Sunnudagur 28. febrúar 2010 / 22:34 / Þreyta
Ég er alveg rosalega, ótrúlega, svakalega þreytt. Afhverju er ég ekki farin að sofa? Góð spurning.
Síðast liðnir 5 dagar eru búnir að vera stórmerkilegir. Fyrsta skóladaginn sagði Sheila kennari við okkur að þessi staðarlota væri langtum erfiðust. Sumir nemendur myndu verða mjög "emotional" eða "hrærðir" yfir því sem verið væri að tala um og ættu erfitt með að stjórna tilfinningum sínum. Við, víkingarnir frá Íslandi, blésum nú auðvitað á það. En þetta reyndist alveg hárrétt hjá henni. Dagarnir voru langir og umræðuefnin í skólanum oft erfið. Ekki bætti úr skák að líta út um gluggann í herberginu okkar í morgun og reka augun í labrador-hunda nágrannans sem eru geymdir í einhverskonar vír-girðingar-búri út í garði. Við héldum að hann væri með hænur þar inni! Út úr búrinu kom einn sá horaðasti, stífasti og sorglegasti Labrador hundur sem ég hef á ævinni séð. Úr glugga á annarri hæð gat ég talið rifbeinin á honum: 6stk. Mjaðmirnar stóðu út í loftið og höfuðið virtist hanga á skinninu einu saman. Engar áhyggjur - Sarah hringdi í Dýralögguna.
Í gær töluðum við um hunda sem eru uppfullir af streitu. Í raun svo uppfullir að þeir eru hættir að ráða við daglegt líf og eru komnir í svokallað "shut down". Þá einfaldlega slökkva þeir á sér og bregðast ekki við neinu áreiti neinsstaðar frá. Ekki einu sinni snertingu. Við sáum video af einum slíkum hundi og það var hryllingur að horfa á. Ein konan í hópnum fór fram grátandi og ég þurfti gjörsamlega að berjast við tárin.
Maður uppgvötar svo margt hérna. Lærir svo mikið. Ég hugsaði mikið um Nick og hvað ég hefði getað gert fyrir hann með þá þekkingu sem ég hef í dag. Ég hugsaði um það sem ég er að gera gott fyrir hundana mína og hvernig ég get gert breytingarnar sem auðveldastar fyrir hundana sem koma í pössun til mín. Það er svo margt að hugsa um og huga að þegar kemur að hundum.
Jennifer sem rekur B&Bið sem við erum á er örugglega einn sá sérstakasti karakter sem ég hef hitt lengi. Í rauninni virðast Bretar vera frekar skrítnir ... já eða ... öðruvísi :) Hún málar sig alveg gríðarlega mikið og túberar hárið upp í hnút. Á kvöldin er hárið allt að leka niður og andlitið glansar af svita. Mjög hressandi. Hún læsir gjörsamlega öllu hérna,... en pissar samt með opna hurð! Jább, Alísa labbaði inn á hana í fyrrakvöld sitjandi á lú'inu. Hélt ég fengi hláturskrampa þegar Alísa sagði mér þetta. Ekkert að því að fara á klósettið með opna hurð heima hjá sér - en kannski annað mál ef þú rekur gistiheimili með EINU baðherbergi!!!!
----
Á morgun er stefnan tekin á Manchester að hitta Elmar. Á reyndar eftir að heyra í honum - en það er seinni tíma vandamál :)
Olga hrýtur upp í rúmi núna og liggur eiginlega þvert í því. Veit ekki alveg hvernig ég á að komast fyrir þarna upp í - en ég ætla að reyna að troða mér í bólið.
Góða nótt!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
úff já mér finnst einmitt líka svo erfitt að lesa/heyra um illa meðferð á dýrum og börnum, ég fæ alveg sting í hjartað og mér verður óglatt!
28.03.10 09:40



