Eftirfarandi eru færslur í flokknum Flutningar
Fimmtudagur 12. júní 2008 / 22:18 / Garðavinna
Það er ansi mikil þögn í Mánagötunni núna. Strákarnir fóru til mömmu sinnar í dag og Snjólaug frænka Inga sem leigir hérna hjá okkur fór suður í viku. Frekar skrítið að vera svona ein í kotinu. Allt í einu eru tveir ærslabelgir farnir og Bósi, hundurinn, líka. Get samt ekki neitað því að það var ljúft að þurfa ekki að hugsa um kvöldmat, bursta tennur, þvo litla kroppa með viðeigandi "legg'í'lófa", koma í bólið og syngja "Dvel ég í draumahöll". Þess í stað unnum við í garðinum til rúmlega átta (heimanjólinn úr beðinu að framann farinn mamma mín, laaaangt út fyrir garðinn!), fórum með garðúrganginn á haugana og fengum okkur svo Quiznos. Aðeins að njóta þess að þurfa ekki að malla mat ;)
Hérna er allt að komast í stand. Bara eftir að festa upp nokkrar myndir og þá er húsið orðið fínt. Væri reyndar alveg til í að losna við þennan blessaða hornsófa úr stofunni, en það kemur. Í augnablikinu erum við með sæti fyrir svona 100 manns í stofunni, ef einhverjum vantar veislustað!
----
Dagarnir mínir fara semsagt í vinnu frá 8-15:30 (vinn stutt meðan strákarnir eru hjá okkur, annars vinn ég til amk 6) svo höfum við eytt restinni af deginum í garðinum þar sem strákarnir og hundarnir njóta sín í botn. Svo er kvöldmatur, koma öllum í bólið og svo höfum við venjulega farið aftur út í garð að dúlla okkur. Yndislegt alveg hreint - enda er veðrið búið að sýna sínar bestu hliðar undanfarið.
---
Það er svo gaman í vinnunni að ég hefði eiginlega ekki getað trúað því. Kannski er ég á rangri hillu - ætti að læra skrúðgarðyrkju! Mér finnst yndislegt að eyða deginum úti við. Raka, mála, kantskera, bera á áburð, hreinsa úr beðum og ýmislegt annað dundur. Frábært að fá að vera úti daglangt og ekki skemmir fyrir að unglingarnir hérna eru hver öðrum duglegri. Ekkert hangs-rugl í gangi og allir gera sitt besta... oftast.
--
Núna bíð ég bara eftir að fá hringingar frá vinum og ættingjum sem vilja gera sér ferð til Reyðarfjarðar - eða eiga bara leið hjá í sumarfríinu!!
---
Langar í lokinn að monta mig pínu - sjáiði muninn? Og þetta er sko EKKI mynd af smáatriðinum sem skipta svo miklu máli.
Garðurinn á mánudaginn (samt yfirlýst mynd, sorry það!)

Garðurinn í gærkvöldi

---
og svo sætustu ferfætlingar í heimi

p.s. sjóðheitarmyndir hérna
Flutningar
/ Lífið
/ Lífstíll og matur
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
2
Þriðjudagur 15. apríl 2008 / 23:18 / Ný vinna - nýtt upphaf?!
Jæja. Ég byrjaði nokkurnveginn í nýju vinnunni í dag. Ætli það sé ekki bara best að skella inn einni mynd af mér í vinnugallanum ;)

Jább. Ég er farin að vinna í Voffaborg sem er hundaleikskóli/hundahótel. Lýst rosalega vel á þetta og hentar mér fullkomlega! Ég er komin með íbúð í Grafarholtinu og er því bara svona ca 10mín í vinnuna sem er í Víðidalnum. Ég er líka komin með aukavinnu í H10 sport og spa þannig að nóg verður að gera hjá mér í sumar! Því miður byrja ég ábyggilega að vinna af fullum krafti strax eftir prófin, eða 15 maí, svo ég veit ekki hvort ég kem eitthvað norður á næstunni :( Aldrei að vita samt sem áður hvað mér dettur í hug að gera.
---
Árin eru farin að setja mark sitt á Rúfus greyið sem, eftir velútiláta ristilspeglun framkvæmd af Gunnari Smára, þarf hreinlega að skipta um ristilinn og hringvöðva. S.s. pústkerfið er eitthvað orðið lélegt og þarf að skipta um allt heila klabbið. Ekki langt síðan ég lét skipta um kúplingu,
og hef ég það eftir áreiðanlegum heimildarmanni að hugsanlega þyrfti líka að skipta um bremsuklossa.
Iss núna er sko gott að geta bara hækkað í græjunum - þá hverfa öll svona vandamál :D
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/
7
Sunnudagur 13. apríl 2008 / 11:15 / Skjótt skipast veður í lofti
Jæja.... miklar breytingar hafa átt sér stað undanfarið. Breytingar sem ég vildi ekki skrifa um fyrr en allir væru búnir að frétta það sem standa mér næst. Ég og Ingi hættum nefninlega saman fyrir ekki svo löngu síðan og ákváðum að vera bara vinir í sumar og sjá svo til hvað verður.
Ég hinsvegar ætla að vera í borginni í sumar (sorry Mamma&Pabbi, Helga, Aníka, Freyja, Damma, Jói, Karen frænka.....) og hefur verið voðalega lítið mál fyrir mig að fá vinnu. Eiginlega þarf ég að velja! Ég er að fara í eitt viðtal í dag kl 18, annað á þriðjudaginn kl 15 og þriðja á miðvikudaginn kl ? (man það ekki aaalveg.. Afhverju setti ég það ekki inní Google Calendar?!) Mig hinsvegar langar mest í vinnuna sem ég er að tjékka á í dag. Ef þeim lýst vel á mig og mig á þá -- þá verður ekki aftur snúið held ég :) Segi ykkur seinna hvaða vinna það er!
---
Annars er ég komin í smá aukadjobb og það er í H10-Sport og Spa. Nýja líkamsræktarstöðin í Kórnum, Kópavogi.
Þar verð ég bara aukamanneskja sem kíki við annað slagið og tek eina og eina vakt. Það verður semsagt nóg að gera hjá mér í sumar og ég sé nú ekki fram á mikið sumarfrí, enda veitir manni svosem ekki af því að hafa nóg milli handanna næsta vetur!!
----
Ég er búin að vera dugleg að fara út á hverjum degi með Trixie mína, og er að gæla við þá hugmynd að hafa hana í sumar meðan eigandinn er á sjó. Hún er svo mikill gullmoli þessi elska, og fer afskaplega lítið fyrir henni, svona miðað við að hún er 46kg!! Ótrúleg brussa svosem, en með þvílíkt og annað eins jafnaðargeð! Dýrka þennan hund. Ef ég fæ vinnuna sem ég vonast til að fá þá get ég líka haft hana með á hverjum degi sem munar miklu. Annars er hún rúmlega 2ja ára og vön því að vera ein heima. Ekkert hvolpalífsvesen :)
----
Skólinn gengur sinn vanagang. Brjálað að gera núna, enda er hann búinn núna á föstudaginn, svo eru það bara prófin 9 maí og 14 maí (akkurat sitthvorumegin við afmælið mitt, frábært!)
Er að vinna í ritgerð sem þarf að skila á föstudaginn, lagfæra skýrslu fyrir 24apríl og ritgerð 2 maí. BissíBee verð ég að segja!
---
Jæja. Þetta voru örugglega miklar fréttir fyrir ykkur að innbyrgða, svo ég læt þetta duga í bili.
Knús á línuna!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/
5
Fimmtudagur 06. september 2007 / 00:34 / In Da City
Þá er maður búinn að koma sér almennilega fyrir og ég er ekki frá því að okkur Jóa hafi tekist að gera þetta bara ansi kósý svona miðað við það sem við höfðum úr að moða ;) Ég er allavega ekki enþá komin með fataskáp - og veit eiginlega ekki alveg hvernig ég ætti að koma honum fyrir,.. en er það ekki seinni tíma vandamál? :P
Skólinn fer vel af stað og ég er nú þegar búin að lesa eina bók og glósa úr henni. Dugleg.
Á föstudaginn er svo nýnemadjamm sem maður verður víst að mæta í. Ég á að mæta í einhverju gulu og þegar ég lít yfir fataskápinn á ég ekki eina einustu gulu flík. Jæks. Ætli ég fái ekki einhversstaðar keyptan gallann hennar Umu Thurman úr KillBill myndunum? Djöfull væri það svalt.
Ég fór með Söndru Péturs á þriðjudaginn og gekk frá samningi um stuðningsfjölskyldu og liðveislu. Já ég ætla að vera með hana Katrínu mína í Stuðning í vetur og líka í liðveislu. Það verður bara fjör að endurnýja kynnin.
Skrifa meira seinna, þarf að koma mér í bólið svo maður vakni nú á skikkanlegum tíma. Ætla á bókhlöðuna í fyrramálið og svo tími eftir hádegi. Elli og Perla buðu mér líka í mat annað kvöld. Gott að eiga góða að. Síðan fæ ég heimsókn annað kvöld og hlakka ekkert smá til þess.
Hafið það gott
Flutningar
/
2
Fimmtudagur 07. júní 2007 / 14:43 / Grímsey
Lífið á norðurhjara veraldar er svo ljúft að þið trúið því ekki! Ætla ekki einu sinni að reyna að segja ykkur hvað þetta er yndislegt því ég veit að þið trúið því ekki.
Fyrir þá sem ekki hafa náð að fylgjast með mér persónulega, þar sem ég hef ekkert komist á netið, þá ætla ég bara að byrja á byrjuninni.
Ég fékk vinnu á Kríunni, sem er veitingarhús/bar hérna í Grímsey. Unnur "frænka" og Svafar eiga staðinn ásamt öðrum hjónum. Ég flutti á miðvikudaginn síðasta til Unnar og Svafars í leikherbergið sem Sigrún Edda og Brá (dætur þeirra) eiga. Herbergið mitt er semsagt mjög bleikt, og mikið af dóti! Hehe.
Vinnan gengur mjög vel. Búin að læra flest allt og er líka búin að vera ein með hana síðan á sunnudaginn. Báðir eigendur í landi og engin stórslys á meðan ;)
Vinnutíminn minn er mjög breytilegur. T.d. núna er ég heima hjá Guðrúnu Ingu vinkonu og á að opna kl 6. Skemmtiferðaskip að koma í kvöld þannig að hugsanlega verður nóg að gera hjá mér sem er auðvitað frábært.
------
Það hefur verið nóg að gera hjá mér undanfarið þrátt fyrir
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
1
Þriðjudagur 08. maí 2007 / 15:16 / Síðasta vikan á Grensó ofl.
Þessi vika er síðasta vikan mín hérna á Grensó. Það er alveg ótrúlegt að hugsa til þess að núna á ég eftir að koma hingað bara örsjaldan - bara í heimsóknir....
Síðasti dagurinn minn er núna fimmtudagurinn 10 maí og þá fer ég heim á Hauganes.
Hinsvegar er ekki búið að bjóða mér í Eurovision partý?!! Hvað er málið??!!! Ég skil ekkert í þessum svokölluðu vinum mínum.. hmm? ;)
Spurning hvort að ég ætti bara að halda smá teiti heima á Hauganesi því þar er verið að ljúka við sólskálagerð. Agalega flott hjá gömlu hjúunum. Binni hennar Helgu er búinn að vera að hjálpa pabba að flísaleggja og þeir klára örugglega í kvöld eða á morgun. Snilld! :D
Annars er ég farin að sakna Helgu minnar mikið.. líka Aníku sem er alltaf í borginni! :( Baddý systir hefur verið niðursokkin í próf líka en það fer allt að lagast - prófin búin á föstudaginn,..
Föstudagurinn sem er víst AFMÆLISDAGURINN MINN!
Já ég er að verða 22ja ára. Geggjað ;)
Allir að muna að óska mér til hamingju á föstudaginn!
Flutningar
/ Lífið
/ vinir og vandamenn
/
3
Föstudagur 27. apríl 2007 / 15:12 / Breyttir tímar...
Jæja. Núna eru svo sannarlega breyttir tímar hjá mér. Ég er samt enþá að vinna á Krummafæti hérna á Grenivík en í staðinn fyrir að búa í íbúðinni okkar í Melgötunni, bý ég hjá Ingólfi og Fjólu. Harpa dóttir þeirra var svo góð að lána mér rúmmið/herbergið sitt þannig að ég er í góðu yfirlæti hjá þeim ;)
Margt hefur breyst á tveimur vikum. Eiginlega bara allt. Ég sótti um í H.Í. í síðustu viku og aldrei að vita nema maður fái inn þar næsta haust. Þá er ég barasta farin suður á bóginn! Af mölinni og á malbikið. Merkilegt nokk. Hélt að það ætti seint eftir að gerast, en það verður eflaust magnað. Ég er búin að fá vinnu í sumar á Sambýlinu í Snægili sem ég var að vinna á sumarið 2005. Við Linda vinkona erum svo að leita okkur af einhverri ágætis íbúð á Akureyri til að leigja í sumar. Ef þið vitið um íbúð þá endilega hafið samband!
Í dag er ég hinsvegar að fara suður með flugi kl 18:40 og síðan til Danmerkur á morgun með leikskólagellunum. Djöfull ætla ég að skemmta mér vel og líka að versla mér smávegis drasl ;)
Jæja. Verð að rjúka. Er í vinnunni og þarf víst að passa einhver börn??!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
9
Sunnudagur 15. apríl 2007 / 17:50 / Fréttir...
Ég er með fréttir sem koma örugglega mörgum á óvart.
Við Þorsteinn erum hætt saman og ég er flutt heim á Hauganes í bili. Ég veit ekkert hvert framhaldið verður þannig að það þýðir ekkert að spyrja að því ;) Við hættum saman núna á fimmtudagskvöldið þannig að þetta er allt saman óákveðið og framtíðin óljós.
Lífið heldur samt áfram og núna fer ég bara að einbeita mér að sjálfri mér sem ég hef ekki gert lengi.
---
Helga vinkona og family komu heim frá Neskaupsstað í gærkvöldi og það var alveg frábært að hitta þau. Mikið hef ég saknað þeirra. Eftir heimsóknina hjá Helgu ákvað ég að kíkja aðeins út á lífið með Freyju og Jóa. Það var alveg ótrúlega gott að fá sér smá rauðvín í góðra vina hóp. Við vorum ekki komin niður í bæ fyrr en kl 3 sökum anna hjá BSO og varð því djammið frekar stutt en óóóótrúlega gaman. Við gistum síðan heima hjá Freyju og vöknuðum "spræk" kl 11 í morgun.
---
Það er fínt að vera hérna heima á Hauganesi í faðmi fjölskyldunnar. Raggi bróðir, Sandra og Embla Lind eru hérna í mat í kvöld og Baddý og Þorsteinn Ingi eru á leiðinni til okkar líka. Ilmurinn fyllir húsið enda er mamma með eindæmum góður kokkur ;)
---
Veit ekki hvenær ég blogga næst.. veit ekki einu sinni hvar ég ætla að eiga heima eða hvar ég ætla að vinna.
---
Lífið er oft hverfult en maður verður bara að taka því með stóískrí ró og horfa björtum augum framá við.
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ vinir og vandamenn
/
11
Fimmtudagur 04. janúar 2007 / 15:16 / Gleðilegt ár 2007!
Jæja. Þá er komið nýtt ár með blóm í haga og syngjandi fuglum... eða svona næstum því þar sem það er nánast snjólaust hérna á Grenivík þó kuldaboli sjáist nú samt annað slagið.
Við erum semsagt alveg búin að koma okkur fyrir á Grensó, þó við eigum enþá eftir að sækja nokkra hluti til Freyju okkar ;) Enda ætlumst við eiginlega frekar til þess að hún komi með þá til okkar!!! :D Verður að fara að drífa þig í heimsókn fröken Freyja! ;)
Ég byrjaði núna 2.jan að vinna í Krummafæti sem er leikskólinn hérna. Það er alveg frábært að vinna hérna, 25 börn og 4 starfsmenn (+ afleysing og matráðskona)
Börnin eru öll alveg afskaplega ljúf og er ég búin að vera núna með yngstu krökkunum í samveru. Minn hópur er samt mið-hópurinn eða Danni frændi (hennar Siggu systir mömmu) og þeir félagar :) Mjög fínn hópur og fyrsta hópastarfið mitt gekk mjög vel þó það væri enganvegin undirbúið!! ;D Hehe
Dagarnir líða því frekar hratt núna. Ég kem heim úr vinnunni, og þá fer Þorsteinn í vinnuna! Ég er svo sofnuð þegar hann kemur heim og farin þegar hann vaknar. Mjög gaman eða þannig. Ég og Nick erum því ein heima mest öll kvöld og förum út að labba og kúrum í sófanum... jább hann má koma uppí sófa hjá okkur! Annað er bara ekki hægt þegar maður er alltaf einn heima :S :)
Jæja. Pásan mín hérna í leikskólanum er að verða búin, sem og vinnudagurinn (búin 16:15) þannig að ég læt gott heita í bili.
Gleðilegt ár allir!!
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/
3
Mánudagur 13. nóvember 2006 / 05:24 / Vinna
Bara svona minna fólk á að Þorstein vantar enþá vinnu þó ég sé komin með vinnu! :D
Endilega lítið í kringum ykkur hvort vanti fólk á ykkar vinnustað eða vinnustaði í kringum..
Ekki það að hann sé orðin eitthvað desperate, en það má alltaf hafa augun opin! ;)
Takk Takk
Flutningar
/
4
Mánudagur 06. nóvember 2006 / 06:07 / Happy-home!
Best að byrja þessa færslu á því að segja ykkur hversu æðislega vel okkur líður.
Við erum búin að kveðja Morgunroða-family-una og komin á besta stað í heimi! (Utan við Eyjarfjörðinn, að sjálfsögðu!)
Í dag fórum við með Ásu niður í Pismo að skoða vinnuna sem framundan er. Þetta er nú mest allt bara létt málingavinna og smá garðvinna, en fínn aukapeningur :) Gott líka að geta hjálpað Ásu.
Það er svo MIKLU betra að vera hérna að þið trúið því ekki. Hérna virkilega gerir fólk eitthvað með okkur - sýnir okkur eitthvað, spjallar og við skemmtum okkur alltaf vel. Eins og ég hef sagt ykkur áður, þá eiga Dóra og Eric bát sem við fórum með að Lake Lopez í dag. Þar fengu strákarnir að kenna á því í Vipernum (slangan sem er dregin á eftir bátnum) og það var algjör snilld. Ég reyndar fór ekkert í vatnið því það var alveg ógeðslega kalt. Strákarnir voru bara í blautbúningum.
Í kvöld var svo eldaður góður matur (eins og alltaf, Dóra er gríðarlega góður kokkur) og svo ís í eftirmat -- Eric ólst nefninlega upp á heimili þar sem var ALLTAF eftirmatur þannig að hér er alltaf eftirmatur...Mjög gott fyrir vigtina eða þannig..
Núna liggur Þorsteinn sofandi við hliðiná mér, og Gunni á dýnu til fóta! Hehe. Þetta er ekkert smá magnað ;)
Við byrjum svo að vinna í fyrramálið fyrir hana Ásu. Það verður fínt.
Meiri fréttir fáiði svo þegar Þorsteinn og Gunni blogga! (Ef það gerist þá einhverntíman)
og svo verð ég að reyna að koma inn myndum frá deginum í dag.. og ferðalaginu okkar hingað.. við fyrsta tækifæri.
Flutningar
/
8
Fimmtudagur 02. nóvember 2006 / 23:49 / lengsta vika lífs míns
Þessi vika er búin að vera svo ógeðslega lengi að líða að það er ekki venjulegt. Við hreinlega getum ekki beðið eftir því að FARA! -- Áður en lengra er haldið þá vil ég þakka kærlega fyrir kommentin. Æðislegt að heyra hvað það eru margir sem hughreysta mann þegar maður þarf á því að halda.
Já og Karen, við komum ekkert snemma heim. Það var svo ótrúlega mikið vesen að breyta fluginu okkar síðast, hjá DELTA airlines (rifumst við einhverja flugfélagskonu í tvo tíma síðast!) þannig að við ætlum bara að halda okkur við 17.des og njóta tímans sem eftir er :D --- svo ég haldi nú áfram á neikvæðu nótunum..
Í gær var til dæmis alveg æðislega skemmtilegur dagur eða þannig.
Ég lagði af stað að sækja Tj í skólann klukkan hálf 3, hann er búinn 14:35. Þar beið ég fyrir utan til tíu mín YFIR þrjú, semsagt í hálftíma. Þá var gafst ég upp og var að fara að keyra að ná í Christy, þegar Hróbjarturinn hringir.
"Sæl. það er leiklistaræfing hjá TJ þannig að þú þarft ekki að ná í hann. Christy fór með vinkonu sinni heim þannig að þú mátt ná í hana heim til vinkonar klukkan 4. Já og TJ langar í kók þannig að þú mátt fara að ná í kók handa honum!!"
Á þessari stundu langaði mig að GRENJA! En jæja. Ég fór auðvitað og keypti kók handa gullmolanum og þegar ég kom til baka þá fann ég hann hvergi, hana svaraði ekki símanum og ég labbaði með kók útum alla skólalóðina að leita af honum. Að lokum gafst ég upp og var að fara að keyra í burtu þegar hann hringir. Hann kom svo eftir svona 5 mín og náði í kókið sitt (sagði ekki einu sinni takk!) Þá var klukkan að ganga 4 svo ég fór beint að ná í Christy og beið eftir henni í svona 10mín. Ég kom heim rúmlega 4. Búið að taka mig rúmlega 1 og 1/2 tíma að sækja krakkana í skólann! Ohh hvað ég var pirruð. Sérstaklega þar sem þetta er EKKI í fyrsta skipti sem þetta kemur fyrir.
Já og þegar ég sótti Christy, þá vildi hún endilega fara á IN-N-OUT að fá sér hamborgara og ég sagði bara "ekkert mál" þar sem dagurinn minn var hvort eð er farinn eitthvert útí rassgat.
Ekki á morgun heldur hinn......! :D :D
Flutningar
/
5
Þriðjudagur 31. október 2006 / 20:24 / Sjóðheitar fréttir!!
Blogg 30 okt 2006
Jæja, hérna koma góðu fréttirnar. Í morgun hringdi ég í Morgunroðann og sagði honum að við værum ekki sátt við 175 dollara á viku.. að við vildum meiri pening. Hann var ekki sammála og þar með tókum við þá ákvörðun að fara til SLO (San Luis Obispo) og vinna fyrir Ásu mömmu hennar Dóru í einhvern tíma, ferðast, leika við krakkana og njóta lífsins það sem eftir er af dvöl okkar hérna. Jább. Við ætlum að yfirgefa Simi Valley fyrir fullt og allt núna um helgina!!
Ohh við erum öll svo innilega ánægð með þessa ákvörðun. Robert vill fá mikla vinnu, og ekki borga rassgat og það einfaldlega virkar ekki þannig. Ég vildi bara óska að við gætum tekið konuna hans með okkur í handfarangur.. það væri draumur. Mér finnst ömurlegt að skilja hana eina eftir hjá þessum grasasna.
En jæja,.. hún er fullorðin og getur tekið sínar eigin ákvarðanir.
Gunnar Örn stefnir á heimferð 21nóvember (sem er btw afmælisdagurinn hans!) og kannski skellum við okkur bara heim með honum... það er aldrei að vita! Ég veit allavega að Þorsteinn er kominn með heimþrá ;)
Ég væri hinsvegar alveg til í að klára dvölina okkar hérna, eða fara aðeins fyrr heim.. eins og í byrjun des eða 10 des eða eitthvað. En það er seinni tíma ákvörðun. Núna í augnablikinu ætlum við að (reyna) klára vikuna okkar hérna, pakka saman og taka lest til SLO. Dóra og Eric bíða spennt eftir komu okkar - en ég reyndar er nokkuð viss um að Thor og Emma eru spenntari :)
Good bye Simi Valley ---- Hello San Luis Obispo! :D
Nýjar myndir hérna
Flutningar
/
12
Þriðjudagur 13. júní 2006 / 17:02 / Ýmislegt
Loksins fann ég mér tíma til að blogga (já eða bara loksins nenni ég því!). Ætla að taka saman smá "pistil" um undanfarna daga sem hafa verið rosalega skemmtilegir eins og allir aðrir dagar í lífinu ;)
Á föstudaginn fór ég í óvissuferð með 4.bekk í MA sem var ekkert smááá skemmtileg. Við áttum víst að mæta með útprentað kort af Skagaströnd! Ég vissi strax að það var bara trix og prentaði ekki út neitt kort. Það runnu nú samt á mig tvær grímur þegar rútan lagði af stað og fór ekki í átt að Leirunni heldur í átt að Skagaströnd!! EEEnnn sem betur fer var það bara grín og við snérum við á Húsasmiðju-planinu. Fyndið!
Næsta djók-stopp var Vaglaskógur. Vorum komin þangað rétt um 4 leytið og vorum nú ekki alveg sátt við það að fara ekki lengra en bara í Vaglaskóg! En eins og áður þá var það bara grín og við héldum sem leið lá að Húsavík þar sem við fórum í sund, stoppuðum svo á einhverju túni á leiðinni í Ásbyrgi og fórum í leiki. Mjög gaman það.
Við komum svo í Ásbyrgi svona uppúr 20 og þá var maður aðeins orðin tipsy enda opnaði ég fyrsta ölinn á Húsavík. Kvöldið leið ótrúlega hratt og var alveg geeeggjað gaman! Ég átti mín móment. Byrjaði á því að sýna "frábæra" takta í fótbolta (ég er búin að átta mig á því að ég mun aldrei getað sparkað sómasamlega í bolta...) svo datt ég svona skemmtilega þegar Jón Ingi tók mig á hestbak. Uppskar beygjað bak og boginn háls, en það var alveg þess virði því þetta var alveg ógeðslega fyndið fall hjá mér. Síðasta en ekki sísta skemmtiatriðið af minni hálfu var svo þegar ég tók sprett, þvert yfir tjaldstæðið, en flaug (í bókstaflegri merkingu) á hausinn þegar löppin á mér flæktist í tjald-bandi. Á meðan ég var að detta (sem tók mig allavega 20sek) þá öskraði ég svona skemmtilega þannig að mér tókst að láta nánast allan 4.bekk horfa á mig detta svona laglega. Jæja. ég bjó allavega til ágætis minningu með þessum föllum mínum, og ekki bara minningu fyrir mig því ég frétti að fólk væri enþá að tala um það hvað ég var misheppnuð þetta kvöld. Af myndunum að dæma sem ég sendi hingað inná síðuna mína, þá skemmti ég mér konunglega! Hinsvegar var laugardagurinn ekki alveg jafn skemmtilegur. EKki gott að vakna þunn, í tjaldi og í svona 20+ stiga hita! Rútuferðin heim var hinsvegar alveg ágæt, svaf, mest alla leið enda svaf maður ekki mikið um nóttina. Sökum þynnku þá tókst mér ómögulega að mæta í útskriftarveisluna hjá Helga Hrafni (hennar Aniku) og er ég eiginlega enþá í smá bömmer yfir því :( Sorry guys! :(
Um kvöldið drullaði ég mér þó í partý til Ingu sem var mjög skemmtilegt. Ennnnn hinsvegar gafst ég upp svona um miðnætti því fólk var orðið frekar drukkið og maginn minn kominn á hvolf við að horfa á fólk skola niður öllu þessu áfengi þannig að ég dreif mig bara heim. Takk samt Inga mín fyrir ótrúlega skemmtilegt partý! :D Gaman að hitta þig og alla hina! Á sunnudeginum fórum við Þorsteinn eldsnemma á Amour að þrífa (síðsta helgin mín!) og var það ágætt. Eftir þrifin fórum við svo í æðislega sjómannadagssiglingu á Huldunni með pabba og vegna þess hversu frábært veðrið var þá var siglingin rúmlega 2 klst löng! Við fórum í hvalaskoðun og sáum hrefnur og svo sáum við líka hnýsu með lítinn sætan kálf. Eftir siglinguna fórum við í afmæli til Sigríðar Eddu og átum á okkur gat - Enda tengdafjölskyldan mín ekki þekkt fyrir annað en frábærar veislur!
Núna er bara undirbúningur á fullu fyrir næstu helgi. Mamma hefur nú alltaf haft græna fingur, en núna er hún barasta eins og HULK (öll orðin græn) því hún er alveg að missa sig í garðinum. Maður uppsker víst eins og maður sáir og ég held að garðurinn hafi aldrei litið betur út. Á morgun er svo síðasti vinnudagurinn minn á Amour og á fimmtudaginn kemur Baddý systir heim úr 3vikna reisu á Ítalíu. Föstudaginn er svo æfing fyrir útskriftina sem verður á laugardaginn. Sunnudaginn er svo veisla hérna heima og á mánudaginn förum við Þorsteinn suður og klukkan 17:00 á þriðjudaginn fljúgum við Þorsteinn út á vit ævintýranna!!!
Mér finnst tíminn vera að hlaupa frá mér, en samt er ég eitthvað svo afspyrnu afslöppuð yfir þessu öllu saman.
Það borgar sig svo sannarlega að hugsa bara: "Þetta reeeeeddast!"
Flutningar
/ Lífið
/ Lífstíll og matur
/ vinir og vandamenn
/
3
Fimmtudagur 08. júní 2006 / 16:12 / Einkunnir
Lífsleikni = 10
Íþróttir = 10
Sálfræði = 9
Mentor = 9
Uppeldisfr. = 9
Saga = 8
Ekki slæmt svona síðustu önnina! :D
Við Þorsteinn fórum eitthvað að erindast inná Ak í dag. Skruppum í Bókval og eyddum þar dágóðri summu í bækur.
Keyptum okkur svona pocket-bækur um Los Angeles, San Francisco og Las Vegas. Svo keyptum við líka stærri bók um LA og eina um Californiu. Keyptu líka 3 flugvéla-bækur. Þorsteinn keypti sér ævisögu Michael Owen og ég keypti Draumalandið eftir Andra Snæ og bók sem heitir On the run - svona til að æfa mig í enskunni ;)
Brottför nálgast á svo gríðarlegum hraða að ég veit bara ekki hvernig ég á að haga mér! Úff úff...
Flutningar
/ skóli
/
5
Mánudagur 05. júní 2006 / 15:06 / Svar við kommenti
Jæja. Ég ætlaði nú eiginlega ekkert að blogga í dag. Fékk hinsvegar spurningar frá Svönsu vinkonu í London í kommenti og skrifaði komment til baka. Það varð hinsvegar svo gríðarlega langt að ég ákvað að búa bara til færslu úr því svari.
Hérna kemur þetta - líka smá svar til Söndru ;)
Sandra: Já að sjálfsögðu megiði kíkja til mín fyrr - bara spurning hvort að það verði eitthvað í boði þá?!! Híhí.. jú það verður nú auðvitað eitthvað til handa ykkur að narta í. Ætla að hafa kjúkl.salat (sem við gerðum einu sinni saman!) og líka pastasalat þannig að þið fáið örugglega eitthvað í gogginn :) Láttu mig bara vita svona nokkurnvegin tímasetningu svo maður geti nú verið búin í lagningu ;)
Svansa: Já það er alltaf gott að vera forvitin ;) Í desember var stefnan tekin á skóla í Svergie nk haust. Á rúntinum fórum við Þorsteinn að tala um Guðný vinkonu okkar sem var að fara sem au-pair til Ítalíu þá í Janúar og ég sagði að ég væri sko alveg til í að vera svona au-pair. Mér til mikillar furðu (en samt ekki) þá sagði Þorsteinn "Já ég væri alveg til í það líka.." Þannig að þá var rúntinum hjá okkur lokið því við brunuðum heim og ég googlaði nokkrar au-pair síður (misgóðar) og setti inn nokkrar auglýsingar þar sem við auglýstum okkur sem Au-pair couple. Það gekk vonum framar og fólk í Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Ástralíu og BNA sem sýndi okkur áhuga. Fljótlega varð okkur ljóst að við hefðum lítið að gera tvö til Frakklands, Þýskalands og/eða Ítalíu þar sem fólkið þar hafði ekki svo mikið handa okkur að gera. Hinsvegar í Ástralíu var okkur boðið að vinna á vínekru þegar við (ég) væri/um ekki með börnin. Þau hinsvegar gerðu ekki ráð fyrir neinum ferðalögum af okkar hálfu og sögðu bara að þau vildu að við ferðuðumst áður en við byrjuðum að vinna hjá þeim. Á meðan við vorum að tala við Áströlsku hjónin þá vorum við einnig í smávegis e-mail sambandi við mann í Californiu. Við sendum nokkra e-maila á milli og svo spurði hann hvort hann mætti einhverntíman hringja. Ég gaf honum upp heimasímann og svo pludselig hringdi síminn og það var Robert. Eftir hálftíma spjall þá sagði hann bara "hvað þarf ég að bjóða ykkur svo þið komið frekar til okkar en farið ekki til Ástralíu?!" og svo bauð hann okkur ýmis fríðindi sem við hefðum ekki fengið í Ástralíu og þá var bara gerðum "munnlegur samningur" og ákveðið að við færum til Californiu!
Sem betur fer er Ása í Selvík (litla húsið beint á móti gömlu búðinni hérna á Hauganesi) búsett í Cali ásamt dóttur sinni og tengdasyni. Ég hafði samband við Ásu og Dóru dóttur hennar og Dóra fór svo og heimsótti Robert og hitti börnin/skoðaði aðstæður fyrir okkur og gaf grænt ljós á allt saman. Þá vorum við alveg 100% á því að fara þar sem við vorum búin að fá smá "garentí" fyrir því að þetta væri allt saman a-okay! Þetta var semsagt milliliðalaust og ekki í gegnum nein samtök þar sem BNA LEYFA EKKI KARLKYNS AU-PAIR! Algjörlega fáránlegt. En whaddaheck, þetta gekk og við erum í skýjunum!! Brottför eftir.. tja 15 daga?! :D
Au-pair síðurnar sem ég notaði voru, að ég held:
www.aupairinamerica.com
www.greataupair.com (þar fann Robert okkur)
www.aupair.com
www.aupair.net
ofl ofl ofl...
Flutningar
/ Lífið
/
4
Sunnudagur 04. júní 2006 / 00:11 / Bloggidiblogg
Hvar skal byrja. Þessi helgi er svo ótrúlega viðburðarrík. Fór í síðasta prófið mitt í MA núna á föstudaginn. Fékk nettann fiðring í magann þegar ég var komin að svona spurningu nr 60 í prófinu (100krossa spurningapróf) því þar kannaðist ég bara ekkert við að hafa lesið nokkuð um Kína, en næstu 10 spurningar fjölluðu einungis um Kína! Ég hélt að ég hefði bara verið svona mikill tossi en nei nei, kennarinn var bara sjálfur tossi og setti ÓVART inn spurningar úr kafla sem við áttum ekkert að lesa! Svona er þetta þegar kennarar reyna að sleppa auðveldlega og gera bara copy/paste við gamallt próf!! Busted! ;)
Eftir prófið fórum við Anika niður á Amour að skúra (Takk Anika!!) og svo fór ég í smá verslunarleiðangur að leita mér að fötum (bol) fyrir ferminguna hennar Sunnu sem er á morgun (í dag, það er víst komið miðnætti!) Ég fann hinsvegar ekkert og fór því tómhent til Grensó í klippingu til Sveinlaugar. Frá henni kom ég út sem algjör red-head og keypti meira að segja djúpnæringu sem heitir "Dumb Blonde!" .. mjög fyndið nafn. Djúpnæringin er reyndar líka fyrir Racy-Redhead sem ég veit ekki alveg hvað er. Spyr að því þegar ég er komin til Ameríku. ;)
Næsti dagskráliður var að ná í Þormar. Hann vildi að sjálfsögðu koma til mín strax og við brunuðum heim á Hauganes eftir að hafa erindast smávegis í bænum. Um kvöldið var ég svo þreytt að ég sofnaði meðan ég svæfði Þormar, og sofnaði svo aftur í sófanum inní stofu fyrir kl. 11. Það var mitt próflokadjamm ;) híhí
Dagurinn í dag byrjaði með þessum orðum "Hæ.. máé fala flammúl?!" og þar með var ég ræst, klukkan 9 í morgun.. Reyndar fínt að fá að sofa til 9! Við dúlluðum okkur í garðinum, fórum í heimsókn til Höllu og Sævars úti á Sand og nutum svo bara veðurblíðunar hérna heima við. Ég þvoði líka í leiðinni svona 5 vélar (af þvotti sko) því það var svo góður þurrkur (já já, þó ég sé hætt að búa sjálf þá leynist samt enþá í mér húsmóðir!)
Elsku Danni frændi kom svo seinnipartinn með foreldrum sínum. Mamma kom heim úr bænum með "pakka" handa mér, en hún fór í búðir fyrir mig og keypti fyrir mig tvo boli/kjóla sem eru geggjað flottir! Héðan í frá læt ég einhvern annan versla á mig föt því ég finn mér aldrei neitt, en er alltaf ánægð með það sem aðrir finna á mig!!
Kvöldmaturinn í kvöld var svo borðaður í góðu yfirlæti hjá tengdaforeldrum Dagnýjar systur. Gauja eldaði glæsilegan KALKÚN sem var ógó góður. Rögnvaldur gerði svo gríðarlega gott Waldorf-salat með matnum ;) Hjá þeim var setið við langborð því við vorum hvorki meira né minna en 9 fullorðnir og 4 börn. Gaman að því. Misjafnlegar málefnalegar umræður við matarborðið en það var mjög skemmtilegt hjá þeim og alltaf gott að koma til þeirra.
Að sjálfsögðu sofnaði ég meðan ég svæfði Þormar í kvöld um 9 leytið, sem gerir það að verkum að ég er ekkert þreytt núna eins og sést á þessum ótrúlega langa pistli mínum. Ég er að rústa Söndru í langri-pistla-gerð! :D
Ég fékk líka gleðifréttir í dag. Þorsteinn hefur lokið skyldustarfi sínu í Laufási og er nú kominn til að vera hjá mér, ma og pa. Ef ég tel saman dagana sem við höfum hisst frá því 2.mai þá slagar það varla uppí viku! Alveg ömurlegt.. en hey, eftir hálft ár saman í Cali þá mun ég pottþétt segja "get outah my face, f**k faceah!" ;) - Neh þarna var ég nú bara að slá á létta g-strengi! (Eins og Björnsson orðar það) Hætt þessu rugli,.. held áfram með hinn hefðbundna pistil:
Morgundagurinn hefst á sundi í Þelamörk, eða á Dalvík. Svo tek ég mig til og bruna til Grensó í fermingarveislu aldarinnar. Veisluþjónusta Ólínu sér um þessa fermingarveislu svo ég er viss um að ég verði ekkert svikin af því sem verður á boðstólnum þarna. (Veisluþjónusta Ólínu a.k.a. Olla mamma hans Þorsteins og fermingarbarnsins!)
Jæja. Pabbi er farinn að tuða yfir því að ég þurfi að fara að sofa. Ætli hann sé ekki bara að hugsa um símreikningin þar sem þau eru svo gríðarlega ekki-móðins og eru því tengd með módemi!! (Úff ég trúi ekki að ég sé að segja frá þessu.. svo ógó hallærislegt, skilurru!) :D
Góða nótt dyggu lesendur og komið vel fram hvort við annað - nema þið séuð óvinir, þá er í lagi að vera leiðinlegur!
TTYS (Talk To You Soon!) - Alltaf að æfa mig í slettunum...
Hanna
Flutningar
/ Lífið
/ heimilið
/ skóli
/ vinir og vandamenn
/
2
Mánudagur 29. maí 2006 / 13:16 / Las Haugas - El Grenó
Jæja. Þá erum við endanlega flutt frá Akureyri um óákveðinn tíma. Ég dvel á Hauganesi í góðu yfirlæti hjá mömmu og pabba (núna eiga kílóin pottþétt eftir að koma aftur hehehe)
Þorsteinn er hinsvegar á Grenvík og "dundar sér" í Laufási alla daga. Fyrsta prófið mitt er á morgun, og það síðasta er á föstudaginn. EIns og mér einni er lagið þá er ég ekki enþá byrjuð að læra, og tókst að týna glósum úr söguáfanganum.. þannig að gangi mér vel!!
Núna sit ég heima hjá Helgu og BInna og er að reyna að mana mig uppí að nenna að klára eitthvað af verkefnum dagsins. Það er ótrúlega mikið mál að flytja svona - sérstaklega þegar maður er algjörlega að sjá einn, um tvo einstaklinga þar sem það er nú ekki mikil hjálp í Þorsteini meðan hann er í Laufási. Hann tók þó marga (örugglega slagað uppí hundrað!) góða spretti um helgina með kassa niður í geymslu, og þvottavélar útí bil. Hann er svo duglegur ;) Geymslan er semsagt núna algjörlega pakk stöppuð, en til að spara óprúttnum þjófum sporin, þá segi ég ykkur það bara strax að allt verðmætt er komið í pössun hjá Freyju frænku - Jáá okey, ekki alveg allt. En Freyja er með sjónvarpið, skenkinn og grillið ásamt fullllt af smáhlutum! Takk Freyja!! :D :D Ef ykkur hinsvegar langar í viskustykki, tuskur, gömul föt, glös eða sendibréf úr 10.bekk þá er ykkur velkomið að grynnka á draslinu í geymslunni ;)
Það styttist svo rosalega í það að við förum út. Í dag eru bara 22 dagar þangað til!!! TÖTTUGU OG TVEIR! Tíminn líður svo hratt!! Fór einmitt í heimsókn til Siggu "systir" og kyssti börnin hennar bless því ég á ekki eftir að sjá þau fyrr en um jólin! Þá verður Birna farin í skóla.. og Karen byrjuð í 8.bekk!!
Úff - eitthvað er ég viss um að það eigi nokkur tár eftir að falla þegar ég kveð mömmu og pabba á flugvellinum 19.júní. En það bíða spennandi tímar framundan og nóg að gera fram að brottför!
Lifið heil, en ekki hálf!
Flutningar
/
3
Föstudagur 26. maí 2006 / 13:21 / Flutningar og kosningarbaráttan
Flutningar hófust formlega í gær. Ma og Pa komu og hjálpuðu mér að flytja, og svo fékk ég einn riddara (eða ridduru?) á hvítum hesti til að aðstoða mig, en það var hún Freyja frænka (Freyja, þú klikkar ekki!!, snillingur!) Núna er hálft hafurtaskið mitt komið í kassa - en þessi helmingur sem eftir er virðist vera alltof mikið :( :( Þetta er ekkert smá leiðinlegt og "erfitt" þ.e.a.s. að skipuleggja allt þetta dótarí og drasl. Ég hef aldrei áður flutt úr heillri íbúð! Yfirleitt bara verið með smá eldhúsdót og svo dótið í mínu eigin herbergi. Núna hinsvegar hafa allir skápar verið fullir og drasl í hverri einustu smugu. En jæja, þetta hefst allt saman að lokum.
Þegar ég hef lokið við að pakka úr svefnherb.skápunum þá ætlum við Helga vinkona og Dagur að kíkja niður í bæ því þar er allt að gerast. Kosningarbaráttan er að ná hámarki þar sem kosningar eru á morgun. Við Helga erum báðar svona nokkurnvegin óákveðnar um hvað skal kjósa, og ákváðum að sá flokkur sem grillar besta matinn og hefur skemmtilegustu dagskránna - fær okkar atkvæði!! Allavega útilokaði L-Listinn sig algjörlega þegar hann birti barnalegustu og bjánalegustu "auglýsingu" í dagskránni í fyrradag. Þetta snérist svo við hjá greyjunum og held að þetta hafi nú skemmt meira fyrir þeim heldur en sjálfstæðisflokknum. Algjörir bjánar þetta lið.
Jæja. Best að hafa sig af stað - illu er best aflokið!!
Flutningar
/ Lífið
/
0
Þriðjudagur 23. maí 2006 / 13:22 / Biðin
Er skrítið að maður getur ekki beðið eftir brottför frá þessu landi, þar sem núna er suddalegasta veður ever og við að fara að dimmitera á morgun!!
Svo bætir það ekki úr skák að þennan e-mail fékk ég í gær frá Rob í Simi Valley:
"Hi there Frosty,
Too bad, so sad, since we had nice warm sunny days here , so much so that we even went into the pool two days last week (LOL! nyah nyah...) hee hee
We're telling everyone about you, and looking forward to your arrival. Roll up your sleeves, cuz we've got LOTS of work to do :D and bring your smiles cuz we'll have lots of fun too.
Warm, sunny regards,
Rob"
Buhuhu...
Af flutningunum er það að frétta að við erum að reyna að koma út síðustu hlutunum okkar.Össi móðurbróðir ætlar þó að grípa inní ef að allt bregst og taka sófasettið okkar híhí.
Subaruinn er að virka vel núna, þar sem Þorsteinn keyrir í ófærðinni á milli Grenivíkur og Laufás. Fór í morgun klukkan 05:30 í Laufás í þriðja gír því það var svo ófært! Hehehe
Það borgar sig stundum að eiga bensínhák ;)
Jæja. Nóg að undirbúa fyrir dimmiteringuna. Partý annað kvöld á Amour á miðnætti! Allir að mæta í búningunum sínum og dansskónum :)
Flutningar
/
2
Mánudagur 15. maí 2006 / 23:27 / Sala Sala!
Jæja. Hlutirnir mínir rjúka út þessa stundina. Össi bróðir mömmu var að enda við að kaupa þvottavélina og ísskápinn. Sandra mágkona skellti sér á litla "náttborðið" og fær í kaupbæti að geyma dvd-spilarann og heimabíokerfið um óákveðinn tíma :)
Freyja frænka keypti sjónvarpið og einhver þýsk gella fjárfesti í sjónvarpsskápnum okkar. Þetta þýðir að það eina sem er eftir er:
3+1+1 sófasett + sófaborð í stil. tilboð: 35þúsund!
3ja sæta Tomelilla sófi úr IKEA. 2ja ára. Laust áklæði sem má þvo! 30þúsund
Blár stakur stóll úr Rúmfó, rosa flottur. 5.000-
Sófaborð með glerplötu og hliðarborð í stíl. Saman á 15.000kr
Tölvuborð úr Rúmfó. Vel með farið. 5000.-
Þetta er nú ekki mikið og vonandi selst þetta sem fyrst svo við fáum nú pening uppí flugmiðann okkar og þá þurfum við ekki að geyma þessa hluti um óákveðinn tíma!
Ef þið vitið um einhvern sem vantar eitthvað af ofantöldu þá endilega látið sá hinn sama hafa samband við mig í síma 848-5552! :D
Koma svo gott fólk! Styðja okkur Þorstein! :D
Flutningar
/
1
Mánudagur 15. maí 2006 / 16:50 / Flutningar
Núna er allt að bresta á í samb. við þessa blessuðu flutninga. Það virðist ríkja smá misskilningur hjá fólki þegar ég tala um að við séum að flytja núna 1.júní. Við erum ekki að fara til útlanda þá! Við munum þá flytja (að öllum líkindum) til Grenivíkur þar sem Þorsteinn er að vinna í Laufási fram að brottför sem verður 20.júní.
Við erum komin með leigjendur (ef ég var ekki búin að segja ykku frá því) en það er ungt par með 8 ára strák. Mér líkar alveg rosalega vel við þau og held að þetta eigi eftir að ganga vel (crossing my fingers!).
Við erum ekki enþá búin að selja neitt af ráði, en ég stefni á að birta enn og aftur auglýsingu í dagskránni núna á miðvikudaginn. Okkur tókst þó að selja sjónvarpsskenkinn okkar og núna stendur sjónvarpið á stofuborðinu - mjög smekklegt! Sjónvarpið er þó hálfeinmanna þessa dagana og getur ekki beðið eftir því að komast til nýrra eigenda sem eru Freyja frænka og Trausti frændi.
Sófasettið stendur óhreyft í stofunni, og blái sófinn er enþá í pössun hjá Kristínu. Við ætlum þó að sækja sófann og borðið til Kristínar í vikunni og vonandi verður það farið fyrir helgi.
Við erum búin að gera loka"samning" við Robert í útlandinu, og hljómar sá samningur bara askoti vel og ég stefni að því að sækja um í California State University Northridge þegar ég kem út, og þá get ég jafnvel byrjað í skólanum í Janúar :D Það væri algjör snilld.. en mig langar samt pínulítið að vera aðeins lengur í fríi. Háskóli í USA hræðir mig pínulítið... sérstaklega fjárhagslega! :S -- Það er semsagt alveg inní myndinni að við komum heim 18desember og förum aftur strax í byrjun Janúar eða milli jóla og nýárs! Þ.e.a.s. ef okkur líkar vel þarna og allt gengur upp! :D (Sem við vonum að sjálfsögðu!)
Talandi um peninga - þá fékk ég nú margar góðar gjafir á afmælisdaginn. Anika & Helga (ásamt viðhengjum) gáfu mér dollara í gjaldeyri, sem og ma+pa+baddý+Píla. Núna erum við Þorsteinn vel sett af gjaldeyri :) Gunni frændi Þorsteins gaf mér æðislega flott leikfanga-hesta-sett sem heitir "Black Beauty" og varð mér þá bara hugsað til tengdapabba híhíhí. Já - hann gaf mér líka Pez sem ég er sjálfsögðu búin með! :D
Dagný systir og viðhengin hennar sendu mér svo pakka alla leið frá borginni. Í honum var Blue Lagoon húðvörur, bodyscrub og lotion og verður alveg frábært að hafa það með til útlanda.
Annars held ég að ferðataskan verði hálftóm á leiðinni út þar sem við Þorsteinn fórum, mjög kaldlynd, í gegnum fötin okkar og gáfum heilan ruslapoka til Rauða Krossins, og hentum svo öðrum ruslapoka. Ég gaf líka 2 haldapoka af skóm!! Það sem maður safnar að sér er alveg ótrúlegt....
Næstu helgar eru svooo ótrúlega vel skipulagðar að það er ekki venjulegt.
Svona hljómar dagskráin fyrir þau ykkur sem nenna að lesa (aðrir geta bara hætt núna!)
19-21 Maí: Ráðstefna í Kvosinni - strákarni koma
26-28 Mai: Flutningar - aðstoð vel þegin!
2-4 Júní: Sunna fermist!!! - Afhending íbúðar
9-11 Júní: Anna Birna útskrifast - óvissuferð á vegum 4.bekkjar í MA. - Partý hjá INGU!!!! :D
16-18Júní: Útskrift og útskriftarveisla - note to self: Klára boðskort og senda!!
23-25Júní: Komin til útlanda = Slappa af í SIMI VALLEY og njóta þess að slappa af! :D
Úff... hvernig á maður eiginlega að hafa tíma til að gera allt sem maður þarf að gera í lífinu?! Það verður svo notarlegt að breyta aðeins til og hafa eitthvað annað að snúast í kringum en undirbúning og skóla. Áhyggjur mínar í sumar verða örugglega hvort að krakkarnir hafi ekki alveg örugglega gert heimavinnuna sína, hvort að gluggarnir séu nokkuð skítugir og blómin í garðinum dauð vegna þurrks. Já - lífið á svo sannarlega eftir að breytast!!
Flutningar
/ Lífið
/
3



