Sunnudagur 10. janúar 2010 / 22:07 / Bretland :)
Eins og flestir vita sem hafa fylgst með mér þá er ég núna stödd í Bretlandi í Hundaþjálfaraskóla Sheila Harper IDBTS. Rosalega rosalega skemmtilegt og fróðlegt. Hann er uppbyggður sem fjarnám með staðarlotum svo að ég flýg út á 6 vikna fresti næsta 1,5árið.
Þetta er svo sannarlega draumur að rætast hjá mér enda finnst mér æðislegt að vera í kringum fólk sem talar BARA um hunda og hefur í raun sömu ástríðu á hundum og ég. Olga vinkona ákvað að skella sér líka í skólann enda er magnað að vera tvær og hjálpast að í enskunni/breskunni. Get ekki sagt að það sé auðvelt að skilja fólkið hérna, sérstaklega ekki þá sem eru af skoskum ættum! Það er alveg hrikalegt.
Gistiheimilið sem við erum á heitir Park Farm Bed&Breakfast og er eins og nafnið gefur til kynna sveitabær sem er samt "í" borginni. Það er vinnumaður hérna sem heitir Russel og hjónin heita Mr. and Mrs. Lewis. Þau eru eldri en sólin held ég, en rosalega hress og kát miðað við það. Það var gjörsamlega ÍSKALT hérna inni þegar við komum en núna þá fer Mrs.Lewis inn í herbergið okkar áður en við komum heim og kveikir upp í arninum sem er voðalega næs. Húsið er byggt 1750 og því er engin miðstöð og bara einn lítill ofn inn í stóra herberginu okkar. Við vorum svo heppnar að það eru tvær stelpur sem gista hérna líka, ein Bresk og ein Hollensk. Mjög fínar báðar tvær og við eyðum miklum tíma saman.
Þó að gengið sé ekki hagstætt er samt mun ódýrara að lifa hérna. Ég keypti til dæmis 4 nærboli í pakka (2pakka) á strákana og pakkinn kostaði 4pund. Það eru um 800kr. Heima hef ég fundið mest tvo nærboli saman í pakka á 1299kr.
Við borðum yfirleitt á sama veitingarstaðnum sem heitir Ash Tree og er í göngufæri. Þar er alltaf tveir-fyrir-einn díll af aðalréttum svo að við Olga erum að borga svona 12pund fyrir máltíðirnar með gosi/bjór. Það er um 2400kr sem er alls ekki svo hræðilegt :)
Annars gengur vel í skólanum, en þeir sem vilja lesa hunda-hliðina á Bretlandi geta kíkt á www.reykjalin.com/hundahanna
Sjáumst á miðvikudaginn!! :)
Þessi færsla er skráð í flokknum



