Föstudagur 22. janúar 2010 / 18:10 / Ísland, fagra Ísland!

Það er langt síðan við Olga stigum aftur á Íslenska grundu eftir langt og strangt ferðalag. Verð að viðurkenna að ég er ekki alveg að nenna þessu ferðalagi 8-10x í viðbót ef veðrið verður alltaf svona!! En ég treysti á að mesta lagi rigning eigi eftir að hrjá okkur næst þegar við förum út þann 26 febrúar.
-
Annars er það helsta að frétta að hún elskulega Píla okkar kvaddi heiminn þann 16.janúar síðast liðinn. Afskaplega sorglegt slys sem hún lenti í og mjög erfitt að sætta sig við það að "litla systir" skyldi kveðja okkur svona. Þegar mamma var búin að segja mér fréttirnar pakkaði ég niður mínu hafurtaski, setti hundana mína í búr og brunaði út á flugvöll. Ég átti sorglega en jafnframt góða 3 daga fyrir norðan þar sem ég náði að kveðja Pílu mína og styðja (og fá stuðning) foreldra mína í sorginni. Lífið heldur samt sem áður áfram þó að það sé tómlegra án Pílu! Það verður vafalaust hálf kjánalegt að koma heim til mömmu og pabba í framtíðinni og engin Píla. Við vermum okkur samt við þær fjölmörgu minningar sem við eigum um þennan yndislega hund, félaga og fjölskyldumeðlim.
pilaberjamo.JPG
Annars er það af mér að frétta að ég er að drukkna í verkefnum eins og svo oft áður! Já það er ekki beint rólegt hjá mér frekar en fyrri daginn. Ég kom heim frá Bretlandi með stóran bókalista sem ég þarf að lesa fyrir næstu staðarlotu - auk þess að ég uppgötvaði mér til mikillar skelfingar að það er nákvæmlega ekkert samræmi milli einingafjölda kúrsa í Kennó og verkefna vinnu í kúrsunum svo að ég er alveg að farast úr lesefni í fjarnámskúrsunum mínum tveimur, ásamt BA-ritgerðinni og málstofunni.
Einhvernveginn kemur þetta samt allt með kaldavatninu og vonandi helst meðaleinkunninn áfram í kringum 8. Þá er ég sátt :)


Þessi færsla er skráð í flokknum

© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín