Laugardagur 19. desember 2009 / 16:54 / Hundahandbók Voffaborgar!

Ég var ađ gefa út Hundahandbók Voffaborgar :)
-
Hundahandbókin er í raun bćklingur í A5 stćrđ, rúmlega 40bls ađ lengd.
Ţar er ađ finna ýmsar handhćgar upplýsingar sem ég hef tekiđ saman ásamt áhugaverđum greinum. Ţćr greinar hef ég fengiđ ađ láni, ţýtt sjálf eđa endurbćtt ađ einhverju leyti. Greinarnar eiga ţađ allar sameiginlegt ađ vera ekki “common sense” heldur ćttu allir ađ finna eitthvađ NÝTT í handbókinni – eitthvađ sem ţeir vissu ekki áđur. Annars vegar inniheldur Handbókin upptalningu á dýralćknastofum á höfuđborgarsvćđinu, hugmyndir ađ góđum útivistarsvćđum međ ferfćttu vinum okkar ásamt öđrum gagnlegum upplýsingum eins og til dćmis nokkur hótel um allt land sem leyfa hunda. Hinsvegar eru í henni gagnlegar greinar eins og til dćmis Hvađ hundurinn má EKKI borđa, Hvernig streita lýsir sér í hundum, Gelt og lausnir viđ mismunandi gelti, Upplýsingar um hráfóđur og svo mćtti lengi telja.
-
Bókin er fallega uppsett af Guđrúnu Hilmisdóttur (www.designbygudrun.com) sem sá einnig um alla hönnunarvinnu á bakviđ bókina. Ljósmyndirnar eru teknar af Berglindi Kolbeinsdóttur sem er mikil áhugamanneskja um hundaljósmyndun.
Kussungur ehf. gaf mér ríflegan útgáfustyrk sem sá til ţess ađ draumurinn gat rćst.
Voffaborg sér um sölu á bókinni endurgjaldslaust og kann ég ţeim bestu ţakkir fyrir, enda hafa ţau reynst mér mjög vel og stutt mig í öllum ţeim hunda-hugmyndum sem hafa flogiđ í gegnum kollinn á mér.
-
Eftir áramót stefni ég á nám í Hundaţjálfun til Bretlands í hundaţjálfaraskóla Sheila Harper sem er stađsettur í Staffordshire og er bókin ţví fjáröflunarleiđ fyrir mig. Eintakiđ kostar litlar 2000kr og hver veit nema ţú og ţinn ferfćtti félagi ţurfiđ ađstođ mína seinna meir? ;)
Ţú getur haft samband viđ mig í missreykjalin@gmail.com eđa einfaldlega kíkt upp á Voffaborg og trítlađ út međ eintak í hönd!
-
Nú er ţví upplagt ađ slá tvćr flugur í einu höggi: Kaupa ţér fallega og upplýsandi bók um hundahald ásamt ţví ađ styrkja gott málefni!
-
-
Ţar sem ég veit ađ ţessi handbók mun vekja mikla lukku get ég lumađ ţví ađ ykkur ađ ég er ađ safna efni í bók númer tvö! ;)
-
Bestu kveđjur
Jóhanna Reykjalín
-
a.k.a. Hunda-Hanna
Hundahandbok_forsida.jpg


Ţessi fćrsla er skráđ í flokknum

/ Álit

Helga:

Sćl,
ertu eitthvađ í ţví ađ hjálpa fólki međ erfiđa hunda :)

kv Helga

28.12.09 14:57


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín