Mánudagur 16. mars 2009 / 21:47 / Ísafjörður

Hún lokaðu augunum leið og hún var búin að koma sér vel fyrir í sætinu. Hallaði höfðinu að rúðunni, kvaddi borgina í huganum og sveif á vit drauma. Fyrir aftan hana sat grenjandi krakki með heimtufrekju, en ekkert gat truflað væra svefninn. Drunurnar í flugvélinni veittu henni vissa hugarró.
Það var rétt liðinn hálftími þegar flugfreyjan tilkynnti í kallkerfinu að lending væri í vændum. Hún skakaði sér til í sætinu og leit út um gluggann. Við henni blasti gríðarleg náttúrufegurð. Flugvélin sveif ljúflega um himinbláman og sólin skein skært inn um gluggann á vélinni, farþegum í öðrum helmingi til mikils ama. Vélin lenti mjúklega á mjórri flugbrautinni og ekki laust við að fiðrildin í maganum færu á fullt flug. Já hún var lent á Ísafirði. Þekkti engan, aldrei komið þangað áður og vissi ekkert hvað væri í vændum. Þegar hún steig úr vélinni brosti sólin blíðlega við henni, farþegar týndust inn í flugstöðina og farangurinn kom fljótlega. Full taska af bæklingum getur verið ansi þung. Eftir að hafa hringt í Taxa ákvað hún að bíða utan dyra eftir bílnum og leyfa sólina að sleikja silkimjúka húðina. Taxinn mætti á svæðið og var stefnan tekin á Menntaskóla Ísafjarðar. Hún stóð sig vel í að kynna menntavísindasvið, en þráði lítið heitar en að komast út úr byggingunni og aftur út í sólina. Klukkan 14:00 pakkaði hún bæklingum og blöðungum niður í tösku og trítlaði út í ferska loftið. Ísafjörður er fallegur bær, því leikur enginn vafi á. Hún rölti ásamt vini sínum um stræti og torg, skoðaði gamlar byggingar, kíkti inn í verslanir, skoðaði gamla bæinn og fékk sér að lokum kakóbolla á Kaffi Edinborg.
Það var með fögrum fyrirheitum um endurnýjun kynna sem hún kvaddi Ísafjörð. Kom sér vel fyrir í flugvélinni, lokaði augunum og svaf þar til hún vaknaði við lendingu á Reykjavíkurflugvelli.
----
Takk menntavísindaferð fyrir að bjóða mér í tilgangslausa en skemmtilega ferð til Ísafjarðar!


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín