Sunnudagur 08. febrúar 2009 / 22:14 / Því það er allt á fullu allstaðar..

Nóg að gera hjá minni síðustu daga! Já ég hef ekki setið auðum höndum kæru lesendur, þó að bloggið mitt hafi verið hljótt núna í 3 vikur!
Svo ég stikli nú á stóru ætla ég að gera punktablogg örugglega í fyrsta skipti á mínum bloggferli


- Ingi kom í land mér til mikillar gleði og ánægju. Þetta átti að vera stutt stopp, en karlpungurinn er enþá hjá mér :)
- Hera kom líka til mín og hún og Villi urðu perluvinir strax frá fyrsta degi. Hera fór svo fljótlega í geldingu, og var afskaplega róleg og slöpp næstu 2 daga á eftir en tók fljótt gleði sína á ný. Sérstaklega þegar ég tek fram Klikkerinn! Stelpan hreinlega elskar að æfa með klikkernum :)
- Villi fór að grennast hjá mér alveg á fullu og fór ég með hann til læknis. Þessi elska var víst með hálsbólgu en er allur að koma til og holdarfarið á góðri leið með að verða eðlilegt. Það þakka ég líka síðubitunum sem Olga vinkona færði honum - spikaðir og fínir bitar! Takk Olga! Hann var á sterum og sýklalyfjum í 1-2vikur en varð samt aldrei neitt veikur né slappur sem betur fer.
- Strákarnir hans Inga komu og voru hjá okkur í viku. Fóru heim í dag og ekki laust við að maður sakni ruglsins og bullsins í þeim. Yndislegir drengir og uppfullir af skemmtilegum orðaforða. Bara gaman að fylgjast með þeim og hafa þá þó þetta sé stuttur tími í einu.
- Ég fór með Villa í Garðheima á laugardaginn og var þar í 2 klst að kynna hann og tegundina. Ótrúlega gaman, og líka gaman að hitta annað hundafólk og sjá alla fallegu smáhundana sem við eigum hérna á Íslandi. Villi var tegundinni til sóma og tók ég þá ákvörðun að hafa samband við RauðaKrossinn við tækifæri og láta meta hann. Þá getum við farið á námskeið og orðið Rauðakross hundar og farið í heimsóknir á stofnanir og glatt gömul, veik eða fötluð hjörtu. Alltaf gott að láta gott af sér leiða, og Villi elskar mannfólkið svo mikið, mun vafalaust standa sig vel í þessu.
- Ég skrapp á Þorrablót heima í Árskógi. Ferðin byrjaði nú ekki vel þar sem taskan mín gleymdist í Vogunum og þurftum við að sækja hana (gat ekki án djammgallans verið!) og missti ég því af fluginu mínu. Eeeenn ég fór bara með næsta flugi og skemmti mér konunglega með systrum mínum og mágum. Ásamt foreldrunum að sjálfsögðu. Nefndin stóð sig rosalega vel og Kristján var með frábæran Annál að vanda. Sé ekki eftir þeim pening sem fór í að fljúga fram og til baka. Stoppað í innan við sólarhring á norðurlandinu, svo að ég heimsótti ekki neinn. Vonandi er mér fyrirgefið!
- Ekki má gleyma Aníku sem klippti mig stutt á fimmtudaginn! Ótrúlega flott og vel gert hjá stelpunni - Takk Aníkan mín! Ég er algjör gella ;)
-----
Læt þetta duga í bili, ætla að fara að kúra upp í sófanum með mannsefninu og njóta þess að vera þunn og mygluð.

Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín