Þriðjudagur 06. janúar 2009 / 15:35 / Gleðilegt árið!
Komið 2009. Hálf ótrúlegt hvað tíminn flýgur hratt. 2009. Tvöþúsundogníu. 2ðús&9.
Já trúi þessu ekki ennþá. Núna er ég að njóta lífsins á Hauganesinu. Akkurat núna sit ég í náttfötunum fyrir framan sjónvarpið, samt er klukkan rétt að slá í fjögur að degi til. Ég er nú samt búin að afreka ýmislegt. Fór í klst göngutúr með hundinn, skellti mér í langt og gott freyðibað, vaskaði upp og ryksugaði húsið. Lífið heldur áfram þó að nýtt ár skelli á!
Ég vildi óska að ég gæti munað allt sem ég gerði árið 2008. Ekkert eitt stendur uppúr nema kannski brúðkaupið hjá Helgu Kristínu og Binna - sem og brúðkaupið hjá Munda og Svanhildi. Rosalega var það gaman!!
Árið 2009 er hinsvegar bjart og gott. Ég hlakka til að komast heim í Vogana og fá lífið aftur í fastar skorður. Ég tek 40 einingar í háskólanum sem er eiginlega 120% nám. Svo þarf að undirbúa ýmislegt í félagslífinu hjá Padeia þar sem ég er formaður (félag uppeldis-og menntunarfræðinema við HÍ.) Einnig ætla ég mér að sækja eins mörg hundanámskeið og ég get, taka Hlýðni prófið með Villa og skella okkur svo af fullum krafti í hundafimina. Ég ætla mér einnig að taka upp klikkerinn og fara að æfa Villa meira með honum - draga jafnvel Olgu vinkonu úr Vogunum með mér í vitleysuna :)
Ingi heldur áfram í fjarnámi en fer ekki í staðnám eins og var upphaflega hugmyndin. Það bara virkar ekki eins og efnahagurinn er núna að sleppa góðu plássi um borð í uppsjávarskipi eins og Aðalsteini Jónssyni. Ég neita ekki að ég væri alveg til í að fá hann heim að loknum vinnudegi, og kúra með honum í sófanum, fara í göngutúra og hrjóta svo í kór hverja einustu nótt. Eeeenn það þarf líka að borga hina ýmsu reikninga, fæða sig og klæða og námslánin mín duga skammt fyrir tvo fullorðna einstaklinga, tvo spræka stráka og hund.
----
Eftir að hafa keyrt landið þvert og endilagt í jólafríinu gáfum við Ingi okkur það loforð að næst þegar stefndi á ferðalag lengra en Seltjarnarnes myndum við vera búin að kaupa okkur jeppa! Þvílíkt og annað eins. Ímyndið ykkur fjögurra manna fjölskyldu með hund, farangur fyrir tvær vikur, útiföt, hundadót, hundabúr, tölvutöskur, skóladót, jólagjafir, nesti... þarf ég að segja meira?? Bíllinn var svo smekkfullur að ég sat í indjánastellingu eða með fæturnar upp á mælaborðinu alla leið þar sem gólfið hjá mér var troðið af töskum! Ferðalagið gekk þó furðulega vel og strákarnir virtust ekkert kippa sér upp við draslið.
Ég keyri svo ein suður á bóginn næstu helgi og ætla að stoppa hjá Ragga Bróður og Söndru í Efri-Mýrum. Einnig er stefnan tekin á að stoppa í Mosfellsbæ og klára samningsmálin mín þar svo Villi verði að mestum hluta minn. Það er ekki fræðilegur séns að ég muni nokkurntímann skila þessum hundi - og ef ég þarf einhverra hluta vegna að flytja úr landi kemur hann klárlega með! Ég hef aldrei kynnst svona yndislegu dýri sem elskar alla og allir elska hann.
---
Vonandi verður árið 2009 jafn spennandi og skemmtilegt fyrir ykkur og ég veit að það verður fyrir mig.
Gleðilegt ár!
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 171 færslur.
/ Álit
hlakka til að fá þig í borgina systir kær:)
07.01.09 23:50



