Miðvikudagur 09. september 2009 / 23:25 / Það sem á daga mína hefur drifið :)
Ýmislegt hefur gengið á frá síðasta bloggi. Flestir njósna nú bara um mann í gegnum facebook en ég treysti á fólkið mitt í Mŷvó og Gauju ská-tengdó til að líta annað slagið hingað inn að forvitnast. Ég veit allavega að Jói minn skoðar þetta aldrei þar sem allar færslur eru svo langar hehehe.
Svona fyrir sjálfa mig ætla ég að skrifa "smá" pistill svo ég hafi nú nokkurnveginn á hreinu eftir mörg ár hvað ég gerði nú sumarið 2009.
Hefst nú lesturinn...
Þann 18.júlí kom Ingi heim í lang þráð sumarfrí.
Ég keyrði austur rétt áður en hann kom og eyddi nokkrum dögum í garðvinnu með Tengdó bæði á Bragðavöllum og hjá Ömmu Imbu á Djúpavogi þar sem nokkur tré voru rifin upp með rótum og færð til. Mjög skemmtilegt garðabardús (enda elska ég að svitna í garðinum) og alltaf jafn yndislegt að slappa af og hlaða batteríin á Bragðavöllum.
---
Þegar Ingi kom í land stoppuðum við aftur á Bragðavöllum meðan Gísli Valgeir var að ná úr sér einhverri pest sem var að hrjá hann. Þaðan héldum við svo sem leið lá suður á bóginn (að elta sólina auðvitað) og keyrðum beint á Laugarvatn að hitta Jökul, Huldu og Co. Þar komu einnig Danni og Sigrún ásamt börnum en þetta var ferðasumarið okkar mikla.
---
Frá Laugarvatni keyrðum við á Þingvelli þar sem Ragnar og Gísli hentu pening í óskagjánna. Gísli Valgeir óskaði sér þess að vera aldrei aftur óþekkur :) Ragnar geymr sína ósk vandlega í eigin huga.
Frá Þingvöllum gistum við eina nótt í paradís barnanna: Fossatúni. Strákarnir skemmtu sér konunglega og eignuðust marga góða vini. Við pökkuðum saman í helli dempu daginn eftir (höfum aldrei verið eins snögg að ganga frá og þá) og keyrðum á Grundarfjörð þar sem fjölskyldan hans Inga var saman komin. Skemmtum okkur rosalega vel og Grundardagar voru virkilega skemmtilegir.
---
Þegar hér er komið við sögu voru strákarnir farnir að biðja sárlega um að fá að fara heim í húsið sitt í Reykjavík. Þeir fengu ósk sína auðvitað uppfyllta og tekin var 4ra daga pása á útilegunni til að slappa af heima fyrir áður en haldið var aftur af stað. Þeir léku við Björgvin og Gabríel sem aldrei fyrr og eiga vafalaust eftir að sakna þeirra þegar við flytjum héðan.
---
Nú nálgaðist verslunarmannahelgin óðfluga og því ekki seinna vænna en að finna gott fólk á góðum stað. Það fundum við á Laugarási þar sem saman voru komin Danni&Sigrún (ásamt börnum), Baddi og Hafdís (ásamt börnum), Særún og Geiri (ásamt barni), vinafólk Geira og seinna komu svo foreldrar Hafdísar og foreldrar Badda og líka Jón bróðir Inga ásamt konu þeirra og barni. Þetta var yndislegur tími í sól og sumaryl. Nutum þess að grilla og hanga saman með börnin léku sér við hvort annað og slöppuðu af eftir magnaðar sundferðir í frábærri laug að Borgum (Minni-Borgir).
---
Allt tekur víst enda og sumarfríið að styttast í annan endann. Því ákváðum við að prófa að keyra Sprengisandinn norður á bóginn og er ég afskaplega sátt við að hafa gert það (og vonandi þarf ég aldrei aftur að keyra þessa bévítans leið!). Sú leið virtist engan endi hafa en að lokum komum við þó niður í Bárðardalinn góða.
Við eyddum fiskidagshelginni góðu í faðmi fjölskyldunnar á Hauganesi þar sem mamma og pabbi voru svo góð að passa fyrir okkur meðan við Ingi skelltum okkur á skrallið á laugardagskvöldið. Horfðum meðal annars á FRÁBÆRA flugeldasýningu ásamt 37.998þúsund öðrum :) Fiskisúpan á föstudagskvöldinu hjá Huldu frænku klikkaði nú ekki og borðaði Ragnar tvo fulla diska af súpu. Reyndar var kakósúpa líka í boði sem Gísla Nammigrís þótti nú ekki verra :) Ég var svo sniðug að hafa með kerru fyrir litla gæjann svo þegar hann lognaðist út af í fanginu á mér kl 10:30 um kvöldið kúrði hann bara undir teppi í kerrunni þar til við fórum heim rétt rúmlega miðnætti. Ragnar var svo duglegur að vaka og vera góður að við ákváðum að bjóða honum í "miðnætursnarl" og fékk hann grillaða samloku með skinku og osti í Olís. Lengi vel á eftir var beðið um "miðnætursnarl" eftir kvöldmatinn hehehe.
---
Sunnudaginn 9.ágúst fórum við svo í sumarbústað Eskju sem er á landi Leifsstaða, beint á móti Akureyri. Þar var yndislegt að vera... í 3 daga... en þá fékk Ingi símtalið "góða" sem boðaði hann á sjóinn. miðvikudag brunuðum við því suður, Ingi fór á sjó á fimmtudag og strákarnir fóru með mömmu sinni til Vestmannaeyja á föstudag. Sumarfríið fékk því alltof snöggann endi, en þrátt fyrir það var þetta æðislegt sumar og svo sannarlega mikið ferðasumar!
---
Síðan 14.ágúst hefur Ingi verið á sjó og óvíst hvenær hann kemur í land. Hann hefur þó landað 3x á Eskifirði en þar sem stoppin eru stutt tekur það sig varla fyrir hann að koma heim eða mig að fara austur. Svona er víst þetta sjómannslíf (fæ ég allavega að heyra reglulega frá mömmu!) og þessu verður maður bara að venjast. Eins og stendur á útklipptri mynd á ísskápnum hjá mér:
"ÁST ER... heimkoman eftir langa fjarveru!".
----
29.ágúst gifti Lísbet frænka sig honum Tryggva sínum með pompi og prakt. Hún hélt ógleymanlega veislu í Árskógi og giftingin sjálf var yndisleg. Ég þakka Lísbeti og Tryggva kærlega fyrir mig og megi þau lifa hamingjusöm til ævi loka :)
----
Í dag er ég byrjuð á fullu í skólanum ásamt því að fara með Villa í hundafimi. Þar að auki er ég að byrja fljótlega sem heimsóknarvinur með hund hjá RauðaKrossinum og sit enn í stjórn Padeia og einnig í Fjölskyldunefnd Stúdentaráðs. Nóg að gera hjá mér en þannig líður mér einmitt best.
Ég er búin að ákveða BA-Verkefnið mitt sem mun fjalla um Áhrif hundahalds á andlegri líðan fólks - eða eitthvað svoleiðis :)
---
Við erum enþá að leita okkur að íbúð í Reykjavík, aðallega á 105 svæðinu. Ef að einhver þekkir einhvern eða veit um íbúð þá erum við pottþéttir leigjendur :)
---
Þangað til næst - yfir og út!
--
p.s. set inn myndir fljótlega, samt nokkrar nýjar myndamöppur komnar inn á myndasíðuna hér til vinstri undir fallegu myndinni af andlitsfríðu mér.
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
viðburðaríkt sumar hjá ykkur famelíunni ;) en skemmtileg lesning og ég ákvað að kommenta ;) aldrei þessu vant ;)
10.09.09 17:45
Takk fyrir kommentið Aníka mín, gaman að vita að einhver nennti að lesa þetta hehehehe
11.09.09 11:05
baddy systir:
hey bara svona til að hafa allt á hreinu þá var giftingin hjá Lísbet og Tryggva 22.ágúst og réttirnar sem þið misstuð af 30.ágúst:)
En annars greinilegt að þetta var viðburðaríkt sumar, allavegana meira um ferðalög hjá ykkur en okkur Gunnari!
13.09.09 14:51
sandra:
hæ hó
vildi bara láta þig vita að ég kíki alltaf reglulega, reyndar ekki lengur daglega eins og ég gerði í laaangann tíma, en mjög reglulega ;) hlakka til að hitta þig í sambandi við verkefnið þitt
13.09.09 17:42
sandra:
hæ hó
vildi bara láta þig vita að ég kíki alltaf reglulega, reyndar ekki lengur daglega eins og ég gerði í laaangann tíma, en mjög reglulega ;) hlakka til að hitta þig í sambandi við verkefnið þitt
13.09.09 17:44



