Miðvikudagur 21. janúar 2009 / 22:10 / Mótmælin

Hvernig getur maður eiginlega komist hjá því að blogga um þessi mótmæli sem nú eiga sér stað. Ég talaði við mömmu í kvöld og hún varð alveg fjúkandi reið af samtalinu og sagði við mig að núna þyrftum við að breyta um umræðuefni áður en hún ryki hreinlega af stað út á götur Hauganess með pott&sleif.
Já margir eru reiðir. Það er alveg mjög skiljanlegt. Hinsvegar finnst mér einhversstaðar þurfa að draga mörkin. Grjótkast, skyrkast, eggjakast, flugeldakast og bálkestir - þetta er ekki rétta leiðin. Hverjir borga t.d. fyrir hreinsun á Alþingishúsinu? Rúðuna sem brotnaði í Stjórnarráðinu í dag? Hreinsun brunarústa víðsvegar um miðbæinn. VIÐ! Skattpeningurinn OKKAR fer í að hreinsa þetta allt saman. Hverjir haldiði að þrífið lögreglubúningana? Þeir fara ekki með þá heim og setja á 40°c. Nei nei, þetta er allt saman sett í hreinsun á kostnað... OKKAR! Ég held að við þurfum að horfa aðeins lengra en nef okkar nær. Frábært að vera með læti, láta heyrast í okkur, kalla og öskra, syngja og berja drumbur í takt. Hugsum samt áður en við köstum!
---
Ég, sem nemi í uppeldis&menntunarfræði, kemst samt ekki hjá því að hugsa um börn/barnabörn þessa þingmanna. Einhversstaðar eru þau í skóla. Tel mjög líklegt að flestir viti t.d. að hún Stína litla í 2 bekk sé barnabarn Geirs Haarde. Og hann Stebbi heyrði sko mömmu sína kalla Geir fífl og fábjána og það fær Stína litla að heyra í skólanum á morgun. Við þurfum svo sannarlega að passa okkur hvað og hversu mikið börnin okkar fá að heyra.
---
Ég verð líka að viðurkenna að ég fæ nettan kjánahroll þegar ég sé fréttirnar og meðalaldur mótmælenda skríður varla í tvítugt á stundum. Jú auðvitað finnst mörgum þetta vera kjánalæti í unglingum sem espast upp af hvort öðru. Hinsvegar megum við ekki gleyma því að ég, 23 ára gömul, ætti í rauninni að öskra manna hæst, ásamt eldri borgurum sem missti allann sinn lífeyri. Ég hef misst framtíð mína. Ég er örugg eins og er, en hvað geri ég að námi loknu? Verður einhverja atvinnu fyrir mig að fá? Get ég keypt mér íbúð? Hvað með bílalán?
Framtíðin er jafn óviss í dag, eins og hún var örugg fyrir 1 ári síðan.
----
Góða nótt....


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Helga skilningsríka:

það er búið að fara svo langt yfir mörkin því miður.........

23.01.09 23:45


Nafna (Nanna):

Ég er alveg sammála þér nafna... Ég hugsa samt að lögreglufrúrnar fái að þrífa búninga manna sinna, ég hef alla vega fengið að þrífa ælu, blóð og "líkamsslettur" úr fötum mannsins...
Ofbeldi og skemmdarverk eiga bara ekki heima við þetta tilefni...

24.01.09 20:16


Aníka:

Ég er svo innilega sammála þér í þessu öllu saman!
Við sem erum í skóla og vinnu, sem komuast ekki að mótmæla, sjáum að bara það sem gerist á mótmælunum í gegnum netið og fréttir. Þar kemst bara í fréttirnar sem er eitthvað áhugavert, það sem fór úrskeiðis og það sem átti ekki að gera. Þá er ég að tala um skyrköstin og ofbeldið. Það er eitthvað sem ég styð ekki og því miður eru það fjölmiðlar sem blása þetta upp og flytja okkur heima í stofu, með góðri samvisku.
En ég dáist að þeim sem fara og mótmæla og láta í sér heyra. Ég þakka þeim líka fyrir að standa í þessu og vera búnir að ná þessum árangri sem hefur náðst.
Yfir og út systir ;)

24.01.09 23:26


Mundi:

Mín skoðun er sú að ef það kostar auka þvott á lögreglubúningum eða nokkrar rúður að knýja fram breytingar þá lít ég svo á að það sé ásættanlegur fórnarkostnaður. Ætli það sé nú ekki dropi í hafið í öllu því sem við greiðum á endanum.

Líkamsmeiðingar og meiriháttar skemmdarstarfsemi finnst mér hins vegar ekki réttlætanleg.

En þetta er að sjálfsögðu misjafnt hvar fólk hefur sín mörk

25.01.09 22:44


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín