Sunnudagur 24. janúar 2010 / 23:35 / Líkami fyrir lífið!

Á föstudagskvöldið steig ég á vigtina eftir langa fjarveru frá þessari vinkonu/óvinkonu minni. Ég lýg því ekki þegar ég segi að ég steig STRAX af henni aftur, nánast hljóp inn í eldhús - opnaði nammiskápinn og sturtaði úr honum beint í ruslið. Ruslið fékk svo að fjúka beinustu leið ofan í tunnu þá um kvöldið.
Ég fór svo inn í herbergi, skrifaði Siggu þjálfaranum mínum á Hress e-mail og bað um að byrja aftur hjá henni ekki seinna en mánudagsmorgun. Mér leið strax betur þegar ég fékk svar um að ég væri ævinlega velkomin og mætti mæta á mánudaginn kl 08:00.
Í kvöld lá ég svo sofandi fyrir framan sjónvarpið eftir að hafa borðað næstum því heila 9" Dominos Sizzler plús ostagott. Skolaði því svo auðvitað niður með Coke Light. Síminn pípti og það var sms frá Jóa félaga.
"Líkami fyrir lífið átak hefst á morgun, 12 vikur og læti. Ég ætla að skrá mig, ertu með?!" Ég spratt á fætur, beint í tölvuna og SKRÁÐI MIG.
Þetta var punkturinn yfir i-ið. Hvatningin sem ég þurfti. Áhuginn vakinn.
ÉG VÖKNUÐ.
Fylgist spennt með mér næstu 12 vikur því þær verða að sjálfsögðu í beinni :)
Ég ætla ekki að setja inn fyrir-myndirnar fyrr en ég er orðin sátt við eftir-myndirnar hehehe
IN IT TO WIN IT


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Inga Rut og co:

ánægð með þig sæta mín :D
veit þú átt eftir að verða ennþá heitari í sumar ;) hehe.. það verður alveg keppnis eftir að ég er búin að eiga, verðum heitar saman í sumar ;)

stend með þér :D

25.01.10 10:21


Hanna:

Já Inga við verðum sko BURNING HOT næsta sumar, það er alveg klárt mál :)
Ég þarf einmitt að passa í Brúðarmeyjar-kjólinn manstu, þessi eiturgræni með pífuöxlunum og púff-pilsinu sem þú varst búin að velja á mig og Elvu! :P

25.01.10 12:33


/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín