Sunnudagur 06. desember 2009 / 10:49 / Góð helgi að baki
Ég get varla lýst því með orðum hvað þessi helgi er búin að vera yndisleg. Inga og Einar komu nefninlega í heimsókn með hana Eyvöru sína og Kasper Cavalier.
Þar sem ég er í prófum var ég búin að gera stífa dagskrá þar sem lærdómurinn tók mestan tímann en ég gaf mér einnig tíma til að sinna gestunum. Ég var svo ótrúlega dugleg að læra á föstudaginn að í hádeginu á laugardaginn var ég búin með bókina sem ég hafði áætlað að klára á sunnudaginn! Við stelpurnar fórum því í smá jólagjafa leiðangur og tókst mér að kaupa þrjár jólagjafir - þar á meðal gjöfina hans Inga :) eða allavega hluta af henni hehehehe
Þau voru svo yndisleg að bjóða mér út að borða í gær og nutum við matarins á Ruby Tuesday. Eftir Ruby fórum við smá rúnt og fengum okkur svo ís í Ísbúðinni í Garðabæ. Þegar heim var komið skelltum við löppunum upp á sófaborð, teygðum vel úr okkur og sötruðum á hvítvíni. Ég fór því sæl að sofa í gær eftir frábæran dag með skemmtilegu fólki.
----
Íslenska tíkin hún Hátíð (7mánaða) kom í smá pössun yfir helgina. Rosalega skemmtileg tík og alveg hreint ómótstæðilega falleg. Garðurinn kemur vel að notum þessa dagana þar sem minna er um göngutúra svona í prófatíð.
----
Fyrra prófið mitt er núna á föstudaginn (11des) og seinna prófið mánudaginn 14.des. Þar að auki er jólahlaðborðið hjá Allanum á laugardagskvöldið og Ragnar&Gísli verða hjá okkur um helgina. Það er því nóg að gera næstu helgi, en ég ætla þó að loka mig kyrfilega af með námsbókunum og pabbinn fær að sinna sonunum eins og honum einum er lagið.
----
Talandi um pabbann. Í dag er akkurat mánuður frá því að Ingi stakk af út á sjó. Heill mánuður. Þessi tími er samt búinn að vera rosalega fljótur að líða því ég er búin að fá bæði Dagný og mömmu í heimsókn auk Ingu&Einars sem eru núna. Baddý systir eignaðist líka yndislega fallegan strák 16.nóvember sem er algjör sólargeisli. Mundi bróðir bætti svo um betur og eignaðist litla fallega stúlku 19.nóvember. Heldur betur fjölgun í þessari ætt! :)
Þessi færsla er skráð í flokknum



