Þriðjudagur 20. apríl 2010 / 17:44 / Föst í London
Það er ekki annað hægt að segja en þessar Bretlandsferðir mínar séu ansi tíðindamiklar. Þegar við fórum fyrstu ferðinna börðust bretar við mestu snjókomu sem þeir höfðu séð í yfir 30 ár. Núna berjast þeir við mestu hálofta-ösku sem nokkurntímann hefur sést.
Ætli þetta sé merki um að við eigum ekki að koma inn fyrir breska lögsögu?
Hvað sem því líður þá erum við allavega ánægðar að hafa húsaskjól og visa-kort sem kemur manni stundum ansi langt.
-
Í augnablikinu erum við á 4ra stjörnu hóteli á Heatrow svæðinu þar sem það var það eina sem var laust. Hérna eru nefninlega mun fleiri strandaglópar en bara við!
Annars gekk skólinn úti rosalega vel. Fengum smá Case-Study til að vinna með og lærðum visst ferli alveg frá því að eigandi kemur til manns með hegðunarvanda, að greina vandann, flokka niður það sem mestu skiptir að laga og úrlausnir við ýmsum vanda.
Við unnum sérstaklega með hund sem kemur ekki vel saman við aðra hunda og þá sérstaklega ógelda karlhunda. Aðferðirnar sem notaðar voru við að kynna honum fyrir hundum voru mjög áhugaverðar og það verður gaman að prófa þetta heima á Íslandi þegar þar að kemur.
-
Sólin hefur brosað við okkur á hverjum degi og fór hitinn alveg upp í 18°c einn daginn. Mjög ljúft en frekar kjánalegt að horfa á ferðatöskuna mína sem innihélt aðallega flíspeysur og þykkar íþróttabuxur. Bjóst ekki alveg við svona bongó blíðu! Ég fór á ströndina í Bournemouth með Söruh vinkonu (gistum hjá henni eina nótt) og það var rosalega skemmtilegt. Hún er HundaLabbari að atvinnu (fer út að labba með hunda) og fórum við með Labradorhundinn Charlie í strandgönguna. Sandurinn auðvitað fallega hvítur en sjórinn enþá aðeins of kaldur. Það væri rosalega gaman að kíkja til hennar seinna í sumar þegar sólbaðsveðrið nær hámarki.
-
Þrátt fyrir að Bretland sé skemmtilegt og áhugavert land verð ég nú að viðurkenna að það verður æðislegt að komast á íslenska grundu!!!
Þessi færsla er skráð í flokknum



