Miðvikudagur 24. febrúar 2010 / 21:51 / UK taka 2
Við erum komnar til UK!
Ég ákvað að blogga ferðasöguna á þetta blogg en hundasögur á hitt bloggið mitt.
Ferðin gekk eins og í lygasögu. Engin seinkunn á flugi, ekkert vesen við lendingu, frábært lestarkerfi og skiptum bara 1x um lest. Vorum komnar hingað til Chartley, Staffordshire kl 13:30 eftir góða pásu á lestarstöðinni í Stafford.
Gistiheimilið er rosalega fínt. Það heitir Mill Cottage og er út í sveit. Við ákváðum að gista hérna því Sarah, ein af bekkjarsystrum okkar, tekur hundinn sinn Mitus með í skólann. Þetta gistiheimili leyfir hunda (meira að segja inn í svefnherberginu hennar) svo að það hentaði best. Sarah er líka á bíl svo við fáum far með henni í skólann sem er mjög gott.
Hérna í Mill Cottage er rekinn hundaskólinn K9 Control. Það er fyrrverandi hermaður og herþjálfari sem rekur skólann. Hann var yfir hundasveit breska hersins og þjálfaði þar hunda bæði í árásar og varnarþjálfun. Hann er með svokallað Boot Camp fyrir eiganda og hund þar sem hann kennir eiganda að vinna með hundinum í allskonar vinnum ásamt því að koma eigandanum í form! Mjög skemmtilegt concept hjá honum en klárlega Dominance-Based training þar sem hundurinn á að lúffa og hlýða í einu og öllu. Nokkurnskonar vélmennaþjálfun.
Þegar við horfum út um gluggann á herberginu okkar er fyrir utan hann rosalega fallegur garður. Garðurinn er hólfaður niður - öðru megin við girðinguna eru stelpu kanínur og naggrísir en hinu megin við girðinguna eru stráka kanínur og naggrísir. Það eru 28 naggrísir hérna á vappinu í garðinum á daginn og 8 kanínur. Rosalega krúttlegt og skemmtilegt að fylgjast með. Einnig eru tvær spætur búnar að koma sér fyrir í garðinum ásamt rosalega fallegum dúfum. Olga, dýraunnandinn og líffræðingurinn, er alveg að farast úr áhuga á öllum þessum dýrum. Sniglar, Maríu Bjöllur... you name it :)
Þrátt fyrir að ferðalagið hafi gengið vel get ég ekki annað sagt en að við séum þreyttar. Ég svaf takmarkað í nótt og þó ég hafi dottað í flugvélinni og lestinni er það nú aldrei almennilegur svefn. Olga er því farin að hrjóta (fyrir löngu) í rúminu við hliðin á mér en ég er aaalveg að fara að sofa!
Á morgun er ræs kl 08:00. Alisa frá Hollandi sér til þess að við erum svo sannarlega ekki seinar í morgunmat hehehe. Skólinn byrjar svona 09:30 en við ætlum að leggja tímanlega af stað svo við finnum hann alveg örugglega.
Svona að lokum: Veðrið er alveg dásamlegt. Átta stiga hiti hérna í dag og glaða sólskin. Jennifer sem rekur gistiheimilið var svo góð að taka okkur með sér í Tesco (sem er Hagkaup má segja) í dag svo núna eigum við fullt af ávöxtum, fjölkornabrauði og svo framvegis. Á morgun er hinsvegar spáð rigningu,.. og hinn... og hinn.... og hinn.....
Hafið það gott í snjónum
Yfir&Út
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
Góða skemmtun þarna systir kær:) við verðum orðnar grannar þegar þú kemur til baka hehehe:)
25.02.10 21:01



