Sunnudagur 11. apríl 2010 / 09:30 / Alveg farin í hundana!
Ég er hálf andlaus á þessu bloggi núorðið þar sem ég er á fullu á HundaHönnu blogginu mínu og facebook-síðunni minni.
Ég er svo á leið í þriðju ferðina mína til Bretlands núna á miðvikudaginn þar sem ég mun læra allt um það hvernig hundar læra. Mjög áhugavert. Auðvitað er brjálað að gera í Háskólanum líka en ég ákvað að fresta útskrift fram til febrúar 2011. Ég seinka því í rauninni bara skilum á BA-ritgerð en skilin eru núna 24apríl og ég rétt ríflega hálfnuð. Ekki alveg nógu gott en fínt fyrir sumarið. Ég stefni á að klára BA-ritgerðina mánaðarmótin maí/júní.
Þeir sem vilja forvitnast um ritgerðina geta kíkt á þetta viðtal
Ingi er búinn að vera í mjög löngu fríi núna síðan í febrúar og það er bara búið að vera æðislegt að hafa hann heima. Við erum búin að bralla ansi margt saman í þessu fríi og þar á meðal kíktum við á eldgosið. Virkilega skemmtilegt sjónarspil þarna í ljósaskiptunum!

Strákarnir voru svo hjá okkur viku fyrir páska og svo aftur núna um helgina. Ingi veiktist all svakalega fyrir páskana svo að það var afskaplega lítið gert þá annað en að hugsa um karlinn sinn og kúra hjá honum. Ég er enþá að bíða eftir því að Svínaflensan banki upp á þar sem við erum ekki enþá búin að fara í bólusetninguna, en sem betur fer var þetta ekki svínið í heimsókn hjá okkur.
Baddý systir er svo flutt 4 götum neðan við mig og það er ekkert smá æðislegt að vera í svona stuttu göngufæri frá henni og litla frænda. Svo er ekki verra að hundarnir eru velkomnir til hennar þannig að við tökum oft morgun/kvöldrölt til hennar. Kellan varð 30 ára núna 4.apríl og ég bíð spennt eftir afmælisboðinu á morgun ;)
Læt þetta nægja í bili - blogga aftur þegar ég er komin til UK með ferðasögu!
Þessi færsla er skráð í flokknum



