Miðvikudagur 26. nóvember 2008 / 13:39 / Vísó - Hótel Saga - Hundar
Þessa dagana er Aðalsteinn Jónsson í slipp á Akureyri. Ingi fór því norður í síðustu viku að vinna um borð, en Baadermennirnir og vélstjórarnir þurfa víst að vinna. En um helgina var svo jólaglögg Aðalsteins Jónssonar haldið á Hótel Sögu þetta árið. Virkilega vel heppnuð helgi. Fengum hótelherbergi á föstudaginn sem var vægast sagt yndislegt. Villi fór í pössun til Olgu vinkonu (enda skemmtir hann sér gríðarlega vel þar) og gat ég því andað léttara vitandi af "litla barninu mínu" í öruggum höndum :)
---
Skellti mér svo í Vísindaferð á föstudagskvöldið í NOVA. Það var rosa stuð, enda í góðra vina hópi. Eftir Vísó fór ég uppá hótel að hitta Inga minn og svo fórum við saman niður í bæ um kvöldið.
---
Á laugardaginn var sofið út og svo rifið sig á fætur að hafa sig til í Laugar/Spa. Ohh það var svooo dásamlegt! Hvíti Hummer limminn sótti okkur og var skálað í freyðivín á leiðinni. Baðstofan var ótrúlega flott og upphitaði sjópotturinn hrikalega góður. Fengum okkur smá í gogginn þar - sem reyndist vera nóg fyrir heilan her - mjög vel út látið hjá þeim og æææðislega gott. Eftir spa-ið skellti ég mér til Aníku vinkonu sem að var svo góð að greiða mér og svo mála mig líka! Guðbjörg mágkona hennar lánaði mér gerviaugnhár þannig að ég var algjört beib um kvöldið. Jólahlaðborðið var fínt. Forréttirnir voru svo hrikalega góðir að Ingi fór tvisvar - sem gerði það að verkum að tröllið mitt kom varla niður aðalréttinum hahaha. Bara snilld. Svona er að vera gráðugur :)
Örn Árnason og Óskar Pétursson skemmtu svo eftir matinn og að lokum kom SagaClass hljómsveitin og spilaði fyrir dansi. Aldrei séð aðra eins innlifun og hjá söngvaranum í þeirri sveit! Hélt fyrst að hann væri að grínast, en eftir 5 svona grettu-lög fóru að renna á mig tvær grímur.
Við skelltum okkur svo niður í bæ sem ég hefði betur átt að sleppa. Ég ætlaði nefninlega á Dráttarhundanámskeið kl 9 á sunnudagsmorguninn, en því miður var ég orðin algjörlega raddlaus um nóttina og hálf slöpp þegar ég kom heim. Nei það var ekki áfengið sem hafði þessi áhrif því ég hélt aftur af mér allt kvöldið og hætti að drekka á miðnætti útaf þessu námskeiði sem ég fór svo ekki á eftir allt saman! Ótrúlega fúlt að missa af þessu, enda var ég búin að bíða spennt eftir því. En svona er lífið og ég er búin að hanga heima með hósta, hálsbólgu, beinverki og hausverk. Finnst ég líka vera að fyllast af kvefi sem er ekki gott!
Myndir frá laugardeginum eru komnar hingað inn.
----
Í dag er ég svo búin að lána bílskúrinn í klikker-námskeið. Meistari Ylfa ætlar að mæta á svæðið og sýna okkur töfrabrögðin sem hægt er að framkvæma með hjálp klikkersins. Það munu 9 manns mæta á svæðið, en bara 6 hundar.
---
Á morgun skila ég svo af mér ritgerð um Kynlíf Unglinga í áfanga sem heitir "Áhættuhegðun Unglinga". Búnar að vera mjög duglegar og skipulagðar við Jóhönnurnar (Jóhanna Elísabet er að gera hana með mér) og ég hef aldrei áður haft svona litlar áhyggjur af ritgerðarskilum.
Prófin byrja svo á þriðjudaginn í næstu viku - sem mér þykir afskaplega absúrt því mér finnst önnin vera rétt að byrja! En það er bara að spýta í lófana og reyna að lesa augun úr yfir helgina.
---
Það hafa fjölmargir spurt mig hvað við ætlum að gera um jólin. Það er allavega orðið ákveðið að við tökum strákana yfir áramótin svo að áramótunum mun ég að öllum líkindum eyða á Bragðavöllum með foreldrum Inga, bróðir hans, mágkonu og fullt af krakkaormum :)
En jólin verða heima á Hauganesi, það er alveg klárt mál! Fer nú ekki að sleppa rjúpunni og svo hef ég ekkert komið heim síðan í ÁGÚST og get ekki beðið eftir að eyða smá tíma þar í faðmi foreldranna. Hvort að Ingi verður með mér þar eða ekki kemur í ljós seinna. Allavega verður Villi með mér ;)
---
Jæja. Best að halda áfram að skúra bílskúrinn og þurrka af þar inni áður en fólkið lætur sjá sig. Svo er líka eins gott að þrífa smá innanhúss líka ef að einhver skyldi stinga nefinu þar inn!
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
whúhú hlakka til jólana
27.11.08 00:34
hehe.. þú varst ótrúlega skutla!! enda ekki við öðru að búast frá Aníku vinkonu þinni! eða var það ekki alveg örugglega hún sem græjaði þig? ;) hehe...
27.11.08 19:46
Ein spurning...máttu fljúga með Villa norður? ;)
04.12.08 19:36



