Laugardagur 16. maí 2009 / 08:30 / Sól sól skín á mig

Klukkan er rétt rúmlega hálf níu á laugardagsmorgni. Mörg ykkar kunna að spyrja ykkur afhverju í a*********m ég sé vöknuð, en það er góð ástæða fyrir því. Gísli Valgeir skreið nefninlega upp í til okkar kl 05:00 í morgun, og Ragnar Björn fylgdi á eftir upp úr klukkan 06:00. Gísli svaf til 7 og þá fór hann fram að leika. Að sjálfsögðu valdi hann sér háværasta leikfangið, eða smíðadótið og negldi dótanagla eins og hann ætti lífið að leysa. Ég ákvað að hætta að berjast við að líma augun aftur og bara drulla mér á lappir. Við ætlum svo að skella okkur í sund á eftir þegar sundlaugin opnar kl 10. Ég held samt að við verðum klárlega að fjárfesta í stærra rúmi. Þegar við erum komin fjögur í 150cm breitt rúm er orðið ansi þröngt á þingi! Ennn þröngt mega sáttir..liggja :)
----
Í gærkvöldi fór ég á fyrirlestur á vegum Hundaræktarfélags Íslands um áfalla- og skyndihjálp HUNDA og svo Litaafbrigði í feld hunda. Mjög fræðandi fyrirlestrar. Fyrst var farið í gegnum undirstöðu atriði í skyndhjálp hunda, hvernig bregðast ætti við slysum og hinum ýmsu áverkum. Svo var farið í gegnum erfðamengi hunda og mismunandi litaafbrigði.
---
Af Rómu Líf er það að frétta að hún er farin að labba pínu pons. Skríður ekki lengur áfram á maganum heldur stendur í fæturnar og þokast rólega áfram. Lady er öll að koma til. Fór í 2ja klst göngu í gær sem endaði með því að hitta Olgu með Heruna og Oddu með Önju Malamute og Penny Rottweiler. Lady stóð sig prýðisvel og panikkaði ekki voðalega mikið.
---
Framundan er svo bjart og fallegt sumar - stútfullt af ferðalögum og grillveislum!


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín