Þriðjudagur 13. október 2009 / 11:34 / nýjasta nýtt

Undanfarnar vikur hef ég verið að fylgjast með Griffon goti hjá Himna-ræktun. Þar fæddust 18.ágúst 5stk Griffon hvolpar (óvenju stórt got!) en af þeim fimm var bara einn strákalingur. Hann er af tegundinni Griffon Petite Brabracon og er algjör snúllirass. Eftir heimsóknina á sunnudaginn ákváðum við Ingi að bæta við í Griffon gengið þessum litla sæta strák og er hann væntanlegur á heimilið fljótlega eftir helgi. Hann er algjört æði og ég gæti ekki beðið um betri ræktanda!
Hérna eru myndir af strákalingnum
Annars erum við flutt í nýju íbúðina og líkar það mjög vel. Við erum alveg búin að koma okkur fyrir, það eina sem á eftir að gera er að loka garðinum almennilega svo að strákarnir (bæði tvífættir og fjórfættir) geti leikið sér í garðinum án þess að við foreldrarnir höfum áhyggjur :)
Fleiri fréttir seinna!


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Aníka:

af hverju fæ ég ekki að sjá neinar aðrar færslur hjá þér nema þessa?

annars bara keep up the good work :D ég les alltaf reglulega, þó svo ég kvitti ekki alltaf ;)

ég er svo byrjuð að blogga aftur líka ;) just so you know *hint*hint* :D

24.10.09 01:14


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín