Eftirfarandi eru færslur í flokknum Bækur
Föstudagur 04. janúar 2008 / 00:13 / Bækur...
Þó ég hafi ekki fengið eina einustu bók í jólagjöf þessi jólin (eins og flest önnur jól, fólk veit líklegast ekki af því að ég er algjör bókaormur) þá naut ég þess alveg í klessu að lesa hinar ýmsu bækur sem Baddý systir fékk, Óli mágur og líka þær sem Baddý tók á bókasafninu.
Ég byrjaði á því að lesa 11 mínútur eftir Paulo Coelho sem fjallar
Miðvikudagur 21. mars 2007 / 16:32 / Bókaflóð
Ég er að lesa frábæra bók núna sem heitir DÍS og er eftir þrjár ungar konur. Ég las hana reyndar rétt eftir að hún kom út, en var bara búin að gleyma því hvað þetta er mikil snilldar lesning!
Þetta er bók sem hægt er að lesa aftur og aftur með nokkru millibili.
Ég las líka um daginn bókina "Flugdrekahlauparinn", las hana reyndar á ensku (The Kite Runner) og þar að auki í flugvélinni á leiðinni til Hawaii. Fólk sem við spjölluðum við á flugstöðinni var alveg furðulostið að ég, Íslendingurinn, væri að lesa enska bók og þar að auki Á ENSKU! Alveg fáránlegt! Sá pínu eftir því að vera ekki að lesa "Draumalandið" eftir Andra Snæ því sú bók hefði vafalaust vakið upp miklar umræður.
Ég er líka búin að glugga í bók sem heitir Revolution in World Mission og er eftir K.P. Yohannan. Þá bók fékk ég í Cornerstone kirkjunni í Simi Valley. Þar var þessi maður með fyrirlestur sem var alveg hreint frábær. Hann er mikill guðsmaður og boðaði boðskap krists um Indland þegar hann var ungur. Skemmtileg lesning og margt fallegt í þessari bók. Hef samt ekki klárað hana, þetta er meira svona bók til að glugga í en að lesa hana spjaldanna á milli.
Í útskriftargjöf í fyrra (frá henni Hóffu núverandi-yfirmanni mínum!) fékk ég bókina "Gæfuspor - Gildin í lífinu" eftir Gunnar Hersvein. Sú bók er alveg frábær og gott að leita í hana þegar manni líður eitthvað illa, er fullur af öfund eða er pirraður á því hvað einhver er latur. Eftir að hafa lesið í þeirri bók þá einhvernvegin er maður rórri, skilur afhverju fólk er svona (ömurlega) latt, frekt, leiðinlegt, sorgmætt eða bara eitthvað . Manni hættir nefninlega til að dæma aðra of fljótt, en áttar sig ekki á því að líta í eigin barm og hugsa "afhverju líður MÉR svona gagnvart þessum aðila?" Snilldarbók. Takk Hóffa!
Aðalbókin er samt "The bedside dream dictionary" sem er tja, já jú við getum eiginlega sagt á náttborðinu hjá mér! Þessi bók er svo æðisleg að ég hef aldrei notað hana neitt af ráði. Manni dreymir alltaf svo mikla bölvaða vitleysu að það tekur sig ekki að fletta uppí þessari bók, en það er samt gríðarlega gaman að eiga hana EF manni skyldi nú einhverntíman dreyma eitthvað gáfulegt! :)
----
Nóg af bókum.. tölum um eitthvað skemmtilegra!
----
Við bíðum spennt eftir þessum fötum! Jább loksins hefur Kimberly komið sér í það að senda af stað fötin okkar frá Simi Valley. Hún ætlar líka að senda derhúfu sem Þorsteinn gleymdi þar, og líka einhverjar myndir sem við vorum búin að setja á CD.
Ég sendi myndir í framköllun í gegnum Snapfish núna um daginn og þeir klikka ekki frekar en áður og myndirnar voru komnar í hús (úti í USA) 3dögum seinna! Algjör snilld. Dóra og Eric fóru í gegnum þær og tóku einhverjar sem þau vildu fá (lét gera 2 copy af öllum). Emma og Thor, börnin þeirra, fóru líka í gegnum myndirnar með þeim. Þau fundu eina mynd sem var GRÍÐARLEGA áhugaverð og vildi Emma helst ramma hana inn og sýna gestum sem kæmu í heimsókn! Það var nefninlega mynd af honum Gunna, stórfrændi og vinur Þorsteins, sitjandi á klósettinu hérna heima í Melgötu 4a,... með buxurnar á hælunum, ber að ofan og stærsta bros í heimi! Snilldar mynd sem fer eflaust í einhver jólakort næstu jól! ;)
En allavega, Dóra og Eric ætla að senda myndirnar til okkar núna bráðlega!
Það er svo gaman að fá pakka frá útlöndum! ;)
----
Við Þorsteinn erum komin með leigjanda að íbúðinni okkar í Hrísó. Fertugur sjómaður. Vonandi gengur það vel :)
Erum bara í því núna að mála og fínesera íbúðina. Það hinsvegar gengur ekkert alltof vel! Erum heldur löt í því, enda svoooo leiðinlegt þegar við erum að vinna á svona mismunandi tímum og komumst ekki á sama tíma í verkin. En jæja þetta bjargast alltaf einhvernvegin.
----
Þangað til næst.. yfir og út!
----
p.s. takk fyrir skemmtileg komment þið sem hafið kommentað! :D




6