Sunnudagur 29. mars 2009 / 20:07 / Hundar, Hestar og Krossarar

Það krefst mikillar athygli að fara út með hund. Stanslaust þarf maður að hafa augun hjá sér og fylgjast með því hvort að fólk er að koma, aðrir hundar, hestar, kettir, krossarar, fjórhjól og svo mætti lengi telja. Hér í Vogunum er ansi mikið af hundafólki. Segja má að í hverju húsi búi 1-2 hundar ásamt eigendum sínum. Þegar Olga vinkona flytur hingað í Vogana fyrir rétt rúmum 5 árum síðan hringir hún í Bæjarskrifstofuna og talar þar við Kristján Bæjarfulltrúa sem gefur leyfi á það að sleppa hundunum lausum á Stapanum sem er svæðið milli Voganna og Njarðvíkur. Þar upp liggur gamall vegur sem er torfarinn og liggur í raun meðfram Reykjanesbrautinni. Við Olga höfum nánast daglega farið með hundana okkar þangað (samtals fjórir) og aldrei orðið fyrir neinu ónáði.


Fyrir rúmlega mánuði síðan er ég að setja hundana inn í bílinn (var þá með Olgu hunda líka) og allir komnir inn nema Hera. Þá kemur maður á fjórhjóli akandi og ég sé einbeitinguna hjá Heru - þetta hjól ætlar hún að veiða! Ökumaður fjórhjólsins stöðvar hjólið hinsvegar þegar hann sér í hvað stefnir, drepur á tækinu og bíður á meðan ég sæki Heru og kem henni í bílinn. Að sjálfsögðu þakkaði ég honum kærlega fyrir þessa kurteisi og aðstoðina því ekkert er verra en að missa hund á eftir fjórhjóli því fátt er meira spennandi en jafnframt hættulegt og hundur að elta ökutæki! Í síðustu viku lenti ég svo í því að missa Heru á eftir hestamönnum sem voru svo sannarlega ekki sáttir við það, sem skiljanlegt er. Ég hef hinsvegar að reyna að þjálfa Heru í það að elta ekki það sem hratt fer og var þetta því afskaplega óheppilegt þar sem þeir birtust skyndilega fyrir hæð, og var Hera löngu búin að sjá þá á undan mér. Til að gera langa sögu stutta urðu nokkur hvöss orðaskipti okkar á milli þar sem mér var vinsamlega bent á það að Kristján bæjarfulltrúi sem gaf leyfi fyrir lausagöngu hunda á Stapanum "vissi ekkert um hvað hann var að tala" og þetta væri einfaldlega "bull og vitleysa".
OIga vinkona var því miður EKKI svo heppin í dag þegar hún skrapp með sína tvo (Rottweiler og Íslensk blanda) ásamt Heru í fjöruna. Hún ákvað einmitt að fara í fjöruna til að koma í veg fyrir að trufla hestafólk sem þykist eiga heiminn. Allavega, í fjörunni eru tveir drengir á krossara svo að Olga gengur með hundana í taum eftir fjörunni þangað til hún er komin í hæfilega fjarlægð, sleppir þeim og nýtur þess svo að ganga um meðan þau hlaupa og leika sér. Gamanið fékk snöggann endi þegar drengirnir á krossaranum óku greitt í áttina að þeim, augljóslega til að ögra hundunum sem æstust allir upp og hófu að elta hjólin. Þeir stoppuðu, biðu þangað til að hundarnir voru komnir nálægt (gáfu alltaf reglulega inn til að vekja athygli og æsa hundana) og gáfu að lokum allt í botn og spændu af stað. Olga reyndi og reyndi að vekja athygli þeirra og biðja þá um að stoppa en allt kom fyrir ekki! Það þarf varla að nefna það hversu hættulegt það er að keyra á ofsa hraða á krossara með ÞRJÁ hunda allt í kring. Hundar eru ekki fyrirsjánlegir, og það er ALDREI hægt að fara of varlega þegar þeir eru annars vega. Ég vil ekki hugsa dæmið til enda hefði annar hvor drengjanna keyrt á hundinn og skotist af krossaranum.
Þegar hundarnir voru orðnir þreyttir gáfust þeir upp á þessum hættulega leik og eltu Olgu í bílinn. Olga átti svo gott samtal við drengina tvo (19 ára frá Hafnarfirði) sem virtust þó enganveginn gera sér grein fyrir því hversu hættulegt þetta athæfi er. Vart þarf að minnast á það hversu reið Olga var.
ÞAR AÐ AUKI hafa þessir drengir eyðilagt mikla og erfiða þjálfun sem það er að fá hunda OFAN AF þeirri hugsun að elta ökutæki á fullri ferð. Flestir hundar hafa það í eðli sínu að elta það sem hratt fer, hægja á því, leika við það eða róa niður. Núna þurfum við Olga að byrja upp á nýtt að kenna hundinum sjálfstjórn þegar svona stendur á. Þvílíkt ÖMURLEGT þegar sú mikla vinna sem maður hefur lagt í þjálfunina er eyðilögð af einhverjum bjánum á krossara.
Olga var svo heppin að hafa myndavél með í för og náði að taka myndir af þessu hættulega athæfi. Ég læt nokkrar fylgja af þessum glæpamönnum og hundunum....
krossari1.jpg
Hér sjáið þið hvernig hann bíður eftir að Doppa og Hera koma nær..
krossari2.jpg
og nær....
krossari3.jpg
Svo var aaaallt gefið í botn!
krossari4.jpg
Hér sjáiði Heru hverfa í reykinn og sandinn frá krossaranum!
----
FORELDRAR! Ef börnin ykkar eru að leika sér á krossurum, EÐA ÞIÐ SJÁLF sýnið þá tillitssemi, stoppið og leyfið hundaeigendum að NÁ hundunum sínum, og jafnvel hjálpið þeim ef illa gengur!!!!!

Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín