Anika!!) og svo fór ég í smá verslunarleiðangur að leita mér að fötum (bol) fyrir ferminguna hennar Sunnu sem er á morgun (í dag, það er víst komið miðnætti!) Ég fann hinsvegar ekkert og fór því tómhent til Grensó í klippingu til Sveinlaugar. Frá henni kom ég út sem algjör red-head og keypti meira að segja djúpnæringu sem heitir "Dumb Blonde!" .. mjög fyndið nafn. Djúpnæringin er reyndar líka fyrir Racy-Redhead sem ég veit ekki alveg hvað er. Spyr að því þegar ég er komin til Ameríku. ;)
Næsti dagskráliður var að ná í Þormar. Hann vildi að sjálfsögðu koma til mín strax og við brunuðum heim á Hauganes eftir að hafa erindast smávegis í bænum. Um kvöldið var ég svo þreytt að ég sofnaði meðan ég svæfði Þormar, og sofnaði svo aftur í sófanum inní stofu fyrir kl. 11. Það var mitt próflokadjamm ;) híhí
Dagurinn í dag byrjaði með þessum orðum "Hæ.. máé fala flammúl?!" og þar með var ég ræst, klukkan 9 í morgun.. Reyndar fínt að fá að sofa til 9! Við dúlluðum okkur í garðinum, fórum í heimsókn til Höllu og Sævars úti á Sand og nutum svo bara veðurblíðunar hérna heima við. Ég þvoði líka í leiðinni svona 5 vélar (af þvotti sko) því það var svo góður þurrkur (já já, þó ég sé hætt að búa sjálf þá leynist samt enþá í mér húsmóðir!)
Elsku Danni frændi kom svo seinnipartinn með foreldrum sínum. Mamma kom heim úr bænum með "pakka" handa mér, en hún fór í búðir fyrir mig og keypti fyrir mig tvo boli/kjóla sem eru geggjað flottir! Héðan í frá læt ég einhvern annan versla á mig föt því ég finn mér aldrei neitt, en er alltaf ánægð með það sem aðrir finna á mig!!
Kvöldmaturinn í kvöld var svo borðaður í góðu yfirlæti hjá tengdaforeldrum Dagnýjar systur. Gauja eldaði glæsilegan KALKÚN sem var ógó góður. Rögnvaldur gerði svo gríðarlega gott Waldorf-salat með matnum ;) Hjá þeim var setið við langborð því við vorum hvorki meira né minna en 9 fullorðnir og 4 börn. Gaman að því. Misjafnlegar málefnalegar umræður við matarborðið en það var mjög skemmtilegt hjá þeim og alltaf gott að koma til þeirra.
Að sjálfsögðu sofnaði ég meðan ég svæfði Þormar í kvöld um 9 leytið, sem gerir það að verkum að ég er ekkert þreytt núna eins og sést á þessum ótrúlega langa pistli mínum. Ég er að rústa Söndru í langri-pistla-gerð! :D
Ég fékk líka gleðifréttir í dag. Þorsteinn hefur lokið skyldustarfi sínu í Laufási og er nú kominn til að vera hjá mér, ma og pa. Ef ég tel saman dagana sem við höfum hisst frá því 2.mai þá slagar það varla uppí viku! Alveg ömurlegt.. en hey, eftir hálft ár saman í Cali þá mun ég pottþétt segja "get outah my face, f**k faceah!" ;) - Neh þarna var ég nú bara að slá á létta g-strengi! (Eins og Björnsson orðar það) Hætt þessu rugli,.. held áfram með hinn hefðbundna pistil:
Morgundagurinn hefst á sundi í Þelamörk, eða á Dalvík. Svo tek ég mig til og bruna til Grensó í fermingarveislu aldarinnar. Veisluþjónusta Ólínu sér um þessa fermingarveislu svo ég er viss um að ég verði ekkert svikin af því sem verður á boðstólnum þarna. (Veisluþjónusta Ólínu a.k.a. Olla mamma hans Þorsteins og fermingarbarnsins!)
Jæja. Pabbi er farinn að tuða yfir því að ég þurfi að fara að sofa. Ætli hann sé ekki bara að hugsa um símreikningin þar sem þau eru svo gríðarlega ekki-móðins og eru því tengd með módemi!! (Úff ég trúi ekki að ég sé að segja frá þessu.. svo ógó hallærislegt, skilurru!) :D
Góða nótt dyggu lesendur og komið vel fram hvort við annað - nema þið séuð óvinir, þá er í lagi að vera leiðinlegur!
TTYS (Talk To You Soon!) - Alltaf að æfa mig í slettunum...
Hanna
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
2
Föstudagur 19. maí 2006 / 16:24 / Tölvan
Borðtölvan okkar er alveg að missa sig í sambandi við netið. Netkortið er örugglega eitthvað van-tengt því tölvan dettur alltaf inn og út af netinu. Alveg pirrandi. Ástandið er meira að segja svo slæmt að ég er komin í gömlu góðu Fujtsu fartölvuna mína!! Það gengur sú gróusaga að sú tölva sé steindauð - en það er langt því frá!! Hún er sprell-alive ;)
Núna um helgina eru strákarnir hjá okkur í síðsta skipti. Við ætlum að gera okkur glaðan dag á sunnudaginn þar sem þeir fara í sveitina í byrjun júní og við eigum örugglega ekki eftir að sjást aftur í marga mánuði. Spurning bara hvað við gerum okkur til gamans - þeir voru að stinga uppá Þelamörk og lýst mér ágætlega á það! :)
Hef þetta ekki lengra í bili ... nenni ekki einu sinni að eyða tíma í að skrifa um Euro!!
Sunnudagur 19. mars 2006 / 16:11 / Undirbúningur
Undirbúningur fyrir USA er að hefjast á fullu. Núna þegar við erum komin með fjölskyldu til að taka á móti okkur í CA, dvalarleyfi, flugmiða og tryggingar, þá er lítið annað eftir en að redda öllu því sem við eigum hérna á Íslandinu góða.
Var að setja inn auglýsingu á markaðinn á barnaneti. Getið kíkt á hana hérna. Annars setti ég hana líka hérna inn fyrir neðan ef þið viljið skoða hvað við höfum uppá að bjóða.
Mamma og Pabbi ætla svo að passa tölvuna okkar. Tengdó passar grillið góða og Sunna vonandi hamsturinn. Núna vantar okkur bara einhvern til að passa íbúðina okkar!! Ef þið vitið um einhvern sem vantar að leigja frá 1 eða 15. júní í eitt ár, þá megiði alveg segja þeim að hafa samband! Erum líka tilbúin að fara fyrr ef að við fáum góða leigendur sem vantar íbúð strax! ;)
Æji endilega hjálpið okkur að selja dótið og finna leigendur sem hægt er að treysta! Sá sem selur dót/reddar leigendum fær veglegan pakka frá USA - Promise!!
En hérna er auglýsingin:
Þriðjudagur 14. febrúar 2006 / 00:42 / hmmm
Glöggir lesendur mínir muna eflaust eftir því að ég sagði frá því þegar mér tókst að bregða yngri bróðirnum alveg rosalega sl. helgi.... það var einhvernvegin svona, en þó enganvegin svona nasty. Þetta er eiginlega alveg rosalegt - greyji strákurinn.
P.s. þið þurfið að ýta á "play" svo það byrji myndbandið!!
Þriðjudagur 07. febrúar 2006 / 18:04 / Alltaf matur!
Á þessu heimili er alltaf eitthvað að finna matarkyns ;) Í kvöld var gerð tilraun á pastarétti sem við stungum inní ofn. Við hjónin elduðum þennan rétt samviskusamlega eftir eigin höfði og var hann alveg ROSALEGA góður (eins og alltaf)
Hér að neðan kemur uppskriftin:
Föstudagur 03. febrúar 2006 / 19:59 / Kvöldmaturinn
Þar sem Þorsteinn er alltaf að vinna þegar kvöldmaturinn er, hefur verið lítið um eldamennsku á þessu heimili. Ég bauð Gunna félaga í mat, þar sem Marín kærasta hans er í Finnlandi og eldaði handa okkur kjúklingasalat. Það var alveg ÓTRÚLEGA gott, og er uppskriftin að miklu leyti stolin frá Hörpu vinkonu. Ég ákvað að skella "uppskriftinni" eða eiginlega bara hráefnalistanum hingað inn svo að þið getið nú eldað ykkur hollt og gott kjúklingasalat!



