Fimmtudagur 28. janúar 2010 / 20:24 / Góður nætursvefn

Það ert oft svo erfitt að hlusta á foreldrana þegar maður er unglingur. Pabbi sagði við mig á hverju einasta kvöldi að ég þyrfti að fara að sofa fyrir kl 11 til að ná almennilegum nætursvefn. Þess í stað vakti ég frameftir, hékk á ircinu (sælla minninga), í símanum eða las Rauðu seríuna.
Núna hefur Facebook tekið við af ircinu, sjónvarpsþættir teknir við af símanum og hundabækur teknar við af Rauðu seríunni.
Það er í raun ekkert gagnlegt sem ég gerir frá kl 22 á kvöldin - eða svona sjaldnast.
Frá því á mánudaginn hef ég því farið að sofa milli hálf 10 og 10. Þegar klukkan hringir svo 07:45 er ég eldhress og úthvíld, ég vaknaði meira að segja á undan henni í gær!
Það þýðir líka að þegar ég er búin í ræktinni um 09:30 á ég allann daginn framundan, úthvíld, nýhreyfð og tilbúin í slaginn við BA-ritgerðina og önnur verkefni sem bíða mín.
Verð að segja að þessi byrjun á Líkami fyrir lífið er svo sannarlega að gefa mér aukna orku og vellíðan - bæði líkamlega og andlega!! :)


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

mamma:

Jæja það var mikið að þú fórst að fara eftir því sem pabbi sagði :) :)

29.01.10 15:13


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín