Mánudagur 13. apríl 2009 / 10:57 / Fnjóskárdalur - Bleiksmýrardalur - Bárðardalur
Myndir úr ferðinni eru hérna
---
Ingi vakti mig eldsprækur kl 09:00 í gærmorgun, að drepast úr spenning fyrir komandi jeppaferð. Ég var ekki alveg sú hressasta en drullaði mér þó á fætur. Eftir að hafa skolað niður ristuðu brauði og kakói, hent útifötunum í bílinn og reimað á okkur gönguskóna, skelltum við okkur af stað til Akureyrar að tanka og kaupa nesti. Áætlað var að hittast við Leirunesti kl 10:00.
Þegar þangað var komið hittum við Jónsa, á rauðum Cherokee 38", Gunnari á gömlum Patrol 38", Dóra á nýrri Patrol 38" og Magnús sem kom alla leið frá Reykjavík í ferðina, á 46" Crusier trölli!!
Við byrjuðum á nettu ferðalagi inn Fnjóskárdalinn alla leið inn í Bleiksmýrardal. Þar skelltum við okkur yfir Fnjóskánna á tveimur stöðum og gekk það vel, fyrir utan það að ég er alltaf hrædd um að lenda á bólakafi og drukkna þegar við förum yfir svona ár. Þegar við vorum komin lengst inn í dalinn og höfðum engan snjó fundið enn, ákváðum við að snúa við og skella okkur upp skarðið milli Bæjarfjalls og Reits yfir til Bárðardals. Þarna liggur línuvegur meðfram rafmagnsstaurunum og hafði einn okkar (Dóri) farið þarna yfir að sumarlagi. Til þess að komast þangað þurftum við hinsvegar að fara aftur yfir Fnjóskánna á öðrum stað. Gunnar lenti í því óhappi að magalenda á stein út í miðri á! Bílinn sat pikkfastur og vatnið fossaði inn undir dyrnar. Þá mætti Magnús á tröllinu, með Jónsa á toppnum. Anna vippaði sér út fyrir Pattann og náðu þau í sameiningu að festa kaðall milli bíla. Trölli bjargaði málinu þarna meðan við stóðum sveitt með myndavélarnar í landi að smella af :) Eftir þetta ævintýr héldum við áfram sem leið lá yfir í Bárðardalinn
--
Fyrst um sinn var færið algjörlega frábært. Jeppamenn tóku kaffipásu og þá skellti ég undir mig gönguskíðunum og við Villi þeyttumst áfram á skíðunum þar til jeppakarlarnir náðu okkur og Ingi pikkaði mig upp í. Þá tók gamanið við. Upp snarbrattar brekkur eftir þröngum vegi inn á milli trjánna. Veðrið lék þó við okkur og færið var enþá sæmilegt svo að allt gekk eins og í sögu. Þegar við vorum komin nokkuð áleiðis mættum við tveimur fjórhjólatöppum með bilað hjól og ákvað Tröllið þá að snúa við og aðstoða þá með bilaða hjólið niður til byggða. Þar kvöddum við hann eftir góða samveru, aðstoð að ógleymdu samlokugrillinu í skottinu!! Já allt til alls í þessu kvikindi!
---
Þá hófst gamanið af alvöru! Við komumst 4km á 2 klukkutímum, festum okkur trekk í trekk, hnoðuðumst áfram, kipptum hvert í annað og giskuðum hvar línuvegurinn væri staðsettur. Dóri (nýr Patrol) varð fyrir því óhappi að affelga, enda var hann kominn niður fyrir 2 pund (loftið í dekkjunum) og rann niður á hlið. Þá voru góð ráð dýr. Þegar allir hjálpast að ganga hlutirnir nú samt upp og Pattinn var fljótt mættur á dekkið aftur eftir umfelgun og snjómokstur.
---
Þegar við loksins komumst eitthvað áfram sáum við á GPS tækinu að það væri á eða árfarvegur framundan. Þá greip ég til þess ráðs að hringja í Ingvar móðurbróðir sem var búsettur í Bárðardal og þekkti svæðið vel. Hann sagði okkur að halda okkur sunnan megin við línuna því þar kæmumst við yfir ánna. Það var eins og við manninn mælt, þegar við komum yfir ánna og litum norðan meginn við línuna sáum við hengju og svo risastórt gil, sem við hefðum vafalaust hrunið niður í ef frændi hefði ekki aðstoðað okkur! Allt fór þó vel og vorum við komin niður á veg um kl 20:00 og áttum þá eftir að keyra til Akureyrar, klára að dæla í dekkin og svo halda heim á Hauganes. Það var indælis páskasteik sem beið okkar, upphituð í örbylgjuofninum, og voru ferðalangar ekki lengi að gleypa hana í sig eftir langan og strangan dag. Það þarf vart að minnast á það að ég var sofnuð í sófanum hálftíma seinna...
---
Myndir úr ferðinni eru hérna
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Óli Helgi:
Þetta hefur greinilega verið svaðilför.
Flottar myndirnar hjá ykkur.
Bið að heilsa í kotið,
Óli Helgi.
12.05.09 11:18



