Fimmtudagur 26. mars 2009 / 17:08 / plenty to do plenty to do!

Já það er nú ekki mikil lognmolla í kringum mig núna frekar en fyrri daginn. Stunda skólann af áfergju og hef komið sjálfri mér á óvart með frábærri mætingu þessa önninna :) Er búin að skrifa eina ritgerð, Þunglyndi og lyfjalaus meðferðarúrræði fyrir áfanga sem heitir Hugur, Heilsa og Forvarnir. Núna er ég að skrifa um tengsl stjúpforeldra og stjúpbarns fyrir Foreldrafræðslu og uppeldis-ráðgjöf og síðasta ritgerðin mun fjalla um Dr.Benjamin Spock og þau áhrif sem hann hafði á uppeldisaðferðir bandaríkjamanna eftir 1950.
Í raun er hálf sorglegt að allar þessar ritgerðir....


....endi bara í möppu upp í hillu, og jafnvel í ruslinu. Kannski maður ætti að fá Dagný systir til að græja smá "ritgerðarhorn" hérna á síðunni minni þar sem hægt væri að næla sér í ritgerðir eftir mig (og jafnvel aðra) til að glugga í og lesa sér til fróðleiks eða dægrarstyttingar. Ha, Dagný, hvað segiru um það? ;)
---
Hundalífið gengur sinn vanagang. Ingi (alpha-hundurinn sko) fór á sjó 4.febrúar og hefur sést í mýflugu mynd hérna heima síðan þá. Stoppað 3x í innan við sólarhring hvert skipti. Hann stefnir samt á það að vera á sjó fram yfir páska mér til ómældrar gleði :( Á meðan nýt ég þess að labba með Villa og Heru, hanga með Olgu vinkonu og hennar fjölskyldu (sonur hennar situr hérna við hliðiná mér akkurat núna að pússla! Smá pössun í gangi) ásamt því að senda bílinn minn í viðgerð eftir að hafa drepist 2x með stuttu millibili. Annað skiptið meira að segja nánast á miðjum gatnamótum! Rétt náði að smella mér upp á umferðareyju hehehe. Nett vandræðarlegar aðstæður, fékk "thumbs-up" frá nokkrum bílstjórum ásamt góðu glotti.
Hera tók upp á því að gleðja nokkra hestamenn, eða hitt þó heldur og fékk ég duglegar skammir frá þeim en ég hikaði ekki við að hvæsa á móti. Þvílíkt og annað eins að fólk geti ekki tekið tillit, sýnt smá skilning og verið kurteist! Ekki fleiri orð um það.
---
Skrapp á sunnudaginn síðasta að hitta ástmanninn, fór alla leið til Reyðarfjarðar til að knúsa hann og strákana okkar. Hann kom í land kl 10 á sunnudagskvöldið og við ákváðum að vera bara "grand" á því og gistum á Hótel Reyðarfjörður. Mjög notalegt og fínt. Mánudagurinn fór í það að brasa fyrir skipið ásamt því að fá smá sýnisferð um borð í Aðalstein Jónsson, SU11. Vorkenni honum ekki lengur að vera fastur á lúxus-fiskiskipi einhversstaðar út á ballarhafi! Hafa allt til alls og klefinn hans er á stærð við fínasta hótelherbergi. Voðalega fínt allt saman. Við sóttum svo strákana upp úr kl 14 og nutum þess að eiga frábæran dag með þeim sem endaði með gúmmelaði hamborgurum hjá Steinunni og Eið! Takk fyrir okkur :)
---
Sjálf er ég búin að vera voðalega dugleg í ræktinni. Skráði mig á 6 vikna átaksnámskeið hjá Hress í Hafnarfirði og keypti mér kort í Ultratone sem er svipað og trimform Berglindar, vitið ábyggilega hvað það er :) Saman er þetta alveg hörkublanda! Og svo auðvitað hundagöngutúrarnir! Labbaði einmitt upp á Svartengis-fellið í dag með Berglindi og hundunum okkar :) Kílóin eru nefninlega lúmskt fljót að hrúgast á mann svo að það er eins gott að passa sig og hreyfa sig jafnt á við átið hehehe. Þrjú kíló samt farin núna á stuttum tíma svo að ég er bara sátt. Finnst ég alltaf vera í góðu formi svosem, get allavega skokkað, hlaupið, beygt mig niður og gert það sem mig langar! Nema kannski að ég get ekki troðið mér í buxurnar sem ég keypti haustið 2007 hehe :P
---
Jæja læt þetta nægja í bili, ætla að koma mér af stað í ritgerðarsmíð! Endilega kommentið ef þið nennið. Annars blogga ég nú frekar fyrir sjálfa mig en aðra - svo gott að geta flett upp á hvenær maður gerðir hvað og með hverjum :)

Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Aníka:

Dugleg stelpa ;)

Ég ætla svo að panta hitting. Sé ekki fram á að það sé laust okkur báðum fyrr en í sumar, svo ég legg hér með inn formlega pöntun. Svo er bara spurning hvenær hún verður afgreidd ;) hehe...

26.03.09 17:51


/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín