Mánudagur 13. apríl 2009 / 10:38 / Nýr JEPPI!

Þriðjudaginn 7. apríl fórum við Ingi í Bílabúð Benna og náðum okkur í eitt stykki 38" breyttan Musso-Jeppa, árgerð 2000. Við erum búin að eyða því sem af er af árinu í að skoða eeeendalaust marga jeppa og var þessi algjörlega tilbúinn á fjöllin, með GPS tæki, VHF-talstöð, læstur að framan og aftan, loftdælu á dempurum og skóflu á toppnum ;) Jeppinn ber nafnið VERA DÖGG en hann var skírður með mikilli viðhöfn af fyrsta eiganda og hefur heitið það síðan.
Strax á fimmtudag skelltum við okkur í fyrstu jeppaferðina á Verunni, fórum í samfloti með tveimur öðrum jeppadúddum upp á Snæfellsjökul. ÞVÍLÍK DÝRÐ og geggjuð ferð! Hefðum ekki getað verið heppnari með færi og veður. Yndislegt alveg hreint. Hera naut sýn í klessu og má sjá video af Herunni hérna.
Myndir úr ferðinni eru á Facebook, og hérna.
---
Þegar heim var komið eftir geggjaðann dag tókum við okkur til fyrir norðurlandsför. Við vöknuðum svo snemma á föstudaginn (langa) og drifum okkur af stað. Fyrst skutluðum við Bósa í flug til Vestmannaeyja (hundur í pössun, kemur á óvart?) og sendum svo Heru til Birnu vinkonu þar sem hún er núna í góðu yfirlæti. Villi fékk hinsvegar að sjá norðurlandið með okkur.
Við ákváðum að drolla aðeins á leiðinni norður og kíktum Hvalfjörðinn. Þaðan fórum við svo yfir í Reykholt og komum upp á þjóðveg aftur hjá Baulunni. Beygðum svo á ný út af þjóðveginum hjá Blönduósi, skruppum í kaffi til Ragga bróðurs og þaðan lá leiðin svo til Sauðárkróks og í gegnum sveitina aftur upp á þjóðveg. Á leiðinni suður ætlum við svo að reyna að keyra sem minnst á þjóðveginum og taka maaarga útúrdúra. Það er svo gaman að skoða landið sitt fallega
Örfáar myndir frá Hvalfirði eru hér, og líka nokkrar af Yoko, kisanum hennar Ingu Rutar, og Villa


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur. / Veður. Þar eru 3 færslur. / kaupæði. Þar eru 2 færslur. / myndablogg. Þar eru 53 færslur.

/ Álit

Valgerður Inga Reykjalín:

Það er nátturlega bara snilld að þið séuð búin að fá ykkur jeppa! Og fara á fjöll! Það er svo gaman ;)

12.05.09 11:26


Valgerður Inga Reykjalín:

Hei... hvert fór kommentið mitt? :O

12.05.09 11:28


Valgerður Inga Reykjalín:

Það er nátturlega bara snilld að þið hafið fengið ykkur jeppa;) Og að fara á fjöll það er svo gaman ;D

12.05.09 13:15


/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín