Föstudagur 30. október 2009 / 09:28 / um svínaflensu og fle
Maður er nú eiginlega ekki maður með mönnum nema maður hripi niður nokkur orð um svínaflensuna. Hingað hefur hún ekki náð að teygja sig að neinu leyti. Ég er fíl-hraust en ekki svína-veik en ég spyr nú reyndar sjálfa mig að því hvort einstaklingur sem stundar nám við fjölmennasta skóla landsins muni sleppa? Það kemur í ljós. Ég er nú samt ekki með neina undirliggjandi sjúkdóma svo ég læt allar bólusetningar vera (plús að ég þoli ekki sprautur).
Annars er Ingi búinn að vera heima núna í nokkra daga eftir 10 daga fjarveru. Það styttist nú samt í að hann fari aftur en alveg óákveðið hvenær það verður.
---
Jólin nálgast, er það ekki? Það var allavega einhver sem sagði mér það. Systir mín hún Baddý er búin að baka allar sortir af smákökum sem til eru í heiminum held ég hreinlega og geymir þær í frystinum. Ég er eiginlega alveg viss um að það er lás á kistunni því annars væri Gunni örugglega búinn með þær hehehe. Ég er nú ekki enþá byrjuð að baka að neitt svoleiðis enda er nóg að gera í skólanum og hundalífinu. Ég þarf nú samt að fara að setja saman jólakortalista og jólagjafalista! Alltaf nóg að gera í þeim bransanum :)
---
Jæja Ingi er skriðinn á fætur. Við ætlum nú ekki að gera neitt merkilegt fram að hádegi en þá förum við í ofur-Box-tíma í Hress hfj og sækja svo Ragnar Björn á flugvöllinn kl 13:30. Stráksi ætlar að vera hjá okkur fram yfir helgi og það verður sko fundið eitthvað skemmtilegt að bardúsa.
---
Yfir&Út elskurnar
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
það eru nú reyndar bara 3 sortir í kistunni en ég er búin að skrifa niður jólakortalistann - með heimilisföngum sko og jólagjafalista :) byrjuð að hlusta á jólalög og er að spá í að henda upp seríum um helgina :)
06.11.09 16:46
Baddý: djöfull líst mér vel á þig ;)
09.11.09 20:02



