Fimmtudagur 04. desember 2008 / 23:26 / Jólin koooma...

Hægt og rólega hefur mér tekist að safna örfáum jólagjöfum inn í skáp hjá mér. Það styttist ískyggilega í jólin, og það styttist líka í að ég klári prófin! Eitt á mánudaginn næst komandi og svo síðasta á fimmtudaginn. Á föstudaginn flýg ég svo austur að ná í gullmolana okkar og ætla þeir að vera hjá okkur fram að jólum. Við erum strax komin með lista yfir hluti sem okkur langar til að gera þegar þeir koma, hluti sem okkur tókst ekki síðast eins og t.d. að fara í keilu! Það verður örugglega snilld að sjá Gísla Valgeir rúlla keilunni eftir brautinni - nú eða fara með henni hehehe.
---
Þessa dagana geri ég samt lítið annað en að læra, bölva því að þurfa að læra, kvarta undan því að vera að læra eða í því að nenna ekki að læra :)
Í gærkvöldi kom svo Elva til mín í heimsókn, ekkert smá gaman að hitta hana og nóóóg að kjafta! Í kvöld kom svo Snjólaug til mín!! Æðislegt að fá tvær æðislegar heimsóknir svona í röð - einmitt í prófatíð :) vegna þessa bjó ég mér til rosalegt lærdóms-plan sem farið er strangt eftir, en það gerir mér kleift að vera í fríi á kvöldin og svona. Rosalega gott að hafa þetta smá skipulagt - en það þýðir samt sem áður að ég þarf að vinna helmingi betur yfir daginn og jafnvel vakna fyrir hádegi!! Hehehe
----
Ingi er búinn að vera fyrir norðan núna í þessari viku að vinna í skipinu sem er í slipp. Hann kemur samt heim á morgun, og ég get ekki beðið!! Eftir rúmlega árs samband fæ ég enþá fiðring í magann þegar ég sé hann, kikna í hnjánum þegar hann kyssir mig og fæ stjörnur í augun af því að horfa á hann. Hann er svo yndislegur og strákarnir hans tveir eru tveir stórir og góðir plúsar.
----
Jæja þið sem eruð farin að æla ofan á lyklaborðið vegna væmninnar getið þurrkað það upp núna því ég er hætt og kem með meira seinna. Ætla að bera brúnkukrem á Snjóku mína og fara svo í sturtu ;)


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Gams:

Ég ætlaði að kommenta en gat það ekki vegna ælunnar á lyklaborðinu.

09.12.08 15:13


/ Þitt álit




Muna persónuupplýsingar?


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín